Heimskringla - 15.03.1922, Side 4
í». BLAÐSIÐA.
HEIMSR.R INGLA.
WINNÍPEG, 15. MAlRZ, 1922
HEIMSKRINQLA
(StofcuiB 1886)
Krmur 61 fl kverjum miSvtkudefff.
ttgefcAdiu* ok elgeninr:
THE VIKING PRESS, LTD.
853 0( 855 SARðBNT AVK.. WINNirBlG,
THlHÍmi: N-R337
Vírt blattHluH er |3.M árcurorln horg-
Irt tjrir frnm. Allar bnreHBlr aea41a«
rASamanal UaValaa.
Ráðsmaður:
BJÖRN PÉTURSSON
Ritstjórar:
BJÖRN PÉTURSSON
STEFAN EINARSSON
UtanRakrlft tU blaSalaai
THB VIKJNG I»RI3SS. Ltl, Bol 3171,
Whnlyec, Haa.
Ltanftalirlft ttl rltatjðraaa
EDITSR HEIHSKRINGLA, Bol 3171
Wlaatpes, Maa.
The "Hetmskrlnela’* ls prlntoa and pub-
Ushe by the VIkln« Trees, Llmlteí, at
853 eg 855 Sargent Ave., Wlnnlpeg, Mani-
teba. Tel'e»hane: N-S637.
" - ----......
WINNIPEG, MANITOBA, 15. MARZ, 1922
Tvö mikilmenni.
Brezka stjórnin hefir bæði fyr og síðar átt
mörg mikilmenni. Á seinni árum hefir ein-
kum mikið þótt til stjórnmálamanna hennar
koma. Hefir hún þurft á þeim að halda, því
undanfarið hefir agasamt verið í héraði á
Bretlandi sem annarsstaðar í heiminum.
í stjórnmálum ber þar nú sem stendur
meira á tveim mönnum en nokkrum öðrum.
Eru það þeir Lloyd George forsætisróðherra
og Sir Arthur Balfour. Auðvitað man maður
eftir H. G. Wells, sem einn merkasta manif
má nú telja af þeim sem uppi eru þar. En
sem stjórnmálamaður hefir hann ekki alment
fylgi enn, þó á aðra vísu sé hann viðurkend-
ari en báðir þessir menn sem á var minst-
Stjórnmálaveðráttan á Englandi hefir ver-
ið ýmsra átta um tíma. Hugir fólks hafa mjög
dregist að því- Heimafyrir er margra um-
bóta þörf. Hagur manna og landsins er erf-
iður. Til þess að bæta úr honum virðist ui'k-
iil hluti þjóðarinnar trúa Sir Arthur Balfour
manna bezt Og að því er stjórnina heima
fyrir snertir mun hann mörgum eða flestum
færari til þess að ráða fram úr vandræða-
málum hennar.
En stjórn Bretlands er ekki fólgin í því
'einu að stjórna vel heima fyrir. Það eru
utanríkismálin, sem þar er einnig mjög mik
ið undir komið, að hagkvæmlega sé með
farið. Og til þess treysta menn eflaust Llovd
George manna bezt. Hann hefir á því sviði
sýnt það svo ótvírætt, að leita má vel og
víðar en á Englandi til þess að finna hans
jafningja.
í seinni tíð virðist það helzt fundið að
Lloyd George, að hann fylgi um of auðvald-
inu. Hvort að stjórn hans á það skilið, frem-
ur en aðiar stjórnir sem verið hafa á Eng-
landi, efa kannske einhverjir. Og vonin um
að Balfour bæti í því efni úr skák, getur
átt að nokkru leiti rót að rekja til þess, að
nú liggja kosningar fyrir dyrum. Samt mun
ekki fjarri, að talsvert margir hafi þá
skoðun- Að hún eigi sér stað hjá 'þeim sem
róttækum umbótum unna, getur þó varla
verið.
