Heimskringla - 24.10.1918, Síða 4
4. BLAÐSfÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 24. OKTÓBER 1918
HEIMSKRINGLA
(StoínuO 188«)
Xamur út á hverjum FlmtudeRl.
Otgefendur og elgendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
Ver?J blaTJsins I Canada ogr BandaríkJ*
unum $2.00 um ári?5 (fyrirfram borgatJ).
g^ent til Islands $2.00 (fyrirfram borgatJ).
Allar borganir sendist rátJsmannl blatJs-
ins. Póst eða banka ávísanir stílist til
The Viking Press, Ltd.
O. T. Johnson, rítstjóri
S. D. B. Stephanson, ráSsmaður
SkrKetofa:
TÚS 8HBRBROOKB STllBET. WINNIPHG.
F.O. Box 3171 Talalml Oerry 4110
WINNIPEG, MANITOBA, 24. OKT. 1918
Hnútukast Yoraldar.
Ritstjóri Voraldar finnur sig knúðan að
gera athugasemd — í “Bitum” — við aðsent
greinarkorn, sem birtist í Heimskringlu fjann
10. þ.m. Með athugasemd þeirri vill hann
að sjálfsögðu bæta því við hið mikla frægð-
arorð, er af honum fer sem ritstjóra hér í
landi, að hann sé gæddur fjarsýnis gáfu, sjái
í gegn um holt og hæðir og þar af leiðandi
þess megnugur að flytja lesendum sínum
fróðlegar og ítarlegar fréttir (!) af því
helzta, sem gerast sé í umheiminum. Athuga-
semd hans hljóðar á þá leið, að ritstjóra
Heimskringlu hafi gleymst að setja stafina
“R.P.” undir aðsenda grein, er birst hafi í
síðasta blaði hans. Vafalaust hyggur Vorald-
ar ritstjórinn þessa gleymsku vera Iítt fyrir-
gefanlega, því leiðbeininguna birtir hann í
“Bita”-dálkinum — skammakrók blaðs síns!
En aðallega mun þó fyrir honum vaka, að
auglýsa fjarsýnisgáfu sína og gera lesendum
Voraldar ljóst, hve auðvelt hann eigi með að
segja nákvæmar og áreiðanlegar fréttir. Ekki
er heldur ólíklegt hinum mörgu(?) fylgjend-
um hans hafi nú orðið hið mesta gleðiefni að
fregna um þessa miklu yfirburði hans yfir
aðra ritstjóra. Sá maður, er svo gæti séð
inn í skrifstofur annara og glöggvað sig á
öllu, sem þar væri að gerast, hlyti fyr eða síð-
ar að verða viðurkendur andans leiðtogi og
spámaður sinnar tíðar — við þessa tilhugsun
er ekki ólíklegt að sumir af lesendum Voráld-
ar hafi tárfelt af gleði.
Aftur á móti er ekki óömuglegt að hjá
öðrum af Voraldar lesendum hafi gert vart
við sig meiri og minni kvíða tilfinning, er þeir
lásu þenna umrædda “Bita” og ýmsar spurn-
ingar vaknað í huga þeirra: “Skyldi nú bless-
aður Voraldar ritstjórinn hafa rétt fyrir sér
í þessu, eða slíkt að eins vera tilgáta hans,
sem ef til vill er enginn fótur fyrir?” Nei,
nei — hann væri of gætinn og stiltur maður
til þess! Hinn mikli bróðurkærleikur hans,
hans þroskaða hugarfar og frelsislöngun ætti
vissulega að varna honum frá að láta leiðast
út á aðra eins glapstigu. Öllum gæti þó yfir-
sézt og því sízt fyrir að synja að hent sig gæti
að blessuðum manninum kynni að hafa skjátl-
ast eitthvað í þetta sinn — við þá tilhugsun er
ekki ótrúlegt að þeir glöggskygnari á meðal
lesenda Voraldar hafi skolfið af hræðslu.
