Heimskringla - 10.04.1929, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 10. APRÍL, 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSÍÐA
kannast viö Mr. Hanson af greinum
eftir hann, er vér höfum þýtt og
birt í blaðinu.—■).
Fyrir skömmu átti ég tal við Mr.
Clarence Birdseye. Hann er Verk-
fræðingur og lífeðlisfræðingur og er
einn af merkustu mönnum innan
hins ameriska fiskiðnaðar. Hann
er einn af þeim fáu mönnum, sem
hefir kynnt sér til hlítar allt það, er
að fiskveiðum og fiskiðnaði lýtur
beggya megin Atlanzhafsirts. Tal
okkar barst að íslenzkum fiskiveið-
um, og þvi, sem ég veit um islenzka
atvinnuhætti."
Það sem Mr. Birdseve sagði mér
um þessi efni var þess eðfis, að mér
H*''
þótti ástæða til þess að orð' hans
bærust Islendingum. Mér
finst mál lians og álit vera Islend-
ingum ihugunarefni. Það má vera,
að þeim sé þetta allt saman kunnugt
áður, og þeir séu þegar komnir i
fiskiveiðum sínum og fiskiðnaði inn
á þá braut, sem þessi fróði maður
bendir á. En þó svo sé, þá getur
það haft þýðingu út af fyrir sig, að
heyra álit hans, því það er eftirtekt-
arvert hvernig þessi maður lítur á
fiskveiðar Islendinga og framtíð
þeirra. Hann hefir aldrei til Is-
lands komið, en hefir um alllangt
skeið veitt líjlandsmálum athygli.
1 (ann hefir í hyggju að koma til Is-
lands á næstunni, og eins og gefur að
skilja, dró ég ekki úr því, að hann
kæmi því í verk.
— Islendingar geta lueglega gert
land sitt að fiskveiðamiðstöð Ev-
rópu, sagði Mr. Birdseye.
-—Hvernig haldið þér að það geti
átt sér stað? sagði ég, og benti hon
um á ýmsa þá erfiðleika sem íslenzk
útgerð á við að stríða, einkum sam-
keppnina frá hendi Norðmanna, Skota
og Færeyinga.
—Samkepni, sagði Mr. Birdseye.
Ef íslendingar halda vel á sínum mál
um, þá geta þeir Imðið allri sam
kepni byrginn. Þeir geta fagnað
þvi, að sem flest erlend skip flvkkist
á miðin við strendur landsins —ut-
an landhelgi vitanlega. Þvi fleiri
sem kæmu, því be'ra. Því öll gætu
þau flutt landinu auðæfi.
cocccccceðcosccoscccccccccoccoccccoccccccccccccccisr.
| Weymarn Oils Ltd.
HÖFUÐSTÓLL $1,250,000
250,000 hlutir hver á$5,00
Weymarn Oils Ltd., á og hefir umráð yfir 16,-
000 ekrum á eftirfylgjandi stöðum:
Turner Valley .......... 160-ekrur
Wainwright .............. 6,000. ekrur
Pincher Creek ........... 4,000 ekrur
Clearwater 3,000 ekrur
Rocky Mountain Forest
Reserve ......s....... 3,000 ekrur
FélagitS á einnig Mount Royal lindina vit5 Pincher
Creek, sem er 1,000 feta djúp og sýnir olíu. Er metitS
ati framleitSslan Sp nægileg á 1700 feta dýpi.
í»á er Black Diamond lindin í Turner Valley á 1300
feta dýpi, og Clearwater lindin á 500 feta dýpi. Þrjú
borunaráhöld eru á áminstum stötium.
Rannsökuti veröa svæöin í Wainwright og Mercoal á
þessu ári, ennfremur vert5a 11 brunnar boratiir í ár.
Weyrúarns Oil Ltd.. er stofnatS af norskum autSmönn-
um. Hr. Paul von Weymarn, jartSfrætSingur, er forseti
félagsins.
