Heimskringla - 15.03.1922, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 15. MAURZ, 1922
HEIMSKRINGLA.
D. BLAÐSIÐA.
Sambandssöfnuðurinn
í Winnipeg.
Breytingar þær, sem orðið hafa á skoðun-
um manna víðsvegar um heim á trúarlegum
efnum síðustu áratugina, hafa valdið mjög
margvíslegum áhrifum. Breytingar þessar eru
náskyldar þeirri byltingu, sem varð á hugar-
stefnu meginþorra hins mentaða heims, er
niðurstöður náttúruvísindanna fóru að berast
almenningi, og sú heimspeki, sem af þeim
varð leidd. Svo má segja, að þeirra hafi
orðið vart meira og minna innan íiestra
kirkjudeilda kristninnar, mest meðal mót-
maelenda, en nokkuð í hinni rómversk-ka-
þólsku kirkjudeild. Það er ekki ætlun mín
hér að gera neina verulega grein fyrir, í
hverju þessar breytingar eru fólgnar; það
eitt nægir að benda á, að í hinni svo nefndu
nýju guðfræði eru drættirnir ljósastir og af-
brigðin skörpust, frá hinu eldra sjónarmiði.
En annars ber þess vel að gæta, að þótt sér-
stök stefna, eða sérstakar stefnur innan mót-
mælenda, hafi hlotið hjá almenningi það
nafn, þá er sá hugsanaferill, sem öllu öðru
fremur hefir mótað þessa nýju guðfræði, ails
ekki neitt einkenni hennar. Sá hugsanafer-
ill á sér mjög mikil ítök í hugum fjölda ann-
ara, sem afneita mundu nafninu með hinum
mesta ákafa. Allir eru þessir menn sammála
um, að trúarhugmyndir mannkynsins séu sí-
feldum breytingum háðar, og þeir neita að
viðurkenna nokkurt vald, sem hefta vilji
framþróun þeirra, hverju nafni sem það vald
vilji nefna sig. Þeir virða rannsóknar-þörf
og rannsóknar-þrá mannanna og viðurkenna,
hversu takmörkuð þekking vor sé á þeim
efnum, sem mestu máli skifta, jafnframt því
sem þeir trúa, að sú þekking sé þó stöðugt
eitthvað að færast út-
Alt hefir þetta orðið til þess, að lokist
hafa upp augu fjölda hinna merkustu manna
fyrir því, hversu illa því væri farið, er vegg-
irnir, sem reistir væru milli trúhneigðra
manna, sem allir vildu í raun og veru vinna
að sama markmiði, væru svo háir o& brattir,
að því nær væri gert. ókleift um alla sam-
vinnu þeirra á meðal, ef svo stæði ekki á,
að þeir væru í sömu kirkjudeild. Flestir hafa
verið sammála um, að það yrði næsta lítill
ávinningur að keyra alla menn inn í sama
félagsskapinn.og þessvegna talið það nokkur
um vafa bundið, hvort ein kirkjudeildin ætti
í raun og veru nokkuð meiri rétt á sér en
önnur, talið hitt afarasælla, að hver sæti þar
sem uppeldi, gáfnafar og skapsmunir skip-
uðu honum sæti. En um hitt hafa þeir emn-
ig verið jafn sammála, að vinna bæri að því
öllum árum, að hver fengi litið hinn sæmi-
lega réttu auga, og að það skifti hinu mesta
máli, að enginn einangraðist eða útilokaði
sig frá þeim stuðningi og þeirri frjógun and-
ans, sem samvinnan við aðra og samúðin
með þeim gæti af sér leitt.
