Heimskringla - 31.05.1917, Qupperneq 5
WINNIPEG, 31. MAÍ 1917.
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA
lands, þó siðferði sé nokkuð reik-
ult. Rithöfundur einn enskur
hefir lýst Berlín og tekið fram, að
þar birtist “fullkomnasta þekking
í framkvæmdum, skipulagi og
háttum hins opinbera lífs”, og
bætir því við, að borgin sé “furðu-
verk borgaralegrar stjórnar, mest
nútíðar borg, með fullkomnasta
skipulagi er til sé.”
8.
Friðrik I. 1688—1713.
Prússland verður konungsríki.
Eftir þenna útúrdúr um sögu
Berlínarborgar, er hófst einmitt á
því tímabili sögu Prússlands, er eg
var að segja, og Friðrik Yilhjálm-
ur, kjörfurstinn mikli, átti einmitt
upptökin að, grípum við nú sögu-
þráðinn aftur, til að segja frá
næsta prússneska valdthafanum.
Sonur kjörfurstans mikla, sem
tók við völdum að honum látnum,
nefndist kjörfursti Friðrik III.
Hann var maður ail-ólíkur föður
sínum, sundurgerðar maður mikill
og metorðagjarn að sama skapi.
Yar hann eyð'slusamur og barst
mikið á. Lúðvík 14. Frakkakon-
ungur og hirðlíf hans, virtist vena
sú fyrirmynd, sem fyrir honum
vakti. Hann stældi Loðvík 14. og
hirðsiði hans að eins miklu leyti
og hann mátti. Hann dró á það
enga dul, að það sem hann þráði
mest af öllu, var að verða konung-
ur. Til þess fagnaðar voru allir
reflarnir skornir. Hann stofnaði
löndum þeim, er hann hafði tekið
að erfðum eftir föður sinn, í all-
mikla hættu.
Friðrik kjörfursti lét Branden-
borgar herinn berjast í liði sam-
herjanna, hinna ®nnarra í röðinni,
gegn Loðvík 14., og í erfðastríðinu
spánverska. En ekki riðu Prússar
feitum hesti heim til sfn úr þeim
vopnaviðskiftum, hvorki eftir frið-
arsamninginn í Ryswick 1697, né í
Útrekt 1713. Branderborgar herinn
hjálpaði keisaranum einnig í or-
ustum hans við Tyrki. Hann sendi
6,000 hermenn til varnar landamær-
um Hollendinga. Fekk Vil'hjálmur
af Oraníu fyrir því fult ráðním á
leigangri sínum gegn Englandi.
Stærsta afreksverkið, sem Friðrik
kjörfursti vann, var í því fólgið, að
hefja sjálfan sig til konungstignar
og land sitt uin leið upp í tölu kon-
ungsríkjanna. Hafði það lengi
verið þrá hians, að öðlast nafnbót-
ina: Konungur Prússa. Að síð-
ustu keypti hann sér leyfið af keis-
aranum, Leopold I., til að taka sér
konungsnafn, með því að lofa hon-
um 8,000 hermanna til aðstoðar í
styrjöldinni út af spánversku rfkis-
erfðunum.
18. janúar 1701 var mikill hátfð-
isdagur á Prússlandi, ekki sízt við
prússnesku hirðiha. Kjörfurstinn
Friðrik III. í Brandenborg, setti
þann dag konungskórónuna
þöfuð sér. Dagar kjörfurstanna
voru þá úti. Hér eftir nefndist
kjörfurstinn, sem hingað til hafði
verið kendur við Brandenborg,
Friðrik I. Prússakonungur. Hann
krýndi sig sjálfur í bænum Kön-
igsberg með gífurloga mikilli við-
höfn.
Þó nú þetta kunni að virðast
nokkuð hégómleg athöfn, hóf hún
landið heilmikið í ytra áliti í
stjórnarfarslegu tilliti og siðferði-
legu. Konungsnafnið varð þegn-
um landsins eins konar sameining-
ar tákn. Kom það enn betur í ljós
síðar á ríkisstjórnarárum hinna
tveggja mikilhæfu konunga, sem
urðu eftirmenn Friðriks I.
