Heimskringla - 21.11.1923, Blaðsíða 1

Heimskringla - 21.11.1923, Blaðsíða 1
Sendi'ö eftir verölista til loyal Crovrn Soap Ltd. •r>4 Main St., Winnlpeg. Verðlaoa gefia » fyrir Coupons og umbú'Sir Verílacn gefia fyrir Coupom Og Sendit5 eftlr verlilista t!l ‘ # Royal Crown Sonp Ltd. umbúöir 654 Maln St., Wlnnipeg. XXXVIII. ÁRGANGUR. WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKLDAGINN NÓVEMBER 21. 1923 -- -------- ---------------------- ■ " ■ ' 1 " — Endurkjósið borgarstjóra og verndið hin opinberu fyrirtæki ySar. Ásamt eftirfylgjanoi umsækjendum frá Independent Labor Party: Bæjarfulltrúaefni í 2. deild: Vi(ptor B. Anderson Thos. Flye. Skólanefndamenn í 2. deild: N. W. Stobart. James Mclntyre. (Merkið kjörse'Sil yðar me'S töiustöfum í þeirri röð, sem þér viljið kjósa.) & | ll I o í l>etta ofanskráða vandræðamál hefir nú verið lagt fyrir sendiherra ráð sambandsþjóðanna vestlægu. Og úrskurði er í aðal-atriðum náð. En hvað skeður? SendiheiTarnir sjá l>að eitt til ráða, að eftir Þý7;ka- landi sé litið af hervaldi samein- uðu þjóðanna vestlægu. Virðiist ]>að með öllu í þá átt er Erakkar ákjósa og eir undarlegt, að Bretar skyldu gefa það eftir. En þess ber að gæta, að áður -en þetta verður að framkvæmd, þurfa stjórnirnar heiina í hverju landi að samþykkja tillögur sendiherraráðsins. Að því búnu verður Þjóðverjum tilkynt ur fagnaðarboðskapur þessi. Ekki skal hins látið ógetið, að í sam- bandi við þessar fregnir er sagt, að þetta muni hafa verið bráðabyrða sætt, til þess að afstýra í svip frið- slituim milli Breta og Erakka og til þess, að gefa lengri tíma til um- hugsunar um hvernig fram úr öng- þveiti þessu verði ráðið á friðsam- legan hátt, ef unt er. Eitt er það sem forvitni vekur í samihandi við þessi mál. Það er snertandi gerðir Þjóðverja. Bafa þeir án nokkurs stuðning annara þjóða færst í fang að neita að borga skaðabæturnar? Og ef svo er ekki, hvaðan kemur þeim þá sá styrkur? Krónprinsinn. Eitt vandræðamálið f Evrópu stafar af krónprinsinum þýzka. Þýzkastjórnin hefir veit honum heimfarar leyfi, gem kunugt er. En því eru Erkkar svo mótfalimr, að þeir krefjast afdráttarlaust, að hann sé aftur í útlegðina rekinn. Segja þeir að Þjóðverjar brjóti samninga sína í því efni sem fleir- um, að veita þeim manninum griðastað, sem flestum öðrum fremur var dæmdur að eiga þátt í orsökum stríðsins mikla og í Yer- sala samningnum sé sérstaklega nefndur sem ófriðhelgur í löndum þjóða þetora er samningin gerðu með sér. í ræðu er forseti Þýzka- lands hélt nýlega, sagði hann, að kröfum Prakka um að reka krón- prinsinn burtu, yrði afdráttarlauet neitað. Ludendorff bráðlifandi. F r é 11 i r. Þýzkumálin. Fregn barst hingað um það frá Þýzkaiandi s. 1. viku, að þýzka- stjórnin hefði gert það heyrin kunnust, að hún ætlaði ekki fram- ar að viðurkenna skaðabótaskuld- ir sínar né að borga neitt af þeim. Þótti þetta furðu mikilli sæta. Að vísu voru ástæður til þess, að þýzkastjórnin stigi spor þetta — og þó fyr hefði verið. En hitt var skoðað ótleypt fyrir hana, að