Heimskringla - 05.04.1922, Síða 4

Heimskringla - 05.04.1922, Síða 4
4. BLAÐSIÐA. HEIMSK.RINGLA. .W'NNÍPEG, 5. AFIRÍL, 1922 HEíMSKRINQLA (Stofnuð 188«) Kemur Ot t hTerJum ulitlkiáCKL Clgcfcuðnr o* el«reHdnri THE VIKÍNG PRESS, LTD. 863 of 855 SARGENT AVK, WISIXIPBG, Talelmlt N -6537 Ver® hlaðstttii er 63.M ArwaBKnrlttH borit- t«t fyrlr fram. Allar borsaair aeadlat rltbttanal blabalaa. Ráðsmaður: BJÖRN PÉTURSSON Ritstj órar : BJÖRN PÉTURSSON STEFÁN EINARSSON Vtatt&akrtft tll blabaiaat THB VIKlNVá PH899, Ui, ■« 8171, Wlttilrrf, Haa. VtattAakrlft tU rttatjðrana EDITOH HKIMSKJUNGLA. *ai 8171 Wtaalfcf, BCaa. Tha •'Helmskrtnfla" ta arlntad tii pub- Uabe by the Vlklne Praaa, Llmlted, at 858 og 866 Sargent Ave, Wlnnlpeg, Xant- taba. Telepbane: N-6637. WINNIPEG, MANITOBA. 5. APRÍL, 1922 Grand Trunk brautin enn. Blöðin á Englandi, einkum fjármálablöð- in, halda enn áfram að bera sakir á Canada- stjórnina fyrir framkomu hennar í sambandi við G. T- járnbrautamálið. Ástæðan er blöð- in rekur til þessa er sú, að nefnd- er skipuð var til þess að verðleggja vissar hlutaeignir félagsins hér þegar stjórnin í Canada tók brautirnar í sínar hendur, feldi þann úrskurð, að þessir hlutir félagsins væru sem næst verð- lausir. Blaðið Chrtlook í Lundúnum fer ný- lega hörðum orðum um scimibandsstjórniná fyrir þetta. Segir það að djarfir og slóttugir fjárplógsmenn í Ottawa hafi narrað stjórn- arnefnd félagsins út í það, að láta óháða nefnd rannsaka og verðleggja hluti félagsins. Og blaðið heldur áfram og segir að gerðir Canadastjórnarinnar séu að eyðileggja nafn landsins út á við með framkomu sinni í þessu máli og þegar borgararnir vakni til meðvit- undar um það, muni þeir sjá, hve hluthafar G. T. brautarinnar hafi verið brögðum beittir og muni krefjast, að rétti þeirra sé ekki traðkað. Verði hluthöfunum ekki bætt þetta, þurfi Canada ekki að líta til Englands framar eftir lánum o- s. frv., o. s. frv. Hvað hefir blaðið fyrir sér í þessu? Sann- leikurinn í málinu er. þessi: Grand Trunk er ein af elztu járnbrautum þessa lands. Brnut- in var bygð af fé auðmanna á Englandi og var rekin og starfrækt af þeim. Stjórnendur hennar áttu heima á Englandi. Félagið hefir ekki stórþénað á rekstrinum og það er alment álitið stafa af því, að stjórnendur þess áttu ávalt heima um 2000 mílur í burtu frá fyrir- tækinu og höfðu því ekki þekkingu eða lag á að starfrækja það eins og vera þurfti. Aðrar brautir sem hér voru bygðar á sama tíma græddu fé. Fyrir fám árum varð félag- ið svo illa statt efnalega, að það leitaði á iid?ir stjórnarinnar; hún veitti því væna fúlgu, Nókkru seinn^ leitaði félagið aftur styrks og ícvaðst eÍía verða jjaldþrota. Því var enn veitt hjálp- Og loks varð stjórn þessa jands að bera félagið áherðum sér alger- lega og og gerði þá sammng við stjórnendur þess um að takast stjálf rekstur brautarinnar á hendur. Viss verðbréf er félagið átti, var nefnd fengin til að verðleggja. Einn nefndar- manna, W. H, Taft, frv. forseti Bandaríkj- ánna, var ekki samþykkur úrskurði meiri hlutans um að hlutir þessir væru verðlausir, þó næsta verðlitlir játaði hann að þeir væru. G. T- félagið gat ekki starfrækt brautirnar. Það getur því í raun réttri talist einber gæzka áf stjórninni gagnvart hluthöfunum að taka brautirnar í sínar hendui og firra þá bæði kostnaði og hugarangri af að starfrækja þær. Og skyldu þessir menn er blað ð heldur upp’ málstað fyrir vilja taka brautirnar