Það var annars hinn mikli metn-
aður smáríkjanna þýzku um þess-
ar mundir, hvort sem þau nefndust
kjörfurstadænni eða hertogadæmi,
að verða konungsríki. Um líkt
leyti breyttist kjörfurstadæmið
Saxland í konungsdæmi, er kjör-
furstinn saocneski hófst til konungs
tignar á Póllandi. En um leið
hafði hann orðið að taka róm-
versk-katólska trú. Á þann hátt
varð Hohenzollern-ættin eina þýzka
konungsættin mótmælenda trúar.
Friðrik I. var eyðslubelgur mik-
ill. Samt sem áður gerði hann
mikið til að efla andlegt líf í land-
inu, með því að styrkja lærða
menn og koma upp almennum
mentastofnunum. Hann stofnaði
háskólann í Halle (1694), listaskól-
ann í Berlfnarborg (1699), og vís-
ind'askólann (1700). _Þótt hann
þætti alt annað en forsjáll konung-
ur, jók hann lönd Prússa að nokk-
urum mun. Friðrik konungur
keypti að Saxlandi fógetadæmi, er
gengið hafði að enfðum, og kent
var við Quedlinburg. Sömuleiðis
keypti hann keisaraborgina Nord-
hausen, fógetadæmið Petersberg
og greifadæmið Tecklenburg. Og
árið 1702 tók hann að ei i'ðum eftir
Vilhjálm III. af Oraníu Lingen,
Mörs og Neuenburg. Þrátt fyrir
fyrir eyðslusemi annars vegar og
bruðl, varð Friðrik I. fyrirmynd
prússnesku konunganna í þvf, að
vera eins og góðir bændur, er bæta
jÖrð við jörð og færa smám saman
út kvíarnar, unz veldi þeirra er svo
mikið orðið, að þeir geta farið að
sýna nágrönnum sínum í tvo
heiinana.
Hirðin í Vínarborg hafði litið
lieidur en ekki hornauga uppgang
Prússa á dögum kjörfurstans
mikla. En hún hafði huggað sig
jafnótt við þá von, að hér væri að
eins um stundar blómatínmbil að
ræða, sem aðallega væri að þakka
i atorku og stjórnvizku þess mikil-
hæfa manns. Stjórnarár Friðriks I.
og þeir viðburðir, er þá gerðust,
virtust líka staðfesta þettia, Þegar
hann tók við völdum, gat Prúss-
iand með réttu gert kröfu til að
vera að tigninni til hið annað i
röð þýzku ríkjanna. En á dögum
Friðriks I. hófst Bæjaraland, Sax-
land og Hannover að minsta kosti
til líkrar tignar og Prússland.
Friðrik varð flæktur inn í styrjald-
ir vestur-Evrópu. Fyrir því fekk Sví-
þjóð tækifæri til að bera ægishjálm
yfir norður-Evrópu. Hér á eftir fór
það að verða Rússland, én eigi
Prússland, sem varð þröskuldur á
framleið hennar.
En heilbrigði rfkisins innvortis
hafði beðið nokkurn hnekki. Fjár-
málin voru öll komin á ringulreið.
Skattar og skyldur keyrðu fram úr
hófi og voru lítt bærar. Ef ekki
hefði verið tekið vel og viturlega f
taumania, hefði vegur Prússa orðið
fremur skammær og ferðin ofan
brekkuna býsna fljót. Hamingja
Priisslands var meiri en svo, að
þetta ætti að verða.
(Meira.)
— - --O-------
Haglsábyrgðarlögin í
Saskatchewan.
