Heimskringla - 27.01.1916, Síða 2

Heimskringla - 27.01.1916, Síða 2
* BLS. 2 IIEIMSKRING L A. WINNIPEG, 27. JANÚAR 1916. Bændur, notið nú tækifærið! fteglitr og útskýringar fgrir úthlutun á sýnishorni af sáökorni og kartöflum frá fyrirmynd- arbúum Canada. 1. Aðalúthlutun á þessu fer fram frá Central Experimental Farm, Ottawa, og er vanalega bundin við spring wheat, barley, white oats og field peas. Útsæðis kart- öflur má fá frá mörgum fyrir- myndarbúum, en leita verður hver til þess fyrirmyndarbús (Experimental Farm), sem er i hans héraði. Sýnishorn eru send frítt með pústi og eru ]þetta á þyngd: — Spring wheat, 5 pund; barley, 5 pund; oats, 4 pund; peas, 5 pd., og potatoes, 3 pd. 2. Allar beiðnir um sáðkorn (og frá Ontario og Quebec um kartöflur) verða að sendast til Dominion Cerealist, Central Experimental Farm, Ottawa. En bændur í öðr- um fylkjum en Ontario, sem vilja fá kartöflur, verða að skrifa til næsta fyrirmyndarbús (Experi- mental Farm), eða til: Brandon Experimental Farm í Manitoba, til Indian Head Experimental I'arm i Saskatchewan, og LetJi- bridge eða Lacombe Experiinen- tal Station í Alberta. 3. Hver umsækjandi verður að skýra frá þekkingu sinni á rækt- un korntegunda eða kartafla, svo að þeir, er senda, sjái og skilji betur þarfir hans og sendi hon- um það, sem hann hefir bezt not- in af. 4. Upplýsingar verður hver að gefa um jarðveginn, sem hann ætlar að sá í. og hvaða tegundum korns þar hafi verið sáð áður. 5. Bændur i Manitoba, Alberta og Saskatchewan verða að geta þess 1 beiðni sínni, hvar lönd eða bú- garðar þeirra scu. ft. Indian Corn, garden peas, garð- fræ. tréfræ, tré. plöntur eða legg- ir trjáa til útsæðis, er ekki út- býtt af fyrirmyndarbúunum . 7. Bændur, som fá vilju útsæði i stærri stýl cn hér er getið, ættu að skrifa til næsta fyrirmyndar- bús um það, hvar Jieir helzt ættu að kaupa útsæði sitt. Bændur—Lesið! ♦ þvi er oft brugðið við, að heimil- idfeðurnir á búgörðunum séu býsna vinnuharðir við börnin sín. Þvi er dkki að neita. að oft yfirgefa ung- öngarnir foreldrahúsin og fara á víð g dreif, af þvi að þcim er gjört lífið erfitt heima á æskustöðvunum. Erf- i'ðleikarnir eru: ekki strit eða hiirð vinna, heldur vanþakklœti og ekk- ert endurgjald. Hagsýnn bóndi sér, að bezta og trúasta vinnufólkið er börnin hans; þau eru líka beztu og bollustu meðráðamennirnir, þegar þau vaxa upp. Hvílik fásinna, að fæla þau frá sér með nízku og nöldri — og standa svo eftir einn i ellinni! Foreldrarnir álita, að þau þurfi að spara, til þess að geta skilið eignir efljir handa börnunum, þegar þau falla frá. Þetta er rangt hugsað. Eini arfurinn. sem hver unglingur á heimtingu á að fá, er gott uppeldi og góð uppfræðsla, sem gjörir hann (eða hana) færap um, að vinna sjiálfum sér og öðrum gagn. Þetta eiga þau að fá í heimahúsum, að rins miklu leyti og unt er. Skólarnir, unglingafélögin,. búnaðarfélögin og búnaðarritin, kyrkjan sjálf, — eru þau öfl, sem hver búandi á að styðja að og fullkomna sem bezt, hver i sinni sveit, svo að öll börnin, bæði þau bráðgáfuðu og eins liin, sem æf til vill hneigjast meira að verklegri