Heimskringla - 16.06.1926, Síða 1

Heimskringla - 16.06.1926, Síða 1
 XL. ÁRGANGUR. WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN, 16. JÚNÍ 1926. NÚMBR 37 C A N Frá Ottawa er símaö í gær, aS vantraustsyfirlýsing hafi veriö bor- in fram í þinginu í gær. Var hún borin fram sem breytingartillaga við tillöguna um aö þingiö gengi í fjár- veitingarnefnd. I þetta skifti er það Fred Davis, þm. Eystri Calgary, sem ætlar að steypa stjórninni. Van- traustsyfirlýsingin á að byggjast á því, að stjórnin hafi eigi haldið lof- orð sín um .að skila i hendur Al- bertafylkis öllum fríðindum fylkis- ins. — Forsætisráðherra kvaðst hvergi smeikur, þótt hann og hans lið væri óviðbúið tillögunni. Enda myndi hann jafnskjótt segja af sér, ef þingið sýndi, að það bæri ekki fult traust til stjórnarinnar. ■ Það hefir nú verið opinberlega til- kynt, að Willingdon vísigreifi verði eftirmaður Byng lávarðar sem land- stjóri í Canada. Willirigdon lávarð- ur fór til Kína nýlega, yfir Canada og hafði þá nokkra. dvöl eystrá, vafalaust til þess að grafast fyrir um það, hvílíku viðmóti hann myndi eiga að fagna. H.a.n.n er nú á leið bingað aftur frá Kína. Hon. E. L. Patenaude, sem í haust fór í leiðangur móti liberölum í Que- bec, eins og lesendur sjálfsagt muna, en kvaðst þó vera jafnóháður Meig- hen, sem King, hefir nú séð að sér og opinberlega gefið til kynna, a.ð hann í öllum atriðum aðhyllist stefnu Meighens. Sinnaskiftum kveðst hann hafa tekið við ræðu, er Mr. Meighen hélt 4. þ. m., þar sem hann hélt sterk- fega fram sjálfstjórn Canada. »•() — | A D A É »I)^I>«»()4B»<)«»()^1I«B»(U mánuðum saman, annað en að þefa sig áfr#m að mötunni í pólitísku svínatrogunum, og ygla sig framan í hvern samvizkusaman þingmann, sem reynir að draga þá út úr pest- arlqftinu. Hin visnaða hönd aftur- haldsins laumast út úr erminni undir þinglokin, til þess að eyðileggja lög- in, sem samþykt hafa verið af þjóð- kjörnum þingmönnum landsins, viljug um, nauðugum, af því að þjóðin vili svo vera láta. Einn sjötugur fiskimaður frá Nora Scotia; einn skógarhöggsmaður frá j Quebec; einn stíætasópari í borgun- um; einn bóndi, — þótt hann hafi aldrei lagt meira undir sig en fáein- ar grýttar ekrur í Ontario — hafa gert meira fyrir Canada., og eiga meiri eftirlaun skilið, en nokkur póli- tískur slæpingur i öldungaráðinu. — Öldungaráðið er smánarvitni um pólitiska greind og þroska canadisku þjóðarinnar.” Já, ijótt hefði nú ýmsum sennilega þótt þetta, ef það hefði upprunalega staðið í Heimskringlu. Sei, sei, sei. En það er máske ekki alveg eins erfitt að melta það frá ensku blaði. Töluvert hvassviðri stóð um Hud- sonsflóa brautina í samþandsþinginu, vikuna sem leið. Að undanskildum Manitobaþingmönnunum lögðust con- servatív.a.r á móti brautinni. Sérstak- lega var Mr. Cahan einbeittur, og sýndi greinilega, að hann vildi allar fyrirætlanir um þá brautarLa.gninga feigar. Taldi brautina ekki einung- is einskis virði, heldur blátt áfram l skaðlega (fyrr austurfylkin náttúr- lega). Annars töluðu flestir