Einn ljósasti vottur þess, hvepu mörgum
er endur fyrir löngu orðin ljós hm mikla
þörf á slíkri samvinnu, eru undirtektirnar og
vinsældirnar, sem alþjóðafundir þeir hafa
fengið, sem stofnað hefir verið til í þessu
skyni. Fyrsti alþjóðafundurinn var haldinn
í London að tilhlutun Unitara í Ameríku og
á Englandi. Tilgangurinn var sá “að koma á
nánara sambandi með hinum gömlu frjáls-
lyndu kirkjum, frjálslyndu hlutunum í öllum
kirkjum, dreifðu frjálslyndu söfnuðunum og
einangruðum mönnum. er vinna að frelsi og
framförum í trúarefnum í mörgum löndum,
með því augnamiði að þeir fái færi á að
skiftast á hugsunum, hjálpa hverjir 'ððrum
og efla þær hugsjónir, sem fyrir þeim vaka
sameiginlega.” Þessi fyrsti fundur var hald-
inn í London árið 1901 og síðan hefir hver
fundurinn rekið annan. I Amsterdamf 1903)
Genua (1905), Boston (1907), Berlin
(1910) og Paris (1913). Á Bostonfundin-
um (1907) voru 2400 fulltrúar. Á Berlin-
arfundinum (1910) álíka margir og 120
ræðumenn á ýmsum samkomum. Á síðasta
fundinum í Paris, árið 1913, taldist svo til,
að þar væru fulltrúar frá þrjátíu og einni
þjóð og, að meira en eitthundrað mismun-
andi trúarfélög væru við fundinn riðin- “Ekki
er unt að meta, hversu mjög sá fundur hefir
örvað og sameinað þá menn, er aðhyllast
frjálslynd, skynsamleg og andleg trúarbrögð
um allan heim, hve mjög hann hefir aukið
virðingu fyrir og álit á frjálslyndum átrúnaði
hjá mönnum alment, og hve mjög hann hefir
eflt skilninginn á kjarnanum í öllum trúar-
brögðum og bræðralag mannanna,” segir
einn af rithöfundum þeim, sem um þetta efni
hafa skrifað. Enda er það skemst af að
segja, að fjöldinn allur af merkustu guð-
fræðingum Norðurálfunnar og Vesturheims
hafa veitt fórstöðu og mótað fundi þessa.
Á fundinum í Berlín bar t. d. langmest á
Adolf von Harnack, professor í kirkju og
trúarlærdómasögu við háskólann í Berlin.
Um hann segir dr. Jón Helgason biskup, að
hann sé “frægastur talinn allra guðfræðmga
• mótmælendtrúar, sem nú eru uppi. Hjá hon-
um haldast í hendur afbragðslegur lærdóm-
ur og óviðjafnanleg rýnigáfa, og hin mörgu
og miklu ritverk hans bera jafn skýran vott
undraverðs starfsþreks og óvenjulengrar rit-
snildar.” *)
Þessi hreyfing, sem alþjóðafundir þessir
eru runnin af, hefir þegar borið ekki alllitla
sýnilega ávexti. I ýmsum löndum er nú starf-
að að því af hinu mesta kappi að gera trú-
hneigða menn, þótt eigi séu í sama kirkjufé-
lagi, sem samhentasta um áhugamál sín. Og
annar árangur, og hann eigi ómerkari, er sá,
að menn hafa tekið að athuga og bera sam-
an af nýju skoðanir sínar við skoðanir ann-
ara, sem þeim hefir verið kent. að ekkert
ættu sameiginlegt. Þetta hafa meðai ann-
ars tveir flokkar landa vorra í Vesturheimi
gert. Það er annarsvegar safnaðarmenn síra
Friðriks heitins Bergmanns og hinsvegar
Unitarar- Niðurstaðan á þeim samanburði
varð sú, eins og vænta mátti, þótt einhverja
furði vafalaust á, að mismunurinn á skoðun-
unum væri yfirleitt alls ekki til- Eg segi, að
éinhverja furði vafalaust á þessu, fyrir þá
sök, að nafnið Unitar hefir jafnan verið not-
að sem grýla af þeim mönnum og á þá menn,
sem um þá stefnu hafa verið ófróðastir.
Sjálfur hefi eg heyrt hin fáránlegustu um-
mæli um Unitara af mönnum, sem nokkur
ástæða var til þess að vænta, að betur vissu.
