Heimskringla - 23.08.1917, Qupperneq 1
---------------------------------
Royal Optical Co.
Elztu Opticicms í Winnipeg. Við
héfum reynst vinum þínum vel, —
gefOu okkur tækifxri til aO reyn-
ast þér vel. Stofnsett 1905.
W. R. Fowler, Opt.
XXXI. AR.
WINNIPEG, MANITOBÁ, 23. ÁGGST, 1917
NÚMER 48
CANADAMENN VINNA STÓRSIGRA
Á FRAKKLANDI NÁLÆGT LENS
Síðasta vika var viðburðarík á
I’rakklandi. Bandamenn hófu stór-
kostleg áliiaup gegn Þjóðverjum á
rnörgum svæðum og unnu víða
stór.sigra. Aðal- sigurinn og ]>ýð-
ingarmesta unnu l>ó hersveitirnar
írá Canada, er bær um miðja vik-
una brutust fram á tveggja mílna
svæði nálægt borginni Lens. Eftir
einhverja bá hörðustu sókn, er sög-
ur fara af í stríðinu, tóku þær
]>arna hæð eina mikla, “Hill 70”.
Rr ]>etta samta hæðin og Bretar
unnu í áhlaupinu gegn Lens fyrir
tveimur árum síðan og töpuðu svo
aftur. Höfðu Þjóðverjar víggirt
l>essa hæð með öllu upplmgsan-
legu móti og var hún því eins örð-
ug sóknar og nokkur staður getur
verið. En svo knálega sóttu Oan-
adamenn fram, að ekki leið á
löngu áður Þjóðverjar urðu und-
an að hrökkva. Var svo barist um
hæðina l>að sem eftir var vik-
unnar, því óvinirnir vildu ólmir
uá henni á sitt vald aftur.
Ásamt því að taka þessa hæð og
halda henni, tóku Canadamenn
einnig mörg þorp þarna nærri og
um 1,200 íanga tóku þeir í alt í
viðureignum þessum. Eru þetta
stærstu sigrar Oanadaliðsins síðan
stríðið byrjaði. Einn þýz)ku fyrir-
liðanna, er teknir voru fangar,
kvartaði sáran undan þessum óför-
uin manna sinna. Krað hann
þýzku hermennina nú vera ólíka
því sem áður voru.
Vafmlaust hafa einhverir íslend-
ingar verið í orustum þessum og
niunu fréttir um það koina síðar.
Var sagt, að herdeildirnar frá
Tdanitoba hefðu getið sér ágætan
orðstýr við að verja hæðina ofan-1
nefndu og í flestum herdeildum
hr þessu fylki eru líkindi til að |
eitthvað sé af íslendingum.
Bretar og Frakkar sátu heldur
okki um kyrt síðustu viku. Um
niiðja vikuna hófu hersveitir
]>eirra stórkostlegt álilaup á Þjóð-
verja á níu mílna svæði fyrir norð-
austan Ypres í Flanders. Tóku
Kretar þá þorpið Langemarck eftir
harða sókn og langa og var þetta
bandainönnum stúr sigur.
Fengu þeir haldið þorpi ]>essu'
þrátt fyrir tíð og öflug álilaup ó-
vinanna. Á meðan Bretar voru
að sækja og verja stað þenna, brut-;
ust Frakkar fram nálægt Yser!
skurðinum og hröktu Þjóðverja
]>ar á stóru svæði. Um 1,800 fanga
tóku bandamenn í alt í orustum
þessum og þar af voru 38 fyrirliðar. \
Einnig tóku þeir stórbyssur marg-J
ar og stórar birgðir af öðrum vopn-
uin og vistum.
Víðar gekk Bretum vel síðustu
v>ku. Hægra megin við Steenbeke
gerðu þeir áhlaup á all-stóru svæði
fengu Þjóðverjar þar lítið viðr
háin veitt. Einnig'sóttu þeir fram
fyrir norðaustan Gouzencourt og
austan Vermelles og voru þar sig-|
ursælir. — í byrjun þossarr viku \
tóku Frakkar að sækja fram á Ver-j
dun svæðinu, beggja megin við
Meause fljótið. Hröktu þeir Þjóð- j
verja þar á ellefu mílna svæði og
tóku af læim um 4000 fanga. Stóð
hrusta þessi yfir í þrjá daga og var
hún sótt á báðar liliðar af öllum |
1>eim krafti, er Þjóðverjar og
Fnakkar eiga til. Þetta er stærsti
slagurinn, sem verið hefir á Ver-
dun svæðinu nú lengi.