fær- ast það í fang vegna vanmáttar síns í klóm Frakka. Ástæðan sem þýzka stjómin ber fyrir sig, er sú, að Erakkar hafi brotið Versala- samninginn með innrás sinni í Ruhr-héraði og sé hún því lbus allra mála og ekki skuldbundinn til að halda samninginn lengur. Hvað sem um þessa framkomu Þjóðverja verður sagt, er hitt víst, að það eru fleiri en þeir sem líta svo á, sem Erakkar 'hafi brotið Yer- salasamninginn með innrásinni í Ruhr. Síðastliðið sumar lýstu Bretar þessu yfir, og lá við frið- slitum milli Breta og Erakka út af því. Þjóðverjar eru því að feta í fótspor Breta m!eð þessu og eru það strax nokkrar málabætur fyrir þá. Þegar til kasta Poincare stjórn- arformanns Erakka kom, var alt lögmætt sem Erakkar gerðu. Og við það sat. Bretar stóðu vi.ð sfna skoðun f orði, en létu Frakka fara sínu fram. En nú fyrst horfir mál- ið alvarlega við, er Þjóðverjar neita I að borga sfnar skaðabætur vegna þests að Frakkar hafi rofið samn-j ingana. Þarf ekki að spyrja um á- hrifin, sem það hefir á Poincare. Hann hefir haldið dynjandi skammaræður um Þjóðvarja og hótar því að þeim skuli hengt verða. “Við erum neiddir til að hegna fyrir þetta, og það skal 'gort verða”, segir hann. Og hegningin er í því fóJgin, að sagt er, að táka meira land af Þjóðverjum. Bar- men og Elberfeld heita tvö lönd í RínardaLnum. Eru það vefnaðar- vörusvæði mikil. Hvað getur á- kjósanlegra verið fyrir Erakka en að ná í þau ofan á alt annað? Þá er mergurinn úr iðnaðinum mikla sem áður var í Þýzkalandi kominn í hendur Frakka. Og í þessum á- . formum er Eakkland stutt af Pól- verjum, Norður- og Suður-Slöfum. Hafa stjómir þeirra sent Poincare orð til vitnis um fulltingi þeira í því er hann aðhéfst til þess að I halda Þjóðverjum í skefjum. Auk I þeesara landa sagði Poincare í ræðu, að ftalía og Rúmenía styddu hann í að vorja og vernda réttindi Frakklands. Lítur því þarna út fyrir að eitthvað muni hæft í skrafinu um ný þjóðasamtök í Evrópu. Aðal-samtökin á móti þessum hljóta að vera Þýzkaland og Rússland. En getur þá England setið hjá?. En hvað sem því líður, eru aðíarirnar hrottalegar. Og aldrei hefir pólitízki jarðvegurinn betur verið yrktur fyrir stíð en nú. Ludendorff er kominn í leitimar og er bráðliíandi. Og honum er heldur ekki eins mikið til saka fundið og fyrst var gert. Við rannsókn í máli hans kom í Ijós, að það rar Hilter foringi fascista flokksins í Bavaríu, sem öllu réði í landráða brasklnu og lað Lluden- dorff var nauðugur verkfæri í hans höndum. Fram'koma Ludendorff gamla er talin lítalaus og hann nýt- ur sömu virðingar og áður. Goldnar skaðabætur Þjóðverja. Þann 15. þ. m. nam féð sem Þjóð- verjar hafa goldið í peningum og vörum 55,000,000,000 (íimtlu og íimm biljónum) gullmarka af skaðabóta- skuld sinni. Og samt er oft talað um, að þeir hafi sama scm ekkert goldið af skuldinni eða sýni en.gan vilja á að efna samnings-loforð sín. Fiume deilunni lokið. Doilunni milli Suður-Slafa og ftala út af Eiume kvað vera lokið. Varð sætt náð með því, að láta ítölum eftir Eiume héraðið, en hluti af hafnarborginni legst þó slöfum til eða verður slafnesk “frí- borg”. Wilson rífur þögnina. Woodrow Wilson fyrverandi for- soti Bandaríkjanna, sem um langt skeið hefir ekki látið til sfn heyra, hélt ræðu á vopnahlés-daginn þ. 12. þ. m. og var hún send víðsvegar með radioskeyta-áhöldum. 