Heimskringla - 14.10.1925, Blaðsíða 7
WINNIPEG 14. OKT. 1925.
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSÍÐA
Höf u?5 verkir, bakverkir, þvagteppa,
þvaglát og önnur hættuleg merki um
nýrnasjúkdóma, munu brátt hv'erfa,
ef GIN PILLS er neytt reglulega. Þær
kosta 50 cents í öllum lyfjabúöum og
og lyfsöluverzlunum.
\:ilional l)riig A (’hemieal ("Smiiiany
of Canada, liimited
TORONTO —---------CANADA
78
(Frh. frá 3. bls.)
brattinn niun minni og markaöi
þægilega fótum í snjóinn. Svo slot-
aöi storminum mikið og alt gekk
greiöara. — Af Snæfelli er dýrýðleg
útsjón. Til norðausturs og suðaust-
urs sést víða um Hérað, fjallgarður-
inn, sem aðskilur Firði og Hérað,
með öllunt sínum tindum, sem alt
voru gamlir kunningjar, í suðaustri
I’rándjökull og Hofsjökull, í suðri
Heinabergsjökull, Eyjabakkajökull og
Brúarjökull, eða einu orði sagt Vatna
jökull, þessi óendanlega mjallhvita
breiða, með skriðjöklum niður á
básléttuna. I suðvestri gnæfa Kverk-
fjöllin i norðurbrún jökulsins á
milli Brúarjökuls og Dyngjujökuls,
einkennilega stórkostleg fjöll og mik
il Jökulsárnar þrjár, í Fljótsdal, á
Brii og í Axarfirði, líta út eins og
smálækir, þar sem þær renna í mörg-
um kvíshun undan jöklinum, sú fyrsta
undan Evjabakkajökli. önnur undan
Briiarjökli og sú þriðja bæði undan
Brúarjökli austan Kverkfjalla og
undan Dyngjujökli vestan Kverk-
fjalla. t vestri sést Trölladvngja og
til norðvesturs Askja, hinn stórkost-
legi eldgígur, og Dyngjufjöll. Til
norðurs var útsýnin því miður mjög
vond, vegna þess að stormurinn hafði
þyrlað upp ryki af söndunum.
Herðubreið ,sést ifeins i igegnum
móðuna. Hitamælirinn þarna uppi
sýndi eins stigs frost og er það mikill
igt
Undursam-
legthúsmeðal
Ráðlegging
manns sem
lengi þjáðist.
Árið 1893 var eg sárþjáður af
vöðva og liðagigt. í þrjú ár leið
eg þær þjáningar, er þeir einir hafa
hugmynd um, er samskonar sjúkdóm
hafa borið. Eg reyndi meðöl eftir
nieðöl, en batinn varð aldrei nema í
bráð. Loks fann eg ráð er læknaði
mig að fúllu, svo þessar voðaþjáning-
ar hurfu. Ráð þetta hefi eg gefið
mörgum, er þungt hafa verið haldn-
•r, og jafnvel rúmfastir, sumir hverj
ir á sjötugs og áttræðisaldri, og verk-
anirnar ávalt orðið þær sötnu og mér
reyndist.
Mig langar til að allir, sem þjást
af vöðva og liðagigt (liðabólgu) reyni
bosti þessarar ''heimalækningar” og
öðlist þann bata er hún veitir. Sendu
ekki eyri, heldur aðeins nafn þitt og
beimilisfang og eg skal senda þér
þessa ráðleggingu ókeypis til reynslu.
Eftir að þú hefir notað hana, og hún
hefir reynst hin lengi þráða bót við
þessari tegund gigtar, þá máttu senda
mér einn dollar, sem eg set fyrir
þetta, en mundu það, að peningana
vil eg ekki nenta að þú sért ánægður
að borga. Er þetta ekki sanngjarnt?
Bví þá að þjást og liða, þegar batinn
er þér boðinn fyrir ekkert. Dragðu
það ekki lengur. Skrifaðtt strax.
Mark H. Jackson
No. 65 m. Durston Bld.
Syracuse, N. Y.
Mr. Jackson ber ábyrgð á að hið
ofanskráða sé rétt.
munur og 15 stiga hiti niðri.
