Heimskringla - 11.05.1927, Side 1
é>
XLI. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MAN, MIÐVIKUDAGINN. 11. MAÍ 1927.
NÚMER 32
' CANADAI
i
Frá Riverton fréttist, aS þar hafi
á fimtudaginn verið stofnaS con-
servatívt félag yngri manna. Var
samþykkt aö félagið skyldi fylgja
starfsskrá conservatíva. Mr. S. Thor
valdson var kosinn formaður, og T.
R. Thorvaldson fjármálarítari. Þrjá-
tíu og átta yngri menn gengu í fé-
lagið, og höfðu allir lofað að auka
nýjum meðlimum í félagið.
Fregnir hafa borist um það, að til-
nefningarfundur framsóknarmanna
í því kjördæmi, veröi haldin að Ai'-
borg á morgun. Hefir heyrst að
fjöldi manna verði þar í vali, -einir
4—5 Islendingar og jafnmargir, ef
ekki fleiri, af öðrum þjóðflokkum.
I St. George kjördæmi hefir séra
Albert E. Kristjánsson verið tilnefnd
ur af framsóknarflokknum, eins og
getið hefir verið um áður, og er það
gleðilegur vottur þess, að til séu
bugsandi menn, er fylgja þeirri stefnu
í því kjördæmi, er ekki vilja fljóta
íengur sofandi að feigöarósi í út-
breidda arma liberal flokksins, —
Mr. Paul Reykdal frá Lundar hefir
verið tilnefndur þingmannsefni con-
Servatíva í sama kjördæmi. Hefir
beyrst, að þessi tvö þingmannsefni
bafi hoðið þinginannsefni liberala,
Mr. Skúla Sigfússyni, að þeir allir
þrir skyldu hálda sameiginlega und-
irbúningsfundi, hver til fylgisöflunar
sinum málstað auðvitað. Sé þetta
rétt, er vonandi að Mr. Sigfússon
fallist á þá uppástiungu, því slikt
fyrirkomulag er áreiðanlega bæði
gagnlegast og skemtilegast kjósend-
um, að þingmannsefni standi fyrir
máli sínu og skýri þaö, hver í ann-
ars viðurvist.
Rauðáin hefir einnig vaxið mikið
siðustu dagana, en horfir þó ekki til
stórskaða enn, enda útlit fyrir, að
nú muni þorna, í nokkra daga að
minnsta kosti. En telja má víst, að
þetta tíðarfar hafi orðið bændum hér
i fylkinu til stórtjóns, þar eð litlu,
eða engu, mun verða sáð fyrir helg-
ina, þótt þurt haldist. Nú er veður
hér þurt, en kalt, og ekki útlit fyrir
snögga breytingu næstu daga. — Síð-
ustu fregnir herma, að skaðar hafi
orðið af vatnagangi við Lac du Bon-
net, og sé brú Winnipeg Hydro fé-
lagsins í mikilli hættu, þar eð vatns-
elgurinn hafi rekifr á hana milli fimm
og tíu þúsund trjáboli, er þrýsta ákaf
lega á hana, sem nærri má geta. Og
telja verkfræðingar stjórnarinnar þó
sennilegast, að enn muni hækka uni
þrjú fet í Winnipekfljótinu. Eru all-
ir í Lac du Bonnet, sem vetlingi geta
valdið, önnum kafnir að treysta flóð
garða og kvíar fram með fljótinu. —
Afturhaldsaldan í Toronto virðist
, heldur fara í vöxt. Lauk þó guð-
lastsmálinu þar svo, þvi er Heims-
, kringla gat um nýlega, að því var
j varpaö á hauginn við æðri dómstóla,
og Mr. Sterry því frjáls maður aft-
I ur. En tæplega var það um garö
, gengið, er þeir guðhræddu höfSuöu
| mál á móti nokkrum ungmennum, er
I höfðu framið þann óguðlega glæp,
I að leika tennis á sunnudegi. Stend-
i ur það mál nú yfir, og er úrslitanna
, beöið með eftirvæntingu af mörgum.
i Má búast við að golfleikurum i Win-
I nipeg verði hætt, ef tennisleikendur
| í Toronto verða sekir fundnir.
Samkvæmt síðustu manntalsskýrsl-
um, frá 1. júní í fyrrasumar, voru
þá. 9,389,300 nianns í Canada, hefir
þá fjölgað rétt um 600,000 síðan 1.
júní 1921.