Eitt það þýðingarmesta, sem
snertir liag bænda í Saskatehewan,
er að fá fullkomna trygging á upp-
skeru gegn haglskemdum. Kom-
ust þeir að raun um l>að árið sem
leið, og með hvaða svikum þeir
voru beittir af stjórninni. Þeir
vissu eigi ananð, en að á hverri
ekru væri uppskera trygð gegn
skemdum, sem svaraði $5.00, og á
Jiað treystu þeir svo mikið margir
hverjir, að þeir keyptu enga aðra
i ábyrgð á akrana. Stjórnin ábyrgð-
ist þessa upphæð og lagði skatt á
iivern bónda í héraði fyrir þyí.
Kom engum til hugar, að stjórnar-
ábyrgðin væri ekki fullkomið í-
gildi allra ábyrgða. Engum kom í
huga, að svo væri frá lögunum
gengið, að ábyrgðin væri sama sem
engin, né heldur að reynt yrði að
komast hjá að greiða skaðabætúr,
ef einhverjar -yrðu. En hvernig fðr?
Haglbyljir æddu yfir ýms héröð þar
í fylkinu og gjöreyddu uppskeru
manna. Var nú umsjónarm'anni
stjórnarinnar tilkynt. Leið oft
langur tími eftir að hann fékk til-
kynninguna, að hann léti skoða
skemdirnar. Koim það sér aíar illa,
því á meðan mátti ekki eiga neitt
við akrana, en á því reið að plægja
])á sem fyrst, bæði vegna þess, að
plæging gjörð svo snemma sumars
var meira virði fyrir tilvonandi
uppskeru næsta ár, en ef hún
drógst of lengi frain á haustið —
og svo var nauðsynlegt að koma
henni frá. Má þakka þessum drætti
stjórnarinnar að miklu leyti hvað
lítið var plægt og undirbúið fyrir
sáningu í vor, er hafa mun þann
hæng í för ineð sér, að uppskera
verður með rfrasta móti í Sask. í
h'aust, og hjáipar það með öðru til
þess að auka dýrtíðina. En loks
voru svo skemdirnar skoðaðar og
inetnar. Leið svo og beið, unz kvis-
ast fór, að þær myndi eigi verða
greiddar. Trúðu menn því alment
eigi, fyr en þeir máttu til. Reyndi
nú stjórnin með öllu móti að kom-
ast undan ábyrgðinni, með til-
hjálp sinna eigin laga, kvað hagl-
sjóðinn gjaldþrota og fleira þess*
háttar. Að lokum lét hún sér það
sæma, að greiða $2.00 á ekruna að
nafninu til, í stað $5.00, og þóttist
hafa gjört vel. Hefði nú verið al-
gjört gjaldþrot í fylkissjóði, hefði
sjálfsagt ekki verið hægt um að
sakast, en svo var ckki. Heldur,
eins og hún lýsti yfir, all nokkur
afgangur, hvernig sem honum hef-
jr verið varið. Var þá ekkert ann-
að að gjöra, og það sjálfsagðasta,
en að greiða alla ábyrgðina, og
láta einn tekjuliðinn lána öðrum,
ef halii varð í vátryggingarsjóðnum.
En það fanst stjórninni ekki hag-
kvæmt—gjörði enda ekkert til, þó
bændur væru sviknir um það sem
þeim bar, mátti eins krefja þá
skatta og skylda sem áður.
Það munu fá dæmi, að nokkur
stjórn hafi svo brugðist við skyld-
um sínum og .Saskatchewanstjórn-
in gerði í þessum efnum. Og ekki
hefir hún látið sér til hugar koma,
að skifta svo við aðra, svo sem eins
og auðfélögin og járnbrautarfélög-
in, þegar hún hefir verið að lofa
þeim stórupphæðum í lánum og
gjöfum. Þá hefir aldrei verið minst
á sjóðþurð. Þá hafa miljónir doll-
ara verið teknar til láns til þess að
borga þeim, hafi engir peningar
verið til f sjóði.