Síðustu viku er sagt að banda-
hionn hafi skotið niður 114 loft-
báta fyrir Þjóðverjum.
Bússar virðast nú óðum vera að
né sér aftur og undanhaldi þeirra
mun nú vera lokið, í bráðina að
minsta kosti. Rúmeníumenn liáðu
margar harðar orustur síðustu
vlku og virðist að þeir hafi staðið
sig ágætlega. Þar sem Rússar og
Rúmeníuimenn sækja fram sam-
hliða, hefir þeim einnig gengið vel.
Ait bendir nú til þess, að skipu-
lag sé að komast á.rússneska her-
inn yfirleitt. Engir hermenn í
heimi eru hugprúðari né vaskari
en rússnesku þermennirnir, það
liafa ]>eir margsinnis sýnt og und-
ir góðu skipulagi má því mikils af
þeim vænta.
Brezku herskipi (destroyer) var
sökt í Norðursjónum í síðustu
viku. Skipstjóranum, tveimur
unidirmönnum iians og 43 af
skipshöfninni var bjargað.
Merkileg ritgerS.
Merkileg ritgerð er nú að birtast
í blaðinu “Public Ledger”, sem gef-
ið er út í Philadelphia í Banda-
ríkjunum. Ritgerð þessi er eftir
fyiverandi konsúl Bandaríkjanna
á Þýzkalandi, Jannes W. Gerard, og
er fyrirsögn henniar: “Fjögur ár á
Þýzkalandi.” Hefir ofannefnt blað
fengið sérstakt leyfi frá Banda-
ríkjastjórninni til að birta þessa
ritgerð, sem síðar verður svo gefin
út í bókarformi. Skýrir Mr. Gerald
fiá veru sinni á Þýzkalandi fyrir
og eftir að stríðið ihófst og sannar
það ljósum rökum, að stríðið var
fyrirhugað af Þjóðverjuim. Birtir
luann margt fróðlegt Þjóðverjum
viðkomandi og keisara þeirra. —1
Sagt er, að sum af blöðunum á
Þýzkalandi hafi brugðist reið við.
síðan ritgerð þessi tók að birtast
og verið all-þungorð í garð keisar-
ans og fyrverandi kanzlara, Beth-
mann-Hollwegs, fyrir gerðir þeirra
ýrnsar, sem nú koma í ljós.
-------o-------
Sprenging í verkstæði.
Stórkostlegar 'sprengingar áttu
sér stað á laugardaginn var í verk-
stæði einu, þar sem ýms sprengi-
efni voru til búin, í Rigaud þorpi
í fylkinu Quebec. Verkstæði þetta
var afar stórt og var alveg lagt í
rústir. Eldurinn breiddist út, og
áður lahgt leið voru öll hús þossa
þorps lögð í eyði. Þegar þetta er
skrifað, hafa ekki borist ljósar
fréttir af sprengingu þessari. Víst
er þó að einn onaður beið bana og
rnargir særðust. Haldið er að fleiri
muni hafa farist. Eignatjón talið
að vera um tvær miljónir dollara.
-----------------o-------
Fyrverandi Rússakeisari útlægur
Fyrverandi keisari Rússlands,
Nikulás Roroanoff, hefir nú verið
tekinn úr liöllinni, þar sem liann
hefir verið geymdur í varðlraldi
síðan eftir stjórnarbyltinguna, og
verið færður eitthvað burtu. Er
haldið að hann hafi verið fluttur
til Tobolsk, 'sem er afskektur bær
í Síberíu vestarlega. Með keisar-
anum var einnig tekin í útlegð-
ina drotning hans, fyrverandi
ráðherrar tveir og ótal þjónar.
Ferðaðist keisarinn nú og fylgdar-
iið hans með vanalegri eimlest og
án minstu viðhafnar.
-------O--------
Mikið ólag á Spáni.
Kjötneyzla takmörkuð.
