Heimskringla - 17.12.1919, Síða 4

Heimskringla - 17.12.1919, Síða 4
4. BLAÐSIÐA. HEIMSKRINGLA WlNNIPEG 1 7 DESEMBER 1919 WINNIPEG, MANITOBA, 17. DES. 1919. Borden á förum. Þær fregnir hafa borist frá Ottawa, að stjórnarformaður Canada, Sir Robert L. Bor- tlen, sé í þann veginn að leggja niður völd, sökum heilsubrests, og er búist við að það verði um áarmótin. Þetta eru mikil tíðindi og' ill, því vandfund- inn er maður í sæti Bordens, sem honum er jafn að mannkostum og hæfileikum, maður, tem þjóðin treystir og er fær um að bera þær drápsklyfjar, sem stjórnarförusta leggur hon- um á herðar. Slíkt er ekki heiglum hent. Heilsufar stjórnarformannsins hefir verið á völtum fótur lengi. í haust fór hann suður til Bandaríkjanna og dvaldi þar við baðstaði um tíma, og er harn hvarf aftur til Ottawa, gerðu menn sér vonir um að heilsa hans væri aítur í góðu Iagi, en svo reyndist ekki, oð ný- lega var Borden borinn fárveikur heim til sín af stjórnarráðsfundi. í fjórðung aldar hefir Borden verið á stjórn- málasviðinu og lengst af í broddi fylkingar. Leiðtogi Conservativa flokksins í Canada var hann valinn 26. febr. 1901. Við kosning- arnar 1934 og 1908 varð flokkurinn í minni- hluta, en við kosningarnar 21. sept. 1911 vann Borden og flokkur hans mikinn sigur og steypti Laurierstjórninni. Tveim vikum síð- ar myndaði hann stjórn. Hin upprunalega Bordenstjórn sat að völd- um í sex ár, eða til 12. okt. 191 7, að hin svo- kallaða samsteypustjórn var mynduð undir forustu Bordens, og skipuðu hana helztu menn beggja flokka. Við myndun þeirrar stjórnar framkvæmdi Borden sitt stærsta pólitíska þrekvirki; þrek- virki, sem halda mun nafni hans á lofti um ó- komnar aldir. Hann sýndi það bezt þá, að hann var sannur maður, sem bar höfuðið yfir lýðinn. Hann skar sundur þau bönd, sem bundu flokkana, að því er vera virtist, óslít- andi tengslum, og fékk heitustu andstæðinga til þess að sliðra sverðin og sverjast í fóst- bræðralag. Flokkurinn var honum kær, en þjóðin var honum kærari, því offraði hann flokknum, því hann taldi samvinnu gömlu flokkanna nauðsynlega til þjóðheilla, á þeim þrautatímum, semn þá stóðu yfir. Beztu krafta landsins varð að leggja fram til stríðs- málanna. Vér ætlum ekki að rekja sögu samsteypu- stjórnarinnar, né heldur Bordenstjórnarinnar gömlu. En það má fullyrða, að heppilegri mann í þá ábyrgðarmiklu og vandasömu stöðu, stjórnarformannsembættið, var ekki hægt að finna en Borden. Stiltur og gætinn, fastur fyrir og óbifanlegur hefir hann staðið við stýrið, og hvergi vikið hársbreidd frá því marki,, sem hann setti sér og þjóð sinni í byrjun stríðsins, sem var að styðja banda- menn af öllum þcim mætti, sem hin Canadiska þjóð haiði til. P^rd°n er maður hámentaður Hann var prófe-'or í Iögum áður en hann fór að gefa si" við stjórnmálum, og er talinn með allra bezfu lögfræðingum þessa lands. Hann er engmn afburða mæ!skumað”r <*n fastmælt’”" og áheyrilegur. Hann hefir altaf komið til dyranna eins og hann hefir verið klæddur, en aldrei tjaldað framkomu sína hræsni og tvö- feldni. Einarður og ráðvandur til orða og verka hefir hann ætíð verið. og farið sínu fram hvort mönnum hefir líkað betur eða ver. “Þéttur á velli og þéttur í lund, þrautgóður á raunastund,” eru sannmæli á honum. Misjöfnum dómum hefir. Borden átt að mæta, en svo er um öll mikilmenni. En þegar sagan dæmir verkin hans, mun dómur hennar skoða hann stjórnvitring og föðurlandsvin, og hin Canadiska