Heimskringla - 22.12.1920, Side 1

Heimskringla - 22.12.1920, Side 1
efttr’ R»y»l Onw» S64 Matn St. Wloaipeg1 S*o4ÍV «ftlr verWtsta tl' Rorai (Wm «*■>, L«i) XXXV. ÁR WINNIPEG. MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 22. DESEMBER, 1920. NCMER 13 /y MATTHÍAS JOCHUMSSON skáld. ■ V Fæddur 11. Nóvember 1835. — Dáinn 18. Nóvember 1920. Matthías Jochumsson. j Sýnist oss er slíkir deyja sól og sumar sé á íörum, alt auðara, alt snauðara, alt heimskara, • sein eftir hjarir.”' Sú harmafregn barst hingað vestur fyrfa mið- vikudag, að skáldkonungur íslands Matthías Joch- umsson væri látinn. Lézt hann að heimili sínu á Akureyri fimtudaginn 18. nóvember, eftir stutta legu, 7 dögum betur en 85 ára. Er þar til grafar genginn, ékki einasta mesta skáld hinnar íslenzku þjóðar, heldur og hennar mesta andagiftarmaður og hugsjónalofðungur; snillingurinn snjalli. er all- ir elskuðu og virtu, og sem alþjóð nú harmar — látinn. Séra Matlhías, svo var hann jafnan kallaður, var fæddur 1 k nóvember 1835 í Skógum í Þorskafirði í Barðastrandarsýslu. Vöru foreldrar hans Jodhum 'Magnússon bóndi þar og kona hans Þóra Einarsdóttir. Föðurætt Jocihums var norð- lenzk, en ætt Þóru mun hafa átt heima á Vestur- landi. Fátæk voru þau Skógahjónin; var |>ó Jodhum hin mesti dugnaðarmaður og kona hans honum ekki síðri. Var hún gáfukona hin mesta og unni Matthías henni hugástum. í foreldrahús- um var Matthías þar til hann var 11 ára, en eftir bað dvaldi hann aldrei að staðaldri hjá foreldrum sínum. Um tíma var hann hjá móðurbróður sín- um, séra Guðmundi á Kvennabrekku, og mun það bafa verið ætlun móður hans, að hann lærði þar undir skóla, en lítið varð úr lærdómi hans þar. Komu foreldrar hans honum þá fyrir hjá Sigurði kaupmanni Jo’hnsen í Flatey; voru þeir Sigurður °g Jochum systrasynir. Var Matthías 1 7 ára, er hann kom til í’Iáteyjar, og var hann þar lengstum næstu sjö árin, ýmist hjá frænda sínum eða tengda- föður hans, Brynjólfi kauprnanni Benedictsen. Stundaði bæði búðarstörf og sjómensku á sumrum, en var við nám bjá séra Eiríki Kúld á vetrum. Mun það hafa verið ætlunin að gera úr honum verzlunarmann, og í því augnamiði sigldi hann haustið 1856, en hugur hans mun ekki hafa verið í þá áttina; þó var hann við verzlunarstörf í Flatey næstu tvö árin eftir afturkomu sína frá Kaup- mannahöfn. En haustið 1859 réði hann það af að fara í latínuskólann, og styrktu þau Benedict- sens- hjónin hann til þess. Var hann fjóra vetur í Latínuskólanum og útskrifaðist þaðan vorið 1863. Næsta haust innritaðist hann á prestaskól- ann og útskrifaðist þaðan eftir tveggja ára nám, þá rétt þrítugur að aldri. Hann vígðist 1866 til Kjalarnessprestakalls og fór að búa að Móum. Sama árið og hann varð stúdent, kvœntist hann Elínu Knudsen, dóttur Diðriks Knudsens trésmiðs í Reykjavík, en misti hana 1868. Árið 1870 kvæntist hann í annað sinn, Ingveldi Ölafsdóttur prests að Stað í Reykhólahreppi, en misti hana eft- ir tæpt árs hjónaband. Harmaði hann hana mjög, eins og kvæðið “Sorg” ber með sér, eitt allra