Heimskringla - 23.06.1926, Page 1
XL. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN, 23. JÚNÍ, 1926.
NÚMER 38
Ýmsar fréttir.
Cajtada.
' Hákon Noregskonungur hefir
sæmt Hon. Th. H. Johnsno, Str. F,
1. stigs kommandörkrðssi St. Olafs-
oröunnar, til viögurkenningar fyrir
þátttöku hans i landnámsafmæli
Norömanan i fyrra, í Minneapolis, er
hann var sendur þangaö sem fulltrúi
Canada. Þetta er annað hæsta stig
orðunnar næst stórkrossinum.
Þjóðbandalaffið.
Áriö 1924 skipaði Þjóöbandalagiö
þrælahaldsnefnd, til þess aö safna ná-
kvæmum skýrslum um þrælahald.
Lauk nefndin starfi sínu í haust.
Hefir bandalagið ' nú samþykt aö
koma á alþjóðasamningi gegn þræla-
haldi.
Þrælahald og þrælasala er alls
ekki svo fágætt sem flestir vafalaust
halda. Þaö er enn við líði í Abys-
siníu, Tibet, Afghanistan, Hejaz í
Arabíu, Marokkó, Lybísku eyði-
mörkinni, Rio de Oro (GullstrSnd-
ínni í Afríku), Liberiu, Kína, Ara-
híu, Súdan, Eritreu (ítalskt), Sóma-
lilandi Frakka, Breta og Itala (í
Afríku), Angolo og Mozambique, i
flestum óháðum ríkjum Múhameös-
trúarmanna, í Nepal og á Filips-
eyjum.
Þýskaland.
Hinn mesti fjandskapur er nú meðal
hægrimanna og jafnaðarmanna í
Þýzkalandi. Vilja jafnaðarmenn að
rikið geri upptækar allar fasteignir
keisara- ög konungsættanna i Þýzka-
landi, telja það ríkisins eign. Hægri-
menn telja slíkt þjófnað, ef gert sé.
Hafa jafnaðarmenn fengið því fram
gengt að atkvæðis alþjóðar skuli
leitað, og skuli eigurnar upptækar, ef
20,000,000 kjósendur séu því sam-
þykkir. Hafa orðið áflog og bar-
smíðar í þinginu út af þessu.
* >{■ *
Það sem greiða skal atkvæði um,
er á þessa leið :
1. Allar eignir þeirra þjóðhöfð-
nigja, sem að ríkjum sátu einhvers-
staðar í Þvzkalandi fram að stjórnar
hyltingunni 1918, og sömuleiðis all-
ar óðalseignir þessara þfóðhöfðingja
og ættmenna þeirra, skulu gerðar upp
íækar bótalaust til almennings-
heilla.
2. Eignir þessar skulu notaðar til
styrktar:
Atvinnuleysingjum.
örkumlamanna úr ófriðnwn, ó-
friðarekkjum og munaðarleysingj-
nm.
Opinberum styrkþegum.
Þeim er alt mistu við gengis-
hrunið.
Akuryrkjuvinnumönnum, leigu-
liðum og bændum, á þann hátt
að skifta á milli þeirra jarðeign-
unum, er upptækar verða gerðar.
Kastala, hallir og aðrar bygg-
xngar skal nota í almennings-
þarfir, til menningar- og upp-
eldisstarfsemi, sýrstaklega til hress
ingarskýla og heimilja örkumla-
manna úr stríðinu.
----------x-----------
Skemtiferð Sunndags-
skóla Sambands-
safnaðar.
Sunnudaginn 27. þ. m. Lestin fer
frá C. P. R. járnbrautarstöðinni á-
leiðis til Gimli kl. 10.15 fyrir hiídegi.
