Heimskringla - 14.03.1928, Side 6
6. BLAÐSÍÐA
HBIUSKRl N Q L a
WINNIPEG 14. MARZ 1928
Fjársjóða-
hellrarnir.
Séra Magnús J. Skaptason, þýddi.
Þegar læknirinn kom til okkar tók hann
hattinn af höfði Bért og rendi fingrunum í
gegnum hárið, eins og hann væri í vandræðum
og mælti:
“Ixtual segir að þið verðið að bíða hérna,
angað til hann og ég komum til baka.
“Þangað til þið komið til baka,” hrópuðum
við Wardrop báðir í einu. “Hann segir að hann
verði að fara með mig til þjóðar sinnar, sem
lifi hér eitthvað 4 mílur í iburtu — í iþorpi einu,
held ég, því að við megum ekki fara lengra,
nema við fáum leyfi þeirra til að koma.”
“Hann á við bæjarráðið, eða lögreglu-
Btjómina,” isagði Wardrop, og tók gleraugað af
auganu, og fór að fægja það milli gómanna um
leið og hann starði á Ixtual, sem einlægt horfði
á háu tindana tvo. “Jæja félagi,” mælti hann
á. ensku, “hvað segir þú um þetta? Eigum við
að láta læknirinn fara einan með þessum náung.
a til þeirra? Kanske þeir taki hann og mis.
þymi honum?”
“Eg get ekki séð hvemig við getum komist
hjá þvi,” svaraði ég. “það er að segja ef Morgano
læknir er fús til þess, að eiga það á hættu. Við
erum allir upp á hans miskun komnir, þessa
Indíána, og ég held honum þyki vænt um lækn-
irinn, og þá vill hann honum ekki illa. En hvað
heldur þú?”
Wardrop var nú stund no-kkra að hugsa um
þetta, og horfði ýmist á læknirinn eða hinn
rólega Ixtual, og svo á mig; en loksins sagði
hann: “Mér finnst að við ættum að láta lækn-
irinn gera út um þetta sjálfan.” Hvað segið
þér um þetta, læknir góður?”
“Xilfinningar mínar eru líkastar því et
ég í fyrsta sinn varð sjóveikur, sagði hann,
“En við getum ekki haft hann ofan af þessu.
Hann segir að það sé óumflýjanlegt að fá sam-
þykki þeirra. Og hann ful-lvissar mig um það,
að alt sem ég þarf að gera, sé það að segja
þeim að mig langi til að lesa og skrifa upp hina
glötuðu sögu Mayaflokksins. Hann segist skuli
ábyrgjast það persónulega, að mér sé ekkert
mein gert af þeirra hendi.”
“Oh sussu! Hún er nú ekki meira en svona
og svona góð, þessi ábyrgð han|s, ef þeir skyldu
taka yður og fara með yður á afvikinn stað, og
flá yður, hengja yður, og éta yður svo að lokum,”
sagði þá Wardrop.
“Já, ef þér haldið að þeir myndu gera það.
þá er líklega betra að ég fari ekki,” sagði lækn-
irinn, og ég samþytoti það með honum, að það
myndi ekki vera notalegt.
En þá greip Ixtual fram í.
“Komdu nú bróðir,” sagði hann við lækn-
irinn, við höfum langt að fara. Og tíminn líður,
það er orðið framorðið. Þið getið ekki farið
leiðina milli tinda þessara, nema þú gerir það
semégsegi, ef þið ætlið að halda ferðinni á-
fram —
Já, það vil ég, íremur öllu öðru” mælti
læknirinn með áherzlu. “Eg verð að grafa
upp leyndardóminn um hina töpuðu” —
“Jæja,” sagði nú Ixtual, með sætri röddu,
það er þá tími til aðkomast á stað.”
Læknirinn varð nú einbeittur og sagði:
“Eg ætla að fara. Eg get ekki slept þessu
tækifæri. Eg treýsti Ixtual.”
Eg tók nú samt eftir því, að hann sagði
þetta á frönsku, sem Ixtual skildi ekki. En svo
snéri hann sér að Ixtual, og sagði eitthvað við
hann á Mayatungu, sem Ixtual tók vandlega
eftir, og sagði svo til okkar á spönsku: “Ekkert
ilt skal henda bróðir minn, ég lofa ykkur því
hátíðlega, og ég hef aldrei rofið loforð mitt.
