Heimskringla - 30.01.1929, Blaðsíða 5

Heimskringla - 30.01.1929, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 30. JAN. 1929 HEIMSKRINGLA 5. BLAÐSÍÐA York, þá dreymdi mi.g', eitthvað und- arlega. Eg vaknaöi snemma um morguninn; ég fann ekki til myrk- fælni, en af einhverjum óskiljanleg- um ástæöum, þá rifjaöist upp fyrir mér, Grettis-saga, og Eyrbyggja. Sögufróðir Islendingar kannast við þaö hversu myrkra-vofurnar —draug- ar — afturgöngur, — voru þess vald- andi? að nýlendu-búar á gamla “Fróni, höfðu ekki mikla ánægju af mána-skini, eða stjörnu-ljósi, á þeim tímum, sem þær sögur fjalla um.— Eg snéri mér við í rúminu, það var í mér hrollur, þrátt fyrir það þó ég vissi um veðurblíðuna úti fyrir. — Eg sofnaði aftur. — Morguninn var næstum fram-geng- inn, þegar ég neytti morgunverðar. Eftir að ég hafði sötrað dreggjarnar, úr fremur bragð-daufum kaffibolla, þá labbaði ég út í “Central Park.”— Eg átti þar geymdar fremur igóðvilj- aðar endurminningar. Þar eru bæði klettar og vötn, og einkennilega myndaðir skógarrunnar. Eg settist niður, í loðinni og ó- kembdri grasbrekku. Voru þar klettahæðir í kring á þrjá vegu, en leikvöllur nokkurnvegin beint fram- undan. Eg eldaði mér fremur við- feldinn vindil. Milli tíu og tuttugu menn — flest allir fyrir innan miðj- an aldur — voru þarna í nágirenni við mig. Sumir sátu uppi á lclett- unum, en hinir voru þó fleiri, sem sátu eða lágu endilangir, víðsvegar í brekkunni. Mér virtust þeir allir vera fremur þreytulegir, datt mér í hug, að sumir þessir menn, væru máske leynilögregluþjónar. Eftir að ég hafði setið þarna í brekkunni, á að gizka tuttugu mín- útur, þá kom lögregluþjónn yfir hæðina á bak við mig. Hann hefir ekki mikið að gera, þessi laga-vernd- ari, fremur en óg, flaug mér í hug, án þess að gera mér nokkra minnstu hugmynd um erindi hans. En ég þurfti ekki lengi að bíða í óvissu. Hann skipaði þeim, sem þarna voru staddir, að hafa sig á kreik sem skjótast, burtu úr brekkunni. Eg var sannfærður um það að lögregluþj ónninn hafði ekkert lög- iegt vald til þess að gera þeim nokk- urt ónæði, sem þarna voru staddir. —Þeim, sem þarna voru að hvíla sig siðsamlega í ró og næði. Það var engin auglýsingt þarna, sem gæfi hið gagnstæða til kynna. Þessi staður var almennings eign. til allra siðsam legra nota. En þrátt fyrir það, þá var það áform mitt að sýna enga opinbera “óbótamanns þrjósku,” Eg stóð upp úr sæti minu eins og hinir mennirnir. — En ég var ekkert að flýta mér. E^ átti ekkert heimili eða neina vini í þessu nágrenni. Eg hafði stundum fundið bibliur í gisti húsum Norður Ameríku, en ég hefi aldrei fundið gestrisni eða góðvild. líka því sem Norðurlandamenn voru eitt sinn frægir fyrir. Eg bjóst til þess að taka skemstu leið út á gang- stéttina, til hægri handar, frá þeim stað, þar sem ég hafði setið. En þess konar fyrirætlanir áttu ekki að lánast, síður en svo.