Og hætt er við sú hræðsla þeirra breytist
nú í annað enn verra, þegar þeir lesa það, sem
hér fer á eftir. Vér hljótum að lýsa því yfir,
þó leitt sé lesenda Voraldar vegna og slíkt að
sjálfsogðu baki mörgum þeirra hina mestu
hugaróró, að ofangreind athugasemd Vorald-
ar ritstjórans er ekki annað en illkvittnisleg
hnúta í garð viss manns og bygð á getgátu,
sem ekki hefir við nokkur rök að styðjast.
Fyrst og fremst átti sér engin gleymska stað
frá vorri hálfu í sambandi við þessa aðsendu
grein. Að stafir höfundarins voru ekki undir
greininni orsakaðist af því, að þannig var
gengið frá handritinu. Þess vegna birtum
vér greinina sem aðsenda; vitum ekki annað,
en slíkt sé altítt í öllum íslenzkum blöðum,
bæði heima og hér. En vilji ritstjóri Voraldar
endilega vita stafi mannsins, sem greinina
sendi, þá er honum slíkt guðvelkomið, og birt-
um vér því hér með “leiðréttingu” frá grein-
arhöfundinum sjálfum:
Leiðrétting: Að gefnu tilefni skal
þess getið, að tilgátan í bitum síðustu
“Voraldar” er ekki að neinu leyti rétt.
Þar sem talað er um að “gleymst hafi
hjá ritstjóra Heimskringlu að setja staf-
ina ‘R.P.’ undir aðsendu greinina”, þá er
þetta alls ekki rétt, það sem af vangá
eða gleymsku minni varð út undan þar,
voru stafirnir G.H.”
Þessi yfirlýsing greinarhöfundarins sjálfs
ætti að nægja til þess að sýna fram á hina
dæmafáu; fljótfærni Voraldar ritstjórans,
kæruleysi hans og ófyrirleitni. Sjaldan hefir
þetta verið gert betur, og nú er að sjá hvort
ritstjóri Voraldar býr yfir nægilegu drenglyndi
til þess að biðja “R.P.” forláts á tilgátunni.
- - ---------.. - ... .......- ■■ ....-»
Spanska veikin.
Spanska veikin (influensa), sem nú er að
breiðast yfir Canada frá einu landshorni til
annars, er gamall og áður þektur sjúkdómur.
Þektist veiki þessi eins snemma og í byrjun
sextándu aldar (1510) og dreifðist þá út yfir
allan hinn siðaða heim. í margar aldir hefir
hún á vissum tímum gert vart við sig í öllum
löndum veraldar. Síðasta veraldar plágan af
hennar völdum átti sér stað árin 1889—1890
og þektist þá undir frakkneska nafninu la
grippe. Veiki þess fer ætíð frá austri til vest-
urs.
Sjúkdómseinkennin eru svipuð og vonds
kvefs; meiri og minni höfuðverkur, kvef í
höfði og hálsi og meðfylgjandi hnerrar, roði
í andliti, verkir í augnasteinunum og á bak við
augun, og er þetta ágerist rís blóðhitinn upp í
101 til I04gráður.
Þar sem þetta er jafn gamall sjúkdómur,
hafa Iæknar eðlilega lært mikið um hann, um
sóttvarnir gegn honum og hvernig bezt sé að
lækna hann.
Fyrsta varnarmeðalið er að halda sér frá
þeim sem sjúkir eru, og annað að byggja upp
mótstöðukraft líkamans með því að borða
næringargóða fæðu. Áríðandi er að klæða
sig vel, hljóta nægan svefn og gæta þess að
svefnherbergið sé eins bjart og loftgott og
mögulegt er. Munninn, háls og nef verður að
hreinsa oft og reglulega með innöndun (in-
halation) sótt verjandi efna ogþvotti. Chlore-
tone og listerine blöndur eru mjög viðeigandi
til slíks.