þjóð mun jafnan telja hann í tölu sinna ágætustu sona. Átta stunda vinnutími. Hér í Winnipeg er sápugerðarverksmiðja, sem Royal Crown heitir, og er eigandi hennar brezkur miljónamæringur, Leverhulme lávarð- ur. Hann á sápuverksmiðjur víða um lönd og hefir grætt allan auð sinn á sápu. Lávarð- urinn er að nokkru líkur vini vorum Henry Ford, og virðast þeir vera farnir að keppa hvor við annan að auglýsa sig sem mannvim og höfðingja. Allir þekkja Ford, og vita hvernig hann hefir hleypt glundroða og óá- nægju í verkamannaheiminn, með hinni rausn- arlegu breytni sinni við verkamenn sína. Verkamenn annarsstaðar frá líta verkamenn Fords öfundaraugum, vegna hins háa kaup- gjalds og stutta vinnutíma, sem auglýst er að hann gefi þeim. Og vinnuveitendur eru Ford sárgramir fyrir tiltæki hans, sem þeir segja að sé til þess að vekja óánægju meðal verka- mannastéttarinnar, þar sem örfáir geti boðið lík kjör og Ford. En svo er ekki með Lord Leverhulme, sápukónginn. Hann er fult eins ríkur og Ford og sápusalan gengur vel, því all- ir þurfa að þvo sér. Lávarðurinn hefir því látið það boð út ganga, að frá næsta nýári skuli vinnutími allra þeirra, sem fyrir sig vinni að sápugerðinni, vera sex klukkustundir á dag en dauglaunin hm sömu og nú eru greidd fyr- ir 8 stunda vinnudag. Lávarðurinn er þannig fyrsti vinnuveitandmn hér í Canada til þess að ] innleiða sex stunda vinnutíma. Ford hefir hann í verksmiðjum sínum í Bandaríkjunum, en 8 stunda vinnutíma í verksmiðjum sínum hérna megin landamæranna, að því er vér bezt vitum. En litlum vafa er það bundið, að ekki verður Ford eftirbátur lávarðarins í þessum efnum til lengdar. Sex stunda vinnu- dagur hefir þannig haldið innreið sína í verka- mannaheim þessa lands. En væri það nú ekki viturlegra, að áður en menn gleypa við þessari sex stunda hugmynd, að átta stunda vinnudagurinn komist fyrst í fastar skorður. Það eru ekki margir vinnu- veitendur, sem geta fetað í fótspor þessara tveggja fyrnefndu miljónamænnga, en stjórn þessa lands hefir á allherjar verkamálaþing- inu í Washington viðurkent 8 stunda vinnu- dag og heitið að Ijá honum fylgi sitt, og sam- kvæmt beiðnu og kröfum verkamannafulltrú- anna sjálfra, mælti þingið fram með allsherj- ar átta stunda vinnudegi um allan hinn ment- aða heim. Vér gerum ráð fyrir að hér verði efndir úr, og víða hefir 8 stunda vinnudagur- inn verið innleiddur, en þó hvergi nærri al- staðar, og eins og vér sögðum áður, væri skynsamlegra að koma honum fyrst í fastar skorður, áður en farið væri að burðast með 6 stunda vinnudag. Átta stunda vinnudagur- inn mun eiga furðu örðugt uppdráttar fyrir því. I verksmiðjum og annari bæjavinnu er eng- in ástæða til að efast um annað en að alt gangi greiðlega í þessum efnum, þó drögur sé á. En hvað er með sveitavinnuna? Vinnu- fóík til sveita á einnig að koma undir þessa 8 stunda tilskipun. Getur bóndinn aðhylst hana? Getur hún samrýmst búskapnum? Þ. e. o. s. getur bóndinn með þessum takmark- aða vinnutíma náð þeirri uppskeru, sem jörð- in hans getur gefið honum? Ef svo er ekki, horfir hér til vandræða, því vér verðum að hafa það hugfast að krafa verkamálaþingsins var að lögleiða 8 stunda vinnudag fyrir allar vinnustéttir í öilum löndum. og væri því um lagabrot að ræða, ef bóndmn léti fólk sitt vinna lengur en þennan takmarkaða tíma, nema ef hann borgaði tvöfalt kaup fyrir yfir- vinnu. Landbúnaðarráð”-’evtið á Frakklandi skip- aði nýlega nefnd til þess að rannsaka, hvor’ nokkur tök mundu á að innleiða 8 stunda vinnudag við sveitavinnu. Nefnd þessi, eftir ítarlesra ran”sókn, komst að þeirri niðurstöðu, að slíkt væri með öllu ógemingur; 8 stunda vinnudagur gæti ekki fullnægt kröfum land- búnaðarins. 