Heimskringla - 11.11.1915, Qupperneq 4
BLS. 4
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. NÓVEMBER, 1915
HEIMSKKINGLA.
(StofnuS 1SS6)
Kemur út á hverjum fimtuðegl.
ÍTtgefendur og eigendur:
THE VIKIPÍG PRESS, LTD.
VerB blaíslns i Canada og Bandarikjunum $2.00 um áriti (fyrirfram
horgats). Sent til íslands $2.00 (fyrirfrara borgaS).
Allar borganir sendist ráCsmanni blaSsins. Póst etia banka ávís-
anlr stýlist til The Viking Press, Ltd.
M. J. SKAPTASON, Ritstjóri H. B. SKAPTASON, Ráósmaóur.
Skrlfstofa:
72» SHEKBROOKE STREET, WISNIPEG.
P. O. Box 3171 Talsiml Garry 4110
Landbúnaður og
sveitalíf.
Vér vonum, að lesendur Heims-
kringlu hafi tekið eftir stefnu þeirri
hinni nýju, sem blaðið hefir haft og
er að fullkomna meira og meira, —
en það eru búfræðis- og menningar-
greinar hinna ungu, uppvaxandi
mentamanna vorra. Það eru þeir:
Stefán A. Bjnrnason, B.A., B.S.A.;
S. J. Sigfússon, B.S.A., og H. F. Dan-
íelson, B.S.A. Þeir hafa aliir skrif-
að ágætar greinar um hin og önnur
mál, sem bændur varða. Og þetta
eru alt sérfræðingar, sem vita, hvað
þeir tala um.
En nú á seinustu árunum eru
menn farnir að sjá það betur og
bctur, hvað feykilega það er áriö-
andi, að veita alþýðunni hina nýj-
ustu og beztu fræðslu, sem hægt er
að fá. Ef að vér álítuin það gott og
gagnlegt, að ganga á skóla, að nng-
ir menn og konur verji heztu árum
æfi sinnar til að fara í gegnum Col-
lege og University, til þess að fá að
vita meira en þeir vissu áður, — hví
skyldi það þá ekki vera gagnlegt og
nauðsynlegt fyrir alla alþýðu manna
að fá kost á, að læra að þekkja meira
eða minna, eða sem mest af því,
sem í háskólum er kent? Þetta eru
menn farnir að sjá fyrir nokkru, og
hér og hvar, til dæmis uin Bandarík-
in, eru háskólarnir farnir að berjast
fyrir því, að reyna að koma há-
skólafræðslunni út meðal ahnenn-
ings, og kallast það “University Ex-
tension”. Háskólarnir senda prófess-
ora og fullnuma stúdenta út um alt
landið til þess að flytja fyrirlestn
um öll helztu áhugamál bændanna,
og svara öllum þeim spurningum,
sem fyrir þá eru lagðar og gefa all-
ar þær upplýsingar sem þeir eru
um beðnir. Þegar vér vornun syðra
seinast, þá söfnuðust allir hændur
og konur úr nágrenninu saman.til
að hlusta á fyrirlestra þessa.
Þetta er nú það, sem hinir ungu
framsóknar- og mentamenn vorir
cru nú að gjöra. Þeir hafa part af
blaðinu að rita í; þeir eru sérfræð-
ingar (experts), og er því óhætt að
byggja á því, sem þeir segja. Þeir
liafa allir brennandi áhuga á því,
eð fræða úienn og láta sem mest og
hezt af sér leiða. Þeir eru að flytja
reynslu sérfræðinganna og þekk-
ingu háskólamannanna út um bygðir
til alþýðumannanna. Hér er því eng-
in spurning urn anað en að ná sem
mestu af þessari reynslu og þessari
þekkingu, sem þeir hafa á boðstól-
um, og sem þeir eru svo fúsir og
viljugir að láta i té. Bændurnir og
konur þeirra og hin uppvaxandi
kynslóð geta ekki staðið sig við, að
tapa neinu af því, sem þeir segja
eða rita. Þér þurfið, vinir, að ná
því öllu saman. Það kemur smátt
og smátt en jafnt og stöðugt.
Lítið eftir greinunum, vinir góðir.
Yfir allan hnöttin.
