Heimskringla - 10.04.1929, Side 8
0
I. RLAÐSIÐA
HEiMSKRINGLA
WINNIPEG, 10. APRÍL. 1929
Fjær og nær.
Hér voru staddir um helgina, á
snöggri ferö dr. Gíslason og dr.
Thorgrímsen frá Grand Forks, N.
Dakota.
Kvenfélag Sambandssafnaðar efn-
ir til sumarmálasamkomu fimmtudag
inn 25. þ. m., í Sambandskirkjunni.
VerSur afar vel vandaö til skemti-
skrárinnar, og ágætar veitingar und-
irbúnar, eins og venjulegt er, þegar
kvenfélag Sambandssafnaðar efnír
til slíkrar samkomu. Verður nán-
ar auglýst i næs‘a blaði. —
Hingað komu á laugardagskveld-
ið var Mr. og Mrs. Jón Stefánsson
frá Pinej’, Man., úr langferð vestan
af Kyrrahafsströnd. Fóru þau
skömmu fyrir jól vestur og hafa far-
ið um alla Kyrrahafsströnd sunnan
frá Mexico og norður til Vancouv-
<er. Hafði þeim litist sérlega vel á
■sig allstaðar, bæði á hag íslendinga,
er á þessum slóðum búa, og þá auð-
vitað á land og loftslag. — Heim til
Piney fara þau hjón í kveld.
Jóns Sigurðssonar félagið heldur
'fund að heimili Mrs. Th. Borgfjörð,
832 Broadway, á föstudaginn kemur,
12. apríl, kl. 8 síðdegis.
GÁTA
Hvcr er sá.
Hann átti fína og fjarska dýra húfu,
sem fór svo vel, og þótti mesta skart;
og fyrir henni féllu menn á grúfu.
Þó fæstir þekktu manninn — telst
það vart.
Hann greip 'þá húfu til að ausa aur.
Nú er sem saurguð kolla hvolfi á
staur.
Helgi Jakobsson.
Staka
Heim með sína sæmdarskreið
sækja úr Ingólfsveri
og fara þétta flæmingsreið
fjórir á einni meri.
Sigurður Freeman frá Vogar, er
um sex mánaða skeið hefir dvalið
heima á íslandi, kom aftur til Win-
nipeg 3. þ. m. Með honum kom
systir hans, ungfrú Sigurbjörg Free-
man, af Akureyri, sem sest hér að.
Að heiman og af ferðinni sagði hann
allt hið bezta að frétta.
Forstöðunefnd íþróttafélagsins
Sleipnir, sem kosin var síðastliðinn
maí 1928 hefir gert sitt ítrasta til
þess að halda uppi æfingum og efla
félagið, en vegna áhugalevsi nieð-
lima og íslendinga yfir höfuð, sem
hefðu getað styrkt þennan féiagsskap,
var félagið nauðbygigt að leggja
niður starf sitt 1. des. 1928.
Föstudaginn 12. april kl. 8 e. h.
verður haldinn ár&fundur félag^ins
í G. T. húsinu. Gefst þá öllum
,þeim sem hafa áhuga í brjósti sér
til örfunar þessum félagsskap að
koma fram með þær.
Satnkoma í Árborg
Föstudaginn 12. apríl verður sam-
koma haldin í Arborg. Meðal ann-
ars, sem þar verður á skemtiskrá,
ætlar dr. Rögnv. ^étursson að flytja
þar erindi um Islandsferð og skýra
frá undirbúningi undif hátíðahöldin
1930. Séra Ragnar E. Kvaran
syngur islenzka söngva og lés upp.
WONDERLAND
Sérstakt aíhygli rnun það vekja, að
i myndinni sem sýnd er á Wonder-
land þessa viku. er aðal hlutverkið
leikið af Miss Elder, ungfrúnni, sem
horfði ekki í að leggja upp í loft-
hát yfir Atlanzhafið, þó sú ferð
heþpnaðist ekki. Hin myndin
"Lilac Time” sem sýnd verður fyrri
hluta næstu viku, er og annáluð af
öllum er séð hafa hana.
WALKER
Canada’s Finest Theatre
WEEK^nuír MON., APR. 1C
MatineeN WED. and SAT.
Farewell Enj?aeement
BRANSBY WILLIAMS
nnil hls I.ONDON COMI’ANV In
“A ROMANCE
OF THE ROAD”
A ivrioil Play of Lnve nnil Adven-
ture tn Bnalnnd’s CoaohtnB Days.