T. d- heyrði eg nýlega einn fyrverandi prest
vera að fræða menn á því, að skoðanir Uni-
tara á Kristi væru þær, að hann hafi verið
svona í manngildi við góðan prest. Og einn
prófessorinn við háskólann okkar, þó vita-
skuld ekki guðfræðisprófessor, hafði verið
að fræða IærisVeina sína á því fyrir nokkuru,
að hann væri þeirra skoðunar — eftir ná-
kvæma rannsókn, skildist mér — að Uni--
tarar væru ekki kristnir menn. Já, ekki verð-
ur annað sagt, en að margt skipist undar-
lega í þessari veröld. Mesti andans maður
fslendinga á síðari tímum, andríkasta sálma-
skáldið og einn mesti aðdáari Krists, er tal-
inn setja hann á bekk með góðum prestum,
og guðfræðisdeild háskóla fslands veitir þess-
um sama manni, Matthíasi Jochumssyni,
doktorsnafnbót í guðfræði, þó að hann sé
ekki kristinn. Matthías heitinn hefir þá hlot-
ið að hafa merkilega háar hugmyndir um
góða presta og guðfræðisprófessorarnir ein-
kennilegar hugmyndir um kristni — því
væntanlega er heiðnum mönnum þó ekki
veitt þessi nafnbót — því að Matthías Joc-
humsson var Unitari. Honum fór, eins og
öllum öðrum hleypidómalausum mönnum, er
lesa rit hinna merkustu Unitara, að honum
fanst mjög til um þá. Og hann taldi þá
kennifeður sína í guðfræðilegum efnum.
Eg gat þess, að landar vorir vestra hefðu
komist að þeirri niðurstöðu, að munurinn á
kenningum þeim, sem síra Friðrik Berg-
mann hefði flutt og safnaðarmenn hans að-
hylst, og kenningum Unitara væri enginn.
Ekki stafar þetta þó af því, sem íhaldsmenn
í trúarefnum hér heima hafa haldið fram, að 1
nýja guðfræðin væri ekkert annað en kenn-
ing Unitara. Slíkar fullyrðingar stafa af engu
öðru en þekkingarleysi á hvorttveggja.
Þær stafa fyrst og fremst af þékking-
arleysi á því, að Unitarakenningin
að fornu og nýju er sitthvað — alveg
eins og svokölluð Lútherstrú hefi r verið
sitt hvað á ýmsum tímum — og þær stafa
enn fremur af þekkingarleysi á nýju guð-
fræðinni- “Gamla guðfræðin” og Unitarar
hafa löngum átt sammerkt í þeirri “tvíveld-
iskenningu” (dualismus), sem hefir haft til-
hneigingu til þess að setja ákveðin landa-
merki mrlli mannsins og guðdómsins. Af
þeirri tilhneigingu hafa allar deilurnar inn-
an kristninnar um persónu Krists stafað, en
þær hafa nú staðið frá fyrsta tímabilinu eftir
daga postulanna og til þessa dags, Unitarar
eru, eins og kunnugt er, að nokkru leyti arf-
þegar Deistanna á átjándu öld, sem lögðu
svo mikla áherzlu á “guð yfir öllu” (trans-
*) Þegar athuguS er saga þessara al- ,
þjóSafunda. íber enn aS hinum sama brunni,
sem svo margt annaS bendir á, hversu hættu
legt ogs er, íslendingum, aS einskorSa oss
viS NorSurlönd um ný menningaráhrif. Um
þaiu lönd er þaS aS segja, aS þeirra er svo
aS segja aS engu getiS í þessu stórmerka
menningarmáli. AS eins ein dönsk kona
hefir komist í stjórnarnefnd þessa fundafyrir
tæikis, en sú kona er ritari lítils frjálslynds
fríkyrkjufélagsskapar, sem stendur á önd-
verSum meiS viS bjóSkirkjuna í Danmlörku.