Tíðarfariö hefir verið
tmdanfariö, svo að rnenn
annaö eins á þessum tíma.
rigningar og snjókomur
fylkin, sérstaklega nú um
Enn meiri ívöxtur jhefir
Assiniboineána, og hefir
tveim unglingum nýlega
afskaplegt
muna varla
Látlausar
um sléttu-
helgina. —
hlaitpið í
hún orðið
aö bana.
Mikla eftirtekt hefir ákvæði at-
vinnumálaráðuneytis Bandaríkjanna,
um innflutninga, það er getið er um
á öðrufn stað hér í blaðinu, vakiö
víða í Canada, sérstakfega í Windsor,
Ontario, sem er einskonar útbú frá
Detroit, og skiftir mjög mönnum við
þá borg. Hefir veriö gerð sendi-
nefnd á fund W. L. Mackenzie King,
forsætisráöherra, til þess að biðja
hann að skerast í leikinn, svo að á-
kvæði þessu verði breytt, ef unnt er
Sinni hann þeirri beiðni, sem búist
er við, þá fær hinn nýi sendiherra
Canada í Washington, Vincent L.
Massey, þar sína fyrstu eldskírn, ^ð
kalla má.
Stjórnmálafréttir
Bandaríkin.
Meir og meir breytist útlitið í þá
átt, að A1 Smith, ríkisstjóri New
York rikis, verði tilnefndur forseta-
«fni Demókrata 1928. Að minnsta
kosti er það víst, að Repúblíkar. telja
hann tilvonandi mótstöðumann sinn.
Fáir skyni bornir menn neita því, að
Smith niuni vera einn af allra mikil-
baefustu mönnum, er opinberri stöðu
gegnir í Bandaríkjunum, og er álit
nianna sízt minna á sjálfráðum en ó-
sjálfráðum hæfileikum hans. Æs-
>ngamenn, mótstöðumenn hans, hafa
fundið honum tvennt helzt til for-
attu, að hann væri mófallinn 4>ann-
lögunum, og sérstaklega, aö hann
Vaeri kaþólskur. Hefir aldrei ka-
þólskur maður verið forseti Banda-
r'kjanna. Vilja þeir telja kjósend-
Urn sínum trú um það, að áhrif páfa-
valdsins á kaþólskan forseta myndu
Verða Bandaríkjuntim mjög hættu-
Fylgismenn Smiths telja þess-
ar mótbárur bábiljur einar; segja, að
v>tanlega hafi það engin áhrif á viö-
hald bannlaganna eða eftirlit með
þeim, hv^rt sé hið persónulega við-
horf forsetans til þeirra. AS for-
setinn sé kaþólskur maður, skifti auð
vitað heldur engu máli; trúarfrelsi
sé viðurkennt í Bandaríkjunum, og
engu tnáli skifti frá því sjónarmiði,
hvort forsetinn sé kaþólskur, lút-
erskur, únitari eða trúleysingi. A
hinn bóginn sé stjórnarfarið svo fast
skorðað, að jafnvel mestu áhrif, er
páfinn gæti haft á kaþólskan forseta,
myndi ekki miklu hagga ttm löggjöf
eða framkvæmdarvald.
Utn þetta hefir mikið verið rætt og
skrifað í Bandaríkjunum undanfar-
ið. Kom þar, að lögmaður nokkur
frá Manhattan, Charles G. Morehall,
ritaði opiö bréf til Smith ríkisstjóra,
í tímaritiö “Atlantic Monthly”. Var
það áskorun til Smiths, um að láta
skilmerkilega í ljós afstöðu sina til
kaþólsku kirkjunnar og ríkisins, ef
hann yrði forseti.
Brást Smith hiklaust og drengilega
við og svaraði unt hæl í næsta hefti
sama tímarits. Er þetta mergur máls
hans:
“--------ASalefni bréfs yðar, er
blátt áfram það, á óbrotnu ensku
máli, að gefa í skyn, að ósamræmi
eigi sér stað milli hollustu við ka-
þólska trú og þegnhollustu við j
Bandaríkin. Oll mín langa reynsla í i
opinberum stöðum, hefir sannfærtj
mig um að þetta sé ekki rétt. Nítján
sinnum hefi eg unniö embættiseið i |
þessu ríki. . I hvert skifti sór eg að
vernda og fylgja stjórnarskrá Banda'
ríkjanna. Alla mína embættistíð hefi ^
eg verið meðlimur hinnar rómversk-
kaóþlsku kirkju. \’æri nokkurt ó-,
samræmi í því, hefði eg manna sizt
komist hjá því, sökum þess að eg
hefi ekki setiö þegjandi hjá, heldur
barist fyrir umbótum stjórnarfars og'
mannréttinda.........