þekkingu. heldur enn bóknámi, ge.ti náð Jiciin þroska, sem hæfileikar þeirra framast geta á inóti tekið. - Sumir foreldrar, sem eru dálítið metnaðargjörn, senda gáfaða son- inn eða flugskörpu dótturina frá sér til bæjar, til að stunda nám við há- skóla og verða kennarar, læknar, prestar eða lögmenn. Gott og vel. Tvent er samt íhugunarvert: — 1( Þurfa hin börnin um leið að neita sér um alla framför og öll þægindi, til þess að “útvalda” barnið geti haft geninga til að komast áfram? — 2) Hefir “útvalda” barnið fengið svo nikla uppfræðsJu og mentun heima, að það geti réttilega farið út i bæj- arlifið og orðið sjálfu sér og öðrum til uppbyggingar? — Það hættir svo[ við Jjví, að mentunin dragi fólkið frá wskustöðvunum og sveitalífinu og setji það á einangrunar-bekk “heldra lýðsins”, sem lifir í bæjun- um. Það gjörir ekkert, hvort farsæld einstaklingsins um eina kynslóð er ineiri eða minni, — en er það heppi- legt og æskilegt fyrir þjóðina i heiid sinni? Ef að bráðgáfaða fólkið (og aðrir, sem þykjast vera þaðl) dreg- ur sig út úr aðalstétt landsins, hver verður J>á endirinn Fjölskyldufeðurnir ættu því að vera vel vakandi fyrir þvi, að gjöra alt, sem hægt er, fyrir börnin sín, svo að þau öll geti þroskast og orð- ið sjálfstæðir borgarar. Það er sjálf- sagt og eðlilegt, að sumt af duganda, drifandi fólkinu úr sveitunum fari til borganna og verði leiðandi menn og konur i stjórnmálum, verzlunar- inálum og mentamálum. En látum oss eigi lengur borga hinn œgilega toll, sem hingað lil hefir goldinn verið, nefnilega: að fyrir hvern einn, sem flyzt til bæjar og verður sér til sóma, skuli ef til vill hundrað annaðhvort þurfa að sitja heima og vinna stritvinnn alla æfi; eða það, sem verra er, flækjast í bæjifta og hreppa ólán og ómcnsku, scm sitt hlutskifli. Æfin er stutt og hver manneskja, sem kemst til vits og ára, á siðferð- islega heimtingu á, að fá tækifæri til að nota til fullnustu þá hæfileika, sem henni eru gefnir. Nú viljum vér slá á annan streng, og benda vkkur, bændur og bænda- konur, á dálitið, sem er fróðlegt fyr- ir ykkur að vita: Börnin ykkar vinna samhliða ykkur við að rækta jörðina og ala upp kvikfénað. Þið getið ef til vill ekki gotdið þeim kaup úr eigin vasa, til að gjöra þau ánægð. En þið getið gjört það, sem er miklu meira virði. Lesið grein- fna: “SÖnn álfasaga” í þessu blaði, og sannfærisl. Hefir ykkur nokkurn tíma hugsast.slikt? fíörnin geta auk- ið framleiðslu fylkisins á einn ári svo milíónum dollara nemur! Þau j gjöra það i fristundum, að heita má, —- vinna málaverk, ganga á skóla og j alt. Og þau gjöra betur. Með til- íhjálp umferðakennara. bæklinga og J blaða, læra þau nýjustu aðferðir við I framleiðslu, svo Jietta gengur alt | svo Ijómandi greitt og Ijúflega. F>u börnin viljug til að gjöra Jietta? iReynið og sjáið! Unglingarnir eru j engir letingjar, Jiau sprikla af fjöri |og kátínu, þau leika knattleik, ! fótboltaleik, hlaupa og stökkva. Þvi 'ekki að veita þessum ungu kröftum | inn á annan farveg, — og lofa þeim að lcika sér við það, að framleiða anð (peninga virði)? Þau fá verk- lega uppfræð.slu, borgun, mentun og leikaraskap alt i einu, með J>vi að taka Jiátt i búnaðarsamkepninni. Og alt Jietta geta þau gjört í hjávcrkum. Heyrið mig:. Ef eg byði ykkur ið koma með mér út á akur eittihvert kveldið og segði ykkur að við gæt- um tínt laufblöð, sem yrðu að græn- um dölum, “rétt í hjáverkum”, — mynduð þið vilja koma með mér? En-------lesið söguna, — hún cr sönn orð fvrir orð, — og-----lesið sögunal -—fí.