1 ræð- unni sagði hann stefnu Bandarfkj- I anna gagnvaiijt heimsmálunum ijálfselska, önuga, hug'bJanda og auðvirðilega. Stærzti fáni í heimi. Stærzti fáni í heimi, er rétt full- gerður 1 bænum Detroit í Machigan ríkinu og vrar hann í fyrsta^sinni tii sýnta 11. ]). m., er það eins og menn vita vopnahlés dagurinn fyrir 5 á.r- um síðan, sem þá var haldinn há- tíðlegur í áðurnefndum bæ. Það þurfti 27 manns í 90 daga að geTa þetta flagg. Stjörnurnar í því eru 6 fet í þvermál og randirnar eru 7 fet á bireidd. Fiagg þetta er 150 því voru 13.500 fet af klæði; þráð- fet á lengd og 90 fet á breidd, og í urinn, sem ti.l þess þurfti að sauma fiagg þetta var 7Ms míla á lengd og kostnaðurinn varð 3,000 dalir. ---------xx------ -- Ur bænum. Kvonfélag Sairn bandssafnaðar hef- ir “Silver Tea and shovver”, að heimili. Mrs. R. Pétursson 45 Home St., á mánudagskv. 27. nóvember, kl. 8, til undirbúnings “Bazar” félagsins er verður haldinn 3. og 4. desember, í samvinnu við fólagið “Aldan”. Allir boðnir og velkomn- ir. — Komið og stytrkið göfugt mál- efni. Hjálparnefnd Sambandssafnaðar efnir til spilafundar, þriðjudaginn 27. þ. m. í fundarsal kirkjunnar. VTæntiir nefndin þess að fjölment varði við skemtun þessa, sökum þess, að ágóðanum verður varið til þess að styrkja sjúkan mann. Islendingum í Saskatchewan skal bent á auglýsingu á öðrum stað í blaðinu um samkomu Steingiríms lækni* Matthíassonar og Gunnars bróður hans. Gefst þeim þar bæði tækifæri að hlýða á góða ræðu og söng og að kynnast góðum gestum. 1 ,gær lézt hér í bænum, Mrs. Guð- björg Sigmundsdóttir Sigurðsson, að heimili sínu 408 MioGee stræti. Jarðarförin for fram á morgun (22. þ. m,) trá St. Mathews-kirkjunni á horni St. Mathewis og Maryland stræta. Hinniar látnu verður minst sfðar. Þakklætishátíðar samkoma kven- félags Sambandssafnaðar var ágæt- lega sótt. enda þau nöfn á skemti- skránni er try.gging voru fyrir á- gsgtri skemtun. Söngurinn tókst með afbrigðum vel, svo að alli'r voru kallaðir upp aftur. Fyrst áungu þau Mrs. Alex Johnson og séra Ragnar ?E. Kvaran duet ‘The Voices”; þó söng hr. Sigfús Halldórs solo, “Era Monte Pincio”, eftir Grieg og fyrir ■'encore” “Mandelay”. Mrs. Alex Johnson söng þá solo “The Robins”, og fyrir “encore” “Nú ljúfa þökk” (úr Sigrún frá Sunnu- hvoli). Hin unaðsfagra rödd frú- arinnar naut sín sérlega vel við þessa söngva. Þá sungu þau Miss Rósa Hermannsson og hr. Sigfús Halldórs duet “'Gfray Days”. Þar næst flutti hr. Bergþór E. Johnson tölu. Var það eina ræðan á skemti- skránni, og var þrungin af fögrum hugsunum og kenningum, eins og hans var von og vísa. Þá söng Mrs. P. g. Dalm'an “Árin”, eftir Doum- zetti úr tónleiknum “Daughtor of the Regiment”, og fyrir “encore’-’ “Um sumardag