Tveir vagnar eru settir til .síðtt fyrir
skþlann, og eru allir, sem þátt ætU
að taka í förinni, beðnir að vera til
staðar á brautarstöðinni ekki seinna
en kl. 9.45. Farmiðar verða til sölu
« verzlun þeirra Thomson & Jakobs-
son á Sargent Ave., A Heimskringlu-
prentsmiðjunni og víðar, þrjá síðustu
daga vikunnar. Fargjald fyrir full-
orðna fram og til baka $1.30, fyrir
l?örn innan 12 ára 65c. Ollum börn-
um skólans og þeirra, er söfnuðin-
urn heyra til, eða styrkt hafa hann
i^siðastliðnu s ári. veitt ókeypis far
samkvæmt ákvörðun, er gerð var á
•kennarafundi s.l. sunnudag.
Oskað er eftir að aðstandendur
barnanna búi sig út með nesti eftir
því sent kostur er á, en gert er ráð
fyrir að borðáhöld fáist léð þar á
staðnujn-
Skemtanir fara fram í garði bæj-
arins: hlaup, stökk og aðrar íþrótt-
ir, og taka skólar Gimli og Winni-
pegsafnaðar sameiginlegan þátt i
þeim. , \
Lestin fer frá Girnli kl. 8/5 að
kvöldinu og á að vera kontin til baka
aítitr tii Winnipeg kl. 10.15.
Forstöð unefndin.
----------x-----------
Frá íslandi.
Taugaveiki á Isafirði. — Mjög ill-
kynjuð taugaveiki geisar nú á Isa-
firði, er talið að hún eigi upptök sin
í mjólk, sem flutt, hefir verið til
bæjarins frá sérstöku heimili, pg
hefir fólki nú verið'bannað að neyta
hennar.
Milti 20 og 30 manns hafa nú tekið
veikina og eru flestir þungt haldn-
ir, en 2 hafa dáið. Nýja sjúkrahúsið
er fult og hefir Gamalmennahælið
(gamli spitalinn) einnig verið tekinn
fyrir taugaveikissjúklinga.
Reyi.t hefir verið. að hefta út-
breiðslu veikinnar innan bæjar, en
það hefir tekist illa og koma dag-
lega fyrir ný sjúkdómstilfelli. En
engar ráðstafanir hafa verið gerðar
til þess að einangra Isafjörð og taka
fyrir allan fólksflutning úr bænum
til annara héraða. Virðist þó vera
full ástæða til þess, þar sem tauga-
veikin er mjög illkynjuð og virðist
ætla að verða mannskæð, en hins
vegar tniklar og tíðar samgöngur
um þetta leyti árs. —
(Dagblað).
Alþingi. — Þingslitin fóru frant
á laugardaginn og hafði það þá
staðið yfir í 99 daga. Eins og fyr
hefir sagt verið, var nokkurt aflust
ut á afgreiðslu mála síðustu dag-
ana, en mörg þeirra döguðu þó uppi.
Alls voru haldnir 166 þingfundir,
80 i n.d. 78 í e. d. og 8 í sameinuðu
þingi.
87 lagafruntvörp voru lögð fyrir
þingið, 25 frá stjórninni og voru 22
þeirra samþykt, og 62 frá einstökum
þingmönnum, en aðeins tæpur helm-
ingur þeirra (29) náði fram að
ganga. 10 þingntannafrumvörp voru
feld, 6 vísað frá með rökstuddri
dagskrá, 2 vísað til stjórnarinnar og
15 urðu ekki útrædd, ásamt þrem
stjórnarfrumvörpum.
36 þingsályktunartillögur voru
bornar frani, voru 15 þeirra sam-
þyktar til stjórnarinnar, 3 feldar. 2
vísað frá með rökstuddri dagskrá, 8
vísað til stjórnarinnar, og 7 urðu
ekki útræddar. — 3 fyrirspurnir voru
bornar frant, og var tveim þeirra
svarað. Alls voru 127 mál tekin til
meðferðar á þinginu.
