Heimskringla - 25.01.1917, Blaðsíða 6
BL8. 6
HEIMSKRINGLA
WINNIPJSG, 2ö. JANÚAR, 1917
Spellvirkjarnir eða Námaþjófarnir.
SAGA EFTIR
REX E BEACH.
Langan tíma var Kún sem sokkin í skjölin. Þau
leiddu alt í ljós. Hún sá glæpi fræmda sísn afmálaða
þar skýrt og um leiíS glæpsamlega. ÞaS varð ekki
misskiliS. Alt samsæriS lá nakiS og bert fyrir
henni meS svörtustu litum.
Þótt glæpir þessir tækju hana allsárt, var hún
gér þess þó meSvitandi, aS nu hafSi hun nokkuS
aS segja, og aS réttlætiS mundi aS lokum sigur
vinna. Nú myndi hún loks bera sigur úr býtum,
þótt hún í fyrstu hefSi veriS sem blint verkfæri í
höndum þeirra. Hún mundi á endanum koma öllu
upp. Hún reis á fætur meS leiftrandi augu og
sagSi:
“Hér eru fullar sannanir.”
“ÞaS eru þaS spursmálslaust. Nægar til aS
dómfella okkur alla saman. ÞaS hefir í för meS
sér hegningarhúsiS fyrir hinn æröverSuga frænda
ySar líka.” Hann rétti úr hálsinum sínum til þess
aS losa hann viS ósýnilegar greipar. “Já, sérstak-
lega fyrir elskhuga ySar, því aS hann er eiginlega
maSurinn. ÞaS var þess vegna aS eg fór hingaS
meS ySur. Hann mun eiga ySur, en, eg er sá, er
undirbý ySur fyrir hina helgu athöfn. Röddin var
einkar óþægileg.
“KomiS þér nú, viS förum heim,” sagSi hún.
"A8 koma," hjó hann ónotalega. “Þetta er
mjög gott dæmi upp á óafvitandi fyndni.”
“ViS hvaS eigiS þér?’
“Jæ-ja, fyrst er þaS, aS engin mannleg vera
gæti rataS í þessu veSri. AnnaS, — en — meSal
annara orSa — látiS mig skýra fyrir ySur dálítiS
í skjölum þessum, meSan eg man eftir því —.
Hann talaSi seint um leiS og hann gekk fram og
ætlaSi aS ná pakkanum, en hún var komin aS því,
aS fá honum hann, en eitthvaS freistaSi hennar til
þess, aS stinga honum aftur fyrir bak sér; og beíur
fór, aS hún gerSi þaS, því aS hendur hans voru
fáa þumlunga frá honum. En hann var ekki eins
Iljótur og hún. Hún rann kring um borSiS og
stakk skjölunum í barm sinn. ÞaS veitti henni
þrck nokkurt, aS hún fann byssu Cherry í vasa
sínum. Hún mælti í ákveSnum róm:
“Eg ætla aS fara héSan samstundis. ViljiS
þér ná hestinum mínum. Jæja, eg get gert þaS
sjálf.
I lún sneri sér viS, en hann hljóp meS. eldingar-
hraSa til dyranna og varSi henni veginn.
"VeriS þér hægar, jungfrú góS. Þér ættuS aS
skilja mig, þótt eg tali ekki ljósara. Hví fór eg
hingaS meS ySur? Hví fann eg upp á því, aS viS
værum tvö ein? Hví sendi eg manninn á brott?
IJara til þess, aS gefa ySur sönnun fyrir því, aS eg
væri samsekur hinum tveimur? Nei, minna um
þaS. Þú ferS ekki héSan í nótt. Og þegar þú
ferS, verSa skjölin eftir — mitt frelsi er fólgiS í
þe'm og eg sé um sjálfan mig fyrst. TakiS þér eftir
hva eg segi: Þér verSiS hér og —.”
Hann hætti skyndilega, því Helen hafSi gengiS
aS málþræSinum og tekiS máltóliS ofan. Hann
hljóp til hennar, tók máltóliS af henni, reif öll tækin
niSur, hóf þau yfir höfuS sér og þeytti þeim á gólf-
iS. SíSan sentist hann til hennar og hafSi hendur
á h: mi, en hún losaSi sig og hljóp eftir herberginu.
Hvíta háriS hans stóS út í loftiS, andlitiS purpara-
rautt og á hálsinum voru æSarnar bólgnar. Hann
stóS samt kyrr og bros lék um varnirnar.
“Nú, nú, viS skulum hafa friS og vera róleg.