Annað aftur sem mælir með Lloyd George
er fyrst og fremst Genf-fundurinn- Hugmynd-
irnar umiiann urðu fyrst til hjá Lloyd George
og að framfylgja þeim er ekki á annara færi
frekar, en hans sjálfs. Verði sá fundur hald-
inn áður en kosningar fara fram og Lloyd
George hættir við að segja af sér, sem nú er
þó fullyrt að hann ætli að gera, kemur hann
auðvitað ekki til mála. En nú er fjöldi ann-
ara mála á dagskránni, sem svipað stendur
á með og Lloyd George mun einna bezt trú-
að fyrir að fara með. Eru það írsku málin,
sem ennþá ramba á ófriðarbarmi, ástandið
á Indlandi, verkfallið í Suður-Afríku, sem
nú er undir hervaldi, tyrknesku málin og yf
irráð Breta í Palestínu, sem sagt er að séu
að taka enda. Og ofan á alt þetta verkfall
vé'lafræðinga á Englandi, sem er afar víð-
tækt og alvarlegar afleiðingar hefir í för
með sér. Vandræðin eru því mikil sem stend
ur á Englandi. Og að Lloyd George sé flest-
mn færari að greiða úr þeim munu margir
álengdar eða fjarri halda.
Brezku þjóðinni dylst ekki að hún hefir
þarna tveimur góðum mönnum á að skipa.
Meðan alt leikur í Iyndi og alt gengur vel,
getur verið að aðrir séu eins heppilegir stjórn
endur og Lloyd George. En þegar kemur í
hann krappan í nýlendu eða utanríkismál-
um, munu fáir reynast þéttari fyrir en hann.
Ef hann segir ekki af sér, á brezka þjóðin úr
vöndu að ráða við kosningarnar, sem senn
fara í thönd-
Þræta.
Vér áttum nýverið tal við ónafngreindan
Veslur-Islending. Og eins og stundum eða
ef til vill oftast á sér stað er íslendingar tala
saman, vorum við ekki sammála- Efnið sem
við kýttum um var um andlega hæfileika
Islendinga>
Vér héldum því fram að Islendingar tækju
flestum þjóðum fram í því efni. Að þeir
væru ágætir námsmenn og hefðu sýnt það,
að þeir stæðu hverjum sem væri á sporði að
því er gáfur snerti.
Vinur vor var ekki alveg þeirrar skoðun
ar. Hann kvað íslenzku blöðin hér hafa gert
mörgum hæfileikamanninum“bjarnargreiða”
með hólinu sem þau hlaða á þá að óverð-
skulduðu. Ef ungur náms-maður skarar
frarn úr í einhverju, sagði hann blöðin kepp-
ast við að hrósa þeim á hvert reipi, en oft á
sama tíma sýna litla dómgreind í því, að
meta til verðleika þá yfirburði sem þar hafa
komið í ljós eða að láta hvatningu fylgja þar
sem það væri þess vert. Þetta hefir gengið
svo langt hjá ykkur blaðamönnunum, að þið
hafið gert unga íselnzka nemendur að mik-
ilmennum ef þeir hafa fengið stöðu sem
vikadrengir (eða það sem stundum er kallað
“Chief Bottle Washer”) í vísinda starfstofu
einhvers háskóla. Hann áleit það vera nem-
endunum fyrir eins góðu, að finna stöku
sinnum að við þá og hvetja þá til að gera
betur.
Vér reyndum að hera í bætifláka bæði
fyrir blöðin og námsmennina. Bentum á
marga íslenzka prófessora, skáld og fræði-
menn, sem hér væru og héldum “ljósið” ekki
\ loga betur (andlega talað) hjá öðrum en
þeim.
Hann svaraði: Til dæmis að taka; þetta
er vísinda tímabil og við búum í landi þar
sem vísindi blómgast- Hvað margir Vestur-
Islendingar hafa skarað svo fram úr í ein-
hverri grein vísinda, að nokkrir, hafi heyrt
um það nema lesendur íslenzku blaðanna?