Ilart smýgur kúlan i gegnum loft-
ið; langt fara skeytin úr Krúpp-
byssunum stóru, eða hinum stóru
fallbyssum Breta og landvarnarbyss-
um Bandarikjanna, 25 til 35 milur;
— en músaspor eru það í saman-
hurði við mannsröddina, er hún
smýgur um loftið og gegnum sjálf-
an jarðarhnöttinn, send af hinum
Jjráðlausu telefón-tækjum. Ilún eins
og leitar að stað þeim, þar sem móti
henni verði tekið, svo að hún geti
látið heyra hljóminn mannsraddar-
innar; sömu orðin, sama málfærið,
sama hljóðið, svo að þú þekkir hin-
ar óendanlegu tilbreytingar manns-
raddarinnar, og veizt undir eins,
hvort það er vinur þinn eða einhver
annar, sem talar við J)ig, eins og
væri liann í fárra feta fjarlægð.
Kapteinn Bullard í Bandarikjun-
um talaði í seinustu viku frá Arl-
ington í Virginiu við Eiffelturninn
i París; og gat hann Jiess, að brátt
kæmi sá dagur, að flotamálaráðgjafi
Bandaríkjanna gæti setið á skrif-
stofu sinni og sent skipanir sinar til
herskipa Bandaríkjanna, hvar sem
þau væru á hnettinum.
Eins ættum vér íslendingar, að
geta sent röddu vora gegnum hnött-
inn og talað við vini vora á íslandi,
i Danmörku, í Asíu, Afriku eða Ástr-
alíu, — ef að vér að eins hefðum
tækin til þess og þeir önnur til að
hlusta eftir því, sem vér segjurn.
Takið ráð í tíma.
í grein Jieirri, eftir Mr. Trumbull,
Bandaríkjunum, sein prentuð er hér
í blaðinu, sjáum vér hvað hinir allra
merkustu Bandaríkjamenn hugsa um
straum hinna útlendu þjóða inn i
landið og veru þeirra þar.
En ef að ])örf er á aðgæzlu og að-
gjörðum í þessum málum i Banda-
ríkjunum, J)á er það engu siður hér
i Kanada, og J)að því fremur, sem
straumurinn í rauninni er harðari
hér, þar eð hér eru færri fyrir af
ínnlendum enskum mönnum eða
gömlum innflytjendum, sem nú eru
orðnir sem frumbyggjar landsins.
Þess vegna getur straumur innflytj-
endanna yfirgnæft og fengið yfir-
hönd á stöku stöðum yfir íbúum
iandsins. En við því'er miklu síður
hætt í Bandaríkjunum.
Vér megum því sannarlega taka
oss þetta til íhugunar. Það er ekki
alténd gott að sofa af sér morgun-
störfin og þar eð tungumálið er hinn
sterkasti sambandsliður í landi
lrverju, þá þurfa menn að líta eftir
því, engu síður hér en annarsstaðar.
Til “Þjóðviljans”
Það gleður oss, að Þjóðviljinn
hefir tekið eftir því, er vér sögðum
um ummæli hans um hluttöku Kan-
ada í nauðum Breta. Vér ætluð-
umst til þess. Og vér viljum bæta
því við, að vér þurfum ekki og vilj-
um ekki sækja menn út á Island til
að hvetja oss til landráða eða að
bregðast landinu og Jijóðinni, sem
bezt hefir farið með oss. Og vér
ætlum það heppilegast fyrir Þjóð-
viljann, að tala sem minst um það
mál, sem hann þekkir ekki til, eða
sem hann, fyrir sína siðferðislegu
byggingu getur ekki skilið.
En sé það í huga Þjóðviljans, að
halda fram málstað Þjóðverja, hin-
um materialistisku siðferðiskenn-
ingum Jieirra með hermanna og
junkara-valdinu; þá eru slíkar vörur
ekki gjaldgengar hér; þær eru illa
þokkaðar og verða það fyrst um
sinn.
Þjóðræknissjóðurinn.
(Patriotic Fund).
Manitoba hefir lagt inest allra
fylkjanna til Þjóðræknissjóðsins ár-
ið sem leið. Alls lagði fylkið í þann
sjóð $750,000, eða Sl.42 á mann. En
taki maður alt Canadaveldi, J)á verð-
ur tillagið til sjóðsins ekki nema 70
cents á mann. Og hefir Jjví Mani-
toba lagt helmingi meira en hin fylk-
in eftir höfðatölu. Sjófvlkin austur
frá lögðu frain 30 cents á mann;
Quebec 30 cents; Ontario 08 cents;
Saskatchewan 40 cents; Alberta 48
cents, og Britisli Columbia 78 cents
'ú hvert höfuð.