Svo mun flestum fínnast, að lítil
afrek liggi eftir þetta þing og minna
en við mátti búast, eftir því sem á
stað var farið. Fyrsta hálfan mán-
uðinn virtust þingmenn hafa fullan
vilja og skilning á að láta þingstörf-
in ganga sem greiðlegast, og tefja
ekki fyrir með óþörfum málaleng-
ingum við umræður og annari þarf-
leysu. En er tók að líða á þing-
timann var annað uppi á teningnum.
og nú er afraksturinn kominn.
Þegar litið er á hinn langa tíma.
sem Alþingi hefir setið, getur eng-
um blandast hugur um, að tiltölulega
litið liggur eftir þetta þing, bæði
að kostum og vöxtum, þótt þin.g-
málatalan sé ærið há. jjftirmæii
þess geta þvt ekki orðið nema á einn
veg, að þetta hafi verið langt þing
og lélegt.
— — Þetta eftirmæli fær nú Al-
þingi Islendinga hjá blaði, sem mun
mega telja utanflokka. Það er víða
brotinn potturinn. — Ritstj.
Fr'óken Þóra Friðriksson er sex-
tíu ára í dag (22. maí). I tilefni af
þvt verður henni haldið samsæti í
kvöld á Hótel Island af nemendum
hennar og vinum.
. Sólarfrón, heitir nýútkominn bækl-
ingur eftir Þorstein Björnsson frá
Bæ. — Þorsteinn hefir margt snjalt
kveðið, og hér syngur hann lof ís-
lenzku sveitalífi með þeim krafti og
kjarnyrðum, sem honum er eigin-
legt.
(Dagblað.)
---------x---------
Geðshræringin,
setn kölluð er ást.
(Þýðing á útdrætti ár enskri bók.)
Elinóra Glyn, hefir gefið út bók
með þessum glóandi titli, sem ekki á
meira en svo við innihald bókarinn-
ar. Skáldkonán er þar að gefa æsku
lýðnum t Ameríku, -einkum ungu
stúlkunum, leiðbeiningar og heilræði
Afleiðingin af þessu er sú, að bókin
velur hvert umtalsefnið á fætur
öðru, og talar blátt áfram um ýms
■eíni, sem fram til þessa hefir aldrei
verið hreyft í bókum og blöðum. —
Fyrir þá, sem ekki eru Ameríkumenn
verður það hugnæmast Ivið bókina,
að hún dregur upp lifandi myndir aí
lífinu í austurríkjunutn, og sam-
kvæmislífi unga fólksins þar. Siðir
og siðferði hefir breyzt mjög með
tímanum. Snemma í bókinni er sagt
frá ‘'kjass-samkvæmum”. Þegar fólk
sem er gerókunnugt hvort öðru, og
sést í fyrsta sinnr, byrjar blátt á-
fram að láta vel hvort að öðru, og
láta kossunum rigna óstöðvandi hvort
á ahtiað”. “KiaSs-Iætin,” segir hún
“að sé ný venja, sem er misskilin
heinrsádeila gagnvart öðrum; þau
eru rnerki unt andlegan þroska, og
sönnun fyrir því, að unga fólkið
hefir algerlega sagt skilið við og
losað sig við hina púrítanalegu sið-
semi leiðinlega gamla fólksins. Til
eru slíkar kjass-samkomu'r, eins og
sú, að þyrpast í bíla til að kyssast
og láta vel hvort að öðru þar; þá
er vanalega ekið út tij einhverrar
sveitaknæpu við veginn, sem
hefir grófan hljóðfæraslátt og
lökustu vin á boðstólum. “Farir þú
þangað,” segir frú Glyn., “þá verðtf
álitið að þú hafir drukkið þar, þó
að þú gerir það aldrei Jiokkurntíma.
