Heimskringla - 10.10.1918, Page 1
«
Opið á kveldin tii kl. 8.30
Þ«c»r
Tennur
Þurfa
Aðgerðar
Sjáið mig
DR. C. C. JEFFREY
“Hinn varkári tannlæknir”
Cor. Loku Ave. og Main 8t.
LJÓMANDI FALLEGAR
SILKIPJÖTLUR
til að búa til úr rúmábreiður —
“Crazy Patehwork”. — Stórt úrval
af stórum silki-afklippum, hentugr-
ar í ábreiður, kodda, sessur og fL
—Stór “pakki” á 25c„ fimm fyrir $L
PEOPLE’S SPECLALTIES CO.
Dept 17. P.O. Box 1836
WINNIPEG
XXXIII. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 10. OKTÖBER 1918
NÚMER 3
Á orustuvöllum Frakklands og
Belgíu gengur við þaS sama, aS
bandamenn eru alls statSar aS
sækja og spkn þeirra aS bera hinn
bezta árangur. Hefir þeim nú ték-
ist aS höggva þau skörS í Hinden-
burg varnargarSinn, a8 vart mun
þess lengi aS bíSa að ÞjóSverjum
verði nauðugur einn kostur að
hörfa undan á stóru svæði. Segja
síðustu fréttir, þegar þetta er ritað
(þriðjud.), að þeir hafi nú auð-
sjáanlega nýtt undanhald í undir-
búningi og að undanhald það
muni gerast á öllu svæðinu frá
Verdun til Norðursjávar. Er hald-
ið, að þeir muni leita aftur á bak
frá 30 til 40 milur og eftir^þaS svo
reyna að veita bandamönnum við-
nám á bak við nýlega reist varna-
virki.
Bandamenn sækja nú á sex að-
alstöðvum á svæðinu frá vígstöð-
unum í Flandri og alla leið til
Moeuvres stöðvanna. 1 Flandri
sækja Bretar og Frakkar frá Dix-
mude til vígstöðvanna fyrir sunn-
an Ypres og hafa Þjóðverjar orð-
ið að hörfa meira og minna undan
á öllu því svæði. Gegn Cambrai
hafa Bretar og Canadamenn sótt
°g er búist við, að borg sú verði
tekin þá og þegar. Hafa Canada-
menn getið sér hinn bezta orðstír
í viðureignum þessum og hafa þó
oft átt að etja við nrnesta ofurefli.
Ejrir sunnan St. Quentin hafa
Frakkar sótt af alefli gegn Hinden-
^urg garðinum og orðið þar tölu-
vert ágengt og samtímis þessu hafa
beir einnig verið að sækja á all-
stóru svæði norður af Aisne. Á
milli Vesle og Aisne ánna sækja
Erakkar og Bandaríkjamenn og
gengur vel. Sömuleiðis eru þeir
nu einnig stöðugt að sækja á
Champagne svæðinu og hafa þar
unnið stórsigra. — Þetta gerir sex
orustusvæði í alt, sem nú er verið
að sækja á og í öllum stöðum fara
Pjóðverjar alt af meira og minna
balloka.
Síðustu fréttir (miðv.d.) segja
Bretum og Bandaríkjamönnum
1 nýafstaðinni sókn hafa tekist að
brjótast áfram á svæðinu milli Le
Catelet og St. Quentin. Tóku Bret-
ar þorpið Premont, sem er um
þrjár mílur vestur af Bohain, járn-
brautamiðstöð þar margar brautir
mætast. Einnig sækja Bretar kná-
nega fram á svæðunum norðaust-
ur af Arras og hafa þar tekið bæ-
*nn Neuvereuil fyrir sunnan Fres-
noy.
Fyrir austan Rheims og í Ar-
gonne er viðnám Þjóðverja einna
bflugast. Leitast þeir þar við að
stemma stigu fyrir frekara áfram-
haldi Frakka og Bandaríkjamanna
°g virðist sem þeim hafi tekist að
tefja þarna fyrir þeim. Stöðugt
eru Fandamenn þó að þokast á-
fram hér og þar og þeim þýzku
um leið að verða örðugra um
v°rnma en áður. Og engum minsta
vafa er bundið, að ófarir Þjóð-
verja á öllum svæðum eiga stærsta
táttinn í friðarumleitunum frá
'O Miðv'ldanna.
héldi hér ræðu í sambandi við
sigurlánið. Col. Roosevelt hefir
nú verið að ferðast um syðra og
halda ræður í þágu frelsislánsins
þar. Hann er áhrifamikill ræðu-
maður og koma hans hingað til
Winnipeg myndi vafalaust hafa
hinn bezta árangur.