aftur í sín- ar hendur^ Hvernig fór með rekstur brautarinnar er auðvitað sárt fyrir hluthalana. En hví að kenna landstjórninni um það? Hversvegna lætur 'blaðið ekk: sökina koma mður á þeim sem hún með réttu á að korna mður á, stjórn- arnefnd járnbrautaunnar? Hví að vera með æsingar gegn Canada út af því, eða hótann ? Hneyksli. Hneyksli finst ritstjóra “Lögbergs” það, að Heimskringla skyldi í greininni: “Ástand- ið í Manitoba” komast svo að orði að fylkis- stjórnin hefði eiginlega ekki í stórum stíl brotið stjórnarboðorðin. Það var auðvitað hógvært að orði komist um stjórnina. Það skal játað. En þess var samt ekki vænst, að aðfinslur út af því 'kæmu úr þeirri átt sem raun er nú á orðin. Að ritstjóri Lögbergs vildi ekki að hófs væri gætt í ákærum á stjórn ina, gat hvorki Heimskrmglu né öðrum dott- ið í hug- En svona er það; Það kemur stund- um fleira á daginn en við er búist. Ekki vill Heimskringla samt halda því fram, að rit- stjóri Lögbergs hafi viljandi ætlað að kunn- gera þetta. En hún er hrædd um að þokan sem hann talar um, að hún hafi verið í, þeg- ar hún reit gremina, hafi verið orðin að æði þykkum sorta á fjallstindi hans eigin sálar, og hafi glapið honum sýn. I hverju ákær- urnar á stjórnina voru fólgnar munu þeir geta ráðið í sem lesið hafa Heimskringlu undan- farið. Það kemur að Iitlu haldi þó Lögberg, sem ekki þorði að andæfa þeim jafnóðum og þær birtust látist nú ætla að slá einu stóru stryki yfir þær með því að þykjast búa uppi á hátindi víðsýnis og þykjast öllum fjarsýnni. Það bara sannar hve málshátturinn gamli: “Enginn vill heita hálfviti speki sinnar”, á undur vel við um ritstjóra Lögbergs. Gleði og Gamanleikir. (Erindl flutt fi kveldnkemtun Hjarna BjörnMMonar. 10. deM m. 1.) “Vér íslands börn, vér erum vart of kát, og eigum meira en nóg af hörmum sárum þótt lífdögg blóma, sé ei sögö af grát né sævarbrimiÖt gjört aö beizkum tárum. Vér eigum vart of mikla sumar-sól, þótt söngvar vorir stundum glaöir boöl aÖ dagur breiöi sig um hlíö og hól og hér sé einníg ljós og morgunroði.” — H. H. Þessi æ sönnu erindi Hannesar Hafsteins koma oss oft í huga. Sannindi þeirra koma í ljós með svo mörgu móti. Skaplyndi voru Islendinga virðist vera þannig farið, eða að minsta kositi vera þannig vanið nú orðið, að lífsgleðin auðkenni það eigi allra einkenna mest. Að þeim kolum hefir oft verið blásið, er reyk færa og rökkur yfir hugann, fremur en ljós og yl. Hefir þetta verkað á lundar- farið og umskapað það. Það hefir gjört það meyrt og magnlítið, mæðusamt og klökkva- kent hjá þeim sem lítinn hafa haft þróttinn til að bera, en úfið og afundið, þurt og þyrk- ingslegt hjá hinum, er orkumeiri eru- Sönn einlæg gleði verið sjaldséður gestur. Þeim lífsskoðunum hefir verið haldið að þjóðinni um margar aldir — og þær náð að festa rætur, að lífið sé eitt endalaust stríð og barátta “hér neðra” í öllum efnum. Þær hafa tjaldað heiminn innan með svörtum slæðum og hengt þær hæzt upp á himininn. Skoðanir þessar hafa líka verið styrktar með kjörum þeim er þjóðin hefir átt við að búa ytra og innra af manna völdum og nátt- úrunnar. Er því sízt að furða þö þunglyndi og önnur skapferlisveiklun komi víða í ljós jafnt hjá eldri sem yngri. Hitt gegnir meiri furðu að öll gleði skuli ekki vera horfin úr þjöðarsálinni, fyrir löngu- Er það að líkind- um tungunni að þakka, er á svo mætar og miklar byrgðir af kjarngóðu viti og kýmni að orðin hníga fyrirhafnarlaust