Heimskringla - 21.12.1927, Page 5
WINNIPEG 21. DES. 1927
HEIMSKRIN GLA
9 BLAÐSIÐA
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
KAU PIÐ A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
BirgSir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
loks, hvort hann hefði ekkert
gert í þá átt, að reyna að æfa
sig að tala upp á síðkastið.
Hann lét lítið yfir því. Samt
sagðist hann ekki vera úrkula
vonar um að sér tækist að halda
rsaðu með tímanum. En hann
ætlaði sér ekki að tala opin-
herlega fyrri en hann væri al-
veg viss um að sér tækist það
sómasamlega, — eftir svo sem
þrjú til fimm ár. ‘Þá eða aldrei,’
sagði hann. Og nú trúði liann
mér fyrir því, að hann notaði
hverja tómstund sína til þess-
ara iðkana, og léti fingurna á
vinstri hendinni tákna ræðu-
mennina fimm í stúkunni, etti
þeim saman og léti þá hnakk.
rífast annað veifið, og tala svo
stúkunni til heilla og um lands-
ins gagn og nauðsynjar hinn
sprettinn. En til að minna sig
stöðugt á þol og þrautseigju
fornmannanna, hefði hann skírt
ihvern fingur eftir einlhverjum
þeirra, sem hann mundi eftir
þá í svipinn, svona rétt af
handahófi, án þess að hirða um
hvort þeir hefðu verið sérstak-
ir ræðugarpar eða eigi. Litli-
fingur hét Sigurður Fáfnisbani,
baugfingur: Ásmundur hæru-
langur, löngutöng: Sveinn Dana
konungur, vísifingur: Björn
buna, og þumalfingur: Gunn-
laugur ormstunga.
“Þremur árum seinna
hélt hann þrumandi ræðu í
stúkunni. Sú ræða.kom sann
arlega yfir fólkið eins og þruma
úr heiðríkju. Því hefði ekki orð-
ið meira um, þótt talað hefði
verið til þess úr skýjum hím-
ins. En orðstír þeirrar ræðu
flaug eins og hraðskeyti til allra
íslendinga, og það var sózt
meira eftir Týra til að tala á
samkomum þeirra, en sjálfum
prestunum. Og á stúku-
fundunum, gat hann ekki
einungis mætt hverjum sem
var af hinum fimm, heldur
hefði hann getað talað þá alla
í einu í rot, ef hann hefði vilj-
að, en hann er of mikill mein-
leysingi til þess. Eg held eg
hafi verið sá eini, sem vissi uni
æfingar Týra, en þó varð eg
næstum eins hissa og hinir. Mér
hafði aldrei getað komið til
hugars að þessi einkennilega
tilraun hans, sem eg var víst
að nokkru leyti upphafsmaður
að, gæti borið annan eins á-
rangur. En þetta hafði viljinn
Fyrir ykkar
VETRAR HELGIDAGA
FERDIR
CANADIAN
NATIONAL
bydur
Vér mttnum, eftir vild ykkar lcið ¥ ATT FARGJALD
beina og hjálpa ykkur, meS aS JLlBRAUTIR ÚR AÐ VELJA
vejla þægilegustu og fegustuÍIAMARK PERÐAi,ags jmsginda.
brautirnar ;
og ástundunin áorkað. Þeir
eiga viðurkenning okkar skil-
ið, sem ávaxta það pund, sem
þeim er gefið. En eg er viss
um að þér finst eins og mér, að
þeir eigi sannarlega aðdáun
okkar skilið, sem búa til pund
sitt sjálfir og ávaxta það svo.
“Eg hugsa að þú munir eftir
því í gærkvöldi, þegar Týri
talaði, að í hvert skifti, sem
hann byrjaði á nýju efni í ræð.
unni, og stundulm við hverja
málsgrein, tók hann utan um
einhvern fingurinn á vinstri
hendi með þumalfingri og vísi-
fingri hægri handar. Hann
getur sjálfsagt aldrei lagt þann
vana niður, því í þeim galdri
liggur allur ræðumáttur hans.
En engir nema þeir, sem skiíja
i hverjar orsakir liggja til þess
arna, taka eftir því. Margir
tölumenn hafa það líka fyrir
reglu að fitla eitthvað við hend-
urnar. ef þeir ekki annars
lauma þeim aftur fyrir bakið
eða stinga þeim í vasana. Svo
það ber svo sem ekkert meira á
þessu handafumi hjá Týra en
I öðrum. En sannleikurinn er sá,
i að það er ekki hann sjálfur,
sem heldur ræðurnar, heldur
fornaldarmennirnir fimm. eða
hverjir svo sem þeir eru í raun
og veru, þessir fimm fingra-
menn hans. Svo segir hann
sjálfur að minsta kosti. þó eg
trúi því tæpast. Máske það séu
einhverjir andar, sem nota
hann á þenna undraverða
fingra-hátt fyrir miðil sinn.