Alls voru framlögin í Canada
$5,350,000; og var það heldur lítið
fyrir þarfirnar. Næsta ár er búist
við, að til sjóðsins þurfi $7,500,000,
eða nálægt því $1.00 á hvert höfuð.
Iin ef að hin önnur fylki hækkuðu
framlög sín upp í einn dollar næsta
ár og Manitoba fylki legði líkt fram
og þetta ár, Jiá myndi sjóður þessi
fyllast og hafa afgang nokkurn.
Manitoba menn geta því verið á-
nægðir með sjálfa sig; þó að fylkið’
sé ungt, þá eru þeir þarna efstir á
blaði fyrir þetta liðna ár. Og svo
ber þess að gæta, að Jietta eru ekki
hin einu framlög þeirra, tillögin til
Þjóðræknissjóðsins. Þeir hafa líka
iagt rausnarlega fram fé til Rauða-
kross sjóðsins og annara hjálpar-
sjóða. Má því segja, að þarna séu
þeir i fararbroddi.
Þökk sé Manitoba!
Ræða Asquiths stjórnar-
formanns.
Stjórnarformaðurinn gat þess i
byrjun ræðu sinnar, að hann væri
fyllilega sannfærður um, að Banda-
menn myndu vinna sigur í stríði
þessu, — algjörðan sigur, hvort sem
Jiað tæki langan eða skamman tíma.
En menn yrðu að vera þolinmóðir
og staðfastir; menn mættu ekki
æðrast þó að eitthvað syrti í lofti;
það væri æfinlega svo, þegar stríð
væru. En menn yrðu að taka því
með hugrekki og staðfestu.
Hann sagði, að stjórnin hefði
cngu að leyna. Og hann skýrði frá,
hvernig ástandið væri. Gat hann
l)ess, að í ágústmánuði fyrir ári síð-
an hefðu þeir að eins haft 6 sveitir
(divisions) af fótgönguliði og af
riddaraliði til að senda Frökkum til
hjálpar. Iin nú hefði French hers-
höfðingi getið þess í hinum sein-
ustu skýrslum að hann hefði undir
stjórn sinni á vígvellinum eina mil-
lión manna. (Bretar halda nú 60
mílna spildu þarna í F’landern). Og
við þessa millíón manna má bæta
öllu liðinu í Hellusundum, í Egypta-
landi, við Tígrisfljót; öllu setulið-
inu í borgum og kastölum um allan
lieim og öllu varaliði, og því, sem
enn væri við æfingar. En af vel skilj-
anlegum ástæðum vildi hann ekki
gefa ákveðnar tölur.
Asquith er nú orðinn heill heilsu
aftur og búinn að flytja ræðu þá,
sem sagt var að hann ætlaði, á
J)ingi Breta. f ræðu þeirri þótti
stjórnarformaðurinn koma svo vel
fram, að hann hefir hrundið öllum
ámælum J)eirra, sem voru að bera
ásakanir á stjórnina. Hann tekur
fúslega upp á sinar herðar alla á-
byrgð fyrir glappaskotin, sem menn
voru að ásaka stjórnina fyrir út af
Hellusundunum. Og nú hverfur ým-
islegt það sem áður þótti óhæfa ein.
Þegar skýringarnar komu, þá varð
annaðhvort Htið úr því eða J)að
hvarf með öllu. Og þeir, sem mest
höfðu þanið sig á móti stjórninni,
höfðu nú ekkert að segja. Það var
sagt, að Bonar Law hefði ætlað að
segja af sér ráðgjafastöðunni: en
eftir ræðu Asquiths lýsir hanri Jivi
yfir, að hann sé alveg hættur við
það.
Kæða hans er löng nokkuð og tök-
um vér að eins útdrátt úr henrii.
Hann lofaði mjög tillög Inda og
Ganadamanna; Ástralíumanna. Suð-
ur-Aríku búa og Nýfundnalands,
Ceylon og eyjanna í Kyrrahafinu.
Allir hefðu sent menn,— allir hefðu
komið að hjálpa Bretum. — Hálfa
millíón manna sagði hann að Bretar
hefðu þurft að flytja á sjó, lengri og
skemri veg; tvær og hálfa inillión
tonna af vopnum og vistum og 800,-
000 hesta og múlasna. En 320,000
særða menn hefðu þeir orðið að
flytja heim aftur.