— Lögregluþjónninn stóð nokkru ofar í brekkunni, með hendur á mjöðmum (sér). Hann var auðvitað að bíða eftir því að skipunum sínum væri hlýtt. Eg hefi líklega hagað mér eitthvað svipað, nema hvað ég hafði það fram yfir lögregluþjóninn, að ég hafði vindil í munninum, og henigxli staf-prik mitt á hægri hand- legg, í olbogabót; skeð gæti að lög- regluþjónninn segði. að stafurinn minn hefði verið nokkru neðar. Hver sem orsök hefir verið til þess, að lögregluþjónninn snérist að mér, þá varð sú reynzla mín. Enda var ég orðinn þarna einsamall. Hann hróp- aði til mín að koma ofar i brekkuna. “Here is the way out,” kallaði hann fremur ruddalega. Ekki trúi ég því að málrómur min hafi verið eins tuddalegur, þegar ég svaraði hon urn. “You are a fool. you don’t know what you are doing.” "Eg var ekki fyrri búinn að sleppa þess- um orðum af tungu mirini, heldur en að hann kallaði til mín: “You are under arrest.” Um leið kom hann niður brekkuna, og lagði hendur á Halldór Laxness og (Frh. frá 1. bls. þau á braut aftur, eða með öðrum orðum að bera þau út.— En nú vita allir, að veruleikanum er ekki svona “viturlega” fyrir kom- ið og hr. Laxness vill vera láta, svo að allar hugleiðimgar hans þar að lútandi eru ekkert nema háfleygur skáldskapur. Hvert afkvæmi á svo náttúrlegan rétt til umhyggju for- eldra sinna, að jafnvel skynlaus skepnan gengst við því. Og enda þótt það tíðkaðist í sið feðra vorra, að bera út börn og henda á spjóts- oddum, þá þótti það jafnan níð- ingsháttur og hið mesta ódrengskap- arbragð. Enda virðist svo af fram haldi greinar hr. Laxness, að ekki hafi sú verið ætlun hans að gefa þetta í skyn. Hann fyllist heilagri vandlætimgu yfir því, að Reykjavík- urbær sé “í háalofti af glæsilegum vonum um að takast megi að kreista lífið úr óskilgetnum hörmum, me»ð því að færa niður meðlag með þeim.’’ Vill hann láta hengja þá menn án dóms og laga, er berjast fyrir slík- um hugsjónum. Eins og að ofan má sjá, myndi liann þá ætlast til að allur Reykjavíkurbær yrði festur upp í einn galga. Er hvorttveggja jafn hófsamlegt og ánægjulegt. lýs- ing hr. Laxness á Reykjavíkurbúum og stjórnarbót sú, er hann vill gera. Annars er ekki orðum eyðandi að slíkum öfgum, og furðulegt að nokk- ur rithöfundur skuli láta sér slíkt um munn líða. En ef hr. Laxness er það jafn ljóst og hann lætur, að það sé “á barninu, sem þjóðfélagið rís” og framtíð hvers ríkis sé komin undir þvi, hver rækt barninu sé sýnd — hví hrakyrðir hann þá Ólaf Ölafsson fyrir baráttu hans gegn barnaútburði ? Er Ölaf- ur ekki að því leyti eindreginn sam- herji hans? Er ekki Halldóri Kilj-I an skuldlaust að velja Ölafi trúboða hæðiyrði, fyrir baráttu hans gegn samskonar hátterni og hann sjálfur telur hengingarsök? Ef sú stefna er ill á Islandi, að þrengja hlut ó- skilgetinna barna, hví skyldi það þá vera svívirðilegt verk, að reyna að koma því inn í siðferðisvitund Kín- verja, að ósæmilegt sé, að myrða börn sín? Finnst ekki Halldóri Kiljan Laxness, að samt væri til nokkurs unnið, þótt eigi hefðist ann að upp úr trúboði Ölafs Olafssonar, mig, en sleppti mér þó fljótlega. Gengum við svo' spölkorn, þar til að við komum þar að, sem gang- stéttirnar skiftust. Bjóst ég þá til þess að skilja við fylgdarmanninn.