A þessum dögum, með þessum við-
bjóðslegu drykkjarföngum og skorti
á góðum siðum, þá getur þú iðrast
alla æfi þess augnabliks, þegar þú
byrjaðir að drekka. Vínföng eru ó-
lyfjan fyrir ungt fólk.” — Banninu
í Ameríku gefur frú Glynn þenna
vitnisburð: "Og eg trúi því staðfast-
lega; að tugir þúsunda af ungum
mönnum t Ameríku, séu að drekka
argasta áfengiseitur, sem eyðileggur
heilsu þeirra, hugsunarhátt og sið-
ferði, blátt áfram af því, að þeim
finst það vera æfintýrakent hættu-
spil fyrir sig að gera það. A fyrri
dögum, þegar hver maður gat fengið
áfengi, var drykkjuskapur álitinn á-
kaflega ljótur galli, jafnvel á manni
af meðalstétt. Nú á dögum sýnist
ekkert samkvæmi, þar sem ungt fólk
kemur saman, vera fullkomlega á-
nægjulegt, nema áfengi sé haft þar
um hönd. Astandið er orðið þjóð-
arþrældómur og sorgarleikur þjóðar-
innar. Blöðin, l'eikhúsin, fcímaritin
og kvikmyndahúsin brosa að öllu
þessu, og sýnast öll vera sammála
þessum lögbrotum. Löggjafarnir
sögðu: “Þú skalt ekki drekka”, og
strax heyrðist hávært hæðnisóp. —
Drykkurinn var lofaður hástöfum og
vasapelinn varð hverjum manni betri
en nokkurt meðmælabréf, og vissasti
aðgöngumiði að hverri fínni hæst-
móðins samkomu.”
(**—■Vísir.)
---------x----------
Tvær skáldsögur.
Martha Ostenso: Tlie Passio-
nate flight. Hodder & Stough-
ton. London -925.
(Hér fer á eftir partur úr ritdómi
Snæbjarnar Jónssonar:, “Tvær skáld !
sögur”, t Vísi. Er fróðlegt fyrir !
Islendinga að sjá hvernig á aðra ■
þessa bók er litið, af óhlutdrægum
Islendingi og ókunnum staðháttum,
þótt mjög vel sé hann að sér í brezk-
um bókmentum. — Ritst.)
Mér er sagt að íslenzku
blöðin í Vesturheimi hafi þegar get- |
ið um fyrri bókina, enda lætur það !
að líkum, því að bæði hefir bókin
vakið sérstaka athygli alment, og auk j
þess tekur hún mjög til Islendinga,
því flest er sögufólkið okkar þjóð-
ar, þótt ekki séu aðalpersónurnar
það. Höfundurinn — rúmlega tví-
tug stúlka, x barnakennari í sveit —
vann með henni $13500 verðlaun, og
þó að keppendur væru 1500, kvað
dómnefndin upp þann úrskurð, að |
engin hinna sagnanna gæti einu
sinni komið til samanburðar við j
þessa.
Bókin lýsir lífi frumbyggjanna t j
sveitahéraði í Kanada. Hver per- j
sóna er dregin með svo skýrum drátt-
utVt, að hún stendur lesandanum lif-
andi fyrir hugskotssjónum, og það j
enda þótt henni bregði ekki fyrir
nema rétt í svip. Lífsbaráttu þessa
fólks, hinni innri og hinni ytri, er j
alstaðar meistaralega lýst, oft harla
átakanlega og stundum ægilega, en
hvergi svo, að úr verði öfgar eða
fjarstæða. Sama snildarbragðið er á
lýsingu hinnar “dauðu” náttúru,
hvoít sem henni er lýst kyrlátri og
friðsælli, eða höfuðskepnunum er lýst
í æði sínu, eins og t. d. haglstormin-
um og skógarbrunanum. Það er stór-
kostlegt, hvernig í síðari frásögninni
er ofið saman hamförum eldsins og
hamförnm mannanna, einkttm Fúsa
Aronssonar, þessa ægilega jötuns
með saklausa barnshjartað, enda þótt
hann beri ár eftir ár í brjósti þann
óbifanlega ásetning, að ráða mann
af ' dögum: þrælmennið, sem vísaði
bræðrum hans, út í opinn dauðann, af
því að hann tímdi ekki að veita þeim
húsaskjól og beina....”