con-1 serva.tívar, sem þeir væru brautinni hlyntir, cf rannsókn, sem stjórnin ætti að láta fram fara, sýndi að hún myndi géta orðið að liði. Eng- ar fortölur framsóknarmanna eða liberala gátu sannfært þá um að slík rarinsókn, eða rannsóknir, hefðu far- ið fram; jafnvel ekki fortölur Mani- toba conservatívanna, t. d. Mr. Hann esson, sem hélt mjög eindregna og góða ræðu brautinni í vil, gátu rask- að við hinni pólitísku sannfæringu flokksbræðranna. frá hnum austlæg- ari kjördæmum. Aaron Sapiro, sem na.fnkunnur er frá hveitisamlagsstofnuninni, kom hingaö til bæjarins nýlega, til sam- tals við L. Brouillet, varaformann Saska.tchewan hveitisamlagsins. Sagð ist honum svo frá, að það væri ai- ment álit manna í Bandaríkjunum og Evrópu, að engar aðgerðir innan vébanda. landbúnaðarins hefðu skeð jafn merkilegar síðustu tiu 'árin. Mun þetta vera' rétt með farið. — Hefði meira áunnist hér á tveimur árum, en lægi eftir öll hveitisamlögin í Bandaríkjunum í tuttugu ár. Enda 9 væru engin samlagss.amtök í Banda- ríkjunum, er hefðu gefist líkt því eins vel, að undanskildu Burley tó- bakssamlaginu, en nytsemi þess fyrir veröldina heild sinni verður vitan- lega á engan hátt jafnað við nytsemi hveitisamlagsins. Blaðið "Ottawa Citizen” hefir gefig öldungaráðinu hressandi inn- töku, að'því er símfregnir herma. — Orsökin er sú, að sú hávirðulega samkunda stúta.ði ellistyrktarfrum- varpinu, er hún festi hendur á því. — Blaðig kemst meðal annars svo að orði.: / “Ar eftir ár, rneðan að öðrum þjó^um miðar áfram, auglýsir öld- ungaráðið Canada fyrir öllum heimi, að þessu Jandi Istjórna Tammany pólitikusar, böðulsþjónar sérréttind- a.nna, kaupalokar flokkshirzlanna, og leigutól einokunarfélaganna. Engin furða, að innflytjendastraumurinn bægist frá Canada, og að hálf milj- ón af úrvals æskulýð Canada hefir yfirgefið landið, eins og einn af leiðtogum con'servatíva sagði hér í plnginu um daginn. En eftirlaunamenn flokkanna í öldungaráðinu halda áfram að láta borga sér $4000.00 á ári meðan þeir lifa. Þeir stritast við að gera ekkert Hermt er eftir reyndum nátnufræð- ingi, að námurnar, setn alveg nýlega hafa fundist við Birkivatn og Kven- vatn (Birch Lake og Woman Lake) séu bæði stærri og auðugri en Rauð.a- vatnsnámurnar (Red Lake). Á fimtudaginn var, gerði forsæt- isráðherra Manitobafylkis, Hpn. John Bracken, heyrumkunnugt, að tekju- ágóði fylkisins hefði numið $600,000 á fjárhagsárinu, sent enda.ði 30. apríl 1926. Er það niesti ágóði, sem ver- ið hefir á fjárlögunum síðan 1912. Þessum ágóða ætlar stjórnin að verja á sama hátt og ágóða tveggja næstu ára að undanförnu, til þess að borga af tekjuháila undanfarinna ára, sem ekki hefir verið afritaður gegn skulda.bréfum. En sá tekjuhalli er nú talinn að nema $950,000. Tekjur fylkisins á fjárhagsárinu námu $10,870,000, en útgjöldin $10,- 270.000. Hefir árið því gengið fylk- inu í vil um $1,000,000, frá því sem gert var ráð .fyrir á fjárlögunum, er lögð voru fyrir þingið 1925. Bandaríkin. Útnefningakosning.ar hafa farið fram í