Þið verðið að bíða hérna þangað til við komum
aftur, þó að það verði heil vika.” Og svo fór
hann á bak hesti sínum en lækn. með naumindum
á bak hinum hestinum og riðu svo í burtu; en
við fórum að reisa upp tjaldið og búast um, þó
að okkur líkaði það ekki. Við gátum þó tjald-
a.ð í skugga þar sem vatn var nærri, og höfð-
um múlasnakarlinn, Júan, til þess að gera erf-
Sðn störfin; samt vórum við ekki vel ánægðir.
En við reyndum að gera hið besta úr því sem
hægt var.
Þetta kveld vórum við að geta okkur til
hvað hefði orðið um félaga okkar, einlagt þangað
til við sofnuðum. Og daginn eftir vórum við
að vonast eftir því að þeir kæmu aftur, Ixtual
-og lækinrinn. En þeir komu ekki. Næsta dag
fóru þeir Wardrop og Ben út í skóginn tU þesS
að vita hvent þeir 'gætu ekki -skotið eittihvað.
Þeir fundu lítið dýr eitt (hjört) og skutu hann.
Eg fór að fiska en varð ekki var. En ég rakst
á ljótan höggorm sem ég gat drepið, og var
það hættulegur eiturormur. Um kveldið fórum
við að verða hræddir um að læknirinn hefði
komist |í hagttui einhverja, og vöktum framan
af nóttinni. En loksins fórum við upp í hengi-
rúminn og Wardrop fór að hrjóta alveg voða-
lega; en ég gat ekki sofið. Eg var að teygja
úr mér í rúminu þegar ég heyrði hávaða úti
fyrir. og settist upp og iseildist eftir riflinum
sem hékk undir hengirúminu, og svo stökk ég
ofan og skaraði saman bálinu, unz það blossaði
upp, og heyrði ég þá raddir þeirra, læknisins og
Ixtuals; þeir vóru þá að koma. Þeir Ben og
múlrekinn vöknuðu rétt í því að þeir Ixtual og
læknirinn komu, og heilsuðu okkur.
“Brennivín! í guðanna bænum gefið þið okk-
magurt, var nú afar þreytulegt.
“Brennivín! íguðanna bænum gefið þið okk-
ur brennivín!” kallaði hann til mín á frönsku.”
“Eg bef farið í gegnum hreinsunareld. Þeir létu
mig sverja. Hræddu mig til að sverja, við alt
það sem voðalegt er, á himni og jörðu, að ég sé
ekki að leita að neinu öðru, en að fræðast um
hina forn sögu þeirra. Og þeir ógnuðu mér svo
að ég varð dauðhræddur, og mér liggur við að
gefa upp allar rannsóknir mínar. Og það eitt
kom mér til að vinna þessa eiða, að ég sá það,
að ég var eini maðurinn í veröldinni, sem gat
leyst úr leyndardómum þessara töpuðu þjóð-
menningar.. Bg var nú-orðinn einn af þjóð
þein-a og hef afsálað öllum réttjndum hvítra
manna. Brennivín — gefið þið mér brenni-
vín.”
Og ég hélt að það ætlaði að líða yfir hann
þegar ég helti á glas fyrir hann drykknum, og
hann saup hið ramma, sterka brenniván, eins
og þyrstur maður drekkur vatn. Og þegar
hann-lylfti upp handleggnum , þá tók ég eftir
því, að hann kipptist við af sársauka. En ég
vissi það ekki fyrir en seinna, að á brjósti hans,
ofan við hjartað, og yfir vöðvana á hægri öxl
hans og vöðvana á efri handlegg hans, vóru
fórnarsár hans, skorin með beittum hnífum; og
svo núið í sárin purpurarauðum lyfjum. Og
var það gert af Indíánum til þess að merkja
hann, sem einn meðlim þjóðar þeirra, því þessi
ör var aldrei mögulegt að afmá.
Þarna sáum við píslarvott vísindanna. Hann
fórnaði þarna líkama sínum, og stofnaði sjálf-
um sér í voða til þess að afla sér þekkingar um
þjóðflokk þeirra.
Ixtual kom einnig inn í birtuna af eldinum,
og stóð þar með hendur lagðar yfir brjóst sér,
steinþegjandi og hugsandi, og var þunglyndis-
legur. En meðan læknirinn talaði, þá beygði
hann sig áfram, og vildi óefað fá að vita hvað
læknirinn hafði sagt okkur. En svo varð
hann rólegri þegar læknirinn snéri sér að hon-
um og sagði eitthvað við hann á Mayatungu.
Þá snéri hann sér frá okkur og gekk lítið eitt
í burtu, og fór að hengja upp hengirúm sitt
og læknisins í næstu trjám.