Samt bera ræðurnar þess ekki
vott. En eitt er víst, að án þess
að nota fingurna, getur hann
ekki ræðu haldið. Og enn í dag
er það svot eftir öll þessi ár, að
þegar Týri tekur um þumal-
fingurinn. þá tekur Gunnlaug-
ur ormstunga til máls. Snerti
hann vísifingurinn, stendur
Björn buna opinn. Komi hann
við löngutöng, er Sveinn Dana-
konungur byrjaður að tala.
ILaldi hann um baugfingur,
rennur orðastraumurinn upp úr
Ásmundi hærulang. Og kh'pi
hann í litlafingur, þá er Sigurð-
ur Fáfnisbani farinn að halda
þrumandi ræðu.
“Eg sagði þér í byrjuninni,
að þetta væiri ekki saga, en það
er nógu skratti einkennilegt
samt. Og þetta er sannleikur-
inn allur, eins langt og eg veit
hann, og eg hugsa að aðrir viti
ekki betur. Það sem mér þyk-
ir bara undarlegast, er þaðt að
svo virðist sem Týri þurfi sjálf-
ur ekkert að hafa fyrir því að
hugsa. Ef hann aðeins kallar
á fingurna, þá sjá þeir um það.”
Þ. Þ. Þ.
Framtakssamur Vestur
íslendingur
HL.VNNINDA OG 6IIULTKA VAGN
LESTA CTUCNAÐI.
AUSTUR
CANADA
KYRRAHAFS
STRÖND
eðaGAMLALANDIÐ
llmliofiNmenn vorlr hvar nem er velta ytlur allar upi»lýalniíar
—E»A SKRIFIЗ
W. J. QU1NL.A1V, mtiiHva farl>e&a-umbo«»ma»ur — WINNIPEG
rANADlAN ^ATIONAL
VETRAR
SKEMTIFERÐIR
TIL
KYRRAHAFSSTRANDAR
VANCOUVER - VICTORIA
NEW WESTMINSTER
FARBRÉF TIL SÖLU
1. 6. 8. 13. 15. 20. 22. 27. 29, DESEMBER
3. 5. 10. 12. 17. 19. 24 JANÚAR
2. og 7. FEBRÚAR
Endast til 15 Apríl, 1928
HIÐ FAGRA LANDSLAG MEÐFRAM
BRAUTINNI TIL KVRRAHAFSSTRAND
AR, CALIFORNIA.
1 ni frekari 11 liptýsfiifAJir HiftfU Farlirefasaiaun
Clty Tieket Offlce Depot Ticket Officc
l’lioue S4 ;t-11-12, Phouc 84 3217
SOFFONÍAS THORKELSSON
Það væri tæplega hægt að
ganga fram hjá því að minn-
ast nokkrum orðum á mann
þann, sem myndin hér að ofan
er af, fyrir blað sem flytur jafn
sýnilegt teikn af framtakssemi
og myndin af verksmiðjunni
sýnir, er auglýst er hér í blað-
inu.
Það var fyrir sex árum síð-
an, að sá er þetta ritar skrifaði
nokkur orð í Heimskringlu, og
benti á mann þennan og verk-
smiðju hans, sem þá var aðeins
í byrjun, en hefir nú komist í
það horf, að ekki mun jafn-
stórt fyrirtæki víða finnast með
al íslendinga, í Canada, sem
miðar eingöngu í verksmiðju-
áttina. Mr. S. Thorkellsson
bauð þeim er þetta ritar, að
heimsækja verksmiðju sína
núna í vikunni, og fórum vér
þangað.
Hin nýja bygging, sem mynd-
in er af, er byggð úr cement-
steypu, styrkt með járntein
um, sem lagðir eru í alla veggi.
Stærð aðalbyggingarinnar er:
100 fet á breidd og 114 fet á
lengd, en 18 fet á hæð. Stend
ur hún fram við járnbrautar-
spor, sem liggur meðfram landi
Soffoníasar, sem er 300 fet á
breidd, og renna flutningavagn-
ar járnbrautaríélaganna þar
fram með og er hægt að ferma
þá og afferma frá þessum stöðv
um.