Iowa. Hlaut Brookhart út- nefningu af hálfu. repúblíka, en hánn varð að vikja áður, sent kunnugt er, fyrir Cummins, er flokkurinn treysti betur. Hefir hann þótt flokknum ó- j þægur ljár í þúfu og hneigjast utn of í LaFollette áttina, og er því útnefn- ing hans töluverður álitshnekkir fyrir Coolidge-stjórnina. Er það eftirtektarvert, að allir trygguslu á- hangendur Coolidge-stjórnarinnar, er útnefndir hafa verið nú síðast, haf.a orðið að lúta í lægra haldi. Hevrast margar raddir um að Coolidge mttni ekki ná endurkosningu 1928, og er Borah öldungaráðsmaður helzt til- nefndur. England. Þetta er í fyrsta sinni sent kín- verskir fulltrúar hafa dirfst að láta opinberlega í ljós álit sitt á útlendri afskiftasemi.” Sir Malcolm svaraði engu góðu. Kvað hann hina kínversku fulltrúa aðeins hafa sjálfskaparumboð, af þvi að allir vissu, að stjórnin í Kína væri einungis málamyndarstjórn, sent hiyti að lúta dutlungum hvers þess, er gerði sig að herforingja, þegar að verkast vildi, og gæti stefnt satn- an flokk manna. — Námumannaverkfallið stendur enn yfir og gengur alt í þófi fyrir stjórn- inni, að ráða fram úr þeirn vand- tæðuni. Virðast hvorki námueig- endur eða námumenn áfjáðir í að fara að tillögum stjórna/innar. Bæt- ir það náttúrlega ekki úr„ að því er námumenri snertir, að Baldwin íorsætisráðherra hefir lýst yfir þvri, að h.ann hafi skift um skoðun að þvi leyti, að hann nú álíti nauðsynlegt að iengja vinnutímann úr 7 stundum í 8 fyrst um sinn, óákveðinn tíma. ¥ ¥ * Þá er og ófriðurinn í liberala- herbúðunum alls ekki á enda kljáð- ur. Ihaldsvængur liberala, undir for- ustu jarlsins af Oxford og Asquim, höfðu beztu vonir um daginn, að þeir væru búnir að stía Lloyd George frá flokknum. Þótti þeim hann ekki hafa verið nógu gætilega íhaldssam- ur, meðan á allsherjarverkfallin’.i stóð um daginn, en auðvitað eru þetta alt eins rnikið gamlar kritur. En það hefir sýnt sig, að Lloyd George á miklu fleiri áhangendur innan flokksins, en þá eða aðr,a hafði grunað. Hefir hann nú haslað jarl- inum völl, og lagt mál sitt opinber- lega fyrir flokkinn. Fór svo að mik- ill meirihluti (af 34) var því fylgj-■ ,a.ndi að Lloyd George héldi áfram ag vera leiðtogi flokksins á þingi. Hveitisamlagið. Brcytingin á kornsolulögunum. Frumvarpið um breytinguna á kornsölulögununt, sem veitir bóndan. unt rétt til að ákveða í hverja safn- hlöðu korn hans skuli sent, var sam- þykt af akuryrkjuntálanefnd þings- ins í Ottawa á þriðjudaginn i vik- unni sem leið. Atkvæðin féllu 56 með en 12 á j móti. Helztu talsmenn frumvarpsins 1 fyrir nefndinni, voru sendimenn hveitisamlaganna, en móti því mæltu aðallega meðlitnir og embættismenn Winnipeg Grain Exchange. Enn á frmvarpið eftir aö komast í gegmtnt | þriðju umræðu í þinginu, og því næst verður það sent til seriatsins. Móttöku lokað 15. júlí. Öll þrjú Santlögin, í Manitoba, Saskatchewan og Alberta, hafa á- kveðið, að alt korn, sem bændur vilja konta í Santlagið þetta ár, verði að vera afhent ekki seinna en 15. júli n. k. Alt korn, sem bændur