— Búnaðarfundirnir á M.A.C. Eins og öllurn er kunnugt eru bún- aðarfundir, búnaðarnámsskeið karla og kvenna og sýningar haldnar á Manitoba landbúnaðarskólanum á hverjum vetri. Stendur þetta yfir vikutíma og er það um sama leyti og “Bonspiel” leikirnir standa yfir. Er þetta gjört til Jress, að gjöra fóJki hægra fyrir með að koma i borgina sér til uppbyggingar og skemtunar. Far með járnbrautum er niðursett, og er “single fare” með öllum járn- brautum. Ársfundir og þing ýmsra sam- j banda eru sem fylgir: llome Economic Socielies, 15. og; 16. febrúar. fírain Cleaning Contesl and Agri-j ciiltural Implement Display, 15. fe-[ brúar. fíee-keepers Association, 15. og 16.1 febrúar. fíoys’ Grain Jadging ConteSt, 15. febrúar. Canadiun Seed fírowers Annnal' Meeting, 16. febrúar. Agricultural Societies’ Convention 16. og 17. febróar. Manitoba Poultry Congress, 16., 17. og 18. febrúar. Horticultural Convention, 17. og 18. febrúar. fíeunion Ex-Slndents M.A.C., 17. febrúar. District fíepresentatives Confer- ence, 15. og 16. febrúar. Stntt námsskeið á landbúnaSar- skólannm. Ilome Economics (Hússtjórnarfé- laga), 11. jan. til 31. marz. Animal Husbandry, 24. janúar til 12. febrúar. Field Husbandry, 24. janúar til 12. febrúar. Agricultural Engincering, 24. jan- úar til 12. febrúar. Poultry fíaising, 11. janúar til 22. febrúar. “Bonspiel vikuna verða li'ka sýn- ingar á margvíslegum iðnaði kvenna og stórkostlcg kornsýning, sem stend ur yfir frá 10. til 15. febrúar. Vcrða beiðnir um að sýna 'korn að vera komnar til Extension Service Mani- toba Agricultural College fyrir 8. febrúar, og kornið sjálft fyrir þann 11. s. m. Department of Agriculture borgar undir það. Þeir, sem sýna korn, senda (4 bushel og verða að hafa annað eins heima af sömu teg- und hreinsað, sem Jieir einir senda siðar meir, scm verðlaun Jdjóta. Kornið verður að hafa verið ræktað árið 1915 og verður að taka sýnis- hornið af 50 bushels. Á þessari sýningu verður til sýnis útsæðiskorn, sem cr til sölu viðs vcg- ar um fylkið. Hafa menn áður sent prufur af J)ví til skólans, og látið prófa frjómagn þess. Er það siðan markað á sýnishornin, og sömulcið- is l>að, hvað hátt prósent af korninu er hreint og óblandað illgresi og öðr um tegundum. Það er því heppilegt fyrir bændur að fara á sýninguna til þess að velja sér útsæði. Aldrei fyrr hafa verið boðin eins verðmæt verðlaun eins og gjört verður á þessari sýningu, og eru þau gefin af ýmSura félögum. verðlaunanna eru: Weed Destroyer, fíasoline Eng- ine, Fanning Milt, útmetnar Cldavél- ar, mikið af silfurmunum, dýrindis skrifborð, þvoltavél og ketill til að snúa henni, vandaðar myndavélar, bókaskápur o. s. frv. Sem flestir landar ættu að taka einhvern