Heimskringla - 11.01.1928, Blaðsíða 7

Heimskringla - 11.01.1928, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 11. JAN. 1928. HEIMSKRIN G L A 7. BLAÐSÍÐA HVERAHIT1NN, AFL- OG HITA- GJAFI ISLANDS. (Frli. frá 3. bls.) vestur á Reykjarvesiö, eru i sama sprungubelti, þó aö litiö beri þar á jaröhita. I ööru sprungubeltinu eru Rauö- hólar og laugarnar í Mosfellssveit. A leiðinni milli Rauðhóla og hveranna hjá Reykjum sjást víöa gjár og sprungur í jarðvdginn og þó ennþá meiri suðvestan við Rauöhóla, í átt- ina til Kaldársels. Jaröhitinn vest- an við Svartsengi mun vera i þessu sprungu'belti og sennilega Krísuvik- urlhverirnir og (hverirnir við Trölla- dyngju í nánu sambandi viö það. Þriöja sprungubeltið liggur um Hengil, Hellisheiöi, Selvogsheiði og niöur í Selvog. — Sprtmgur sjást viða norðaustur af Selvogi í þessari stefnu, þp jarðhiti sér þar enginn. Enn er þess aö geta, segir Þ. Þ. að svo virðist sem hverir og laugar komi aðeins frani á þeim stööum, þar sem eru krossprungur. Svo er t”. d. meö laugarnar (hérna. Er greinilega sprungu aö sjá frá norövestri til suð- austurs, sem liggur yfir aðalsprunlgu- stefnima milli Hliðslaugar á Alftanes' og Kollafjarðarlauga, um þaö bil sem þvottalaugarnar eru. Eg geri ráö fyrir, að þannig hagi til, aö hið heita jarövatn, geti ekki brotist upp að yfinborðinu, nema að þversprungur raski jarðlögunum, sem liggja ofan á aöal’hitasprungitnum. — Hvernig viljið þér að undirbún- ingur verði ttndir það að taka hverahit tmn til notkunar hér í stórum stíl ? :— Eg lit svo á, segir Þ. Þ., að land 'ð eigi að kosta tilraunir í þessuefni. Hér þarf að gera boranir til reynslu. Holurnar þurfa ekki að vera nema 10 cm. eða svo að þvermáli. Gullbor- inn, sem hér er, og átti að nota við “Gullmýrar”-gullið mun e. t. v. geta korrrið að notum. Þessar borunartil- raunir ætti helzt að gera á áðurnefnd um sprunlgubeltum, því að þar tel eg mestar horfurnar á því, að grynnra þurfi að bora til þess að ná í nægi- legan jarðhita, og þó einkum ef borað cr í námunda við laugar eða hveri. Gera þarf einnig nákvæmar atíiug- anir á hverum um lengri tíma, á hita. stiginu, efnainnihaldi vatnsins o'g hvaða breytingu þeir kunni að taka i jarðskjálftum. En það atriði máls- 'ns er mjög þýðingarmikið, þar sem menn \taka jarðhitann Y yfirborðinu, þvi vera kann að jarðrask í land- skjálftum trufli framrás hitans; hins vegar eru litlar líkur til þess, að land. skjáltar trufli hitaveitu tir djúpum horunaraugum. En það er óbifanleg trú mín, selgir Þorkell að lokum, að víð tnegum vaenta okkur afarmikils gagns af hverahitanum. Með honum má óef- að reka aflvélar. Með honum má hifa upp híibýli ntanna, og gróðurskála svo stóra, sem vera vill. Halda má akveðnul hitastigi í skálunum, o;g reka hér raektun í gróðurhúsum í svo stór- 11,11 stíl, sem mannfjöldi og fjármagn landsmanna leyfir. Það er enginn efi á því, að við hvert einasta hvera- svaeði landsins verður hægt að ná í u*r ótæmandi hita. Þar sem hverir eru nálægt sjó, verður haégt að nota hitann til saltvinnslu. Þannig mætti 'engi telja. Þá vil eg og vekja athygli mann.a a því, að hveragufa og hveravatn virð lst hafa heil^usamleg áhrif, og jafn- vel geta læknað sunta þráláta sjúk- dónia, Mig furðar á því, að engir af læknum landsins skuli taka þetta til rannsóknar. Því ef ítarleg rannsókn staðfesti þá trú, þá þyrftu sjúkraJhús °g hressingarhæli að vera þar, sem haeg er