Við höfðu mtvo hæðarmæla með
okkttr, annan þýzkan en hinn dansk-
an, og voru þeir báðir settir á 0 á
Valþjófsstað, og báðum við séra Þór-
arinn að athuga loftvogina heima hjá
sér á meðan við væriun burtu, svo
hægt væri að komast fyrir skekkju,
sem stafa kynni af lot'tþyngdarbreyt-
ingum.' Báðir þessir mælar sýndu nú
2100 metra hæð þarna uppi, og þegar
lögð er við hæð Valþjófsstaðar yf-
ir sjávarmál og tekin er með í reikn-
inginn breyting sú, er varð á loft-
þyngdinni meðan við vorttm í burtu,
sem var nijög litil, þá reynist mæling
okkar af. Snæfelli að vera nálægt
2130 metrum, og er þá Snæfell hæsta
fjall landsins, eða 11 metrum hærra
en Oræfajökull, setn er sagður að
vera 2119 metrar (sbr. Lýsing íslands
bls. 25), en þar er Snæfell talið að-
eins 1822 metrar (bls. 19). Við vilj-
utn alls ekki ábyrgjast að mæling
þessi sé nákvæmlega rétt, en undar- J
legt má virðast, ef mælarnir sýna báð j
j ir jafnórétt, — og ástæða er til að j
j halda, að engin nákvætn ntæling hafi
| farið fram á hæð Snæfells hingað til, !
j eins og áður er drepið á. Auðvitað
keniur þetta greinilega í Ijós, þegar
landið verður mælt hér eystra, en það
getur dregist nokkur ár entiþá, þar
eð ekki hefir verið unnið að mæling
um nokkur ár. nema ef einhver frafn-
takssamur verkfræðingur, sem væri á
ferð hvort eð væri og hefði áhöld til
þess, vildi mæla það hornmælingtt.
Einkennilegt þótti okkur að finna
þarna upp á hátindinum dauðan haf-
tyrðil, auðsjáanlega fyrir skömmu
þangað kominn, sízt af öllu hefðuni
við hugsað að svona litill sjófugl
hefði vilst svona langt inn i land, og
endað aldur sinn svona hátt uppi
T’að er einkennilegt með tindinn á
Snæfelli, að það er eins og myndist
í kringum hann þoka úr heiðskíru
lofti. það sáuni við oft, af öræfun-
uin, hvað eftir annað i heiðskíru
veðri, þó hvergi væri skýhnoðra að
sjá, þá var alt í einu komið ský á
jökulhúfuna, en sem svo hvarf von
bráðar aftur og mvndaðist á ný. —
Svo fór og nú. þokan kom alt í éinu.
við sáum ekki hvaðan. — og við fór-
um að hypja okkur til ferða niður,
eftir að hafa tekið nokkrar myndir.
Við höfðum séð að bezt væri að
halda sér við fannirnar, setn sum-
staðar ná alveg niður að rótum fjalls
ins, og nú gekk það heldur betur en
ttpp. Það markaði mátulega fyrir
skóhælana i snjónum, og eftir 25 mín-
útur vorum við konrnir niður aftur.
Við héldum svo heim í tjaldið og um
kvöldið kom Friðrik aftur utan úr
Dal. Snemma morguninn eftir héld-
um við áfram stinnan Snæfells, upp
á svokallaðan Snæfellsháls, sem
gengur suðaustur úr Fellinu, og er
þf.ðan ljómandi útsjón um Eyjabakky.
sem er feikna flatneskja, sem Jökulsá
í Fljótsdal rennur eftir í ótalmörgum
kvíslum. Þar skildtt þeir við okkur
Sveinn og Emil, þvi Sveinn hafði
hugsað sér að koma steingráum hesti,
sem hann átti upp á Snæfell eftir
fönnunum, sem við fórum niðttr dag-
inn áður, en við þrir héldum áfram
í gegnum svonefndan Þjófadal, sent
er mjög einkenilega þröngur dalur,
sent liggttr sunnan við Snæfell og
til vestur-öræfa. Þar er góður veg-
ur af náttúrunnar hendi óg gekk
ferðin fljótt . Þegar við komum
nckkru vestar, sáum við þá Svein og
Ernil með þann gráa eins og flugu
t'pp á hátindinum og hafði gengið
fljótt og vel að komast upp, enda
var veðrið mjög gott. Uppi á tind-
inurn tóku þeir niynd af hestinum og
Sveinn skírði hann Snæfelling, sem
ekki átti illa við. Það hefir áreið-
anlega enginn íslenzkur hestttr kom-
ist hærra í loft upp á íslandi. Garnan
hefði verið að sjá þann útlendan
hest, sem hefði komið óbrotinn úr
þeirri ferð. Við héldum svo vestur
að austustu kvísl Jökulsár á Brú, rétt
við brúnina á Brúarjökli, og tjöld-
uðum í svonefndum Töðuhraukum.