Bannlög þau iiafa nú gengið í
gildi liér í Canada, að öllum mat
söluhúsum er bannað að selja
nautakjöt eða reykt svínskjöt
(bacoh) á þriðjudögum og föstu-
dögum og ekki nem-a við eina mál-
tíð á öðrum dögum vikunnar.
Einnig er bannað að bráka hveiti
til þess að framleiða nokkurn vín*
anda (alcohol), nema til skotfæra-
gerðar, og verður þá að fá sérstakt
leyfi frá stjórninni. Þutigri sekt
varðar, að brjóta lög ]>essi.
Þarft spor stigið.
Liberalar í suður hluta AVinni-
peg borgar liéldu fund mikinn á
þriðjudagskvöldið. Sóttu fund
þenna um 2,000 manns og var
Norris, forsætisráðherra fylkisins,
einn af ræðumönnum. Á fundi
þessum kom í ljós megn óánægja
gegn Sir Wilfrid Laurier sem leið-
toga þjóðarinnar á þessum tímum.
Var samþykt í því nær einu hljóði
að 15 manna nefnd væri kosin til
þess að roæta á ráðstefnu með eon-
9ervatívum og öðrum, sem hlyntir
eru þátttöku þjóðarinnar í stríð-
inu og skoða herskyldu óumflýjan-
iega. Miarkmið ráðstefnu þessarar
er að útnefna þingmannsefni, er
liberalar og conseivatfvar geti stutt
sameiginlega. Fór fundurinn vel í
heild sinni og leiddi í ljós einlæg-
an vilja liberaia', að leggja alt
flokksfylgi til sfðu og vinna kapp-
samlega að velferðarmálum þjóðar-
innar og herroanjiia henniar.
Rogers segir af sér
------O————
Rogers Segir af sér.
Hon. Robert Rogers .verkainála-
ráðherra sambandstjórnarinnar í
Ottawa, hefir siagt af sér. Orsök
þess er sú, að honum þótti dnkigast
of lengi að lögleiða lierskyldu frum-
varpið. Einnig var hann mjög
andvígur samsteypustjórn flokk-
anma1. Eftir seinustu fréttum að
dæma að austan, virðist -ekki von-
laust, að hægt verði að mynda
slíka stjórn eftir alt saman. For-
sætisráðhernann, Sir Robert Bor-
den, hefir unnið að þessu af ítrasta
megni og .ef þetta hepnast, verður
það lians öruggu framimistöðu að
þakka. Engin vissa er cn.n fyrir
þessu fengin, en talið er líklegt að
eftirfylgjandi liberalar verði valdir
í stjórn þessa: A. L. Sifton, forsæt-
isráðherra Alberta; H. W. Wood,
forseti “United Farmers” félagsins;
J. A. Calder, embættismaður stjórn-
arinar í Siaisk.; J. G. Turriff, frá As-
siniboia og T. A. McCrerer, forseti
Grain Growers félagsins. Um tíma
var sagt, að Sir Clifford Sifton
myndi verða eittbvað við stjórn
þessa riðinn, en alveg er þettiai ó-
vfst enn þá.
------—O------
Kína að hervæÖast.
Á þriðjudaginn í síðustu viku
sagði stjórnin í Ivína Þýzkalandi
og Austurrfki stríð á hendur. Ekki
er þetta talið að verta neitt í sam-
bandi við bandaþjóðirnar né að
þeirra háði gert. Kímar brjótast
þenna veg af sjálfsdáðum og h'aifa
fundið sig knúða til eökum ,neðan-
sjávar báta hernaðarins þýzka. —
Kínverski jötuninn er að vakna, og
það eru Þjðverjtair, söm fyrstir fá að
kenna á kylfu hans.
Frá austur-vígstöðvum.
Fngar stórorustur áttu sér stað á
hersvæðum ítala fyrri part vik-
únnar. Smá-slagir voru háðir hér
°g þar, er ekki báru mikinn árang-[
úr fyrir hvoruga hliðina. En f lok
vikunnar hófu Italir stórkostlcgt
úhlaup gegn Austurrfkismönnum!
^ Isonzo svæðinu. Fylgdi áhiaupi
l'essu regilegasta stórskotahríð og
^engu ítalir brotist áfram á 37
lnílna svæði. Á mánudaginn f
hessari viku, höfðu þeir tekið um
10,000 fanga af óvinunum og einnig
stórar birgðir af vopnum og vist-
úhi- A öðrum svæðum hafa ítalir
Verið að gera álilaup síðustu daga
°g gengið vel.