Ástandið þarna var nokkuð íhugunarvert,
ig ég hugsa stundum um það. Eg sé í huga
mínum flókna skógarkjarrið, stjörnurnar
glampandi á himnum uppi, og köstinn, þar sem
eldurinn brann í skugganum, hinumegin við
eldinn, lágu þeir Beni Hássan Uzdul og Júan,
múlrekinn; og svo skamt frá mér, var Wardrop,
-hár og digur, og horfði frá einum til annars. En
ég horfði á þá, læknirinn og Ixtual, er þeir vóru
í ákafa að tiggja matinn sem ég hafði borið fram
fyrir þá, því að þeir vóru báðir svangir. En
lítið man ég af því sem talað var nema það, að
Ixtual var að segja okkur að við yrðum að fara
að sofa, því að við þyrftum að vakna snemma og
leggja af stað í dögun. Og er ég nú huglsa til
til þess, þá held óg að hann hafi verið hræddur
um að Indíáanaflokkur sinn myndi ef til vill,
kalla laftur ley!fið,og -banna Okkur förina. Að
minsta kosti veit ég það, að honum var mjög
ant um að við kæmumst snemma á stað, því
það var rétot farið að móta fyrir degi, þegar
hann vakti okkur og gat þess með mestu kurt-
eisi, að við mættum engann tíma missa. Við
þyrftum undireins að fara að búaokkur og
hefja ferðina til hinna helgu tinda.
IV. KAPÍTULI
Slóðin var óslétot svo að áburðarklárarnir
vóru einlægt að hnjóta, og í einum stað urðum
við fyrir voða mikilli hundgjá, rétot eins og við
hefðum vakið heilt hundaþorp af svefni. Ixtual
var ákafur með áframhaldið, og þótti honum
við aldrei fara nógu hart; en þegar dagur rann
upp skyndilega, sem æfinlega verður á þessum
istöðum, þá var sem létti af honum, því við
vórum þá komnir að þéttvöxnum skógi, og var
þar enginn slóð inn í skóginn. Ixtual fór þá
að leita hvar við kæmumst inn í hann, og loks-
ins fann hann stíginn, og héldum við þegar
eftir honum, og er við höfðum farið hann um
stund, tókum við okkur hvíld. Sáum við þá
plantaðar ekrur hér og hvar, og einstaka Nipa-
kofa. En til hægri handar sáum við byggingu
einhverja í skóginum, og héldum það væri
musteri, en það var nokkuð langt í burtu til þess
að við gætum verið vissir um hvað það var.
En ég sá Morganó læknir stara á það með opn-
um augum, rétt eins og hann hefði séð það
áður, og hefði óþægilegar endurminningar -um
það. Hann fór að hríðskjálfa, og snéri svi
bakinuj við 'þrvtf, iOg leit ekki þangað fra,mar.
Enn við stönsuðum dálítið og hituðum okkur
cocoa og drukkum það með hörðu brauði, sem
við höfðum pieð okkur. En Ixtual herti á
okkur og urðum að halda áfram sem skjótast.
stoun.dir jí hálfrökkri gegnum þétita skógjinn,
eftir troðnum stígum, sem vóru þó óljósir mjög.
Og gekk seinjt ferðin, því að allstaðar vóru
skógarflétturnar yfir stíginn, og víða höfðu tré
fallið yfir hann, og það svo mikið sumstaðar
að við urðum að krækja fyrir, og áttum við þá
oft erfitt að finna stíg þennan aftur.
Þurfti Ixtual oft að leita hvar við skyldum
reyna að komaJst fram. En þá, þegar komið
var nær nóni, og sólin skein á götótta lauf-
þakið yfir höfðum vorum, og ætlaði að nísta
okkur með hinum stingandi, björtu geislum
sínum, er við vórum að vaða í gegnum mann-
hæðar hátt sléttugrasið, þá komum við loksins
að húsarústum nokkrum.
“Við erum nú óhultir, og á réttri leið,”
sagði Ixtual, “og hér skulum við hvíla okkur
þangað til á morgun.” Var það auðséð að hann
þóttist góður, að hafa fundið kofa þennan.
Og hefði ég átt að tala fyrir alla sem í för-
inni vóru, þá held ég að enginn hefði viljað
mótmæla því. Og þegar við vórum búnir að
drepa nokkra höggorma í rústunum, og höfðum
kastað burtu þakinu, sem hafði fallið niður,
þá fengum við okkur góða máltíð af nesti því,
sem við höfðum með okkur, og þá urðum við
sárfegnir að hreiðra okkur, iþví við þurftum
sannarlega hvíldarinnar með.