Það eru einkennilegir moldarhólar,
vaxnir töðugrasi, sent venjulega er
eins og í bezta túni, en sem nú voru
vegna þurkanna óvenjulega illa
vaxnir, en þó ágætir hagar. Þar hittu
þeir okkur aftur félagar okkar Sveinn
og Emil, nokkrtt síðar, og ekki sást
á Grána að hann hefði verið í fjall-
göngu. Engin hreindýr sáum við
neinstaðar á þessari ferð, og gat Frið
rik þess til, að þau myndti halda sig
í svonefndum Kringilsárrana, sem
hggur og á milli Jökulsár á Brú og
Kringilsár, sent rennur úr Brúarjökli
nokkru vestar og sameinast Jökulsá
lengra niðri. Hér vorum við rétt
yið rætur jökulsins og upptök Jökuls-
ar a Bru, og var stórfenglegt að sjá
hana brjótast fram a þrem stöðum
undan jöklinum. Kverkfjöllin vest-
an við Brúarjökulinn sýndust vera
fast hja, með risavöxnum skriðjökl-
um niður á rnilli hamrabeltanna. Það
eru stórfengleg fjöll. Thoroddsen
getur til að þau muni vera nálæ°-t
6000 fet á hæð. KI. 2 um nóttina
fómm.við úr Töðuhraukunt og niðttr
með Jokulsa, og siðan upp með Sauðá
(sést ekki á neinu korti) hjá Snæ-
feHi að vestanverðu, og svonefndum
Grjotarhnjúk og Sauðárhnjúk yfir
Grjótá, sem rennur út í Þuriðarstaða
dal og nefnist þá Þuríðarstaðadalsá
og Holkná, sem rennur norðaustan
undan Snæfelli og út alla leið og í
Jökulsá á Brú fyrir utan Hrafnkels-
dal. Hún nær á korti Danæls Bruun,
sem er það nýjasta og liklega áreið-
anlegasta, aðeins skanit tipp á heið-
ina frá Jökulsá. Síðan fórtim við
meir i austur frani hjá Langafelli
og niður með Langá. þar til við kom-
um i Langakofa aftur og dvöldum
þar um stund. Síðan út sama veg og
aður og út i Egilsstaði í norðttrdal.
þar sem við þágum góðgerðir hjá
Gttnnari bónda Sigurðssyni, síðan
sem leið lá út hjá Hóli, þar sent við
Skildum við fylgdatmann okkar, sem
hafði reynst okkur eins góður og
við höfðum bezt á kosið. Að Val-
þjófsstað komum við kl. 4 e. h. og
vorum þar um nóttina í góðu yfirlæti.
(Niðurl.)
—Hænir.
Frá Islandi.
Sigurður Skagfcldt söngvari. —
Hann söng á þriðjudagskvöldið í
Akureyrar Bíó, við góða aðsókn, og
voru áheyrendur mjög hrifnir at'
söng hans, og þeir, sent hafa fylgst
með þroskun þessa söngvara, tindr-
uðust, hversu miklum framförum
hann hefir tekið. Einkum þótti á-
heyrendum hann syngja vel eftirtal-
in lög á söngskránni: "Evangeli-
ntanden” (W. Kienzl), "Afsked”
(Wennerberg), ‘'Aria af Tosca’’
(Pticcini), og "Pajadser” (Leonca
Vallo'. 1 siðasttöldum tveim lögum
og einkum í þvi síðasttalda, reyndi
mjög á rödd Skagfeldts og mun eng-
inn, sem á hlýddi, vera i vafa um, að
rödd hans sé meðal hinna hæstu og
voldugustu radda.
Fvrir ári síðan fékk Skagfeldt
inngöngu á óperuskólann við kon-
unglega leikhúsið. Þá keptu 17 radd-
rtenn um inntöku, en aðeins tveir
voru teknir. í vor reyndist enginn |
tenór-raddniaður hæfur til inntöku i |
skólann. Eftir tveggja ára nám á :
þessum skóla, öðlast Skagfeldt skil-
yrði til þess að fá stöðu við hvaða
óperu sem vera skal. Námið hefir
hann stundað með mikilli kostkæfni,
enda sjást þess glögg tjærki i með-
ferð hlutverkanna.
