Heimskringla - 21.06.1917, Síða 5
WrNNIPEG, 21. JÚNÍ 1917.
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐ61ÐA
ÉG SET PENINGA BEINT I VASA YDAR
MEÐ ÞVf AÐ SETJA TENNUR 1 MUNN YÐAR
ÞETTA ER ÞAÐ, sem eg virkilega geri fyrir yður, ef þér komið til mín og
látið mig gera þau verk, sem nauðsynleg eru til þess að tönnur yðar
verði heilbrigðar og sterkar. — Eg skal lækna tann-kvilla þá, sem þjá
yður. Eg skal endurskapa tönnurnar, sem eru að eyðast eða alveg farnar.
Eg skal búa svo um tönnur yðar, að þær hætti að eyðast og detta burtu. Þá
getið þér haft yfir að ráða góðri hcilsu, líkams þreki og starfsþoli.
Expression
Plates
Hellt "Bet" af tðnnum, búlS ttl
»ftlr uppfyndincu mlnnl, aem
eg hefi sjilfur fullkomnab,
■ em (efur ytiur t annah stnn
unalecan os etsiilesan cvlp A
andlttltS. Þesea "Bxprecslon
Plate«” *efa ylSur elnnls íull
not tanna ytSar. Þ«er Uta út
elns o( ltfandl tönnur. Þser
eru hreinlegar o( hvltar og
steerb þeirra og afstatSa elna
ec í “llfandl" tönnum.
$15.19.
Varanlegar Crowns og
Brídges
l>ar sem plala er óþörf, kem-
ur raitt raraniera. “Brldgre-
work” at5 góflum notum og
fyllir auöa statJinn í tann-
garTJlnum; sama reglan sem
viÖhðftJ er í tilbúningum á.
“Kxpreaslon Plates” en undir
stötJu atritJitJ í “Bridies” þess-
um, svo þetta hvorutvesrRja
*«fur andlitinu alvey eTJliles-
an «vip. Bezta vöndun ít verki
og efni — hreint cull brúkaö
til bak fyllingar og tönnin
verTJur hvít og hrein "lifandi
tönn.”
$7 Hrer Töu.
Porcelaio og GhH
fyifíngar
Porcelain fyllingrar mínar eru
svo vandaöar og ffott verk, atJ
tðnnur fylta~ þanní? eru ó-
þekkjanlegrar frá heilbrlsrtJu
tönnunum og endast eins lengi
og tönnin.
Gull innfyllinrar eru mótaöar
eftir tannholunni og svo inn-
limdar með *ementl, avo tönn-
ln verður eins aterk og hún
nokkurntima áður var.
Alt erk nftt ábyrcit tV vera nunltff.
Hrnffn tannl eknlnftr,
iea þ*r þarfalat, »tená-
ar hfti r»ar tll hoffa
hér.
Yottorff og aeffnall 1
kandrahatall frá veral-
■narnlnnnn, Nfgnlnn-
aan og frentnn.
Alllr tkoffnffir kontnaffarlanat. — 1»ér rruff anér ekke»t bknld-
bnndnir M eg kafl frefltl yffnr rftfflrgKÍngar vlVvfkJaadi tðnn-
yffar.. .Koniff effa tlltaklft ft hvnffa tlma þér vllJIS kona, I
gfgnun talafanan.
Dr. Robinson
Birks Building, Winnipeg.
DENTAL SPECIALIST
hafa tekiS vi?5 mútum, er skiftu
Jsúsundum dollara. Sannanir fyr-
ir öllu þessu komu fram við yfir-
iheyrsluna fyrir Brown-Elwood
rannsóknamefndinni. Auk þessa
varð stjórnarformaður Scott, að
segja af sér, þvl hann gat ekki
þvegið af sér, að hann þæri ábyrgð-
3na af öllu þessu. Var þá valinn
formaður í hans stað, Mr. Martin,
er var sambandsþingmaður; en nú
liggur hann undir þeirri óþægilegu
lcæru, að hafa þegið stórkostleg
fjárframlög frá lyfsölum og öðrum,
er leita voru ýmsra hlunninda, við
kosningu sína árið 1911.