---------x----------
Til Islendinga í Pembina
County, Norður Dakota.
Aðeins fáeinar línur til að minna
ykkur á, að eg er að sækja um em-
bætti sem þingmaður (Representa-
tive to the Legislature) frá Pembina
County.
Eina ástæðan fyrir því, að eg
kem nú frani fyrir kjósendur, er sú.
að eg álít að grundvallarstefna sú
(Platform), sem I. V. A. samþyktu
á fundinum í Devil s Lake, í vor sem
leið, sé hvorki sanngjörn eða heppi-
leg . Grundvallarstefna þessi á-
kveður að leigja eða selja ríkis-
mylnuna og korngeymsluhlöðuna í
Grand Forks og takmarka starfssvið
ríkisbankans (Bank of North Da-
kota), þannig að hann geymi ekki
peningá fyrir fólk, • heldur aðeins
láni út á lönd.
Eg álít að bændur hafi svó mik-
inn hagnað, bæði af að selja mylnu
þessari hveiti, og eins af samkepnt
þeirri, sem hún orsakar, að þeir
beinlínis megi ekki missa hana.
Við bændurnir megum ekki gleyma
því, að þessi dýra og fullkomna
stofnun var bygð fyrir okkur, og
nú er margbúið að sanna það, að
hún gefur okkur tækifæri til að fá
yfirprís þann (Protein Premiumi,
sem við með öllum rétti eigum skil-
ið fyrir hveiti, sem er ríkt af mjöl-
efni þvi, sem nefnist “protein”.
I mörgum tilfellum nemur yfir-
prís þessi frá 10—20 cents á hverj-
um mæli. Oklíar reynsla við hveiti-
félögin hefir verið sú, að þau kaupa
hveitið okkar eftir vigt og flokkun
(grade), en selja það oft með há-
um yfirprís, og það er þeirra gróði,
en ekki okkar.
Eg held því fram, að þar sem
yfir 200 bankar hafa orðið gjald-
þrota í rikinu okkar á fáum árum, þá
'sé ekki sanngjarnt, að minsta kosti
fyrst um sinn, að loka ríkisbankan-
um sem peningageymslu-banka.
Fyrsta apríl 1926 geymdi sá banki,
meðal annars $9,061,255.01 af pen-
ingum, sem tilheyrðu héruðum
(Counties), og peningar, sem þar
lágu á rentu, námu $6,120,823.39.
Hvort þessi grundvallarstefna fær
framgang eða ekki, er alveg undir
því komið, hverjir verða kosnir á
þing, ekki einungis frá okkar hér-
aði, heldur einttig frá öllum hinum.
Nú hafa gefið sig fram þrír menn
í Pembina County, sem lofast til, ef
þeir ná kosningu, að gera sitt ítr-
asta til að halda við þeim ríkis-
stofnunum, sem við nú höfum, og
við eigum með að kjósa þrjá þing-
ntenn.
Ef eg næ kosningu, mtm eg nota
áhrif mín og atkvæði til að fylgja
fram þessum skoðttnum mínum.
Eg hefi verið Republican síðan
fyrst eg greiddi atkvæði, og hefi átt
heima og starfað í þessu héraði síð-
an eg var 10 ára gamall.
Eg vil leyfa mér að mælast til, að
þið landar mínir, menn og konur,
serrF eruð Republicans, hvort sem þið
eruð J. V. A.s eða Non Partisans
veitið mér og hinum, sem hafa
sömu stefnu, fylgi vðar útnefningar-
kosningadaginn 30. júní.
Virðingarfylst,
Barney Bastman.
----------x------------
Hveitisamlagið.
Ráðgert að stofna samlag í Ontario•
Stjórnarnefndarfundur í United
Farmers Co-operative Company var
haldinn í Toronto á fimtudaginn þ.
