Heimskringla - 22.12.1926, Page 1

Heimskringla - 22.12.1926, Page 1
HEIMSKRINGLA XLI. ÁRGANGUR. WINNIPEG, MAN. MIÐVIKUDAGINN, 22, DES. 1926 NÚMER 12 JOL. GLEÐILEG JOL Eg hefi veviö beöinn aö fylgja jólablaði Heimskringlu úr garði meö nokkrum orðum. Mig langar til þess að gera það með þvi að benda á tvö atriði í sambandi viö hina undur— fögru frásögn guðspjallamannsins um fæðingu Jesú. Annaö atriðiö er bundið við hjarð— mennina á völlunum úti, hitt við jötuna í fjár- húsinu. 'Frásagan um hjarðmennina úti á völlununt hefir þann kost hinnar beztu lýsingarsnildar, að hún er ekki of nákvæm. Hún gefur huganum nægilegt tóm til þess að draga upp skýrari mynd fyrir sér, heldur en orðin geta gert. Vér höfum annars vegar mannmergðina í bænum, svo mikla, að hvert hús er þéttskipað, og aðkomufólk get- ur hvergi fengið inni. Þar er alt á fleygiferð vegna gestanna, sem fylt hafa bæinn, en þegar út fyrir hann kemur, þá tekur kyrðin við, sem verður enn meiri vegna mótsetningarinnar. Þar úti vaka fjárhirðarnir í húmskuggum næturinn- ar. Þeir hafa augun á hjörð sinni, en hugur— inn hvarflar inn til mannfjöldans, inn í húsa- skjólið, inn í ylinn. og ljósið, sem þeir fara hér svo varhluta af, úti á víðavangi hjarðhag— ans. Það er einmanalegt verk að vera srnali, jafnvel þótt fleiri en einn sé að verkinu. Og umfram alt er það ömurlegt um nætursakir. Þegar jafnvel dýrin, hafa bælt sig tií hvíldar, og ljósið er horfið, þá finnst smalanum hann ver.i einstæðingur og yfirgefinn. En fjárhirðarnir á Betlehemsvöllum urðu þess varir, að þeir voru ekki einir. Þeir hrukku upp við þá undursam - legustu sjón, sem þeir höfðu nokkuru sinni litið, eða nokkurir hafa ef til vill litið. Þeir horfðu inn í tvo heima. Þeir sáu landið, sem þeir þektu hverja þúfu í, baða sig í einkenni- legri og öðruvísi skínandi birtu, heldur en þeir höfðu áður haft hugboð um að til væri. Þeir sau ókenda himneska veru í þessari birtu, sem sagði þeim frá þvi, að mannheima merkustu tiðindi væru að gerast. “Og í sömu svipan var nieð englinum fjöldi himneskra hersveita, setn lofuðu guð og sögðu: ‘Dýrð sé guði í upphæð— um Qg friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefir velþóknan á’.” Afar vorir og ömmur spurðu ekki um það, hvort frásögur sem þessi, gætu verið sannar. Þeim datt ekki i hug að efast. Vorir tímar hafa gert meira en að efast. Það hafa ekki alt verið lökustu mennirnir, sem hefir fundist viðurhlutamikið að játa svo stórkostlegnum efn— um, sem þessum, jafnmikið og á reið fyrir lífs— skoðun þeirra og jafnlitil staðfestingargögn og þeir höfðu með höndum. En þess meiri ástæða er til þess að leggja hlustirnar við máli þeirra þúsunda, sem telja sig hafa séð nokkuð endur— skin þess, sem lýst er í jólasögunni, og þar er nefnt ‘‘dýrð drottins”, og annarsstaðar nefnt birta drottins”. Þeir eru margir, sem telja sig svo lánsama að hafa séð dálítinn glampa af því, sem fjárhirðarnir á völlunum fyrir utan Betlehem fengu að líta. Þeim fjölgar, sem trúa þvx, sem Jesús trúði, að vér séum umkringd og mnlukt á bak og brjóst, ef svo mætti að orði komast, af öðrum ósýnilegum heimi, sem ekki stendur á sama um oss. Eftir daga Jesú, og vafalaust fyrir hans tilstilli og atorku, urðu þau áhrif, er þaðan bárust, svo sterk og magnmikil, með Jærisveinum hans, að þau hrundu kristnu hreyfingunni svo af stað, að síðan hefii- hún ekki staðar numið. Og trúi maður þvi, sent er reyndar ekkert trúaratriði lengur fyrir mörg- um, að þessi annar heimur sé til og sé ekki að— greindur fra oss méð neinu algerlega ófæru djúpi, þá er það sérstaklega eðlilegt og sjálf- sagt að ímynda sér, að þessa heims yrði vart á þessari örlagariku nótt. Sjálfur atburðurinu sem var að gerast — fæðing Jesú í þenna heim var upphafið að þeirri alvarlegustu innrás aðnars heirns til ahrifa