Það er hægt að, svara því. Útgáfufélag í
Bandaríkjunum (The Science Press) gefur út
rit eða skrá (directory) yfir vísindamenn í
Ameríku- Til þess að nafn mannsins kom-
ist inn á þá skrá, þarf hann að hafa gert
eitthvað verulegt í vísihda starfsemi. I þess-
ari bók nú nýútkominni, eru nærri tíu þús--
und nöfn, svo það er langt frá því, að þeir
frægustu aðeins séu taldir. Og hvað mörg
-íslenzk nöfn eru í þeirribók? Aðeins þrjú;
Sturla Einarsson prófessor í stjömufræði í
California, Vilhjálmur Stefánsson mannfræð-
ingur, Thorbergur Thorvaldsson efnafræð-
ingur og kennari við háskólann í Saskatoon.
Og þá eru þeir upptaldir. Væri úr vegi að
spyrja Vestur-íslendinga, hvers vegna að svo
margir hinna ungu námsmanna í vísindum
nema staðar þegar þeir eru rétt komnir í
“meðalmensku” hópinn? Væri nokkuð
fjarri, að benda þeim á að þeir þurfi að
halda áfram lengra, ef þeir vilja ekki lenda í
þvögunni við fjallsræturnar í stað þess að
komast upp á tindinn? Fjárhagslega hliðin
er ekki Iengur í vegi fyrir ungmennum sem
hafa hæfileikana, því það eru svo margir
styrktarstjóðir til við hina ýmsu skóla. Hafa
fleiri en einn kennari við vísinda-skólana
sagt mér, að þeir útveguðu öllum þeim nem-
endum sínum, sem þess væru verðugir og
vildu halda áfraTn námi, inngöngu með ein-
hverju móti á Harvard og æðri skólana.
Vér reyndum að malda í móinn og sögð-
um að þó á fáum íslendingum bæri í þessum j
. verkahring, væru þeir þeim mun fleiri sem |
sköruðu fram úr í sumu öðru. En vinurinn j
klappaði oss'á öxlina og kvaddi, en sagði j
áður en hann fór að ef fundum okkar bæri I
bráðlega saman aftur skildi hann sýna mér J
fram á, að einnig þar ætti sér ekki ósvipað
stað.
Þótt vér könnuðumst ekki við frammi fyr-
ir andmælanda, að hann hefði algerlega á
réttu að standa, getum vér nú kannast við,
að skoðanir hans hafi við nokkuð að styðjast
og þessvegna birtum vér, þær.
“Heimkoman”.
Leikur þessi var sýndur í vikunni sem Ieið, j
þriðjudags og miðvikudagskveldið. Aðsókn
var góð bæði kveldin, en einkum þó hið síð-
ara. enda tókst leikurinn mæta vel Efni hans
hefir áður verið lýst ítarlega. Höfundurinn
er Hermann Sudermann, er margir munu
kannast við af leiknum “Heimilið” er sýnd-
ur var hér í fyrra, og skáldsögum er þýddar ,
hafa verið á íslenzku, svo sem “Þyrnibraut- J
in”. “Vinur frúarinnar”, o- s. frv. “Heim- j
koman” (“Die Ehre”) var rituð árið 1889
og gat höf. fyrst alþjóða orðstír. Hafði hann
gefið út ýmiskonar smárit áður er að sönnu
vöktu eftirtekt á honum, en það var eigi fyr
en “Hermkoman” birtist að hann varð hvar
vetna kunnur sem mesta og stærsta leikrita-
skáld norður Þýzkalands. Tekur hann þar á
þeim meinum sem voru að siðspilla þjóðlíf-
inu, svipað og Ibsen gjörir í leikritum sín-
um- Er hann honu-m að mörgu leyti líkur og
-sannur lær-sveinn hans.