.... Þér ..... játið sennilega, að
ekki hafi staða hæstaréttarforseta1
Bandarikjanna minni áhrif á þjóð-j
stefnur og þjóðþrif. en forsetastaðan. ^
.... Einn fjórða hluta af sögu þessa
embættis, hafa skipað það tveir ka- J
þólskir menn, Roger Brooke Taney,'
og Edward Douglas White. ........
Hver er þessi ágreiningur (milli
ríkis og kirkju), sem þér færið í tal ?.
Kannske á hann sér stað ! einstöku!
löndum, sem ekki tryggja mönnum
fullt trúfrelsi. En í æfintýralegustu
ímyndunardraumum yðar getið þér,
ekki sært fram ágreining milli trú-J
arjátningar. manns og þegnskyldu
hans við Bandarikin, nema á grund- (
velli þeirrar óhugsandi tilgátu, að
eitthvað það verði leitt í lög, sem
brýtur í bága viö allt sameiginlegt j
siðferði trúaðra manna. Og ef þér,
gætuð gert yður það í hugarlund,'
hvernig myndi þá mótmælendatrú-
maður ráða frani úr því ? AuSvitaö j
á þann hátt, er samvizkan byði hon-|
um. Einmitt á sama hátt og kaþólsk'
ur maður.
Það er alkunnugt, að eg hefi veitt!
öll opinber embætti, með hfiðsjón afj
hæfileikum umsækjenda eingöngu,
og aldrei innt menn eftir trúarjátn-j
ingu. Fyrsta mánuö þessa árs kom
saman í fyrsta sinn í þessu ríki, ráðu-j
neyti ríkisstjóra. Eg skipaði í það
tvo kaþólska menn, þrettán mótmæl-
endur og einn Gyðing........
.... Trúarjátning mín, sem ka-
þólsks Amerikumanns, er í stuttu máli
á þessa leið:
Eg trúi á guðsdýrkun samkvæmt
trúarkerfi og siðvenjum rómversk-
kaþólskrar kirkju. Eg kannast ekki
við nokkurt vald innan kirkjufélags
mins, er hafa megi áhrif á gildi
stjórnarskrár Bandaríkjanna, né
framkvætndarvald landslaganna,
Eg trúi á algert samvizkufrelsi
allra manna, og að allar kirkjur, trú-
flokkar og tt'úarbrögð, standi jafnt
að vígi fyrir lögunum; ekki fyrir í-
vilnun, heldur fyrir sjálfsagðan rétt.
Eg trúi á algerðan aðskilnað ríkis
og kirkju, og á strangt eftirlit með
fyrirmælum stjórnarskrárinnar; að
löggjafarþingið mégi ekkert um trú-
málastefnur lögleiða, né banna.
Eg trúi því, að enginn kirkjudóm-
stóll hafi nokkurt vald til þess að
setja nokkurt skilyrði unt landslög,
önnur en að ákveða afstöðu sinna
eigin meðlinta til kirkjunnar.
Eg trúi á aöhlynningu alþýðuskóla,
setn eitt af grundvallaratriðum ame-
rísks frelsis. Eg trúi á rétt sér-
hverra foreldra til aö ákveða, hvort
börn þeirra skuli heldur njóta fræðslu
í alþýðuskólum, eða skólum þeirrar
kirkju, er þau játa hollustu.
Eg trúi á meginreglu afskiftaleysis
þessa lands, um sérmál annara þjóða,
og að vér eigum að standa öruggir
gegn ölluni þessháttar afskiftum,
hver sem til þeirra kann að ráða.
Og eg trúi á bræðrafélag allra
manna undir sameiginlegri föður-
vernd guðs.
I þessurn anda vil eg sameinast
amerískum meðbræðrum mínurn, af
öllum trúflokkum, í innilegri bæn um
það, að aldrei frarnar megi það henda
í þessu landi, að nokkrum opinberum
starfsmanni sé ögrað með þelrri trú-
arstefnu, sem hann í auömýkt sinni
hefir reynt að feta í áttina til guðs
síns.”
Bretland.
Stormasamt hefir verið undanfarið
í parlamentinu, um fjárlög Churchills,
en þó hvesst til til muna síðan, út af
frumvarpi stjórnarinnar um verkfalls-
hann. Verður nánar skýrt frá því í
næsta blaði.
