Heimskringla - 21.06.1922, Blaðsíða 2

Heimskringla - 21.06.1922, Blaðsíða 2
2. BLAÐSÍÐA. HEIMSKRINGLA. WINNIPEG, 21. JÚNÍ, 1922. HUSFRU HALLDORA OLSON Ýmsra anr.a vegna helir það dregist miklu lengur fyrir mér en átt Kefði að vera, að minnast með virðíngu og þakkíeti þeirrar konu, sem eg tel margra Kluta vegna merk- asta þeirra kvenna allra, sem að þessum tíma hafa flutt af íslandi vestur urn haf. |Halldóra Olson var fædd þann 5. ágúst 1854 á bænum Elliða í Staðarsveit í Snæ- fellsnessýslu, dóttir hjónanna Guðmundai Stefánssonar, Guðmundssonar prófasts á Staðarstað, og Önnu Sigurðardóltur, er þar bjuggu þá. Þegar Halldóra var átta ára gömul andaðist móðir hennar og ólst hún þá upp eftir það hjá þeim hjónum Guðmundi Sigurðssyni móðurbróður sínum og Þor- björgu Stefánsdóttur föðursyslur sinni, sem um langt skeið bjuggu íyrirmyndar og rausn ar búi að Borg í Miklaholtshreppi í Snæfeils- nessýslu. Þau hjón áttu enga dóttur og lögðu því alla þá rækt við uppeldi Halldóru, sem þau hefðu bezt getað við eigið barn sitt. Hjá þeim Iærði hún öll þau vinnubrögð og kvenlegar listir, sem konur á þeim tímum áttu kost á að nema á nokkru sveitaheimili á íslandi. Halldóra gaf þess ljós merki þegar á unga aldri, að hún var gædd góðum hæfileikum og miklum, og sem frá upphafi reyndust traustur grunnmúr þeirra miklu kvenkosta, sem Ijómuðu alt lífs'starf hennar fram að hinstu stundu æfinnar. Jafnframt óvanalega miklu Iíkamsþreki og frábærum dugnaði við hvers dags heimastörf, var hún bókhneigð mjög og las með athygli ýmsar þær fræðibækur, sem alþýða fólks átti á þeim tíma kosta á að njóta á íslandi. Sérstaklega hneigðist hugur hennar að hjúkrunar- og læknisfræði og um það efni las hún þau rit, sem hún gat komist yfir, og “Kvennafræðarann” hafði hún lært til hlítar. Það er sögn, að þegar hún var 14 ára að aldri, hafi hún bjargað konu í barnsnauð og gengið svo vel frá því starfi, að bæði móður og barni farnaðist ágætlega. Af sjálfsdáðum og með þeim upplýsingum, sem hún gat aflað sér, lærði hún yfirsetu- og hjúkrunarfræði, og stund- aði bvorttveggja í sveit sinni með góðum árangri meðan hún dvaldi á íslandi. Þegar Halldóra var 20 ára gömul giftist hún herra Sig- geir Ólafssyni frá Krossum í Staðarsveit, þann 28. september 1874. Siggeir var mikill atorku- og reglumaður og að ýmsu leyti metinn fyrirmynd ungra manna þar í héraði, en kona hans þá talinn beztur kvenkostur þar í sýslu, og þó Iengra um væri Ieitað. Eftir eins árs dvöl að VöIIum í Staðarsveit á heimili brúð- gumans, settu þau hjón upp bú að Furubrekku í Miklaholts- hreppi í Snæfellsnessslu og bjuggu þar meðan þau dvöldu á lslandi. - —• Þau eignuðust átta börn, en mistu sex þeirra á unga aldri. Til Vesturheims fluttu þau árið 1886, með eftirlif- andi tvo syni sína, Þorgeir Finnboga, þá sjö ára, pg ólaf, þriggja ára að aldri, og settust að í Winnipegborg. Árið 1889 fluftu þau suður á Washingtoneyjuna í Michiganvatni í Bandaríkjunum, þar sem Halldóra átti frændfolk, og dvöldu þar næsta vetur, en í maímánuði 1890 fluttu þau til Duluthborgar