Þetta svarar þá spurningunni,
vegna hvers að framkvæmdarsaga
iiberala í Sask. er stórkostleg, frá
hvaða sjönarmiði sem íhún er skoð-
uð.” Stórkostleg er hún, en hitt er
annað, hvort hún er að sama skapi
fögur.
Þá er næst “Búnaðaraðstoð,”
sem stjórnin hrósar sér «1. Telur
hún, hverju hún hafi varið til
þessa. En, má spyrja, í hverju er
sú aðstoð fólgin? Hefir nokkrum
bónda verið ihjálpað. Hafi útsæði
verið lánað bændum, hefir ekki
horgunar verið ki'a.fist fyrir það
aftur. Peningar þeir, sem stjórnin
hefir þózt veita í þessu skyni, nem-
ur í 12 ár $3,351,310, eða sem næst
70c. á mann á ári hverju, og er þar
með talið búnaðarskólaistyrkur og
annað þar að lútandi, útsæðislán,
sem aftur vofu borguð og koma
hefði átt fram sem tekjur, o. fl.
Upphæð þessi er eigi til að þykj-
ast af, er ganga hefði átt til hjálp-
ar aðal iðnaðargrein fylksins, en
hefir þó annars staðar borið niður
að miklu leyti. En þó hún hefði
gengið beint tíl bænda, hefði búr
inu ekki farið stórum fram við 70c.
tillagið.
3>á er næst “Samvinna,” sem
stjórnin þykist hafa komið á með-
al bænda. Svo sem eins og hvar?
Hún er ekki til, eðai getur hún
nefnt, hvaða samvinma það er?
Sipjörgerðarfélögin voru til, þegar
hún kom til valda, þau eru til enn,
og önnur samvinnufélög, er stjórn-
in hefir styrkt, þekkjast ekki.
Þá eru “Kornhlöður.” Af þeim
er lítið að láta, því Graiin Growers
félagið sjálft hefir fordæmt þær,
með því fyrirkomulagi, sem á þeim
er. Hafa þær ekki enn, svo vitan-
legt sé, gjört neitt til þess að greiða
íyrir hveitimarkaði þar á haustin.
3>á telur hún “Rjómabúin.” En
það er ekki uppfynding ' þessarar
stjórnar, því þau voru til áður en
hún tók við, og þeim hefir fjölgað
fyrir framkvæmdir bænda sjálfra,
eftir því som landið hefir bygst og
nautgriparækt vaxið. Þau eins og
alt annað að búskap iútandi, hafa
bændur sjálfir orðið að kosta og
annast; fer líka bezt á því. Sama
er að segja um hænsnaræktina.
Heimilin sjálf hatfa unnið að því,
en stjórnin ekki. Er það lilægilegt,
begar stjórnin fcr að helga sér helzt
alt, sem almenningur gjörir og eigi
heyrir undir hennar verkahring.
Sýnir það, að liún hefir fátt til að
tfna af sfnu eigin. Það verður þiað
bsesta, sem heyrist, að stjórnin
bykist hafa verpt öllum eggjum og
setið á og klakið út öllum ungum
* öllum hænsnaliúsum í Sask.
Þá nefnir hún “Kvikfjárræktina"
hún hafi “hjálpað bændum
vorumd) með.” A hvern hátt? Vill
hún skýra frá því? Minnist nokk-
ur bóndi þess, að stjórnin hafi á
síðastl. tólf ái-um veitt honum
nokkra hjálp með að koma fyrir
sig slíkum stofni eð$ koma svo
miklu sem einum lambsskrokk f
peninga? Það hefir aldrei verið.
