Heimskringla - 12.04.1917, Blaðsíða 1
nóv. H
st. r»"' -
Royal Optical Co.
Elztu Opticians í Winnipeg. ViO
höfiim reynst vinum þínum vel, —
gefðti okkur tækifæri til að reyn-
ast þér vel. Stofnsett 1905.
W. R. Fowler, Opt.
XXXI. ÁR.
WINNIPEG. MANITOBA. 12. APRIL 1917
NR. 29
Bandaríkin segja Þýzka-
landi stríð á hendur
Þann 6. þ.m. samþykti þingið í Bandaríkjunum yfirlýsingu efri
málstofunnar í sambandi við tillögur Wilsons forseta í ræðu þeirri, er
Jiann flutti í byrjun þingsins. Yfirlýsing þessi var þannig: “Þar sem
að aðfarir hinnar keisaralegu þýzku stjórnar hafa í seinni tíð verið
stríð gagnvart stjórn og þjóð Bandaríkjanna, er nú ákveðið af efri
málstofunni og þjóðfulltrúastofunni, á sameinuðu löggjafarþingi Banda-
ríkjanna, að stríð sé hafið milli Bandaríkjanna og hmnar keisaralegu
þýzku stjórnar og henm hér með formlega sagt stríð á hendur, og:
Forsetanum sé hér með veitt full heimild, samkvæmt fyrirskipunum og
vilja þingsins, til þess tafarlaust að stiíga þau spor, ekki einungis að
búa landið örugglega til varnar, heldur einnig að undirbúa það til þess
að viðhafa alt sitt afl og alt sitt auðmagn í stríði þessu gegn þýzkri
stjórn, og til þess að leiða hildarleik þenna til heppilegra endaloka.”
—Þegar gengið var til atkvæða um yfirlýsingu þessa á þinginu, var
hiÍn samþykt með miklum meiri hluta. Voru 373 atkvæði þingmanna
með henni, en 50 móti. Miss Rankin,, þingfulltrúi frá Montana ríkinu
og eini kvenmaðurinn, sem kosinn hefir verið á þing í Bandaríkjunum,
greiddi atkvæði á móti. —
nýlega á Frakka í Riend vifi Ar-
gonne, en Frakkar voru þó við
pessu búnir og hröktu ]>á brátt
f höndum sér.
ftalir.
Engir stórbardagar eiga sér stafl
á sviæðum þeim ]>ar sem ítölsku
hersveitrirnar sækja gegn> Austur-
ríkismönnum. A Trentino svæö-
inu, í Adige dalnum, geröu þó ít-
alir allhörð áihlaup á virki Austur-
ríkismanna þar og náðu sumum
af fremstu virkjunum. A Julian
svæðinu áttu sér einnig stað all-
harðir bardagar og hröktu ftalir
þar óvinaherinn, tóku á sitt vald
eitt af fremstu virkjum og marga
fanga.
Stríðs-fréttir
Frá Frakklandi.
Skömmu eftir miðja vikuna seim
var tóku brezku hersveitirnar á
Frakklandi tvö þorp af I’jóðverj-
um f grend við borgina Peronne.
Einnig sóttu Bretar fram fyrir
norðvestan Epethy og hertóku þar
þorpið Metz en Couture. Tóku
þeir þar marga fanga af Þjóðverj-
um. Fyrir norðaustan Neuville St.
Yaast gerðu Bretar sömuleiðis á-
blaup á Þjóðverja og hröktu þá
þar á all-löngu svæði. f grend við
Í5t. Quentin gekk brezku hersveit-
unum einnig vel í lok síðustu viku.
Voru þá að gcra öfluga tilraun til
að ná á sitt vald brautinni á milli
Cambrai og St. Quentin. Tóku þeir
bæinn Lempire, sem er um þrettán
mílur suðvestur af Cambrai. Þar
voru teknir maigir fangar af Þjóð-
verjum og var einnig mikið mann-
fall f liði þeirra.
Þann 7. þ.m. sprengdu stór-
skotabyssur Englendinga upp
stórt skotfæra geymslubúr fyrir
Þjóðverjum nálægt Arras borginni.
