Heimskringla - 07.09.1916, Page 5
WINNIPEG, 7. SEPTEMBER 1916
HEIMSKRINGLA
BLB. 1
ir því bæði grunsemd og óþeit og
ef til vill hatur.
Þetta er hin þriðja ástæða til
þess, að eg hefði óskað, að þér hefð-
uð verið með málstað vorum, til
heiðurs og sóma hinum frönsku
Canadamönnum, en til eflingar ein-
ingar og bróðurlegs huga franskra
og enskra manna.
Eg hefi enn eftir að eins tvær á-
stæður að bera fyrir mig, og þarf
ekki annað en að minnast á þær
að ætlan minni, því að allir hljóta
að fallast á þær.
Hér í þessum litla, franska hæ
heyri eg alt í kring um mig tungu-
málið, sem eg elska svo innilega og
vekur hjá mér gleðiríkar endur-
minningar frá bernskuárunum í
Montehello, og svipir og andlit
mannanna eru alt gamlir vinir. Eg
sé bændabýlin svo lík þeim, sem eg
sá heima. Eg sé, að frönsku kanad-
isku hermennirnir eru fljótir að afla
vina, hvar sem þeir fara.
Getið þér nú komið mér til að
trúa því, að það yerði ekki æfinlegt
frændsemisband á milli hins gamla
Frakklands og hins nýja?
Og Erakkkland sjálft, — fegurra
og dýrðlegra en nokkru sinni áður
í sögu þess, — Frakkland er nú í
heljar-stríði og dauðans angist; en
óttalaust og tignarlegt leggur það
alla sína ítrustu krafta fram í þess-
ari voðalegu baráttu upp á lif og
dauða.
Eyrir hið gamla Frakkland og
fyrir franska menningu — hefði eg
svo gjarnan kosið hjálp yðar og
fyigi.
, Og að síðustu, þó að við sleppum
öllu öðru, — og þó að Canada hefði
verið hlutlaust iand og í engu riðið
við stríð þetta, — þá hefði eg óskað,
að þér hefðuð gengið í baráttuna
með oss, — fyrir þá einu ástæðu, að
þetta er barátta fyrir frelsi heimsins
— barátta, sem snertir Canada eins
mikið og hvert annað land! Eg vil
ekki tala frekar um orsakir stríðs-
ins, «en mér hefði verið kært að vita
það, að Canada hefði verið hlutlaus
þjóð og að engu riðin við þetta
stríð, og að hún hefði þá af eigin
vilja kosið hlutinn þann, að ganga
sama sæmdar- og frægðar-stiginn,
sem hún nú er að ganga.
Máske eg, frændi góður! hafi ver-
ið of langorður og óskemtilegur, er
eg hefi sett fram þessar ástæður
mínar; en eg skal verða stuttorð-
ari, er eg tek fram aðvaranir mínar.
— Og þetta er þá það, sem eg vil
segja yður:
Reiknings-dagurinn kemur.
Þeir af oss í þessum mikla her,
sem verða svo hepnir, að sjá Can-
ada aftur, hafa orðið að mæta öll-
um hinum stórkostiegustu og al-
vörumestu málura lífs og dauða;
hinu trylta og dýrslega æði aflsins;
þeir 'hafa séð félaga og vini blæða
til dauða, eða tætast i sundur, eða
deyja hægt og seint með kvölum og
harmkvælum. — Gætið yðar, að vér
komum ekki heim aftur með hefnd
í huga, því að eg segi yður það ský-
iaust, hvað þá snertir, sem sátu hér
í næði og makindum, meðan vér
börðumst og tókum út þrautir ó-
teljandi, — að þessir menn, sem ekki
vildu hendi til rétta, að leggja oss
hjálparhönd, eða hressandi orð, og
menn þeir allir, sem feitir urðu hér
í Canada af auði, sem þeir öfluðu
sér með óheiðarlegu móti, með póli-
tiskum svikabrellum og óheiðarleg-
um fjárdrætti á einn eða annan
hátt, upp á okkar kostnað, — —-
þessir menn allir mega gæta sín,
því að vér munum heimta af þeim
strangan reikning. — Vér skulum
þá leggja á þá refsingu þá, sem þeir
verðskulda — ekki líkamlega, því
að vér verðum þá orðnir saddir af
því; ekki lögum andstæða eða á
nokkurn ólöglegan hátt, þvf að vér
berjumst til að vai'ðveita réttlætið
og frelsið, en ekki til að umturna
því, — — en vér skulum hegna þeim
með hinu ómótstæðilega afli vorra
siðferðislegu áhrifa!