— Taldi líklegt að hann hefði áttað sig á því, að hann hafði enga ástæðu til þess að hindra ferð mína. En hann virtist vera á annari skoðun. Snér- ist hann því all snúðugt að mér og tók óþyrmilega um hægri handlegginn á mér. “You think I am going to stand for that you calling me a fool,’’ hreytti hann úr sér. “We are all .fools,” sagði ég. Hann sleppti mér. — Sleppti lagaverndunartakinu. Þegar við komum út úr “Central Park” þá kallaði laga-vörður þessi á leiguvagn, var hann þá nokkru kurteisari, t. d. sýndi hann mér þá virðingu, að leyfa mér að fara inn í leiguvagninn á undan sér. Ekki hafði hann heldur neitt á móti því, að ég yrði fyrri til þess að setjast niður.— Keyrðum við svo niður á lög- reglustöðvar, þær sem næstar voru, eða þanni.g bauð mín barnatrú mér að skilja þessa ferð. Eg hafði fyrir tólf árum skrifað söguágrip New York borgar; þarna var loks- ins verið að sýna mér ofurlitla viður kenningu. — Eg var nú gestur borg- arinnar. Undanfarnar sex nætur hafði ég verið bara eins og hver al- ;gengur ferðamaður, — á “Empire Hotel”. — En fyrst átti að bjóða mér inn fyrir járn grindurnar, í tugthúsinu, sem næst var “Central !Park.”— (Frh. i 7. bls.) en að þeiri hugsun yrði komið inn hjá einhverjum hluta hinnar kín- versku þjóðar, að æskilegt væri, að þjóðfélagsmál hennar kæmust i það horf, að eigi þyrftu menn að bera út börn sín? Ef hr. Laxness er sjálfum sér samkvæmur, hlýtur hon- um að virðast það. Og hví kallar þá hr. Laxness Ölaf Ölafsson “trúboðarægsni” eða “ó- vandaðan og óupplýstan trúboðs- dóna?” Vel má það vera. að hvor- ugur okkar Laxness sé Ölafi trúboða að öllu eyti samþykkur í trúarskoð- unum hans. En ekki situr á okk- ur að hrakyrða Ólaf fyrir það, þótt hann boði sína trú, meðan við boð- um okkar trú. Halldór mætti vel reka minni til, að hann hefir sjálf- ur igerst trúboði þeirra trúarbragða, (kaþólskuunar), sem ekki eru talin að líta heilagan anda upplýsingarinn- ar sem blíðustu auga. Ætti Hall- dór því sízt að finna Óllafi mentun- arleysið til foráttu, enda er Olafur eigi ver menntaður, en allur þorri þeirra manna, sem einhverskonar trúboð stundar. Svo vill til, að ég þekki Ölaf trúboða ofurlítið, og hefir mér virst af þeirri viðkynningu, að hann væri drengur góður og manna einlægastur í sínu starfi, sem hann hefir varið til æfi sinni frá barnsbeini. Og það er ætlun mín um hvern mann, sem vinnur verk sitt af heitri sannfæring og mannúðar- hvötum, að af honum megi vænta meir góðs en ills, þótt auðvitað sé meiri og minni þverbrestir í hvers manns starfi. Og þá vil ég spyrja hr. Halldór Kiljan Laxness að lokum; Hvers vegna skrifar hann “Alþýðubók,” sem honum virðist slík nauðsyn á að birta alþýðu og reun ber vitni ? Er hann ekki með henni að boða “trú” sína eða skoðanir á mannlífinu? Er það annað en brennandi sannfæring hans á mikilvægi skoðana sinna, sem knúð hefir hann til ritstarfanna ? Hví má þá ekki Ölafur Ólafsson trú- boði fara eins að. án þess að vera nefndur trúboðsrægsni eða óvandað- ur dóni'? Þessu þykir mér sanngjarnt að