Mesti ófögnuður hofir ríkt á Spáni
í seinni tíð. Verkalýðurinn þar hef-
ir gert allsherjar verkfall og til
þess að varna uppþotum og halda
' við reglu 'hefir alt landið verið sett
undir herlög. Sagt er að stjórn-
leysingjar og aðrir óróaseggir liafi
komið þessu til leiðar, en það ein-
kenniiegasta við þetta er, að ekkert
sjáanlegt markroið virðast þeir
hafa fyrlr augum með þessu. Eng-
in tilraun hefir enn þá verið ger til
þoss að hrinda núverandi stjómar-
ráöancyti á Spáni frá völdum. Eng-
in orð töluð í þá átt. Þegar sein-
ast fréttist voru allar helztu verzl-
anir í borginni Madrid lokaðar og
engir ökuvagnar sjáanlegir á göt-
unum; stafaði þetta af verkföllun-
um, ökumanna og annara.
Skúli Thoroddsen látinn.
Sú frogn hefir borist hingað vest-
ur í bréfi, að Skiili S. Thoroddsen
alþingism. hafi látist úr lungna-
bólgu í Reykjavík 22. júlí eftir
stutta legu. — Viö hið sviplega
fráfall Skúliai á ísland á bak að sjá
mesta efnismanni í blóma lífsins.
Hann varð að eins 28 ára gamall
og því yngstur þingmaður er á al-
þingi hefir setið. Hamn var kosinn
í sæti föður síns, Skúia hins eldra.
í Norður ísafjarðarsýslu við síð-
ustu kosningar, og lagði þá að velli
þinggarpinn séra Sigurð í Vigur.
Eimskipafélag Islands
býður Vestur-íslendingum 25. þús.
kr. frekari hlutakaup í félaginu.
Ilér mcð tilkynnist Vestur-íslend-
ingum, að til sölu eru nú 25 þús-
und króna virði af hlutum í Eim-
skioaféiagi Islands, með eftirtöld-
um skilmálum:
1. Enginn fær keypt minna en
100 króna virði af hlututn. En
ein^ mikið meira og hver vill.
2. Vevð hvers 100 kr. hlutar er
$30.50.
3. Hlutapantanir verða að vera
kom.nar til féhirðis hlutasölunefnd-
arinnar, herra Tli. E. Thorsteins-
sonar, Manager Northern Crown
Bartk, Cor. William Ave. and
Sherbrooke St., Winnipeg, ekki síð-
ar en 30. sept. m.k.
4. Full borgun verður að fylgja
hverri hlutapöntun.
5. Pantanir verða teknar til
greina í þeirri röð, sem þær berast
féhirði.
Til skýringar skal þess getið, að
hlutaverðið er miðað við það
gjald, sem bankar í Winnipeg,
þann 14. þ.m., þegar hlutaútboðið
var samþykt á fundi hlutasölu-
nefndarinnar hér í borg, kröfðust
fyrir hverjar 100 krónur útborg-
aðar ó íslandi.
Eftir skýrslum og reikningum
Eimskipafélagsins, og ]>eim fréttum
öðrum, sem hlutasölunefndinni hér
liaTa borist, verður ekki annað á-
lyktað, en að hver króna í hlutafé
fél*-vsins sé nú tvöfölduð í verði.
Hiutakaupin eru þvf beint
gróðafyrirtæki og verða «ð líkind-
um ekki síðar boðin ó nafnverði.
Nefndin ræður því þeim, sem vildu
kaupa liluti í félaginu, að'senda
pantanir sínar sem allra fyrst og
með fullri borgun fyrir alt það
hlir.afé, sem um er beðið.
•i'* 3. L. Baldwinson,
ritari.
17. ágúst 1917.
--------o-------
0r bœ og bygð.
Fundurinn, sem haldinn -var i
liúsi Good Templara fisntudags-
kveldið 14. þ.m., sýndist í fyrstu
ekki ætla að verða sériega fjöl-
mennur og var þess beðið iað fólk
kæmi. Þegar salurin var orðinn
sæmilega fullur, var fundur sett-
ur og Jón J. Bíldfell kosinn fund-
arstjóri. Árni Eggertsson skýrði
málið með ítarlegri ræðu og ýms-
um skjölum, sem hann hafði með-
ferðis. Umræður urðu allfjörugiaft*,
sem alment var veitt bezta eftir-
tekt. Yfirlýsing var samþykt,
sflm prentuð er á öðrum stað í
blaðinu og voru að eins sjö at-
kvæði móti.