Við fyrverandi baráttu gegn sýki þessari
hefir læknum reynst quinine ágætt varnar-
meðal. Eitt gr. af sulphate of quinine hrært
úti í (ekki uppleyst) lítið glas af köldu vatni
gerir ágæta blöndu til að skola hálsinn með
(gargle). Quinine þanng brúkað linar sár-
indin í hálsinum og styrkir mótstöðukraft Iík-
amans gegn veikinni. Einnig má nota það
sem inntökumeðal við góðan árangur. Við
síðustu útbreiðslu veikinnar í Evrópu voru til
reynslu hverjum manni í riddaraliðsflokk ein-
um gefnar lYl gr. af quinine í Yl unsu
whisky daglega í 22 daga, en öðrum riddara-*
liðs flokki ekki gefið neitt af þessu varnar-
meðali. Afleiðingarnar urðu þær, að í síðar-
nefnda flokknum sýktust yfir tuttugu menn
af veikinni, en í fyrnefndum flokki að eins
fjórir. Innöndun af eucalyptus olíu, thymol,
mountain pine olíu og öðrum svipuðum efnum
er sömuleiðis gott til varnar veikinni.
Eftir að maður er snortinn af henni, er ekki
nema um eitt að gera — að fara í rúmið án
minstu tafar og láta sækja læknir. Sjúkling-
urinn þarf að hvílast, og hafa hlýtt, kyrlátt
herbergi, og á þenna hátt verður helzt sporn-
að á móti því, að veikin snúist í eitthvað ann-
að — langoftast lungnabólgu. Ekkert óbrigð-
ult meðal er til við veikinni, en mörg meðul
gera gott og lina þjáningarnar henni samfara,
svo sem quinine, aspirin og ýms styrkjandi
meðul (tonics) — og mörg önnur meðul, er
brúkast skyldu að eins eftir læknisforskrift.
Mataræðisreglur, er eiga við hitaveiki, eiga
sömuleiðis við spönsku veikina. Spónmat
eingöngu skal borða í fyrstu, þurmeti síðar,
er aukið sé smátt og smátt frá linsoðnum
eggjum til hænsnakjöts, nautakjöts o. s. frv.
Vatn, kalt eða heitt má súpa í smáskömtum,
eða gefa má sjúklingum “eggjavatn”. Það
er svo tilbúið, að blönduð er út í hálfan pott
(pint) af köldu vatni þeytt eggjahvíta úr frá
2 til 4 eggjum, og stráð út í ofur litlu af salti
og kanel. — I mörgum tilfellum er sjúklingur-
inn alveg lystarlaus, ófáanlegur að bragða á
nokkrum mat; verður þá að viðhafa ná-
kvæmni mikla og reyna að útsjá einhverja
fæðutegund er heppileg sé í slíku tilfelli.
Helztu varúðarreglur gegn veikinni.
(1) Sjúklingana verður að aðskilja frá
þeim, sem heilbrigðir eru. Þetta er sérstak-
lega áríðandi þegar veikin fyrst gerir vart við
sig á heimiiinu.
(2) Hor og hráka má ekki láta þorna í
vasaklútum eða inni í húsinu, skrifstofunni
eða verkstæðinu, heldur ættu að látast í
pappír eða hreinar rýjur og brennast. Ef
þetta er ekki hægt, ætti að láta þá í ílát, sem
vatn er í.
(3) Húsmuni og annað í herbergi sjúk-
lingsins verður að sótthreinsa vel og vandlega.
Sótthreinsunarefni má ekki spara. Þvoið
höndur yðar oft og iðulega.
(4) Þeir, sem snortnir eru af veikinni,
mega ekki undir neinum kringumstæðum sam-
sveitast öðru fólki í að minsta kosti tíu daga
frá því þeir fyrst veiktust. I sérstaklega al-
varlegum tilfellum verður tími þessi að vera
lengri.
(5) Sérstakt athygli verður að gefa öllu
hreinlæti og sjá um að húsin séu loftgóð. Fatn-
uður verður að vera hlýr og fótunum verður
að halda þurrum. Forðist alla óþarfa vos-
búð.
Wilson forseti.
( Hugleiðing.)