Rödd Skagfeldts er bæði mikil og
fögur. H,ún hefir nú hlotið þá fvll-
ingu og þann traustleik, að telja má
að hann syngi eins og sá, sem vald
hefir. Hún er minst fögur á mið-
biki raddsviðsins. I’ar eru tónarnir
ekki lausir við að vera hrjúfir og sízt
fallnir til að fara með lyrisk efni.
En þv ífegurri og voldugri er röddin,
sem ofar dregitr upp á þau svið, er
hæstu raddir ná. Lægstu tónarnir
hafa verið Skagfeldt erfiðastir, en
lika á því sviði raddarinnar hefir
hann tekið miklum framförum, þó
enn muni vera ábótavant. Dagur
getur borið fvrir sig álit mjög söng-
fróðs nianns um það, að Skagfeldt
hafi nú náð þeim framförum á öllum
sviðum raddarinnar, að hann sé vel
fallinn til þess að fara með Wagners
hlutverk, en það tónskáld hefir gert
miklar kröfur um stórt og voldugt
raddsvið þeirra, er fara með óperu-
hlutverk hans. Og yíir höfuð niun
Skagfeldt vera vel til þess fallinn, að
syngja i hinum stærstu óperum, er
hann hefir náð fullum framförum.
Kennarar Skagfeldts hafa verið
prófessor Bang, óperusöngvararnir
Herold og Jerndorff og séra Geir
Sæntundsson. I’akkar Skagfeldt eink
unt hinum tveini siðastnefndu kenn-
urum sínum, að honum hefir tekist
að halda rödd sinni fagurri um leið
og hún hefir vaxið. Takist Skagfeldt
að þroska til fuíls þessa miklu náðar-
gáfu sína, má gera sér miklar vonir
um, að hann nái mjög háum mörk-
um. Munu Iandar hans árna honum
allra heilla á örðugri braut lista-
mannsins.
CANADA
HJÁLPAR BÆNDUM SlNUM
CANADA hefir nú um langt skeið viðurkent land-
búnað sem þýðingarmesta grundvallar-atvinnu-
veg sinn. Þess vegna er alt, sem er bóndanum
til hagnaðar, Canada til hagnaðar.
á síðustu árum hefir stjórnin, með löggjöf,
með stjórnarboðum og og reglugerðum, með því
að Akuryrkjumáladeildin hefir tekið rétta stefnu
í ýmsum málum, gert afar mikið til þess — að
hjúlpa bóndanum.
Eins og áður hefir verið bent á, hefir vöru-
flokkun, í sambandi við sölu á mörgum afurðum,
gert mikið bóndanum til hagnaðar, og til að bæta
verzlunartækifæri vor, en flokkun er alls ekki
eina starfið, sem hefir verið tekið fyrir. Sann-
leikurinn er, að starfað hefir verið á feiknamörg-
um öðrum sviðum við að bæta kjör bóndans,
beinlínis og óbeinlínis, og þannig að bæta kjör
Canada yfirleitt.
Til þess að benda á aðeins fá atriði, og til þess
að minnast á sumt af því, sem er verið að gera,
lögin sem samin hafa verið til þess að hjálpa,
eða stefnunum sem fylgt er, atvinnuvegunum til
þrifa, eru eftirfylgjandi setningar birtar:
I. Hjálp til bóndans að selja
afurðirnar.
(a) Gripaverzlun við Stórbreta
land hafin aftur 1 apríl 1923,
eftr 30 ára uppihald. Árið 1923 voru
57,672 nautgripir sendir til Stórbreta-
lands; árió 1924 79.435 nautgripir, og
1925, til 24. september hafa 73.800 far-
iÓ, svo aó líklegt er aó 100,000 naut.
gripir verói fluttir þangaó þetta ár.
(b) Bættar aðferðar í cana-
diskum gripakvíum, með um-
rábum Deildarinnar yfir gripasölu-
samkundum og gripakvíum.
(c) Sýningar og sölur á grip-
um til fóðrunar voru byrjaðar
1923, og eru óspart studdar, til aö
hvetja til aö fóöra og ganga frá slát_
urgripum sem skyldi.
(d) Stjórnarskoðun á kjöti,
hefir með því aö byggja upp gott á-
)it á canadisku kjöti, gert mikiö til
aö útvega hagkvæman markaö fyrir
gripi.
(e) Skoðun á ávöxtum á send-
ingarstað. byrjuð fyrst í fyrra,
mætir góöum viötökum bæöi hjá
bændum og kaupmönnum.