1 þeim löndum, þar sem átta stunda vinnudagur hefir verið innleiddur, hef- ir crðið að gefa bændastéttinni undanþágu frá lögunum um mesta anna tímann, og jafn- vel orðið að setja sérstakt ákvæði inn í lögin ”m að verksmiðjum skuli gefinn svo og svo Hngur tími — þó ekki meira en tvö ár — til þess að breyta svo vinnuháttum, að í samræmi verði við lögin. Holland, Svíþjóð, Japan og Sviss hafa þannig um hnútana búið. Hvað Canada og Bandaríkin gera er ennþá óvíst, eins með Bretland. En fulltrúar þessara landa hafa skuldbundið sig til þess að koma á 8 stunda vinnudegi fyrirvaralaust. Sérstaklega eru verkamannaleiðtogar Breta því eindregið fylgjandi, að öll landbúnaðar- vinna sé þessu ákvæði háð, að þetta 8 stunda ákvæði sé fyrir allan verkalýð, hvort heldur í borgum eða til sveita, og verðlag á yfirvinnu verður sett af vinnusamböndum. Bóndinn getur ekki gert neina vinnusamninga við vinnumenn sína eða vinnukonur sem einstakl- inga. Hcuin verður að haga sér eftir ákvæði vinnusambands þess, sem hann eða hún til- heyrir. 1 sannleika dásamleg tilhögun. Menn verða að hafa það hugfast, að það er ekki hægt að lögbinda náttúruöflin, — veðr- áttufarið hefir mikið að segja hjá bændum um uppskerutímann, og verða þeir að haga vinnubrögðum sínum eftir því. Og svo er það eins með blesaðar kýrnar, þær verða að vera mjólkaðar sunnudaga sem aðra daga, — það er ekki hægt að loka kussu upp um hádegi á laugardag, líkt og verksmiðuvélun- um, og láta hana bíða þannig afskiftalausa til mánudagsmorguns. Það er hvorki sanngjarnt eða viturlegt, að leiðtogar verkamannastéttarinnar setji lög, er komi í bága við hagsmuni landbúnaðarins, né heldur það að bændur setji verkamönnum lög eftir sínum geðþótta og með eigin hagsmuni fyrir augum. Og það eitt er víst, að eigi að fara að haga öllum vinnuháttum til sveita eftir fyrirmælum og tilskipunum vinnusamband- anna, þá g :ngur landbúnaðurinn dauða sínum á móti. Að vorri hyggju væri viturlegt að verka- menn fengju vilja sinn í bæjum, hvort sem það er 8 eða 6 stunda vinnudagur, en að bændurnir séu látmr sjálfráðir um sveitabú- skapinn. Þeir eru nógu hygnir til að sjá það að það er þeim fyrir beztu að breyta vel við vinnufólk sitt, og hagsmuna sinna gæta þeir flestum fremur. Rennaralaunin í JVíanitoba. Þess var getið hér í blaðinu fyrir skömmu, að barnakennarar þessa fylkis hefðu bundist samtökum til þess að fá kjör sín bætt, og að jafnvel hefði komið til orða að þeir gerðu ] bandalag við miðstjórn vinnusambandanna í j því augnamiði. Kennararnir kváðust eiga við sultarlaun að búa, og hagur þeirra hefði farið versnandi með ári hverju síðan 1914. Fylkisstjórnin lofaðist til að láta rannsaka( ! ) kröfur kennaranna, til þess að komast að raun um hvort þær væru á rökum bygðar. Hver árangur þessarar rannsóknar verður, á eftir að sýna sig. En stjórn kennarafélags- ins í Manitoba hefir látið birta skýrslur yfir laun og fjárhagskringumstæður kennaranna, eftir skýrslu, sem hún hefir safnað í því augnamiði. Sagan, sem sögð er þar, er næsta ófögur og mentamálastjórnardeildinni j lítt til heiðurs, því hennar er það skyldan að sjá hag kennaranna borgið. Skýrslur þess- ar sýna, að meðallaun