En hún segist í ár hafa ákveðið að
verja $500,000 til að kaupa fyrir
kvikfe handa bændum vorum(!)
og selja þeim það. Það er þá hjálp-
in í síðatsl. tólf ár, að hún ætlar í
ár að selja þeim nokkra nautgripi!
En þeir verða víst gefnir. Þegar
þilið er nú að launa menn mcð
$4,000—$5,000 hvern, til þess að
kaupa þessa gripi. Því ekki vinna
þjónar hennar fyrir minna, eins og
sést á vegatbóta reikningunum. Og
svo hætist þetta við gripaverðið.
Hvað ætli að hjálpin verði þá stór,
þegar öliu er lokið og um það alt
er borgað?
Þá eru “Búnaðarmál yfir höfuð.”
Enn einn hlekkurinn í þessum
heilaispuna, sem hún kallar sína
stjórnmálasögu. Er þar talið, að
hún hafi skrifstofur, til að útvega
vinnufólk. Jú, það er nú til siðs
um alt Canada og ef engar slíkiair
skrifstofur væru í Sask., væri það
þá eini staðurinn í ríkinu, þar sem
þær væri ekki. En hvað hefir stjór-
in lagt til þessara stofnana? Þegar
flytja hefir þurft vinnufólk inn 1
fylkið, hefir sambandstjórnin orð-
ið að kosta það, borga járnbraut-
unum. Og eins þegar það hefir
verið flutt heim til sín wftur. At-
vinnuskrifstofur sambandsstjórn-
arinnar eru aðal stofnanirnar í
landinu, en ekki fylkjanna. Stjórn-
in þykist sérstaklega hlynnia að
nýkomnum bændum er “ekki
kunna mál landsins—enskuna”?
Þá fer nú að kasta tólfunum. 1
hverju er sú hjálp fólgin? Hefir
eigi heldur heyrst hitt, að hún
og útsendarar hennar hafa þrá-
sinnis reynt að villa þeim sjónir í
ýmsum efnum? Tilnefni hún eitt
einasta dæmi þess, ef hún getur.
Þá er "Mentun” enn einn gim-
steinninn í kórónu þessarar stjórni-
ar. Segist henni svo frá, að þegar
hún hafi tekið við, hafi þar engin
ráðstöfun verið til fyrir æðri ment-
un, cngir miðskólar, engir háskól-
ar eða búnaðarskólar. Miðskólar
voru til í stærri bæjum, svo sem
eins og Regina. En það stóð tæp-
lega til, að fylkisháskóli væri til,
meðan fylkið var ekki til og laindið
hafði engin sérmál til umráða, en
alt var í höndum sambandsstjórn-
arinnar, sem þá var liberal. Þessi
núverandi stjórn tók við striaix sem
landið hlaut fylkisrétt og sérstjórn.
En livað það áhrærir, að allir skól-
ar séu kostnaðarlausir, þá er betra
að segja það einhverjum, sem ann-
arsstaðar búa, en ekki fólkinu
sjálfu. Það stendur ekki til, að
skólarnir geti verið kostnaðarlaus-
ir, enda eru þeir aíair dýrir og gætu
verið kostnaðarminni, en þeir eru.
Að minsta kosti ættu landbúend-
ur ekki að þurfa að bera byrði af
bæjarskólunum, öf skattlögin væru
sanngjörn. Hver búandi geldur
minst $10 á ári til iheimaskólans og
svo $1.60 að auk til bæjarskóla, og
verður þá eigi talið, >að þeir séu al-
veg kostnaðarlausir. Margir borga
margfalt mcira. — 1 þessari sögu
sinni ber stjórnin saman hvað
borgað hafi verið úr sjóði hins op-
inbera til alþýðuskóla, árið sem
fylkið var stofnað og hún kom tii
valda, og aftur árið sem leið. Á
) það að sýna framfarir í þeim efn-
um. Árið 1906 eru borgaðir $251,200,
eru þá um 250,000 íbúar í fylkinu;
en ái'ið sem leið hafa verið greidd-
ir $700,000, en þá mun láta nærri,
a'ð íbúar séu um 750,000. Er þá
hlutfallslega goldið minna nú til
alþýðuskóla en var, og mega þeir
hrósa þeim framförum sem vilja.
