Heimskringla


Heimskringla - 23.07.1924, Qupperneq 5

Heimskringla - 23.07.1924, Qupperneq 5
WINNIPEG, 23. JÚLÍ, 1924. HEIMSKRINGLA 6. BLAÐSIÐ Gullfoss Cafe (fyr R/Ooney’s Lunch) 629 Sargent Ave. Hreinlæti og smieikkvísi ræðratr í matartilbúninig'i vorum. Lítið hér inn og fáið yður að biorða. Höfuim 'Oinnig altaf á boðstól- um: kaffi og aUskonar bakninga; tóbak, vindla. svaladrykki og skyr. Ný bók. Islenzkar Þjóðsögur og Sagnir. Safnað hefir og skráð Sigfús Sig- fússon, er nýkomin út hér í Prent- smiðju Austurlands. Þetta ©r II. hefti safnsins og er 14 arkir í stóru 8 bl. broti eins og hið I. hefti, sem var 6Í4 arkir. Pjósagnasafn Sigfúsar er hið allra stærsta og merkilegasta af l>eirri tegund í íslenzkum bókment um. Pram yfir önnur þesskonar rit, gefur því .alveg sérstakt og veiga- mikið gildi, hin mikla nákvæmni og vöndun í niðurröðun og skipun í flokka. Til þess hefir þurft mikla alúð og elju. Enda hefir Sigfús gert þetta að lífsstarfi og lagt sig all- an óskiftan í dráttinn, og síðan á hlunnana gegn ýmiskonar andbyri og öfugstreymi til þess, að róa safn- inu heilu til ihafnar. Tveimur hleðsl- um hefir hann nú kastað upp í vörina og hinir, sem á landi standa hirða þær og hagnýta sér En það sem komið er af safninu, mun ekki vera nema tíundi hluti þess, og flest það bezta eftir. Ekki verður því neitað, að sum- staðar bregður fyrir sannanavið- leitni fyrir, að atburðir þeir, er sagt er frá, séu eðlilegir. En þar lítur hver á sem honum sýnist, svo það skifti ekki svo miklu máli, enda gætir þess minna síðar. Hitt er meira vert, að höf, hefir bjargað miklum fræðum frá glötun með safni þessu og á verðugt lof skilið fyrir. Prentun, pappír og allur frágang- ur bókarinnar er hinn vandaðasti. Munu áskrifendur og aðrir gleðj- ast yfir að fá bókina, sem ekki kostar nema 8 krónur, en liin, sem var meira en helmingi minni þ krónur. ‘fHænir”—Seyðisf. Hugarbeimur. Hve sælt og rótt við sjafnarlaug að dreyma, rAð sjá þar glansa vonarstjömu heima. 1 hugarhlíð að mega, Helgan samfund eiga. Hvo ijúft mér finnst þá lífið sjálft að teyga. Ein lifir þrá að líða heims frá þrautum, I leiðangur á sóiarkerfa brautum, Astarörmum vafin, Engum meinum tafin, Par sem leið til sigursælu er hafin. Ef gæti eg brúað vissu, vafa sund- ið, En viðjum holds er sálarlífið bund- , ið. Hratt sem fugiin fleygir, Eramsókn andinn heyjir, En fjötrum lemstrað likþrátt frelsi þegir. 'Oft langar hug að lyfta sólartjaldi Og leynast þar hjá duldu guða- valdi Yrkir akurlendi, Alvalds máttarhendi, 1 sefi því, er sæiu fyrst eg kendi. Yndo. Brúðkaup. Laugardaginn 19. þ. m. voru þau feefin í hjónaband ungfrú Kristín ÍRannveig Byron, 637 Alverstone etræti hér í borginni og Bergthór Emil Johnson frá Lundar. Gift- ingin fór fram í kirkju Sambands- safnaðar, sem var smekklega blóm- um prýdd, en séra Albert Kristjáns- eon gifti. Svaramaður brúðgum- ans var Stefán E. Johnson frá Lundar, en fbrúðurinni fyigdi að ^ltarinu, ungfrú Margrét Hallson. Lngfrú Rósa Hermanson söng í Lirkjunni og söng ágæta vel. A eftir- giftingunni var ágætlega ekemtilegt, fjörugt og fjölment sam- sæti að heimili Mr. og Mrs. Bjöms Hallson, 638 Alverstone stræti, en Mrs. Hallson er systir brúðurinn- ar. Voru nálega allir veizlugestir nánustu vandamenn og vinir brúð- hjónanna. Skemtu menn sér við söng og ræðuhöld lengi kvölds. Ungfrú Rósa Hermanson og Sigfiís Halldórs frá Höfnum sungu, en þeir séra Albert Kristjánsson, séra Rúnólfup Marteinsson og Ágúst Magnússon írá Lundar ávörpuðu brúðhjónin í óbundnu máli. Kvæði til brúðhjónanna fluttu þau Mrs. Oddfríður Johnson, móðir brúð- gumans, og hr. Ágúst Magnússon frá Lundar. Eru bæði kvæðin prentuð hér í biaðinu. Eaðir brúðgumans, hr. Einar Johnson er ættaður úr Svarfaðar- dal í Eyjafirði, sonur Porkels Jóns- sonar