er sólin skín”, lag- ið eftir Er. Abt.. Þá lék Miss Ásta Hermannsson á fiðlu “Earwell Cucullain”, eftir Kreizler, og fyrir “eneoro” "Hindoo Chant”, eftir Rinnky Korsakov, og tókst frábær- lcga vel. Síðast söng séra Ragnar E. Kvaran solo “For you alone”, og fyirir “encore” hið stóreinkennilega lag Sigvalda [Kaldalóns við kvæði Gr. Thopisens, “Kveldriður”, Svo mikið lófaklapp hlaut það, að hann NÚMER 8 :'%œ09SSSð9ðSðGððð9660ð9S60ð99gðððeQð6CeCOSSt,, I - | Atkvæða yðar og áhrifa 1 er virðingarfylst ! óskað af Robert Jacob fyrir borgarstjóra. Hann hefir átt heima í Winnipeg-borg s. I. 16 ár. Hann hefir veriö meðráðamaður Winnipeg skóla- nefndarinnar í 10 ár. Hann hefir ávalt tekið eindregin þátt í öllum al- mennum málum borgarinnar. Hann er óbrigðull fulltrúi allra íbúanna, og er mjög ant um að þeir sameinist og vinni saman í hvaða stétt eða stöðu sem þeir eru að velferðarmálum bæjarins. | ! v.arð að endurtaka það. Þetta mun vera í fyrsta sinn er það hefir ver- ið sungið hór vestra. Var svo sezt að veitingum og kaffidrykkju í neðiri salnum. Það er trú vor, að garðu sér það iað skyldu að koma stundvíslega. Ráðsmaður Haiin.skringlu þrá sér til Westbourne, Man., á föstu- hinn unaðsfagri hreimur hljómlist- daginn, þann 9. þ. tm. til þess að arinnar á þessari samkomu, muni lengi óma í endurminningum þeiirra er viðstaddir voru. 'heimsækja foreldr.a sína þar. Hann kom aftur á þriðjudaginn, 13. þ. m. Söngvinur. Áframhald aí Malaya ferðaminn- ingum Sigfúsar ílalldórs, koma í næsta blaði. riutningstöt á far- angri höfundarins veldur drættin- um á komu greinarinnar. Mrs. Anna Geistsson frá Mountain. N. D., er stödd hér í bænum. Hún er { kynnisfö". Stúdentafélagið heldur næsta fund sinn í fundar- sal Fyrstu Lúthersku kirkju, þann 24. nóv. kl. 8.15 e. h. Þá fer frain fyrsta kappræða vetrarins. Það er “Ákvoðið að Canada ætti að veita öllum Evrópuþjóðunum jafnan inn- flufcningsrétt”. Neikvæðu hliðina taka þau Skúli Jakobason og Mar- grét Erlendson, en jákvæðu hlið- ina Nielsína Thorsteinson og Guð- rún Eyjólfsson. Auk þess verður gefin tilkynning um fyrirhugaða breytingu stjórnarskrá félagsins. Æskilegt væri að allir stúdentar Á sunnudagmn, þann 11. þeesa mánaðar voru þau Ásmundur Ás- mundsson og Kristbjörg Jónína Elíasson (Jóhannsson) bæði frá Westbourne, Man., gefin saman í hjónaband af séra Sigurði S. Christopherssyni, að heimili for- ældra brúðurinnar í Westboune. Hljómleika, er verður sérlega vel vandað til, heldur frú Jóanna Ste- fánsson, föstudagskvöldið 7. des. n. k. í St. Stephens kirkjunni, til arðs djáknastarfinu í Eyrsta Lút. söfn- uði. Einnig aðstoða: ungfrú Lencadia Vaccari Æiðluspilarinn al^ þekti, og H. Nelson er leikur á flautu. Mrs. Dr. B. H. Olson leikur á píanó. Aðgöngumiðar verða til sölu hjá djáknum safnaðarins og hjálparmönnum þeirra. Einnig hjá J. J. H. McLean Music Co. Portage Ave. Þar byrjar salan 30. nóv., og kosta $1.00, $1.50 og $2.00. — Skemti- skráin verður auglýst í næsta blaði.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.