hr. Halldór Kiljan Laxness svari á því dómþingi, er hann hefir valið sér. Benjamín Kristjánsson. ----------x----------- Frá islandi. Alþingishátíðaljóðin i I dómnefndinni um hátíðaljóðin áttu sæti: Arni Pálsson, Guðmundur Finnbpgason, Einar H. Kvaran, Jón Sigurðsson og Páll ísólfsson. Mesti fjöldi hafði nefndinni borist af ljóða flokkum, en aðeins þrír gátu komið til mála að dómi nefndarinnar, þó með nokkrum endurbótum. Var höfundum þessara flokka þriggja, Einari Benediktssyni, Davíð Stef- ánssyni og Jóhannesi úr Kötlum gef- in kostur á að endurbæta flokka sína og skyldi því lokið 15. þ. m. Voru ljóðin síðan tekin til nýrrar athugun ar og var álit nefndarinnar á þessa leið: Dómnefndin um hátíðaljóðin 1930 hefir athugað að nýju þá þrjá ljóða flokka, er teknir höfðu verið út úr og höfundar þeirra endurbætt og skilað á tilsettum tima, 15. þ.m. (des9 Urðu nefndarmenn sammála um, að allir væru ljóðaflokkarnir nú vel kveðnir og nothæfir til flutnings á alþingishátíðinni. Hins-wegar ýarð ágreiningur um, hvor tveggja flokk anna, þeirra Davíðs Stefánssonar og Einars Benediktssonar, sem mjög eru ólíkir, væri beztur. Páll Isólfs- son telur flokk Davíðs betur fallinn til þess að semja löig við og syngja heldur en flokk Einars. sem sé ein- hæfari í því efni„ þó raunar sé hann sönghæfur. Með sérstöku tilliti til þessa varð niðurstaðan sú, að leggja til, að flokkur Daviðs yrði sendur tónskáldum til þess að semja lögin við, en að flokkur Einars yrði sagður fram á hátíðinni. Öll var nefndin jafnframt sammála um að gera þá tillögu og leggja ríka á- herzlu á, að báðir hlytu flokkar þess- ir 1. verðlaun, 2000 kr. hvor. Einn- ig er það einhuga tillaga nefndar- innar að Jóhannes úr Kötlum verði sæmdur að minnsta kosti 1000 kr. verðlaunum fyrir sín ljóð. Síðan verði hátíðaljóðin öll prentuð sam- an i einu hefti og gefin út á hátíð- inni. Nefndin vill benda á, að henni þyki upphafskvæði Jóhannes- ar úr Kötlum vel fallið til sömgs við væntanlega guðsþjónustu á há- tíðinni, og gæti hátíðanefndin falið einhverju tónskáldi að semja lag við þann sálm. Þess skal ennfremur getið að há- tíðanefndin hefir frestað að taka af- stöðu til tillagnanna, nema hvað hún þegar hefir ákveðið að veita Davíð Stefánssjmi 1. verðlaun og að senda ljóðaflokk hans til tónskáldanna. Þessi ákvörðun var tekin nú þegar, vegna þess að tírai er nú orðinn svo naumur með samning laganna og undirbúnings söngs, og ákvörðun mátti ekki íresta. —Vörður. --------x--------- Söngkennsla Björg- vins Guðmundssonar Deildin Frón hefir lofast til að aðstoða Björgvin Guðmundsson við barna-söngkennslu þá er hann hefir haft með höndum í vetur. Það er enginn vafi á að þessi kennsla er eitt af þeim nauðsynjastörfum er íslendingar hér í borg ættu að láta sig varða. Kennslan hefir emgan kostnað í för með sér fyrir börnin og eru tvær æfingar á viku, önnur i samkomusal Sambandskirkju á mánu dagskveldum kl. 7 og hin í Jóns Bjarnasonarskóla á laugardaginn fyr ir hádegi, kl. 10.30. Það sem nú er mest þörf fyrir er að börn fjölmenni á æfingar og helzt