Wilson forseti er alment viSurkendur á-
hrifamesti maSurinn, sem nú er uppi. AS
hann sé ofurmenni væri ef til vill ekki ofsagt,
þó engirvn haldi því fram enn þá. Orsökin
fyrir því aS líklegt sé, aS hann, gagnólíkt
ofurmenni Nietzsche, he'fir vaxiS aS mann-
kostum og samvizkusemi hlutfallslega viS
þaS, sem vald hans hefir aukist og útbreiSst.
Hann virSist aldrei hafa gleymt því, hversu
giftusamur sem hann hefir orSiS, aS áhrif
eSa vald einstaklingsins, séu í sjálfu sér einsk-
is verS, en aS þaS komi því aS eins aS gagni
og sé mikils vert, aS því sé beint í rétta átt
og þaS stefni aS háu takmarki.
Nei—Woodrow Wilson er ekki “ofur-
menniS” hans Nietzsche. En æfiferill hans
er samt næsta eftirtektaverSur. Fyrir tíu ár-
um síSan kemur hann fram og boSar lýS-
veldis og frelsis hugsjónir viS háskóla einn í
Bandaríkjunum, og er ekki heyrSur. Fyrir
fimm árum byrjar hann hæglátt og jafnvel
feimnislega aS boSa allri þjóSinni þær hug-
sjónir, og hann er þá daufheyrSur. Nú á yf-
irstandandi tíma boSar hann þær öllum
þjóSum og þeim er alstaSar tekiS feginsam-
lega. ÞaS er fátt undarlegra en þetta.
Og menn spyrja: Hvernig víkur þessu
viS ? HvaS er þaS í fari Wilsons forseta,
sem þakka má þetta? Hvernig kemur hann
oss fyrir ef borinn saman viS mikilmenni
sögunnar? 1 hverju er leyndardómurinn aS
gæfu hans fólginn?
Eitt af því, er Gladstone hafSi til aS bera
í ríkara mæli en flestir aSrir, var mælska.
MeS henni gat hann töfraS og leitt fólk svo
aS s^gja eftir vild sinni. Hann flutti á þing-
inu oft löng og leiS fjármál, og gerSi þau aS
1 glóSheitum skáldsögum meS mælsku
DODD'S NÝRNA PILLUR, gótiai
fyrir allskonar nýrnaveiki Lsekna
gigt, bakverk og sykurveiki. Dodd’i
Kidrney Pills, 50c. askjan, sex öskj
ur íyrir $2.50, hjá öllum iyfsöluiD
eða frá Dodd’s Medicine Oo., Ltd.
Toronto, Ont.
sinm
j hann gat látiS hlýSa á sig svo klukkutímum
j sklfti, án þess aS fólki leiddist þaS. Wilson
I hefir ekkert af slíkri mælsku til aS bera.
Honum er aS vísu æSi sýnt um aS tala. En
I hann hefir ekkert svipaS vald á áheyrendum
sínum og Gladstone hafSi.
Napóleon mikli var sístarfandi. Ef hann
gat ekki sofiS á næturna, kallaSi hann á rit
ara sinn, og lét hann færa í letur hugsanir
sínar. AS strita og starfa var honum fyrir
öllu; þar var hann meS lífi og sál. Wilson
hefir enga slíka ástríSu til vinnu. Þó fæTri
hafi ef til vill unniS stöSugra og afkastaS
meiru síSastl. fimm ár en hann hefir gert,
þykir honum hitt fult svo skemtilegt, aS
slæpast dálftiS, og aS sofa fram eftir á
morgnana. *
Richelieu kardínáli bar ávalt utan á sér
háttu höfSingja og fyrirmenna. Fas hans,
augnaráS og framkoma öll duldu þaS sjald-
an, aS vilji hans og geSþótti voru óhjá-
kvæmilega lög, sem hlýSa bæri. Fyrir engu
slíku bólar hiS minsta á hjá Wilson forsetau
Hann hefir aS vísu viSkunnanlegt fas og
jafnvel tignlega framkomu, þegar vel er gætt
aS, og einlægni svo hátíSlega og barnslega,
aS fár eSa enginn líkist honum þar. En alt
þetta í fari sínu virSist honum annara um aS
dylja en aS sýna. AS halda sér til baka
virSist eSli hans kærast.