Þá er þess getið líka, að nú hafi
hún leigt. einhvern Dr. Eoght til
að rannsaka ásigkomulag skólanna
og benda á nauðsynlegar breyting-
ar, og telur hún þenna Dr. Foght
“luUkomnasta mentamálafræðing,
sem til er á meginlandi þessarar
álfu.” Ekki er nú tekið af lakara
endanum og minna mætti nú gagn
gjöpai, og eitthvað kostar nú lík-
lega svona alveg einstaku-r maður.
En ekki er öll vitleysan eins, og í
hverju eru fólgnir þessir frámunar
legu yfirburðir l>essa manns? Vel
hefir hann hlotið að hafa farið
með þá og mjög leynilegia* því eng-
ir hafa heyrt þeirra getið fyr en
nú, og hefir hann gjört stjórninni
eigi lítinn greiða, að láta ]»etta eigi
vitnast fyr en nú rétt fyrir kosn-
ingar! Ef nú skólarnir væri í góðu
lagi, hefði ekki þurft að vista
þenma, roann, sem sýnir bezt, að
þeir þurfa breytinga við. Ef hann
er nokkuð annað en stjórnar ráð-
gjafi, er líkiegt að hann bendi á
mörg afglöp stjórnarinnar viðkom-
andi skólafyrirkomulaginu, og
mun liann ekki þurfa að vera mest-
ur mcntamálafræðingur i álfunni
til þess. í mentamálunum hefir
stjórnin ekki gjört nema lakiega
skyldu sína að komia upp háskól-
anum, sem líka að parti er kostað-
ur af sambandinu, en beitt al-
menning úti á landsbygðum stök-
ustu rangindum með því að láfca
hann bera kostnað af bæjaskólum
er hann hefir engra not.
“Járnbrautarmálið” telur hún
einnig í sinni framfarasögu. Marg-
ur hefði nú haldið, að hún myndi
eigi á það minnast, enda gjörir
hún það svo að hún segir ekkert.
Búið er að sýna fram á, í hvaða
hættu hún hefir stofnað fylkinu
með fjáraustri í járnhrautarfélögin
og skuldaábyrgð. Segir hún að
járnbrautirnar hafi ekki kostað
fylkið neitt. Svo hefði það átt að
vera, því fylkið á ekkert í þeim,
ekki eyrisvirði. En svo horfir þetta
nú öðru vísi við. Með skulda á-
byrgð, er nemur langt fram yfir
$50,000,000 og svo búið- að gefa
þriðjung af landinu burtu til þess-
ara féiaga, er eigi hægt að segjia, að
brautirnar hafi ekki kostað fylkið
neitt. Það mun leitun á, að á
nokkru bygðu bóli hafi verið farið
ver lað ráði sínu en stjórnin hefir
gjört í þessum sökum. Hún segir,
“að bændurnir hafi grætt ógrynni
fjár á járnbrautunum.” Það horf-
ir þá öðru vísi við í Sask. en alls-
staðar annarsstaðar, ef járnbraufc-
irnar hafa ekki grætt ógrynni fjár
á hændunum. Og um það iokið er
að borga fyrir öll þau iönd, sem
þessum félögum hafla verið gefin
og bændur verða að kaupa aftur
okurverði, um l>að búið er að
borga aila skuldasúpuna, væri
fróðiegt tað vita, hvað bændur
hefðu grætt á járnbrautarfélögun-
um.
Þá eru “Talsímarnir”, er hún tel-
urmeð í sínum framfara verkum.
En auðsjáanlega er henni ekki
gefið um að fara íbarlega út í það.