Þegar geymslubúr þetta sprakk
reis loginn um 300 fet frá jörðu og
fylgdi sprengingunni svo mikill
Lraftur, að húsin í Arras skulfu
vjð.
Einna mest hefir borið á loft-
báta bardögum á Frakklandi f
seinni tíð. Bretar ihafa í lok síð-
ustu viku og byrjun þessarar svif-
ið í óteljandi loftbátum yfir skot-
gröfum Þjóðverja, hafa látið rigna
yfir þá sprengikúlum og einnig
tekið ljósmyndir af virkjum þeirra.
Margir af loftbátum Breta fórust
í aðgangi þessum, því Þjóðverjar
hófu öfluga vörn með loftbátaflota
sínum; 46 loftbátar óvinanna,
stórir og smáir, voru Skotnir niður.
En 28 loftbátar Breta týndu töl-
unni í þessum stórkostlega hildar
leik í geimnum uppi.
Bretar lina ekkert sókn sína á
Fraikklandi enn sem komið er. í
áhlau pi fyrir suðaustan Ypres
tóku þeir skotgrafir af Þjóðverjum
og 18 fanga. Nálægt St. Quentin
eru brezku hersveitirnar eftir sein-
ustu fréttum einlægt að gera árásir
á óvinaherinn og að leitast við að
komast á röð við hann þar. Hepn-
ist þetta, sem talið er líklegt, verða
Þjóðverjar að hefja undanhald
sitt á nýjan leik á þessu svæði.
Frá Mesopotamíu.
Brezku og rússneSku hersveitirn-
ar í Mesapotaimíu, sem sótt hafa á
Tyrki þar á tvo vegu, hafa nú náð
saman um 60 mílur norður af
borginni Bagdad. Yerður því sam-
vinna Breta og Rússa í Mesopota-
míu léttari eftirleiðis, en Tyrkjum
mun aftur á móti reynast vörnin
hálfu örðugri en áður. Nýlega tóku
Rússar af þeim borgirnar Khani-
min og Kasrichirium. Hina fyr-
nefndu borg vörðu Tyrkir af hörku
mikilli og voru ófúsir á að sleppa
henni, en þó fór svo á endanum,
að þeim varð þetta nauðugur einn
kostur.
Frá Bandaríkjunum.
Bandarfkin hafa hertekið öll
þýzk farþegaskip og kaupskip,
sem verið hafa í höfnum þess lands
síðan stríðið byrjaði, og hnept
skipshafnir þeirra í varðhald. Skip
þessi eru af öllum stærðum og eitt-
hvað um hundrað að tölu. Enn
þá er óákveðið ihvað gert verður
við skip þessi. Að Ifkindum mun
Bandaríkjastjórnin ihafa þau í för-
umhvort: hún slsér með öllu eign
sinni á þau, eða borgar Þjóðverj-
um verð þeirra að stríðinu loknu,
er óvissu hulið, þegar þetta er
skrifað. — Canada og allar “Banda-
manna’’ þjóðjrnar mega gleðjast
yfir því, að fá Bandaríkin f lið
með sér. Þeir liðsmenn eru nú til
orustunnar gengnir, sem ötulir eru
og öruggir og líklegir til mikils
starfs. Allur hinn enskumælandi
]>jóðstofn er nú sameinaður undir
einu merki, merki lýðfrelsis hilg-
sjónanna, sem hafið er gegn ein-
veldiis anda og hervalds kúgun.
Eitt af fyrstu sporum Bandarfkj-
anna f stríðs áttina er það, að
veita fjárhagsloga aðstoð þjóðum
]>eim í Evrópu, sem nú berjast
gegn Þýzkalandi. Lán, sem nem-
ur þremur biljónum dollara, á að
senda þjóðum þessum undir eins
og þingið hefir samþykt þetta með
lögum.
Ekki eins eyris gróða ætla
Bandaríkin að taka í sinn vasa
við lánveitingu þessa. Lánveiting
þcssi á að skoðast skerfur, sem
Bandaríkin taki sér á herðar í
stríðs þarfir. Fylgir ]>assu einnig
það loforð, að Bandarfkin muni
framvegis veita þjóðum þeasum
alla þá aðstoð á meðan stríðið
stendur yfir, sem í þeirra valdi
stendur.