Og fróSur maSur befir sagt mér, aS þegar
fundurinn í Berlin hafk veriS haldinn. sem
auik annara svo aS segja allir frj’álslyndir
guSfræSingar Þýzkalands tóku þátt í og all-
ur heimurinn veitti hina mestu athygli, þá
hafi eitt af hélztu blöSum Danmerkur aS
vísu ekki komist hjá því aS fá eitthvert veS-
ur af •fundioum, en ekki hafi þó vitneskjan
veriS nákvæmari en þaS, aS þaS hafi frætt
lesendur sknia á því aS þetta væri flokks-
fundur Unitara, sem veriS væri aS halda.
ÞaS þarf naumast aS tak þS fram. aS Uni-
tarar \coru aS sjállfsögSu ekki nema lítiS brot
alh~a þeirra frjálslyndu manna, sem þar voru
saman komnir.
cendence), að þeir útilokuðu hugmyndina
um guð, sem tæki þátt í og hefði afskifti af
öllu (immanence). Þeir hugsuðu sér guð
vera einhversstaðar ofan við og utan við al-
heiminn, en að hann lofaði vélinni, sem hann
hefði eitt sinn sett á stað, annars að ganga
sem mest af sjálfri sér og afskiftalaust- En
nú hefir Unitarisminn, eins og gefur að skiíja,
tekið margvíslegum stakkaskiftum frá því er |
hann varð til. Helztu nútíma Unitarar flytja |
nú með hinum mesta áhuga og margir hverj- J
ir með hinum mestu gáfum undirstöðu-kenn-
ing nýju guðfræðinnar, sem er, að guð og
maður sé í insta eðli sínu eitt og hið sama.
Jafnskjótt og menn hafa komið auga á það,
fellur að sjálfsögðu niður deilan um guð-
dóm Krists, — en það atriðið hefir jafnan
verið aðalágreiningsefnið, — og þá veldur
það engum örðugleikum að kannast við það,
að guðsdómseðlið hafi verið í ríkari mæli
hjá Kristi en nokkurum öðrum, sem menn
vita til að lifað hafi á jörðinni. Þess vegna
er það hin mesta fjarstæða að halda því fram
að nýja guðfræðin sé fráfall frá eldri guð-
fræði til Unitara. Nýja guðfræðin er ekki
eign neinnar sérstakrar kirkjudeiidar, heldur
allra. Það er því augljóst, að sama fram-
sróunin hefir gerst á trúarhugmyndunum hjá
íelztu Unitörum og fróðustu og gáfuðustu
mönnum ýmsra annara Jcirkjudeilda. Þegar
því flokkur mótmælenda bg Unitara kemst
við samanburð á trúarskoðunum sínum að
þeirri niðurstöðu að þeir eigi fyllilega sam-
leið í trúarefnum, þá er það alls ekki fyrir
það, að annar hafi þar undan hinum látið
eða annara látið teymast af hinum, heldur
hafa skoðanir þeirra, sem áður voru að ýmsu
sundurleitar, blátt áfram runnið saman í æðri
einingu. Svo hefir farið um þessa tvo flokka
landa vorra > Vesturheimi, sem eg nefndi, og
þeir hafa nú samþykt að renna saman í einn
söfnuð með sameiginlega kirkju og sameig-
inlegan kennimann. Nokkura ástæðu héfi eg
til að halda, að þ eir hefðu ekki látið þetta
samband undir höfði Ieggjast, þó að þeir
hefðu samfærst um að þeir væru hvorir öðr-
um fjarlægari í skoðunum en raun varð á.