The Parent Co., Limited
STOCKS BONDS GRAIN
187-189 Grain Exchange Annex
Sími 89 987 Winnipeg, Man.
ccccccccccccccocccccccsssssocccccsccccccoocccccccccss
FURBY TAXI
50c 75c $UOO
Phone 37201
ALL PLAIN CARS
501 FURBY STREET
—Hvernig þá það ?
—Sjórinn og fiskmiðin við strend
ur Islands eru að miklu leyti ónotuð
enn í dag. Þarna eru beztu fiski-
mið Evrópu nú á tímum. Ef þau
væru ekki svona langt í burtu frá
meginlandinu, þá væri þarna alveg
ótölulegur sægur veiðiskipa allan
I ársins hring.
En þá erum við einmitt komnir að
i kjarna málsins. íslenzku fiski-
miðin eru éinmitt mátulega langt frá
meginlandinu, til þess að ísland
sjálft geti notið þeirra til fulls. ís-
lenzkltr fiskur er orðinn of gam-
all, þegar með hann er komið á
Evrópumarkaðinn til þess að hann
sé verðmæt og útgengileg vara.
íslendingar salta og þurka mest af
fiski sinum. Við vitum þó báðir
jafn vel, að þessi aðferð er úrelt,
að engin þjóð ge'ur byggt efnalega
afkomu sína og efnalegt sjálfstæði á
saltfiskssölu.
Eftirspurnin eftir saltfiski fer
minkandi. Hún fer a. m. k. mink-
andi í samanburði við eftirspurn-
inni eftir nýjum fiski,- og eykst ekki
í hlutfalli við fólksfjölgun. Þetta
hafa menn skilið á Nýfundnalandi,
Nova Scotia og eins er með okkttr
hér í Nýja Englattdi. Saltíísks-
verzlun er ekki heillavænieg. A1-
menningur urn allan heim vill fá
fiskinn nýjan, og er fús á að gefa
fyrir hann gott verð. Ef Islend-
ingar koma fiski sinu nýjum á mark-
aðinn í Englandi, Belgiu Pýzkalandi,
þá# er útgerð landsmanna borgið i
framtíðinni. Því eru Islendingar
að streitast við að^selja fisk sinn til
Suður-Ameríktt, þó þeir hafi enska
ntarkaðinn rétt við hendina? Og
eins er með kjöt þeirra. Ef það
væri vel verkað og vel með farið,
þá væri hægt að fá fyrir það læzta
verð í Englandi.
Þú hefir sagt mér að Islendinga
vantaði iðnað i landið. Hér eiga
| þeir leik á borði. Þeir geta unnið
Söiu sýning á myndum
Frá Listmyndasal Eaton’s
Á þessari sölusýningu eru margar eftirtektaverðar og fagrar vatns-
og olíumyndir, sem gerðar eru af víðkunnum brezkum og evrópískum
P listmálurum.
A. R. L. Carroll, stjórnandi listmyndahallar Eaton’s, náði í mvndirnar
í Englandi og Evrópu — á mikilsverðtim sölunt, frægra listmyndahalla,
eða keypti þær hjá listamönnunum sjálfum. Derwent Atkinson sér
um söluna á sýningunni.
Yður er vinsamlegast boðið að koma og sjá hina fræígu mynd
Hugh de T. Glazebrook’s s
“Sigurvegararnir”
Er til sýnis er í listmyndasal vorum
Stórfenglegasta myndin af “friði,” er nokkru sinni hefir máluð
verið, voru orð þeirra -er myndinni lýstu í Evrópu, er hún var fyrst sýnd
þar. ,
Myndin sýnir Napoleop og Markskálka hans og fylgja þeim aðrir yfir-
menn í liði þjóðhöfðingjans. Þeir eru allir á hestbaki og eru á ferð
upp eftir hlíð. Eti orustuvöllurinn er stráðum brotnum fallbyssum,
drepnum og særðum hermönnum, og öðrum fylgjum hernaðar. Til
hliðar sést þar stytta, sem að nokkru leyti hefir verið eyðilögð af skot-
hríð, en á þeirn hluta hennar, er ennþá er óskemdur, er líkneski af Kristi
á Krossinum.