feg- ursta kvæði hans. Árið 1875 giftist séra Matthí- as í þriðja sinn, og gekk að eiga Guðrúnu Runólfs- dóttur frá Móum. Lifir hún mann sinn ásamt 6 börnum af 11, sem þau eignuðust. Steingrímur læknir á Akureyri, Magnús kaupmaður í Reykja- vík og Gunnar byggingameistari í Seattle, eru syn- ir þeirra, og Matthea, Þóra og Halldóra dæturnar sem eru á lífi. * * Ritstjóri Þjóðólfs var Matthías í 6 ár, frá 1874 til 1880. Fékk hann þá veitingu fyrir Odda ,á Rangárvöllum, og var þar prestur til 1886, að hon- um var veitt Akureyrar-prestakall. Fluttist hann þangað vorið 1887 og þjónaði því til ársins 1900, að alþingi veitti honum 2000 króna skáldastyrk og eftirlaun, og hann hætti prestskap. Snemma byrjaði Matthías á að yrkja, skömmu eftir fermingu, en þó kveður ekkert að skáldskap hans fyr en á skólaárunum. En frá þeirri stundu til banadægurs var hann fyrstur í för. Hann hefir betur sungið sig inn í hjarta þjóðar sinnar, en nokkurt af samtíðarskáldum hans; þó hafá þau mörg verið uppi á þvf tímabili, og mörg góð, en ekkert þeirra megnaði að ná lárviðarsveignum áf honum. Allan þann langa tíma, frá 1860 og til þess ar hann lagðist banaleguna, má svo heita sem séra Matthías væri sí-yrkjandi og sí-skrifandt, og þjóðin hefir altaf lagt eyrup við, þegar hann hefir beðið sér hljóðs. Ljóðiní hans, leikirnir hans, rit- gerðirnar hans og þýðingarnar hans vörpuðu sól- skini yfir þjóðlífið íslenzka, og það skín gegnum ó- komnar aldaraðir. Eg er ekki þess megnugur að dæma um skáld- skap lárviðarskáldsins, svo honum sé samboðið. Til þess skortir mig bæði dómgreind og þekkingu. En þar sem eigi er á öðrum völ að sinni, verð eg að haCtta mér út á vaðið, í þeirri von:að aðrir komi mér til hjálpar síðarmeir. Ljóðskáldið Matthías verður hinni íslenzku þjóð ógleymanlegt. Leikritaskáldskapurinn stend- ur Ijóðunum að baki. Það eru ljóðin, sem bezt sýna eldmóð og orðfimi skáldsins, og sem vekja, hrífa, gleðja og styrkja huga lesendanna. Þjóð- ernistilfinning er sterk í kvæðunum, framsóknar- andinn ótakmarkaður og trúin á hið góða óslökkv- andi. Flestum kemur saman um, að ljóðlist Matthías- ar komst einna hæst í kvæðunum “Hallgrímur Pétursson”, ’‘Sorg”, “Eggert ölafsson” og “Skaga- fjörður”, sem öll eru snildar-kvæði. En einföld- ustu kvæðm hans eru þó oft hvað bezt. Varla hefir annað skáld skapað fegurri líkingu um lífið og dauðann, en þessi óbrotnu erindi Matthjasar: “Dauðinn er lækur, en lífið er strá, skjálfandi starir það straumfallið á. Dauðinn er hafsjór, en holdið er strá, en sálin er sundlétt og sökkva’ ei má.” Enginn Islendingur, að Jónasi Hallgrímssyni undanskildum, hefir kveðið eins dýrðlega um móð- urmálið og séra Matthías. I áskorun sinni til Vestur-Islendinga um að halda við málinu segir hann: ; j . ___i '.lI .H “Tungan geymir í tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, Darraðarljóð frá elztu þjóðum, heiptareim og ástarbríma, ödagcihljóm og refsidóma.” Og á öðrum stað í sama kvæði: > i “— HaUgrímur kvað í heljar nauðum heilaga glóð í freðnar þjóðir.” Af