Búið er að sýna fram á, hvernig
hún hefir féflett bændur í því
máli. Reynslan er margbúin að
sýna, að í hverju sveitarkerfi kosfcar
talsíminn hvern búanda $35.00 í
eitt skifti fyfir öll, og svo árlegan
I viðhalds og starfskostnað, er litlu
[ nemur. En stjórnin hefir lagt
skatt á menn fyrir hann, sem nem-
ur $18—$24 á ári í 15 ár, og þess ut-
an $6—$8 á þá, sem engin not hafa
af honum, af því talsímialínur
liggja fratn með landareign þeirra.
Að talsíminn er nauðsynlegt menn-
ingartæki nú á tímum, neitar eng-
inn, en hann hefir ekkert meira
menningiargildi, þó hann sé látinn
kosta tíu sinnum meira en þörf er
á, til þess að auðga óráðvanda
stjórn.
En við næstu grein framfarasög-
unnar, er hún nefnir “Vegir, brýr
o. fl.”, hlýtur margur að brosa.
Það eru málin, sem stjórnin hefir
orðið fræg fyrir. Segist hún hafa
varið til þessara umbóta $13,000,000,
og af þvf séu $3,000,000 tilbrúar-
gjörða. Þetta er vel senniiegt, að
svona miklu fé, eða jafnvel meiru,
'ha'fi verið ausið út í sambandi við
vega- og brúargjörðir, en til vega
og brúargjörðar hefir því ekki ver-
iS varið. Vísum vér til dæmanna,
sem talin eru hér að framan, því
til sönnunar. Þarf eigi >að fara um
það fleirum orðum. Vegaumsjón-
armenn hennar hefðu ekki farið
hrönnum saman í tukthúsið fyrir
fjárdrátt og svik, ef öllum $13,000,000
—sem stjórnin hefir þannig spil-
að—hefði verið varið til vegabóta
og eigi annars. Samgöngumálin
eru einmitt nauðsynjamál, og því
er það 18ka enn svfvirðilegra af
þeim, sem trúnað þafa hlotið al-
þýðunnar, að þau skuli vera not-
uð til þess að ræna og flá landið
á allan hátt.
Þá er “Kvenréttindamálið” talið
næst. Búið er að sýna, að upptök
þess voru hjá conservatívum í Sask.
og það er fyrir barða sókn þeirra'
og kvenréttinda félaganna sjálfra,
að jafnréttislöggjöfin fékst.
Um “Verkamálalöggjöfina” e r
það eitt að segja, að hún er næst
sem engin, og því langt frá því að
vera ”bezt og fullkomnust allra
verkamálalaga í nokkru landi.”
Það er mjög svo ónákvæmlega til-
tekið um slysaábyrgð alla, er
vinnuveitendur eru skyldir að
bera gegn verkamönnum, ennfrem-
ur lögskyldan aldur, er unglingar
mega iánast í erviðar vistir, o.fl., og
er þá löggjöfinni næsta áfátt. Fróð-
legt væri að heyra eitt einasta
atriði, þar sem þessi löggjöf tæki
fram samskonar reglugjörð í hin-
um fylkjunum.
Um “Bindindismálið” þarf ekkl
mikið að segja, enda er stjórnin
sjálf fáorð um ]»að í þessari sögu
sinni. Sýndi það sig bezt, af hve litl-
utm toga það er spunnið, er einn
þjngmanna lenti í tugfchúsið fyrir
mútuþágur frá brennivínssölun-
um, en aðrir urðu að segja af sér
embætti. Conservatívar hreyfðu
vínhannsmálinu fyrst, en því var
tekið með háði og spotti af stjórn-
arsinnum, og aldrei hefði þeir sam-
þykt vínsölubann nema af því al-
menningur heimtaði það sem
stríð^ og hallæris nauðsyn.