Manntjón J>að, sem Bretar hefðu
beðið, væri mikið; en þó væri það
að eins einn tíundi af 1 prósent af
mönnum þeim, sem til striðs hefðu
farið. F2n hvað flotann snerti, þá
sagði hann að starf hans vwri svo
framúrskarandi, að aldrei í sögunni
hefðu nokkur dæmi fundist til ann-
ars eins. Það bæri ekkert á þeim,
herinönnunum á flotanum; enginn
hefði heyrt neitt um afreksverk
þeirra; enginn eða fáir vissu, að
þeir væru að gjöra nokkuð að gagni.
En þeir væru samt sivakandi nótt og
dag; einlægt á ferðinni, einlægt i
háska. Þeir væru búnir að sópa öll
heimsins höf, svo að nú væri hvergi
skúta eða snekkja óvinanna á rúin-
sjó úti. Hinn mikli floti óvinanna
væri undir Jásum sterkum í höfnum
inn"i og þyrði ekki að koma út; en
neðansjávarbáta Þjóðverja yrði nú
litið getið héðan af.
Á Rússa mintist hann með lofi
niiklu. Kvað þá vera hina ágætustu
hermenn, hugrakka, þrautseiga og
ötula, og hann treysti því, að bráð-
lega kæmi sá tími, að þeir hryndu
Þýzkum af höndum sér og hrektu þá
inn í Þýzkaland aftur.
Á herferðina upp af Persaflóa,
ireðfram Euphrates og Tígris fljót-
um, mintist hann og sagði að þar
hefði þurft að sigrast á ósegjanleg-
um erfiðleikum. En nú væri lið
Breta komið nálægt Bagdad, borg-
inni miklu, sem vér þekkjum úr þús-
und og einni nótt. Og einlægt færu
Bretar þar sigri hrósandi.
Svo gat hann um herferðina til
Hellusunda, sein heimasæturnar
hefðu ásakað Churchill svo þung-
lega fyrir.
Frá þeirri stundu, er Tyrkland
gekk í stríðið, var Bretum ómögu-
legt að binda stríðið við F'rakkland
og Belgíu. Tyrkir voru þess albún-
ir, að fara á stað með 2 millíónir
manna. Þeir héngu sem þrumuský
yfir Egyptalandi og hefði þeim orð-
ið nokkuð ágengt, þá hefðu þeir af
stað komið “heilögu stríði’’: nefnil.
að drepa alla kristna menn, hvar
sem þeir næðu til þeirra, en hrinda
öllum hvitum mönnum úr löndunum
í Asíu og Afríku. Og þá var allur
Balkanskaginn orðinn að eldhafi
cinu.
Það hefði undir eins komið til
umræðu, að ráðast á Hellusund á
,>jó, og allir færustu sjóliðsforingjar
og siglingamenn hefðu verið spurð-
ir til ráða. Niðurstaðan hefði orðið
sú, að reyna þetta. Það myndi
stöðva Tyrkja og fá þeim nóg að
gjöra; og Rússa vegna var nauðsyn
á Jiessu, ef hægt væri að opna sund-
ið og senda þeim vopn og skotfæri.
Svo var farið á stað og fór flotinn
lrægt og gætilega fyrst; en brátt
sást liað, að ómögulegt væri að gjöra
neitt, nema landher væri líka.
En þarna á tanganum hefðu verið
200—300 þúsundir Tyrkja til varnar,
og fjallvígið Achi Baba væri líklega
hið sterkasta vígi i heimi. En ef að
Jieir hefðu unnið sundið og kastal-
ana, þá hefði hagnaðurinn verið al-
veg ómetanlegur. En sem stæði
hefðu neðansjávarbátar Breta farið
um sundin, — skriðið með botni og
inn í Marmarahaf, og J)eir væru nú
búnir að sökkva tveimur stórum
brynskipum, fimm smærri, 8 flutn-
irigsskipum með hermönnum, og 197
flutningsskipum Tyrkja með vopn-
um og vistum. Ef að þeir hefðu
ekki verið þarna á skaganum og
við sundin, þá gæti enginn sagt,
hvernig farið hefði á Egyptalandi
og í Kákasus. Tyrkir liefðu kanske
verið búnir að taka Kákasuslöndin
og komnir inn þaðan í Rússland að
sunnan, og kanske allar Balkanjijóð-
irnar komnar með Vilhjálmi.