ÞaS er sagt nær undantekningarlaust um
alla þá menn, er foringjar eru í þessu yfir-
standandi stríSi, aS þeir séu þögulir, svo aS
undrun sætir. Joffre, Haig, Pétain og Hin-
denburg eru allir réttnefndir ‘^þöglar”. ÞaS
er þeirra einkenni, sem mikilmenna. En þó
aS Wilson taki eftir og hugleiSi oft hlutina
í staS þess aS tala mikiS um þá, er hann ekki
þögull aS eSIisfari. Honum mun fátt geSjast
betur en einmitt góS samtöl viS aSra; og
góSum sögum ann hann engu síSur en Lin-
coln gerSi.
Lloyd George er undir eins kominn aS
niSurstöSu í þeim efnum er hann tekur sér
fyrir aS hugsa um. Hin skarpa eSlisgáfa
hans, samfara lærdómi, segja honum undir
eins hvaS gera skuli, og hann gerir þaS strax
og htklaust og alt virSist fara vel. Wilson
hefir litla trú á þeirri niSurstöSu, er hann
dettur ofan á fyrst í staS. Hann er ekki
skjótur aS skera úr. En ef hann kemst aS
niSurstöSu, og lætur hana uppi, breytir hann
henni sjaldan; en þá hefir hann líka tekiS
sinn tíma viS hana. Þegar Lusitaniu var
sökt, er sagt aS tilfinning hans hafi funaS svo
upp, aS hann hafi ekki lagst til svefns alla
nóttina næstu á eftir, en hafi gengiS aftur og j
fram úti á götu, þar til aS aS þeim tíma var
komiS, er hann var vanur aS taka til starfa
aS morgni. En þá hafSi hann sigrast á á-
stríSum tilfinninganna, og gat yfirvegaS
þetta efni meS gætni og stillingu og öfgva-
laust.
AS “koma, sjá og sigra” er sagt aS full-
mikiS beri á í framkomu Roosevelts. Hann
kreistir hönd þess er hann heilsar, hann hlær
djarflega, og þegar hann kemur fram á ræSu-
pallinum, er hann vanalega hvorttveggja í
senn, brosandi og í vígamóSi, og áheyrend-
urnir eru nær undir eins meS lífi og »ál á
hans valdi. Slíkt fengist Wilson ekki til aS
reyna. Þó fáir eigi hollari og trúrri fylgjend-
ur en hann, og fáir snerti innilegar tilfinning-
ar áheyrendanna en hann, og fáir séu verS-
ugri trausts en hann, getur hann samt ekki
gert aS því, áS halda fólki hæfilega fjarri
sér; hann er óframfærinn, og of mikil eSa of
náin kynni eru ekki ákjósanleg, eftir því sem
lundarfar hans virSist vera.
Völd og yfirráS voru Bismarck
gamla fyrir öllu. Án þeirra var
lífiS lítils virSi í hans augum. Og
þegar hann var knúSur til aS
leggja niSur völd sín, hætti hann
aS gefa því mikinn gaum, er fram
fór; hann varS utan viS sig og á-
hugalaus; hann hætti aS hirSa um
hvernig lífiS og alt veltist. Wilson
mundi aS öllum Iíkindum ekki
sakna þess verulega, aS svo miklu
leyti er snerti hann persónulega,
þó hann ætti aS leggja niSur völd
n í dag. ÁriS 1916, þegar út-
litiS um tíma vitist eindregiS þaS,
aS Hughes, andstæSingur hans,
næSi kosningu, og fréttimar drifu
aS úr öllum áttum um ósigra Wil-
sons, þá virtust fáir þeir, er minna
létu sig þaS skifta, en Wilson,
hvernig kosningin færi. ÞaS sá
enginn á honum óþolinmæSi, hann
brosti og talaSi um alt annaS en
kosninguna, þegar þess var kostur; \ Jí1?1111
og þó talsíminn flytti honum
hverja ósigursfréttina eftir aSrá,
svaraSi Wilson aftur eins og hann um
væri aS tala um veginn og daginn,
eSa eitthvaS, er sér væri ekkert
sérstaklega viSkomandi.