By A. B. Shtrland
Seats Now Selling
Kvs».: »2.00, SJl.no, .$1.00. 75c 50c
Wed, Sat. >1 at*.: $1.00, 75c 50c, 25c
Plua Tax
WALKER
p ° s p
■N THEATRE '
TH I IIS—FHI—SAT
THIS WEEK
BIO DOIBLE PltOÍÍHAM
“RILEY the COP”
AN ALL STAR CAST
—ALSO-
Tim McCoy in
Beyond the Sierras”
U
and
“TER RIRLE
MON—TUKS—WKD
Vkxt wkkk
JOHN GILBERT
GRETA GARBO
—IN—
“A WOMAN
OF AFFAIRS”
—With Sound—
—A PICTURE YOU CAN T
AFFORD TO MISS
COMKDY NKWS
Nýjar kvöldvökur
Vtgcfandi Þorst. M. JónsSon,
A’tureyri
Mér voru send nokkur' eintök af
þessum “Kvöldvökum” til sölu hér
vestra. Er þletta ársfjúrðsungsrit
í stóru postillu formi og tvídálkað-
ar blaðsíður. Árgangurinn alls um
200 bls. og frágangur mjög sæmi-
legur. Eg fékk allan síðasta ár-
gang (1928) innheftan i eina stóra
bók með húðþykkri kápu. Efni
ritsins er aðallega skemtilegar sög-
ur, þýddar og frumsamdar og marg-
ar þeirra ágætar, en einnig fræði-
greinar, lýsingar á löndum og borg
um og nokkur ljóð, sem veigur er í.
Einnig er ritið prýtt með allmörgum
myndum.
Þessar “Kvöldvökur” eru nú reynd
ar ekkert nýjar því þær hafa komið
út í 21 ár og eru þjóðkunnugt og
hugljúft rit á Islandi, en ég hygg
að þær hafi aldrei fyr verið boðfiar
fólki hér vestra. Askriftarverð hér
i Ameríku verður $1.75 árgangurinn
pós’gjald meðtalið. Gerið ntér að-
vart sem fyrst því ég hef mjög svo
takmarkaðan eintakafjölda. Borgun
fylgi pöntun.
M. Pcterson,
313 Horace Str.
Norwood, Manitoba, Canada.
Hús til leigu í bezta standi og á
bezta stað; við sporvagnslínur í all-
ar áttir bæjarins; 4 svefnrúm uppi o,g
eldhús með gasstó; 4 niðri með elda
range og gas plate; ódýr leiga
Heimskringla vísar á. t.f.n.
Dánarfregn
/
Ungfrú Hallfríður Sigurbjörg
Hunford varð bráðkvödd þann 25.
marz síðastl. á heimíli sínu að Mark-
erville, Alberta, 28 ára að aldri,
gerfileg kona sýnum, mjög vinsæl
og vel gefin eins og hún átti ætt
til. Hún var yngsta dóttir Jónasar
J. Hunford’s 6g konu hans, Margrét-
ar Bjarnadóttur frá Stafni í .Svartár-
dal, (dáin 15 marz 1924). — Var um
mörg ár bústýra föður síns og bræðra
sinna.
Þungur harmur er hér kveðinn að
umfangsmiklu heimili og ástríkri
fjölskyldu: aldurhnignum föður, sex
bræðrum og þremur systrum.
Á föstudaginn langa var hún bor-
in til grafar af bræðrunum sex, og
jarðsett í grafreit fjölskyldunnar að
viðstöddu fjölmenni vina og vanda-
manna.
P. H.
Leikurihn “Á útleið,” er leikfélag
Sambandssafnaðar Iék í gærkveldi
fyrir fullu húsi,' verður leikinn aftur
í kveld, og sökum hinnar miklu að-
sóknar endurtekinn næsta mánudag,
eins og sjá má á öðrum stað hér í
blaðinu. Mun mörgum hafa fundist
þetta allra áhrifamesti leikurinn, er
félagið hefir sýnt ennþá, og senni'
lega jafn bezt leikinn. Væntum
vér að eiga þar kollgátuna, að all-
mörgum hafi orðið leikurinn svo mik
ið umhugsunarefni að þeir fari og
horfi á hann aftur, enda heyrðist
það fullkomlega á ýmsum við leiks-
lok.
ROSE
A þessu hreyfimyndahúsi eru á-
gæ’ar myndir sýndar seinni part þess
arar viku og fyrri part næstu viku.
H.Ijóðfæraleikurinn er mjög skemti-
legur með þessum nýja hætti (in
sound). Og leikhúsið er yfirleitt
hið þægilegasta, ,góð sæti og loft-
ræsting hin fullkomnas’a.