J>átt i þessum fundum og sýningum. Þar verður mikið af ýmsu uppbyggilegu og skemjilegu að sjá og heyra. —ö,— ------------------------\ Æskulýðurinn. j Sönn álfasaga. Formáli. — Gömul dæmisaga. Börnin hafa víst öll lesið dæmi- söguna um bræðurna J>rjá, sem voru bóndasynir. Þeir bjuggju sig út einn morgun, með nesti og nýja skó, — til að fara á stað til konungshallir- innar. Hjá hinum rika konungi ætl- uðu þeir að staðnæmast og verða miklir menn. Eins og eg sagði í byrjuninni, voru bræðurnir þrír, og þeir hétu: Pétur, Villi og Jón,— J)ið kannist öll við þá. Þið munið, að J>eir fóru á stað i áttina til konungshallarinnar og skemtu sér vel á leiðinni. En Jón var mjög eftirtektasamur, og sá því margt, sem bræður hans gætttu ekki að. Hann lærði margt og nytsamt á leiðinni og eignaðist J)rjá kostgripi, nefnilega : exi, sem gat höggvð sjálf; skóflu, sem gat grafið, án þess að nokkur stýrði henni, og hnotu, sem hafði svo mikið vatn í sér, að hún gat gefið heilan læk af tæru, hreinu drykkjarvatni. Þegar piltarnir komu til konungshallarinnar og ætluðu að fara að sýna listir sinar, þá var Jón sá eini, sem gat unnið Jirekvirkið, sem konungur lagði fyrir þá. jóri varð ríkur og vel metinn maður, en bræður hans urðu þjónar hans, af Jiví þeir höfðu ekki notað tækifærin til að uppfræðast og verða nýtir menn. Þeir héldu áfram að leika sér á leiðinni til hallarinnar, en Jón rannsakaði það sem fyrir augun bar og lærði af Jm. Þess vegna gekk honum betur en bræðrum hans, — og hann liefir sjáLfsagt verið mjög ánægður með sjálfan sig. Þetta er auðvitað dæmisaga. Nú skal eg segja ykkur álfasögu, sem er sönn. Hún sýnir líka, að það er mik- ils virði, að vera námfús og eftir- tektasamur. Og eg skul segja ykkur dálítið i viðbót: Hvert ykkar sem er, getur Orðið álfasveinn, eða álfa- mær, og leikið þessa sögu heima hjá ykkur! Hefir ykkur nokkurn tíma Inngað til að sýna dugnað, svo að pabbi og inamma hæli ytkkur fyrir, og þyki vænt um ykkur? Væri ekki gaman, að geta sýnt þeim, hvað þið eruð dugleg! Jón (í dæmisögunni) hefir sjálfsagt J>otið heim til sín og gefið foreldrum sinuin alt, sem þau þurftu með. Ilann gat það svo vel, af J)ví 'hann var bæði vitur og dug- legur, og var orðirin inikill maður. Nú getið þið, drengir og stúlkur, gjört nokkuð, sem jafnast á við dugnað Jóns (í dæmisögunni). Þið þjótið öll upp í einu og spyrjið: “Hvernig, hvernig?” Eg skal svara því með því, að segja ykkur sönnu álfasöguna uin börnin i Bandaríkj- unum (nágranna okkar), sem léku sér að því í hjáverkum, að græða margar miliónir dollara á einu ári! Og verðlaunin voru líka góð, — en hérna er nú sagan, eins og húu gckk til: Álfasaga, sem er sönn. Bandarikjaþjóðin er mjög fram- frasöm. Þess vegna eru Bandarikja- menn æfialega fljótir til að taka upp nýjar aðferðir, sem eru betri og happasadli en þær gömlu. Fyrir fá- um árum var byrjað á J)vi í sumum rikjunum, að gefa unglingunum á bændaheimilunum tækifæri til að rækta (lálitið af korni, hveiti, garð- ávöxtum og fleiru. Mennirnir, sem komu þessari hreyfingu á fót, hugs- uðu sem svo, að drengirnir og stúlk- urnar myndu hafa mjög mikið gam- an af þessu, og að J>að myndi auka hjá Jieim áhuga fyrir búskapnum. Þessir menn vissu J)að, að “áhuginn er lifandi afl, sem ekki er hægt að setja á pappír, eða sníða eftir viss- um reglum”. Þeir vissu, að ef hægt væri að kveikja áhuga unga fólks- ins, að J>á myndi alt ganga vel fram- vegis. Unga fólkið tekur við af þeim eldri eftir fá ár, og þá fer það að sýna listir sinar. En hvað um álfasöguna? Hún er nú rétt að byrja. 