En það skuluð þér muna og aldrei
gleyma, að Canada búar eru að
verða að mikilli þjóð, virtir af öðr-
um og með virðingu fyrir sjálfum
sér, — og það eiga þeir alt að þakka
borgurum landsins, sem barist hafa
og fallið í þessu framandi landi, en
alls ekki Nationalistum, eða þjóð-
ernis-postulum þeim, sem heima
liafa setið.
— Ef að eg mætti vona það, að
oittlivað ad )>vi, sem eg hefi sagt gæti
komið yður til að skoða mál þessi
frá nýrri hlið, þá væri það enn ekki
of seint fyrir mig, að vera stoltur af
frændsemi vorri.
Á þeim augnablikum, sem eg rita
þetta, eru franskii' enskir Can-
ada-menn að berjast og falla hlið
við hlið. Eiga þeir að láta lífið fyr-
ir ekki neitt? Eða ætti það ekki
miklu fremur að leggja grunninn að
einni sannri Canada-þjóð, að kan-
adiskri þjóð, sem væri sjálfstæð og
óháð og frjáls í hugsunum; frjáls í
fi'amkvæmdunr; frjáls í stjórnmál-
um öllum og fyrirkomulagi, —• en
þó með einum huga, einum og sama
anda með inóðurlöndunum báðum,
Engiandi og Frakklandi, hvað
snertir framkvæmdir allar út á við
i málum öllum, er allan alheiminn
snerta og velferðarmálum alls mann-
kynsins.
Það er skoðun og hjartans sann-
færing mín, að þessar hugsjónir
ættum vér allir að hafa sameigin-
legar. Getum vér nú ekki allir ver-
ið eins hugar um þetta?
Svo lengi, sem mögulegt er, verð eg
yðar einlægur vinur.
TALBOT M. PAPINEAU.
“Hagalagðar.”
Nýkomin eru út kvæði eftir Júlí-
önu skáldkonu Jónsdóttur, búin
undir prentun af Sig. Júl. Jóhann-
esSyni, prentuð í prentsmiðju Olafs
S. Thorgeirssonar.
Júlíana er os hefir verið talin ein-
hver fremsta skáldkona Islendinga
og hefir kveðið marga vísuna hnytti
lega. Hún hefir átt í baráttu alla
sína æfi, og má víða sjá það á vís-
um hepnar, að hún hefir fundið sár-
in sviða. Hugsunarháttur hennar er
fagur. Vill hún draga fram alt hið
bezta hjá mönnum, en gleyma þvf,
sem lakara er, sem sjá má af þessum
vísum, bls. 21 08 22:
Umburðarlyndi, ljúfmenska og yndi
ljósgeisli sálar
kaldlyndi hrindi, broshýrt blíð-
vindi
bjartsýni strjálar.
Veikum að lijúkra, viðkvæmni að
brúka
er viðsmjör í sárin;
höndina mjúka af hvarmi lát
strjúka
heit sorgar tárin.
Reisum hinn fallna, gleymum þeim
galla,
gætum vors eigin;
mjikt ieiðir alla, konur og karla
á kærleikans veginn.
Hin viðkvæma 08 fagra tilfinning,
sem iýsir sér í þessum erindum,
myndi breyta högum og æfikjörum
margra, manna, ef eftir þeim væri
farið, og er aldrei vanþörf á, að
brýna slíkt fyrir mönnum.
“1 barns minni”, bls. 32, er mjög
lipurt og laglegt kvæði:
Á fögrum hóli fossi hjá
fyrstu ól e8 tiðir,
tíndi fjólu, baldursbrá,
blágras, sóley, víðir.