í Minnesotaríki í Bandaríkjunum og bjuggu þar til æfiloka. '**’’ - Frá því<er þau hjón komu til Duluthborgar tók Halldóra að stunda ljósmóður og hjúkrunarstörf og hafði við það ær- inn starfa, því hún varð brátt vinsæl og margar konur sóttu til hennar. Þá var það að læknafélagið í Minnesotaríki fékk vitneskju um það» að Halldóra var sjálfmentuð, hefði ekki slundað nám við nokkra viðurkenda kenslustofnun og að hún hafði því ekkert prófskírteini er veitti henni Iagaheimild til þes§ að §tunda störf þessi þar í ríkinu. Var þyí höfðað sakamál gegn henni og skvldj þún mæta fyrir réttj j Duluth á ákveðnum degi, nokkru síðar. Þegar Halldóra fékk stefn- una brá hún tafarlaust við og fór á fund ríkisstjórans, er að- setur hafði í St. Paul borg og lagði mál sitt fyrir hann og leitaði aðstoðar hans um að fá að ganga tafarlaust undir próf þar í borginni. Kvaðst hún fullfær um að leysa rétt af hendi þau störf, sem hún stundaði í Duluthborg og sem hún vær ákveðin í að gera að hfsstarfi sínu. Ríkisstjorinn tok málaleitun hennar vel, leizt giftusamlega á konuna, og sá um að henni veittist tafarlaust aðgangur að prófi. Afleiðingin varð sú, að þegar hún mætti í réttinum í Duluth, lagði hún fram sitt nýfengna ríkisleyfi til þess að stunda yfirsetu- og hjúkrunarstörf, og frá þeim tíma hafði hún óhindrað frelsi iil starfa og jafnan mikla aðsókn. Þau hjón höfðu þá komið sér upp Iitlu en snotru húsi og þangað tók Halldóra oft sjúklinga til veru, gat hún þá jafn- framt annast um sín eigin hússtörf og haft tilsjón með sonum sínum á mentabraut þeirra. Svo Iiðu tímar, þar til húsrúm þeirra hjóna reyndist alt of lítið til þess að mæta starfsþörfum Halldóru. Lét hún því gerbreyta því og stækka, svo að úr því varð fvílyft stórhýsi með um 30 herbergjum og voru 20 þeirra á efra gólfi helguð eingöngu sængurkonum og öðrum sjúklingum, ef þörf krafð- ist. Það mun vera þetta endurbygða hús, sem stórblaðið “Duluth News Tribune”, dagsett 24. nóvember 1907, getuf' um að reist hafi verið árið 1904. Blað þetta flytur langa rit- gerð um Halldóru og flytur mynd af henni, segir hún hafi fyrst allra borgarbúa séð þá brýnu þörf,,sem verið hafi fyrir kvenspítala þar í borg, og að hún hafi stofnseti slíka stofnun þar og stjórni henni. Fer blaðið hinum Iofsamlegustu orð- um um Halldóru, hæfileika hennar, dugnað, hjálpfýsi og vin- sældir, segir hver hjúkrunarkona eða læknir mætti telja sér sæmd í að njóta þeirrar tiltrúar, sem hún sé búin að ávinna sér meðal kvenna, ekki aðeins í borginni, heldur einnig í fjarlægum héruðum. Svo er að sjá á blaðinu, að Haldóra hafi stofnað kvenspítala sinn árið 1893, og var það hin eina stofnunþeirrar tegundar, sem til er í Duluth- borg fram á þenna dag. Fyrir þessa stofn- un hafði hún borgað að fullu fáum árum eft- ir að hún var bygð, alt með arði eigin iðju sinnar. Auk þess varði hún talsverðu fé ár- lega til líknarþarfa bæði til einstaklinga og stofnana, og má meðal þeirra telja Gamal- mennahælið á Gimli, þótt það sé í öðru ríki en hún dvaldi í. Halldóra sál. var há kona