(f) Markaðinn fyrir tóbaks-
uppskeru Canada er sífelt verið
aö víkka, og auka eftirspurn meö á-
hrifagóöum auglýsingum frá Deild-
inni.
II. Betri vörugæði.
(a) Með flokkun á afurðum,
svo aem smjöri, osti, svínum. eplum,
kartöflum, eggjum, ull, gras og smára
fræi og heyi, hafa batnati gætii þess-
ara afuróa, sem fluttar eru til mark-
aSar; kaupandinn hefir traust á vör_
unni, og vertiiti, sem fæst, er' því
hærra.
(b) Með ræktunartilraunum á
jurtum, er verió ati framleiöa nýjar
tegundir af korni, ávöxtum og mat-
jurtum. Ekki þarf aö nefna nema
Marquis og hiö nýja Garnet hveiti,
McKay ertur og Melba epli, til at5 sýna
gildi þessara tilrauna.
(c) Með útbýtingum á karl-
dýrum til kynbóta (nautum,
hrútum og göltum) hafa flokkar og
hjaröir veriö mjög mikiö bættar. —
Þess bót hefbi veriS ómöguleg, ef
þessi hjálp heföi ekki veriö veitt.
(d) Með að aðstoða landbún-
aðarsýningar með peningastyrk
og meö aö horga flutningskostnaö a
því sem sýnt er, er athygli bóndans
vakin á verömæti vörugæöa og sam-
III. Hvatning til og aukning á
framleiðslu.
(a) Skrásetning á útsæðis-
kartöflum, hefir oröiö til þess aö
hvetja Bandaríkjabændur til aö nota
canadiskar útsæftiskartöflur, og um
leiö hefir notkun á þessum skrásettu
útsætiiskartöflum yfir höfut5 aukiti
gæbi kartöfluuppskerunnar.
(b) Flaxræktun hefir aukist
mikiö i sumum landshlutum, endur-
Vakin í öörum og byrjut5 í enn öt5r-
um.
(c) Tóbaksrækt hefirverið mjög
hlynt at5 og henni veitt ágætis at5stotS,
bæt5i vit5 framleitSslu og sölu í eldri tó
bakshérutSunum í Quebec og Ontario,
og í ár hafa tilraunir verit5 gert5ar í
sumum hért5um í British Columbia,
met5 svo æskilegum árangri, at5 þeim
vertSur haldit5 áfram næsta ár.
(d) Varpsamkepnir voru byrjað-
ar fyrir fjórum árum, og eru sífelt
at5 aukast at5 tölu og vinsældum; nú
eru þær þrettán atS tölu. Sem grund_
völlur aö skrásetningu hafa þessar
samkepnir nú þegar bætt alifuglahóp
ana í Canada stórum.
(e) Silfurtóurækt er að ná
föstum grundvelli fyrir skotSun á dýr
unum, sem var byrjut5 af Deildinni
fyrir tveimur árum, og vert5ur nú
brátSlega lokitS. Tóusjúkdómar hafa
verit5 sérstaklega rannsakatSir á rann-
sóknarstofnun, sem er sérstaklega
halditS vitS til þess, og nú er verit5
at5 byggja tóurannsóknarstötS, sem
fæst sérstaklega vit5 rannsókn á fót5r-
un, tímgun og sjúkdómum.
IV. Lækkun á framleiÖslu-
kostnaði.
(a) Innleiðsla á ræktunarbreyt
ingum, sem hefir sannað gildi
þeirra á öllum tilraunastöt5um, eru at5
hjálpa bóndanum at5 hafa meiri not
af landi sínu.
(b) Innleiðsla á betri ræktunar
aðferðum orsakar sparnað á
framleit5slumöguleikum, aukna fram.
Ieit5slu og lægri framleit5slukostnat5.
(c) Innleiðsla á betri aðferð-
um við gripafóðrun er að hjálpa
bóndanum a'ð hafa meiri not af fót5r-
inu og at5 fá meiri ágóða af gripa-
rækt sinni.
(d) Innleiðsla á nýjum og
betri tegundum af korntegund-
um, ávöxtum og matjurtum, og rækt-
un á öt5rum jurtum, svo sem flaxi og
tóbaki, orsakar að bóndlnn fær hærri
tekjur af því landi, sem hann hefir í
rækt, án þess at5 framleit5slukostnat5-
ur sé hærri.