Alt annaS er árangurslaust, því aS eg vinn spiliS.
Þér hafiS sannanirnar — nú vil eg fá borgunina —
eS « eg tek hauia af ySur nauSugri. HugsiS um,
hvert verSi betra, meSan eg loka aS okkur."
Langt niSur í fjöllum var maSur á ferS og
knúSi hestinn sinn, sem þegar var uppgefinn, áfram
götuna. Þó aS hesturinn væri aS þrotum kominn,
hamaSist maSurinn þó, sem þúsund djöflar væru
á ha lum honum, upp bratta hálsa og niSur í djúpa
dali. Stundum datt klárinn og láu þeir þá báSir,
en maSurinn kærSi sig ekki um neitt, nema aS
komast áfram. Loks komst hann á sléttu nokkra,
og sá sleSamerki fram undan sér. Hann fann, aS
hesturinn var alveg aS gefa frá sér og losaSi því
ístöSin viS og viS og ætlaSi aS kasta sér úr hnakkn-
um. Helst leit út fyrir, aS hann hefSi snúist í
Iofti, hann fann, aS eitthvaS slóst viS hann og aS
hann Iá kyrr; andlitiS sneri upp og regn og stormur
buldu á honum.
Þegar aS Struve fór fram, þaut Helen aS glugg-
anum. Hann var negldur aS utan. Hún tók stól
frá ofninum og rak hann gegn um rúSuna svo regn
og stormur höfSu innhlaup þar. En áSur en hún
gæti komist út, kom Sturve inn og rauk á hana
* r af reiSi, svo aS hann kom varla orSi upp.
En um ieiS og hann tók aS atyrSa hana, varS
honum hvert viS, því aS stúlkan hafSi spent byssu
þs er Cherry fékk henni og miSaSi henni á hann.
Híu var föl og brjóstin hófust upp og niSur, en
grá \ augun skutu frá sér glampa þeim, er enginn
hafSi þar fyrr séS. NefiS varS þunt, yarirnar sam-
klerndar og miskunnarlausar, og höfuSiS bar hún
hátt. RegniS streymdi um brotnu rúSuna, en
gluggablæjan lamdist í hana sem í leik væri. Fyr-
irlitningin fyrir Struve gerSi röddina harSa og ó-
náttúrlega, er hún skipaSi:
“Dirfist ekki aS hindra mig.” Hún gekk í átt-
ina og benti honum aS víkja úr vegi og hann hlýddi,
því hann hræddist geSríki hennar. Hún tók ekki
eftir svika-brosinu, sem kom í ljós á andliti hans né
sá, hvaS honum var í huga.
Úti 'í regninu hafSi fallni riddarinn komiS aftur
til meSvitundar og skreiS nú meS veikum mætti aS
húsinu. HefSi nokkur séS hann í myrkrinu, mundi
sá hafa álitiS hann illkynjaS skriSdýr. Þá er hann
kom nær húsinu, heyrSi hann hljóS, er vindurinn
reyndi aS kefja. Hann reis upp og ruddist áfram,
reikandi sem sært dýr.
Helen gaf nákvæmar gætur aS fanga sínum,
þar sem hann fór aftur á bak undan henni um
dyrnar. Hún þorSi ekki aS missa sjónar af honum.
MiS-herbergiS bar ljós í forherbergiS og viS þaS
sá hún, aS slá var fyrir aSal-hurSinni.
Struve hafSi flúiS fram aS borSinu án þess aS
segja eitt einasta orS, en björtu augun hans sýndu,
aS hann hafSi ráSiS ráSum sínum. En þegar vind-
gustur frá brotnu rúSunni skelti hurSinni aftur,
gerSi maSurinn fyrsta áhlaupiS. Hann fleygSi
lampanum á gólfiS, svo aS myrkur varS í herberg-
inu, en hann brotnaSi mélinu smærra. Ef aS hún
hefSi veriS róleg og haft tíma til nokkurrar yfir-
vegunar, mundi hún hafa reynt aS bjarga lampan-
um, en af því, aS hún hélt sig vera í þann veginn
aS sleppa, ugSi hún síSur aS sér. Á næsta augna-
bliki var henni svift af fótunum af líkama, er kom
úr myrkrinu. Hún hleypti byssunni af, en Struve
spenti örmum um hana, þreif byssuna af henni og
þau flugust á sem hamhleypur. Vínsvælan út úr
honum gaus framan í hana, og hún fann, aS hún var
bundin föst viS hann, sem meS gjörSum væri.