Th. Borgford byggingameistari, er
dvalið hefir hér í mánaðartíma með
fjölskyldu sinni, hvarf aftttr á mánu
daginn vestur til Calgary þar sem
hann starfar enn að byggingttm eft-
ir að hafa lokið við Eatons bygging-
ttna, er hann og félagar hans byggðu.
Allir sem séð hafa Bransby Wil-
liams leika einu sinni eiga bágt með
að neita sér um að sjá hann aftur.
í næstu viku verður hann á Walker
leikhúsinu og leikur hlutverk sem ó-
iikt er flestum þeim er hann hefir
áður leikið. Leikurinn sent hann
sýnir þar heitir “A Romance of the
Road.” Með því að þetta verður í
síðasta sinni, sem Bransby Williams
leikur hér, viljum vér draga athygli
að þessum leik hans næstu vikuna á
Walker. Það er ekki líklegt að
tækifæri gefist i nokkur ár að sjá
hann hér aftur.
María Björnsson læknisfrú, frá
Árborg dvaldi hér í bænum síðast
liðna viku og fór heim til sin á máttu-
daginn var.
íslenzkusamkeppnin rnilli barna og
unglinga, er nýlega var haldin í G.
T. húsinu, að tilhlutun forseta Fróns-
deildarinnar í Winnipeg hr. B. E
Johnson og s’jórnarnefndarinnar
fór ágætlega frarn. Vegna rúmleys
is er ekki unnt að geta nánar um
hana nú, en verður gert i næsta
blaði og þá skýrt frá úrslitum.
Mrs. Roger Johnson, 878 Sherburn
str., varð aðfaranótt mánudagsins
var að ganga undir holskurð við
hastarlegri botnlatigabólgu. Hefir
henni heilsast eftir beztu vonum síð-
an. Mrs. Johnson liggur á almenna
sjúkrahúsinu hér í bæ.
Þriðjudaginn 2. apríl lézt að heim
ili sínu hér í bæ húsfrú Rósa Mar-
teinsdóttir Dalmann, ekkja Jónasar
Guðmundssonar Dalmann, er lézt
30. nóvember siðastliðinn. Jarðar-
förin fór fram á föstudaginn var frá
útfararstofu Bardals. Séra Rögnv.
Pétursson jarðsöng. Hin fram-
liðna var ættuð úr Mývatnssveit, og
fædd 25. ágúst 1859.
Söngkonan góðkunna ungfrú Rósa
M. Hermannsson, söng, með aðstoð
nngfrú Þorbjargar Bjarnason, isí
lenzka söngva eftir ýnis tónskáld.
fyrir hljómlistarnemendúr og gesti
Mary L. Robertson, á þriðjudags-
kveldið var. Var þeim framúc-
skarandi vel tekið a'f 'áheyretiduni.
Eins og atiglýst var hélt Stúdenta
íélagið veizlu á mánudagskveldið
þann 8.
Áðtir en sezt var að borðum flutti
séra Rúnólfttr Marteinsson borðbæn
Þegar niáltiðinni var lokið sagði
forseti félagsins, Mr. Sigurdson
nokkur orð. Mæltist hann til þess
að þeir sem nú væru að útskrifast
hættu ekki að starfa í félaginu.
Næst sungti stúdentar nokkra íslenzk
a og enska söngva. Þá voru lesin
stutt æfiágrip heiðursgestanna og
var það hin hezta skemtun. Miss
Backntan, Miss Bardal, Mr. Bildfel!
og Mr. Melsted sungu þá nokkra af
hinum gömlu stúdentafélagssöngv-
um, og var þeim tekið með miklum
fögnuði. Þar næst mælti Mr. Siggi
Sigmundsson f.yrir minni heiðurs-
gestanna en Mr. Clifford Hjaltalín
svaraði fyrir þeirra hönd. Báðum
tókst mjög vel. Þá voru sungin
nokkur lög, en að því loknu mælti
Mr. J. A. Biidfell fyrir minni kvenna
en Miss Aldís Thorlakson svaraði.
Ræðum þeirra var vel tekið. enda
voru þær mjög sköruglega fluttar.
Séra Rúnólfur Marteinsson sagði þá
nokkur orð. Hann kvaðst viss ttm
að Stúdentafélagið myndi halda á-
írani að starfa að málum islenzkra
stúdenta og sagðist vona að aldrei
andaði kalt úr þeirri átt til íslands
eðá þess sent íslenzkt væri. Var
þá staðið upp fr áborðum og þjóð-
söngurinn “O, Canada,” sungin að
skilnaði.