Á bak við aðalbygginguna
stendur gamla byggingin, sem
Soiffonías ásamt syni sínum
Páli byggði fyrst, og er hún úr
timbri, að stærð 48x88, tvílyft
á parti. í þessari byggingu
drifu þeir feðgar verkstæði sitt
unz nú í haust, að nýja bygg-
ingin var tilbúin. Áfast við
þessar tvær byggingar er hit-
unarstöð, 16x30, og frá þeirri
stöð er hitinn leiddur í pípum
gegnum allar byggingarnar og
dreifðar um þær, með rafmagns
áhöldum, til þess geröum.
Atvinnu veitir verksmiðja
þessi 50 til 100 manns árlega,
og eru líkindi til þess. að stór
um aukist við það áður en
langt um líður.
Byggingarnar, ásamt. vélum,
er þar eru, munu hafa kostað
talsvert yfir $30.000, og nríla
þar víst mjög liltar skuldir á,
ef nokkrar. • •
Feiknin öll af efnivið er al-
staðar að líta; óunnum trjábút-
um. nýkomnum úr skóginum,
eða þá niðursöguðum í borð-
við, sem brúkaður er í allar þær
gerðir og stærðir af kössum,
sem þar eru búnir til.
Þó Soffonías væri búinn að
fá mikið orð á sig sem dug-
andi maður og drengur góður,
áðuF en hann byrjaði á þessu
fyrirtæki 1919. Mun hafa ver-
ið mjög erfitt fyrir hann í byrj-
un, að fá nægiíegt verk fyrir
sína smáu verksmiðju, því þá
voru fyrir nokkrar aðrar marg-
falt stærri og litu þær sumar
lítilsvirðingar augum á þeftta
smáa fyrirtæki Islendingsins,
og var ekki frítt um að slíkt
hefði óþægileg áhrif út í frá.
Nú er svo komið, að Soffoní-
as, eftir því sem hann sagði
mér sjálfur, verður oft og ein-
att að neita verki, sem honum
stendtir til boða, svo er ann-
ríkið mikið.
/Soffonías Thorkelsson er ætt
aður úr Eyjafirði. Foreldrar
hans voru Þorkell Þorsteins-
son og Sigríður Sigurðardóttir,
er lengi bjuggu að Márastöðum
í Eyjafjarðarsýslu, og var Sof-
forn'as þar fæddur 5. apríl 1876.
Til Vesturheims fluttist hann
1898. Smíðar hafði hann num-
ið á íslandi, áður en hingað
kom, en óarðberandi og stopul
mun honum hafa fundist sú at-
vinna, og sinn eigin húsbóndi-
mun hann helzt hafa kosið að
vera. Byrjaði hann því á ýms-
um fyrirtækjum upp á eigin
reikning, og gáfust þau mis-
jafnlega. En allir, sem til
hans þekkja, munu bera það,
að framúrskarandi dugnað og
kjark sýndi hann, í hverju seni
hann reyndi.
Ekki vill hann samt heyra
þetta sjáifur. Hann segir að
það sé eingöngu landinu að
þakka, og hver einn geti kom-
ist hér af, bara ef hann nenni,
að.“bera sig eftir björginni”
Af mönnum sem Soffoníasi
Thorkelssyni er margt hægt að
læra, þó ekki sé það í bókum
ritað.
Því fer betur, að vér Vestur-
íslendingar eigum ekki svo fáa.
í þessum flokki. Máske það
hafi í byrjun sannast á okkur
málshátturinn: “Neyðin kennir
naktri konu að spinna”.
B. P.
----------X---------
Stærsta
Fullkomnasta
Islenzka
Thorkelsson’s
Box Manufacturers
LIMITED
Búa til umbúðakassa af öllum gerðum-
Öllum pöntiinum veitt sama athygli. —
Engin of smá. Engin of stór.
Gnægðir af fiski- og eggjakössum ávalt
fyrirliggjandi.
Þeir íslendingar, er hafa nothæfan við í
kassa, gerðu vel í því að tilkynna félaginu
það.
Fljót, áreiðanleg og ánægjuleg viðskifti
ábyrgst.
Eina íslenzka verksmiðjan í Canada.
Óskar eftir viðskiftum Islendinga.
SofÍGnias Thorkelsson
framkvæmdirstjóri.
7331 SPRUCE ST. — WINNIPEG
Verkst. sími: 22 191 Heimili: 27 224
Verksmiðjan
CANADA