En hestarnir okkar urðu líka fegnir að
teyga vatnið sem við gáfum þeim, og stúngu
höfðunum gráðurlega ofan í fóðurpoka sína, er
við gáfum þeim að éta.
Eg var líka sem nýr maður næsta morg-
un þegar við áttum að fara að halda á stað.
Sólin var nýkomin upp. En Ixtual hafði fyrir
löngu farið á fætur og fundið leið í burtu frá
bletti þessum.
“Ilér er leiðin,” sagði hann þegar seinasta
exin var geymd, og seinasti potturinn bundinn
á hestana. Við getum ekki haft langa dagleið
í dag, því að leiðin er nokkuð erfið.”
Enda sagði hann okkur sannleikann, ég
ábyrgist það. Og ég hef fengið að vita hvað
hart verk er. Allan daginn urðum við að stríða
við að höggva okkur áfram, í krókum og bugð-
um í gegnum þenna þétta skóg, og vafnings-
viðarflækjum, sem einlægt virtust vera flókn.
ari, og flóknari. Við höfðum nú sverfðhnífa og
hjuggum og skárum flækjurnajr, rétt einis og
þær væru fjandmenn okkar, lifandi. En við og
við kveyktum við í pípu eða vindlingi, og byrj-
uðum svo aftur á þegsum þreytandi, seigdrep-
andi starfi, að brjótast í gegnum þenna þétta,
óendanlega skóg. En Ixtual hafði áttavita, og
eftir honum lögðum við leið okkar; gegnum
skóginn.
“Við erum komnir of langt til vinstri hand-
ar,” eða “við verðum að halda betur til hægri
handar, herrar mínir,” sagði hann; og ég játa
það fúslega að hann reyndist einlægt hrauístur
og einbeittur. Og þetta kveld, þegar við sáum
litla, auða blettinn í skóginum, þá sagði hann:
“Við erum nú komnir langt fram yfir það, sem
nokkur maður hefir farið á þessum dögum. Og
ef að við getum haldið nógu lengi áfram, þá
komumst við í gegnum skóginn, sem fælir flest-
a burtu, eða heldur þeim, og svelgir þá upp.
En þegar við komumst í gegnum hann, þá mun-
um vér sjá land sem léttara er yfirferðar, og
þar hefir enginn maður farið um í mörg hundruð
ár. Það er gott.”
Fyrir þetta þótti okkur vænt um hann. Það
fylti okkur von. Við höfðum nú eitthvað að
vona eftir. En það var heppilegt fyrir hann að
hann reyndi ekki að spá neinu um það, hvað
lengi við þyrftum að halda áfram, hinu þreyt-
anda og erfiða starfi voru, því að þá er ég
hræddur um að við, á þessum voðalegu 16
dögum, hefðum allir gefist upp sem einn maður,
og þvertekið fyrir að halda lengur áfram. Hit-
inn þarna var óþolandi, og loftið upp úr mýrun-
um og fenjunum ætlaði að kæfa okkur með ó-
daun og fýlu, og svo vóru flugurnar í þykkum
skýjum, og skorkvikindinn baneitruð, skríðandi
á jörðunni. En stóru kyrkiislöngurnar, “boa
constrictor” og hennar skyldulið, reyndi oft
faðmlög við okkur sjálfa eða múlasnana. Þá
vóru líka alt í kringum okkur aparnir og páfa-
gaukarnir að hljóða og spjalla, en fuglarnir að
skrækja og veina og væláj En myrkrið var
svo mikið, undir hinum þétitu skógargreinum,
að við gátum varla séð hvor annan. Og því
urðum við svo sárfegnir er við loksinjs sáum
dagsbirtuna yfir höfðum vorum. En þegar við
þá litum hvor annan, þá vantaði h'tið á að við
yrðum vitskertir. Augun virtust sokkin inn í
höfuð vor, og við vórum órakaðir og ógreiddir,
og gátum varla talað. Við hirtum ekki um
það hvort við lifðum eða dæjum og hefðum
óðara myrt hvor annan ef nokkur hefði gefið
tilefni til þess. Og það hefði ekki þunft að
vera mikið. Það var hvíld sem okkur vantaði,
hvíld frá þessu öllu saman. Og þá var það
loksins þegar Benný var að verða vitskertur,
þegar tröllið Wardrop, sem aldrei kvartaði eða
kveinkaði sér, var að -þrotum kominn, þá brut-
umst við í gegnum flækju þessa. Þá kom alt
í einu birtan og Ijósið, og sólin, sem baðaði
okkur með hinum vermandi geislum sínum.