Sudermrnn er fæddur árið 1857, 30. sept-
-ember í þorpinu Matziken norður undir landa
mærum Rússlands í Austur-Prússlandi. For-
eldrar hanr voru Mennonítar- Sýndi hann
snemma frábærar gáfur, var settur lil lær-
dóms og útskrifaðist í heimspeki og sögp frá
iháskólanum í Königsberg, rúmlega tvítugur.
Gaf hann s g þá um tíma við kenslu og blaða
mensku. Samdi skáldsögur, leikrit og fleira-
Heimkoman er í íslenzkri þýðingu eftir
Emar Hjörleifsson Kvaran. Eru samtölin
einkar lipur og ljós, sem vænta mátti eftir
þann höfund.
Leiktjöld hefir herra Árni Sigurðsson mál-
að og eru þau snildarlega vel gerð; er hann
hinn smekkví.;asti málari og hefir þess utan
lagt stund á leiklistina og skilur þau hlut
verk manna bezt. Er það skaði að hann get-
ur ekki gefið sig allan við þeirri list. Hefir
hann nú á síðari árum búið vestur í landi og
orðið að gefa sig við algengri vinnu en leggja
hitt á hilluna sem hann er þó m-est upplagð-
ur fyrir. á þessum vetri komu þau hjón hing-
að til bæjarins, nokkru upp úr nýári, og hafa
dvalið hér nú um tveggja mánaðar tíma. Tók
hann þá að sér að æfa flokk þenna sem
leikur Heimkomuna, og sjálfur Ieikur hann
aðal hlutverkið. Er það honum algerlega að
þakka að leikur þessi er sýndur og hefir tek-
ist jafn vel. Með honum eru og þeir ýmsir
er hér hafa mest fengist við að leika á und-
-anförnum árum, og hafa þeir öll erfiðari hlut-
verkin- Ungfrú Elín Hall, er lék “frú Alving”
í “Afturgöngunum” og “Lónu Hessel” í
“Stoðum Samfélagsins” Ieikur frú Heinecke
og gerir það prýðilega. John Tait, hinn al-
kunni gamanleikari vor íslendinga hér í bæ,
leikur Heinecke með hreinni snild. Frú Stein-
unn Kristjánsson er lék “Reginu” í Aftur-
göngunum, leikur Ölmu Heinecke, er svipar
mjög til “Reginu” og gerir það prýðis vel-
öskar Sigurðsson, er lék Bóndann í “Kinna-
hvolssystrum” leikur Mitchalsky mæta vel.
Ágústu Heinecke, konu Michalskyleikur frú
Sigríður Gunnlögsson en frú Heberstreit ung-
frú Guðrún Hördal. Fara þær ágætlega með
hlutverk sín og sýna að þær gætu hæglega
farið með örðugri hlutverk ef til kæmi. Trast
-greifa leikur Jakob Kristjánsson, er áður Iék
“Osvald Alving” í Afturgö.igunum og “Jó-
hann Tönnesen” í Stoðum Sam'félagsins. Fer
hann vel með hlutverk sitt, þó ólíkt sé því
sem hann hefir áður leikið, og einkum segir
hann vel og eðlilega ýmsar setningar greif-
ans, er hann beitir fyrírlitningu eða gerir að
gamni sínu- Muhlingh Kommerceráð leikur
Björn Hallsson, er svo oft og margsinnis hef-
ir leikið ýms hlutverk hér. Fer honum ólíkt
betur að leika ríkismenn pg fyrirmenn, því
| hann er sjálfur einarður í framkomu og hefir
j djúpan og skýran málróm, en ýmsum sem
■ við það hafa fengist, enda leikur hann Kom
merceráðið vel. Kurt son Kommerceráðsins
leikur Karl Kristjánsson; Wilhelm þjóninn í
Framhúsinu, Pétur B/ Pétursson; Brandt
Lautinant, Páll Hallsson, og Hugo.vin Brandts
Hálfdán Eiríksson. Hlutverk þessi öll eru
fremur smá, og því vandi með þau að fara
svo í ljós komi nokkrar sérstakar einkunnir
hjá hverjum um sig- En þegar á það er Iitið
að þeir sem þau leika munu eigi vera æfðir
Ieikendur, þá er eigi annað hægt að segja
en að þeir hafi leyst verk sitt vel af hendi.