sveitakennara eru $701.08. Hugsið ykkur, hér eru menta- menn og konur aðeins hálfdrættingar við ó- breytta verkamenn. Látum oss nú sjá hvernig kennarinn fer að eyða öllu þessu kaupi skólaárið 1918—’19. Skýrslurhar gefa það einnig til kynna. Fæð- iskostnaður $312 og þvottur $31.00, en þá er nær helmingurinn upp genginn. Fatnaður $223, lífsábyrgð $17.86, og er það aðeins 1000 doliara lífsábyrgð. Veikindi $30.00, bækur o. fl. $18.00 og ýmsar nauðsynjar $66.00. Verður þá rúmur einn dollar af- gangs, eða nákvæmlega $1.14. Geta allir séð hversu stór upphæð það verður, ef lagðir eru í banka og geymdir í 10 ár — nærri 15 dalir! Þess ber einnig að geta, að tölur þær, sem hér eru sýndar, eru meðal-Iaun og meðal- kostnaður æðra flokka kennaranna. Ný- græðingarnir á kennarabrautinni, eða þriðja flokks kennararnir, eru ekki teknir með í reikninginn, eru kjör þeirra því enn ömurlegri. Nei, þetta eru fyrsta og annars flokks sveita og smábæja kennarar, sem hér getur um, blóminn úr kennarastéttinni. Vissulega er tími til kominn að hér verði breyting á og hún án tafar. Manitobafylki er ekkert verra en hin fylkin í þessum efnum, að minsta kosti ekki verra en austu-fylkin; en það bætir ekkert úr skák. Kjör kennaranna þurfa að batna, og það til stór muna. Og það hvílir á herðum fylkisstjórnarinnar að sjá um að svo verði. Fræðsla unglinganna er eitt mikilvægasta atriðið í þjóðlífinu. Hún er undirstaða kom- andi kynslóðar. Að sú stétt manna, sem hef- ir það ábyrgðarmikla verk með höndum, skuli þurfa að búa við sultarlaun, er ekki einasta hneysa, heldur glæpur gagnvart komandi kyn- slóð, því hæfileikamenn munu ekki fara að kjósa sér þá lífsköllun, sem býður jafn léleg kjör, og verða það þá mestu skussamir, sem starfann velja, og þar við líður ungdómurinn. Kennarastéttin verður því að fá sómasam- leg lífskjör. Svíðingsháttur í hennar garð kemur oss sjálfum í koll. Sami söngurinn. I síðustu Voröld er ritstjórinn að bölsótast út af kosningaúrslitunum hér í Winnipeg, og er hann ekkert orðprúður þar, maðurinn. Hann syngur ennþá tónfagra sönginn sinn um svik, þjófnað og mútur, og hljómsveiflurnar bergmála hugtak- ið “glæpsamleg svik”. En það er farið að líða að jól- unum, og vér viljum því ekki hella ass yfir ritstjórann að þessu sinni, ;ins og hann verðskuldar. Vér fáum að sjálfsögðu tækifæri til bess síðar. Vér viljum því að þessu :nni aðeins í mesta bróðerni benda neðbróður vorum á heimsku hans g ósannsögli, og láta þar við sitja. Heimska hans er aðallega í því fólgin, að hann hefir fengið þá neinloku inn í höfuðið, að hann sé málsvari fólksins og tali fyrir þess nunn. Aðra eins skömm hafa fá- r gert alþýðumönnum og Vorald- rmaðurinn, er hann kallar kammaþvaður sitt talað “fyrir :unn fólksins”.. — Nær léti að ;egja að hann væri sorpsprauta leðstu dreggja þess. Þungamiðjan í kosningasvika- ærum hans er í því fólgin, að t. d. umar fjölskyldur hafi átt um 40 tkvæði, og þau hafi öil verið gef- n Gray. En svo skýrir hann mál- ð með því, að allar fjölskyldurnar íafi átt lóðir og eignir hingað og >angað um bæinn, og að það sé ó- éttlátt að Iáta dauða moldina jreiða atkvæði. Vér erum hér ammála ritstjóranum, að þetta er íréttlátt, en það er Iögum sam- kvæmt og því um engin kosninga- vik að ræða, þó öll fjölskyldan íafi greitt atkvæði, hafi hinir ýmsu neðlimir hennar átt eignir, sem ;áfu þeim atkvæðið. Vér tókum það fram ítarlega yrir nokkru síðan, að vér værum hví hlyntir að