Ríkisskuldabréf hefir Banda-
ríkjastjórnin ákveðið að selja, sem
nema fimm biljón dollara upphæð.
Fé þetta á að nota til þass að efla
sjóflotann og herafla þjóðarinnar
á landi. Með auknum sköttum á
einnig að leggja til stríðskostnaðar
upphæð, sem nemur $1,750,000,000.
A þessu geta menn séð, að Banda-
rfkln verða ekki á flæðiskeri stödd
h-vað fjárhagslega afstöðu snertir.
Lánveiting svo stór til Banda-
þjóðanna f Evrópu er sú drengi-
legaista aðstoð sem hugsast get-
ur, og mun brátt hafa þær afleið-
ngar, að gera þjóðum bessum
þeirra þunga stríðsok léttbærara.
Frakkar.
Stórkostlegur bardagi átti sér
stað eftir miðja síðustu viku á
milli Þjóðverja og Frakka fyrir
norðvestan Reims. Gerðu Þjóð-
verjar þar áhlaup mikið á nærri
tveggja mílna svæði. Var sókn af
þeirra hálfu svo hörð, að Fakkar
urðu undan að hrökkva hér og
þar. Ekki náðu þó Þjóðverjar
matkmiði sínu með áhlaupi þessu,
sem var að hrekja Frakka aftur á
bak á öllu þessu svæði. Hin
hreystilega vörn Frakka kom í veg
fyrir þetta. Er þetta einhver
stærsta orusta, sem Þjóðverjar
hafa háð gegn Frökkum f seinni
tíð, og var mikið mannfall á báðar
hliðar.
Við Somme og Oise hófu Þjóð-
verjar einnig stórskotahríð gegn
Frökkum, en Frakakr svöruðu á
sama liátt og varð ekkert mcira
úr þessu.
Skyndi álilaup gcrðu Þjóðverjar
Fleiri þjóíir gegn ÞjóÓerjum.
Sagt er, að Brazilía muni segja
Þýzkalandi stríð á hendur. Neð-
ansjávarbátar Þjóðverja söktu ný-
lega stóru farþegaskipi, sem var
eign Brazlíumanna, og fleiri smærri
skipum hafa þeir sökt fyrir þeim.
Haldið er að þetta muni leiða til
stríðs á milli Brazilíu og Þýzka-
lands áður margir dagar líða. Af
sviiiuðuin orsökum er einnig hald-
ið, að stjórnin í Cuba muni segja
Þýzkalandi stríð á hendur í ná-
lægri framtíð. Guatemala, ríki f
Suður-Ameríku, kvað einnig vera í
undirbúningi til strfðs gegn Þjóð-
verjum.
-----o-----
Austurríki snýst gegn Banda-
ríkjumim.
Fyrir áhrif Þýzkalands hefir nú
Austurríki sagt skilið við Banda-
rfkin. Konsúll Austurrfkis í
Bandaríkjunuin hefir beðið um
heimfararleyfi fyrir
menn sína. Talið er sjálfsagt, að
þetta sé fyrsta spor þess. að Aust-
mrríki segi Bandarfkjununi stríð ó
h.endur. — Að svo koninu hafa
hvónki Tyrkland né Bulgaria nein
slfik spor stigið, en ekki mun þess
lengi að bíða að bæði þessi lönd
við áhrif Þýzkalands snúist gegn
Bandaríkjunum.
Þjóðverjar hraktir á Frakk-
landi á 15 mílna svæði
Leystur frá herstjórn.
Gen. Ferdinand Foch einn af
æðstu herforingjum Frakka, hefir
nýlega fengið lausn frá herþjón-
þjónustu. Eftirmaður hans er
Gen. Áoria. Ekki vita menn enn
]>á, livort Gen. Foch verður veitt
annað emibætti af stjórninni eða
hann er alveg settur frá öllum
strafa sö.kum aldurs eða veikleika.
— Margir munu mlnnast þessa
manns fyrir hans snildarlegu
frammistöðu í orustunni við
Marne, einhverri þýðingarmestu
orustu strfðsins, og er þess vegna
sagt hér frá fregn þessari.