Frú Muhlingh leikur frú Hallfríður Sigurðsson
og gerir það vel. Kommerceráðsfrúin kemur
eigi mikið við sögu fyrr ,en í síðasta þættin-
um, en er þá með stéttarríg og stærilæti, þó
eigi sé yfir miklu að láta, sem, eins og þá er
komið leiknum, að öllum er ljóst- Dóttur
Kommerceráðsins Lenóru, leikur frú Hall-
dóra Jakobsson og gerir bað mæta vel, hvort
hún beitir háði eða alvöru, sýnir sorg eða
gleði. Er alt látbragð hennar á sviðinu mjög
svo eðlilegt. Er þó hlutverk Lenóru alt ann-
að en auðvelt.
Robert Heinecke, heimkomna soninn leik-
ur herra Árni Sigurðsson, sem áður er sagt.
Er það með allra erviðustu hlutverkum og
getur enginn meðfarið sem eigi er leikari
góður. Hjá Robert koma fram svo margar
og breytilegar geðshræringar, en gegnum alt
skín þó drenglyndið og sönn sómatilfinning
að persónan verður stór aðdáunarverð í
hvaða tilfelli sem hún birtist. Með hlutverk
þetta fer herra Sigurðsson alveg einstaklega
vel og gerir það leikinn frá upphafi til enda
stór áhrifamikinn.
Ákveðið er að leikurinn verði sýndur á
föstudagskveldið kemur (17. þ.m ) Ættu
engir heima að sitja er eigi hafa horft á leik-
inn. Verður þetta ef til vill síðasta tækifæri
að horfa á suma þessa lc»kendur nú um lang-
an tíma, og þar á meðal Árna Sigurðsson sem
kvað vera á förum innan fárra daga.
Er synd að segja
sannleikann?
Það er fullyrt, að vísindamenn-
irnir sem voru í leiðangrinum síð-
asta með Vilhjálmi Stefánssyni,
hafi sent Hon. Charles Stewart,
innanríkismálaráðgjafa í Ottawa
bænar-skjal sem fer fram á að
rannsókn sé hafin í sambandi við
stjórn Vilhjálms á leiðangrinam.
Ástæðurnar sem menn þessir hafa
. fyrir beiðni sinni eru ekki enn
fullljósar. Svo mikið er þó talið
víst, að þær séu í sambandi við
ummæli Stefáns í hinni nýju bók
sinni “The Friendly Arctic,” um
þá menn er með honum voru- Að j
minsta kosti bera þessir félagar
Vilhjálms það, að þeirra sæmd sé |
mjög misboðið með þ vísem sagt j
er um þá. Og með því að sá á- j
burður sé ósannur og skerði bæði
persónulegan heiður þeirra og
þekkingu sem vísindamanna, verði
þeir að hreinsa sig af honum.
Ekki vitum vér hvort þeim sem
lesið hafa bókina ‘The Friendly
Arctic” finst hið sama um um-
mæli Vilhjálms þar um misklíð eða
skoðana mun norðurfaranna og fé I
lögum hans sjálfum finst- Oss
koma þau ummæli þannig fyrir
sjónir, að þau séu þar sögð til
þess að segja sannleikann, en ekki
til þess að gera neinum af sam-
ferðamönnum Vilhálms hneisu, né
að þau séu sögð til þess, að hefja
Vilhjálm sjálfan, eins og fé-
lagar hans halda fram- Misklíð
átti sér stað á milli Vilhjálms og
hans manna. Á móti því er þýð-
ingarlaust að berá. Það er hlut-
ur sem oft kemur fyrir landkönn-
uði. Liyingstone og fleiri hafa
reynt þa. Þetta er svo eðlilegt.