að gleði og gamanmálum. óvíða verður náð jafn fyndn- um og spökum orðaleik sem í íslenzku máli. I orðum vorrar gömlu og. góðu tungu, lýsir sér alt í senn, Iífsþekkingin með traustinu á Iífinu. og þrekið og hugdyrfðin er býður sjálf um mótganginum byrginn; fjörið og gieðin og fegurðarnæmið er bregður jafnt upp háð- myndinni sem hugsjóninni dýrðlegustu, og sýnír hvorttveggja út t yztu æsar og dregur eigi úr. Frá Jóni biskupi Arasyni og niður að lok- um 18. aldar vottar naumast fyrir sannri Iífs- gleði í bókmentum þjóðarinnar, nema að því leyti sem málið sjálft geymir hugtök gullaid- arinnar í fornum orðskviðum og spakmælum. Undantekningar eru nokkur rímnaerind:, ein- stakar vísur séra Haligríms Péturssonar, Páls Iogmanns Vídalíns og einkum séra Stefáns í Vallanesi ólafssonar. Hin viðtekna skoðun á lífinu lætur það ekki í ié. Á engu sér lit fyrir súld og ,sút. Alt gránar í rauna og mæðu- þokunni. “Hlátur lagðist Iangt út, Laumast geispi í hálfdraum.” Jafnvel séra Stefán sjálfur, er talinn var “með beztu skáldum og j auðsjáanlega mest kýmni-háðskáld og gam- anskáld,” býr við þunglyndi og hugsýki alla i efri æfi. Svo var með Þorlák prest Þórar- I innsson á Möðruvöllum, er orti Þórláks-kver, og Ijóðasmiði fleiri. Yfir Ijóðum þeirra hvíl- j ir hinn gleðisnauði drungi, hinn mæðufulli, I misskildi tilgangur lífsins. Til siðgæðis j hvöttu þeir og dygða, en dygðirnar eru flest- ar neikvæðar — afneitun við lífið — að komast svo æfibrautina til enda, að sem minst skuli hrína við fætur ferðamannsins duptið upp af veginum. Ef ljóðagjörðinni var þannig farið þá tók ekki betra við, sem nærri má geta í hug- vekjunum og hinum andlegu ritum. Þar er það talið sem gustuka- og góð-verk að breyta b/osinu í skeifu og gleðinni í grát, — og ef það ekki tókst með fortölum og “skynsam- legum áminningum” þá voru verkfærin til þess við hendina — hespur og gapastokkar- “Siðbót” þessi og siðavandlæting nær há- marki sínu við lok I 7. aldar og byrjun hinn- ar átjándu, í tíð Kristjáns konungs hins VI. er var einhver hinn einstrengingslegasti og óþjóðlegasti maður er setið hefir á konungs- stóli á Norðurlöndum. Hann mátti eigi mæla á tungu þjóðar sinnar — dönsk tunga var of gróf. Þjóðernissinni hefir hann sjálfsagt verið á sama hátt og prestur einn er fræddi sóknarbörn sín á því að ef þjóðirnar skip- uðu tungu sinni á bekk með því sem væri guðlegt og gott, hlyti hið guðlega að víkja, fengi eigi skipað be'kk með móðurmálinu. I Norðurlandasögu Páls Melsteð er all ítar- leg lýsing á konungi þessum og þeim tíðar- anda----þeirri lífsskoðun og gleðibanni — er þá ríkti í hinu danska ríki: “Við hirðina var öðrum siðum fylgt um j daga Kristjáns 6., en bæði undan og eftir. Konungur talaði sjaldan við aðra menn af þegnum sínum en hiria ættgöfugustu aðals- menn- Við hirðina heyrðist varla dönsk tunga, heldur þýzk eða frönsk. Konungs- höllin var sí og æ umkringd af vopnuðum mönnum, og járnfestar Iágu yfir hallarsvæð- [ ið spölkorn frá konungshöllinni sjálfri, — Hver maður sem gekk yfir nefnt hallarsvæði varð að taka ofan og ganga berhöfðaður þangað til hann var kominn framhjá höllinni. Eftir þessu fór annað háttalag við hirðina. Konungur vildi efla bæði siðgæði og vel- gengni þegna sinna, en skorti til þess bæði vit og nærgætni. Þannig gaf hann út árið 1 735 tilskipan um helgidagahald, svo harða og ósamkvæma kristilegu frelsi sem mest mátti verða:ÖIIum varboðiðað sækja