hlaða sjálfir á járnbrautarvagna, verður að vera komið til Santlagsins, og fyrsta borgun greidd af því fyrir þann dag, og sömuleiðis verður korn bænda, sem nú er geymt undir þeirra eigin nafni í kornhiöðum úti um land, vera kontið í vagna og af stað fyrir þann tíma, Geymsluskírteini, setn ekki eru þá komin til Samlagsins, verða of sein til að verða skoðuð sem þessa árs, og verða lögð í næsta árs sam- lag. * * * Lesendunt stendur til boða, . að snúa sér til blaðsins með spurningar viðvikjandi Samlaginu, og verður þeim þá svarað hér. Á fimtudagskvöldið var samþykt: þingið í Ottawa frumvarp Milton Canipbell’s, þingmanns frá McKenzie um breytingu á kornsölulögunum. — Fær nú framleiðandi rétt til þess að ákveða, í hverja safnhlöðu korn hans skuli sent, og sé honum ábyrgst vog og mat. — Mr. Kennedy frá Mið- Winnipeg syðri og Hon. R. Rogers lögðust fast á móti frumvarpinu og töldu það stórskaðlegt landi og þjóð. Sérstaklega voru þeir smeikir við að hrófla. nokkuð vi4 því, sem þeir nefndu “vested interests”, með öðr- um orðunt kornhallarkattpmönnun- um í þessu sambandi. Þjóðbandalagið. Þar er satnkomulagið ekki sent glæsilegast heldur. Harður árekstur varð á tnilli brezka fulltrúans, er sér um hag brezktt stjórtiarinnar í ópí- umþrætunni kínversku, Sir Mal- colnt Delevingne og kínverska, utn- boðsmannsins, dr. Chao-Hsin Chu. Lét Sir Malcolm á sér skilja, að kín- verska stjórnin Hæki á sér mútur. Hefði sér t. d. verið tilkynt, að ný- lega hefði 220 pundum af morphíni (verðmætið er $30,800) verið leyft inn í Kína., fyrir samþykki kín- verskra emlMettismanna. Dr. Chao-Hsin Chu tók þessa að- dróttun óstint upp. (Kvaðst hanq vita, að það væri frá enskri klíku í Kína, sem þessi vitnisburður væri kotninn. Gætu tnenn af þvt dregið þær ályktanir, er þeim sýndist. “Veit eg það,” sagði hann, "að ef nokku- ur rnaður finst í Kína, sem ekki ber kaldan hug til Englendinga, þá er sá tnaður ekki Kínverji. Og yður’get eg sagt það,” mælti hann við Sir Malcolm, “að þér getið svarað mér með þvi, að skírskota til vopna- eða. stjórnmáiaþvingunar. Kina er búið við þeim árásum. Eg tek hér með opinberlega á mig þá áhyrgð, að lýsa yfir því, að Kína tætir bráSum í pjötl ur þá ójafnað.a.rsamninga, sem land- ið hefir orðið að þola. íEg get opin berlega lýst yfir því, að sá tími er nú brátt liðinn, að Ktna ætli sér að þola útlendingum afskifti af innan- rikismálum. * Fjær og nær Hingað komu á sunnudaginn í bíl Mr. A. M. Asgrímsson, Mr. og Mrs. B. J. Austfjörð, dóttir þeirra og Mr. Jóh. Nqrman, öll frá Hensel. Mr. Ásgrímsson leit inn á skrifstofu Heitnskringlu. Kvað hanrf allgott út lit þar syðra, þó alt væri með seinna móti, og það sem af er sutnrinu, eitt hið allra stormasamasta og kaldasta er ntenn nntna. 