meiri kyngikrafti hdfir enginn kveðið. Sem erfiljóðaskáld á Matthías engan sinn líka, fyr eða síðar. I erfiljóðunum kemur lífsskoðun- in fram. Á hvörfum lífs og dauða er bezt útsýni yfir hvorttveggja og samband þeirra sín á milli. Þar gafst skáldinu færi á að sýna sklining sinn á mannlífinu, og að meta rétt gildi einstaklingsins. Þó mörg af erfiljóðum Matthíasar séu léttmeti, sem ekki er heldur að undra, þegar litið er á allan þann urmul, sem hann hefir af þeim kveðið, þá eru þó mörg þéirra helztu perlur íslenzks skáld- skapar, eins og t. d. erfiljóðin eftir Dr. Guðbrand Vigfússon. Ljóðadís Matthíasar var aldrei við eina fjölina feld. Skáladfákur hans var bráðólmur fjörhestur, eða eins og merkt íslenzkt skáld komst að orði: “— grimmvakur en lítt taminn, fnæsandi af kappi og með flaxandi makka, sjálfsagður til að taka fyrstu verðlaun í hverri kappreið, ef hægt væri að halda honum niðri á skeiðinu.” Þannig var það á öllum sviðum skáldskapar hans. Leikritaskáldið Matthías var langkunnast fyrir “Utilegumennina”, eða “Skugga-Svein öðru nafni. Kom leikurinn fyrst út 1864, og síðan hef- ir víst e’kki nokkurt ár liðið svo, að hann hafi ekki verið Ieikmn á einum stað eður öðrum, austan hafs eða vestan. Er það tvímælalaust vinsælasti sjón- leikurinn, sem nokkurntíma hefir saminn verið á íslenzka tungu. Önnur leikrit Matthíasar eru: “Vesturfararnir”, “Jón Arason”, og “Aldamót” og smáleikurinn “Hinn sanni þjóðvilji”. “Jón Ara- son” er eina leikritið, sem aldrei hefir sést á leik- sviði. Þá hefir séra Matthías þytt mesta fjölda Ieik- rita. Af leikritum Shakespeare’s hefir hann þýtt: “Hamlet”, “Machbeth”, “Othello” og “Romeo og Juliet”. Þá hefir hann þýtt “Manfred” eftir By- ron, “Brand” eftir Ibsen, “Gísla Súrsson” eftir enska skáldkonu, og “Bóndan” eftir norska skáld- ið Anders Hovden, sem út kom 1907, og mun vera hin síðasta leikritsþýðing skáldsins. Hin fyrsta, “Machbeth”, kom út 1875. En sú þýðing, sem Matthías hefir orðið ástsæl- astur fyrir, er þýðingin á “Friðþjófssogu” Esajas- ar Tégners, sem út kom fyrst 1866. Mun aldrei önnur betri né vinsælli þýðing hafa verið gerð á íslenzka tungu. og segja fróðir menn að ljóðin séu betri í þýðingunni, en þau séu á frummálinu, sænskunni. Ekki náðu hin frumortu söguljóð skáldsins, “Grettisljóð”, annari eins hylli, og þó eru þau ramíslenzk og ort í sönnum hetjumóði. I félagi við Steingrím Thorsteinsson gaf hann út “Svanhvít” 1877, þýðing eftir þá báða á úr- valskvæðum útlendra skálda. Og mikill fjöldi er af öðrum þýddum Ijáðum eftir Matthías hér og þar í kvæðabókum hans. Hfenn þýddi og “Sögur her- læknisins” — mikið verk eftir Zakarías Topelius. Fyrsta útgáfa af ljóðmælum Matthíasar kom út í Reykjavík 1884. Næst komu þau út í sex bind-' um á árunum frá 19ÖÓ til 1906, og svo voru “0r- valslóð hans gefin út í einu bindi 191 5, á áttræðis- afmæli hans. Skáldið lifir þótt maðurinn deyi. En manns- ins Matthíasar vildi e& gjama minnast örfáum orð- um. Eg þekti hann vel á uppvaxtarárum mínum á Akureyri, og hann hefir