Heimskringla - 01.02.1917, Page 8
BLS. 8
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 1. FEBRÚAR, 1917
Ben. Rafnkelsson
CLARKLEIGH, MAN.,
kaupir allar tegundir af gripum
eftir vigt. .Verð frá $2.75—$7.00
hundrað pundin. —
Einnig kaupir hann aliar teg-
undir grávöru fyrir hæsta verð.
Fréttir úr bænum.
Eiríkur Pétursson, frá Elfros kom
til borgarinnar á briðjudaginn með
konu sína til lækninga. Flutti
hann hana á sjúkrahús hér og á
Rr. Brandson að gera á henni upf>-
skurð.
fimtudagskveldið 1. febr. næstk.
Samkoman verður algjörlega frí fyrir
alla. I>að verður stutt prógram og
veitingar og það verður reynt að
gera öllum kveldstundina eins á-
nægjulega og hægt er. Munið oftir
kveldinu og komið sem flest.
Guðm. Christie er nýkomin frá
Sask. hafði hann ferðast all víða
þar um bygðir með ljóða bók Kr.
Stefánssonar. lætur hann mikið yfir
A>/ð tökum Sask. búa. og er mörgum
sérlega þakklátur fyrir greiðvikni
þá er honum var sýnd.
Vér leyfum oss að vckja athygli
fólks á Concert þeim sem ákvarðað
er að halda í fyrstu Lútersku kirk-
junni, þriðjudagskveldið þann 13.
febrúar. Samkoman er undir for-
stöðu Francis Fischer Powers sem er
einn af hinum bestu söngkennurum
þessarar borgar, og sem hefur síðan
hann kom hingað frá New York þar
sem hann átti heima í mörg ár. get-
ið sér alinent lof. Um 50 manns eru
í söngflokk þeim sem kemur fram á
þessari samkomu, þar á meðal
margt af því söngfólki sem í mestu
áliti er í þessum bæ. Það er ekki
oft að Islendingum gefst annað eins
tækifæri og þetta til þess að sækja
fyrirtaks samkomu og um leið
styrkja gott málefni. Prógrain
auglýst í næsta blaði.
Ungmennafélag Únítara safnaðar-
ins eru að undirbúa leik sem sýnd-
ur veröur í Good Templara húsinu,
þriðjudagskveldið þann 13. febrúar
n.k. Leikurinn er afar skemtilegur
eftir frægan enskan höfund og haft
miklum vinsældum að fagna í leik-
hiisum á Englandi. Einnig hefir
hann verið sýndur í hreyfimyndum
víðsvegar og þótt einkar skemtileg-
ur. Leikurinn heitir “Iðjuleysing-
inn” og fer fram í Lundúnaborg fyr-
ir rúmum 10 árum síðan. Um leik
þenna verður nánar getið í næstu
blöðum
S. B. Guðnason,Kandahár, Sask.
skrifar og biður að geta þess, að sú
íregn hafi borist — frá íslandi ný-
lega að Björn Guðnason frá Kanda-
har hafi látist þar 22. des. s.l. Björn
heitinn fór til Lslands með Gullfoss
síðastliðið haust. Hann var fædd-
ur 21 maí 1834.
24 þ.m. lézt f Pipestone bygð öld-
ungurinn Einar Jóhannesson. — ■
Verður hans nánara minst síðar.
Blöðin segja særðan á vígvellinum
Conráð Sigtryggson frá Glenboro,
Man. Var liann í 78 herdeildinni
Nákvæmar fréttir hafa enn ekki
fengist, en vonandi er að Conráð sé
ekki hættulega særður.
Blaðið “Wynyard Advance” segir
að þjófar hafi nýlega brotist inn 1
hús Skúla Goodmans, sem býr
skamt frá Wynyard, og stolið pen-
ingum og dýrum munum ýmsum
mörg hundruð dollara virði. Enginn
af fjöl'skyldunni var heima og not-
uðu þjófarnir tækifærið. Ekki hafa
þeir náðst ennþá.
Dans og Tombóla, þann 12. Febr.
í stóra sal Good Templara Hússfns
á Sargent Ave. Undir umsjón St
Heklu. Gott tækifæri að gleðjast
þar með vinum síúum.--------Allir
velkomnir.
Olgeir Halldórsson, frá Stykkis-
hólmi á íslandi er beðinn að senda
utanáskrift «ína til: O. Freemann,
711 Pacific Avenue, Winnipeg.
Hinn vanalegi mánaðarfundur,
Jón Sigurðssons Chapter I.O.D.E
verður haldinn í fundarsal John M
King skólans á horninu á Agnes og
Ellice strætum, þriðjudagskveldið,
6. febrúar 1917 kl. 8. Þetta er kos-
ningafundur félagsins og eru allar
félagskonur beðnar að mæta.