Til þess að bæta úr þessari sví-
virðilegu meðferð, sem bændur
Kai ipi ið í. [} ■ Sparið tíma Kegma--0g Peninga
BEZTU PLÓG-SKERAR—Hafið þá til fyrir sumar plæginguna
12 þumlunga...........hver
13 og 14 þuml....$2.7.*» “
15 «g l(i þuml..........“
18 þuml..........ý:<.i5 “
Aflvéla—Gang—
No. »40-342—S.R. 17 $3.10 “
Plógskerar No. SP20 . . #3.25 “
Allir prísar F.O.B. Regina.
Vér ábyrgjumst vora Pióg-skera. Ofangreindir prísar eru þeir
lægstu í Vesturiandinu. Vér afgreiðum pantanir fljótt.—Sendið oss
pantanir í dag; skrifið eftir verðlista með myndum.
Western Implement Supply Co.,
-TAMES CUNNINGHAM, Manager.
1605 R—lOth Avenue REGINA, SASK.
North Star Drilling Co.
CORNER DSWDNEY AND ARMOUR STREETS
Regina, : Saak.
Agentar í Canada fyrir Gus Pech Foundry Co. og Monitor
Brunnborunar áhöld.
LOÐSKINN I HÚÐIRI ULL
, Et þér viljið hljóta fljótustu skil á andvirði
og hsesta verð fyrir lóðskinn, húðir, ull og
tl. sendið þetta til.
Frank Massin, Brandon, Man.
Dept H.
Skrifið eftir prísum og shipping tags.
Vér borgum undantekningarlaust
haesta verð. Flutningabrúsar lagðir
til fyrir heildsöluverð.
Fljót afgreiðsla, góð skil og kur-
teis framkoma er trygð með þvi að
verzla við
SÆTXTR OG SÚR
DOMINION CREAMERY COMPANY
ASHERN, MAN, OG BRANDON, MAN.
Rjómi
Sætur og Súr
Keyptur
á
urðu fyrir, samdi Mr. Willoughby,
formaður conservatíva, laga frum-
varp, sem hann bar upp á þingi i
vetur (þann 12. febr.), er fer frain á
fulla ábyrgð fylkisins að bæta
mönnuin áfallinn skaða, og fyrir-
byggja í framtíðinni að annað eins
fals væri í frammi haft aftur. En
auðvitað fékk það engar undir-
tektir frá stjórnarliðinu. Gæti
kannske þingmaður Wynyard kjör-
dæmis skýrt frá, livernig hann
greiddi atkvæði i því máli. Frum-
varpið var felt, án þess að koma
með nokkuð í staði-nn, og látið við
amnað sitja en svikin.
Frumvarp þetta skýrir afstöðu
lonservatíva í þassu máli og stefnu
þeirra; setjuin vér því útdrátt þess
hér:
Frumvarp til laga um skaðabæt-
ur fyrir haglskemdum á ökrum í
Saskatchewan:—
1. Stjórn fylkisins skal taka í á-
bytigð alla kornuppskeru Innan
fylkisins frá 15. júní til 15. septem-
ber ár hvert, gegn skemdum af
hagli, og greiða í skaðabætur upp-
hæð þá, sem tekin er til í lögum
þessum.
2. Til þess að mynda sjóð, er var-
ið ákuli til þessara skaðabóta,
skal lagður-4c. skattur á hverj>a
ekru sem yrkt er og sáð frá ári til
árs.
3. Tilkynna skal hver landeig-
andi með, eiðsvörnu skírteini, skrif-
ara sveitarinnar eða umboðsmanni
stjórnarinn'ar, hvað margar ekrur
hann hefir sánar með liinum ýmsu
korntegundum, strax og sáningu
er lokið, eða í síðasta lagi fyrir 15.
júni ár hvert.
4. Sveitarráðin f öllum sveitum
innan fylkisins skulu innheimta vá-
tryggingargjaldið á sama tíma og á
saina liátt og önnur sveitar útsvör.
5. Ár hvert, fyrir 1. dag nóv.mán-
aðar, skal þeirri innheiintu iokið
og féð vera afhent stjórnar umsjón-
arm'anni haglsábyrgðar.