Kinnin hans var viS kinn hennar. Hún varS sem
dauShrætt dýr, er barSist af síSustu kröftum. Hún
hljóSaSi einu sinnit en þaS var’ólíkt konu-hljóSum.
Áflogin háldu áfram í þögn og myrkri. Struve hélt
henni eins og api þangaS til, aS hún tók aS þreytast,
hana svimaSi og glampar komu fyrir augun og suSa
fyrir eyrun. Hún var sterk stúlka og varSist, eins
og karlmaSur, en Struve hafSi nóg aS gera aS halda
henni. En slík glfma gat ekki varaS lengi.
Helen fann aS hún var aS því komin, aS gef-
ast upp, en þá duttu þau bæSi á innri dyrnar. Þær
létu undan og á sumu svipan hvarf manninum afl,
eins og þaS væri tekiS af honum. Helen losaSi
sig úr klóm hans og komst inn í borSstofuna meS
flagsandi hár niSur á mitti. Hann komst aftur á
fætur og elti hana, segjandi:
‘ Eg ætla aS sýna ySur, hver sé húsráSandi
hér —.”
Hann komst ekki lengra, en bar handlegginn
fyrir andlit sér, eins og til aS verjast höggi. 1
glugganum sást föl manns-ásjóna. LoftiS skalf,
lampinn hristist, og Struve snerist sem snarkringla
og féll upp aS veggnum. Augun urSu óttaslegin
og litu á einn vissan blett á brjóstinu, er hann greip
hendinni um. Hnén tóku aS skjálfat krampadrætt-
ir fóru um hann og loks féll hann á grúfu meS tand-
legginn undir sér.
Þetta var fljótt sem elding. Helen fremur
heyrSi en sæi skotiS, þó gerSi hún sér ekki grein
fyrir, hvaS þaS þýddi þangaS til, aS hún fann
reykinn, er fylti nasir hennar. Og jafnvel þá fann
hún ekki til ótta. Þvert á móti kendi hún viltrar
gleSi, er hún stóS og hallaSi sér fram næstum
fagnandi. Hún stóS í sömu sporum þangaS til aS
hún heyrSi kallaS: “Helen, hjartkæra, elskulega
systir. Hún sneri sér viS og — sá bróSur sinn í
glugganum.
ÞaS, sem hann sá í andliti hennar, hafði hann
áður séð á mönnum, er lent höfðu í fangbrögðum
dauðans, og alt var horfiS frá, nema ein ástríSa. —
En á konum hafSi hann aldrei séS slík merki.
Ekkert tilbúiS eSa ósatt var þar aS sjá, ekkert nema
hin ákveSnasta, einlægasta tilfinningt er margir lifa
og deyja án þess aS þekkja. I náttmyrkrinu hfaSi
eSli þessarar stúlku afklæSst öllu nema grimdinni,
er hún barSist fyrir hinum helgasta heiSri sínum.
Glenister hafSi veriS sannur spámaSur, er hann
hafSi sagt, aS Helen mundi aS lokum gefa eftir
fyrir ómótstæSilegum áhrifúm.
Helen leit á manndýriS, er lá á gólfinu, fór svo
til bróSur síns, vafSi örmum um háls honum og
þrá-kysti hann.
Er hann dauSur?” spurSi Kid.
Hún hneigSi sigtil samþykkis og reyndi aS tala,
en í staSinn fyrir þaS, tók hún aS gráta ákaft.
“Ljúktu upp dyrunum,” mælti hann. “Eg hefi
meitt mig og þarf aS koma inn.”
Þegar d hafSi haltraS inn, faSmaSi hún hann
aftur aS sér, klappaSi og strauk höfuS hans og
hann allan, þótt hann forugur væri.
“Eg verS aS líta á hann; þaS er ekki víst, aS
hann sé meS öllu dauSurf” sagSi Kid.
“Snertu hann ekki!” Hún fylgdi samt eftir og
stóS hjá bróSur sínum, meSan hann skoSaSi sáriS.
Struve dró andann og Kid lyfti honum upp meS
miklum erfiSismunum.
"EitthvaS brotiS hér — rif, býst eg viS,” sagSi
Kid. stundi viS og fór höndum um síSuna á sér.
Hann var veikur mjög og náfölur. svo Helen fór
meS hann inn í svefnherbergiS og lét hann leggj-
ast niSur. Kapp hans, aS komast alla leiS, hafSi
aSeins haldiS honum uppi, og þaS, aS vita hann
hjálpar-vana, kom í veg fyrir þaS, aS Helen félli
í ómegin.