1 Ohio ríkinu tóku 1200 drengir J>átt í maísræktar-samkeppni, og á einu ári (1914) óx framleiðsla rík- isins inn 820,000,000! Á einu ári gátu 1200 eldfjörugir dugnaðar- drengir komið því til leiðar, að bændurnir í ríkinu (og drengirnir sjálfir) græddu tuttugu milliónir dollars! Þeir gjiirðu þetta með þvi, að hvetja eldri mennina og með þvi að sýna þeim, hvað mætti gjöra við maisinn, ef hann væri rétt ræktað- ur og gott útsæði notað. Nú geta Ohio bændur uppskorið 81 bushels af hverri ekru af maís, í staðinn fyr- ir 35 bushel, sem þeir uppskáru áð- ur. Drengurinn, sem fékk hæstu verðlaun árið 1913, fékk 131 bushel af ekrunni; sami drengurinn vann 'aftur fyrstu verðlaun fyrir 1)3 bush. árið 1914.-----En þetta er að eins byrjunin. Drengirnir allir1 saman fengu líka eitthvað i aðra hönd, sem var miklu betra en peningar. Verzl- unarmenn og aðrir leiðandi menn í rikinu sáu strax hvað drengirnir höfðu gjört Ijómandi vel, svo þeir skutu saman stórfé og sendu alla drengina á skemtilúr til New York og Washington og síðan á heimssýn- inguna í San Francisco. Huldufólkið í áifasögunum hefði aldrei getað gjört mikið betur. Tólf hundruð bændasynir að skemta sér í stærstu borgum landsins! Þeir liafa séð og heyrt margt, sem verður þeim upp- byggilegt. En svo er Ohio ekki eina dæmið. Carolina ríkið, Alabama, Minnespta, og mörg önnur riki eru farin að sjá það, að bömin geta tvöfaldað auð- magn og vclmegun í landinu, cf þau fá að beita sér og læra að viima rétt. Þegar maður er ungur, er fjör- ið svo inikið, skilningurinn er svo góður og alt Ieikur í hönduin manns. “Það ungur nemur, gamall temur”. Börnin eru ekki hrædd við að vinna, bara ef vinnan er skemtileg og nytsöm. Eldri börnin og fullorðna fólkið, sem lesa þessa frásögu, ætti líka að gæta að þessu: — Eftir því sem bændurnir framleiða meira, eftir því verður minni fátækt og e.vmd í land- inu. Það er til fjöldi af vesalings fá- tæku fólki í Canada og Bandarikj- unum, sem varla veit, hvar Jiað get- ur fengið sína næstu máltíð. Þetta fólk er fáfrótt (þekkingarlaust) og ósjálfbjarga, af því kringumstæðurn- ar eru slæmar. Forsjónin hefir gleymt, að úthluta þeim gæði lífs- ins. Ef hægt er, að bæta svo fram- leiðshi og atvinnuvegi i landinu, að Biðjið um nýja böggulinn. Hér eftir fær kaujiandi BLUE RIBBON TE í nýjum loft- heldum tvöföldum böggli. Þetta er liin langbezta og tryggasta aðferð að búa um te. En aðeins stórkaupmenn geta notað hana, því hún út- hcimtar hin dýrustu verkfæri. 