Hann sagði, að það væri alt ann-
að en gott að eiga við Balkanþjóð-
irnar. Þier væru þarna fjórar og
hver vildi skara eld að sinni kiiku;
hver vildi hafa sem mest af löndum
og eignum annarar, og þar þyrfti
einlægt að ráðgast við fjórar stjórn-
ir. Hann sagði, að Bre-tum væri
öðrnvísi varið en öðrum þjóðum.
Þeir vildu ekki svifta bandamenn
sína eignum J)eirra eins og Þjóðverj-
ar og fá þær öðrum í hendur. Þeir
kynnu ekki við og ætluðu sér aldrei
að svíkja orð sín og eiða, eins og
Grikkir breyttu við Serba, og þegar
Búlgarar fóru að kalla saman lið sitt
núna 21. sept., J)á hefði Venizelos
stjórnarformaður Grikkja skrifað
Frökkum og Bretum og beðið J)á um
liðsstyrk, 150,000 inanna, og fullviss-
að þá um samtimis, að Grikkir
myndu kalla saman alt sitt lið og
ganga í stríðið með þeim. Samt
hefði Venizelos ekki getað samþykt,
að ])eir lentu i Salonichi fyrri en 6.
október. En 4. október hefði hann
lýst því yfir á þingi Grikkja, að
Grikkir yrðu að halda eiða sína við
Serba og berjast með Jieim. Fin J)á
stökk konungur Grikkja heim og
rauk á Venizelos, og lauk þvi svo,
að Venizelos varð að fara. Afleiðing-
in af því varð sú, að Serbía varð
ein að taka á móti áhlaupi Þjóðverja
og Austurrikismanan og Búlgara.
Vér, Bretar og Rússar og F'rakkar,
gátum ekki þolað að Serbar yrðu
troðnir undir fótum og slitnir sund-
ur af óvinum þessum, sem með ill-
mensku og svikum hafa beitt þá
fjessum brögðum. En nú hafa aðal-
foringjar og æðstu menn Frakka og
Breta verið í samráðum um þetta,
og hinn frægi yfirforingi Frakka
hefir sjálfur komið hingað, og það
gleður mig að geta sagt, að vér erum
allir eins hugar, bæði hvað vér skul-
um gjöra og hvernig vér skulum
haga því. F7g má ekki segja meira.
En Serbía má treysta því, að vér
skulum aldrei líða að aðrar þjóðir
brjóti hana undir sig; það skal vera
eitt aðal augnamið vor allra, að
Serbía verði frjáls og óháð, þegar
stríði þessu er lokið.
—- — Það má segja, að aldrei hafa
Bandainenn verið jafn einhuga og
einbeittir, að spara nú ekkert og
lialda áfram að berjast, þangað til
fullkominn sigur er unninn, eins og
einmitt nú, — hvort sem það tekur
langan eða skannnan tíma.
ÞORVALDUR PALMASON.
(F'yrir hönd G. S.).
Þér var gefið æskuþrek og þor,
eg þarf nú eigi kostum þeim að lýsa.
A eftir vctri aftur ketnur vor,
þá önduð blám úr diifti sinu rísa.
Þá kaldur gustur svífur yfir sand,
þitt svipleyt hvarf er mér í fersku
minni.
Þig hylur, vinur, ennþa báruband
oy boði rís á grafhvelfingu þinni.
A. E. tsfeld.
Members of the Commercial Educators’ Association
E. J. O’Sullivan,
M- A. Pres.
Stærsti verzlunarskóli í Canada. Býr fólk
undir einkaskrifara stöðu, kennir bókhald, hrað-
ritun, vélritun og að selja vörur
Fékk hæstu verðlaun á heimssýningunni.
Einstaklingskensla. Gestir velkomnir, eink-
um kennarar. öllum nemendum sem það eiga
skilið, hjálpað til að fá atvinnu. Skrifið, komið
eða fónið Main 45 eftir ókeyiiis verðlista með
myndum.
THE WINNIPEG BUSINESS COLLEGE
222 Portage Ave...Cor. Fort Street.
Enginn kandídat atvinnulaus.
“Jón Skruðningur”.