Almennar fréttir.
CANADA.
Sagt er að sérstakur fulltrúi hafi
'rerið sendur frá Manitoba til Min-
ueapolis í Bandaríkjunum til þess
fara þar á fund Col. Theodore
Roosevelt, fyrverandi forseta
Bandaríkjanna, og bjóða honum
aS koma hingað til Winnipeg og
hrælast til þess um leið að hann (
Rannsókn á að hefja bráðlega
viðkomandi mjólkurverði hér í
borginni og hefir P. B. Tustin ver.
ið skipaður formaður nefndar
þeirrar, er þetta á að hafa með
höndum. Við rannsókn þessa
verður leitt í ljós hvort réttlætan-
legt er, að verðið sé nú hækkað
hér á mjólkinni.
Verkamenn við korngeymslu-
stöðvar í Port Arthur, Fort Wil-
liam, Thunder Bay og öðrum
hafnarstöðum við vötnin, hófu
verkfall á mánudaginn var, þann
7. þ.m. Höfðu þeir krafist kaup-
hækkunar, sem var neitað og var
þetta orsök verkfallsins. Verkfall
þetta hefir vafalaust alvarlegar af-
leiðingar , nái það að standa lengi
yfir. ------------
Þrjú skotfæra verkstæði í Win-
nipeg hafa tekið að sér tilbúning
á tveggja miljón dollara virði af
skotfærum fyrir Bandaríkjastjórn-
ina. Verður byrjað á verki þessu
undir eins og því aflokið eins fljótt
og unt er. Skotfæra verkstæði í
Alberta og Saskatchewan hafa
einnig tekið að sér tilbúning á
skotfærum fyrir Bandaríkin.
MIÐVELDIN BIÐJA UM VOPNAHLE
Sir Thomas White, fjármálaráð-
herra sambandsstjórnarinnar, er
nú staddur hér í Winnipeg. Eins
og skýrt hefir verið frá áður hér í
blaðinu, er koma hans hingað í
sambandi við sigurlánið og á
þriðjudagskvöldið hélt hann ræðu
hér í ■ Iðnaðarsalnum. Salurinn
var troðfullur að heita mátti og
hlaut fjármálaráðherrann hina
beztu áheyrn. Til að byrja með las
hann skeyti frá Sir Arthur Currie,
yfirhershöfðingja Canada hersins
á Frakklandi, er árnar Canada
þjóðinni allra heilla í sambandi
við sigurlanið. Skýrði hann svo
frá hinum ýmsu afrekum Canada-
hersins, og kvað Canada hermenn-
ina nú eins vel búna að vopnum og
vistum og bezt væri hægt á að
kjósa. Þetta sagði hann útheimta
mikinn kostnað og þess vegna
væri þörfin á fjárstyrk nú svo mik-
il. — Ræða fjármálaráðherrans
var hin ítarlegasta og var gerður
að henni hinn bezti rómur..
Minningar-athöfn við íslendinga-
fljót frestaí.
Sökum ófyrirsjáanlegra atvika
verður að fresta minniingar guðs-
þjónustunni við íslendingafijót, er
auglýst var í síðasba blaði að haldin
yrði sunnud. þann 13. þ.m., um eina
viku. í þe«s stað verður hún nú
haldin þann 20. þ.m. í kirkjunni,
eins og áður var auglýst og byrjar
kl. 3 eftir hádegi.. Þessa brcytngu
eru allir hlutaðeigendur beðnir að
afsaka. Rögnv. Pétursson.
Á sunnudaginn var mikið um
dýrðir hér í Winnipeg. Aukablöð
voru útgefin og þeim svo útbýtt
fyrir ekki neitt á meðal borgar-
búa. Var engu líkara en upp væri
runninn einhver sérstakur merkis-
dagur sögunnar. — Orsökin fyrir
gleðilátum þessum var sú, að
þenna dag bárust fyrstu fréttir um
nýju friðartillögu frá hálfu Mið-
veldanna. Þar sem friðarboð þetta
virtist votta töluvert meiri tilalök-
un en áður, var ekki að undra þó
margir í fyrstu leiddust til að halda
friðinn á næstu grösum.