í myndasalnum á sjötta gólfi, Donald.
^T. EATON C9m.ted
WINNIPEG CANADA
úr fiski sínum og kjöti, útgengilega,
vel verkaða matvöru, sem þannig er
gengið frá, að fyrir hana fæst tryggt
og gott verð. Islendingar hafa þeg
ar endurbætt veiðiaðferðir sínar og
veiðitæki aðdáanlega vel. I staðinn
fyrir gömlu árabátana og skúturnar
eru nú komnir vélbátar og togarar.
Þeir eru afburða góðir sjómenn,
standa meðal fremstu sjóntanna
heimsins.
En þetta er ekki nema byrjunt
Leiðin er aðeins hálfnuð að mark-
inu. Hvað stoðar að veiða meiri
fisk en nokkrir aðrir, ef ekki er hægt
að selja hann með hagnaði. Þeir
verða að korna meðferð, verkun og
frágangi fisksins í nýtízku horf.
Þegar þeir taka sér það fyrir hendur
og koma því í kring og leggja eins
mikla alúð við þær umbætur og eins
mikið fé, eins og þeir iiafa lagt í
umbæturnar á veiðununt sjálfum, þá
geta Islendingar, eins og ég sagði
áðan, gert land sitt að fiskimiðstöð
Evrópu.
Sérðu hvað ég á við er ég segi
að þeir geti boðið allri samkeppni
byrgin’?
Þeir geta það með því að konta á
hjá sér hraðfrystingu á fiski, og
gera hann og útbúa samkvæmt kröf
um tímans, þá verða öll þau skip
sein véiða við Island helzt að leggja
afla sinn þar á land — ekki í önnur
hús að venda. Það verður ekki
hægt að fara með fiskinn í ís á
F.vrópumarkaðinn, því hann er ekki
samkeppnisfær við fisk sem hrað-
frystur er. Og þess vegna geta Is-
lendingar fengið yfirhöndina með
fiskiverzlunina, og ráðið yfir verzl-
uninni með þann fisk, sem beztur er
og útgengilegastur.
Island er svo nálægt Englandi að
Isiendingar geta selt þangað hrað-
frystan fisk, í því bezta ásigkomu
lagi seni á verður kosið. — Félag
mitt sendir fisk unt q11 Bandaríkin
með járnbrautumv • Við þurfum
ekki á frystivögnum að haida. Jafn-
vel á sumrin, þegar hitinn er 90
gráður á Farenheit, þá helst fisk-
urinn óskemdur i átta daga, ef um
hann er búið í 50 punda pökkunt, og
fæst fyrir hann hæsta verð hvar sem
hann keniur.
Hér er frásögn Mr. Birdseye lok-
ið. Mér þótti hún svo eftirtektar-
verð, að ég ákvað að rannsaka ntál-
ið nánar. Eg fann grein um frysti
aðferð hans i “Fishing Gazette,” sem
er aðal fiskiveiðablað Bandaríkj-
anna. F.g fann a|íra grein í tima-
ritinu "Food Industries.” Eg fann
skýrslu um málið i húsmæðrablað-
inu "The Ðelineator,” þar sem far-
ið er mjög lofsamlegum' orðunt um
það live fiskur hans sé góður og vel
verkaður. Eg fann lofsamlegar
frásagnir um sama efni frá fiskiveiða
skrifstofunni í Bandaríkjunum 'TJ.
S. Bureau of Fish*eries.” Ennfrem
.ur hefi ég rekist á greinar um hann
Qg meðferð hans í ýmsum dagblöð-
um, þar sem húsmæður eru hvattar
til þess að nota fisk frá verkunar-
stöðvum og frystihúsum hans; ekki
einasta vegna þess hve fiskurinn er
góður, heldur einnig vegna þess hve
þrifalega er tneð hann farið, hve
hreinn hann er, og hve þægilegt er
að meðhöndla | hann, -húsmeeSuir
þurfa ekki að hafa fyrir neinni verk
un, fiskurinn er eins og hann kemur
úr verzluninni tilbúinn til suðu.