að ná til jarðhitans, svo hann verði notaður beinlínis til lækninga. Hverahitinn verður að mínu áliti einihver drýgsti skerfurinn, sem land- ieggur fram, til þess að auka og olla fratntjð,arvejgenjgnj þjóðarinn- ar. (Isafold.) _ ----------x—---------- Tvær aðdáynar- verðar ritgerðir i. Astæða virðist mér til þess að láta | 1 ijósi þakklæti fyrir ritgerð eftir j Jarna Sæmundsson, sem eg var að lesa í “Verði” áðan. Framúrskarandi náttúrufræðingur segi^ þar snilldar- lega frá athugunum sínum á sjó- mannalífi og dýralífi, en hvorttveggja ætti oss að þykja fróðlegt mjög. — Vonandi er að Bjarni ætli sér að safna þessum fróðlegu ferðasögum sínum saman í bók, og ekki ólíklegt, að margir mundu vilja eiga það, sem bæði er ritað af ágætri þökkingu og snilld. Tíðskast það nú mjög. í mör,g i um löndum, að efni bóka komi fyrst í blöðum og timaritum, sumt eða - önnur aðdáanleg ritgerð var í Al- þýðuiblaðinu, ræða eftir prófessor Harald Níelsson. Slíkir enn eru það, sem bjarga kirkjunnj, en ekki sautj- ándu aldar mennirnir. Og ennþá bet- ur munu þesskonar menn geta notið sín, þegar kirkjan hefir breytt um nafn ag heitir: Alþjóðastofnunin fyr- ir lífaflfræði og stjörnusamband (The International Institute \for Biodyna- mics a'nd Interstellar Communication) Q þjónustu þeirrar stofnunar munu verða bæði prestar og læknar. Prest- arnir munu kenna mönnum heil- l>rigða lífsskoðun, og veita áreiðan- lega fræðslu um framhald lífs og hættur^ þær og erfiðleika, sem biða hins fáfróða og rangstefnda, en aldrei láta sér til hugar koma, íiö iþað gti horft mönnum til heilla, að fá þá til að meta forn æfintýri og bá'biljur sem sannleikur væri. En læknarnir munu geta hjálpað öllum, sem til þeirra leita. og mun þó starf þeirra verða miklu meir í því falið, að kenna mönnum hvernig þeir geti látið sér fara fram, heldur en í þvi, að gera við bilanir, enda munu þær brátt verða mjög miklu sjaldgæf ari en nú. En markmiðið er líkami, sem alltaf fer fram og er ekki háður neinni hrörnun, og heldur ekki þessu herfilega slysi, sem kallað er dauði. 13.—16. nóv, Helgi Pjeturss. —Vísir. ---------x---------- Sir Henry Wilson um heimsstyrjöldina Bókum um heimsstyrjöldina fer sí- fellt fjölgandi og hafa nú flestir helztu menn styrjaldarinnar skrifað eitthvað meira eða minna um hana, en alltaf k'emuf fram eitthvað nýtt. — Ein siðasta bókin. er út hefir komið í Englandi, eru dagbækur Sir Henry | Wilson’s ntarskálks. Hafa þær vak- j ið mjög mikla athygli, þykja óvenju- lega ibersöglar og hvassyrtar um menn og málefni og varpa engan veginn fögru ljósi yfir suma helztu leiðtoga enskra mála á ófriðarárunum. í her- og stjórnmálum. Sir Henry var mik- ilsmegandi maður í enska hernum, um skeið leiðtogi aðalherstjórnarinn- ar og þekkti því mjög vel til málanna. Hann var myrtur árið 1922, en Call- well Iherforirrgi hefir nú tekið að sér útgáfu dagbókanna, en samt víða strykað út beiskustu ummælin. Með- al þeirra, sent einna versta útreið fær, er Kitdhener og yfirleitt eru dórnar margra Breta um hann nú orðnir all óntildir. I október 1915 segir Sir Henry um hann: Hann er hræddur við Egyptaland, við Indland, við Me- sopotamiu . Hann er hræddur við að halda 'áfram Dardanellalherferðinni og hræddur Við að hætta henni. Hann er ihræddur við að halda til Saloniki og ihræddur við að gera það ekki. Kitdhener er hræddur og þekk- ingarlaus, segir hann á öðrum stað. Asquith á