Heimskringla - 14.03.1928, Page 4

Heimskringla - 14.03.1928, Page 4
4. BLAÐSlÐA WINNIPEG 14. MARZ 1928 |ÍTctinskrin0la (Stofnon 188«) Kennr «t » kvcrjnm nt«TlkiderL EIGKNDXJR: VIKING PRESS, LTD. 883 ok 838 SARGEIT AVE , WINNIPEG TALSIMI: 8« 537 Vtrí blaTSslns er $3.00 árgangurlnn borg- lst fyrirfram. Allar borganlr sendlst HHE VIKING PRiEES LTD. 8IGFÚS HALLD6RS frá Höfnum Rltstjóri. Utanftskrllt ttl blnbntns: THH VlKING PIIESS, L.td., Bol 3108 Utan Askrlft tll rltstjöranai EDITOIl MEIMSKRINGUA, llox 3103 WINNIPEG, MAN. "Helmskringla is publlshed by Tbe Vlklna Press Ltd. and printed by CIT V PIIUVTING A PBBLISHHIG CO. 833-833 Saraent A»e„ WlnnlpeK, Man. Telepbone: .8« 33 7 WINNIPEG MANITOBA, 14. MARZ 1928 Erindi Vigfúsar Guðraundssonar Því er miður, að vér getum ekki með góðri samvizku veitt hr. Vigfúsi Guð- mundssyni svo að máli, er hann flytur við Vestur.íslendinga á öðrum stað hér í blaðinu, sem hann ef til vill hefði vonast eftir. Ekki ber það þó til, að oss detti í hug að álasa honum um sníkjuskap, þótt hann beri fram þetta erindi. Vér höfum aldrei fyllt flokk þeirra manna, og munum þar aldrei sjást, er snýta sér blóðnösum með vinstri hendinni( yfir hverjum eyri er til íslands er gefinn með hinni hægri Ekkert er oss fjær, en að letja Vestur- Islendinga þess, að minnast æskustöðva sinna og ættjarðar með gjöfum heim til stofnana eða sjóða. Ekkert er fegurra. en sú ræktarsemi við uppruna sinn, er lýsti sér í erfðaskrám þeirra Jóhanns Jónssonar kirkjusmiðs, og Teits H!ann. esisonar. Með því að ánafna eigum sínum ótilkvaddir ættjörð sinni til þarfa, hafa (þessir einhleypingar gefið Vestur-lslend- ingum fagurt fordæmi, er ekki verður of- lofað. En að menn gefi hér sh'kar gjafir af frjálsum vilja og ótilkvaddir( má ekki verða til þess, að sú skoðun komist inn meðal Vestur-íslendinga, að á það lagið sé of langt gengið að heiman. En án þess að vér viljum leggja á móti þessu erindi í sjálfu sér, og með það fyrir augum, að vel er hugsanlegt að ýmsir hér( sérstaklega Borgfirðingar teldu sér ánægju og sæmd að því, að fá að taka undir það( þá liggur það í augum uppi( að sh'k fjárleit gæti leitt af sér miður heppilegan árangur, ýmsra hluta vegna. Fyrst og fremst eru Vestur.lslendingar alls ekki sá “stórauðugugi föðurbróðir”, sem Islendingar heima á Fróni kannske gera sér hugmyndir um( og er þetta alls ekki mælt til hr. V. G., er hér hefir verið vestra. En það hyggjum vér sannast, að á meðal Vestur-íslendinga sé ekki meira um stórefnamenn, en heima á íslandi, og að efnahagur Vestur-íslendinga sé heldur ekki stórum betri yfirleitt( ef okkuð er, en íslendinga heima; þótt auðvitað geri gengið það að verkum, að smáskerfurinn héðan verði drýgri austan hafsins en vest- an. En þótt nú svo væri( að maður rétt til málamynda vildi gefa það eftir, að af- koma væri eilítið skárri hér en heima( þá myndi skammt til hrökkva, ef hvert sveita hérað á íslandi hyggðist að níða á sama vaðið( og leita styrks fyrirhuguðum menn ingarstofnunum hér vestra. Þar að auki er það vafalaust íslending- um sjálfum fyrir beztu, að spila algeriega á eigin spýtur er líkt stendur á og hér. J>að er svo auðskilið( að um það þarf ekki langar siðferðisprédikanir að halda, að hvert sjálfsitætt land hlýtur sjálft að sjá menningu sinni allan farborða. I>á er það enn ótalið( sem mest er um vert í þessu sambandi, að það mætti bros legt þykja af Vestur.