En næsta dag komu nákvæmari
fréttir. Skeyti Miðveldanna voru
tvö og bæði send Wilson forseta
Bandaríkjanna — annað frá Aust-
urríki en hitt frá Þýzkalandi. Inni-
hald beggja skeyta þessara var
svipað og í þeim báðum farið á
leit við Wilson, að hann beitti á-
hrifum sínum til að stilla til friðar
og gengist fyrir því, að ráðstefna
væri tafarlaust haldin, er fulltrúar
allra stríðsþjóðanna mættu á. Á
meðan á þessu stæði væri sam-
þykt vopnahlé á allar hliðar. Tjá
Miðveldin sig fús að samþykkja
þá friðarskilmála Wilsons, er hann
tók fram í þingræðu 8. jan. þ. á.
og síðar í ræðum 12. feb. og 27.
sept. þ. á., sem grundvöll þann, er
friðarsamningarnir verði bygðir á.
Engir skilmálar eru teknir fram í
hvorugu þessu skeyti; slíkt látið
bíða friðar ráðstefnunnar.
Engar minstu líkur eru að frið-
arstéfnu tillögu þessari verði tekið
eða að bandaþjóðirnar fáist nú til
að semja um vopnahlé. Stjórnir
Miðveldanna hafa svo áþreifan-
lega sýnt í liðinni tíð, að þeim
sé ekki treystandi, að engir geta
láð stjórnum bandaþjóðanna þó
þær efist um að friðartillögum sé
| hrint af stokkum í allri einlægni.
I Ef til vill myndu Þjóðverjar nota
vopnahlé að eins til frekari undir-
búnings hernaðarlega og til þess
að koma betra skipulagi á her
sinn. Af framkomu núverandi
stjórnar Þýzkalands að dæma síð-
an stríðið byrjaði, er henni til alls
trúandi. — Eins og Wilson forseti
hefir tekið fram bezt allra, verður
þeirri stjórn ekki trúað, sem þann-
ig hefir komið fram í liðinni tíð og
friður þar af leiðandi ekki mögu-
legur fyr en augu þýzku þjóðar-
innar opnast fyrir þessu. Hvað
stjórn Austurríkis viðvíkur, þá er
hún enn sem komið er eins ósjálf-
stæð og framast má verða og hag-
ar sér í öllu eftir fyrirskipunum
þýzku stjórnarinnar.
Helztu blöð Bandaríkjanna
mæla sterklega á móti friðartillög.
um þessum og svo virðist sem rit-
stjórar allra stórblaða Englands og
Frakklands líti þær sömu augum.
Af öllu að dæma virðist fullvíst,
að bandaþjóðirnar muni því neita
að samþykkja vopnahlé eins og nú
stendur og þar með neita um leið
ráðstefnu tillögunum. Sé það ein-
lægur vilji þýzku stjórnendanna
að semja frið, verða þeir að fara
að dæmi Bulgariu og gefast upp
skilmálalaust, með því eina móti
geta þeir nú hlotið áheyrn. Með
framkomu sinni í liðinni tíð hafa
þeir fyrirgert öllu tilkalli að geta
tálist ábyggilegir eða heiðvirðir í
orðum og gjörðum.
Þær breytingar hafa nú gerst á
Þýzkalandi, að nýr ríkiskanzlari
hefir verið skipaður í stað Hert-
lings greifa. Heitir sá Maximilian,
prinz frá Baden. Hélt hann fyrstu
kanzlararæðu sína fyrir ríkisþing-
inu þann 5. þ.m. og er það eigin-
lega friðarræða, því um leið og
hann tilkynti stefnu sína yfir höf-
uð, lagði hann einna mesta áherzlu
á friðarkosti þá, sem þýzka stjórn-
in Væri nú viljug að bjóða. Gætir
þar töluvert meiri tilslökunar en
áður. Er hiklaust gengið að skil-
málum Wilsons sem grundvallar-
atriðum friðarsamninganna. Belg-
íu eru boðnar skaðabætur, í
fyrsta sinn, og Alsace-Lorraine-
héruðunum boðið sjálfsforræði.