heldur ekki upp á hálborð- ið -hjá honuni. Allt er á ringulreið í stjórninni, segir hann á einum'stað, og alk er það Asquith að kenna, hann er nú ennþá einu sinni háftaður ofan í rúm til þess að hafa betri tíma. Stjórnin er hrædd og veit ekkert hvað gera á. segir hann á öðrum stað. Ekki virðist ihonum samt taka betra yið, þegar Lloyd George fær stjó#n- artaumana. iStjórnfti er hræmuleg samkoma, segir ihann þá. Daglega vex fyrirlitning mín á þessum mönn- um, á hugsun þeirra, þekkingu, hug- rekki og skapferð. Eg hefi aldrei séð jafn gersamlega þekkingarlaus- j an og einskisnýtan hóp manna. Mar- j skálkurinn fyrirleit einnig mjög hjart anlega nafna 'sinn,' Bandaríkjaforset- ann, og þótti hann hvarvetna korna frani til óhappa og alltof mikið til- lit vera til hans tekið. Allir nötra af reiði og fyrirlitninigu á Wilson for- seta, segir ‘hann einu sinni. Eftir því sem marskálknum -segist frá, hefir Clemenceau verið honum mjög sam- mála um enska stjórnmálamenn, hann kallaði þá ávalt heimskingja. Bezt liggur Sir Henry orð til frönsku herforingjanna Joffre ag Foch. Yms smáatvik greinir hann. sem skrítin eru, þó ekki velti á miklu um þau, eins og það t. d. að á einum stjórnarfundi hafi ýmsir haldið, að Liége væri í Hollandi, eða það, að Lloyd George hafi endilega viljað láta Breta taka Jerúsalem herskildi, 'vegna þess að það mundi hafa góð áhrif á kjósend- ur í Wales. Rftir því sem Sir Henry segist ifrá, hafa Bretar litla von haft um það rétt áður en ófriðnum lauk, aö horfur væru á því að þeir gætu sigrað Þjóðverja. (Lögrétta.) ----------x--------- Ritfregn Guðm. Finnbogason: Vilhjáhn ur Stcfánsson. Bókverz!- un Þorsteins »M. Jónssonar. Akureyri 1927. Ixirst. M. Jónsson bóksali á Akur- eyri, er að verða íslenzkum bókmennt um mikill gagnsmaður.Hann hefir gef ið ,út hverja bókina annari betri og fróðlegri siðustu misserin, ag er þess að vænta, að hann tapi ekki á þeirri starfsemi. Bók sú, er hér um ræðir, er önnur í röðinni í flokki þeim, er útgefandi nefnir “Brautryðjendasögur”. Hefir dr. Guðm. Finnbogason tekið bókina saman, en lagt litinn efnivið til frá sjálfum sér. Styðst hann mestmegnis við rit Vilhjálms sjálfs, og* þýðir orðrétt langa kafla. Vilhjálmur Stefánsson er viðfræg- astur allra islenzkra nianna, þeirra er nú eru uppi. Hann ótrauður land- könnuður og góður rithöfundur. — Prófessor Ellsworth Huntington kemst meðal annars svo að orði um bók hans “The Friendly Arctic”: “Af öllum ferðabókum samanlögð- um eru fáar, er sýna meiri gáfu til vandlegrar, nákvæmrar athugunar, meiri gætni samfara dirfsku, meiri hæfileika til réttra ályktana af fyrir- brigðum náttúrunnar. Islendingar hafa ekki allir þessa hæfileika á jafn háu stigi og Vilhjálmur Stefánsson, en yfirleitt eru þetta eiginleikar, sem mikið ber á í fari þeirra.” — “Jafnframt þvi sem Vilhjálmur hefir með dæmi sinu sýnt,“ segir dr. G. F. í formála ritsins, “að fara má ferða sinna með litlum útbúnaði, jafnvel út um hin nyrztu höf, hefir hann með ritum s'ínum rutt nýjar leiðir að réttari skilningi á eðlis- kostum landanna við norðurhjarann. Hann er óþreytandi i því að berjast gegn röngum hugmyndum nianna um þessi lönd. Hann sýnir fram á kosti þeirra, og hviernig þau bezt megi verða mannkyninu að gagni. Með þessum hætti hefir hann ge;rt norður- hvel jarðar vorrar greiölfærara og rýmra en það áður var, því að flestar torfærur eru í hugum mannanna.” Bókin hefst á