vexti og þrek- in, björt á hár og hörund, fríð sýnum, svip- urinn djarflegur en jafnframt góðlegur og öll framkoma hennar bar vott um göfugt hugarfar og stórhöfðinglega lund. Hún var kona sterkbygð og heilsuhraust alla æfi. stjórnsöm um alt, sem hún átti að annast og sí-vinnandi, eins og merkja má af því, að á því rúma fjórðungs aldar skeiði, sem hún stjórnaði fæðingarstofnun sinni, hafði hún veitt móttöku ekki færri en 3117 börnum. Af öllum þeim fjölda mæðra misti hún aldrei nokkra þeirra, þær urðu allar heilar í umsjá hennar. Á nokkrum síðustu árum æfi hennar, eftir að hún fór að Iýjast, tók hún sér fárra vikna hvíld að sumarlaginu, til þess að heimsækja systur sínar tvær og aðra ættingja og vini sem búa í Manitoba. Mun þá sonur hennar Ólafur, semorð- inn var útlærður og mikils metinn læknir í Duluthborg, hafa annast um spítalann. Systkini Halldóru, þau er nú lifa, eru Þorgeir Lárus, ak- týgjasmiður í Árborg, Man. og Ólína Theodora (Erlendson) Bifröst, Man., og Sveinn kaupm. á Akranesi á íslandi, og hálfsystir Anna (Ottenson) í River Park í Winnipeg. Árið 1915 misti Halldóra Siggeir bónda sinn, er þá hafði verið heilsuveill næstaliðin tvö eða fleiri ár. Jók þetta eigi ell-lítið á áhvggjur hennar og heimilisstörf, þótt hún þá jafn- framt ætti athvarf til sona sinna beggja, Ólafs læknis og Þor- geirs Finnboga, hins mannvænlegasta manns, er um margra ára skeið hafði verið fregnritari og nú aðstoðarritstjóri stór- blaðsins “Duluth Herald”. En ^jálf vann hún ósleitilega fram að síðustu stundu. Nokkra síðustu daga æfinnar hafði hún verið lasburða, þó ekki rúmföst. Hún hlaut hægt and- lát, sitjandi í hægindastól í svefnherbergi sínu, lesandi bréf, sem henni hafði þá nýborist frá frændkonu sinni í Canada, þann 28. nóvember 1921. Þá 67 ára gömul. Hversu nrjög vel Halldóra Olson var virt og metin þar, er hún um 30 ára skeið hafði háð aðal-lífsstarf sitt, sýndi sig við útför hennar, sem er talin sú stærsta, er nokkur sinni hefir farið fram í Duluthborg. Þrír prestar tóku þátt í henni, þeir dr. BjÖrn B. Jónsson frá Winnipeg, samkvæmt Iöngu gerðum fyrirmælum hinnar látnu, svo og séra Lory, fyrrum þjónandi prestur meþódista- safnaðar þess, er hún tilheyrði, en sam í s.l. 8 ár hefir þjón- að söfnuði í California og sem nú af eigin hvötum kom með son sinn vestan frá Kyrrahafi, til þess að votta virðingu sína fyrir persónu hinnar látnu, með því að vera viðstaddur og taka þátt í gerftrunarathöfninni, svo og núverandi prestur safnaðarins. Húskveðjan, sem fór fram frá heimili hinnar látnu, var svo fjölsótt, að ekki aðeins var húsið þéttskipað áheyrendum, heldur einnig náði fólksþyrpingin alla Ieið frá því yfir að kirkjunni, sem stendur um þúsund fet þaðan. Þar fluttu ræður þeir dr. B. B. Jónsson — á ensku og íslenzku— cg séra Lory, en söngnum stýrðu þau ungfrú Louise Ottenson frá Wpg. og hr. Hjörtur Lárusson frá Minneapolis, systkina- börn þeirrar látnu. Var þá kistan borin alla leið til kirkjunnar og þar haldin aðal útfararathöfnin. Þar fluttu hinir þrír áður- nefndu prestar sína