íslendingum og enda óviðurkvæmilegt, að þeir væru að skjóta saman fé til byggingar og viðhalds menn ingarstofnunum í öðrum löndum, jafnvel þótt á íslandi sé( meðan þeir sjálfir standa þeirra snauðir. Oss skortir hér einmitt átakanlega slíka skóla og menningarstofn anir, og um ræðir í erindi hr. Vigfúsar Guðmundssonar. Vér eigum alls ekkert af því tæi( er oss megi verulega að gagni koma. Canada er ungt land; og þó að skólamál þess megi að sjálfsögðu eftir vonum telja í góðn horfi, þá er hér enn ekki jarðvegur fyrir alþýðumenningar- skóla, líkt og t. d. í Danmörflcu ',c$g á Norðurlöndum. Að taka þátt í skólastofn un heima á íslandi, meðan vér erum ekki einu sinni megnugir að hugsa til samskota fyrir eihverja menningarstofnun vor á meðal, væri eitthvað líkt því og senda pen ingana yfir ána til vatnskaupa, án þess að sjá sélr sjálfir fyrir nokkrum dropa af því. Vért sem mest vildum láta oss um- hugað um vestur-íslenzka þjóðrækni, höf um í mörg ár verið að tala um að reisa oss félagsihús, 'er gæti orðið vesturJíslenzk menningarmiðstöð, og erum ekki enn lengra komnir en að tala um það. Það er því alls vegna full ástæða til þess, fyr- ir oss hér vestra, er vér athugum þetta, að segja við sjálfa oss: Maður líttu þér nært liggur í götunni steinn.” Og vér vonum af þessu, sem hér er að framan sagt, að það verði ekki misvirt við oss, þótt vér sjáum oss ekki fært að svo stöddu, að hvetja Vestur-íslendinga til að taka’þátt í almennum samskotum til stofnunar opinberra héraðsstofnana heima á Islandi, og það jafnvel þótt vér séum sannfærðir um það að fyrir tillöguu manni hafi ekki vakað nein sníkjufýsn, heldur aðeins velvild til Vestur-íslendinga og ósk um að veita þeim tækifæri til þess að styrkja málefni heimafyrir, sem í sjálfu i sér er hið lofsverðasta. * * * Á víð og dreif SKÓGGRÆÐSLAN. í tilefni af erindi því, er Björn Magn- ússon veiðimaður flutti á þjóðræknisþing inu, og birt var í síðasta blaði Heims- kringlu, þykir oss rétt að skýra frá því, að hann hefir getið þess við oss að eftir þingið hafi sér borist fregnir um það, að gerðar munu hafa verið tilraunir með er- lendar trjátegundir á íslandi sðan á dög- um Schierbecks landlæknis er mjög bar trjárækt fyrir brjósti, og að þær muni flestar hafa misheppnast. Nú þætti Birni Magnússyni fróðlegt að vita, hvort reyndar hefðu verið trjátegundir frá Norður-Canada eða Norður-Síben'u. Því miður erum vér ekki þeim fróðleik búnir, að vér getum svarað því. Þó minn ir oss að hafa séð, eða heyrt getið um, að reyndar hafi verið nokkrar trjátegund ir frá Síberíu, og að útlit þyki fyrir að einhverjar þeirra muni geta þróast heima. Væri gaman. ef einhver sérfróður maður heima sæi þessa grein, og vildi skýra fyrir oss( hvað reynt hefir verið í þessu efni. En unz annað fréttist, þá virðist senni- leg sú tilgáta hr. Björns Magússonar að trjátegundir héðan sem vaxa á líku breidd arstígi og á íslandi, og þó sérstaklega þær er vaxa við lík jarðvegsskilyrði, æittu að geta þrifist þar, jafnvel við sjálfsáningu. Og víst vær vert að gera tilraunir í þá átt. (Þær prentvillur höfðu slæðst inn í er- indi hr. B. M. í síðasta blaði, að í stað “norður undir Norðvestur-byggðum”, átti að standa “norður undir Norðvestur- óbyggðum”; og í upphafi einnar máls- greinar áitti að standa: “Eins er klaki í jörðu aUt sumarið, o. s. frv.”; í stað: “Eins er ekki klaki í jörðu allt sumarið o. s. frv.”) * * * ÍSLENZKU “BOLSHARNIR”. Vini vorum, “Torfa úr Dölum”, verð- ur tíðrætt nú upp'á síðkastið, um þá háskalegu tegund af Homo Sapiens, sem hann nefnir “íslenzka Bolishevika” eða “Bolsa”. í grein er hann stílaði hér á dög- unum til Halldórs KUjans Laxness skálds, lét hann þess getið, að þessi manntegund teldi hann nú orðið sinn liðsmann, eða réttara sagt sverð sitt og