1 fjárlögum Churchill’s er gert ráð
fyrir því nær 37 ntiljón sterlingspunda
tekjuhalla á fjárhagsárinu (um $185,-
000,000). Hefir Churchill gripið til
COOLIDGE OG HOOVER.
Fáum mun blandast hugur um það,
að áhrifamesti og merkasti maðurinn
í rikisráði Bandarikjanna, sé verzl-
unarmálaráöherrann, Herbert Hoo-
vgr. Hefir hann, innan stjórnar-
flokksins, oftar en einu sinni verið
tilnefndur sem heppilegur eftirmað-
ur forsetans, og engin dul á það dreg-
in, að hann sé íorseta og ráðuneyti
hans, að ýmsu leyti sverð og skjöld- j
ur, sökum þess almenningsálits, sem sama) Qg Canadastjórnin er að
hann nýtur. Þess kynlegar kom það j smákoma j kringj að tekka tekjuskatt-
flestum fyrir, er forsetinn lét “tals-1 inn> og nemur sú ,ækkun 24,694,000
mann sinn nýlega geta þess við ster]ingSpUn(jum fra þvi j fyrra. Hefir
blaðamenn þá, er vikulega er stefnt; ^ hvorttveggja slegi8 hinum mesta
til Hvita hússins , til þess að hafa úúug á srnátelcnamenn á Englandi, því
fregnir af athöfnum og fyrirætlun- | auðvitag er> ag þena gjfurlega tekju.
um forseta, að i tilefni af sögum hal,a vergur ag rétta vig meg
þe.m, er geng.S hefðu um, að ráðu- um sköttum a?Sallega> er tekjuskattur-
neyt.S væri ekk, sammála um stefnu inn er klipptuT til muna> en þeir skilja
þá, er Bandarikin skyldu halda, með þaS & Englandi ag minnsta kosti> aS
hliðsjón af því, sem fram fer í Kína, hækkun óbeinna skatta> er sama- sem
og að búast mætti við, að Kellogg • dýrari UfsnauSsynjar> sv0 aS mildu
r. k.sráðherra yrð. að segja af sér, meira nemur fyrir smáteknamenn, en
v.ld' forsetmn gera það heyrumkunn j aS ]ækkun tekjuskatts þeirra megj
ugt, að ríkisráðiö væri sammála; að bæta SVQ nokkru nemi, _ Sérstaklega
ekk. hefði kom.ð til orða, að Kellogg hefir Rt Hon Philip Snowden> fyrv>
segöi af sér, og þótt svo færi, þá fjarmálaráðherra, verið afskaplega
myndi Hoover aldrei verða eftirmað- þungoröur j garS Churchills fyrir
ur ha»s< 1 rík.sráðherrasessi. - Vakti fjárlög hans> Hæfa ummæli hans
s. ðasta atriðið í þessari yfirlýsingu markiS þvJ fremur> sem hann, auk
hið mesta umtal, og þótti það aö ó-
fyrirsynju gert. Fór svo að forseti
lét “talsmann” sinn lýsa yfir, fjórum
dögum síðar, velþóknun sinni á dugn
aði og ötulleik Hpovers, og bera á
móti því, að hiðumrædda atriði yfir-
lýsingarinnar, bæri á nokkurn hátt
að skoða, sem vantraust eða van-
þakklæti í garð Hoovers. Hafa fylg-
isblöð forseta síöan keppst við, að
reyna að gera sem n.innst úr þessu,
en ekki tekist betur en svo, sem varla
er von, að vinir og fylg.smenn Hoo-
vers erú sagðir stóróánægðir undir
niöri, enda telji þeir, að forseti hafi
að ófyrirsynju seilst um öxl til Hoo-
vers af smámunalegri afbrýðissemi.
Þykir ýmsum, sem forseti muni þarna
hafa gefiö nokkurn höggstað á sér,
fyrir tilnefningarhríðina, er fer í
hönd næsta ár, því flestir gera ráð
fyrir þvi, að Coolidge muni ætla sér
hið þriðja embættisskeið í forseta-
tign, þvert ofan í siðvenjur, sjái hann
sér líklegt færi.