kirkju , tvisvar hvern helgan dag og sektir viðlagð- j ar ef í móti var brotið; á landsbygðinni voru menn settir í gapastokk, ef þeir gátu ekki j goldið sektarféð. — þessvegna var hverjum ! kirkjueigenda boðið að setja gapastokk við hverjar kirkjudyr. I Khöfn og öðrum víg- girtum borgum, var borgarhliðum læst á helgidögum, þangað til einni stundu eftir nón, til þess enginn kæmist út sér til skemt- j unar. Engar skemtanir máttu eiga sér stað, og eigi brúðkaup halda, því síður aðrar veizl ■ ur, á sunnu- eða helgidögum, eða næsta kveld á undan- Árið 1737 var skipað “Kirkjustjórnarráð”, er gætur skyldi hafa á öllum klerkum og skóla kennendum og öllum kyrkjuaga, yfirfara og leggja dóm á þær bæk ur er út voru gefnar, þótt háskólakennendur hefði áður rannsakað. Það þótti vottur sannrar guðhræðslu að vera niðurlútur, tár- ast og kvarta sáran um þessa heims hégóma, I og hafa það jafnan á vörum, að þetta líf i væri ekki annað en tára og eymdardalur. Þessi misskiida vandlæting hafði ekki ann- að í för með sér en hræsni og uppgjörðar- i guðhræðslu, því menn sáu brátt að þeim var j upphefðin vís er báru til sýnis yfirvarp guð- | hræðslunnar, en hinir voru settir hjá, er eigi vildu bera hana utan á sér, svo sem til sýnis j með ýmsu látbragði. Meðan Kristján 6. réði ríkjum voru gleði- leikar og hverskonar skemtanir fyrirboðnar og ekki u'mtalsmál að gleðirit Holbergs væru leikin.” — En bæta má því við, bókmentum og menningu Norðurlanda til allrar harningju, j þá lifði Holberg konunginn um 8 ár. j Er tíðarandinn var þessi, — og hann var , hinn sami á Islandi sem annarsstaðar, um það j sáu þeir Harboe Hólabiskup og fleiri, — þá var eigi furða þótt “gengið væri hægt um gleðinnar dvr . Þótt með tíð og tíma mót- aðist hugsunarhátturmn og þessi þvingunar- hefð, hefði það í för með sér að gera menn bölsýna. En bölsýninni fylgir jafnan ótrú á öllum framförum, allri tilbreytni. Hugsunin verður kraftlítil, dofin og dáðlaus. “Afl og mentir dvína.” Framsóknarþrekið, traustið á eigin ramleik, trúin á mátt og megin, á að menn fái risið undir lífsbyrðinni eða hrundið af sér oki og órétti, verður að engu, en snízt upp í kvartanir og áklaganir undan erfiði og þrautum lífsins, — stunur og andvarpanir. I stað þess að þetta bæti nokkuð hugsunar- háttinn, gjöri hann siðlegri eða hreinni svo menn verði dagfarsbetri, sþillir það honum til stórra muna, eins og segir sig sjálft- Bera aldir þessar bezt vitni um það. Þarf eigi ann- að en vísa til þess em Eggert Olafsson seg- ir í “Brúðkaupssiðabók” sinni, er kafli er tekinn úr upp í formála fyrir “Vikivaka og þulur”, (BIs. 26—28). Þar er Eggert að hvetja landa sína til þess að taka upp “gleði- leiki” því þeir séu hin beztu meðöl við dof- inskapnum og sinnuleysinu, sem svo mjög auðkenni þá. Segir hann að menn séu orðnir “dofnir og slenfullir” af því þeir hafi mist öll tækifæri til örfandi skemtunar. “Engin þjóð í veröldu er jafn hrygg og dauf og þegj- andi sem vér, hverjir ekkert höfum að gamna oss með. Fylgir þar af annar mál-laki, ráð- leysi nær finna þarf nokkuð nýtt til gagns, þegar hið gamla brestur; framkvæmdarleysi nær fljótt og harðlega þarf að no'kkru að vinda, og loksins svefn og dofinleiki eður tilfinningarieysi, þá einhver stórmál eru í efni.” Bendir hann til gullaldar Grikkja og Rómverja: “Hversu ágætlega sýndu ei háð- leikir hjá nefndum bióðum dveð- ir og lesti með náttúrlegum yfir- litum. Heiluðu þeir ekki