Sú skoðun mín kemur mér til þess að líta á
þennan “Sambandssöfnuð” sem einn hinn
merkasta viðburð í kirkjusögu fslendinga á
síðari tímum. Eg skal síðar í grein þessari
skýra frá, á hverju eg reisi hana-
Eftir því sem eg hefi haft spurmr af, þá
þetta sameiningarmál sér nokkuð langan
aldur. En svo langt er það þó komið árið
1916, að síra Friðrik Bergmann semur þá
uppkast að lögum fyrir væntanlegan kirkju-
félagsskap meðal frjálslyndra kirkjumanna
íslenzkra þar vestra, Unitara og annara. Því
miður entist honum ekki aldur til að koma
málinu í fulla framkvæmd, þótt segja megi,
að með uppkasti þessu hafi því af stokkun-
um verið hrundið- Og nú er svo komið, að
söfnuður síra Friðriks og Unitarasöfnuður-
inn í Winnipeg hafa sameinast í einn söfnuð,
og mikil líkindi eru til þess að aðrir frjáls-
Iyndir söfnuðir Islendinga vestan hafs taki
höndum Saman við hann um kirkjufélags-
stofnun.
Eins og öllum er kunnugt, hefir nú um
langt skeið verið talsvert öflugt kirkjufélag
til meðal fslendinga í Vesturheimi. Fyrir við-
burðanna rás hefir svo farið, að ýmsum
frjálslyndum mönnum hefir ekki litist svo á,
sem þeir ættu heima í þeim félagsskap. Þeim
hefir fundist jarðvegurinn nokkuð hróstrug-
ug og ekki líklegur til mikils andlegs gróð-
urs. Þeir hafa fundið, að það var alveg ó-
samrýmanlegt fslendingseðlinu í þeim að
láta keyra sig í þá hnappheldu, sem sá fé-
lagsskapur hefir orðið. Því hvað sem um fs-
lendinga verður annars sagt, þá er umburð-
arlyndisleysið yfirleitt ekki einkennið á þeim.
Ofstækið er sá af mannlegum breyskleikum,
sem þeim er sízt hætt við. Víðsýnið er sú
dygðin, sem þeir vafalaust eiga hægast með
að þroska, eins og skynsemin er sú eigindin
sem þeir hafa náð mestum þroska í. Þess
vegna er það næsta eðlilegt, að þessi nýi
frjálslyndi félagsskapur þar vestra minni mik
ið síður á kirkjufélagið gamla en á íslend-
inga hér heima. Að svo sé, sést einkar greini-
lega á safnaðarlögum þessa Sambandssafn-
aðar í Winnipeg.
Sambandssöfnuðurinn hefir enga trúar-
játningu í gamalli merkingu þessa orðs- Til
þess Iiggja vafalaust margar orsakir. En eng-
inn vafi er á því, að þessi nýi söfnuður hefir í
þessu efni lært af íslendingum beggja meg-
m hafsins- Af trúarjátningadýrkun Vestur-
íslendinga hefir hann lært, að til þess eru
vítin að varast þau. Þá lexíu hafa þeir líka
kent mönnum mjög eftirminnanlega. Um
trúarjátningarnar hefir nú staðið sífeld orra- sama
hríð þar í landi í fjöldamörg ár, því jafn-
skjótt og þroskaðri og hreinskilnari hluti ein-
hvers trúarfélags kannaðist við það, að 'hann
tryði ekki öllu eða væri ekki sammála öllu í
öllum þeim trúarjátningum sem sagt var að
félag hans væri bundið vio — og vitaskuld
enginn hefir verið sammála í eitt eða fleiri
hundruð ár — iþá hófst tafarlaust úr því minm.
Röng sparsemi.
ÞaS er röng sparsemi aLÖ geyma áríÖandi skjöl, svo
sem verSbréf (bonds) ábyrgíSar bréf og önnur árííS-
andi skjöl í heimahúsum og eiga á hættu að þeim
velíSi stolitS etSa þau brenni eða þá tapist.
Fyrir fárra dollara borgun á ári getur þú leigt öryggis
hólf í því útibúi banka þessa sem næst þér er.