Annars er þessi “talsmaður” for-
seta nú úr sögunni, að hermt er. Vita
allir að hann var enginn til nema for-
seti sjálfur, og þótti mörgum það
ókarlmannlegt af honu.n, að búa til
þenna staðgengil fyrir sig, til þess
að komast hjá þvi, að opinberlega
yrðu beint til sín rakin nokkur um-
mæli um athafnir, álit og fyrirætl-
anir. Hafa andstæöingar forseta
gert hið mesta gys að “talsmannin-
um”, í ræðu, riti og háðmyndum, og
lítur svo út, sem forseti hafi sann-
færst um, að sér væri enginn hagur
í þessurn uppvakningi.
AKVÆÐI UM INNFLYTJ-
ENDUR.
Atvinnumálaráðuneyti Bandaríkj-
anna gerði nýlega samþykkt heyrunt
kunna, að upp frá þessu skyldi til-
vonandi innflytjendum frá nágranna-
löndunum (Canada og Mexico) skift
í tvo flokka, eftir því hvort þeir
væru fæddir í nágrannalandinu, eða
utanlands rinnarsstai^ar. Arangir-
inn af þessari flokkun er sá, að þeir,
sem fæddir eru t. d. í Canada, geta
eftir sem áðt.r flutt til Bandaríkjanna
er þeir vilja, gegn því að greiða $10
í vegabréfsgjald og $8 að auk í nef-
skatt. Aftur á móti verða þeir, sem
bornir eru utan Canada, þótt þegn-
réttindi hafi þeir öðlast þar, fram-
vegis að hlíta hlutfallsákvæðum þeim
(quota), er gilda fyrir land það, er
hefir borið þá, og verða þeir því, að
leita eftir vegabréfum hjá ræöis-
mönnum þeirra ríkja í Canada. A-
kvæði þetta öðlast gildi 1. júní næst-
komandi.
þess að vera heimskunnur rithöfund-
ur um mannfélagsmál og fjármál,
Jagöi fyrir parlamentið Jeins og
Hkr. gat um 1924) fjárlog, svo meist
aralega úr garði gerð, að stækustu
mótstöðumenn hans i þinginu hróp-
uðu margfalt húrra fyrir honum,
engu síður en flokksmenn hans. —
Snowden þykir einn af allra skæð-
ustu og orðhvössustu ræðumönnum
í parlamentinu, enda dró hann nú
ekki af. Komst hann meöal annars
svo að orði:
“Fj ármálaráðherrann (Ghurchill)
er oss dýrkeypt munaðarvara .... og
gersamlega óhæfur í þessu eni-
bætti.....
Fyrstu fjárlög hans (maí 1925;
hækkun sterlingspunds i gullgildi)
voru ríkra manna fjárlög, önnur fjár
lög hans (maí 1926, kolafjárlögin,
er veittu um $100,000,000 til kola-
iðnaðarins, án þess að bæta hiS
minnsta úr því öngþveiti, er hann
var kominn í, e'ða afstýra áfelliriu
nema eitt ár) voru sem gerð af
blygðunarlausum gjaldþrotamanni, og
þessi, hin þriðju, eru sambland af hin
um tveimur, og byggð á blekkingum
og loddaraskap að auki......
Eg er þess fullviss, aö það bezta,
sem hægt er að segja um þessi fjár-
lög, sé það, að þau skjóti aöeins
skelfingunni á örlítinn frest með alls-
konar undanbrögðum.
.... Eg spái því, að þótt ekkert
ófyrirsjáanlegt komi fyrir, þá muni
Chnrchill þurfa að horfast í augu
við þjóðinar, með tekjuhalla henni til
handa á næsta ári...... Og þegar öll
kurl koma til grafar, þá hlýtur stjórn
in ein að bera ámæli fyrir þenna
tekjuhalla, sökum stefnu þeirrar er
hún tók gagnvart kollaverkfalls-
mönnum.”
ir fyrirtækið atvinnu 38 manns, þar
af 4 karlmönnum auk forstöðumanns
íns. Unnið er á þeirn tíma, sem
skortur er á atvinnu yfirleitt. Greidd
vinnulaun eru um 35 þús. kr. á ári.
Forstöðumaðurinn heitir Ari Eyj-
ólfsson, ágætur maður. Hann er ætí-
aðiir úr Reykjavik. Hann lærði garna
verkun hjá Currv þeirn, sem fyr var
nefndur, og hefir veitt fyrirtækinu
forstöðu síöan Curry hvarf frá. —
Hið nýja garnaverkunarhús Sam-
bandsins er um sumt frumlega gert og
að fyrirsögn Ara. Verkabrögð eru
prvðileg, regla ströng og ástundun
mikil, enda verður svo að vera, þar
sem hönd tekur við af hendi og töf á
einum stað orsakar frekari tafir.