a vorn heim, sem sögur fara af. Eæðing Jesú er ekki tilvjljun. Þau völd, sem yfir mönnum vaka, vissu hvað var að gerast, og engan þarf að undra, þótt þess yrði vart, að tilhugsanin væri með gleðiblæ, þótt lítið væri um dýrðir hjá fjölskyldunni í fjár— húsinu. * * * Ætli það sé ekki sameiginlegt einkenni á öllum börnurn og unglingum, að þeim verði öll— unt á einn veg, er þau heyra í æsku frásöguna um atburðinn í Betlehem ? Það grípur viðkvætnni gljúpa barnslundina, við að heyra um þessa raunalegu mótsögn, að konungur og lávarður rnanna fái ekki veglegri stað nteð ntönnum, en fjárjötu að vöggu. Eg held að þetta sé áreið— anlega það fyrsta, sem verulega veldur athygli barnsins, er það heyrir söguna. En það breytist rneð aldri, eins og alt, sem barnshugann grípur mest. Þessi einfaldleiki hugarins máist smám— saman af. Fullorðnutn manni er þetta ekki neitt undrunarefni. Hann sér að ekkert er eðlilegra, en að fátækum, ókunnugunt manneskjum veiti erfitt að fá inni í borg, sem þegar er yfirfui! af fólki. Einhver verður að vera útundan, og hvað er þá eðlilegra, en að það verði sá, sem síðast kemur, og auk þess hefir lítið fyrir sig að greiða? Auk þess sem margir hafa til— hneigingu til að líta á þetta sem táknmynd þess, sem siðan, og reyndar áður, hefir altaf verið að endurtaka sig, að það hefir oftast hægt um sig og sýnir lítil ytri vegsmerki,- sem reynist þegar til kemur, mest um vert. Þetta er alveg satt. En jatan i fjárhúsinu er líka táknmynd utn annað, sern ekki er síður vert að veita at- hygli. Hún er tákn eða ímynd gestrisnislund- arinnar eða gestrisnisleysisins með mönnum. Jesús hefir eitt sinn lýst, í einni af áhrifamestu dæniisögum sínum eða likingum, hverjum aug- um hann liti á gestrisnishug manna. Hann sagði að svo mikils væri um þann hug vert, að mennirnir yrðu eftir honum dæmdir. Honutn einum. “Hungraður var eg og þér gáfuð mér ekki að.eta. ....... Sannlega segi eg yður: svo frantarlega sem þér hafið ekki gert þetta einum þessara minna minnstu bræðra, þá hafið þér ekki gert mér það.” Það eru margar tegundir til af þessunt “niinnstu bræðrum”, sem Jesús mundi vera al— búinn til þess að telja sína bræður, en á eina skal hér bent. Sagan um jötuna í fjárhúsintt þrýstir þvi frant í httgann. Frá því að Jesús lá í þeirri sæng, er honunt var þar reidd, og frant að síðasta augnabliki lífs hans, var hann að vaxa upp í þá tign, er hann sjálfur eignar sér, er hann telur konungsnafn sitt verða með þvi réttlætt, að hann beri sannleikanttm vitni. Kon— ungur sannleikans hefir séð rnargan sannleiks— smælingjann illa leikinn. Hann hefir séð hann hungra og þyrsta eftir að verða mönnurn að liði og veita þeint sína þjónustu; hann hefir séð hann bera sem gest að garði og verða úthýst: hann hefir séð h*nn sjúkan og óstuddan, og ntenn hafa eigi hjúkrað honum. Eg get ekki hugsað mér, að það eigi síður við þessa, helduf en nokkra aðra, sem Jesús nefnir sína minnstu bræður, að svo frantarlega sem rnenn hafi eigi veitt þeim stuðning, þá hafi þeir eigi veitt hon- ttm það. Oss finnst nú, að helmingur æfinnar væri gefandi til annars eins og þess, seni sagan segir um vitringana frá Austurlöndum, að fá að krjúpa fyrir fratnan vöggu Krists og veita hon- um lotningu. Það má fullyrða, af því að dæm— in eru svo augljós úr æfiferli beztu manna heimsins, að ekki er helmingur æfinnar ein- göngu gefandi, heldur alt lifið, fyrir að fá að vera þjónn og boðberi einhvers af Krists minnstu bræðrum, einhvers af hinum smáðu, fjötruðu sannleiksbrotum, sem eru að brjóta sé.