Wilson hefir fá af einkennum
eSa kenjum þeim, er flest mikil
menni virSast hafa f fari sínu
Sannleikurinn er sá, aS hann er
mjög alþýSlegur maSur, “hvers-
dagslegur og alt af líkur því sem
fólk er flest”, hafa sumir sagt.
Til dæmis tekur hann skrítlur og
smásögur fram yfir efnismiklar
sögur og skáldsögur; hann fer og
iSulega á hreyfimynda leikhúsin;
og þaS sem kórónar alt, er þaS, aS
hann virSist hafa hjartanlega gam-
an af aS fara þessar gamal dags
skemtiferSir, sem kallaSar eru
“picnic”, meS kunningjum sínum
og eta úr mal sínum meS þeim
undir einhverju trénu, og fá sér
svo dúr á eftir.
En hvaS vitum vér, jafnvel aS
þessu sögSu, um Woodrow Wil-
son? Erum vér nokkru vísari um
þaS, hvernig hann í raun og veru
er? Ólíklegt. ÞaS er aS minsta
kosti ekki sennilegt, aS maSur,
n eins mikil áhrif hefir nú í
heiminum og Wilson, hefir, sé í
engu öSu vísi en fólk er flest.
ÁSur en Bandaríkin fóru í stríS-
iS, var Wilson forseta heilsaS sem
verndara maringöfgisins (moral
leader) í heiminum. Nú er hann
meira en þaS. I dag er hann sál 8er
og samvizka heimsins. Hann er
einn af þátttakendunum í hinum
mikla hildarleik, sem nú er háSur,
hefir, þrátt fyrir þaS, ekki
glejmit því, aS vera verndari hins
göfuga í heiminum. Því hann er
til þess í stríSiS kominn, aS halda
nlífiskildi yfir því. Þó hann hafi
gerst gerandinn í hinum “grimma
leik”, hefir hann ekki fleygt frá
sér trúnni á þaS, sem göfugt er og
réttmætt. Hann brast hvorki hug,
réttsýni, manndóm né vitsmuni, til
aS hefjast handa og draga fram í
dagsbirtuna þann óneitanlega
sannleika, aS’ þetta hróplega stríS
stríS tveggja andstæSra afla,
stríS mannvonzku gegn mann-
göfgi, stríS ranglætis gegn réttlæti,
stríS eigingirni og sjálfselsku gegn
ósérplægni og lýSfrelsi. Hann
sýndi Bandaríkjunum hver skylda
þeirra væri, og þau skildu hann,
og berjast nú fyrir því, aS réttlæt-
iS megi einhvers staSar eiga ból-
staS í heiminum, en verSi ekki gert
alveg útlægt eins og prússneski
andinn ákýs; og hvaS mikiS sem
þaS kann aS kosta landiS af fé og
mannfjörvi, biSst Wilson ekki ann-
ara launa, en þeirra, aS lýSfrelsiS
megi lifa. StríSiS var frá því
fyrsta fyrir samherjum stríS fyrir
réttlæti, þó sumir litu þannig á,
aS þaS væri háS í síngjörnum til-
gangi, en Wilson hefir gert þaS aS
óeigingjörnu stríSi í þarfir réttlæt-
isins í augum alls heimsins. Og
orSin, sem hann hefir lagt til þeirra
mála, eru sigurorS manngöfgisins
og uppörfun allra, sem fyrir rétt-
lætiS berjast. Sanngirni og dóm-
greind Wilsons hefir ekki aS eins
vakiS aSdáun hjá samherjum og
þeim er utan viS stríSiS standa,
hún hefir vakiS eftirtekt og aSdá-
un sjálfra óvinaþjóSanna. Og nú
vitum vér engan þann mann uppi,
er færari sé álitinn en hann til aS
ráSa til lykta á sanngjarnan og
réttlátan hátt málum heimsins.