bónda, er bjó á Lorsteins- stöðum, en móðir brúðgumans er ættuð úr Borgarfirði í Mýrasýslu vestra. — Eaðir og móðir brúðar- innar era bæði rétttrúaðir Hún- vetningar, og er það sem bezt má verða. Móðir hennar, Margrét Kristmundsdóttir, er ættuð úr j Miðfirði, en faðir hennar Björn Byron, er sonur Bjöms bónda í T>órormstungu í Vatnsdal, en bróð- ir séra Jónasar Bjömssonar frá Ríp, er druknaði ungur um 1870. Eru þeir frændur af Snæbjarnar- eða Grímstungnaættinni, og komn ir af Steini Hólabiskupi, ef rétt er með farið. Björn Byron bjó síðast í Valdarási í Húnavatnssýslu, áð- ur en hann fór hingað vestur. Mr. og Mrs. Bergthór Johnson hafa tekið sér bústað að Domin- ion stræti 1025. — Óskar Heims- kringla þeim til hamingju, nú og um alla framtíð. Avarp til Mr. og Mrs. Bergþór Emil Johnson, við giftingu þeirra 19. Júlí 1924. Mér kom til hugar að ef eg yrði! staddur á þessu gleðimóti væri j máske viðeigandi, að eg segði fáein orð, til þess að vera með, og að í vinahóp þyrfti ekki að ó.ttast út- sendingar, því þar hefði umburðar- lyndið æðstu völd, samt væri ófróð. um mönnum vissara að reyna ekki að kafa djúp vísindanna né heim- spekinnar, heldur reyna að segja eitthvað það sem enginn gæti hrak. ið, vitandi að tilhneigingin til sókn- ar hefur griðastað í hugum margra. Eg fann efnið og reit það á blað, því hjá mér verða hönd og heili að vinna saman, ef framsetningin á að verða skiljanleg. Efnið er ekki nýtt, Adam og Eva hvísluðu því hvort í annars eyra, cr. samt hefur nútíðin gagn og gam. an af að endurtaka það, það 'bein- ir okkur veginn til velferðar, sem svo margir leita og munu leita, það er spurningin sem framsóknarþráin beinir að oss hvaða braut er greið- ust til velferðar og svörin eru skýr — úrlausnin er bein; það eru ekki gömlu setningarnar að “með illu skal ilt út drífa” eða “auga fyrir auga og tönn fyrir tönn”, — nei, það eru önnur öfl sem skapa velferð mannanna, það er hrein, einlæg vin- átta, með öðrum orðum, elska, eða skýrasta orðið kærleikur, það eru aðal öflin, öflin sem allir þekkja, en sem stundum gleymast enda tínast í ruslakistu heimsins, “án kærleiks sólin sjálf er köld”, segir skáldið, og án kærleiks gæti ekkert líf þrif- ist á þessum hnetti, þessar stað- hæfingar getum við óupplýstu og ó- mentuðu mennirnir boðið hvar sem er, vitandi að engin sönn rökfærsla fær þær hrakið. I3ar nær okkar skilningur eða skilningsleysi, föst- um tökum, og í hvert skifti sem trygða heit eru bundin, mætti segja að, persónurnar gengju í lífsábyrgð, iðgjöldin væru ástin og elskan, en kærleikurinn sem væri ábyrgðin fyrir vellíðan félli ekki úr gildi, eins og aðrir peningar við gröfina, held- ur fylgdi hinum ódauðlega anda inn í eilífðina. Prestarnir og kennifeður vorir hafa verið lífsábyrgðar umboðs- menn í þessum skilningi um marg- ar aldir, en því miður hefur þeim gengið illa að setja menn og konur í æfi langa í lífsábyrð — of margir hafa hætt að borga sín iðgjöld og ábyrgðin því tapast. 1 þetta sinn vil eg óska, að þess- um presti hafi lánast að taka ykkur ungu brúðhjón í æfilanga lífsábyrð, sem ykkur auðnist að geyma og vernda, — ekki aðeins til hinstu iífsstunda hér, heldur um alla eilífð, svo að ykkar erfingjar eigi þar vísa vernd, og fjársjóð. BRÚÐKAUPSKVÆÐI til Mr. og Mrs. B. E. Johnson 19. júlí, 1924. Hvað iýsir mönnum iífs á braut Um leiðir villu gjarnar? Hvað eyðir sorta sorg og þraut Er sveipar leiðir farnar? I>að stærsta ljós er Guð oss gaf Og geymir kærleik mestann, Sem flytjast má um fold og haf Og fögnuð veitir beztann. / i í>au trygða heitin hér í kvöld, Sem hugar eining festa, Gilda meira en gull og völd Það gróða sporið mesta. Nær hugur tengir sál við sál Er sólar börnum fundin. Hin stærstu gæði er málar mál Hin mesta sælu stundin. Við hræðumst hvorki hret né stríð Ef hugar eining vakir, Og vogum flest því vonin blíð Er vörn sem hrekur sakir Kú biðjum öll að brúðhjón kær, Hin beztu gæði finni Lar sem að ástin oftast hlær Svo ykkar drekk eg minni. Brúðkanpskvæði til MR. OG. MRS. BERGTHOR E. JOHNSON, Við giftingu þeirra, 19. júlí, 1924. Hún björt yrði börnin mín kæru og brosandi, framtíðin sú, er mála þær óskirnar allar, sem efst eru í huga mér nú. Þá skylduð þið ganga til gæfu og gleði, hvert einasta spor, og skammdegis skuggarnir breytast í skínandi sólskin og vor. En þó að ég bænir fram beri um blessandi farsæld og auð, Svo vel getur farið að verði á vegi ykkar þrautir og nauð. En lyftið þá byrðinni bæði og berið með samhuga hrygð, Og umkringi heimilið ykkar til ánægju, mannúð og dygð. Og brúðhjóna-krans ykkar knýti, svo kærleikur eining og traust, að ekkert blóm fölni né falli, sem fegra má æfinnar haust. Oddfríður Johnson. 3G 3E 3E 3E DE NY SOGUBOK. NOKKRAR SÖGUR EFTIR FRÆGA HÖFUNDA. Gefnar út á kostnað THE CITY PRINTING & PUBLISHING CO. 853-855 Sargent Ave., Winnipeg, Man. VERÐ í KÁPU 50 cents. Bókin er 210 blaðsíður í 8 blaða broti, og fæst keypt hjá útgefendum og íslenzku bóksölunum í Winnipeg, og er innihald hennar, sem hér fylgir: Húsbóndi og þjónn, eftir Leo Tolstoi. Þýtt af Stefáni Einarssyni. Flakkarinn og Álfamærin, eftir Jack London. Þýtt af Axel Thorsteinssyni. Betra eyrað á Elíasi skipstjóra, eftir Frank R. Stockton. Þýtt af séra G. Árnasyni Brunnurinn, eftir Frank R. Stockton. Þýtt af séra G. Árnasyni. Glataði faðirinn, eftir Jack London. Þýtt af Axel Thorsteinssyni. ónýtjungurinn, eftir Frank I. Klarke. Þýtt úr ensku. 03 ÍL 3C 3C 3E 3E J KOL! - - KOL! HREINASTA og BESTA TEGUND KOLA. bæíi til HEIMANOTKUNAR og fyrir STÓRHÝSI. Allur Rutningur me5 BIFREIÐ. Empire Coal Co. Limited Simi: N 6357—6358. 603 Electric Ry. Bldf. Nýjar vörubirgðir Tunbur, Fjalviður af öiliua tegundum, geirettur og aib- konar aSrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar. Komið og sjáið vörur. Vér erum ætíð fúsir að sýna, þð ekkert sé keypt The Empire Sash & Door Co. L i m i t e d HENRT AVE. EAIST WBNNIPEG HEIMSINS BEZTA MUNNTOBAK COPENHAGEN Hefir góðan keim Munntóbak sem endist vel Hjá öllum tóbakssölum. 7SWANRIVER DAUPHIM BUTTER FACTORIES REAU5EJOVR PORTACE IA PRAIRIE WHMIPEG Sendið allan rjóma yðar til næstu “Crescent” verzlaninnar og fáið þannig fu lt verð. CRESCENT CREAMERY CO. LIMITED. Yfir 600 íslenzkir nemendur hafa gengið á Success verzlunarskólann síðan árið 1914. Skrifstofuatvinna er næg í Winnipeg, atvinnu- og iðnaðar- miðstöð Vesturlandsins. Það margfalt borgar sig að stunda námið í Wiimipeg, þar sem tækifærin til þess að fá atvinnu eru flest, og þar sem þér getið gengið á Success verzlunarskólann, sem veitir yður hinn rétta undirbúning og nauðsynlegu æfingu. Þúsundir atvinnu- veitenda taka þá, sem útskrifast úr Success-skólanum, fram yfir aðra, og þér getið byrjað á góðri vinnu strax og þér ljúkið námi við þenna skóla. SUCCESS BUSINESS COLLEGE er öflugur og áreiðanlegur skóli, — kostir hans og hið ómetanlega gagn, sem hann hefir unnið, hafa orðið til þess að hin árlega nemendatala skólans er langt fram yfir tölu nemenda í öllum öðrum verzlunarskól- um Manitoba samanlögðum. SUCCESS er opinn árið í kring. Innritist á hvaða tíma sem er. Skrifið eftir upplýsingum. Þær kosta ekkert. The Success Business College, Ltd. Horni Portage Ave. og Edmonton St. WINNIPEG — MAN (Ekkert samband við aðra verzlunarskóla.) GAS OG RAFMAGN JAFN ÓDÝRT ÓKEYPIS INNLEIÐING Á GASI f HÚS YÐAR. Við höfum ágætt úrval af gaseldavélum, sem við ábyrgjumst að þér verðið ánægðir með. Gefið auga sýningu okkar á Gas-Vatnskitunartækj- um og öðru. WINNIPEG ELECTRIC CO. Á FYRS 7A GÓLFI Electric Railway Chambers.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.