Samkoma verður haldin 22. febr.
f Tjaldbúðarkirkjunni, sem fyrir
standa Mr. og Mrs. Ilall, Paul Bar-
dal og Fred Dalman. Takið eftir
auglýsingu sfðar.
Þeir sem enn skulda mér fyrir
Iðunni eru beðnir að gera mér skila-
grein sem allra fyrst, því eg sendi
bráðlega alla þá peninga sem eg
hefi innkallað til útgefendanna.
St. Pétursson,
696 Banning St.
FUNDARBOD.
Ársfundur íslenzka Únítara
safnaðarins verður haldinn í
kirkjunni sunnudaginn 4. febrúar
að aflokinni messu. Verða þá
lagðir fram ársreikningar og aðr-
ar skýrslur, kosin ný safnaðar-
nefnd o. s. frv. Allir safnaðar-
menn ámintir um að koma á fund.
Fundinum verður hraðað svo
sem unt er, og-að honum afloknum
verður eins og að vanda haldið
samsæti í samkomusal kyrkjunnar
og biður safnaðarnefndin alla vel
unnara og styrktarmenn kyrkjunn
ar velkomna þangað.
Th. Borgfjörð, forseti
F. Swanson, ritari.
Bóndinn á Hrauni.
Fimtudagskveldið þann 8. febrúar
heldur sunnudagsskóli Únftara-
safnaðarins samkomu til arðs fyrir
hjálparsjóð Belgiskra barna. Hefir
Brezka Únftara kýrkjufélagið sett
upp munaðarleysingja hæli fyrir
börn frá Belglu og Norður-Frakk-
landi, sunnan til í Frakklandi. Eru
nú komin á heimilið nær 10.000
slíkra barna. Hefir Únítaríska
kyrkjan hér í Ameríku samþykt að
aðstoða Brezku kyrkjuna og leita
samskota fyrir þessa líknar starf-
semi, og jafnframt sent áskorun til
allra únítarízkra sunnúdagsskóla í
Ameríku að hjálpa til með sam-
komuhaldi. Formaður þessarar
söfnunar hér f Ameríku er Dr. Eliot
f Boston. Nú langar íslenzku Úní-
tarísku sunnudagsskólana til þess
að leggja þessu máli sitt lið þó í
smáum stíl sé. Og eru það tilmæli
allra aðstendanda skólans að fólk
hér í bænum taki þessari viðleitni
vel og stuðli að því að láta hana
verða sem arðmesta.
Sagt er um börnin sem hjúkrun
ar njóta á þessu hæli séu flest þeirra
algjörlega munaðarlaus. Hafa þau
fundist hér og hvar á hrakningi og
vergangi. hungruð og klæðlaus og
sum hver aðfram komin að dauða.
Allmörg hafa dáið eftir að á hælið
kom, þoldu ekki umskiftin. Þau
eru á öllum aldri fá 1 árs upp að 14
ára, en öll eldri sem yngri jafnmijdir
hjálpar þurfar.
Til skemtana á samkomunni verða
ræður. söngvar, upplestrar o.fl. —
Inngangur 15c. Samkoman byrjar
kl. 8. Ef þér getið ekki komið, þá
sendið inngangseyrinn samt. Það
verður enginn fátækarf fyrir þá að-
stoð.
Fjögur pör af góðum sokkum var
oss send til hermannanna frá Mr. og
Mrs. Schram. Yér afhentutm þau
samdægurs “Jón Sigurdsson” I.O,
D.E.
Mrs. Ósk Jónasson andaðist á
Howardville, Man. hinn 19. des. cft-
ir langvarandi heilsulasleika.-----
Eftirskilur lifandi mann Mr. Ár-
mann Jónasson og fjölda barna. —
Ættuð úr Húnavatnssýslu. lézt þar
ein hin ötulasta og myndarlegasta
kona úr hópi íslendinga.
Dánarfregn þessi átti að koma fyr-
ri, en hefur oinhvernveginn orðið
eftir.
Á Þriðjudagskvöldið 16. þ.m. var
haldinn safnaðarfundur í Tjaldbúð-
arkirkju. Á þeim fundi voru kosnir
nýir embættismenn og lesnar upp
skýrslur safnaðarins. Stendur nok-
kuð vel eða meira en eftir öllum
vonum, eftir því sem tímarnir eru
nú, og ætti það að gefa öllum vinum
safnaðarins von um góða framtíð
þegar tímarnir breytast.
Eftirfylgjandi menn voru kosnir:
L. Jörumdsgon, forseti; J. Gottskalk-
son, skrifari; G. Eyford, fjármálarit-
ari; B. Sigurðsson, gjaldkeri, ag O.
Thorgeirsson.