atkvæðið væri tekið f eignum og gefið manninum, og tver fullveða maður og kona hefðu itt atkvæði, eða með öðrum orð- im einn maður eitt atkvæði, en :kki sjö Ióðir sjö atkvæði. Að rreyting í þessa átt skeður innan iítils tíma er vafalítið, en engu að síður hefir enginn maður, og sízt af öllu blaðamaður, sem þykist vera leiðtogi ( ! ) síns lýðs, rétt til ið segja að hér sé um glæpsamlegt ithæfi að ræða. Hann veit sjálfur _ð svo er ekki. En það gefur hon- m hugfróun, manninum, að það arðar mestu. Hin prúðmannlegu orð, sem rit- itjórinn velur okkur meðbræðrum sínum, eru honum svo sviplík: hundur , hundsrora , leppur , “dinglandi rófa” o. s. frv. Þau sýna svo undur vel Voraldar-vel- ;æmið. Ritstjóri Voraldar fárast mjög /fir því, að ritstjóri Heimskringlu, em sjálfur hafi tekið þátt í verk- fallinu, hafi nú unnið á móti verka- ■nönnum í kosningunum. Það er einmitt af því að vér tókum þátt í verkfallinu mikla, að vér viljum gera vort ýtrasta til að koma í veg fyrir annað eins, því brent barn forðast eldinn, Sigurður sæll. Og hefðu æsingamennirnir frá því í sumar náð töglum og högldum við bæajrstórnarkosningarnar, hefði sama óöldin og ósköpin dunið yfir innan fárra vikna, sem hér geysaði Dodd’s Kidney Pills, 50c askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, hjá öll- um lyfsölum eða frá The DODD’S MEDICINE Co„ Toronto, Ont. í sumar. Hvað því hmsvegar við- víkur, að vér höfum formælt Öllum stjórnum og þar fram eftir götun- um, þá eru slíkt ósannmdi. Vér höfum til dæmis altaf haft dálæti á Charles F. Gray og höfum það enn. Og við sambandsstjórnina hefir oss aldrei verið í nöp. En svo vér snúum oss aftur að kosningaúrslitunum og harmagrát Voraldarmannsins, þá viljum vér benda honum á eitt, að liggi svik að baki kosningunum, þá stendur leiðin til dómstólanna honum opin. Þar getur hann borið fram kærur sínar sem maður, ef hann hefir nokkrar sönnur á þær að færa. Annars gerði hann réttara í því að þegja. En þetta endalausa span- gól og væl í blaðinu er öllum hvim- leitt, sem lesa, að bíða ósigur og bera sig karlmannlega, er einkenni sannra manna, en hyggja á hefndir síðar meir. En það eru aðeins löðurmennin og kögursveinarnir,. ganga út og væla. Og undarlegt er það, að við all- ar kosningar, þar sem Voraldarrit- stjórinn fer halloka, byrjar hann sama sönginn, þegar af hólminum er komið: Svik! Svik! Glæpsamleg svik! Olympiu- leikarniiv Ejftír því sem danska blaðiS : Politiken segir, fá íþróttamenn frá | Þýízkalandi, Austurríki, Ungverj’a- landi, Búlgaríu og Tyrklandi ekki aS taka iþátt í Olympíuleikjunum í Antwerpen á næsta ári. Aftur á móti hefir flestum öðr- um þjóSum veriS boSiS aS taka þátt í þeiim, og hafa Bretar, Frakk- ar, Bandaríkjamenn, ítalir, Hol- lendingar, Svíar og Danir tekiS boSinu, aS senda þangaS íþrótta- menn. Sænska Olympíunefndin hefir fariS þess á leiS viS stjómina, aS fá aS halda happdrætti til aS afla fjár handa íþróttamönnunum. Býst nefndin viS því aS kostnaSur áf sendingu íþróttamanna þangaS suSur muni aS minsta kosti nema hál'fri miljón króna. Og þó stjórn- in 'hafi látiS ríflega af mörkum til þátttökunnar, þatf aS 'hafa úti öll spjót til þess aS fá nægilega mikiS fé. BúaSt Svíar viS því aS senda 225 íþróttamenn frá sér—og þyk- ir þaS mikiS. • En hvaS um canadiska íþrótta- menn. Engin rödd heifir heyrst ennþá um þátttöku þeirra í leikj- unum. ---------x----------

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.