17. þ. m., og var þar talað um að
stofna Hveitisamlag í Ontario. Und-
irbúningsfundur var haldinn í Tor-
onto fyrir stuttu. Töluðu þar Mr.
C. H. Burnell, forseti Samlagsins í
Manitoba og skrifari aðalsöludeild-
arinnar, og aðrir embættismenn Sam-
laganna í vesturfylkjunum, og léta
þeir álit sitt þar í Ijós við stjórn
United Farmers Co-operative Com-
pany of öntario.
“The Farmers Sun” sem er opin-
bert málgagn United Farmers of
Ontario, segir að þó að erfiðleilc-
arnir á að stofna Samlag og koma
því á fastar fætur, séu forgangsmönn
unum augljósir, finnist þeim yfir
höfuð, að Ontario niegi ekki lengur
standa utan Samlagshreyfingarinnar.
Sagt er að Mr. H. A. Gilroy, for-
seti United Farmers Co-operative
Company, sé öflugur fylgismaður
málsins.
Samlagsþing.
Hveitisamlagið í Minnesota hélt
þýðingarmikið þing nýlega. Fréttirn-
ar í einu af Minneapolisblöðunum
enda með þessari sláandi setningu:
“Fjöldi ræðumanna lét í ljós ó-
ánægju sína yfir hirðuleysinu, sem
stendur bóndanum fyrir þrifum.. —
Sögðu þeir að sökum þeirra sam-
taka, sem iðnaðurinn í Bandaríkjun-
um hefði gert, ittnbyrðis, væri ekki
Iengur undanfæri fyrir bændur að
gera samtök stn á meðal. ef þeir vildu
ekki Iáta gleypa sig. Að bóndinn
notaði nýjustu og hagkvæmustu
framleiðsluaðferðir, en að hann væri
sorglega Iangt á eítir tímanum, hvað
söluaðferðir á afurðum hans snerti.
Langmest áherzla var lögð á fjölg
unina á meðlimafjölda Samlagsins, og
var í því sambandi bent á, að hinn
feikna vöxtur Samlagsins í Canada
væri ekki einungis gott dæmi um,
hvað hægt væri að gera, heldur og
örvun fvrir bændurna sunnan lín-
unnar að gera eins vel.”
* * *
Lesendum er boðið að senda blað-
inu spurningar um samlagið, og
verður þeim svarað í þessum dálk.
Fjórða ársþing
Hins sameinaða Kirkjufélags Islendinga
í Norður-Ameríku.
Verður sett í
KIRKJU GIMLI-SAFNAÐAR, GIMLI, MAN.
LAUGARDAGINN 26. JÚNf N.K., KL. 2 E. H.
Varaforseti, séra A. E. Kristjánsson, setur þingið.
Séra Rögnv. Pétursson prédikar í kirkjunni sunnu-
daginn 27. júní, kl. 2 e. h.
Fyrirlestrar:—
Laugardagskvöld 26. júní, kl. 8 e. h.: Séra Guðm.
Árnason.
Mánudagskvöld 28. júní, kl. 8 e.h.: Dr. S. E. Björns-
son.
Þriðjudagskvöld 29. júní, kl. 8 e. h.: Séra Friðrik
A. Friðriksson.
Söfnuðir hafa rétt til að senda 2 erindreka fyrir
hverja 50 safnaðarmeðlimi; ennfremur velja kvenfélög
og sunnudagaskólar hvers safnaðar, einn fulltrúa hvort
um sig til þingsins.
Skýrslur safnaðanna sendist til skrifara ekki síðar
en viku fyrir þingdag. Sömuleiðis árstillög, er send
skulu féhirði félagsins.
1 umboði félagsins, Winnipeg 1. júní 1926.
ALSERT E. KRISTJÁNSSON
varaforseti.
FR. A. FRIÐRIKSSON,
skrifari.