1 staðinn fyrir gamla blý-böggulinn—sem svo oft komu smágöt á og stundum rifnaði—höfum vér nú tvíþykkan, rykheldan, loftheldan olíudúk og skotfæra pappa sterkan Þetta til samans ver fullkomlega öllum hugsanlegum skemdum. Það er í fáum orðum sagt fullkominn umbúð á hinu fullkomnasta tcgrasi— BLUE ÞIBBON TEA sem allra flestir eigi kost lá að vinna heiðarlega fyrir lífi sinu, þá fækk- ar fangelsum, vitfirringa spítulum og stórborga-volæðinu, þar sem þúsundir lifa i aumasta ástandi. 1 einu orði sagt: þjóðfélagið verður betra og fegurra. En svo er ekki sagan á enda enn- þá. Ein stújka fékk 5,354 pund af “tomatoes” af einum tíunda parti af ekru, sem að hún ræktaði sjálf í tómslundum sínum, og græddi $132.39. — önnur stúlka fékk I.Oil pund, og sauð niður 1,620 pund í dósir og glerílát. Hún græddi 146 dollara 20 cents. Þetta eru að eins dæmi. Hér. i Manitóba og Vesturfylkjunum eiga unglingarnir kost á, að hafa sam- keppni í hveitirækt, kartöflurækt, hænsna- og griparækt, —• smiðum, sauinum, niðursuðu, brauðgjörð o. fl. Unglingarnir ættu sem fyrst að leggja að kennurum símnn og for- eldrum ineð að hjálpa þeim til að setja á stað unglinga búnaðartfélög (Boys’ and Girls’ Clubs) í hverju bygðarlagi. Til hinna eldri. Gefið unglingunum tækifæri til að sýna dugnað sinn og framfýsi. Yfirstandandi timinn er mjög al- varlcgur, og mörg ný spursmál eru á dagskrá vorri. Ef til vill endist oss ekki aldur eða þrek til að leysa úr þeim spursmálum; en yngri kýn- slóðin — börnin, sem nú eru á skólaaldri —- verða að leysa úr þeim siðar nieir. Gefið þeim tækifæri til að vera sem bezt undirbúin. Vér mæliim með Jiví, að fram- leiðsla aukist, og að nýjustu aðferð- ir séu um hötid hafðar, svo að öll starfsemi fólksins beri góðan ávöxt. Hvers vegna? Er það til þess að eins, að seðja likamlegar þarfir — hungur og þorsta fólksins? Að vissu leyti, — en þó mest vegna þess, að góður búskapur og hagsýni í hvi- vetna bætir heíinilin, vcitir fólkinu meiri ánægju og mieri nientun. 1 stuttu máli: velmegun, seiri er bygð á traustum grrindvelli, bætir þjóðfé- lagið og setur J)jóðina í sess ineð þeim, sem eru framfaramestar i heiminum. Að plægja, yrkja, sá og uppskera: — Þetta eru ekki aðal- spursmálin, heldur er það árangur- inn, sem þessi iðja leiðir af sér, nefnilega: meiri velmegun og meiri mentun fyrir fjöldann. —B.— Leggjum stund á kærleikann. Verum, börn mín, vingjarnleg við alia. Það kostar ekki peninga að vera vingjarnlegur við alla, sem vér höfum eitthvað saman við að sælda. En á hinn bóginn verður eigi vin- semd og kurteisi metin til peninga. Hýrt viðmót, háttprýði og kurteisi, prýða hvern mann. Þess vegna er það rétt, að temja sér J)að sneinma, svo að oss verði ljúft og létt að láta það í té hverjuiu, sem i hlut á, og vér gleymum þessu aldrei. Vér þurf- um dagiega að hafa margskonar mök og viðskifti hvert við annað. Þau verða hægri og ánægjulegri, líí- ið bjartara, hjartað slær léttara, hug- urinn hressist, ef vér gefum hvcrt öðru nokkur hlý og vingjarnleg orð í kaupbætir. Að taka innilega og hlýtt i hendi þeirra, er bágt eiga og daprir eru í bragði, er oft dýrmæt- ara niörgum orðum, og jafnvel að lita vinsamlega á |>á. Hvi er þessu svo oft gleymt? Af kærleiksskorti. En af honuin stafar hluttekningar- og hirðuleysi um hag annara og