(e) Fyrirmyndarbú, sem nú eru
ura 150, héí og: hvar í landinu, meö
aö sýna undir vanalegum búgarösskil-
yröum rœktunaraöferöir og breyting.
ar, fóörunaraöferöir og ræktun á nýj-
un* jurtategundum, eru mentunarstofn
anir bændanna á stórum svæöum i
kring, meö því aö sýna, hvernig hægt
er a« lækka kostnaö og auka tekjur.
V. Tryggirig gegn svikum.
<n» Aiiiirö, er ákveöiö aö sé rann.
sakað aö efnasamsetningi, einnig aö
hann sé skrásettur, og aö skoöun fari
fram, meö áhuröariöggjöfinni.
< h I 5'ööur er selt undir reglugeröum
í fóöurlögunum, sem ákveöa mjög
þungar hegningar fyrir aö selja fóö-
ur, sem ekkl nær ákveönum mæli
kvaröa, eöa sem er óheilnæmt fyrir
skepnur.
<é) Kne eru, samkvæmt frælögunum,
1923, seld eftir flokkun og veröa aö
rannsakast af heildinni; eins er sala
á fræi, sem illgresisfræi er blandaö
saman viö bönnuö.
<il) DóNaniatur veröur aö vera af
vissum ákveönum gæöum og gæöa-
flokkunin prentuö á dósirnar; eins
veröur innihaldiö aö standast vigt.
Rnga nafnmiöa . má nota á dósamat
án samþykkis deildarinnar.
VI. Baráttan gegn maðki og
sjúkdómum.
««) ftrýmlnR^hvelllryð* í sléttufylkj-
unum er lengrra á veg komin fyrir
aðgrerðir deildarinnar en áður var.
Hún hefir vistat5 sérfræðinga sér til
hlálpar, er kynt hafa sér jurtasjúk-
dóma og; jurta-frjóvgun. Efnarann-
sóknastofu til r|T5 athuga jurta-ryt5 er
hún atS setja á stofn, er framleitt geti
korntegundir. er varist geti rytSi. I>á
er búið at5 útrýma at5al ryðkveikju
plöntum. svo sem Barberry og Buck-
thorn.
11») flrímltiK berklnMjúkra nnutgripn
er nú * at5 nálgast metS hinum þre_
földu varúðarreglum, er Deildin hef-
ir sett.
<i) HeillirlgtSlM MkrflMetning hjartSn. —
Þær eru nú 1945 að tölu, sem alger-
lega eru heilbrigtSar og lausar viö
berklasýki og taldar af hreinu kyni,
2187 eru í þann veg aö færast undir
þannig lagaöa skrásetningu.
<il) VnrhMvæhl gegn herkiaMýki hafa
veriö sett í Carman héraöinu í Mani-
toba og í Chateairguay-Huntingdon
héraöinu í Quebec, hiö fyrra 1923 en
hiö síöara 1924. í>riöja héraöiö er
veriö aö setja og tekur yfir al^
Prince Edward eyju. Þá eru og von-
ir meö aö samskonar varösvæöi veröi
sett í Frazerdalnum i British Colum-
bia meö næstkomandi desember.
liil) IlerkinMkoÖnn hjnrön. — Nauta_
hjaröir eru skoöaöar af umsjónar-
mönnum stjórnarinnar, en ekki er
borgaö fyrir ólæknandi skepnur, eins
og viötekiö er viö skrásettar hjaröir
eöa á várösvæöum.
< e) Nautnklfiön, Mvlnn-kflleru og Glnn-
ilerM hefir veriö haldiö í skefjum með
ströngu eftirliti.
((1) Skemilar-ormnr, maÖkur, engi-
sprettur, gifta-maur, furumaökur og
brúnklukku-maur, heföu valdiö ó-
endanlega meiri skaöa, ef Delldin
heföi ekki gert sitt ítrasta til aö upp
ræta þá.
kepnisþrá vakin hjá bóndanum.
Þetta ásamt ótal ílelru er þaS, sem Akuryrkjumáladeild Sambandsstjórnarinnar
er aS gera. ‘og sumt af því atS rainsta kosti snertir yhur ah einhverju leyti.
Ef þér Óskuhuts eftir frekari upplýslngum um þessi efni, eSa eitthvatS af búnatS_
arritum, er veritS gætu ytSur til ieitSbeiningar, þá skrifitS
D0MINI0N DEPARTMENT OF AGRICULTURE, OTTAWA