Sérstaklega var þaö eftirtektarvert,
að verkafólkið talaði ekkert orð um
fram það, sem nauðsynlegt var vegna
vinnunnar.
Garnirnar verkaðar eru fluttar út,
einkum til Þýzkalands og Englands
og hafðar' til pylsug)erSár. J Þykjá
þær herramannsréttur. — Næsta stig
í þessari iðnaðarviðleitni er að hag-
nýta garnirnar til pylsugerðar innan
lands. Slimið, sem er verkað úr
görnunum, er fyrirtaks áburður.
Hér er um stórn.erkilegt fyrirtæki
að ræða. Verðmæti, sem áður varð
að litlum eða engum notum, er nú
hirt og hagnýtt sauöfjáreigendum til
hagsbóta og landinu til aukins álits
og þrifa. — Verður síðar skýrt frá
gærurotun Sambandsins. Bæði þessi
fyrirtæki eru liðir í samvinnu lands-
ins, þar sem telja má að gengið sé
inn á framleiðslusvið. Þau eru byrj
unarspor á þeirri leið, sem verður
truddur vegur, þegar stundlr líða
fram, og almenningur vaknar til ljós-
ari skilnings um blessun og mátt
samvinnunnar.
Frá Islandi.
ISnaðarframfdrir.
Garnaverkun Sambandsins.
Arið 1919 stofnaði félag í Ameríku
garnaverkun í Reykjavík. Maðurinn
sem stofnsetti fyrirtækið fyrir hönd
félagsins, hét E. J. Curry. Arið 1921
keypti þýzkt félag garnaverkun þessa
og rak hana í 4 ár. En í fyrra keypti
Samband íslenzkra samvinufélaga á-
höldin, byggði nýtt hús l.anda þessu
fyrirtæki og rekur nú garnaverzltin-
ina n.eð auknum krafti. Stendur
fyrirtækið undir stjórn útflutnings-
deildar sambandsins.
Þarna eru til jafnaðar á ári verk-
aðar garnir úr um 250 þús. fjár. —
Veltan er altl að 300 þús. kr. og veit-
Fjær og nœr
Skemtisamkoma verður haldin í
RivertonCommunity Hall, þriðjudag-
inn 24. þ. m., til arðs fyrir menntasjóð
Björgvins Guðmundsonar.
Meðal annars hefir hið góðkunna
listafólk próf.og Mrs. S. K. Hall
og Mr. Paul Bardal, ákveðið að taka
sér ferð á hendur til að skemta á
þessari samkomu. Ætti það að vera
nægileg hvöt fyrir fólk að fjölmenna.
Æskilegt væri að fólk í nágranna-
byggðunum stofnaði ekki til sam-
kon.na þenna sama dag, svo að sem
flestum gæfist tækifæri að njóta svo
fágætrar skemtunar, sem þétta er hér
í norðurparti Nýja Islands. Er bú-
ist við miklu fjölmenni á þessa sam-
komu, til að skemta sér og styrkja
gott málefni.
%
Virðingarfyllst,
N. Björnsson.
Jos. T. Thorson,
hinn góðkunni þingmaður Mið-Win-
nipeg syðfi, og fvrv. lagasKÓlastjóri,
er nú kominn aftur af sambandsþing-
inu í Ottawa, og seztur að hér í bæ.
Hefir hann nú gengið í félagsskap
við lögmannasamband þeirra H. S.
Scarth og C. K. Guild, og taka þeir
nú að sér allskonar málafærslu undir
firinanafninu
Scartli, Guild & Thorson.
Eru skrifstofur þeirra að 30$ Great
West Permanent Building, og sima-
tala 22 768.
Mr. Thorson er svo alkunnur með-
al Islendinga, fyrir gáfur sínar, dugn
að og ötulleik, að óþarfar eru allar
getgátur um afrek hans á þessu
sviði. Hann verður vafalaust jafn-
afkastatnikill þar sem annarsstaðar. *
Heintskringlu er sérstök ánægja að
benda lesendum sínunt á það, að
“Good Will Day” samkoma verður
haldin i Congregational kirkjunni
miðvikudaginn 18. maí, kl. 3 síðdegis,
og veröur sú samkoma sérstaklega
helguð mæðrunum og friðarviljan-
unt, allra þjóða á milli.