Á næsta fundi sem fulltrúarnir
héldu kom þeim saman um að bjóða
öllum safnaðarlimum og öllu því
fólki sem sækir kirkjuna þó það
heyri ekki söfnuðinum til og yfir
höfuð öllum vinum safnaðarins á
wtmkomu sem þeir ætla að halda á
Lúðraflokkur 223. herdeildarinn-
ar ferðast næstkomandi viku í staði
þá, sem auglýstir eru á öðrum stað í
blaðinu. Svo víða hafa menn látið
í Ijósi löngun að fá að heyra lúðra-
flokk þenna. að Capt. Hannesson,
yfirforingi herdeildarinnar, hefir á-
kveðið að láta hann koma sem víð'
ast þar íslendingar búa meðan dval.
ið er hér í Canada. Er lúðraflokk-
ur þessi talinn að vera sá bezti er
herdeildir eiga í Vestur-Canada —
og mum fólk áreiðanlega hlakka til
að fá að heyra til hans.
Séra Hansen flytur sérstaklega
fróðlega fyrirlestra útaf spádómum
biblíunnar í ‘Scott’s Memorial’ bygg-
ingunni að 218 Princess St. — Næst-
komandi sunnudag kl. 8 e.h. talar
hann um þúsundararíkið, þegar
djöfullinn mun bundinn verða um
þúsund ár. Komið á samkomu
þessa.
SÖkum þess að sumir meðlimir 223
aðstoðar herdeildarinnar virðast
vera í óvissu um fundarkveld félag-
sins — auglýsist hérmeð að starfs-
fundur er haldinn einu sinni í mán-
uði í “Somerset” skólanum. Og
æfinlega annað Mánudagskveldið í
mánuði hverjum. Starfsfundir eru
tvö kvöld í mánuði og bera upp á
fyrsta og þriðja miðvikudaginn. —
Þettað eru meðlimir beðnir að setja
á minni svo óþarft sé að aðvara í
hvert skifti. Næsti starfs fundur
verður haldinn Miðvikudagskvöld-
ið 7. febrúar að heimili Mrs. B. J*.
Brandsson, 776 Victor Street.
Mrs. S. K. HALL
Teacber ot %r€ilee Cnltare nnd
Soio Siniirinsr.
STUDIO: 701 VICTOR ST.
Tor Terms-
-Phone Garry 4507
Ákveðið er að Bóndinn á Hrauni
verði leikinn í Goodtemplara hús-
inu fimtudaginn og föstudaginn 15
og 16. febrúar — enn æfingar nú
bezta gengi. og má vænta að hér
bjóðist góð skemtun.
Bóndinn á Hrauni er líklegast al
þýðlegasti íslenzki sjónleikurinn
sem nokkru sinni hefir sýndur verið
á leiksviði.
Hann er tekinn úr hjarta íslenzk
rar alþýðu.
Dáinn
Kjartan Magnús Halldórsson,
aróðir Björns gamla Halldórssonar j
sem kendur var við Úlfsstaði í Loð-
mundarfirði. Var áttræður —|
andaðist í Cavalier, þriðjudaginn,
23. jan. Var jarðaður tveimur
dögum seinna. — Meira um hannj
síðar.
Sérstök Kjörkaup
Ji/p Rompm—White, Pink,
Crimson, þroskast frá sætSi til
fulls blóma á hverjum tíu |
vikum.
Pixie PlantM—Undursamleg-
ustu blóm ræktuó. Þroskast
frá sæt5i til plöntu á 70 kl.-1
stundum.
Shoo Flry PlantM—Samt lykt-
laus; en flugur haldast ekki í
húsum þar blóm þetta er.
Blómgast fagurlega sumar |
og vetur.
AVeather Plant—Segir rétt
fyrir um veöur mörgum |
stundum á undan. Ber ang-
andi blómfkrúö.
Dept. “Hw P. O. liox r>6,
AL.VIN SAL.ES CO., WINNIPEGj
Blómin
fihyrgMt
at5 vaxa
Bækl-
ingur
ókeypis
KYN
$i
w
Dans og
Söngsamkoma
verða haldnar af
223. herdeildar hornleikendum
þar aðstoða:
Lieut. Waalbest, Tenor
Corp. E. Jónsson, Baritone
L. Corp. Wm. Einarsson, Violinist
á eftirfylgjandi stöðum:
Churchbridge ...........Mánudaginn, Feb. 5
Foam Lake ...........Þriðjudaginn, Feb. 6
Elfros...............Miðvikudaginn, Feb. 7
Wynyard,-...............Fimtudaginn, Feb. 8
Kandahar.................Föstudaginn, Feb. 9
Lesbe................Laugardaginn, Feb. 10
Athugið heimablöðin eftir nánari upplýsingum.
B-
Góður eldiviður
F*jót afhending.
Réttir prísar.