ítarlegri ættartölu Vilhjálms, eftir dr. Hannes /Þor- steinsson, en síðan er rætt um æsku hans og nánisár. En þá tekur við lýsing á norðurför.um Vilhjálms. Er bókinni skift í þessa kafla auk “inn- gangs”: “Fvrsta norðurförin 1906— 1907”; “Öhnur norðurförin 1908— 1912”; “Þriðja norðurförin 1913—18’ Þá er kafli, sem heitir “Norðar enn”, annar um ' Wrangelsjey” og ’oks “Veiðimenn á norðurvegum. En þeim kaflanum er aftur skift svo sem hér segir: 1. Snjóhús; 2. Hvernig eg lærði að veiða hreindýr; 3. Hvern- iig egjærði að veiða seli; 4. Hvernig vér veiðum hvítabirni. Öll er bókin vel rituð og sk^jnti- lega. Og þó að kaflarnir séu flestir stuttir og lýsingarnar fáorðar, er þó svo frá clht gengið, jað lesandinn saknar einskis í frásögninni. Hann lifir með Vilhjálmi á svaðilförum hans nyrðra og verður hlýtt til Eski- móanna alveg eins og honum. Lýsing Vilihjálms á lífi Eskimóanna og þá ekki síður á athöfnum hans sjálfs, er svo glögg og lifandi, að hver sæmi legur lesandi sér allt fyrir sér og finnst hann orðinn nákunnugur þar norður á ísflæmunum að lestrinum loknum. Þrjár myndir fylgja bók þessari. Hin fyrsta af Vilhjálmi Stefánssyni önnur er “landakort af heimskauta- löndunum” og þriðja af snjóhúsi. Bók þessi verður sjálfsagt vinsæl og mikið lesin. En sérstaklega er þó þess að vænta. að ungir menn og þeir sem vaskir vilja teljast, láti ekki undir höfuð leggjast að kynna sér efni hennar sem bezt. (Vísir.) ---------x----------- ’Frá Islandi Júlíana Sveinsdóttir. — Eins ag fyr er frá sagt hélt Júlíana Sveins- dóttir málverkasýningu i Kaupmanna höfn nýlega og sýndi 70 myndir og teikningar, flestir frá Islandi. —i Dómar danskra blaða um sýninguna hafa verið lofsamlegir. “Politiken” segir ’að eftirtektarveröastar séu ís- lenzku myndirnar, og mundu þó má- ske hafa orðið ennþá betri, ef mál- arinn hefði ekki lært á Danmörku. Eina Vestmannaeyjamyndina kallar blaðið dýrlega mynd. Hefir ríka list- gáfu, segir “Köbenlhavn” I myndun- um bpinlberast sérkennilegar gáfur, segir “Ekstralbladet”. náttúru Islands er lýst i myndum hennar sannleikan- um samkvæmt, með þeirri stórfeng- legu tign, sem við tengjum við nafn Islands. Um blóma og ávaxtamyndir hennar er sagt, að þær beri vott um ágætan skreytingarsmekk. I beztu larvdela'gsmyndunum, segir ennfrem- ur í einu blaði, er innra ljósmagn, sem brotnar i forminu, eins og glamp^ á gimstein. “Kristeliigt Dag- blað” segir að sýningin verki á mann eins og fast og ærlegt handtak og all- ar lýsi myndirnar fagurri og listrænni litagleði og eigi J. Sv. “stemningu”, sem ekki sé á hverju strái, og góða kunnáttu. “Dagens Nyheder” segir að J. Sv. hafi til.komumikla listgáfu, sem lýsi sér bezt í íslenzku myndun- urn, en eftirmyndin eftir Melozzo da Forli sýni einnig ótviræða hæfileika í meðferð hins stóra stíls. Það er á- nágjulegt, þegar líslenzkir listamenn geta sér gott orð fyrir starf sitt er- lendis, eins og Júlíana Sveinsdóttir og einniig Gunnlaugur Blöndal ihafa nú gert. , Arnold Nordling dócent í Helsing- fors. sem ýmsum er hér góðkunnur frá ferðalögum ihans, hefir nýlega skrifað grein um Island i Hufvuds- stadsbladet í Helsingfors. Hún heitir Island, lýðmenntunarinnar og bók- anna land og fylgja henni fimm mynd ir. Greinin er hlýlega rituð, en eink- uni lögð áiherzla á það, hversu bók- hneigðjjr llslendingar séu, sjálfsagt ibókhneigðasta þjóð heimsins, og hversu vel menntaðir íslenzkir