‘ farveg um veröldina. Fjárhúsjatan er okkur í— mynd þess, að allur sannleikur verður eitt sintt konungur. Ein hliðin á dómnurn, sem kveðinn verður upp um líf vort, miðast áreiðanlega við það, hversu glöggir vér höfum verið á að sjá konungsmarkið á enni þess, sem upp— haflega var úthýst alstaðar nema úr penings— húsum. Og allur sannleikur á að því leyti sant— merkt við þann, sem t peningshúsinu í Betle— hem gisti, að hann verður vor eiginn endurlausn ari að sama skapi, sem vér veitum honum lið. Allur andlegur sannleikur, sem kemst inn und— ir hjartarætur mannsins og verður líf . af hans Hfi, helgar ntanninn. Takmark hans er hærra en vér fáum í raun og veru greint, því að það er að verða Kristi líkur. “Því að bæði sá,'sem helgar, og þeir, sem helgaðir verða, eru allir frá einunt kotnnir; fyrir þá sök telur hann það eigi vanvirðu að kalla þá alla bræður.” Það, sem sýnilegt var með Kristi, er ósýnilegt með oss. Það, sem hjá oss liggur enn t óveglegri jötu, á fyrir hendi að verða Kristi líkt. Það, sem enn er t ntyrkri, á eftir að verða uppljómað af birt— unni undursamlegu, sem hjarðmennirnir sáu á Betlehemsvöllum. Það er þessi meðvitund, sem frantar öllu öðru gefur oss tilefni til þess að bjóða hvert öðru: Gleðilcg jól. Ragnar B. Kvaran. Jól. Heilsa nú jólin og hækka fer sólin, vermandi helkalda heima. Lífið hið lága t línvoðum snjáa senn fer urn sumarið dreyma. Allir þrá jólin, þá aftur snýr sólin brosandi — þrátt fyrir bylinn — Miskunnar væra mönnum að færa lífskraftinn, ljósið og ylinn. Hugarlífs sólin hvort hækkar um jólin, sjálfir það mennirnir sýni. Meðan að högum er misskift og lögum, skært er ei von að hún skini. Nær hefjast ei neinir nerna þeir einir: Mildir og mannúðarnæmir, veldis á stólinn, þá verða fyrst jólin sönn eins og heiminum sæmir. ö'rlaga drottinn, sýn dásemdarvottinn, gæt þeirra’, er glapstigu þræða. Sýndu þeini veginn, er sannleikans megin liggur til hugsjóna—hæða. Friðarins andi frá einingarlandi, streymdu’ inn i hjörtun, svo hlýni. Skuggunum eyddu, úr skýjunum greiddu, réttlætis röðull svo skini. Kærleikans herra, lát kaldlyndið þverra, sem fyrir sólunni skafla. Leiddu’ inn í hörðu hjörtun á jörðu bylgjukvik algæðis afla. Sólnanna sólin, sveipaðu jólin geisladýrð guða frá ljósum. Svellhjúpinn þýddu af sálum, og prýddu þær elskunnar ódáins rósum. Þorskabitnr.. Fögur ert þú, fjallshlíð, Furutré þig klæða Upp á efstu brúnir. — — Engir vindar næða Gegnum grænan möttul Gróðrarvætta þinna. — Færri þrautir þjaka þeim, sem rnargir hlynna. Sólin til þin sendi Svif—létt ský, er slæðist Létt og hægt um limið, — Lyftist, — deyr — og fæðist Enn á ný — og öðlast Annað fegra gerfi. .—Þéttist,—skriður,—skyggir Skógi vaxið hverfi. » — Rofar. — Rauðir litir Reyniviðinn sveipa. Haustsins fimu fingur Funa‘ um rjóðrin hleypa. Dökk-græn skógar-skikkja Skrautlitum er ofin. — — Sólin gull—hadd greiðir Gegnum skýjarofin. Neðst í nýju kjarri Nákvæmt vil eg skoða Fjöllit blöð og fögur, Fyrstan vetrarboða. — — Kyrt! — Eg krýp á þrepi, — — Kjarrið huldi leiði! Lít eg lága krossinn, Limið frá er greiði. — Un þér, einstæðingur, Undir fjallsins rótum. Þó þitt leiði liggi Langt fra bliðu—hótum Vina og vandamanna, Virðist svipur fjallsins Bæta’ upp hávært hrósið Heiman—fengna skjallsins Jakobína Johnson• RfR Robert Burns. Eftir R. G. Ingersoll. Þótt saga Skotlands syngi þrátt Um sína stóru menn, Hinn æðsti og bezti af öllum þeim Hér ólst, við kjörin tvenn. Hér bjó hinn kæri kotungsson, Er kærleiksríkið vann; Og aldrei nokkur niðji lands Var neitt á borð við hann. En vegglágt þótti hreysið hans Og hrört, með elli-brag. Einn skíðis—fleki skýldi gætt, Einn skjár bauð “Góðan dag”. Er horfi’ eg á þann helga reit, Mig hryggir stétta-prjál; Því honum fæddist höfuðskáld Og heimsins stærsta sál. Mér finnst sem einhver heilög hönd Nú haldi um staðsins vé; Sem ætti guð þar útibú, ^ Er öllum bending sé. Þv't veit eg meðan tíma—tal Er til og dagur ris, Fær Robert Burns í heimi hér Vort hjartans lof og prís. P. 8.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.