ræðuna hver, en söngflokkur safnaðar- in* hélt uppi söng, og þrír einsöngvar voru sungnir. Alt fór þar fram með helgri prýði, og var ræða séra Lory einkar hjartnæm lýsing á hinum miklu gáfum og göfuglyndi og sterku trúrækni hinnar látnu og þeim mikla styrk, sem hún jafnan hafði veitt söfnuðinum á því tímabili öllu, er hann hafði þjóaað þar. — Eftir athöfnina í kirkjunni var líkinu ekið út í grafreit borgarinnar og annaðist dr. B. B. Jónsson þar um greftrunarathöfnina. Hver einasti læknir og mikill fjöldi annara háttstandandi borgarbúa fylgdu hinni látnu til grafar. Blómvendir voru sendir frá öllum verzlunarhúsum borgarinnar og fjölda einstaklinga til þess að prýða leiði hennar. Þrjá vagna þurfti til þess að aka blómunum frá heimili hinnar látnu tii greftrunarstaðarins, og hafði slíkt ekki fyr þekst þar í borg. Öll blöð borgarinnar fluttu Iofsam- leg ummæli um Halldóru sál. Hennar aðdaanlegu hæfileika, geðprýði, dugnað og sigursælt æfistarf. Sonum og öðrum ættmennum hinnar látnu er ant um, að þakklæti þeirra sé hér með vottað dr. B. B. Jónssyni fyrir hans hlýlegu hluttekn ingu og alt hans'starf við sorgarathöfn þessa. Framkoma hans í þessu sambandi var þeim öllum til mikillar huggunar og þeim ógleymanleg. Eg tel að skýlaust megi fullyrða, að vor íslenzki þjóð- flokkur í landi þessu eigi hér á bak að sjá þeirri konu, sem með sínum mikki og góðu hæfileikum, sínum mikla þrólti, sínum frábæra dugifaði, sinni öruggu trúarstaðfestu á mátt hins góða í verkum einstaklingsins og sínu sigursæla starfi, hefir varpað geislum sæmdar á íslenzkt þjóðerni. Eg efa ekki, að hennar verði Iengi minst sem mikilhæfastrar alira þeirra kvenna, sem enn hafa fluzt frá fslandi vestur um haf. Vers það, sem hér fylgir, hafði Halldóra sál. óskað, að verða mætti niðurlag við æfiminningu sína ef nokkúr yrði rituð: “Eg hljóður eftir hlústa, Eg heyri klukknahlióm, H.ve guðleg guðsójónusta E ' jruðs í helgidóm. Eg hsyri unaðsóma Og engja skæra raust TTm drottins dýrðarl.ióma, Um drottins verk þeir róma Um eiiífð endalaust. —Vinur. Rússneskur bóndi. Eftir Maxim Gorki. Maxim Gorki hefir fyrir nokkru skrifað greinaflokk í ýms stór- biöð Vestur- og Norðurálfunnar um rússnesku þjóðina og skoð- anir sínar á henni eftir þær eld- raunir, sem hún hefir staðið í hin síðustu árin. — Þýddir verða kaflar úr þessum greinum hér í blaðið, og koma nú glepsur úr fju-stu greininni. I henni gerir Gorki samanburð á andlegum ein- kennum vestrænna þjóða og al- þýðunnar rússnesku. Greinin er afburða vel skrifuð og leynir það sér ekki, að stórmenni og skáld hefir skrifað hana. — Menn, sem eg ber djúpa virðingu fyrir, spyrja mig um álit mitt á Rússlandi. Allar hugsanir mínar um land mitt eða réttara sagt um hina rússnesku þjóð, um allan þorra hennar, — hinn rússneska bónda veldur mér þrautum og sorg. — Það mundi verða mér léttbærara að svara þeim ekki, sem spyrja mig. En eg hefi lifað of margt og veit of mikið til þess að eg hafi Ieyfi tilað þegja. Þó vil eg biðja menn að minnast þess, að eg hvorki dæmi né réttlæti neinn. Eg