Þá er sfðasta greinin í þessari
dásamlegu sögu: “Fjármála -ráð-
stafanir.” Fárast sagnaritari stjórn-
arinnar yfir því, hve andstæðingar
hennar hafi að ástæðulausu borið
henni fjárdrátt og óráðvendni á
brýn. Segir hann, «ð enginn hlut-
ur hafi farið stjórninni • betur úr
hendi, en fjármálin, sem liafi verið
stjórnað með varfærni, ráðvendni!
og hyggindum!! Þessi staðhæfing
ber sitt sannleiksgildi með sér, eft-
ir að búið er að sanna allan þann
þjófnað, sem framinn hefir verið í
sambandi við svo að segja hvert
opinbert verk, sem unnið hefir ver-
ið. Ef hann hefði sagt, “að fátt
hafi farið stjórninni eins vel úr
hendi og fylkisféð”, væri það sanni
nær, því á fáu mun hún hafa
haldið lausara, en fylkisfénu. Sem
sagt, fjárbruðl hennar hefir gengið
langt út fyrir það sem nokkrum
hefði til hugar komið, og sýnir það
sig bezt, þegar tölurnar eru settar
niður. Hvernig hefir þá ráðs-
menska.n verið í þessi 12 ár?
1 tólf árin mun moga segja, að
fylkistekjur hafi numið um IV* milj.
dollara á ári með öllu og öllu, væri
það þá á tólf árum sem næst 18
miljónum. Á sama tíma hefir fylk-
isskuldin vaxið $25,500,000. Hafa
þá tekjurnar numið alt í alt, aö
meðtöldum lánum, um $43,500,000.
Hvað mikið sé í sjóði, mun eigi
þurfa að spyrja um; það er nú víst
sáralítið. En fyrir hvað liefir öllu
þessu fé verið varið? Hvað hefir
stjórnin til að sýna fyrir það?
Með stofnunum og fyrirtækjum?
Hún tilnefnir háskólann, er á að
hafa kostað $1,750,000. Tiliag til
skóla og mentamála á að hafa
numið $4,000,000. Tilag til búnað-
armála, er mest part borgaðist til
baka. og ætti því eigi að vera talið,
$3,350,000. Til viðgjörða, sem held-
ur nær ekki neinni átt, $10,000,000.
Til brúargjörðar (er engri átt nær)
segist hún 'hafa eytt $3,000,000. Til
opinberra verka annara, svo sem
“dómlhúsa”(!) og fleira, sem svari
$5,000,000. Nær auðvitaö ekkert af
því, sem að verkamálunum lýtur,
nokkurri átt, því það verð er
hvergi til í þeim umbótum; og er
vel ef einn-þriðji af þessum tilreikn-
aða kostnaði hefir til þeirra geng-
ið. En látum svo vera, og tökum
alla reikninga stjórnarinnar, eins
og hún vill hafa þá, hvernig sfcanda
þeir þá? Þannig, að mismunur
verður um $16,500,000, sem hvergi
finst neitt fyrir. Nú sjá það allir,
hvernig þessar opinberu stofnanir
eru virtar, ef önnur eins kompa
eins og “dómhúsið” í Wynyard á
að hafa kostað $30,000, og mun
fleira þessu líkt, Það er því víst
engum vafa bundið, að fjármálun-
um hefir verið stjórnað með “ráð-
vendni, varfærni og hyggindum.”
Og enn fremur, “að þeir, sem nú
fara með stjórnmálin, séu menn
sem treysta má og trúa.”
Þó ekki væri nú nema þessi
stjórmmátesaga stjórnarinnar í 23
liðum,— yfirbreiðslan, ósannindin
og undirferlin, sem í henni felast,
og að hvergi skuli vera bent á eitt
einasta dæmi um framkvæmdir
eða hagsýni bennar, þá væri það
nægileg sönnun, öllum skynbær-
um mönnum, að stjórninni er
hvorki að treysta eða trúa. Það,
að hún bendir ekki á eitt einasta
sérstakt dæmi gjörða sinna, kem-
ur til af því, að hún þorir það
ekki; hún veit, að J>að yrði sér til
falls.