jafnan verið mér hjart- fólginn síðan. Eg mun hafa verið fyrsta eða með allra fyrstu börnunum, sem Matthías skírði eftir að hann kom til Akureyrar, og frá því eg komst á legg og þar til eg fór vestur um haf, var séra Matthías mér ein- staklega velviljaður, og marga krónima gaf han* mér þegar eg var drengur. Við Magnús sonur hans vorum jafnaldrar, skólabræður og vinir, o$ kyntist eg því föðurnum meira en annars hefði orðið. Að ytra útliti var séra Matthías enginn hvers- dagsmaður. Hann var gildur meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og samanrekinn, og á yngri árum sín- um hefir hann eflaust verið karlmenni. Andlits- fallið var fremur ófrítt, en svipurinn hreinn og djarfmannlegur og augun frán og fjörleg. Glað- lega og vingjarnlega viðmótið, sem hann ætíð bar, færði með sér yl og hrifning. Matthías var fram- úrskarandi bjartsýnn og mannúðin var staðfastur fylginautur hans. Góðhjartaður var hann með af- brigðum og mátti ekkert aumt sjá. Á Akureyri undi séra Matthías vel hag sínum, og bæjarbúar elskuðu hann, og þegar hann fór að heiman, sem ^alloft kom fyrir, því hann var ferða- langur mikill, var tómt og eyðilegt í bænum. Um afskifti Matthíasar af opinberum málum var mér Iítt kunnugt. Blaðamenska hans var löngu fyrir minn dag; en þær ritgerðir, sem eg hefi eftir hann lesið, voru fjörugar og fræðandi, en fæstar um opinber mál. Stjórnmál lét hann sig Iitlu skifta, var allra vinur, en engum trúr, að því er hann sjálfur sagði í spaugi. Ant var honum um að efla vinsældir meðal Islendinga og útlendra þjóða, og átti hann mikilsmetna vini víða um lönd. Hingað til Vestufheims kom séra Matthías ár- ið 1893. Höfðu Vestur-Islendingar boðið hon- um, til þess að koma á heimssýninguna í Chicago og til að heimsækja sig um leið. Var hann gestur þeirra mestalt sumarið og ferðaðist víða um bygð- ir þeirra. Ritaði hann bók um þá för sína, sem hann kallaði “Chicagoför mín” og kom út á Akur- eyri Í894. Matthías hefir verið heiðraður öðrum íslenzk- um skáldum fremur, og það að verðleikum. Var hann heiðursmeðilimur ýmsra erlendra bókmenta- og fræðafélaga, auk þess em hann var heiðurs- félagi Hins íslenzka bókmentafélags. Hann var riddari af Darit»ebrog, og nú, á 85. afmæli sínu, rétt fyrir andlátið, gerði guðfræðisdeild háskóla Islands hann að heiðursdoktor, og Akureyrarbær gerði hann að heiðursborgara sínum, og er það í fyrsta sinni í sögu landsins, að íslenzkt skáld hefir þannig verið heiðrað. En nú er hið langa og fræga æfiskeið á enda runnið; harpan snjalla þögnuð og hjartað göfuga og góða hætt að slá. s Og þjóðin hin íslenzka, í tveimur heimsálfum, syrgir skáldið og manninn, en Saga í sorgarfeldi. leggur lífgras á leiðið uiA leið og hún kveður frömuð sinn: “Farðu vél, fóstrinn ljúfi, fræðin mín þú kunnir, fastara og betur flestum, sem eg fæddi á skauti. Legg eg hér lífgras, lékstu við það ungur; því skal hér allan of aldur ilmur úr grasi.” Minningin lifir, þótt maðurinn deyi. Gunnl. Tr. Jónsson. V I

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.