1 helli bak við háan foss
hljóp eg vakin gleði.
Hann mér saklaust sætum koss
seiddi klaka úr geði.
Stundi af móði harpan hans,
hrundi ljóðakliður,
kvað hann óðinn elskhugans
unga fljóðið viður.
Þar eg undi létt i lund,
löðrið hrundi f straumum,
varla mundi værri stund
vöku bundin draumum.
í svari til rógberans kemur hugs-
un hennar ljómandi vel fram, oe þó
að vísan sé stutt, er hún á við heilt
kvæði, bls. 23:
Veiztu ei granni eg hefi’ annað um
að hirða,
en náunganna mannorð myrða,
merja, tanna, lítilsvirða?
‘‘Dauf Jól” sýna hinar heitu og
mæðufullu tilfinningar hennar, —
bls. 10:
Eg var þreytt um þessi Jól,
það væri gott að fá að deyja,
einmana eg byg8i ból,
bilar mig nú kjark að þreyja;
engin vinarhönd mér hlynnir,
herrann veit nær þessu linnir.
Hljótt um vanga hrynja tár,
hjartað varla bærist lengur,
innra blæða bólgin sár,
brostinn nærri titrar strengur,
vinarlaus og vonar þrotin
verð es senn af elli lotin.
Hún er 77 ára gömul, gamla kon-
an, og er að reyna að berjast og j
hjálpast áfrain. Ein og að þrotum j
komin fyrir elli sakir sendir hún út
þetta kvæðakver, 85 bls., og ættu
landar sannarlega að kaupa það,—■
ekki eiginlega i sustukaskyni, ])ó
að það sé skylda rétthugsandi
manna, að rétta ellinni hjáipar- J
hönd, heldur af þvi, að í kverinu
eru viða fagrar hugsanir og hnitti-
legur skáldskapur.
Hospital Pharmacy
Lyfjabuðin
seirt ber af öllum öðrum.-
Komið og skoðið okkar tim-
ferðar bókasafn; mjög ódgrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávísanir, seljum frimerki og
gegr.um öðrinn pósthússtörfum
818 NOTRE DAME AVENUE
Phone G. 5670—4474
Stríðs =f réttir
Framhald frá 1. bls.
Seinustu stríðsfréttir.
— Morgunblöðin á þriðjudaginn
sögðu, að Zaimis stjórnarformaður
Grikkja hefði tekið öll völd í hend-
ur sínar á Grikklandi og hefði áður
heimtað ótakmarkað fylgi beggja
flokkanna, þeirra, er með Venizelos
voru og á móti honum. Eitt af því
fyrsta, sem liann gjörði, var að sam-
þykkja allar kröfur Bandamanna.
Þótti mönnum þá nýstárleg sjón í
Aþenuborg, að sjá hermenn af skip-
um Bandamanna vera að elta þýzka
flugumenn og spæjara um stræti
borgarinnar. Hlógu Grikkir mikið
að þcssu og þótti hin bezta skemt-
un. En á meðan gjörðist breytingin
á stjórninni og allri stefnu hennar.
Eitt af því var það, að fresta kosn-
ingum til óákveðins tfma og upp-
leysing þingsins, svo að það gæti
ekki komið af stað innbyrðis óeirð-
um við breytingar þær, sem þessi
nýja stjórn myndi gjöra á allri af-
stöðu stjórnarinnar.
Þess má geta, að Zaimis er vinur
Vénizelosar, og hefir Venizelos hvað
eftir annað lýst yfir trausti sínu á
honum og beðið fylgdarmenn sfna
að standa með honum.
í Austur-Afríku gafst höfuðborg
Þjóðvcrja Dares-Salaam upp fyrir
Bretum eða Búum og Portúgals-
mönnum hinn 4. september kl. 9 að
morgni dags.
— í Aþenuborg hefir aðal-spæjari
og flugumaður Þjóðverja, Barún
von Shenck, verið tekinn fastur og
fluttur út á herskip þeirra. Allir
stjórnmálamenn Bandamanna þar
heimtuðu, að hann væri rekinn
burtu af Grikklandi. En hann víg-
girti sig f húsi sínu í borginni og
ætlaði að verjast með 60 öðrum
flugumönnum og vinum sínum. En
hvort sem þar hefir orðið nokkur
snerra eða ekki, þá er hann nú
burtu þaðan og í haldi á skipum
úti. Er það landhreinsun fyrir
Rússar fara syngjandi
til bardaganna.
Nú er ekki orðinn einn einasti
hermaðifr í hinum mikla Rússaher,
sem ekki skilji og finni til þess, að
hann sé að berjast við óvini lands
og þjóðar sem hann verði að sigra
eða verða troðinn undir fótum.
Fregnriti stórblaðsins “London
Times” skrifar frá Rovno á Rúss-
landi og segir, að þýzkar sprengi-
kúlur eða þýzkir byssustingir geti
nú ekki lengur hrakið Rússa af
stöðvum þeim, sem þeir hafi tekið,
því að nú hafi þeir kúlur og púður
í byssurnar, og nú geti þeir hlustað
á sönginn sinna eigin sprengikúlna,
er springa yfir höfðum Þjóverja.
En það er lfka annað atriði, sem
Brussiloff hershöfðingi hefir bent á,
og sem gjörir stórmikla breytingu á
öllu ástandi á vígvöllunum. Hug-
móður (morale) Rússa er nú hundr-
að sinum sterkari og á sér dýpri ræt
ur en fyrir tveimur árum síðan þeg-
ar þeir fyrst voru að leggja undir
sig Galizfu. Rússar börðust þá að
vísu en óreglulega og áhugalítið, og
vissu varla um hvað verið var að
berjast. N úerþ að alt annað. 1
fyrstu álitu þcir stríðið vera milli
þýszku stjórnarinnar og hinnar
rússnesku stjórnar; en það er stríð
milli þjóðanna, og nú er enginn sá
Bandamenn að hafa Shenek barún
og sveina hans burtu úr Grikk-
landi; því hann hefir þeim óþarfur
verið.
— Það lítur út sem Brussiloff her-
foringi Rússa hafi verið að hvíla sig
eða liersveitir sínar þvf að nú byrj-
ar liann aftur og tekur fyrsta dag-
inn fuliar fimtán þúsundir af Þýzk-
um og Austurríkismönnum fangn-
ar, alt ósærða menn, og legst liann
nú l>ungt á Þýzkarann. Á öllu
svæðinu suður af Pripet, er hann
þungur og þó þyngstur í grend við
Lemberg og Halics og í Karpatha-
fjöllum. Á 5 dögum hinum seinustu
hefir han tekið 19,405 fanga og sækir
svo fast fram í Karpatha-fjöllunum,
að Þjóðverjar hrökkva frá suður-
skörðunum, og er sagt að fullkomið
samband sé nú komið milli Rússa
og Rúmena. En Rúmenar sunann
við skörðin frá Búkóvínu, eru Ý
komnir 48 mílur inn í Ungarn og +
taka hvern dalinn eftir annan. Samt
má búast við að þeim fari nú að
verða erfiðara um framsóknina, þeg-
ar lengra kemur inn í landið, því
að nú eru Þjóðverjar á öllum stöð-
um búnir að koma mönnum fyrir
sig, og sagt er að þeir taki nú í her-
inn hvern karlmann, sem gengið
getur og á byssu haldið.
Á Frakklandi gengur Bretum og
Frökkum einlægt áfram og sækja
þeir þó á svo ramgjör vígi og svo vel
út búin, sem Þjóðverjar gátu bezt
gjört, með allri þeirra herkunnáttu
og vísinduin og á þriggja eða fjögra
milna svæði, sem Bandamenn sóttu
á, höfðu þeir dregið saman 80—100
þúsundir af sínum allra beztu her-
mönnum, og öll þau skothylki, sem
þeir gátu nálgast; en þó dugði ekki,
því að Þjóðverjar urðu undan að
hrökkva og einar 5,000 gáfust upp.
Kostaboð Heimskringlu
Þeir, sem vildu nota sér kostaboð
Heimskringlu til nýrra kaupenda,
ættu ekki að draga of lengi að
senda pantanir sínar, því daglega
minkar upplagið af sögunum, og
beztu sögurnar verða auðvitað upp-
seldar fyrst.
hermaður í liði Rússa, sem ekki
skilji og finni það, að hann er að
berjast móti hatursfullum fjand-
mönnum, og er því fús til að deyja,
ef þörf gjörist til þess, að lirinda
Þjóðverjum af hinni heilögu grund
Rússanna. Það er þessi hugmynd,
sem ríkir hjá öllum Rússum nú, og
það er hún, sem veldur því, að nú
ganga Rússar léttum og fúsum fót-
um syngjandi til bardaganna og
vilja dauðfegnir komast sem næst
Þjóðverjum til þess, að láta þá
finna -stálið í höndum sínum.
Og svo er nú alt fullkomnara, sein
að stríðinu lýtur. Skotgrafir Rússa
eru nú eins góðar eða betri en skot-
grafir Þjóðverja. — Flutningsfæri
Rússa eru miklu betri nú en áður
og greiðari. Tíminn er margfalt bet-
ur notaður, svo að það munar óefað
60 prósent. Skotfærin eru æfinlega
við hendina. Rauðakross-liðinu er
mikið betur fyrir komið. Og það,
sem mestu varðar: nú höfum við
nógar byssur og nógar sprengi-
kúlur.
| TIL LEIGU. |
Herbergi til ieigu með öllum þæg-
indum í Bloek í Ft. Rouge, lijá ís-
lenzkum hjónum. Herbergið er stórt
gott fyrir eina eða tvær stúlkur;
sangjörn leiga. Stutt frá strætis-
vögnum. — Hkr. vísar á.
KENNARA VANTAR
fyrir Frey-skóla, No. 890, í Argyie-
bygð, sem hefir lögmætt kennara-
leyfi. Kenslan byrjar fyrsta septem-
ber næstkomandi, og heldur áfram
til 21. desember 1916. Umsækjandi
sendi tilboð sín til: Árna Sveinsson-
ar, Glenboro P. O.- við fyrsta tæki-
færi.
Árni Sveinsson, Sec’y-Treas.
KENNARA VANTAR
fyrir Mary Hill skóla No. 987, byrjar
1. október til 1. desember 1916. Ef
einhver vill sinna því, tilgreini kaup
og æfingu sem kennari og sendi til-
boð sín hið bráðasta til undirrit-
aðs.
S. Sigurðsson, Sec’y-Treas.
Mary Hill P.O., Man.
52
Þúert ekki of gamall til að lœra
ÍSLENDINGAR í CANADA OG VESTURFYLKJUM
BANDARIKJAN NA,
Yður stendur nú til boða aö mentast á
PACIFIC LUTHERAN ACADEMY
OG BUSINESS COLLEGE
1 PARKLAND, WASHINGTON, U.S.A.
Þessi liáskóli býður nú körlum sem konum, hvort heldur
ungum eða gömlum, að koma og njóta iræðslu ’skólans þenna
vctur.
Skólinn er rétt lijá borginni Taeoma, og er kristinn skóli.
Hann er elzti og stærsti lúterski skólinn á Kyrrahafsströndinni
og að öllu leyti betur útbúinn en nokkur annar.
Hann var stofnaður fyrir 21 ári sföan og hefir einlægt haldið
áfram og farnast ágætiega. Á skólanum er mikill hópur hinna
lærðustu og reyndustu kennara. Hann er bygður með hinu
nýjasta sniði, á yndisfögrum stað; hefir nýtt “gymnasium”,
stórt og fjölbreytt bókasafn og verkstofu (Laboratory) ágæta
og svo það, sem bezt er af öllu: góðan hug og hlýjan aílra nem-
enda, sem þar hafa komið.
Fræðslugreinar í skólanum eru: Language, Science, Norman,
Commercial and Stenographic Education.
Gjöld nemenda lítil, og verður ódýrara að sækja skólann
en að kaupa fæði á hótelum.
SENDIÐ EFTIR “CATALOGUE”, þér fáið hann ókeypis.
N. J. H0NG, Principal, Parkland, Wash.
Hveitibœndur!
Sendið korn yðar í “Car lots”; seljið ekk i í smáskömtum.—
Reynið að senda oss eitt eða fleiri vagnhlöss; vér munum
gjöra yður ánægða, — vanaleg sölulaun.
Skrifið út “Shipping BiIIs’ þannig:
NOTIFY
STEWART GRAIN COMPANY, LIMITED.
Track Buyers and Commission Merchants
WINNIPEG, MAN.
Vér vísum til Bank of Montreal.
Peninga-borgun strax Fljót viðskifti
X
-f
-f
-f
-f
!
t
t
t
t
t
♦
Bloodstone
Torquise Moonstone.
Ruby Doublet
391
392
HRINGIR FYRIR STULKUR. d»0 or
Steinar settir í 10-K gull. Kosta að eins, póstfrítt .Jp^.öD
Valmor Úr
Hið velþekt VALMOR ÚR
—Beztu úrkaup í Canada. 15
steinar. “Lever Movement”.
Ábyrgst að ganga rétt. 1 “Gun-
metal” kassa, með gyltu
skrauti. Kostar aðeins
$4.75.
Þetta úr er eins gott og mörg
önnur, sem kosta tvöfalt
meira.
KARLMANNA GULLHRINGIR. Goverment Stamp 10 K.
- v
374
612
404
Hringur með dem- Sléttur hringur með “Buekel” hringur með
ant...........$6.60 3 Rubies .... $9.25 2 opals.útskorinn $7.25
KARLMANAA HRINGIR með skorn-
um upphafsstöfum
. 369
371
10-K Gull.........
14-Iv Gull .......
............8.50
........ $11.50
Vér ábyrgjumst vöruna og skilum
peningunum til baka. ef ekki ér alt
eins og vér segjum. Öfangreint verð
innibindur póstgjald og umbúðir.
GOLD FILLED LOCKET
liúið tú eins og úr og
Ijómandi vel úcskorið.
Vanaverð $5.50. Kú
aö eins.........$3.85
AINSWORTH SALES CO.
WINNIPEG, MANIT0BA. rEPT H.
Canadian Northern Railway System
NÝ BRAUT TIL
KYRRAHAFS
OG AUSTUR CANADA
Gegnum Jasper og Mount Robson Parks og Jellowhead Pass.
Gegnum lægsta skarðið. Framhjá hæstu fjöllunuin! Bein-
asta línan, sléttasta brautin, nýjasti lesta-útbúnaður og beztu
útsjónar-vagnar. Kurteisir vagnstjórar og lestaþjónar, — allir
samtaka að gjöra yður ferðalagið sem ánægjulegast.
Skemtiferðir til Kyrrahafsins
FARBRÉF til sölu daglega til 30. september- Gilda til 31.
október, og iná standa við hvar sem er á leiðinni.
BRAUTIR—Fnrbréfin gilda á Canadian Northern báðar
leiðir, eða Canadian Northern aðra leið og öðrum línum til
baka, eða á öðrum línum vestur og Cauadian Northern til baka
Skemtiferðir tii Austur Canada
Á járnbraut alla leið eða yfir stórvötnin.
FARBRÉF til sölu daglega til 30. september. Góð í 00 daga.
Má standa við á leiðinni hvar sem er.
BRAUTIR—Má fara báöar leiðir yfir stórvðtnin, ef vill.
JÁRNBRAUT—Yfir nýju Canadian Northern brautina til
Toronto og Austur-Canada, framhjá Ncpigon vatni og gegnum
mílu eftir mílu af fögru vatna-landi. Alveg eins svalt »g hress-
andi og að fara yfir stórvötnin, — og fargjaldið lægra
Nýjir herbergis útsjónar-vagnar.
Spyrjið agentinn eftir öllum upplýsingum og myndabókum
vorum, eða skrifið R. Creelman, Gen. Pass. Agent, Canadian
Northern Railway, Winnipeg.