Þcss fyr sem 'almenningur í Sask.
losast við slíka stjórn, þess betra
verður það fyrir hann og fyrir
landið 1 heild sinni.
-----o-------
lslendingar, látið ekki
blekkjast!
1 sfðasta Lögb. er ódrengileg til-
raun gjörð til þess að villa kjós-
endum í Sask. sjónir við í höndvfar-
andi kosningar. Sagt er, að con-
servatívar noti nú það, sem aðal-
vopn á stjórnina þar, að hún sé of
hlynt útlendingum. Eins og ölk
um er kunnugt, hefir slíkt aldrei
til máte komið. Enda væri synd
að brigsla liberölum um það, því
þeir hafi ekki sýnt það í einu eða
neinu. Þarf ekki annað en benda
á Manitoba fylki því til sönnunar,
þar sem fyrsba. verk þeirra var hér
að banna alla kenslu útlendra
mála, ennara en enskunnar. Þarf
ekki annað en benda á "átrúnaö
arfrúna” þeirra, Nellie McClung, er
hefir margoft lýst þvf yfir, að hún
mótmælti þeirri óhæfu, að útlenzk-
ar konur hljóti latkvæðisrétt!
Lögberg getur þess að það geti
og því sé ljúft að birta ágrip af
þeim ofsóknum, sem liberalar liafi
orðið fyrir í Sask. fyrir að vilja
unna útlendingum jafnréttis. Það
hefði haft stærri þýðingu, ef þ,ið
hofði gjört það, til þess að sanna
þessar kærur sínar, en að slá þeim
fram eingöngu á ábyrgð ritstjór-
ans og láta þær styðjast við hina
þjóðkunnu ósannsögli lians. Lög-
berg getur ekki birt neitt slíkt, þvf
það er ekki til, og er hér með skor-
að á það að gjöra þaö. En ritsj.
er hér með tekinn vari á því, að
lygasögur hans verða ekki teknar
gildar. Það veröa að vera sögur,
sem við eitthvað annað hafa að
styðjast, en hlaupakonu eðli hans
og nælurgelt.
Það vita allir, hvað um er að
tefia við þeSv«ar kosningar. Það er
fyrst og fremst hvort sú stjórn,
og sá flokkur, sem uppvís er orð-
inn að svikum og fjárdrætti, eigi
lengur að sitj-a þar við völdin, til
þess að svíkja meira , ræna meiru.
Það er, hvort það eigi að líðast,
að hugsunarhætti kjósenda ogr
eamvizkusemi fyrir aimennum rnáF
um sé spilt svo, að þeir láti sig það
engu varða, hvort ráðvendni eða
óraðvendni haldist í hendur með
stjórnendunum, hvort settir séu
yfir almenn mál heiðvirðir menn
eða flagarar. Ekkert málgagn
stjórnarinar í Sask., að Lögbergá
meðtöldu, hefir gefcað horið af
henni svik og fjárdrátt, sem komið
hefir í ljós við rannsóknir og rétt-
arhöld á síðastíiðnum árum. Sumt
af því er gamalt, frá fyrri árum
hennar, sumt er nýtt nú frá síð-
asta ári. Hefði hún haft nokkurn
ásetning að reynast heiðvirð, hefði
síðasta sviksemi hennar ekki átt
sér sfcað, eins og með haglsábyrgð-
ina, svikin á firösímanum, og fleira
Muna þó víst flestir eftir hinum
fögru ráðvendnis loforðum hennar
við síðustu kosningar. Búið er nú
að reyna hvernig þau loforð hafa
gefist. Og með því er sönnun
fengin fyrir, hvernig loforðiu, að-
þ\d leyti sem þau eru nokkur, sem
nú eru gefin, muni reynast. Það
muna víst flestir eftir, frá síðustu
kosningum, öilu því tárastreymí
talsmanna hennar og fylgjenda, út
af ódrengskap conservatíva að ef-
ast um hreinskilni henanr f þeim
efnum. Nú eru þeir sömu náungar
að teuga landið á ný með hinum
sömu hreinskinis og iðrunartárum.