6. Nú híður landeigandi skemdir
af hagli á uppskeru, skal hann þá
innan 10 daga tilkynna það með
vottföstu skjali stjórn'ar umboðs-
manni.
7. Bíði hann algjöran missi upp-
skerunnar, skal hann á sama hátt
tilkynna stjórnarumboðsmanni, og
samtímis sveitarskrifara, og krefj-
ast þess, að hann yfirlíti og meti
skemdir, og skal sveitarskrifari yf-
irlíta þær skemdir innan viku tima
frá þvf skemdir urðu, og tilkynna
þær með vottföstu skjali stjórnar-
umboðsmanni.
8. Verði 'að eins hlutfailslegar
skemdir en ekki uppskeru missir
algjör, skal iandeigandi, eftir að
þreskingu er lokið, fá skírteini frá
þreskjara viðvfkjandi upphæð
hinna ýmsu korntegunda, ekrutal,
o.sfrv., er hann skal framvísa ásamt
skaðabótar kröfunum.
9. Greiða skal allar slíkar rétt-
mætar kröfur úr haglsábyrgðar-
sjóði fylkisins.'— Sé um algjört tap
að ræða, skulu skaðabætur greidd-
ar um eða fyrir 1. sept. ár hvert, en
allar skemdir eigi síðar en fyrsta
dag nóvembermánaðar.
10. Skaðabætur skulu nema $5.00
á hverja ekru, þar sem um algjöran
uppskerumissi er að ræða, en hlut-
falslega við þá upphæð eftir því
sem skemdir verða metnar.
11. Hrökkvi haglsábyrgðarsjóður
eigi til að lúka allar skaðabætur,
skal umsjónarmanni heimilt að
greiða úr fylkissjóði, það sem til
vantar, og skal sú upphæð skoðast
sem lán, er borga skal aftur úr
haglsábyrgðarsjóði, á þeim árnm,
er tekjuafgangur verður.
12. Allar skaðabætur skulu und-
anþegnar öllu veði í uppskeru, öll-
um skuldum og skyldum landeig-
eiganda, hverjar helzt sem eru.
Með þessu sýnishorni, sem frum-
varp þetta gjörir ráð fyrir, værL'
fyrst liaglsábyí'gðuin innan fylkis-
ins komið í viðunanlegt horf. Og
það verður eftir næstu kosningar.
strax og stjórnarskifti yerða.
NÝ
UNDRAYERÐ
UPPGOTYUN
Eftir tlu ára tilraunir og þuugt
erfiðl hefir Próf D. Motturas upp-
götvað meðal, sem er sainan bland-
að sem áburður, og er ábyrg9t a5
lækna hvaða tilfelli sem er aí hinum
hræðilega sjúkdómi, sem nefnlst
Gigtveiki
og geta allir öðlast það.
Hvl að borga lækniskostnað og
ferðakostnað í annað loftslag, þegar
hægt er að lækna þig heima.
Verð $1.00 flaskan.
Burðargjald og striðsskattur 16 eenfc
Einka umboðsmennr
MOTTURAS LINIMENT CO..
P. 0. Box 1424
(Dept. 8) Winnipeg, Mair.
‘Tannlækning með engri eftirsjá’
ÞÚ HEFIR EKKI MINSTU AFSÖKUN AÐ FORSÓMA TENNURNAR OG SETJA HEILSU
ÞINA 1 HÆTTU, ÞEGAR ÞÚ GETUR FENGIÐ ÞÆR LAGAÐAR Á LITLU VERÐI
Ástæðurnar fyrir því, að eg get sparað þér helniing af vanalegum prís, er — að eg
hefi tnínar eigin efnafræðisstofur,—gjöri ákaf-legia mikið verk,—,kaupi alt sem til þess þarf
í stórkaupum (wholesale),—brúka að eins nýjustu aðferðir,—hefi að eins í þjónustu minni
æfða og ágæta sérfræðinga,—mentaða á beztu tannlæknaskólum Ameríku, og þeir vita
hvernig á að gjöra verkið án þess tað þú sért alt af á hlaupum dag cftir dag og eyðir i það
óþarfa tíma. Eg get sparað þér marga dollara. Skoðun og ráðlegging ókeypis.