Á mánudaginn hófu Bretar árás á Þjóðverja á öllu svæÖinu milli
Aras og Lens, sem er um 15 mílna Iangt. Liggur svæði þetta beint
sig og undir- norður af stöðvum þeim, þar sem undanhald Þjóðverja gerðist. Hald-
ið er, að þetta sé byrjun öflugrar sóknar af hálfu brezku hersveitanna
á Frakklandi, sem í allan vetur hefir spáð verið að myndi eiga sér stað
með vorinu. Á öllu ofangreindu svæði hröktu Bretar nú Þjóðverja,
tóku af þeim vopn og vistir og um 1 1,000 fanga. I héruðunum í grend
við Lens eru kolanamur miklar, sem Þjoðverjar hafa unnið síðan þeir
í byrjun stríðsins hertóku þenna hluta Frakklands. Haldið er að
markmið Breta með áhlaupum sínum á þessu svæði sé að ná kolanám-
um þessum á sitt vald. Sunnan við svæði þetta gerðu Bretar einnig
áhlaup og í grend við St. Quentin tóku þeir tvö þorp af Þjóðverjum.—
Canadiskar herdeildir áttu þátt í áhlaupum þessum, gengu fram hraust-
lega og tóku marga menn fanga af liði Þjóðverja. — Hinar stórkost-
legu loftbáta árásir Breta í seinni tíð voru gerðar með því augnamiði
að undirbúa áhlaup þessi.
0r bænum.
Andrés Björnsson, sem áður var
í 223. deildinni, hefir verið færður
yfir í lækninga deildina (Medieal
corps).
Yngri sonur þeirra Sigfúsar húsa-
meistara Brynjólfssonar og konu
hans, Herbert að nafni, varð fyrir
því slysi að meiða sig á öðru,m
fæti nýlcga. Hann hafði hangið
aftan í vagni, eins og drengjum er
títt, og dottið á ferðinni. Samt
var hann svo heppinn að bein-
brotna ekki, eftir liví sem sagt er,
og er á góðum batavegi.
Pétur Vigfússon, bóndi að Oak
View, Man., er staddur hér í bæn-
um. Kom hann hingað til að
vitja um dóttur sína, Guðrúnu,
sem gengur á skóla hér f bænum,
og býst við að ganga upp úr efsta
bekk barnaskólans, eða taka
Entrance, eins og það er kallað,
nú í sumar.
WOODROW WILSON, Forseti Bandaríkjanna.
Loforð Þýzkalands keisara.
Frá Amsterdam á Hollandi kem-
ur sú fregn, að keisari Þýzíkalands
hafi nýlega átt að skipa Bethmann
Hollweg, ríkis kanslara sínum, að
semja og leggja fram ýmsar tillög-
ur viðvfkjandi endurbótum á
kosningalögum landsins, sem taik-
a«t eigi alvarlega til umræðu eftir
að íriður sé fonginn. Einnig fylg-
ir þossu sú stjórnarstaðfest frétt
fi4 Berlín, að þetta sé íyrirboði
þass, að eftir stríðið muni ýnnsar
endurbætur eiga sér stað á efri
málsfco'fu ríkisþingsins þýzka.
Þessi skipun keisarans til rfkis-
kanslarans er um lcið nokkurs-
konar ávarp til þjóðarinnar. Lýs-
ir keisarinn fyrst ánægju sinni yfir
þvf, hve örugglega og bjargfast
þjóðin hafi staðið undir merkjum
hans. Sú nieðvitund hennar, að
föðurlandið liafi verið neytt út f
þenna harða hildarleik og sé nú
að berjast fyrir tilveru sinni, hafi
stælt krafta hennar og vakið eld-
móð í brjósti hennar. Kröftug
hvatningarorð fylgja þessu svo og
einnig frekar óljós loforð í þá átt,
að endurbætur miklar muni eiga
sér stað í stjórnarfari Þýzkalands
að stríðinu loknu.