HvaS er þaS þá viS þenna
mann, sem oss kemur fyrir svo
blátt áfram og alþýSlegur, sem
hefir hafiS hann svo hátt í augum
heimsins? Eru til hliSar á Wilson,
sem allir sjá ekki? Hefir annars
nokkur maSur kynst honum, í
sannleika séS sálina, sem á bak
viS grímuna býr? Ef til vill fáein-
ir nánustu vinir hans. Fjöldinn
engan veginn. Wilson er margt
betur lagiS en þaS, aS láta innri
viS hvert tækifæri í
ljós.
I einni af sínum fegurstu ræS-
ræSunni, er hann hélt I 9 I 6 í
minningu um Lincoln, komst Wil-
son þannig aS orSi:
Mann, er heita megi nákunn-
ugan Lincoln, hefi eg hvergi hitt.
1 sögnum þeim og minnum, sem
um hann hafa veriS skrifuS, er
ekkert, er um þaS beri vott, aS
höfundarnir hafi til hlítar skiliS á-
form þau, er í fylgsnum hjarta
hans bjuggu. Sálin átti óvíSa sinn
líka. ÞaS er hugmynd mín, aS
hún hafi aldrei birst öSrum í hin-
um fylsta skilningi; andinn sér-
kennilegi, sem lýsti undan stríS-
hærSu brúnunum hans, skildi
menn og málefni, án þess aS eiga
mikil eSa náin mök viS aSra um
þaS, og þaS var því líkast, sem
hann þrátt fyrir félagslyndi, yrSi
aS halda sig fjari öSrum, til þess
aS sjá þar í einveru sýnir skyldu
sinnar. Vinir! ÞaS er til einvera,
sem, þrátt fyrir þaS hve hræSileg
hún er, getur veriS heilög fyrir
þann, sem leitast viS aS lesa rúnir
forlaganna út úr atvikum lífsins,
bæSi fyrir sjálfan sig og aSra, fyrir
þjóS sína eSa einstaka menn. ÞaS
er einvera, sem engum er leyft aS
raska. Þegar andinn þannig leit-
ar hins rétta, kemur aSstoS annara
ef til vifl aS litlu gagni. Þetta und-
arlega barn bjálkakofans vestlæga
átti slíka ægilega en heilaga ein-
veru, átti öSrum ósýnilega hluti
fyrir viní á landi andans; og
viS þá vini, hugsanirnar göfugu í
sál sinni, átti hann sín nánustu
kynni."
1 þessum fögru orSum um Lin-
coln höfum vér beztu myndina af
Wilson sjálfum. ÞaS má vera, aS
þau þyki of andleg til þess aS vera
sannveruleg um hinn mikla mann,
er leysti fjötra okurs og ánauSar
af þjóS sinni. En hitt munu fáir
efa, aS þau eru komin frá hjarta
mannsins, er talaSi þau, aS þau
eru komin frá manni, sem leitar
sinnar andlegu birtu í heilagri en
æglegri einveru sálarinnar.
(Þýtt.)
Stefán Einarsson.
Til kaupenda Heimskringlu:
H
AUSTIÐ er uppskerutími blaðsins, — undir
kaupendunum er það komið, hvernig “út-
koman” verður. Viljum vér því biðja aDa
þá, er skulda blaðmu og ekki hafa allareiðu borgað
til vor eða innheimtumanna vorra, að muna nú eftir
oss á þessu hausti. Sérstaklega viljum vér biðja þá,
sem skulda oss fyrir fleiri ár, að láta nú ekki bregðast
að minka þær skuldir. Oss mun&r um, þótt lítið komi
frá hverjum, því “safnast þegar saman kemur.” —
Munið það, vinir, að Heimskringla þarf peninga sinna
við, og látið ekki dragast að greiða áskriftargjöld
yðar.
S. D. B. STEPHANSON,
Ráðsmaður.