Um 90 manns sátu veizluna og
niunu allir hafa skemt sér ágætlega.
H. Th.
MACDONALD’S
EtneCui
Bezta tóbak fyrir þá sem
búa til sína eiKin vindlinga
S/SSf S/SSS/s "/'*//• S'sv,
Með hverjum tóbakspakka
ZIG-ZAG
Vindiinga pappír ókeypis
Skálclkonan, frú Laura Goodman
Salverson, flutti erindi sitt um “In-
fluence and Charm of Scandinavian
Letters” í fyrstu lútersku kirkju á
Victor stræti, miðvikudaginn 3. apr-
íl. Gerði hún í inngangi grein fyr-
ir mismunandi viðhorfi i norrænum
og suðrænum skáldskap, og tók sið-
an til dæmis samkvæmt fyrirsögn erí
indisins tvær “þrenningar’” norænna
skálda; Ibsen, Björnson og Lie, og
Selmu Lagerlöf, Hamsun og Bojer.
Var þetta langt og itarlegt erindi,
og þökkuðu áheyrendur fyrir með ein
huga lófataki. Frú S. K. Hall
söng norræna söngva með sinni ynd-
islegu rödd, með aðstoð manns síns.
Einnig söng flokkur blandaðra radda
undir stjórn Björgvins Guðmunds-
sonar A. R. C. M.
Isiand
Að gefnu tilefrri skal þess getið
að svar frá Hr. Hjálmari Gíslasyni
við grein hr. Arnljóts B. Olson í
síðasta “Lögbergi,” gat ekki orðið
tilbúin fyrir þetta blað, en mun birt
ast í næsta blaði. ■
Staka
Aursins hækka öldufjöll
orða smækkar mergur.
Velsæmd lækka vígaspjöll.
Vinum fækkar “Bergur.”
J. H. Húnfjörð.
* ^ -
Ti 5|
Þjóðlög íslendinga
Helzta tonvísindarit Þýzkalands
“Zeitschrift fur Musikwissenschaft’’
birti nýlega skýrslu eftir Jón Leifs
um þjóðlagasöfnun hans á íslandi
•
sumurin 1926 og 1926, ásamt þar að
lútandi rannsóknum.
Þjóðlög þau, sem Jón Leifs safnaði
síðastl. haust norðan lands og vestan,
þykja einnig sérlega merkileg. Dr.
Erich von Hornbostel, prófessor við
Berlínar háskólann og forstjóri hljóð
ritasafnsins, lét svo um rnælt, að lög
þesis væru “sannarlega frá tíundu
öld.”
Jón Leifs hefir verið beðinn að
rita um íslenzku lögin í hátíðarit,
sem Þjóðverjar ætla að gefa út að
ári afmælis Alþirtgis. (FB).
—----------x-----------
Laugardaginn 6. apríl, voru þau
Thomas Wylie og Steina Eyjólfson
bæði til heimilis í Winnipeg, gefin
satnan í hjónaband, af séra Rúnólfi
Marteinssyni, að 493 Lipton st.
Sökum þess hve mikið berst stöð-
ugt að blaðinu verður ýmislegt að
bíða lengur en skyldi og eru hlutað-
eigendur beðnir að taka á þolinmæð-
LEIKFJELAG SAMBANDSSAFNAÐAR
endurtekur leikinn
Á ÚTLEIÐ
MÁNUDAGINN 15. APRÍL
í samkomusal Sambandskirkju
Byrjar kl. 8.
^ Jimmy, May og Robert eru
að boröa brauð búið til úr
Robín Hood
FliOUR
ÁBYGGILEG PENINGA TRYGGING f HVERJUM POKA
«eeSSeOS0COS0OSCCC>0C0O5OSOðOSOCO0>SOO9OS<9009OS0OSC>eG«
WONDERLANQ
THEATRE
Continuous Daily 2—11 p.m. Sat. Show starts 1 p.m.
THLR—FRI—SAT., THIS WKKK
Richard D/X in
§
y >
“MORAN Ofthe MARINES
WÍTH HITH KLDKH — A l’aramount rioturc
COMKDY and ln.st chnpter of “THK AIYSTKRY RIDKR*’
MO\—TIJKS—WEDu AI'RIL 1T—Ui—17
COLLEEN MOORE '
IX HKR FIRST GREAT SUPKR-SPKtTAI$
LILAO TIME
| with Gary Cooper
KDCCCCCCCCCCOOOOOOOBOOOOOOCOOOOCCOCCCCOOOOOOOCGOOCOBCÍ'
\
I