Landkönnuðir sem hafa það eitt
í huga, að ná vissu takmarki í
þarfir vísindanna, hvað sem það
kositar, jafnvel lífið, eru að skap-
ferli svo ólíkir þeim mönnum, sem
meta kostnaðinn fyrst, og álíta
að vísíindastarfið ætti að vera
miðað við hann. Vér vitum ekki
fyllilega um misklíðarefni Vil-
hjálms og hans manna. En að það
hafi átt rót að rekja til þessa, eða
einhvers ekki ósvipað þessu, er
ekki ósennilegt. Og sé svo, virð-
ist það fyrirgefanlegt, þó Vilhjálm
ur segði frá því, sem sögulegum
sannleika í sambandi við ferða-
lag sitt, eins og aðrir landkönnuð-
ir hafa gert- Öfund ætti ekki að
eiga sér stað í því sambandi.
Það er talið líklegt að þetta
misklíðarefni komi fyrir sam-
bandsþingið nýbyrjaða og verði
athugað þar.
- -------x--------
Fagnaðar
samsæti.
hélt sambandssöfnuðurinn þeim
hjónum séra Ragnari E. Kvaran
og frú hans í safnaðarkirkjunni á
föstudagskvöldið var (10- þ. m.)
Samsætinu stýrði forseti safnaðar-
ins, Dr. Magnús B. Halldórsson og
bauð þau hjón velkomin með
góðri og vinsamlegri ræðu. Byrj-
aði hann samkomuna með því að
sunginn var sálmurinn 619 úr ísl.
sálmabókinni. (“Þú guð ríkir hátt
yfir hverfleikans straum”, eftir
Stgr. Thorsteinsson) Söngnum
stýrðu þau hjónin Mr- og Mrs.
P. S. Dalmann, söngstjórar safn-
aðarins. Að loknum sálminum
hélt læknirinn ræðu sína og að
henni lokinni söng Mrs. Dalmann
tvo söngva, annan á ensku en hinn
á íslenzku (Draumaland)- Þá hélt
séra Rögnv. Pétursson stutta ræðu
og séra Albert E.Kristjánsson aðra
Bauð þá forseti séra Rgnari E.
Kvaran að taka til máls. Eftir að
hann hafði ávarpað samkomuna
nokkrum orðum, gat hann þess að
hann hefði samið ritgjörð fyrir
tímaritið “Morgunn” í Rvík um
Samibandssöfnuð þennan til þess
að gefa íslendingum heima færi á
að kynnast afstöðu þessa félags-
skapar. Beiddist hann leyfis að
mega lesa fundarmönnum ritgerð
þessa, því að af henni mætti sjá
hvernig hann líti á mál þeirra og
-..Dodd’s nýmapillur eru bezta
nýmarme'ÖaliS. Lœkna og gigt,
bakvsrk; hjartabilun, þvagteppu,
og önnur veikúidi, sem stafa frá
nýrunfn. — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c askjan eða 6 öskjur fyr-
ir $2.50, og fást hjá öllum lyfsöL
um eða frá Tbe Dodd’s Medicinc
Co. Ltd., Torontot Ont...........
gæfist þeim þar með tækifæri til
þess að leiðrétta skilning sinn ef
hann skyldi reynast rangur í ein-1*
hverju atriði. Ritgerð þessi er
birt á öðrum stað í blaðinU. Var
að máli hans gjörður hinn bezti
rómur- Ljek þá próf. Sveinbjöm
Sveinbjörnsson hið þjóðkunna lag
sitt: “Guð vors lands”, en fund
armenn risu úr sæti og sungu.