Kid vildi meS engu móti, aS Helen færi til
bæjar eftir hjálp, fyr en stormurinn lægSi og birti
af degi. Hann sagSi brautina ófæra í myrkri <Ög
þaS væri enginn tíma sparnaSur. Þau biSu því
birtu. Loks heyrSu þau, aS Struve lét til sín heyra.
Hann mælti til Helenar hásum rómi:
“Eg sagSi ySur, aS eg væri vitlaus — og eg
fékk þaS, sem eg átti skiliS, en eg verS aS deyja.
Ó, GuS hjálpi mér — eg dey og eg er svo hrædd-
ur.” Hann var aS væla þangaS til, aS Kid kom
staulandi inn. Hann horfSi haturs-augum á Struve
og sagSi:
“Já, þú drepst, og eg drap þig. Vertu glaSur,
geturSu þaS ekki? Hún fer ekki aS leita hjálpar,
fyr en birtir.” '
Helen rak bróSur sinn aftur þangaS, sem hann
var. SíSan hjálpaSi hún Struve eftir mætti, er tók
aS tala óráS. •
Þegar Kid virtist heldur skárri, tók Helen aS
segja honum frá svikum frænda þeirra og af sönn-
unum þeim, er hún hafSi meS höndum, og sem hún
ætlaSi aS rétta hlut námumanna meS. Hún sagSi
honum frá áhlaupinut er þeir höfSu ákveSiS um
nóttina og af hættu þeirri, er hengi yfir námumönn-
um. Hann spurSi hana nákvæmlega aS hverju at-
viki og skildi vel ganginn í sögu hennar. Hann
skreiS aS dyrunum og dró andann eins og móSur
hundur. « 1
“ViS verSum aS far, hvaS sem á dynur,” sagSi
hann. Storminn hefir lægt aS mun og þaS fer
bráSum aS birta.”
Hún áleit hann ekki ferSafæran, en hann var
ákveSinn aS reyna þaS. “Eg skal aldrei láta þig
eina framar, og eg þekki neSri veginn vel. ViS
skulum fara niSur dalinn og þá leiS til bæjarins.
ÞaS er dálítiS lengra, en hættuminna."
“Þú getur ekki riSiS,” sagSi hún.
“Eg get þaS, ef þú vilt binda mig í hnakkinn.
Komdu, viS skulum ná hestunum.”
ÞaS var kpldimt enn, og rigningin mikil, en hér
um bil logn. Hún hjálpaSi Kid í söSulinn. Hann
stundi þungan, en krafSist samt aS hún bindi sam-
an fætur hans undir kviS hestsins. Hann sagSist
ekki hafa kringumstæSur til, aS detta oían af hest-
baki.
Þegar Helen hafSi hlynt aS Struve eftir mættit
fór hún á bak hesti sínum og reiS eftir bróSur sín-
um, er ruggaSi á hestinum sem drukkinn maSur og
hélt sér í hnakknefiS meS báSum höndum.
¥ ** *
Þau voru farin fyrir hálfum tíma, þegar annar
ríSandi maSur kom sem óSur væri fram úr myrkr-
inu og nam staSar viS “SleSamerki”. MaSurinn
var ákaflega skítugur. Hann henti sér af baki og
æddi inn í húsiS. Hann sá áfloga-merki í fram-
rúminu: brotna stóla, brotiS borS og brotinn lampa,
syndandi í olíu. Hann kallaSi hátt, en fékk ekki
neitt svar. Hann þreif lampa, er logaSi á og fór
til dyra, er voru á vinstri hliS. Þar var ekekrt.
Hann veik til hægri handar. Annar lampi logaSi
þar og þar var Struve, liggjandi á kodda. Hann
dró þungt andann; augun hálf-lokuS og starandi.
Glenister sá blóSpoll viS fætur honum og brotinn
glugga. Hann setti lampann frá sér, beygSi sig yfir
manninn og talaSi til hans.
Þega'r hann fékk ekkert svar, kallaSi hann hátt
og skók særSa manninn af alefli, svo aS hann rak
upp hljóS:
“Eg er aS deyja — ó, eg er aS deyja!” Glen-
ister reisti hann upp og lét hann sjá framan í sig.
“ÞaS er Glenister. Eg kom til aS sækja
Helenu. — Hvar er hún?” ÞaS virtist sem maSur-
inn rankaSi viS sig.
“Þú ert of seinn — eg dey — eg er hræddur.”