Jón Skruðningur er alþektur hér
í Reykjavík. Nafnið hefir hann
fengið af því, að hann fær stundum
svo afskaplegar innantökur, að hann
fær ekki af borið og fylgja þeim
garnagaul sem heyrast langar leiðir.
Nú nýlega hefir hann fengið eitt
flogið og segir hann, að stefnuskrár
þær, sem birtar hafa verið í blöðun-
um hafi valdið og sendi Vísi í gær
stefnuskrár þessar. Þar í er þetta:
Vér viljum spyrna, og vinna móti
vargaskap lýðsins, ragni’ og blóti,
og gefa’ út skikkanlegt skammablað
Væntum vér þess, að einn og allir
orðhákar lands í skensi snjallir
skammist til þess að skrifa’ í það.
Vísir.
Kvæði flutt á fjörutíu ára afmælishátíð
Nýja Islands.
/ ______________
i.
Formannsvísur. (Minni Capt. Sigtryggs Jónassonar).
Fjarað hafa fjörutíu árin
Fyrstu, af bezta landi vestra —
Sjór, er var áður sigldur fari,
Siginn út og í djúpið hniginn.
Fortnaður snjult og frægri öllum
Féri heilu kominn úr veri,
lteri þar uns þornaði sjórinn,
Þannig strandaði hann á landi.
Engu tupað, en öllu skipað
Upp, hefir kappinn og þakkað happið;
Allra fyrstur út á vastir
Utar flestum sótti hlulinn.
Kjörviður er í knerri dýrum
Kyljum jafnt sem þoldi bylji. ,
Verður sá með súðir ófúnar
Settur i naust á fimbulhausti.
Fœrri hásetar hafa kurrað
Hér um borð, þó hann kæmi á norðan,
Hetdur en þar sem stóð við stýrið
Stjóri annar að skipa og banna.
Bróðnrorði og anda, firðar
Allir jafnir frá skut að stafni
Héldn stefnu, striddn við öldur,
Storminn þoldu, er öðrum hvolfdi.
Atlir fá jafnt af afla hollum
Ungir, fornir og menn óbornir.
Þeim að gildi þúsundfaldast
Þessi arfur og laun fyrir starfið.
Iilægir mig að hérnamegin
Hafsins áta, þjóðar sálir
Fituia eins þegar aldir renna
Arðinn góða af þessum róðri.
II.
Nýja fsland.
Bygðin ertu mesta,
Hin beztu
Og stærsta.
Bygðin ertu helzta
Hin elsta
Og kærsta.
Fegurst áttu kvœði
Og fræði
Og hljóma,
Fuglasöngvabólið
Og skjólið
Þíns blóma.
Skógarljóðin hljóma
Og óma
IJm engi,
IJndir leika vogar
Sem bogar
Við strcngi.
Haddir náttúrunnar,
Oss kunnar
Og kærar,
Kveða ekki viðar
Eins þýðar
Og skærar.
Tungu vorrar griðland,
Þú friðland
Hins forna
Fjársjóðs vors i bögu
Og sögu
* Þess horfna.
Móðir þeirra svanna
Og manna,
Sem ganga
Mentaveginn hraðast
Og glaðast
llinn stranga.
Talið er þig saki
Af akri
Að áttu
öðrum bygðum smærra,
En hærra
Samt máttu
|
1'
Stefna, hvar sem fer þú,
Langt ber þú
Af bygðum
Beztu móður líkust
Og ríkust
Að trygðum.
fíauna þinna þætti
Hér ætti
Að inna,
Eldtendrandi þræði
I kvæði
Hér finna.
— Birtir yfir lundi
Og sundi
Ef sortinn
Sólar bogaskotum
Og sprotum
Er snortinn.
Rækt við þig það glæddi
Og fræddi
Um framför
Feðra vorra, bræðra
Og mæðra
Á samför
Frarp til betri daga,
Því Saga
Það sannar
Sjálf, að ógreið leiðin
Og neyðin
Oss mannar.
IIug minn tengir trygðin,
Þér bygðin
Mín bjarla,
fíezt hefirðu lýst mér
Mér þrýst þér að hjarla.
Sá, sem vikur frá þér
En hjá þér
Er hálfur
Heim til sin ei ratar
Og glatar
Sér sjálfur.
Gutt. J. tíuttormsson.
t»»»»»»»»^»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦▼
♦»♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦»