Heimskringla - 10.09.1924, Qupperneq 1
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBtTÐIR
ROYAU,
CROWN
Sendií eftir vert51ista til Royal
Crown Soap Ltd^ 664 Main St.
Winnipeg.
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
ROYAU,
CROWN
Senditi eftir vertSlista til Royal
Crown Soap l.t <1.. 654 Main St.
Winnipeg.
XXXVIII. ÁRGANGUB.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 10. SEPTEMBER, 1924.
NÚMER 50.
CANADA
"On-to-the-Bay” félagið hefir ný
iega iátið í ljósi ánægju sína yfir
framtíðarvonum um að Hudson
flóahrautin muni fullgerð áður
langt um iíður. Var ]>ess getið í
samsæti er félagið hélt, að Máni-
toha og Saskatehewan ráðuneytin
væru einhuga um það, aó stefna til
íundar við samlbandsstjórnina, til
J>ess að hinda enda á samninga
um þá skilmála er settir kunna
að verða, svo að fé fáist til hraut-
arspottans, sem eftir er. Lýsti
félagið og ánægju sinni yfir ræðu er
landbúnaðarráðherrann Hon. ,W.
®. Motherwell nýlega hélt að “The
Pas”. Kvaðst hann sannfærður
um, að auðæfi þau er Norður
Manitoha og Ontario hera í skauti
sínu, á landi og í legi, — málmar,
timbur, íiskur og grávara — væru
svo mikil, að þar gæti hver
atvinnulaus maður í Canada og
meir en það, fengið næga atvinnu,
©f brautin yrði fullger.
Auðmenn suður í (Bandai'íkjum
eru að hugsa um að setja á stofn
sykurverksmiðju hér í Winnipeg. Á
verksmiðjan að vinna úr sykurróf
um, en þær á að rækta hér á
gresjunum (preríunum). Eru þær
vitanlega ágætlega til þess fallnar,
og mikið mein að samvinnufélags
skapur skuli vera svo óþektur hér,
að hændum ekki sjálfum hefir
dottið í hug að mynda með sér
sykurræktarfélag líkt og t. d.
bændur á Lálandi í Danmörku,
er græða stórfé á sykurrækt
árlega.
Portland Ore., og mjög frægur
skurðlæknir, fyrirlestur um krahha-
mein. Kvað hann nú svo koináð,
að langoftast væri hægt að lækna
það. ef það einungis væri tekið
nógu snemma. Vildi hann láta
koma því skipulagi á, að hver mað
ur væri rannsakaður áriega, eða
jafnvel oftar en einu sinni á. ári.
Sterk hreyfing er sögð að vera í
Yugo-Slavíu, um að breyta stjóm
arskránni, þannig að hvert hérað
fyrir sig fái sjálfsstjórn, en hafi
með sér samband, og lúti einni að-
alstjórn. Yugo Slavía er það, sem
áður hét Serbía, að viðbættum
þessum umræddu héruðum sem eru
Slóveíiía, Króatía, Montenegro,
Makedónía, Bosnía, Herzegov-
ína og Dalmatía, við Adríahaf.
Stjórnarvöld, verkamenn og at-
vinnurekendur hafa átt fund með
sér í Ottawa, til þess að reyna að
sjá við atvinnuleysi hér í landi, og
ræða með sér hvað hið opinbera
geti gert í því efni, að stofna til
atvinnu fyrir þá er enga hafa.
TJl 1 arframl eið.sia í Cagiada nam
15,539.416 pundum árið sem leið.
í>að er mjög lítið samanborið við
mannfjölda og sérstaklega þegar
litið er á landkosti.
Á læknafundi hér í Winnipeg,
hélt Dr. Robert D. Ooffey, yfir-
læknir við sáralækningarhúsið í
Prá Toronto er símað 9. þ. m., að
þann dag hafi aftur hyrjað yfir-
heyrslur í Homcbankamálinu. Var
fyrst kallaður Ocean G. Smith fyr-
verandi yfirbókfærslumaður hank-
ans, og sakaður um að hafa fals
að skýrslur sínar til fjármálaráð-
herra þvert ofan í bankalögin.
Líkum ákærum, sem og öðrum;
hafa þeir orðið fyrir R. P. Gough,
S. Casey Wood, J. P. M Stewart,
C. A. Barnard, Clarence P. Smitfi Og
P. J. B. Russill, allir hankastjórar
þá er hrunið har að höndum, og svq
endurskoðandi. Sydney H. Jones.
Aðalhankastjórinn, iH. J. Daly dó
nokkru eftir að málssókn hófst,
sem menn sjálfsagt rekur minni til
100 vitnum hefir verið stefnt, og er
öúisb við að yfirheyrslur muni end-
ast nokkra mánuði.
Bandaríkin eru nú að láta byggja
sér Zeppelin-loftskip í Priedrichs
hafen í Þýzkalandi. Skipið á að
heita “Z. R.=3” og er stærsta loft-
skip er bygt hefir verið. Dvermál
belgsins er 100 fet, og er honum
skift í fjórtán hólf, og má gasfylla
öll. Skipinu á að sigla til Ameríku
5. október. Hyggjast Þjóðverjarn-
ir munu fara þá leið á 50 klukku-
tímum. • (í«; wSfí1
Enn standa Djóðverjar fremst
um aliar hugvitssmfðar. En Banda-
mönnum og Ameríkumönnum mun
sennilega ekki þykja útaf eins
“djöfullegt”, þegar þeir nú sjálfir
í næsta stríði fara að nota Zeppe-
lin skipin til árásar á borgir, eins
og þeim fanst það, þegar Þjóð-
verjar byrjuðu á því 1914.
Nú er loks fundið líkið af Gia-
como Matteotti, — Dingmanninum
ítalska, er myrtur var af Mussoiini-
stjórninni og Fascistum. Verður
hann grafinn með mikill hluttekn-
ingu frá alrnenningi og stendur
Titta Ruffo, hinn heimsfrægi söng-
maður, sem var mágur hins iátna
fyrir útförinni, ásamt systur sinni
Kom Ruffo beint frá Suður-Ame
ríku til þess að auðsýna hinum
látna síðustu lotning.
Önnur lönd
Á efnafræðingafundi þeim, sem
inýlega var haldinn í Khöfn gaf
|Einar Biilmann prófessor skýrslu
nm nýja aðferð, sem hann hafði
eagt frá 1920, og gerir auðvelt að
finna hve mikið af sýTum sé í ýms-
um efnum. Dr. med. Henriques seg
ir frá því í “Berl. Tidende”, að Biil
mann hafi tekist að koma lengra
áleiðis rannsóknum próf. Sörensen,
forstöðuma^ms Carlshera stofnun-
arinnar, á þessu sviði, vsvo að nú sé(
hægt að finna sýrumiagn ræktaðra
jarðefna með fullri nákvæmni og á
styttri tíma en áður. Hingað til
hefir þurft 3 tíma til rannsóknar-
innar, >en nú er hægt að gera hana
á 3 — 5 mínútum. Sýrumælingin
verður því miklu þýðingar-
meiri en áður, þvf nú má strax
finna, hvernig á að fara með jarð-
veginn til þess að hann innihaldi
þau efni, sem gróðrinum koma
hezt og er þetta einkum þýðingar-
mikið fyrir komyrkjuna. Akur-
svæði Suðurjótlands, er það mikv
ið, að með gömlu aðferðinni hefði
þetta tekið 2—3 ár. en verður
nú gert á tveimur vikum.
Kýja aðferðin er einnig þýðingar-
m'ikil fyrir rannsókn sýru í mjólk-
urafurðunum, einkum f ostaefni og
getur skift miljónum fyrir land
búnað Dana.
þar um 2500 árum fyrir Krists fæð-
ingu. Hefir kínverskur mentamað-
ur, William P. Pong ráðið sumt af
letrinu og kveður það vera kfn-
verskt. Bendir það til þess, sem
■sumir hafa getið sér til. að
mongólskar þjóðir hafi áður hygt
Bandaríkin og jafnvel suður um
Mexico.
Porsætisráðherra - Norðmanna,
Mowinckel, sem fer og með utan-
ríkismálin, hefir skjallega tilkynt
alþjóðasamlbandinu, að norska
stjórnin sé mótfallin ábyrgðar-
samningnum svonefnda, er fram
hefir átt að legga til samþyktar. —
Samlkvæmt þessum áhyrgðarsamn-
ingi á að skifta Evrópu í deildir, og
eiga þjóðirnar innan hverrar ein-
stakrar deildar að áhyrgjast frið
inn í þeirri deild.
Mowinckel kveður það álit
stjórnarinnar, að þessu fyrirkomu-
lagi fylgi aukin ábyrgð að eins, en
öryggi lítið. Muni það seinka af-
vopnun og sennilega verða til þess
að fjöldi ríkja muni hnappast sam-
an í þrengri klíkur en áður, og
því aðeins leggja grundvöll undir
nýja “sambandspólitík” og nýjar
styrjaldir.
Pundist hefir letur höggvið á
etein nálægt Yirginia City í Nevada
Yatnagangur er feikilegur austur
í Asfu hinni rússnesku af völdum
árinnar Amu-Darya. Hefir þar um
slóðir ekki komið annað eins flóð í
2o ár, og er þó vatnsagi þar oft
mikill, því láglent er. Um 2000
þorp og hæir eru undir vatni, fjöldi
manns hefir farist og eignatjón orð
ið geysilegt.
Dað væri ekki úr vegi fyrir önnur
lönd að taka þenna dómsúrskurð
sér til fyrirmyndar.
Eigandi Union Club Motor
Delivery í Chicago, I. R. Emery að
nafni, hefir afhent sex starfsmönn-
um sínum, þar á meðal syni sínum,
verzlanina til eignar og uinráða.
Kveður hann þetta ekkert eiga
skylt við góðgerðasemi. Sé það að-
eins réttmæt þóknun fyrir 37 ára
dyggilegt starf. er þessir menn
hafi af hendi leyst. Verzlanin er
metin 100.000 dala virði.
Kínverska stjórnin í Pekin, hefir
varað unga námísmenn við því, að
leita mikið til amerískra háskóla.
Kveður hún ráðlegra fyrir þá, að
leita til háskólanna í Evrópu, þvf
þar sé trygging fyrir því, að míenn
læri eitthvað. 1 Ameríku séu aft-
ur á móti fjöldi háskóla er veiti
hinar og þessar nafnbætur nemend
um sínum, en litla kunnáttu og jafn
vel einskisverða til vísindamensku.
Prá Moskva er símað, að rúss-
neska stjórnin hafi ákveðið að
leyfa að flytja út úr landinu um
40.000.000 mæla af korni í ár. öll
korntekjan er talin að muni nema
um 2,700,000,000 púd. (Púd er hér-
umbil 36 pund). En þetta er þó
vitanlega þeim skilyrðum bundið,
að séð sé fyrir þörfum manna í
þeim héruðum, er uppskera hefir
hrugðist. Stjórnin hefir með hönd-
um mikið verk í þá átt, að færa
út rúg- og hveitiland næsta
ár.
Hæstiréttur í Þýzkalandi hefir
nýlega úrskurðað, ag ekkert blað,
eða tímarit liafi rétt til þess að
flytja myndir af einstökum mönn-
um, nafngreindum eða ónafngreind1 Walton virðast ætla að reka þann
um^ nema með leyfi þeirra sjálfra. ófögnuð af höndum sér.
Frá Madison Wis., er símað 5.
þ. m., að John J. Blaine ríkisstjóri
hafi þann dag vikið Goorge B.
Clementsson, héraðslögmanni frá
embætti, fyrir að neita að taka
nokkra Ku Klux Klan menn fasta,
en það verk hafði ríkisstjórinn
falið honum á hendur. — Er gott
að sjá. að fleiri ríkisstjórar en
Nýjustu frjettir frá Islan'di.
Sfra Bjarni Jónsson hefir verið
skipaður dómkirkjuprestur. Um-
sóknarfrestur him annað prestsem
bættið er til 30. sept.
Kæliskipið. — Kæliskipsnefndin
hefir nú verið skipuð. Emil Niel
sen framkvæmdastjóri Eimskipa
félags íslands er formaður nefnd
arinnar, Jón Árnason framkvæmda
stjóri af háifu Sambandsins, Carl
Proppé kaupmaður af hálfu Verzl-
unarráðsins, Halldór Dorsteinsson
skipstjóri af hálfu Fiskifélagsins og
Tryggvi Þórhallsson ritstjóri af
hálfu Búnaðarfélagsins. Nefndin
hefir haldið fyrsta fund sinn og
skift með sér verkum.
Akureyri 31. júlí.
Síldveiðarnar. — Sem stendur
eru komnar 41,OOo tunnur af síld á
land á Siglufirði og Eyjafirði. Ait
er í óvissu um verðið, en eina hætt
an er sú, að of mikið verði saltað.
Tveir farmar af saltaðri síld hafa
Verið fluttir út frá Sialufirði, og
um 20,000 mál eru komin 1 hræðslu
á Krossanesi. Er aflinn meiri en
á sama tíma í fyrra.
Pimta læknaþing íslands var
sett hér í dag klukkan tvö í Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri af for
manni félagsins, próf. Guðmundi
Hannessyni. Idngið sitja 19 ís-
lenzkir læknar og ennfremur einn
danskur læknir, dr. Svendsen, sem
er hér í erindum Rauða krossins og
dr. Samhon, sem vinnur að krabba-
meinarannsóknum. — Porseti þings-
ins hefir verið kosinn Þórður Thor-
oddsen iæknir. Á dagskrá í dag er
meðal annars krabbameinsrann
sóknir og umræður um Kauða
krossinn og væntanlega þáttöku ís-
lands í þeim félagsskap.
Á læknaþinginu í dag mintist
formaður félagsins fyrst sex lækna,
sem látist hafa síðan í fyrra. Síðau
hófust umræður um alrnenn máLDr
Sambon hélt mjög merkilegan fyrir
lestur um krabbamtein og urðu
nokkrar umræður á eftir. Dr.
Svendsen flutti stórmerkt erindi
um Rauða krossinn og starfsemi
hans og var kosin þriggja manna
nefnd til að athuga afstöðu
lendinga til þess máls.
ís-
Prá stórtemplar íslands harst
þinginu svo hljóðandi skeyti:
“Stórstúkuþingið óskar hinu ís-
lenzka Læknafélagi allra heilla í
Flugmennirnir amerísku á Islandi.
Reykjavík 5. ágúst.
Simfreg
nir*
Hornaf. 4. ágúst, kl. 1.30.
Flugmennirnar Nelson og Smith
dáðust að öllum undirbúningi
undir komuna til Hornafjarðar af
hálfu Crumrine liðsforingja, 3?ór-
halls Daníelssonar og Bjarna Ey-
mundssonar, sem er umsjónarmað
ur við flugsvæðið. Svo vel var
gengið frá öllum merkjaduflum og
stöngum að bálin reyndust alveg ó-
þörf, en áður en Nelson kom á
laugardaginn vöru þau kynt oll
tíu, eitt við hvert lendingarmerki.
Lendingarstaðinn telja þeir fyrir-
taks góðan og miklu betri en þeir
höfðu búist við. Segja þeir hann
líklegan til framhúðar og hentugan
til að taka sig upp af, hvort held-
ur er til austurs eða vesturs. L>að
telja þeir ennfremur kost hve
fjallasýn sé góð í bærilegu veðri,
og svo einkennileg, að glögg leið-
beining sé að henni. Nelson sá fyrst
Vesturhorn og var þá í mikill fjar-
lægð.
Hornaf. 5. ágúst, kl. 9,25.
Piugvélarnar fóru héðan kl.
Uppflugið gekk ágætlega.
9,15.
Hornaf. 5. ágúst, ki. 13,30.
Öllum sem á horfðu þótti pn-
aðslegt að horfa á uppflug þeirra
Smith og Nelson er þeir létu í loft
héðan. Fór Smith fyrst af stað og
Nelson síðan og stefndu upp í hæg
an vind inn eftir Mikleyjarálnum
og flugu síðan í hoga yfir kaup-
staðinn. Var þá glaða sólskin og
fjailasýn ágæt. Sáust þeir síðast
hverfa fyrir öræfajökul.
Plugmennirnir voru mjög hrifnir
yfir náttúrufegurðinni hér, fólkinu
Og öllum móttökum. Sögðu þeir
að alstaðar þar sem þeir hefðu
komið, hefði sér verið vel tekið, en
þó ekki síst í Homafirði. Dað
vakti undrun þeirra hve marga
enskumælandi menn þeir hittu fyr-
ir hér, að samanburði við það sem
verið hafði á öðrum viðkomiustöð-
um þeirra á leiðinni.
Þórhallur Daníelsson útgerðar-
maður, sem er umboðsmaður flug-
leiðangursins hér, hafði þoð inni
fyrir flugmennina í gærkveldi.
Til Reykjavikur.
Hér var uppi fótur og fit í morg-
un, þegar það fréttist, að flugvél-
arnar hefði lagt af stað frá Homa
firði í morgun kl. 9,15.
Smátt og 'smátt voru fregnir að
berast af þeim, frá sím/astöðvun-
um, sem sáu til þeirra, og fyrir há
degi tóku menn »ð safnast saman
víðsvegar um bæ. Mest fjölmenni
var við Skólavörðu, listasafn Ein-
ars Jónssonar og líkneski Ingólfs
á Amarhóli.
Laust fyrir kl. 2 sáu menn mieð
berum augum til flugvélanna yf-
ir Reykjanesfjallgarði. Bar þær
yfir Skildinganes frá Listasafni
Einars Jónssonar. í fyrstu sýnd-
ust þær eins og smádeplar og urðu
ekki greindar nema í svip, en
skýrðust brátt. Þær flugu sam-
hliða, önnur að eins lítið eitt ofar
en hin og stefndu á miðjan hæinn.
austur á móts við tjöm, heygði
hún skyndilega niður yfir mið-
bæinn og fram eystri hafnarbakk-
ann og lenti á innri höfninni. Tókst
það ágætlega.
Meðan þessu fór fram, hafði Nel-
son farið í sveig yfir hæinn og
rendi sér síðan niður yfir austur-
garðinn og settist utarlega á innrl
höfninni og farnaðist ágætlega.
Smith lenti kl. 2,10, en Nelson
kl. 2,15.
Á innri höfninni höfðu verið
lögð þrjú flotholt, sem átti að
leggja flugvrélunum við, þegar þær
kæmu af ytri höfninni, og við hvert
flotholt lá 100 feta löng lfna með
korki á. Var hún sett til þess, að
flugvélamar gætu með hægu móti
fest sig við flotholtin.
Skemtibáturinn Kelvin jvar Ját-
inn vera til taks hér inni á höfn
inni. Fomiaður hans, ólafur Ein-
arsson, hefir verið í þjónustu Mr.
Crumrine’s undanfarna daga.
Hafnarstjóri hafði og til vonar og
vara, látið hita upp vélhát Pred-
riksens kaupmanns, til þess að
hafa hann til taks, ef á lægi, en til
þess kom aldrei.
Borgarstjóri beið í bifreið ínp
hjá Kleppi, og ætlaði þaðan í háti
út til flugvélanna, ef þær tæki
lending inni í sundum.
En nú fór sem fór: — 3>ær rendu
báðar niður á innri höfnina. Pyrri
flugvélin virtist stefna á það
flotholtið, sem lá í miðju, en harst
vestur fyrir það í áttina til þess,
sem vestast lá.
Hafnarstjóri, Dórarinn Krist-
jánsson, hrá þá við og fór út &
höfn og með honum bæjarlæknir
Magnús Pétursson. Póm þeir á m.
h. Kelvin, og var honum lagt að
flugvélinni Hún hafði þá náð í
vestasta flotholtið, en fékk kaðal
frá Kelvin, til þess að festa sig
sem bezt.
Á meðan því fór fram hafði hin
flugvélin sest, og fór hafnarstjóri
þegar til móts við hana, en hún
haðfi þá fest sig við flotholtið og
þarfnaðist engrar hjálpar. Síðan
tók hafnarstjóri alla flugmennina
í Ivelvin og flutti þá upp á stein-
hryggju, en f sama bili komu bát-
arnir innan úr sunduml. Varð þar
hinn mesti fagnaðarfundur með
þeim flugmönnunum og Mr.
Crumrine og lögðu þeir allir jafn-
snemma að bryggjunni. — Var
þar afarmikið fjölmenni og þar
kom þá borgarstjóri í tæka tíð til
þess að heilsa flugmlönnunum.
Ávarpaði hann þá nokkrum orð-
um, bauð þá velkomna og hað þá
vejra gesti bæjarinis, tmeðan þeit
dveldist hér. Árnaði hann þeim
allra heilla og tók (mannfjöldinn
undir það með ferföldu húrra-
hrópi.
Síðan stigu flugmennirnir upp í
hifreiðar og flutti borgarstjóri þá
suður til Álfheima, bústaðar Jóna-
tans Þorsteinssonar kaupmanns,
og er þeim þar ætlaður dvalar-
staður, meðan þeir verða hér.
þingstörfunum og heitir á þing j>ær voru stöðugar á fluginu og
ig og læknastéttina I heild til sam-
úðarfullrar samyinnu við Góð-
Templararegluna í verndarstörfum
hennar fyrir heilbrigði íslenzku
þjóðarinnar”. hessu skeyti svaraði
læknafundurinn þannig: “Lækna-
þingið 1924 þakkar kveðju Stórstúk
unnar og tilboð hennar um sam-
vinnu í heilhrigðismálum.”
urðu allmikilfenglegar er þær
rendu inn yfir bæinn. Plugu þær
yfir austurbæinn, ofan við Ingólfs-
stræti, en sveigðu vestur yfir innri
höfnina hjá gamla “batterfinu” og
síðan í hring yfir vesturbæinn.
Heyrðist þyturinn af þeim yfir all-
an bæ.
Þcgar flugvél Smith’s var komin
Aðmírálsskipið Richmond, sertí
hingað kom í gærmorgun um líkt
leyti sem flugvélamar, er með
stærstu herskipum. sem hingað
hafa komið, eins árs jgamalt og
eitt hraðskreiðasta skip í flota
Bandaríkjanna.
Á því skipi komu þeir flugmenn-
irnir Lieut. Wade og Ogden, og
einnig sex blaðamenn frá
Bandaríkjunum, sem getið er
um. — Seinna um daginn komu tvð
minni herskip, Billingsley og Reid,
en í morgun kom beitiskipið Ra-
(Pramh. á bls. 5).