Glenister skók Struve aftur. “Hvar er hún?"
Hann tók upp sömu spurninguna aftur og aftur,
þar til aS maSurin virtist loksins skilja hann.
“Kid fór meS hana. Kid skaut rnig, eg er aS
deyja.” Hann hóstaSi upp blóSit og Glenister
lagSi hann aftur niSur. Hann hafSi komiS of seint,
á því var enginn efi. Svo þetta var hefnd sú, er
Kid vildi hafa frammi! Svona hitti hann. Hann
hafSi ekki hug til, aS mæta manni, en sótti óskelfd-
ur aS konu. Glenister fanst, sem allan mátt drægi
úr sér, þangaS til hann fann útataSa druslu, er
Helen hafSi tekiS af bróSur sínum. Þessa druslu
tók hann. Hann fann, aS grimd mikil greip hann
og druslan lá, tætt til agna á gólfinu.
Hann lagSi aftur út í regniS og rakti slóSina viS
birtu frá lampanum sínum og fann för, er regniS
enn ekki hafSi þvegiS af. Hann gerSi ráS fyrir,
aS þau Helen væru ekki langt á undan honum, svo
hann fór fram hjá húsinu til þess aS sjá, hvort þau
hefSu fariS lengra út í hólana. Þar voru engin
spor. Þau höfSu því fariS sömu brautina til bæj-
arins. Honum datt ekki í hug, aS þau hefSu yfir-
gefiS veginn, og fylgt litla læknum niSur aS ánni.
Hann lét lampann þar, sem hann hafSi tekiS hann,
fór á bak og reiS eins og hesturinn komst. Sagan
skýrSist fyrir honum, þótt hann gæti ekki alveg
látiS hana falla saman. AS hugsa sér þessa tvo
fanta berjast um stúlkuna, eins og herfang. Hann
varS aS ná Kid — hann varS! — Menn urSu vit-
lausir út úr öSru eins. Hann vildi ekki hugsa um
þaS. ManndýriS, sem lá í húsinu, talaSi nógu ljóst
um ákefS Kids. Enginn af þeim, er þektu Kid áS-
ur, mundu hafa trúaS því, aS hann gæti drýgt slíka
fúlmensku.
MeSal hólanna földust félagar Glenisters og
hvíldu sig undir bardagann, sem í vændum var.
Þeir biSu hans óþolinmóSir. NeSar í hólunum til
vinstri handar voru þau tvö, er hann elti, en hann,
bölvandi aSra stundina, en hina þögull og rænu-
lítill, hélt til bæjarins, , fang óvina sinna.
ÞaS var í dögun, sem Glenister kom niSur af
fjallinu. Hann nam staSar og aSgætti veginn. En
hann hafSi enga hugmynd um, aS för þau, er hann
sá, væru ekki eftir þau, er hann var aS elta. Hann
barSi því hestinn áfram, en varS þess um leiS var,
aS honum hafSi ekki komiS svefn á auga í fjögur
dægur. En þótt hann svefnlaus væri, mátti þaS
enga verkan hafa á líkama hans, er varS aS duga til
hins ítrasta. MeS þessum hugleiSingum kom hann
til Nome.
Honum fanst þaS skifta mörgum árum, síSan
hann hefSi sól séS, svo löng.hafSi honum fundist
nóttin. Líkami hans var afar-lúinn af lengri
áreynslu, en samt reiS hann áfram og horfSi til hafs.
Hugsun hans var aS eins ein: óraskanleg ákvörSun.
Hann vissi nú meS vissu, aS Medas-náman var
farin forgörSum, og eins var vonin um Helenu far-
in. ÞaS tók nú aS verSa ljóst fyrir honum, aS þaS
væri ómögulegt, aS hún gaeti nokkru sinni orSiS
hans, aS hún hefSi aldrei veriS honum ætluS, og
aS ást hans á henni hefSi aldrei veriS honum Ijós-
geisli, ætlaSur honum til þess, aS finna sjálfan sig
viS. Honum hafSi alstaSar mistekist. Hann mundi
verSa útlægur ger. Hann hafSi barist og tapaS.
En málstaSur hans var gáSur og hugur hans óbilaS-
ur. Nú var stundin komin, er guSirnir gætu ekki
tekiS frá honum aS njóta. ÞaS var stund hefnd-
arinnar.