Það muna allir eftir, hvernig fylgj-
endur hennar rifu og slitu hár sítt
yfir þeim hróplegu rangindum, sem
liún væri beitt, af andstæðingun-
um, er efuðust um ráðvendni henn-
ar. Og þó var hún ekki fyr tií’
valda komin að nýju, en að hún
tók til fyrri ðju, eins og brúarsmíöi
hennar hjá Broadview sannar, þar
sem á einu smáverki að sviknar
eru af almenningi $74,000.
Almenningur í Sask. eins og ann-
arsstaðar í Canada, biður ekki um,
óskar ekki eftir að stjórnin veiti
neinum sérstökum þjóöflokkum
eöa hópi manna nein sérréttindi
eða aukin hlunnindi. Það er
hvorki réttlátt né í anda eða
stefnu þjóöa.rinnar. En hann krefst
þess og hefir fulla heimild til þess,.
aö stjórnin skeröi ekki réttindi
neins og að allir hafi jafnan rétt
eftir því sem þeir hafa til hans
unnið. Að hún noti ekki umboö
sitt og vald til aö gjöra þá fátæku
fátækari og þá ríku ríkari. En þá
kröfu hefir stjórnin eigi vilj'að
veita, eins og allir hinir mörgu
aukaskattar sanna, sem liún hefir
lagt á landhúandann, en hlíft bæj-
arbúum við, eins og allar þær
gja.fir sanna, sem hún hefir ausið
í verksijóra sína, umboðsmenn
sína, auðfélögin eins og Paisons
félagið, sem hún ihefir verið í fé-
lagsskap með, og járnihrautarfélög-
in. Tjáir henni því iítt nú, að fara
að lofa. fyrir munn sinna tais-
manna, aðhlynningu að einurn eða
neinuin. Fresturinn, sem henni er
veittur til betrunar, er útrunninn.
Lenging hans þýðir ekkert annað
en að veita henni ráðrúin til að
ræna meiru og rupla, be ur. Burt
með hana og alla hennar óhæíu,.
hún er búin að aðhafast nóg.
Látið ekki telja yður trú um, að
ekki séu til þeir menn, sem bæðí
hafi vit á og vilja til a,ð gjöra rétt,
og yður sé sá einn kostur nauðug-
ur að velja Stigamennina!
39&Í0SPS* S0 SP S0 .!*> &&&St> S0SPÍ0Í0
LÆKNAR NÚTÍMANS SPYRJA
UM TENNUR YDAR
Þegar þér hafiS ýmsa kvilla, sem ekki láta undan
meSulum læknisins, þá er vanalega spurningin hjá honum:
“Hvernig eru tennur ySar? Eru þær í góðu lagi? SjáiS
tannlæknirinn og komiS svo til mín aftur.”
Þegar tennurnar skilja sig viS góminn og þér hafiS
J»aS sem vér köllum “pyorrhea alveolaris ’, þá er því æfin-
lega samfara óregla á meltingunni, óhreint blóS og gigtar-
styngir í höfSi og annarsstaSar í líkamanum.
GóSur tannlæknir lagar þetta alt saman, og þaS kost-
ar ySur lítiS, ef þér komiS til vor.
Dr. G. R. C/arke
Rooms 1 to 10 Dominion Trust Bldg
Cor. Rose St. and llth Ave. Phone 5821
Regfna, Sask.
Skrifstofu tímar: 8.30 f.h. til 6 e.h. á hverjum degi, aö undanT
teknum sunnudögum og tillidögum
STÚLKA TEKUR MÓTI GESTUM 1 BIÐSTOFU