vil aðeins segja frá, skýra frá áiiti mínu í stuttum dráttum. Skoðun mín er enginn dómur. Og cf það sýndi sig, að skoðun mín væri ekki rétt, mundi það ekki hryggja mig. Merkur rússneskur sagnfræðing- ur segir: “Rússneska þjóðin hef- ir samkvæmt eðli sínu altaf verið á öndverðum meið við ríkið, er vegna dreifingar þjóðarinnar yfir alt of stórt landflæmi, hefir þessí andstaða jafnan sýnt sig í hirðu- leysi og flótta frá þeim byrðum, sem ríkið hefir lagt á þjóðina* ekki í mótspyrnu, ekki í baráttu.” Þessi orð eiga við sérstakt tíma- bil í sögu Rússiands. En síðan hefir mannfjöldinn aukist á hinum rússnesku sléttum, dreifingin orð- ið minni. En sálarlífseinkennin eru þau sömu og lýsa sér vel í þessum rússneska málshætti: Vinn þú verk þitt, en helzt aftan frá. I raun og veru býr í öllum þjóðum allmikill stjórnleysishug- f. Fólkið leitast v^ð að lifa sem beztu lífi með sem léttastri vinnu — reynir að tryggja sér sem víð- tækust réttindi með sem fæstum skyldum. Þetta er lagaleysis- andrúmsloft, sem alþýða manna Iifir í og sem rekja má aftur til eldfornra tíma, hefir skapað hjá mönnum óljósa hugmynd um og óverulega trú á réttlæti lagaleys- is. Þessi hugmynd og trú er hið eiginlega stjórnleysi. Hvergi er það svo rótgróið og hjá hinni rússnesku alþýðu, sem hefir orðið að bera ok þrældóms- irs lengur en nokkur önnur þjóð í Evrópu. Um aldaraðir hefir hinn rússneska bónda dreymt um það ríki, þar sem ekkert stæði í vegi fyrir mannlegum vilja, þar sem athafnafrelsið væri fulikomið, ríki, sem ekki hefði neitt vald yf- ir þegnum sínum. Þessa von, sem aldrei getur ræzt — að ná full- komnum jöfnuði fyrir alla, jafn- framt ótakmörkuðu frelsí hvers einstaklings — hefir rússneska þjóðin reynt að gera að veruleika í Kósakkabandalögunum. Enn í dag lifir hugmyndin um einhvers- konar æfintýraríki í hina skugga- döpru sál Rússans, það h 1 ý t u r að vera til einhversstaðar. I þessu ríki lifa mennirnir í ótruflaðri ró, án nokkurrar vitundar um borgtr, þessi hryggilegu hýnishorn úttaug aðrar menningar. Meðal rússneskrar alþýðu er hjarðmannaeðlið ekki útdautt enn. Henni finst akuryrkjuvinn- an bölvun guðs og hún þjáist sí- felt af þeirri löngun, að “flytja tjald”. Rússneska bóndan skort- ir gersamlega það bardagaeðli, er knýr Vesturlandamenn til að taka ákveðna afstöðu og beita áhrifum sínum á þann hátt og koma áhuga málum sínum í framkvæmd í um- hverfinu. Að minsta kosti er þessi bardagaeðlishvöt mjög ó- þroskuð í honum. Ef hann reyn- ir að taka afstöðu, bíður hans hörð og árangurslaus barátta. Sér hver sá, er reynir að flytja eitt- hvað sérstakt og persónulegt, eitthvað nýtt inn í rússneska sveitabæjalífið, mætir hann strax tortrygni og fjandskap íbúanna, slíkar tilraunir reyna þeir til að kæfa hið fyrsta. En oftast lærir endurbótamaðurinn svo mikið, að hann dregur sig af sjálfsdáð- um burtu frá þessari ramfornu íheldni. Ekkert hvetur mann því til að gróa þarna fastan. Hvert sem bóndinn lítur eftir lífsnauð- synjum, alstaðar mætir honum hin auða víðátta og lokkar hann burt, út í