Franklin Hail, sonur Jónasar
Hall á Gardar, var hér á ferð í vik-
unni, sem leið, með sfna ungu
brúði öninu Jóhannesson, dóttur
Benedikts heitins Jóihannessonar,
bónda að Qairdar. Þau eru alveg
nýgift og fóru brúðkaupsferðina
hingað norður. Mundu þau hafa
farið vestur til Saskatchewain, ef
mesti anntími ársins hefði ekki
verið byrjaður. Nú er þegar farið
að þreskja suður f Dakota-bygðun-
um. Ungu hjónin héldu heimleið-
is ó mánudiaiginn.
Miðvikudaginn 15. ág. voru þau
Gfsli Benediktsson, liveitikaup-
roaður í Kandahar, og Miss Sig-
ríður Eyjólfsdóttir frá Park River,
N.-Dak-, igefin saman í hjóniaíband
af séra F. J. Bergmann, að heimili
hans, 259 Spence str. Brúðguminn
er sonur síra Bencdikts EyjólfsSon-
ar, en brúðurin dóttir Páls Eyólfs-
sonar bónda í Wynyard.
Árni Eggertsson hefir fengið
símskeyti frá Eimskipafélags skrif-
stofunni í New York um það, að
Gullfoss komi til New York þ. 21.
eða 22. ágúst, og nnuni fara aftur
þaðan seinni partinn í næstu viku.
Hann getur tekið farþega, konur
og karla, sem fararleyfi (pass-port)
hafa. Fargjaldið á fyrsta farrými
frá Winipeg til New York og það-
an til Reykjavfkur, er $133.10, á
öðru íarrými $95.45; hálft fyrir börn
innan* tólf ára ó skipinu. Fæði er
fimmjíiónur á dag á fyrsta farrými
og þrjár kr. á dag á öðru. Frekari
aðstoð og upplýsingar að fá á skrif-
stofu Árniai Eggertssonr, 302 Trust
and Loan Building, Portage Ave„
Winpipeg.
Bfaðið "The Wy/iyard Advance”
flytur þá frétt, að Jónas Th. Jón-
aisson B.A., liafi verið settur skóla-
stjóri við gagnfræðaskólann (Higih
School) í Wynyaad. . Mr. Jónasson
er útskrifaður af Wesley skólanum
liér í Winnipeg og hefir skipað liáa
stöðu við' skóla í Brandon og
iilotið- þar beztu meðmæli. Gekk
lnainn í herinn og er nú í tölu heian-
kominna hermanna. Hann er
hæfileikamaður og þvi til hans
borið bezta traust í hans nýju
stöðu. — Einn af kennurum við
skóla hans er ráðin Miss Björg
Frederickson frá Kanadahar.
Misprentast liefir í síðasta blaði
í gjafalistainum til Jóns Sigurðs-
sonar félagsins. Þar stcndur að
Mrs. G. Bjarnason frá Argyle hafi
gefið $1.00—á að vera $2.00.
------o-----
SSLANDS FRÉTTIR
Alþingi var sett 2. júlí. Séra Krist-
inn Daníelsson var kosinn forseti
f sameinuðu þingi, en Sig. Eggerz
varaforstti. 1 neðri deild var ólaf-
ur Briem kosinn forseti., varafor-
setar Ben. Sveinsson og Bjarni
Jónsson frá Vogi. í efri deild fors.
Guðmundur Björnsson landlæknir
og varaforsetar Guðjón Guðlaugs-
son og Magnús Kristjánsson.
Tíðin er stöðugt köld og sífeld
norðanátt.
Þingmálafundur var haldinn af
þingm. Rvfkur í Barnaskólaport-
inu síðastl. sunnud. Fundarstjóri
Ben. Sveinsson alþm.. Jón Magn-
ússon forsætisráðhó, skýrði frá fiw.
stjórnarinii'ar, sem fyrir alþing
verða lögð. Jör. Brynjólfsson tal-
aði einkum um nauðsyn á dýrtíð-
arhjálp handa almenningi, að sér
yxi ekki í augum þótt taka yrði til
liennar 2— milj. kr. lán. Nokkrir
rncnn aðrir tóku til ínáis, og báru
fram tiilögur, svo sem ritsj. ólafur
Friðriksson, og J. Möller, Þorv.