Sérstakur gaumur gefinn utanbæjar fólki, til þess að spara því sem mest tímann.
Skrifið oss um tannkvilla yðar.
Til að gefa ykkur hugmynd um það, hve fljótt vér leysum verk af hendi, þá látið
mig taka mál af gómi yðar fyrir kl. 10 einhvern morgun—og eg skal hafa tanr.settið
tilbúið fyrir kveldið.
Dr. G. R. Clarke
Rooms 1 to 10 Dominion Trust Bldg. Cor. Rose St. and llth Ave. Phone 5821.
Office Hours: 8.30 a.m. to 6. p.m. Every Day Exceptmg Sundays and Holidyas.
REGINA, SASK.
Eg set Peninga
i vasa ydar
MEÐ ÞVl AÐ SETJA TENNUR
I MUNN YÐAR
ÞETTA ER ÞAÐ, sem eg virkilega geri fyrir yður, ef þér komið til mín og
látið mig gera þau verk, sem nauðsynleg eru til þess að tönnur yðar
verði heilbrigðar og sterkar. — Eg skal lækna tann-kvilla þá, sem þjá
yður. Eg skal endurskapa tönnurnar, sem eru að eyðast eða alveg farnar.
Eg skal búa svo um tönnur yðar, að þær hætti að eyðast og detta burtu. Þá
getið þér haft yfir að ráða góðri heilsu, líkams þreki og starfsþoli.
Expression
Plates
Hellt "set” af tönnum, búlfc til
eftir uppfyndlngu minnl, sem
eg hefi sj&lfur fullkomnatS,
sem gefur ytiur i annatS sinn
unglesan og eJSlilegan svip &
andlltltS. Þessa "Kxpression
Piates” refa ytiur elnnlg full
not tanna ytSar. Þær lita út
elns og lifandl tönnur. Þær
eru hreinlegar og hvitar og
stærtS helrra og afstatSa etns
og á "lifandi” tönnum.
$15.00.
Varaulegar Crowns og
Bridges
Þar sem plata er óþörf, kem-
ur mitt varanlcga "Brldge-
work” atS gótSum notum og
fyllir autSa statSinn l tann-
gartSinum; sama reglan sem
vitShöftS er i tilbúnlngum A.
“Bxpression Plates” en undir
stötSu atritSltS i “Brldges” þess-
um, svo þetta hvorutveggja
gefur andfitinu alveg etSlileg-
an svip. Bezta vöndun i. verki
og efni — hreint gull brúkatS
til bak fyllingar og tönnln
vertSur hvit og hretn “llfandi
tönn.”
$7 Hver Tönn.
Porcelain og Gull
fyllingar
Porcelain fyllingar minar eru
svo vandatSar og gott verk, ati
tönnur fylta- þanníg eru ó-
þekkjanlegar frá hellbrlgtSu
tönnunum og endast elns lengi
og tönnln.
Gull innfyllingar oru mötatSar
eftir tannholunnl og svo lnn-
limdar metS iementl, svo tönn-
In veröur eins sterk og hún
nokkurntima átiur var.
Alt erk mltt gbyrget atS vera vnndatS.
HvatSa taaalækatagar,
aem þér þarfalst, atead-
ar kda ytlar ttl kstta
kér.
Vottertl og mettmaell t
hnadratSatali frd veral-
aaarmSmam, NSgmdaa-
am «a preataaa.
Alllr akotSatSlr koetaatSarlanat. — Þér eratS mér ekke't sknld-
bnndair þé eg kafl gefltS yðnr rAtSlegglngar vltSvfkjandl tiSna-
ytfar., .KomltS etSa tlltaklts A kvnBa tlma þér vlIJIB koma. I
geganm talalmaa.
Dr. Robinson
Birks Building, Winnipeg. DENTAL SPECIAUST