bænd- ur séu. Höf. endar grein sina á því, að allir vinir norrænnar einingar ættu að fara til Islands, því Islend- ingar séu tákn þessarar einingar. (Lögrétta.) ----------x---------- Hitt og þetta. Ohollusta af b'drcyk. Notkun bifreiða hefir, eins og kunnugt er, auikist stórkostlega síð- ustu árin. Þægindi eru mikil að bif- reiöunum, en böggull fylgir þó skamm rifi. Okuslys hafa aukist stórkost- lega, og ömurleg öskur og hávaði fylgir bifreiðunum, inni í borgunum. Nú hafa menn þózt verða varir einnar plágunnar í (viðbót, sem sé eitrunar vegna bilreyks. I reykjar- svælunni frá vélinni er kolsýrlingur. eitruð lofttegund, sem annars er -í ofn- reyk, ósi frá oláulömpum og í venju- legu suðugasi. Það er þessi loftteg- und, sem gerir að verkum, að menn geta misst lífið af gaseitrun eða svælu frá ofnum og ósandi lömpum. Kol- sýrlinigur samlagast venjulegtt and- rúmslofti. Eftir innöndun þerst eit- urloftið til blóðsins. Rannsóknir um þetta efni hafa farið fram í amerískum borgum.. I Fíladelfíu var rannsakað blóð 14 götulögreglumanna, er höfðu vörð í miklum umferðagötum, o'g fannst kol sýrlingur í blóði ýmsra þessara lög- reglumanna. Höfðu þeir árum sam- an kvartað um slappleika og höfuð- þyngsli seinni part dags. Lögreglu- menn þessir voru svo fluttir til, í götur þar sem umferð var látil, og losnuðu þeir við sjjú-kdómseinkenni sín. Sérstakar rannsóknír hafa verið; gerðar á bílastöðvum, þar sem marg- j ar bifreiðar eru undir þaiki. Eitrað-1 ur reykur kentur úr bifreiðunum, er ( koma og fara. Mest eitrast andrúms-' loítið, þegar vélarnir |eru i sifellu settar í hreyfingu eða stöðvaðar. 1 Rattnsóknir í Vesturheimi Ihaf^i leitt i f ljós, að i fjölmörgunt hálstöðvum er svo mikill kolsýrlingur í andrúmsloft- j inu að skaðlegt má telja; kemur og í, Ijós við blóðskoðun starfsmanna. — Aðalkvörtun þessara manna er þrálát ur höfuðverkur og þreyta við vinmi. I Menn eru talsvert misjafnlega hneigð til þessa sjúkdóms. Ráðið við þessu er góð lofthreins- un á bílstöðvunum. Þeir, sem sízt þola bílreykinn, verða að þreyta til um vínnustað.--------- Rannsóknir |þær. -sem farið hafa fram erlendis, í Vesturheimi og að tilhlutun bœjarstjórnar Parisarborg- ar, ættu að kenna þeim, sem hér eiga hlut að máli, að sjá um rækilega loft- hreinsun, þar sem menn vinna dag- lianigt í andrúmslofti, sem mengast bilreik. G. Cl. Bréf til Heimskringlu Innisfail 3. jan 1928. Herra B. Pétursson, Ráðsnraður Heimskringlu, 853 Sargent Ave., Winriipeg. Gleðilegt og farsælt nýtt ár! uni leið og eg sendi $3.00 fyrir | vikublaðið Heimskringlu, þessa árs áskriftargjald. Hún hefir verið viku. legur velkominn gestur á heimili mitt frá fyrstu tíð. Vil eg ekki verða með vanskilum henni að aldurtila, en óska Víkinga prentfélaginu allra heilla og góðs gengis....... ARANGUR bökuninrar er trygður er J tr notið MAGIC BAKING POWDER Ekkert álún er i þviogor- sakar þvi ei beiskjubragð Landar hér bæði á Markerville og Nevv Hill, og annara þjóða menn á því svæði. misstu i íhagl, sumir bit- haga, engi og uppskeru. Þeir sem misstu allt, verða nú að draga að sér fóður um 10—20 mílur. Aðrir, sem litið eða ekkert skemmdist hjá, hafa miikil hey til sölu og heimabrúks. Þá er að*minnast á vetrarveðrátt- una. 5. nóvember snjóaði töluvert. Síðaq hlaðið ofan á ábreiðuna allf að þessum tima, þó mest 5. desember. Mannskaðaveður í Suður-Alberta og váðar. 