Þorvarðsson bæjarfulltrúi og fleiri.
Samþ. var áskorun til alþingis um
fjölgun þingmanna í Rvík, um is-
lenzkan siglingafána, að landsstj.
taki að sér einkasölu á kolum, sclti
og olíu, um rannsókn á fyrirkomu-
lagi landsverzlunarinnar, um að
lög yrðu sett urn líftrygging sjó-
manna (eitt af stj.frv.), um að
heimildarlög yrðu sett fyrir Rvík-
urbæ til eink'asölu á mjólk, um af-
nám sykurtolls, og um það, að
hel®t fengist viðurkent nú þegar
fullveldi landsins í utanríkismál-
um. — Fundurinn var allvel sótt-
ur, en um flestar af tillögunum
greiddi að eins lítill hluti fundar-
manna atkvæði. — Er svo sagt, að
flestir hafi sótt fundinn í því skyni
að heyra bannmenn og andbann-
inga leiða þar saman hesta sína,
en það brást að svo yrði.—Lögr.
Friðrik Petersen prófastur í Fær-
eyjum er nýlega dáinn, merkur
maður aldraður og áður fyrri
mörgum kunnugur liér í bænum;
útskrifaður af latínuskólanum hér
vorið 1875.
Þorvaldur Björnsson, elzti lög-
regluþjónn Ryíkur, og yfirlögreglu
þjónn hin síðari árin, hefir nú sótt
um lausn frá starfi sínu frá 1. sept.
næstk., eftir 30 ára vinnu í bæjar-
ins þarfir, eða fast að þvl, og verð-
ur hann sjötugur skömmu síðar.
Hann hefir verið duglegur lög-
reglumaður. Sjálfsagt sækir hann
um og fær eftirlaun frá bænum, eft-
ir svo langa þjónustu í láglaunaðri
stöðu, og ættu þau þá að vera svo
sómasa.mleg að hann gæti lifað af
þeim þolanlega það sem eftir er
æfinnar.
Dáinn er liér í bænum aðfaranótt
3; þ.m. Jónas Jónsson dyiwörður
Alþingishússins, hátt á sjötugs
aldri, fróðleiksmaður mesti í ýms-
um greinum.
Ný bók. — Sig. Heiðdal: Stiklur.
Sögur. Bókaverzlun Ársæls Árna-
sonar. Rvík. 1917.
Þeim fjölgar nú óðum lijá oss ís-
lenzku skáldunum, er leggja fyrir
sig að semja sögur. Höfundur þess-
arar bókar er áður lítt kunnur, og
verður því ekki annað sagt, en
hann fari vel af stað. Sögur þessar
bera þess Ijósan vott, að hér er höf-
undur á ferð, sem vænta má mik-
ils af. Hann skrifar látlaust og
gott mál, tekur yrkisefnið úr dag-
lega lffinu umhverfis sig og segir
vel og eðlilega frá, virðist jafn-
glöggur á sálarlíf manna sem dýra.
Ein sagan, “Ilvar ertu?” er -frá-
brugðin hinum að því leyti, að
hún á að bregða upp spegli af
framtíðinni. llún þyklr mér lök-
ust og liefði helzt ekki átt að fylgja
hinum, en að þeim geðjast mér
injög vel. — Sögurnar “LTngu hjón-
in” og “Offi” finst mér vera beztar
og mun vart fara lijá þvf, að þær
og fleiri >af sögum þessum skilji eft-
ir hlýjar endurminningar hjá les-
endunum. Að ytra frágangi er
bókin hin vandaðasta. G. M.
Reykjavík, 11. júlí 1917.
Veðrið hefir verið hlýtt um alt
land síðastl. viku, og grassprettu
hefir íarið fram, en annars hefir
verið látið illa af henni. Byrjað er
nú að slá tún hér í bænum og í
nágrenninu.