skjöld. H. K. L. svaraði. og nú svarar “Torfi úr Dölum” því svari aftur hér í blaðinu. Veitir hann H. K. L. þar aflausn frá þeirri ásökun. En auðséð er á báðum greinum T. ú. D., að hann á við vestur-íslenzka “bolsa”, sem hann telur afskaplega hávaðasama og umsvifamikia. En nú er oss í allri einlægni spurn: Hvar lætur þessi “bolsategund” til sín heyra? Hvar á að leita að þessum óskap- legu “æsingamönnum, sem nú standa á strætum og gatnamótum. fjúkandi vond- HBIMSKRINGLA Dintlist ir og froðuifellandi ajf ælsinga-eidmóði”, sem héðan af geta aldrei “skriðið inn í sín mörgu skálkaskjól hjá honum” (H. K. L.)? Hvar eru íslenzku “Bolsarnir” hér vestra. sem “voru að blaðra með að hann (H. K. L.) Væri þeirra maður og til- vonandi verndarvörður” ? Hvar sést það, að “þeim fjölgar óðum og má heita með hverjum mánuði, að einhver nýsveinn komi fram á völlinn( og sýni list sína, o. s. frv.”? Það skyjldi þó aldriei vera í Lögbergi eða í Sameiningunni? Því vér höfum leitað grandgæfilega í Heims- kringlu, og ekki séð iljamörk ,þeirra í sandinum. En þetta munu vera einu ís- lenzku blöðin í Vesiturtieimi. Hvar og hvenær tóku “vorir íslenzku Bolshevíkar hér vestra þessa endaleysu hans sem sitt forspjall og benda á hann (H. K. L.) sem sinn prédikara, prest og spámann, er sanni svo greinilega og fullkomlega gildi sinna mála”? Spyr sá sem ekki veit, stendur þar Því sannarlega er oss forvitni á að vita hvar þessir delar halda sig og hverjir þeir eru. Það þyrfti að skrásetja þá, að minnsta kosti, ef ekki brennimerkja þá. skollana þá arna, svo að hægt væri að smala þeim snarlega saman, t. d. þegar næísta stríð ber að höndum, og koma þeim fyrir kattarnef, svo að engin hætta væri á því að þeir eyðilegðu skemtunina með blaðrinu úr sér. * * * LEIKMÓTIÐ. Leiksamkeppnin íslenzka sem stofnað var til í fyrra, fór fram hér í Winnipeg 5._8. þ. m. í samkeppninni tóku þátt að þessu sinni leikflokkur Wynyard, Ár. borgar. Geysisbyggðar og Sambandssafn- aðar í Winnipeg. Úrskurðuðu dómararn ir Wynyard leikflokknum sigurmerkið, og munu tæplega hafa verið mjög deildar meiningar um þann úrskurð. Árborg- arleikflokknum skipuðu dómararnir næst( og álitum vér þann dóm vægast sagt vafasaman, þótt bíða verði frekari gagnrýni um stund. En annaið atriði verðum vér að minnast á stuttlega. Hugmyndin um leiksamkeppnina er ágæt. Leikiistin er bæði þeim er hana æfa og almenningi eitthvert allra besta þroskameðal, og þessi hugmynd, er hér um ræðir, er öflugur vísir til þjóðrækni. sem leggja verður alla rækt við. Hún þarf að festa rætur sem víðast. Þessvegna vonum vér að leikmóts- nefndin virði oss á betri veg( að vér segjum henni hreinskilnislega, að fyrir- komulagið er líklegt að verða fyrirtæk- inu slæmur þrándur í götu fjárhagslega. Það er áreiðanlega slæmur misskilning- ur( að verja ekki fremur því fé, er inn kemur fyrir leikkvöldin fyrst og fremst til ferðakostnaðar utanbæjarfélaga, held- ur en til þess að safna því í sjóð til verðlauna -fyrir leikritaismíði, eða þýð- ingar. Ómögulegt er að búast við því, að þessi leikfélög eða önnur sjái sér fært að koma ár eftir ár til Winnipeg, leið, er skiftir tugum og jafnvel hundruðum mílna, og verða sjálf einhvernveginn að standast allan kostnað við þá ferð( þann er fargjald og útbúnaður baka þeim.ef inn- gangseyrir leikmótsins niá ekki greiðast þeim kostnaði til afborgunar. Því fremur ætti nefndin að íhuga þetta. sem það er nokkurnveginn víst, að þau ákvæði, er nú gilda um sjóðinn. koma aldrei að tilætluðum notum, og ekki líkt því á við það sem kostnaðar styrkur myndi gera. Leikriitaskáld er ekki mög- ulegt