fjarlægðina. Vesturlandaþjóðir eru ennþá í , barnæsku. Þær hafa nýlega rétt j sig upp á afturfæturnar og horfa nú á stórkostlegan árangur af , verkum forfeðranna. Frá skurð- ( um Hollands til ítölsku jarðgang- ( anna og vínyrkjusvæðanna kring um Vesúvíus, frá hafnarbæjununi ensku til hinna stórkostlegu verk- smiðja í Schlesíu, blasa við stór- kostleg minnismerki um samein- aðan vilja Vesturlandamannanna. Vilja, sem hefir sett sér það mikla mark, að knýja náttúruöfl- ín undir mannsviljan og í þjón- ustu hans. Jarðarhnötturinn er í höndum mannanna, þeir eru í raun og sannleika drotnar jarðar- ínnar. — Þessi áhrif drekka Vest- urlandaþjóðir með móðurmjólk- inni, þessi áhrif skapa í þeim sf- vakandi meðvitund um gildi mannsins, sívakandi virðingu fyr- ir verkum mannanna og sterka til- finningu fyrir eigin persónuverð- leik um sem erfingjar að þeim undrum, sem skapandi andi :>g vilji forfeðranna hefir farmleitt. Hugsanir og tilfinningar þess- arar tegundar geta ekki vaknað f sál rússneska bóndans. Hin enda- lausa flatneskja, sem hann lifir á, sveitabæirnir með stráþökunum, snn liggja dreifðir alt í krir.g f smáflokkum hafa þann hættulega eiginleika, að sjúga sál mannsins. tóma, að tæra upp í henni íftT þrek og alla lífslöngun. Bóndinrr sem kemur út fyrir sveitaþorpið, sér ekkert annað umhveifis sig en hið takmarkalausa tóm, og eftir nokkurt skeið finnur hann, að þessi auðn hefir komist inn f sál hans. Hvergi, svo langt sem augað eygir, sést nokkurt varan- legt merki eftir mannlegt starf, hvorki handa né anda. Aðals- mannssetrin? Þau eru nú orðin fá og í þeim búa fjandmenn. Borg- irnar? Þær eru óumræðilega langt í burtu og standa menningarlega ekki langt yfir sveitaþorpinu. Al- slaðar hin endalausa, gráa flat- neskja, og hér og þar á henni vesæll maðurinn, bjargarþrota á gróðurlausum bletti sínum, kúg- aður til að nota hvert strá tii hins ítiasta í hörðustu þrælavinnu. Og þá er það, að þessir menn fyllast* kæruleysi, sem drepur hæfileik- ann til að hugsá, til að muna for- tíðina og uppskera nýjar hugsan- ir af reynslunni. Rússneskur menn ingarsöguritari hefir dregið lýs- ingu sína á rússnesku alþýðunni saman í þessi orð: geisileg hjá- trú — engar hugsjónir. Þenna dóm styður öll rússnesk saga. Satt er það, — dýrðlegt er “hið Iifandi gull víðlendra korn- akra” um sumarið. En á ha'istin stendur bóndinn aftur á hinni rændu, auðu jörð, og enn á ný er Kann knúinn til að vinr.a hið mesta erfiði. Síðan kemur grimm- ur sex mánaða vetur. Líflaus jörðin er sveipuð .skínandi lík- klæði, ýlfrandi hríðarstormurinn þýtur yfir snæbreiðuna, en út- taugaður maðurinn hniprar sig saman mm í þröngum, dimmum og óhreinum kofanum, þar sem hungur, iðjuleysi og leiðindi breyta honum í hugsunarlaust ó- málga dýr. Alt, sem eftir verþur af erfiði bóndans, er hálmurinn í rúminu hans og kofinn með gras- þakinu, sem hver kynslóð sér þó brenna til kaldra kola ekki sjaldn ar en þrisvar sinnum. Einfaldar starfsaðferðir í sveita- þorpunum eru ótrúlega vinnu-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.