líðan. Kærleikurinn er uppspretta gleði og sælu. Hver, sem er rikur af kærleika, hann er glað- ur, og út frá honuni streymir gleðin til annara, sem umhverfis hann búa, eins og geislar frá sólu. Hann er sól lífsins. Frá honum stafar allur frið- ur og lífsnæring, vöxtur og viðhald hvers manns. Gjörum því alt, sem unt er, til Jæss að glæða hann og ala í brjóstura vorum, sjálfum oss og öðruin til heilla og blessunar. Látum aldrei úr minni líða, að það sem vér viljura að mennirnir gjöri oss, það eig'<m vér einnig að gjöra þeim. Heimtum eigi alt of mikið af öðrum, en heimt- uin sem allra mest af sjálfum oss. Kærleikurinn er faðir allra dygða —: vinsemdar, hluttekningar, um- burðarlyndis, hógværðar og hjálp- semi. Án hans er lifið dautt og kall eins og hjarnið og autt og snautt sem eyðimörk, því liann er ekki að eins sól lífsins, sem veitir því varma og. ljós. Hann er einnig hressandi frjó- rcgn, er svalar þvi og nærir. Ungu vinir minir! Ástundum þvi kærleika! “Án kærleiks sólin sjálf er köld og sérhver blómgrund föl og himin likt og likhús-tjöld og lifið eintóm kvöl”. (Unga ísland). Ef eg væri drengur. (Þýtl). Ef eg væri drcngur, J>á myndí eg reyna fyrst og fremst að vera prúð- ur i fraingöngu, hreinlega til fara og góður við alla, eins og ölil góð börrt eru. Eg myndi vera góður og nær- gætinn við dýrin; en ekki eins harð- neskjulegur við þau eins og flestum drengjum er tamt. Ætti eg' heima í borginni, myndi eg ekki slæpast á götunum eftir skólatima, hanga aftan i vögnunum eða leika mér að þvi að henda hníf- um. Eg myndi heldur selja dagblöð eða gjiira eitthvað annað nytsamt starf til að innvinna mér dálitla peninga. Ef eg ætti heima úti á landsbygð- inni, myndi eg hjálpa til við bú- skapinn, eftir því sem eg gæti; svo, sem að hirða um garðinn, mjólka og gefa hænsnunuin eða svinunum. Eg myndi reyna að venja mig við að gjöra eitthvað annað en slæpastmeð vondum drengjum, og eg myndi kappkosta að halda þeim vana, þar til eg yrði fullorðinn, en forðast að vera með vondum mönnum og læra af þeim að drekka vín. Heldur en drekka út peninga mína, myndi eg safna þeim saman og gefa þá fá- tækum. \ Lillie Anderson (12 ára). fíóð hughreysling. Sjúklingurinn: “Hafið þér nokkra von um, að eg muni lifa, herra lækn- ir?” Læknirinn: “Já, beztu von. Skýrsl urnar sýna, að tiundi hver maður. sem fær þessa veiki, lifir af’. Sjúklingurinn: “Þá er lítil von um mig”. Læknirinn: “Það er ekkert að ótt- ast. Þú ert sá tiundi með þessa veiki, sem eg hefi stundað. Hinir niu eru dauðir. Þér hlýtur því að batna, ef skýrslurnar eru áreiðan- legar". ----------------------- Fréttagreinar og smávegis. V___________________________ Sökmn Jiess, að korn fraus hjá mörgum bænduin á siðastliðnu hausti, og var ekki fullþroskað l>eg- ar það var slegið, má búast við að inikið af því sé lélegt til útsæðis. Til þess að vita fyrir víst um þetta, eiga nú bændur kost á að senda sýn- ishorn af korni til Prof. of Field Ihisbandry, Manitoba Agricultural College, Winnipeg. Nægilegt er að senda svo sem hálfan bolla af hverri tegund.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.