að framleiða með $100. — $200. — verðlaunum, við og við. Sú aðferð gagnar ekki, fremur en það hugsunar- þrekviírki Canada)stjóma*rj, lað framleiða canadíska rithöfunda. er þolanlegir séu aflestrar með því að leggja toil á erlendar bækur!. Auk þess mætti vel svo fara, að sá þýðandi hreppti verðlaunin, ef dæma skal eftir bókmentalegu gildi, er þýddi leikrit, er iangt væri ofviða við- fengsefni leikfiokkunum. Burt með verðlaunin, unz farakostn.. aður er félögum greiddur! og frömuöjr hennar Andsvar til Halldórs Kiljans Laxness. III. “Synduga hönd, /þú varst sig- randi sterk, en sóaðir kröftum á smáu tökin —E. Ben. Halldór Kiljan Laxness er korn- ungur maður. Um framgirni hans, dirfsku og dugnað verður naumast deilt. A barnsaldri gerðist hann rithofundur. Hann hefir mokað frá sér ritver-kum. Hann hefir ferðast mikið, og efalaust lesið mik- iö — enda aldrei, síðari árin, það ég til veit, dýft hendi í kalt vatn. Kunnugir telja hann gáfaðan mann. En jafnframt finna nokkrir til þess, að eitthvað sé bogið við Wessaðann drenginn. Hann á þrótt, og, í vissu tilliti, snild. En, hvert er, enn sem komið er notagildi þeirra hæfileika. Ekki líst mér á það. Haldi hann áfram að búa í pottinn, á svipaðan hátt og Ihingað til, þykja mér litlar líkur þess, að ritmensku- réttir hans verði alþjóð yfirleitt nokkur hollustufseða. Þróttur hans verður þá ónytjaþróttur. Því að fyrir mer er H. K. L., nú, eins og margra hestafla vél, sem með gný og greistaflugi hamast u'ndir sjálfri sér og sjaldan hefir til þessa, komist í gír til ærlagrar gagnsemi. Góð bending í þá átt er “Inngangurinn að gagnrýni”, þar sem höf. veður á bæxlum um þau efni, sem hann hefir helst engar skoðanir á, — að því er séð verður. Ef til vill má þá um hann segja, að hann “sói kröftum á smáu tökin.” En þá er hann bara “Kiljanisti.” Eg hygg að H. K. L. hafi enn ekki fundið þá jákvæðu traustu lífsskoðun, er kalli hann til festu, vandvirkni og ábyrgðar í störfum. I raun og veru vantar hann ennþá grundvöllinn undir æfihlutverk það, er hann hefir kosið, — að gerast boðberi 0g spámaður alþjóðar. Að finna þann grundvöll er að finna sjálfan sig.” H. K. L. er urrgur maður að leita að sjálfum sér. Til slikrar leitar þarf bæði þor og menn- ingu. Þar er hann mörgu þúsund- unum fremri, sem aldrei leggja á sig örðugleika þeirrar leitar. —Enda veit hartn af þessum yfirburðum sínum. Greinir hann vandlega milli sín og þessara -hversdagssálna, er hann með hrolli og viðbjóði kall- ar “'borgara” — þ.e. menn, er gera sig seka í því fyrirlitlega dýrsæði, að girnast konur oig ganga i hjóna- band, mynda h-eimili og reyna svo í þokkabót, að sjá sómasamlega fyrir sér og sínum, samkvæmt tækifærum og fyrirkomulagi núlegs þjóðlífs. En, þótt H. K. L. hafi yfirburði þess, sem leitar, verður vart sagt að hann hafi yfinburði þess, sem hefir fundið. Hann hefir enn ekki fundið sjálfan siig. Hann er eins og “sagnpersóna” hans, Steinn Elliði, eirðarlaus, rót— laus, skoðunarlaus “eftirstríðsmaður” (sbr. síðasta hefti “Iðunnar” bls. 322). Ef til vill er hann þá oss lesendum sinum dálítið óeinlægur að því leyti, að hann ber sig þannig, að honum sé mikið niðri fyrir, og máttugt og merkilegt sé það erindi, er hann hafi við oss að flytja.