Við höfðum þarna brotist í gegnum skóg
þar sem eiginlega var öllum mönnum ófært, og
enginn maður hafði reynt að fara um í mörg
hundruð eða þúsundi ára.
Við komum nú á opið svæði, lítið þó; og
sáum dalverpi eða dæld nokkra, skóglausa, og
fundum veg í kring um skógarnef eitt, og rann
þar lækur niður. Og komum við svo að tré einu
stóru, og því næst komum við á bera og skóg-
arlausa klöpp eina. Við urðum að berja áburð-
orðnir, svo við urðum oft að hrinda þeim áfram.
arklárana áfram, því að þeir vóru sárþreyttir
En þegar upp kom á klettinn þá köstuðu allir
sér niður, menn og skepnur. Þaðan horfðum
við nú niður á skógarflækjuna sem við höfðum
sigrað, og þóttumst góðir, að vera komnir
þangað.
Við fórum nú að litast um eftir vatni og
brátt sáum við tæran læk með tæru vatni renna
þar niður eftir og réðum það strax af að við
skyldum fylgja honum upp eftir. Við klifruð-
umst nú upp brekkuna, sem einlægt varð bratt-
ari og brattari, og rann lækurinn þar niður,
eða spýttist þar niður í 4 þumlunga bunu. Á
klöppinni var löng röð af letri sem höggvin
hafði verið á klettinn. Og undireins og Morgano
varð þess var þá gleymdi hann öllu öðru og fór
að rýna í það sem þarna var ritað; reita af klett-
inum mosann og grasið sem lagst hafði yfir
letrið, og var þá engu líkari en vitskertum
manni.
“Við megum eins vel setjast hér að,” sagði
Wardrop, og leit einkennilega til Morgano.
“Það verður alveg ómögulegt, að fá hann
héðan fyrri en hann er búinn að lesa hvern
einasta staf af öllu þessu letri,” sagði ég við
Ixtual, sem undireins samþykti það að við
skyldum setjast þarna að.
Eg tók nú samt eftir því að þegar við
fórum að kveikja eldinn, þá hagaði hann eld-
inum svo að ómögulegt var að sjá hann, eða hinn
minsta neista frá skóginum. Eg mintist á.þetta
við hann, en hann svaraði: “Engir aðrir en
foringjar þjóðar minnar vita það að nokkur
maður hafi komið hingað. En ef að
fólkið visei það þá kynnu þeir að verða reiðir,
og það er óviturlegt að egna fólk upp til reiði.”
“En því verða þeir ekki glaðir að heyra og
fræðast um alt sem að sögu þeirra lýtur?” sagði
ég.
“Þjóðin mín,” mælti hann þurlega,” hefir
þá trú, að tindar þessir, hinir háu, séu varð-
englar helgidóma mikilla og að enginn megi
hingað koma til að rifta friði guða þeirra, sem
hér sofa, og á -þá hinn heilagi prestur, sem dáinn
er fyrir mörg hundruðum ára , að gefa þeim
merk.”
“En eru þeir ekki búnir að sofa æfalengi?
spurði Wardrop, því að hann hafði hlustað á
hvað talað var.
“Rvað er þúSund eða fimm (þúosund ára
svefn fyrir þá sem lifa eififu lífi?” sagði Ixtual
með fyrirlitningarsvip, og gekk svo burtu, því
honum féll ekki vel umtal þetta, og fór hann nú
Dangað sem læknirinn var að lesa letrið á stein-
unum. Við Wardrop vórum ánægðir með það
sem komið var, en Ben hélt áfram og þegar
ég var að sofna í tjaldinu, þá þakkaði ég guði
fyrir að við værum svo hátt uppi, að flugurnar
væru farnar að minka. Og svo sofnaði ég.
Eg vaknaði við byssuskot og var þá lítið
farið að lýsa. En Wardrop var horfinn og kom
hann þó litlu seinna með þrjá góða fugla sem
hann sagði að væri akurhænsni, og einn guin-
eafugl viltan. Hann var nú ánægðari en þegar
við lögðum af stað, og mintist ekkert á neinar
flugur eftir máltíðina, og fór ég þá að stríða
honum með flugunum. En hann var að líta
eftir byssu sinni, og gætti þess vandlega að hún
væri í góðu lagi, ef hann þyrfti skjótlega að
grípa til hennar.