Verkfræðingar, heilsufræðingar,
rithöfundar og gerlafræðingar hafa
rannsakað vörur Mr. Birdseye, hver
frá sínu sjónarmiði, og hafa allir
hælt honum einum rómi. Verzlunar
menn einir hafa andæft, sast að að-
ferðir hans væru óframkvæmanlegar
i hinu praktíska lífi; en þeir hafa
orðið að skifta um skoðun. Eftir
tveggja ára samkeppni hafa keppi-
nautar hans nú orðið að viðurkenna
yfirburði hans. Reyna þeir nú að
rannsaka aðferðir hans til þess að
geta stælt þær, lært af þeim.
Mr. Birdseye hefir fengist við
fiskverzlun mörg ár. Fyrir nokkr
um árum, þegar kunnir voru orðnir
yfirburðir hraðfrystingar yfir fyrri
aðferðir, þá fann hann upp hrað-
frystiaðferð og byggði verzlun sína
á henni. Þetta fyrirtæki hans mis
tókst. Hann fann þá upþ aðra að-
ferð, og vélar til þess að skera fisk-
inn til og korna honum umbúðir, og
setti á stað annað félag til þess að
notfæra vélar þessar.
Hér voru á ferðinni gagngerðar um
bætur. Menn héldu í upphafi að
aðferð hans væri óframkvæmanleg í
stórum stíl, eða ómöguleg með öllu.
En allt stóðst þetta próf reynslunn-
ar.
Fyrir nokkru skipaði Kanadastjórn
nefnd ntanna til þess að athuga
fiskveiðar landsmanna. Nefndin
mælti með aðferð Birdseye. Stjórn
in gekst síðan fyrir stofnun félags,
er félag Mr. Birdseye’s (The Gener-
al Seafords Corporation) tók þátt i.
Uin þessar mundir lýkur félagi1®
"The Nova Scotta Public Storagu
Terminals Ltd.,” við stórar fiskverk-
smiðjur í Halifax U. S. A. Félag
Mr. Birdseye setur þar upp hrað-
frystivélar sínar og áhöld sin, sem
notuð eru til að roðfletta fiskinn,
skera hann og tilreiða, og er með i
ráðum við útbúnað allan á frystivél-
uin og við allt er að-tilreiðslu fisks-
ins lýtur. 1
Nýlega sendi Ástralíustjórn menn
til Anteriku til þess að rannsaka
fiskiverzlun, Árangurinn af þeirri
ferð varð sá, að aöferð Mr. Birds-
eye og vélar hans verða framvegis
notaðar í Astralíu.
Arum saman hafa rnenn vitað að
gamla frystiaðferðin er ófullnægj-
andi. Umbætur Mr. Birdseye eru
byggðar á hraðfrystingunni. Eg ge'
ekki lýst þessari aðferð nákvæmlega
Magic Baking Powder
er a!t af áreiðanlegt Ú!
þess að baka sætabrauð,
kökur o. fl. Ekkert
álún er í því, og er það
ósvik'ð að öllu ieyti.
Verið viss um að fá það
og ekkert annað.
r
hér, en í niðurlagi greinar þessarar
skal ég gera stuttlega grein fyrir t
hverju umbætur hraðfrystingar eru
fólgnar.
-Framh.).
1»--'
Peningar
PENINGAR LÁNAÐIR
út á
BÚLÖND OG BÆJAREIGNIR
iLeitið upplýsin^a hjá agentum í ykkar
bygðarlagi eða á aðal skrifstofu félagsins —
í ^ánsdeildinni.
THE GREAT WEST LIFE ASSURANCE CO.,
LTD..
Winnipeg, Manitoba, Canada
STOCK
ALE
SHEÁS WINNIPEG BREWERY LIMITED