Honum var tvent í hug, er hann skyldi fram-
kvæma. Kid skyldi deyja, og hann varS aS gera
upp reikninginn viS McNamara. Um hinn fyrr-
nefnda vat hann ekki fremur í efa, en um þaS, aS
sólin risi í austri og settist í vestri. SkoSun hans í
því efni var orSin svo sterk, aS smá-atvik komu
ekki til greina. En um fund þeirra McNamara var
öSru máli aS gegna. Frá fyrsta fundi þeirra hafSi
McNamara veriS honum gáta, og gátur espa jafnan
forvitni. Hatur hans á manni þessum var orSin
eins konar vitleysa, en útkoman af fundi þeirra var
enn óráSin. En Helenu skyldi hann aldrei hafa.
— Glenister áleit aS til þess þarfaverks væri hann
þó sendur: fyrst, aS frelsa hana frá McNamara og
í öSru lagi, aS hrífa hana úr níSings höndum Kids.
Þegar því var lokiS, var hann til þess búinn, aS
greiSa þaS, er forlögin krefSust. Ef hamingjan
ætlaSi honum undankomu, ætlaSi hann til hólanna
sinna og einverunnar. En ef aS hann slippi ekki,
þá yrSu forlög hans í höndum óvinanna.
Hann fór um strætin, er voru mannlaus, því
þoka lá yfir öllu eftir regniS. Reykir stóSu beint
í loft upp. Regninu var slotaS og sjávar-ganginum
líka. Skip hélt inn leiSina og frá því kom bátur
og réri til lands.
Hann reiS niSur ‘Front’-stræti, beint móti hætt-
unni og fór hugsunarlaust í opinn kjaft óvinanna.
Hann fór fram hjá spilahúsi. MaSur kom út, frem-
ur laus á fótum, starSi á hann og fór inn aftur.
Glenister hafSi ætlaS sér, aS hitta Kid á
“Northern” hótelinu, en til þess, aS ná þangaS,
varS hann aS fara fram hjá skrifstofu þeirra Dun-
ham og Struve. Þetta minti hann á manninn, er lá
deyjandi tíu mílur vegar frá bænum. Mannleg til-
finning krafSist þess, aS honum kæmi einhver hjálp.
Hann þorSi samt ekki aS gera vart viS sig, þar sem
grunur félli þá á .sjálfan hann um morSiS, en þaS
var nauSsynlegt, aS hann héldi frelsi sínu, aS
minsta kosti eina klukkustund enn. Hann stöSvaSi
því hest sinn, og fór inn í húsiS. Hann ætlaSi aS
binda miSa viS hurSina. Einhver hlyti aS sjá hann
og senda hjálp.
Þá er hann klæddi sig fyrir bardagann viS
Midasnamana, hafSi hann sett upp selskinns-skó
fyrir léttleika sakir. Hann gat því gengiS hljóS-
laust. En þá kom annaS; hann hafSi hvorki blaS
né ritblý á sér. Hann tók í ytri dyrnar; þær voru
ólæstar. Hann fór inn og hlustaSi, því næst gekk
hann aS borSinu og fann þar skriffæri, en þá heyrSi
hann þrusk nokkurt í innra herberginu. Sjálfsagt
var þaS skónum hans aS þakka, aS ekkert heyrSist
til hans. Glenister var aS því kominn, aS fara út
aftur, þegar maSurinn hóstaSi. Glenister varS aS
mun forvitinn. Hann læddist aS skilrúminu. RúSa
var í hurSiSnni. en sex fet uppi; en hann gat séS
um hana af stól. MaSur kraup viS bréfabunka,
skúffurnar voru opnar í öryggis-skápnum og öllu
stráS á víS og dreif. Glenister fór niSur, spenti
byssuna ©g lauk upp hurSinni. Hefndin hafSi
komiS sjálfkrafa í þendur honum.
* ¥ ¥
McNamara þóttist viss um, aS samsærismenn
myndu ganga í gildru hans, en þegar hann frétti af
sigri Glenisters, varS hann frá sér numinn af reiSi.
Harn bölvaSi mönnum sínum og kallaSi þá bleyS-
ur og ragmenni. Dómaranum varS þannig viS
fregnina, aS eftir eina vökunótt, hræSilega og
harmkvæla-fulla, steinleiS yfir hann.
“Þeir sprengja okkur í loft upp næst. GuS
hjálpi okkur! Ó, þaS er villimanna-æSi. Fyrir
GuSs sakir! NáiS í hermennina, Alec. Nú getum
viS notaS þá.” Því næst símaSi McNamara for-
ingja hersins, og baS hann aS mæta meS flokk sinn
viS sólarupprás.