IMPERiAL BANK
OF CANADA
Riverton bankadeild H. M. Sampson umbotSsmatSur
ÚTIBÚ AÐ GIMLI
(318)
rekistefna, burtrekstur oe mála- að heiðursdoktor-
rekstur. Andlegur ágóði þeirrar Það er því mála sannast, að
rekistefnu hefir orðið talsvert ef þessi nýi söfnuður vestra hefir
mikið minni en ekki neitt. talið nokkura ástæðu til þess að
Afstaða kirkjunnar á Islaudi til hafa einhverja hliðsjón af íslenzku
trúarjátninganna hefir verið með kirkjunni um það, hvernig hann
alt öðrum hætti. Tveir af lærðustu snerist við þessu máli, þá gat hann
og áhrifamestu fræðimönnum ís- naumast verið í vafa um hennar
lenzku kirkjunnar hafa ritað um skoðun. Og reyndin hefir einnig
þær töluvert ítarlega, þeir Harald- orðið sú,að söfnuðinum hefir nægt
ur prófessor Níelsson (í Skírni nákvæmle£a það sama sem dr-
1908) og Dr. Jón Hclgason biskup Jón Helgason telur kirkjunni eiga
(í Skírni 1909). Frá 'þeim rit- að nægja og kirkjan er altaf að
gerðum er svo gengið, að mér er staðfesta að sér nægi. Játning
lítt skiljanlegt að mönnum verði, safnaðarins er svo orðuð í Iögum
eftir lestur þeirra, trúarjátningarn- hans:
ar neitt sérstakt keppiefli. Hinn j “Söfnuður þessi játast undir trú
síðarnefndi komst að þeirri niður- Jesú Krists, eins og hún er mönn-
stöðu um þau játningarrit sem um opinberuð með kenningu hans,
haldið hefir verið fram, að ís- dæmi og líferni, og staðhæfir, að
lenzka kirkjan væri bundln við ¥) hin sanna trú sé innifalin í elsk-
að þau séu — að minsta kosti unni til guðs og kærleika til mann-
sum þeirra — alls ekki upphaf- anna-
lega samin í þeim tilgangi að vera i Undir þessa játningu eina ætl-
bindandi regla og mælisnúra fyrir ar söfnuðurinn kennimanni sínum
kirkjuna á öllum tímum- ‘ J að rita. Og hann hefir Iagt tölu-
að þ ví fari svo fjarri, að þau j vert kapp á, að sá maður yrði
hafi verið viðurkend sem slík rit, héðan að heiman. I því hafa þeir
af kirkju vorri, að kirkjan hafi þar vestra enn sýnt, hversu ná-
engan þátt átt í lögfestingu þeirra skylda þeir sjálfir telja sig hinni
í hinum lúthersku Iöndum, held- íslenzku kirkju. Þeir vita, sem rétt
ur hafi veraldlega valdið verið er, að ungum íslenzkum guðfræð-
þar eitt að verki, og um fsland sé ingum er það með öllu óljúft að
það sérstaklega að segja, að játn- láta reyra sig á nokkurn játninga
ingahaftinu hafi verið laumað hér bás í loftlitlu kenningafljósi. Þeir
inn án nokkurrar sjáanlegrar laga- j vita, að þeir eru sammála ungum
heimildar! j íslenzkum guðfræðingu\i um það,
að þau séu ekki í samhljóðan j að ef trúarbrögðin eigi eftir að
við ritninguna, heldur séu þau ó-
fullkomin mannasmfði, sem í flestu
tilliti beri á sér fingraför sinna
tima, og
að heitbinding
prestanna við
játningaritin ríði algerlega í bága
við höfuðfrumreglu hinnar evang-
elisku lúthersku kirkju, sem sé sú,
að heilög ritning ein skyldi vejia
regla og mælisnúa trúar og kenn-
ingar kirkjunnar
verða enn af nýju afl til menning-
ar og andlegs þroska, sem svo ó-
tal margt bendir á að sé í aðsigi
hjá fjölmörgum þjóðum, þá verð-
ur það aðeins í þeim heimkynn-
um, þar sem hátt er til lofts og
vítt til veggja.