sem mjúk ustu læknisdómar ýmsa sjúkdóma borgaralegs líkama? Hvað þægi- lega og undir eins nytsama hrær- ing munu ei smíðar Plautusar,“við asnakvörnina” hafa haft á víð- sýnum sjónarfleti.” Ræður hann til útileika um sumartíma en inni um vetur og telur þá sjálfsagt að hafa um hönd “sagna og hljóð- færaskemtun, kvæði og söngva, góð-skrítna og satýriska, þá er lasta ilt og lofa gott.” I tímariti Jóns heit. Sigurðsson- ar “'Nýjum félagsritum”, ritar Dr- Konrad Maurer, Islandsvinurinn gamli og góði um sama efni. Get- ur hann þar um gleðibannið er hvílt hafi yfir Islendingum, skað- semi þess, og hvernig það hafi verið tilkomið. Þar segir hann: “Mælt er að prestar hafi gengið hart að útrýma “gleðinni” (Viki- vökunum) og var það samkvæmt annari stjórn þeirra tíma, að kasta barninu út með lauginni, banna “gleðina” af því þeir kunnu ekki að stýra henni svo hún yrði hæfi- leg. Á Færeyjum og í Noregi haldast “gleðirnar” við enn, og all ar siðaðar þjóðir láta sér ant um að glæða smekk alþýðu á saklausri og fagri skemtan. því þær viður- kenna að það kveyki fjör og at- orku, en skemtanaleysi olli deyfð- ar og kjarkleysis til allra nytsam- legra starfa.” Hvílík áhrif gleðibannið hefir haft, skýrir Ingibjörg Olafsdóttir vel frá í ritlingi er kom út nú fyrir fáum árum síðan og hún nefndi “Siðferðisástandið á íslandi ” Eft- ir því sem hún Iýsir 16., 17., og 18. öldinni, hefir strangleikinn er heiminum breytti í táradal, ekki orðið til stórrar siðferðislegrar uppbyggingar. Kemur það fram að Þorst. Erlingsson hefir haft rétt að mæla, “að fjárans holdið gegn- ir ekki neinum.” Ef því er meinuð sú skemtanin sem saklaus er, og léttir ögn veraldar áhyggjurnar, velur það hina sem til næst og öllum heilhim spillir- En við það líður æðra manngildið. Eymdar- sónninn fyrir alt með falsi og yfirskini og sennilega villir sjónid á hinu sanna lífsgildi. Þó ætla sumir að þessi strang- leiki, er ekki skilur hvað heilsu- samlegum andlegum þroska heyr- ir til, leiði á einskonar dygða— stig, milliveg, — hinn þrönga veg, sem til lífsins leiðir. En þessi, þröngi vegur leiðir til lífs- glötunar, til skilningsleysis og fegurðarleysis, til andlegs dauða. Þessi vegur er braut hinna blindu og mállausu sem vísuorðið lýsir: “Annarsvegar alt er nótt, en al- kyrð hinumegin” — myrkur og þögn. Hann á að vera einskonar' rif ,sem liggja á milli eyja og lands og eftir rifi þessu megi svo kóklast til fyrirheitna landsins — burt úr veraldar volkinu. En ‘hann er ekki svo mikið sem rif. En þó svo væri myndu fæstir kjósa þá leiðina, er annan heilsusamlegri veg þekkja en mörgum fara sem Páli Ólafs- syni í vísunni: “Eitthvert rif regir Einar til, sem er á milli lasta og dvsrða. En eftir því eg varla vil, vaða á milh efri og neðri bygða. Þrátt fyrir tilraunirnar sem gerðar voru ti! þess að nema burtu alla lífsgleði með þeim skoðunum sem að þjóðinni var haldið, þrátt fyrir lagaboðin og konungsskipanirnar, þrátt fyrir hin hörmulegu og þröngu ytri kjör, varð gleðin aldrei máð burtu að öllu leyti úr þjóðarsálinni. Hún lifði þar og — lifir enn, einhver neisti hennar — víðast hvar — þótt nærri láti að lítið sé eftir sumstaðar. Hún er hið góða hlut- skifti sem eigi verður frá henni tekið. En til þess hjálpaði tungan og bókmentirnar fornu, en þó sér- J staklega hið upprunalega eðli þjóðarinnar sjálfrar- Hefði þjóðin eigi upphaflega í eðli sínu verið bjartsýn væri hún eigi framar til. Þótt gleðinni