Engum blöðum er um það að
fletta, að utan að komandi áhrif
hrynda þessu ávarpi Þýzkalands-
keisarans af stokkunum. Áhrif
frá stjórnarbyltingunni á Rúss-
landi; áhrif frá Bandaríkja lýð-
veldinu, sem fylkir sér undir merki
lieirra þjóða, sem berjast gegn ein-
vcldinu þýzka. Keisarinn sér ein-
veldisstól sinn f voða. Eins og
druknandi maður þrífur hann í
stráið—og hampar þessum fögru
loforðum fyrir framan þjóð sína.
En skyldi ekki þýzka þjóðin vera
búini að fá nóg af þessum endur-
bótaloforðum? Keisarar hennar
hafa svikið slfk loforð sín áður,
]>egar hiættan var um garð gcngin.
Og núverandi keisari er engu lfk-
legri til að halda þau.
-----o-----
Hveitikorn stígur í verði.
Þegar fréttir bárust um það frá
Bandarfkjunum í sí ðustu viku,
hve dauft væri útlit þar með upp-
skeru ]>etta ár í “vetrar hveiti” hér-
uðunuin, tók hveitikorn strax að
stíga í verði hér í Canada. 1
Winnipeg steig No. 1 Northern
hveiti f $2.13Vá buslielið, sem er 8Vi
centurn hærra en það hofir nokk-
urn tíma verið í sögu Winnipeg
markaðarins. — Samhliða þossu,
eins og við mátti búast, isteig hveiti
mjölið einnig hlutfallslega í verði.
----------------o-----
Námuslys.
Sprenging mikil varð f kolanámu
nálægt Fernie í British Columbja.
Skeði þetta að kveldi dags þann 5.
þ.m. Yið sprcngingu ]>essa voru 36
námamenn lokaðir niðri í iðrum
jarðarinnar og komust ekki út.
Lítil líkindi eru, þegar þetta er
skrifað, að nokkurir af mönnum
þessum náist út lifandi.
Jón Ragnar Gillies og Salome ólafs-
son, Gísli ólaflsson og Freyja Sigur-
veig Gillies, Yaldimar Jóhann ólafs-
,son Qg Sigurbjörg Jóhanna K. fsaks-
son, öll frá Brown P.O., vom gefin
saman f hjónaband 7. þ.m. að 493
Lipton str., af séna Rúnólfi Mar-
teinssyni.
Kapp-glíman um beltið, sem áð-
ur hefir verið auglýst, verður háð
á föstudagskveldið kemur (13. þ.
m.) í Good Templara húsinu. —
Þessir 12 hafa nú iþegar gefið sig
fram til glímunnar: Beltishafinn
Guðm. Sigurjónsson/ Aðalsteinn
Jóliannesson, Benedikt Ólafsson og
Jakob Kristjánsson; allir frá Win-j
nipeg; C. Oddson og E. Jónsson
frá Árborg, S. Jónsson og M. Árna-
son frá Framnesbygð, H. Ander-
son frá Riverton, L. Einarsson frá
Lundar, M. Jakobsson frá Geysis-
bygð og Björn Pétursson frá Gimli.
—Aðgangsmiðar kosta 35c. og fást
keyptir í prentsmiðju O. S. Thor-
geirssonar, 674 Sargent ave.—Ágóð-
inn verður gefinn til 223. herdeild-
arinnar. — Glfman hefst kl. 8 og
að henni lokinni verður dansað og
leikið undir á lúður til kl. 1.
GTJLLFOSS
skip Eimiskipafélags íslands, fer
frá New York til Reykjavíkur
beina leið 20. Maf, og verður á
ferðinni milli þeirra staða aftur
og aftur f suimar. —
Fargjald á fyrsta plássi frá Win-
nipeg til Reykjavíkur er $115.45;
báðar leiðir $180.90.
Fargjald á öðru plássi frá Win-
nipog til Reykjavíkur $83.45; báðar
leiðir $148.90.
Þar að auki er fæði á fyrsta
Plássi 4 krónar á dag, en á öðru
plássi 2 krónur á dag.
Farbréf frá hvaða stað sem er f
Canada eða Bandarfkjunum.
Nokkuð margir eru alla reiðu
bi'inir að biðja um farbréf,—Eg get
selt farbréf hér fyrir fólk að heiin-
an á samía verði.