------- FuIIljóst er mér það, hversu Var- hugavert er, að stjaka ónærgjgtnis— lega við ungum og lítt reyndum listamanni. Aldrei má fortaka það að úr göldum fola verði góður hestur. Mér þykir enda líklegt að sá dalgur renni upp, er H. K. L. finni sjálfan sig — og þá jafnframt sinn “betri helming” og borgaralegu hæfileika — og verði þá traustsverð- ur og liðtækur samiherji um mennimg— arframsókn samtiðar og framtíðar. Að hann sé þegar orðinn það, fæ ég hinsvegar, ekki séð. Verð ég að gera þá persónulegu yfirlýsin>gu að yfirleitt hefi ég ýmigust á ritverkum hans. Mér þykir diritlist hans í meira lagi leið, frekjuleg og fánýt. Veit ég vel að ekki er ég sérfróður um list — ekki neitt Iíkt því eins vel að mér um fagurfræðileg efni, eins og t.d. H. K. L. er að sjálfs sögn, um trúarlbrögð. Eigi að síður •TDODDS % KIDNEY <° i . .. ?. g PILLS^ "Áfk i o n EÍri í fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin. viðurkjenndiu jneði^, rvlð bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til söiu í öllum lyfabúð um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine -Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. tek ég það tilefni, sem H. K. L. hefir nú sjálfur gefið, til þess, að hafa orð á þeim skoðunum, er ég 'hefi síðari árin myndað mér á dint_ list hans og annara. Og manna síst mundi hann lá mér, þótt gagnrýnin yrði engu orðmýkri, en ádeila hans- var á Baird T. Spalding og bók hans. Ilt er það og ádeiluvert mjög, ef menn beita vísvitandi óheilindum í sambandi við trúarbrögð. Að flekka þannig sannleiksleit ntannanna er að ljósta lífæð menningarinnar, og stefna henni i voða. En litlu betra er það, að fcgurðarlcitin, sjálf listin, sé flekkuð af loddarabrögðum óhlut- vandra æfintýramanna. Að slíkt viðgangist og fari í vöxt í seinni tíð, er sarsaukafull skoðun fjölda mætra manna. Eftirtekaverð málsókn hefir á þessum vetri átt sér stað í Banda- ríkjunum, eftir því sem “Chicago Herald” skýrir frá. Auðugur New York—maður, E. J. Steichen að nafni, keypti erlendis af rúmenskum lista- manni, Constantin Brancusi, “lista— verk” eitt, og hugðist að innflytja það i Bandaríkin. Var það hár og- mjór stautur úr bronzi, er flalttist út og íbogtiaði litið eitt að ofan — Iíkastur stararstrái eða skónál. Stend- ur þing þetta á Htlum teninglöguðum fótstalli, og kallast “Bird in Space” eða “Fljúgandi Fugl”. En þegar til tolíþjónanna kom sást þeim > yfir listina; neituðu þeir að trúa því, að hér væri um listaverk að ræða, og neyddu Mr. Steichen til þess að greiða toll. Blaðið segir: “Tollupphæðin, $240.00 gerði eig— andanum hvorki til né frá, en það var hinsvegar geysilega mikilvægt fyrir þessa nýmóðins listamenn að fá þessa bronzstyttu viðurkenda sem listaverk. Ef lögin stimplúðu >þetta sem hverja aðra ólistræna vélsmíð, og heimtuðu 40 p.c. toll af því eins og öðru málm- drasli. væri þar með skapað heldur óþægilegt fordæmi. Og því var það, að álitlegur hópur þessara list— amanna fylkti sér utan um Mr. Steichen, og hóf málsókn í því skyni að brjóta tollskoðunarmennina á ibak aftur, og fá það opinberlega yfirlýst og staðfest að bronzstöng þessi væri listaverk.” Og hvað kemur á daginn'? Hver drottinvaldurinn í listaheimiriam á fætur öðrum, ber það fyrir réttinum að hér sé um lista-líkneski að ræða af fljúgandi fugli! Hversvegna Ekki vegna þess, að nokkrum lifandi manni gæti af sjálfsdáðum komið til hugar “fljúgandi fugl” í sambandi við styttu þessa, heldur vegna þess að — maðurinn sem bjó þct'tu Ul sagði sjálfur að þetta vœri líkneski af fljúgandi fugli- Hver igat svo sem vitað það betur! Saga þessariar málsóknar sýnir berlega hvert -stafnir fyrir stólrum hluta listamannastéttarinnar — hvað þeir eru að bjóða, og til hvers þeír ætlast af almenningi. Það sem Brancttsi þessi, og hans nótar hafa verið að ihafast að á sviði myndhöggvaralistarinnar hefir Hall— dór Kiljan Laxness, öðrum. fremur

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.