Að ræðuhöldunum og söngv-
unum afstöðnum var gengíð ofan
í samkomusal kirkjunnar, og þar
bornar fram rausnarlegar veiting-
ar af kvenfélagi safnaðarins. Nær
þrjú hundruð manns tóku þátt í
samsætinu.
Óþekt velki,
Á mecSal Iníána í Fort Smitb
og fleiri stöSum ntorSur af Ed-
monton kvaS genga all skæS
veiki, sem engir Íþekkja. Um 50
Indíánar íhafai dáiS iúr henni á
8tu'ttum tímia. Haída sumir aS
þaS sé hænsnalbóla, en aSrir neita
þvlí. Veturinn hefir veriS mildur
þar noiSur frá.
Einirana?
Menn, ekkjur, stúlkur, ernsetu-
menn.
giftist og verið hamingjusöm.
Vér veitum ykkur tækifæri til
aS hafa bréfaviðskifti við hundr-
uð fág-aðra lafða og herramanna
bæði í Canada og Bandaríkjun-
um, sem vilja giftast oða skiftast
! á bréfum til skemtunar. —
Myndaspjöld frí. Margir sem eiga
eignir upp á $5,000 til $10,000. og
]>ar yfir. Alt algeriega piívat.
Vér kunngjörum ekki nöfn yðar
eða utanáskrift. Eins árs á-
skriftargjald með fullum réttind
um $100 eða 50c fyrir fjóra mán-
uði. Sendið ekki peninga, heldur
póstávísan eða 2c Bandaríkja frf
merki. Ef bankaávísan er send
bætið við 20c fyrir viðskiftagjald.
Eftir þennan mánuð verður á-
skriftargjaldið .$2.00. yfir. árið.
Sendið því fljótt póstgjald með
nafni ykkar og utanáskrift fyrir
frekari upplýsingum.
Mrs. FLORENCE BELLAIRE
200 Montague Street, Brooklyn,
N. Y.
v______________________
■BOMBiHMii in .
GAS I MAGANUM
ER HÆTTULEGT
Vér mælum með aS brúka dag-
lega Magnesia tfl að koma í veg
fyrir sjúkdóma er orsakast af
sýrðri faeðu í maganum og veldur
meikingadeysi.
Gas og vindur í maganum samfara
uppþembu eftlr máltí'Sir er hér um bll
víst mark á of mikilli klérsýru í mag-
anum, er veldur því sem kallati er
"sýru-meltingarsýki”.
Súr í maganum er hættulegur, þvf
of miktll súr ofsækir hina fíngert5ia
magahú® og veidur sjúkdóm er nefnd-
ur er "gastritis”, er ersakar hættuleg
magasár. Fæíian geriat og súrnar og
] ir.yndar hið óþægilega gas, er þemblr
I upp magann og hindrar hinn rétta
vorknatS meltingarfæranna, og getur
{ valditi hjartasjúkdómum.
ÞatS er stórkostleg heimska að van-
rækja jafn hættulegt ásigkomulag, etsa
atS reyna að lækna þatS metS vanaleg-
um meltingarlyfjum er eigi koma í veg
fyrir magasýruna. FálS heldur frá
lyfsala ytiar nokkvar únsur af liisur-
ated Magnesia, og takitS inn af þv t«-
skeitS í kvartglasi af vatni eftir mál-
tíð. Þetta rekur burt úr likamanum
gasitS og vindinn, gerir magann hraust
ann, kemur í veg fyrir of mlkla sýru,
en veldur engum verkjum né sársauka.
Bisurated Magnesia ( í dufti etSa-
tablet-mynd — ekki uppleyst í vökva
etia mjólk) er algerlega skaSlaust, 6-
dýrt atS taka og hið hezta Magnesla
fyrir magann. Þati er brdkats af þús-
undum af fólki, er hrætSist ekki framar
atS bort5a mat slnn vegna meltingar-
leysisins.
Ruthenian BookaeHers and Publish-
lng Company, 85P Maln St., Wpg.