væri bygt út, hafð- ist hún við á öræfagróðrrnum and- lega, — sem útilegumaður í ó- dáðahrauni — svo hennar verður vart, innan um vílið og volæðið, barlóminn og heimsbrígslin, svo Dodd’s nýrnapillur eru bezta nýmameðaliS. Lækna og gigt, bakverk, hjartabilun; þvagteppu, og önnur veikindi, sem stafa frá nýrunum. — Dodd’s Kidney Pills kosta 50c askjan eSa 6 öskjur fyr. ir $2.50, og fást hjá öllum lyfsöl- um eÖa frá The Dodd’s Med'c'ne Co., Ltd., Toronto, Ont. að andlega missir eigi þjóðin al- veg heilsuna. Hennar gætir í brosi og hendingum af og til. IJ'ir og grú- ir af fyndnum og hnittnum orða- tiltækjum, svörum og setningum, er glóa eins og gimsteinar í sorpi — öllu hugvekjuruslinu. Stund— um koma þessar setningar þannig að fyndnin læðist inn í þær óvart og höfundunum óvitandi- Kennir slíkra grasa einkum í þjóðsögnum og' alþýðufróðleik. Hvað kýmnin og orðahagleikur- inn eiga djúpar rætur í íslenzku eðli, sýna fornsögurnar bezt. Þar glampar alt og geislar af gleði, sem gengið sé inn í glæsta og gló- andi sali. Yfir hreystinni og hetju- andanum er “vonarbragur”, er frægð og fegurð, afli og æsku, fer jvel. Yfir hergný og Þórdunum, [ brosir gleðin, hin sanna lífsgleði- J Kvíðalaus orð falla í stuðlum og 1 stefjum hver sem lei'kslok verða. j Hákon konungur Aðalsteinsfóstri bar jafnan hjálm á höfði gulli roð- j inn. Af gullhjálminum þektist j Norðmannakonungurinn hvar sem j hann fór. Af fegurðarsvip lifanda ! lífs, vonar og dáðar, þekkist hin forna frelsis og hreysti-öld Norð- urlanda og hin fornu skapgerðar einkenni Norrænna þjóða. Meðal þeirra er kýmnastir voru og hárbeittastir í orðum í fornri tíð má nefna Harald konung Sigurðs- son meðal Norðmanna- AÍIir muna söguna af þeim bræðrum og svar Haraldar, er Ólafur Haraldsson kom til Sigurðar konungs og geng- ur til þeirra hálfbræðra sinna þar sem þeir eru að leikjum og spyr þá hvað þeir vildu helzt eiga. Þá má og minnast orðasennu Harald- ar og fiskimanna í Niðarósi og Björgvin. Var sem Haraldur hefði eigi meir yndi af öðru en hnittn- ; um svörum og skörpum og skýr- um orðum, en langfrægastur er þó orðaieikur þeirra Haraldar og Grautar-Halla. — Af íslenzkum dæmum úir og grúir sama efnis- Þorleifur Jarlaskáld, Gísli Súrson er var háðskáld gott, Skarphéðinn, Einar Þveræingur, Snorri Goði, er jafnan hafði gamanvísur og skörp tilsvör á takteinum er eitthvað bar í efni. I bardaganum eftir brennu- málin á Alþingi, þegar spjótinu var skotið gegnum báða kálfa á Skapta lögsögumanni, og hann dreginn inn í búðina, gat Snorri eigi að því gjört en að raula fyrir munni sér gamanvísu um atburð þann, er hann gekk á milli þeirra sem börðust. Gunnar á Hlíðar- enda, sem annars er eigi talinn undirhyggjumaður, er leikari góð- ur og hefir sjálfsagt kunnað að breyta rödd og ræðu. Þá er Grettir Ásmundsson eigi síztur þótt kenni stundum biturleika og napurhæðni í orðum hans sem hjá Skarphéðni. Annars eru dæmin svo mörg í sög- unum að þau eru ótæmandi- En eitt viljum vér þó tilfæra orðrétt, því þar kennir hvorttveggja, hins djúpspakasta vits og hinnar fín» ustu fyndni. En það er svar Ólafs Pá, er þeir lentu í hafvillum úr Noregi á íeið til Island. Urðu þeir skipverjar og stýrimaður er Crn hét, ekki á eitt sáttir um stefnu. “Var Örn til móts en mestur hluti manna mœlti í gegn’ , segir sagan. Var þá leitað til ólafs hvað hon- um sýndist. Segir Ólafur þá “Þat

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.