Morgunbl. segir þær fréttir af
Siglufirði, frá 9. þ.m„ að eitt norskt
síldveiðaskip sé komið þangað og
fleiri eigi væntanleg frá Noregi eða
Svíþjóð í sumar. Norðmenn og
Svfar séu að selja það, sem þeir
áttu þar af tunnum og saiti. Hafi
tunnurnar verið seldar þar á 18
kr. tómar, en 39 kr. saltfyltar. Verð-
ið þó hærra nú. Mokafli 'af fiski
scgir fréttin þar nyrðra, en róðrum
lokið að mestu vegna saltleysis og
steinolíuleysis. Síld er sögð kom-
in þar úti fyrir, en ekki enn farið
að veiða hana. — Botnvörpung-
arnir héðan, sem síldveiðar ætla
að stunda, fara norður um miðjan
þenna mánuð.—Á Isafirði em síld-
veiðar byrjaðar.
“Þórs”-málin, út af innflutningi
áfengis, sem skotið var á land í
Viðey og Gufunesi í vor, eru nú
loks útkljáð á þá leið, að skip-
stjórinn, Hrómundur Jósefsson,
greiðir 2,000 kr. sekt, og Magnús
Magnússon útgerðarmaður, sem
var staddur f Khöfn, er “Þór” fór
þaðan og hafði ráðstafað þar á-
fenginu til flutnings, greiðir í sekt
1,000 kr. Þetta er ákveðið svo með
samkomulagi við þá tvo. En sekt
matsveins skipsins fyrir ólöglega
vínsölu á Akureyri, er ekki ákveð-
in, og mun það mál fara til dóms.
Látinn er nýlega séra Þorsteinn
Þórarinsson, fyrrum prestur að Ey-
dölum f Suður-Múlasýslu. Hann
var einliver elzti prestvígði maður
landsins, fæddur 18. sept. 1831, og
gegndi prestserabætti í frek 10 ár
samfleytt. Sr. Þorsteinn var merk-
ur 'maður, talinn kennimaður góð-
ur, búhöldur mikill og höfðingi í
héraði á sinni tíð. — Dáinn er á Isa-
firði 8. þ. m. Jóhann Pétursson
kaupmaður.—Lögrétta.
(Eftir Vísi.)
5. júlí.—Frá Akureyri er símað:
Magnús Sigurðsson á Grund varð
sjötugur 5. júií og var vegleg veizla
lialdin á Grund í tilefni af degin-
um og þar saman komið mikið fjöl-
menni. Stofnaði Magnús sjóð með
1,000 kr. er hann gaf þrem fremstu
hreppunum í Eyjafjarðarsýslu. —
Var sjóðnum gefið n'afnið: “Minn-
ingarsjóður Magnúsar á Grund.”
7. júlí,—Tillaga er komin frain í
neðri deild alþingis um að skipa
sjö manna nefnd til að íhuga og
koma með till. um hverjar ráðstaf-
anir skuli gera til að ná sem fyrst
öllum vorum málum í vorar hend-
ur og fá viðurkenning á fullveldi
landsins. Flutningsmenn tillögu
þessarar eru úr öllum flokkum:
Magnús Pétursson, Einar 'Arnórs-
son, G. Sveinsson, M. Guðmunds-
son, Jón frá Hvanná, Sk. Th„ Ben.
Sv„ Bj. frá Vogi, Björn R. Stefáns-
son og Þórarinn Jónsson.
9. júlí.—Tjörnes kolin, þessar 70—
100 smálestir, sem hingað eru
komnar til bæjarins, hafa nú að
sögn verið seld öll einstökum
mönnum, sem ætluðu að panta
kolin, var fyrst sagt, að þau yrðu
auglýst til sölu á sínum tíma; en
þegar þeir gerðu eftirspurn næst,
voru öll kolin seld og litlár vonir
gefnar 'að meira kæmi af þessum
kolum til bæjarins vegna þess að
það borgar sig ekki.
23 menn í Dalasýslu hafa skorað
á þingið að afnema bannlögin.
ísland erlendis.—Gunnar Gunn-
arsson sagnaskáld hefir nýlega orð-
ið fyrir þeim heiðri að bókaút-
gáfufélag í London á Englandi,
sem talið er stærsta félag f heimi
þeirrar tcgundar, hefir keypt út-
gáfurétt bókar h'ans: “Þáttur iTr
lífi Borgarættarinnar.”