Nýlendur sínar vill Þýzkaland fá
aftur, og sem von er minnist kanzl-
arinn ekki með einu orði á vilja í-
búanna í þeim efnum. Umbætur
töluverðar á stjórnarskipulagi
lands síns tilkynnir hann—af orð-
um hans að dæma virðist næst að
halda, að Þýzkaland sé nú orðið
lýðveldi!
•*En þó kanzlari þessi tali við;
töluvert annan tón en íyrirrennar- |
ar hans, verða bandaþjóðirnar að
fá einhverjar ábyggilegri sannanir,
áður þær fást til að trúa að hann
sé að tala fyrir munn þjóðarinnar
þýzku, en ekki keisarans.
-----_o-------
Svar Wiisons.
Wilson hefir nú formlega svar-
ar skeytum Miðveldanna og tekist
það snildarlega eins og hans var
von og vísa. Hætt er þó við, að
stjórnendum Þýzkalands finnist
svar hans all-óákveðið og að þeir
verði fyrir töluverðum vonbrigð-
um. En þrái þeir einlæglega að
friður komist á, gerir Bandaríkja-
forsetinn þeim þó mögulegt að
halda áfram umleitunum sínum —
en verða að eins að gera þetta á
töluvert annan hátt en þeir byrj-
uðu. Leggur Wilson fyrir ríkis-
kanzlarann þýzka tvær þýðingar-
miklar spurningar viðkomandi all-
vafasömum atriðum. Spyr hann
þá fyrst að því, hvort meining
kanzlarans sé, að stjórn hans í
raun og veru samþykki þá skil-
mála, er fram voru teknir í þing-
ræðu Wilsons 8. jan. s. I., og að
umræður ráðstefnunnar miði að
eins til að heimfæra ýms atriði
þeirra? Það tekur forsetinn svo
fram, að eins og nú horfi, geti
hann ekki maalt með að vopnahlé
sé samþykt — áður slíkt geti átt
sér stað, verði Þjóðverjar að yf-
irgefa öll þau svæði, er þeir hafi
hertekið (á Frakklandi og í Belg-
íu). Seinni spurning hans er: Tal-
ar kanzlarinn að eins fyrir hönd
yfirvaldanna þýzku, er stjórn
stríðsins hafa með höndum? I
lok skeytis síns tekur hann svo
fram, að áríðandi sé að spurning-
um þessum sé vel og ítarlega
svarað.
FALUNN.
l>ann 13. september s.l. fékk herra
Ohris. Rasmusen að Oak Point,
Man., þá tilkynnngu með hrað-
slkeyti, að sonur lians, Sapper Ohar-
tes Rasmusen heíði fallið í hardaga
2. sept. Þessi ungi maður var kvong-
aður Elínu dóttur Jóns Reykdals,
og gekk f 223. herdeildtoa hér í Win-
nipeg 11. marz 1916. Hann var með
“lst Canadian Engineers’ Battalion”
þegar ihann féll. Oharles Rasmusen
var maður á bezta aldri, hermann-
legur og fríður sýnum. Hann var
timiburmaður að iðto og vann j*fn-
aðarlega með föður ®ínum við það
verk þar í héraðnu. Hann hafði
verið stutta stund kvongaður, er
hann gekk í herinn og skilur því
eftir ekkju barnilausa. Þessi ungi
maður er vel kyntur í héraði sfnu og
talin að Ihonum mikil eftirsjá.
Lance.Corp. H. G. Julius.
Mrs. J. Julíus, 750 Elgin ave.,
fékk nýskeð skeyti frá syni sínum,
Lance-Corporal H. G. Julius, dag-
sett 5. sept. s.l., er flutti henni þá
frétt, a<S hann hefði hlotiS heiSurs
medalíu fyrir ágæta framkomu í
orustunni 9. ágúst s.I. Hlaut hann
medalíu ‘ þessa fyrir snildarlega
stjórn á vélbyssu. — Hann hefir
nú veriS rúmt ár á Frakklandi.
FaSir hans, Pte. J. Julius, vinnur á
Canadian Military sjúkrahúsi á
Englandi, en bróSir hans, Sapper
O. G. Julius, er á Frakklandi.
Þann 8. þ.m. fékk Mrs. Julius
svo annaS skeyti, er færSi henni
þá sorglegu frétt, aS sonur hennar
H. G. Julius hefSi særst af byssu-
skoti í höfuSiS í nýafstaSinni or-
ustu á Frakklandi og veriS fluttur
á sjúkrahúsi í Camiers.