24. f. m. voru gefin í hjónaband í Minneapolis. ungfrú Thora S. Ha!I grtmsson, dóttir séra Friðriks Hall- grímssonar í Reykjavík, og Ernest Miller, starfsmaður við sparisjóð Manitoha.fylkis í Winnipeg. Brúð- hjónin fóru til Detroit vantanna eft- ir brúðkaupið. Þau setjasl að í Ste. 1 Asa Court, við Langside St., hér i Winnipeg. Mrs. Miller er út- skrifitð við almenna sjúkrahúsið hér í Winnipeg. Fór hún heim til Is- Lands skemtiferð nteð foreldrum sín- um, er þau fluttu alfarin þangað í fyrra. Styrktarsjóður Björgvins Guð- mundssonar. Aður meðtekið ..............$1078.44 Dr. og Mrs. J. Stefánsson, VV'innipeg ................. 50.00 Grímttr Guðmundsson, Wpg. 5.00 A. M. Asgrímsson, Hensel 1.00 $1134.44 T. E. Thorsteinson. Býf lugnaræktin. (Hér í Manitoba og annarsstaðar, þar sem vetrarríki er mikib, geyma býflugnabændur flugnabúrin í kjallara á veturna. En í vorharðindum gerast flugurnar óþolinmót5- ar. Þær þola illa kúldunina, þegar sumarHS á atS vera komitS. í>etta frumlega ágætiskvætSi skýrist þannig bet- ur fyrir lesendum, sem ókunnir eru staóháttum hér. Ritstj.) Hugsjóna minna hunangsflugur Hafði eg um rninn lífsins vetur Lokaðar, náttaðar nótt og degi, Niðri í kjallara sálar minnar. Hunangi var ekki hægt að safna; Helbleik, frosin og visin láu Hunangsblóm undir heljarfargi Hjarns og fanna um allar jarðir. Hugsjóna minna hunangsflugur Hlutu að bíða lífsins sumars. Þær skyldu frjálsar hinn fyrsta vordag Fljúga úr-kjallara sálar minnar. ‘ Þær skyldu fá að smakka á smára Smjörefni — hunangsrjóma þykkni; Hunangi lofs og heiðurs safna, Hvernig sem annars á móti blési. Loks kom vor, en í vetrar hami; Vindar snjóinn af jörðu skófu Til þess enn betur að geta upp grafið Gróður og fastar að honum sorfið. Leið og beið unz eg hóf upp hlerann, Hvarf niður stigann og undir gólfið, Til þess að mér yrði ljóst, hvernig liði ' Lífi í kjallara sálar minnar. Heyrði eg eyrum svíðandi suðu — Sönginn í undirheima skýjum; Barst mér fram eins og brennisteinssvæla Bölvunar, hún, þessi eitursuða. Flugurnar hart nær hungurmorða Hömuðust að mér í sálarmyrkri; Stungu mig, inn í mig eitri spúðu, Öskraði eg eins og brendur vargur. Merkin eg ber meðan æfin endist, Augun sokkin og hálsinn blásinn. Lifi eg smáður við leiða og örkuml, Líkari liröpuðum engli en manni. Guttormur J. Guttormsson. ► * Fjórða ársþing Hins sameinaða Kirkjufélags Islendinga í Norður-Ameríku. Verður sett í KIRKJU GIMLI-SAFNAÐAR, GIMLI, MAN. LAUGARDAGINN 26. JÚNf N.K., KL. 2 E. H. Varaforseti, séra A. E. Kristjánsson, sétur þingið. Séra Rögnv. Pétujísson prédikar í kirkjunni sunnu- daginn 27. júní, kl. 2 e. h. Fyrirlestrar:— V Laugardagskvöld 26. júní, kl. 8 e. h.: Séra Guðm. Árnason. Mánudagskvöld 28. júní, kl. 8 e.h.: Dr. S. E. Björns- son. Þriðjudagskvöld 29. júní, kl. 8 e. li.: Séra Friðrik A. Friðriksson. Söfnuðir hafa rétt til að senda 2 erindreka fyrir hverja 50 safnaðarmeðlimi; ennfremur velja kvenfélög og sunnudagaskólar hvers safnaðar, einn fulltrúa hvort um sig til þingsins. Skýrslur safnaðanna sendist til skrifara ekki síðar en viku fyrir þingdag. Sömuleiðis árstillög, er send skulu féhirði félagsins. í umboði félagsins, Winnipeg 1. júní 1926. ALBERT E. KRISTJÁNSSON FR. A. FRIÐRIKSSON varafdíseti. skrifari.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.