Sambandssöfnuðurinn hefir sýnt
mér þá sæmd að fara þess á leit,
að eg veitti honum forstöðu. Þau
ummæli fylgdu þeirri málaleitun,
f þessari ágætu ritgerð telur dr- j að ef eg yrði við henni, þá væri
Jón Helgason kirkjuna geta geng- j mér afdráttarlaust heimilt að flytja
ið það lengst, að krefjast þess lof- J alt það, sem eg bæri fyrir brjósti,
orðs eða heits af þjónum sínum, hvort sem eg teldi það vera í sam
að þeir skuli prédika evangelíum j ræmi við skoðanir safnaðarins eða
Jesú Krists. Hann minnir á það, j ekki. Þetta hefi eg vitaj^ íslenzkt
sem Jesús hafi sjálfur sagt á há- frjálslyndi ganga lengst- Safnað-
tíðlegri stundu: “Farið ._. .. og ; armenn telja sjálfa sig hafa þann
kennið þeim að halda það sem eg. þroska að geta þolað meðal sín
hefi boðið yður.” Það telur hann ; alla þá, sem þrái lausn vandamála
kirkjunni ætti að geta nægt. Og 1 sinna í trúarefnum, og að þeir
sannleikurinn er líka sá að ís- j telja sig hafa þann þroska að geta
íenzka kirkjan telur sér þetta , sjálfir dæmt um, hverju þeim beri
nægja. Vitanlega er skoðanamun- , aÖ hafna og hverju að halda af
ur innan kirkjunnar í trúarefnum, þv{ sem þeim er boðað. Söfnuð-
en alt bendir þó á, að afstaðan til urinn trúir á frelsið. Eg hefi lof-
trúarjátninganna sé að verða al- ag að verða við tilmælum hans.
gert aukaatriði fyrir mönnum. Því Ragnar E. Kvaran*
þótt einstöku maður sé ofurlítið _________________________________
að malda í móinn, þá er ekkert
ljósara en hvernig meginþorri
kirkjunnar lítur á. Það sézt ber-
legast á því, að dr. Jón Helgason
er nú sjálfur yfirmaður og bisk-
up kirkjunnar; það sést ennfrem
ur á því, að kirkjan tekur árlega í
sína þjónustu nýja menn, sem í
þessu efni eru honum alveg sam-
mála, því að kenslustofnun ríkis-
ins fyrir guðfræðinga er það sjálf,
og það sést ennfremur á því, að
það skuli ekki eingöngu vekja al-
menna ánægju meginþorra lands-
manna, heldur fyrst og fremst allra
andlegrar stéttar manna, er þessi
guðfræðinga-kenslustofnun
gerir frægasta Unitara fslendinga
*) Þ. e. postullega trúarjátning-
in .“játningin frá Nikeu og Kon-
stantinopel”, Atanasíusarjátning-
in, hin óbreytta Ágsborgar-játning
frá 1530 og fræði Lúthers hin
$5.00 Electro-Condite FRfTT
Hreinsar, Tærir, Glærir og Eld*r
allan vökva, ilmar upp
beimatilbúna drykki, o.
s. frv. Gerir drykkjar-
vatn drekkandi á fám
ífnútum. Uppleysir ger
Ekkert brúkafi n-eina
rafmagn og Condite
okkar-
Jafnast viö 20 ár í
tunnum. — Vér gerum
að sórfræði Rapid Liquid Filters
og Flavoring Extracits. Reynið
kassa af okkar Canadian Flavor-
ing Extraet. Kassinn kostar $5.
með tólf mismunandi tegundum.
Hver flaska nægir til að gora
bragð að )>ínu uppábaldi. Varan
sond frá Canada eða Bandaríkj-
unum. Peningar endursendir ef
óánægöir. Biðjið um fría prufu
af okkar Fusel-Oil Removing
Compound.
Skrifið eftir F R í TJ C O N-
DITE TILBODIog ve>rð-
litSta með myndum af öllu i
þessu tagi frá A til Z “Proof
Tester” $1.00.
Bregðið við. Frítt tilboð varir
aöeins þennan mánuö.
BOTTLERS’ SUPPLY CO-
(Dept. C)
400 E. 148th St„ New York.