Arni Eggertsson.
302 Trust and Loan Bldg.
Winnipeg.
Agent félagsdns.
Var staddur á Rússlandi
George J. Burj', vara-forseti og *
og ráðsmaður Oanadian Pacific
járnbrautarfélagsins, var sfcaddur
á Rússlandi meðan stjórnarbylt-
ingin stóð yfir. Hann er nú nýlega
kominn til Lundúnaborgar á Eng-
landi og hefir hann frá mörgu að
segja, sem fyrir augu hans bar dag-
ana er aðgangurinn var mestur á
Rússlandi. Við tilmæli brezkra
stjórnmálamana liefir hann skýrt
ráðaneyti stjórnarinnar, er stríðs-
V, A. Naifason, einn> af helztu mál hefir með höndum, nákvæm-
bændum Foam Lake bygðar, hefir (lega frá þessu öllu og hlotið fyrir
þetta þakklæti IJoyd George, for-
legið veikur í undanfarandi vikur
og verið þungt haldinn. Var hann
nýlega sendur á sjúkrahús hér í
borginni Vonandi batnar honum
hér bráðlega við góða læknishjálp
og aðhlynningu.
Sigríður dóttir Eggerts Sigur-
geirssonar og Svanhildar Sigur-
geirsdóttur, að Siglunesi, hér í
fylkinu, er hér í bænum um tfrna
hjá Loifti Jörundssyni.
Guðrún, dóttir Péturs Vigfús-
sonar, bónda að Oak View, Man.,
er hér í bænum í vetur.
Prófin við hina æðri skóla fara
fram f þessum mánuði. Fyrirlestr-
ar við háskólann og hina aðra
skóla, er standa í samþandi við
liann, hætta nú á fimtudaginn.
Þá byrjar páskaleyfið og upp úr
því kemur upplestrartími fyrir
memendurna, áður sjálf prófin
byrja.
sætiisráðherrans.
Hann var staddur í Petrograd
meðan uppreistin stóð yfir. Helztu
tildrögn að uppreistinni segir
hann hafa verið nmtvöruskortinn
og hatur það, sem íbúar höfuð-
staðarins og í öðrum pörtum Rúss-
landis báru til leyni iögreglunnar
rússnesku, og svo einnig sú grun-
semd, sem almenn var, að áhrif
Þjóðverja væru mlkið farin að gera
vart við sig hjá mörgum helztu
mönnum keisarastjórnarinnar. Var
það almenn skoðun manna á öllu
Rúaslandi, að vllji stjóranrinnar
væri að æsa þjóðina hér og þar til
uppreistar; hegna henni svo þung-
lega fyrir þetta og láta þetta af-
saka það afchæfi stjórnarinnar—að
semja sérstakan frið við Þzkaland.
Hve vel lögreglan var undirbúin,
þegar uppreistin skall á, virtist
líka koma þessu til önnunar. Uppi
á þökum allra helztu stjórnar-
bygginganan voru þá til taks hrað-
skota byssur og þaðan lét lög-
reglan skothríðina dynja yfir fólk-
ið. Um 5,000 af slíkum hraðskota-
byssum fundust í alt. Uppreist-
inni lýsir Bury nákvæmlega nð
Prófin hefjast við háskólann 16.
þ.m. fyrir menfcamáladeildina og
standa yfir til þess 26. All margir,
sem um ]>að sækja, fá Ieyfi til þess
að fara út á land til að vinna ; heita má eins og sagt var frá henni
bændavinnu, vegna manneklunn-. hér 1 blöðunum. En ósamkomulag
ar, sem er. Þeir sem vel hafa stund- j segir hann nú ríkja töluvert á
að námið yfir veturinn, verða látn- • Rússlandi og megi menn því ekki
ir sleppa við prófin, vitnisburður- búast við miklu frá hálfu Rús»-
inn látinn gilda, er þeir fengu við lands að svo stöddu. Einlægur
jólaprófin og þeir fluttir upp eins vilji þjóðarinnar sé þó ,sá, að berj-
I og þeir hefðu tekið próf. 1 ast nú þar til sigur er fenginn.