10 daga stillur fyrir jolin. Annan dag jóla, vindar og hörkufrost fram yfir nýár. En í daig, er þetta er ritað, vestanátt og frostíaust. A nýársdag 1928 á raupsaldrinum raulaði eg þessar stökur: Inni’ í stofu uni eg mér. ; við eld og mataríorðann. Arið nýja heilsar hér íheldur kalt á norðan. Um veðráttufar er það að segja, að vorið var blautt og kalt, seint sáð öllum korntegundum; ekki fullþroska hér um pláss fyr en með september, er kornskurður byrjaði. En um 10. septemher kom frost, sem skemmdi rneira oig minna um 70% er ósleg- ið var, og hraukar víða branfrusu, það er þegar hýðið frýs en kornið ó- skemt til brauðgerðar, aðeins gróf- \ asta hýðið skemt; hratið ekki eins gott fóður. Er það stórtap bóndan- uni en stórgróði mylnufélögunum, meðán hveiti er flokkað eftir útliti. j en ekki gæðum, eins og gert er í Bandaríkjunum. I Tíð var óstöðug utan tvær vikur í, október. Samt var allt hirt og þresikt' hér nærlendis og uppskera vel í meðallagi að vöxturn, en flokkun 4,! 5 og 6, en víða fóður (feed), og verð- j ið lágt, frá 65 cent til 92 mælirinn j (60 pund). Hér á leið suður til Cal-j gary er enn mikið óþreskt, en i sum- | urn héruðum Suður-Alberta nær helm í ingur óþreskt; eins norðaustur af bæn j um Stettíer út og suður, að sögn um , 40 prósent óþreskt. Norður af Ed- j monton gekk allt betur, sérstaklega í i Peace River héruðunum. 160 miljón. ir mjpla segir Albertastjórnin í síð- ustu skýrslu hveitiúppskeru fylkisins s.l. haust. Nú er rúmlega einn fjórði hluti óþreskt undir snjó og bíður vors. Branfrosið 6g litarljótt, hvað sem í mjölgæSum líður og liklega allt flokk I að sem gripafóður. Heilsa fólks almennt góð. Guðm. I Þorláksson og Jónas J. Húnfjörð hafa verið undir læknishendi heima hjá sér og legið rúmfæstir tímunum saman siðastliðið ár, þjáðir af tauga |gigt og ellilasleika. Og húsfrú Þór- dís Sveinsson hefir legið á Innísfail spítala á þriðja mánuð, í sjúkdómi, sem eg kalla fluggiigt, og læknar hér hafa ekkert vit á að lækna; stórt orð en satt; aðeins fær um að sitja i kerrustól eftir allan þenna tíma. Kuldinn bitur úti er, enga veitir hlýju; neðar zero sagt er ntér sex og fjörutíu. Húsfreyjan það hermir tnér, hún þarf mörgu að sinna; og vinnumaður úti er alla daga að vinna. Auð að safna ætla eg mér, aflasæll að vonum; aldrei heita eg skal hér einn af letingjonum. Þetta er undantekningarlítið heim- ilisbragur okkar gört^lu larídnáms- tnanna, sem höfum dvalið hér í byggS 40 jóla og nýársnætur, og endum fer- tugasta árið næstkomandi júní. Þætti ntér 'þá vel við eiga að fyrsti embættis maður Canadastjórnar sem heimsótti byggð vora fyrir 38 eða 39 árum siö- an, hinn góðkunni innflutningaág'ent, B. L. Baldwinson. yrði valinn af Is- ilendingadagsnefndinni 17. júní sem aðalræðumaður. Hann finnst mér sjált'kjörinn heiðursgestur nefndar- innar og byggðarinnar i heild sinni, fyrir eina eða tvær vikur, á meðan hann! líúsvitjar öl! íslenzk heimili byiggðarinnar, nú eins og forðum. Eg er viss um að Jón A. Olson, for- serti Islendin-gadagsnefnidarinnar (hér kallar til fundar bráðlega, svo að hægt verður að semja við B. L. B. og hann getur kontið á niðursettn fari sem fregnritari stórhlaða Winni pegborgar. Að endingu bið eg þig, vinur kær, að leiðrétta ritvillur og lesa í^mál- ið, ef það fær rúm í blaðinu að öðru leyti óbreytt. Þinn með ást og virðing. J. Björnsson.. -----------x-----------

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.