að fleiri unglingar mili 12 og 18 ára aldurs bætist við í hópinn. Björgvin hefir lagt mik- ið á sig til að koma þessu verki á stað og er leitt ef það þarf að hætta fyrir þá sök að islenzk foreldri í Winnipeg kæra sig ekki um að nota slíka kennslu fyrir börn sín. Ef nokkur áhugi er fyrir starfinu ættu börn og unglingar að fjölmenna á næstu æfingar eða gefa sig fram við umferða-kennara Fróns sem allra fyrst, svo að sem mestur árangur verði af kennslunni þann tima sem eftir er vetrarins. —Stjórnarnefnd Fróns. --------x--------- Fréttir (Frh. frá 1. bls.) En síðan 1920 hefir ekki verið eftir þessu farið, af því, að þingmenn beggja flokka hafa Iagt meira kapp á það að sitja fastir i stöðu sinni, en að framfylgja stjórnarskránni. Hefir af þessu risið sá ójöfnuður, að sumir þimgmenn eiga færri kjós- endur að baki sér, en 250,000, sem er meðaltal íbúa á hvern þingmann í Bandaríkjunum, en t. d. Los Angel- es—Hollywood kjördæmið með 1,- 250,000 íbúum á sér aðeins einn fulltrúa á ríkisþinginu. . En nú er séð fyrir því að þetta verði lagfært eftir að manntal hefir verið tekið 1930, og er það tryggt með samþykkt frumvarps, sem kennt er við E. Hart Fenn, og kveftur svo á að fulltrúafj öldi hvers ríkis neðri málstofunnar skuli að loknu mann- tali 1930 ákveðið á þann hátt, að þingmannafjölda, 435, skuli deilt í fólksfjölda Bandaríkjanna, 'og skuli sú tala, er þá kemur út, skoðast sem meðaltal hvers eins manns kjördæm- is, og þingmannafjöldi hvers rikis reiknast svo eftir því. Til dæmis: ef eitthvert ríki hefir 8,000,000 íbúa 1930, og meðalfólksfjöldi hvers kjör dæmis í öllu landinu verður 400, 000, þá ber að kjósa 20 fulltrúa frá því ríki til ríkisþings. \ gjöra þurkhreinsun samdægurs Bæta og gjöra viö Sími 37001 Wlnnlpegr. Man. WONDERLAND Laukur kemur út tárunum á flest- um, en það er eniginn jarðargróður til, sem kemur þér til að hlægja. Svo segir Colleen Moore, hreyfi- myndaleikkonan fræga. Að koma fólki til að hlægja er hægðarleikur. eða aðeins falið í því, að keyra hlut- ina nógu mikið fram úr hófi. svo að þeir verði alger fjarstæða. En að leika reglulegt sk\ildverk, er ekki heiglum hent. Þar dugar ekkert nema að vera sem líkastur sjálfum “The Fleet’s in,” sem Clara Bow leikur aðal persónuna í, er sýndur fyrstu þrjá dagana af næstu viku á Wonderland, Allstaðar er lofsorði, lokið á þá tnyncL Drengjunum af “flotanum’’ leizt fleirum en einum vel á Klöru, og ef ykkur fýsir að sjá hver er hlutskarpastur, þá komiS á Wonderland dagana sem þessi mynd er sýnd. Lnnpmttf. INCORPORATED MAY 1670. MANSFIELD DRESS 0XF0RDS OF STURDY BRITISH CONSTRUCTION Þessir brezku Oxfords eru úr svo ágætu efni og með svo góðu lagi, að hvern, sem góða skó vantar, tekur þá öllum öðrum fram. Manfield er rétta nafnið á góðum skóm. Þeir eru þægilegir á fæti og halda lagi sem nýir skór eftir margra mánaða not. Allar stærðir og víddir frá A til D. Hudson’s Bay félagið er eini agentinn í Vestur-Canada. —I karlmanna skóadeildinni á neðsta gólfi H. B. C. /

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.