Bestu eldiviðarkaup í bænum og smáum sem
stórum pöntunum fljótt sint. : : :
Reynið oss á einu eða fleiri “Cords” :
SHERBROOKE & NOTRE DAME FUEL CO.
Geo. Parker, Ráðsmaður.
Phone Garry 3775
frætSltÍMleg þekkinK:. Bðk I
með myntlnm, $2 virði |
Eftir Dr. Parker.
Rituö fyrir unga
pilta og stúlkur, ung
eiginmenn og eigin
konur, feöur og mæö
ur. Kemur í eg fyrir glappaskotin
síöar. Inniheldur nýjasta fróöleik. Gull-|
væg bók. Send í ómerktum umbúðum,
fyrir $1, buröargjald borgaö. Bókin áj
ekki sinn líka.
ALVIIN SALES CO.
Dept. P. O. Box 56, WlnnipeKj
¥
*-
TH0MPS0N C0MMISSI0N CO.
316-im, HARGRAVE STREET
WINNIPEG, MAN.
Vér borgxim cftirfylgjandi vöruverð þessa viku:—
No. 1 ealtaðar húðir, pundið.......................19c
.Sauðargærur, hver........................60c til $2.00
Góðar hest-húðir, hver.......................,...$5.00
“Mlnk” skinn, hvert.....................$10.00 tll $15.00
Úlfa skinn, hvert.........................$4.50 til $6.50
Valin svín (dressed), frá 100 til 150 pund, pundið....l6V2c
Svín, undfr 100 pundum, pundið................... 15c
Hérar, tylftin ...........................$2.50 til $3.00
Góð feit hænsni, yfir 4 pund, pundið (live)........16c
Fersk egg, tyiftin ................................50c
Gott smér mótað, pundið...................*........35C
Kopar vír, pundið..................................23c
Bras-rusl (rautt), pundið........................ igc
Rubber shoes, pundið . *........................;..6ya
Old Rubber tires ................................. 4ya
Vér borgum ílutnings kostnað á Rubber, og málni og húðnm,
et sent er yfir 300 pund.
Ifeikomnir^
til Wsnnipeg
Carniva/
Sjálfsagt munu allir í Winn-
ipeg sækja miðsvetrar gleði-
mótin og fólk í hundraðatali
mun koma úr nærliggjandi
héruðum til að taka þátt í
gleðinni og heimsækja vini
og vandamenn.
Svo mikið verður að gera og svo margt verður að sjá,
að örðugt verður mörgum að sinna þá stundina öðrum
nauðsynja málum lífsins.
En þó verða margir, sem til borgarinnar koma,
undir það búnir að hafa bæði gagn og gaman af ferðinni.
Þessa menn og konur bjóðum við hjartanlega vel-
komna í verzlunarbúð vora, til að sjá allar vorar vöru-
birgðir þar — og til að njóta hagnaðarins af Febrúar hú»-
muna og alls, sem til hússins heyrir, sölu vorri.
Hvert það eru húsmunir fyrir alt húsið, eða eitt her-
bergi, eða einhver einstakur hlutur, getið þér fundið þetta
í verzlun vorri og keypt það á sölunni. Við frá 30 til
50 per cent afslátt af vanalegu verði.
Einnig munum vér á öllum
pöntunun yfir $25.00 borga
tlutnings-kostnað til hvaða
staðar, sem er í Manitoba og
Saskatchewari.
Og fyrir þá, sem ekki geta borgað alt í einu, koma
sér vel hinir Auðveldu borgunar skilmálar, lítil borgun
út í hönd og afgangur í mánaðar borgunum.
Látið ekki bregðast að koma og sjá oss og ekki eru
þér nauðbeygðir til að kaupa neitt.
</A3d/?f/p/d
A7A/N ST
Kaupið Te beint frá
Importers
Vér verzium með beztu teg-
undir af TE. KAFFI, COCOA
BAKING POWDER, EX-
TRACT8, JELLY POWD-
ER o*s.frv. Vér kaupum
beint frá framleiðendum og
gpörum þvíalla milliliði og óþarfa kostnað.
beztu vörur á rýmilegu verði.
Þetta félag er myndað og stjórnað
af afturkomnum hermönnum
Mönnunum, sem búnir eru að gjöra sitt í stríöi þessu, og
eru n-ú að reyna að byggja upp verzlun og ná í veiðskifta-
vini, — með því að selja ósvikna vöru með sanngjörnu verði.
FÓNIÐ OKKUR 1 DAG um það sem yður vanhagar um.
Menn vorir munu þá koma, og ef þér eruð ekki alveg ánægð-
ir, — þá skal peningunum skilað aftur tafarlaust.
Getum því selt
RETURNED SOLDIERS TEA C0.
708 Boyd Building.
Phone: Main 4042