Jón Thurstan.
Hann innritaSist í herinn í Cal-
gary, Alta., í ágústmánuSi 1914,
og er hann sonur Mrs. J. GuS-
mundsson (af fyrra hjónabandi),
sem heima á í þeim bæ. Þann 26.
ág. 1914 fór hann áleiSis til Val-
cartier; þaSan fór hann svo meS
fyrsta hópnum, sem sendur var til
Englands og var viS æfingar á Sal-
isbury sléttunni. 1 febrúarmánuSi
1915 fór hann til Frakklands og
þar í skotgrafir; var í bardaganum
viS St. Julien og særSist þar. Var
þá á sjúkrahúsi á Englandi unz
hann var gróinn sára sinna, fór þá
til Frakklands aftur og hefir veriS
þar síSan. Hann hefir nú veriS á
fimta ár í herþj ónustu.
Spánska veikin
Spanska veikin hefir nú náS
töluverSri útbreiSslu í austurfylkj-
unum. 1 Ottawa hefir heilbrigSis-
deild borgarinnar ákveSiS aS láta
loka tafarlaust skólum, leikhúsum,
kirkjum og öSrum samkomustöS-
um, unz ófögnuSi þessum linnir.
Frá Montreal kemur sú frétt, aS
þar hafi 8 manns dáiS úr veiki
þessari á einum sólarhring og 47
ný tilfelli hafi bæzt viS á þessum
sama tíma. SömuleiSis er veikin
nú töluvert aS stinga sér niSur í
Port Arthur og víSar. — Hér í
Winnipeg liggja nú um 30 manns
í henni, mest hermenn og hafa
tveir dáiS.
ÚR BÆ OG BYGÐ ]
Bjami Sveinsson og Ólafur Vigfús-
son, frá Howardville, Man., komu tit
Winnipeg í lok síðustu viku og
dvöldu hér fram yfir helgina. Sögðu
góða líðan Islendinga í sinni bygð.
Heyskapur gekk þar f seinna lagi en
allir fengu iþó næg heyföng að lok-
um. Uppskera á korni og öðru í
góðu meðallagi.
Mynd þessi er af meSlimum hins nýskipaSa stjórnar-
ráSs Canadian Northem brautarinnar, sem nú er orSin aS
ríkiseign. StjórnarráS þetta á einnig aS hafa umsjón meS
öllum öSrum jámbrautum ríkisins; stjórnarbrautirnar allar
eiga þannig aS vera sem eitt kerfi og undir sömu aSalstjóm.
Allir þessir nýju forstöSumenn eru velþektir hér og viSur-
■ÉÉ Æf gft
kendir dugnaSar og atorku menn. Nöfn þeirra eru sem
fylgir (frá vinstri til hægri) : D. B. Hanna, Toronto, for-
maSur; Graham Bell, Ottawa, aSstoSar ráSherra skipa-
skurSa og járnbrauta; E. R. Wood, Toronto; Robert Hob-
son, Hamilton; F. P. Jones, Montreal; R. T. Riley, Winni-
peg; og C. M. Hamilton, Weyburn, Sask.
Á mánudagsmorguninn l>ann 7. þ.
m. andaðist á iheimili sínu austan
við Mounfcain P.O., N. I)ak„ húsfrú
Sigrfður Itodriðason eftir langvar-
andi sjúkdómslegu. Sigríður var
dóttir Brynjólfs Brynjólfssonar frá
Skeggstöðum og konu hans Þórunn-
ar ólafsdót’ur, systir Skapta B.
Brynjólfssonar og Magnúsar lög-
manri.s og þeirra systkyna. Hún eft-
irskilur ásamt eiginmanni sínum 5
sonu á lffi. .larðarför hennar for
fram á föstudaginn kemur þann 11.
þ.m. Þessarar ágæfu myndarkonu
verður nánar getið síðar.
Sparið, til þess aS geta keypt
“Victory Bonds.”
Til lesendanna
Félög þau, er búa til mynda-
mótin fyrir blöðin, hafa nú
hækkað prísa sína að miklum
mun. Hér eftir kostar því
$2.50 fyrir hverja vanalega
eins dálks mynd, og $5.00
fyrir tveggja dálka breiða
mynd á vanalegri Jengd. —
Þetta eru þeir beðnir að hafa
hugfast, er myndir senda til
birtingar í blaðinu.