Heimskringla - 21.08.1929, Side 7
WINNIPEG, 21. ÁGÚST, 1929
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSÍÐA
Þjóðræknisþingið 1929.
—Fundargerningur—
(Framhald)
Þing kom saman kl. 2 e. h. Fund-
argerð síðasta íundar lesin og sam-
þykkt meö bendingu um breytingu á
oröalagi vissrar frásagnar.
Meö því að þetta var á þriðja degi
frá þinigsetningu, fór nú fram stjórn-
arnefndarkosning fyrir næstkomandi
ár, er þannig lauk:
Fyrir forseta voru útnefndir Sig-
fús Halldórs frá Höfnum og séra
Jónas A. Sigurðsson. Hlaut séra
Jónas A. Sigurðsson kosningu.
Fyrir vara forseta voru útnefndir
Sigfús Halldórs frá Höfnum og séra
Ragnar E. Kvaran. Hinn fyrnefndi
afsakaði sig og var því séra Ragnar
E. Kvaran kosinn í einu hijóði.
Fyrir ritara voru útnefndir Stefán
Einarsson og dr. Rögnvaldur Péturs-
son. Afsakaði hinn . fyrnefndi sig
svo dr. Rögnvaldur Pétursson var end
urkosinn í einu hljóði.
Vararitari var endurkosinn i einu
hljóði séra Rúnólfur Marteinsson.
Fjármálaritari endurkosinn Halldór
S. Bardal.
Varafjármálaritari Stefán Einars-
son.
Féhirðir endurkosinn Árni Eggerts
son.
Varaféhirðir Bergþór E. Johnson.
Skjalavörður Olafur S. Thor-
geirsson.
Yfirskoðunarmaður reikninga fél-
agsins var kosinn Walter Jóhanns-
son.
Njú var aftur tekið fyrir álit
fræðslumála milliþinganefndarinnar
er frá var horfið er skýrsla Árna
Eggertssonar lögfræðings kom fyrir
þingið. Alitið var rætt lið fyrir
lið og var komið að 4. lið er því var
frestað. Var nú sá liður samþykkt-
ur, einnig S., 6., 7., 8., og 9. liður.
En viðvíkjandi 9. lið álitsins, er
fjaílað(i um skógræktarmálið, lajg*ði
Sigurgeir Sigvaldason til og Ari
Magnússon studdi, að 5 manna milli-
þinganefnd sé skipuð til að hafa það
mál með höndum. Var það sam-
þykkt. í nefndina voru þessir skip
aðir: Séra R. Marteinsson, B. E.
Johnson, séra R. E. Kvaran, séra
J- P. Sólmundsson, Sigfús Halldórs
frá Höfnum.
Heimferðarmálið var næsta mál á
dagskrá. Flutti formaður Heim-
fararnefndarinnar, J. J. Bildfell, all-
langd: mál um heimferðina 1930. Var
hann ásamt dr. R. Péturssyni nýkom-
inn úr ferð til íslands. Gerði hann
itarlega grein fyrir störfum nefndar-
mnar eins og þeim var þá komið og
sagði auk þess hinar beztu fréttir
heiman að af horfum málsins. Var
skýrsla hans, sem gefin var munn-
lega, en síðan hefir verið víða flutt
og birt, tekið af þinginu með lófa-
klappi.
B. B. Olson lagði til og Guðjón
Friðriksson studdi að formanni
Heimfararnefndarinnar sé þakkað af
þinginu fyrir hans góðu fréttir. Var
það samþykkt með því að þingheimur 1
stóð á fætur.
Ennfremur lagði Ásgeir Blöndahl
til og B. B. Olson studdi, að skýrsla
J. J. Bildfell sé viðtekin. samþykkt.
Undir nýjum málum benti J. J.
Bildfell á að tveir menn heima, þeir
Einar H. Kvaran og dr. Guðmundur
Finnbogason ætluðu að gefa út safn
aí úrvalsritum Vestur-Islenzkra rit-
höfunda og að þeir æsktu samvinnu
viö Þjóðræknisfélagið í þvi starfi.
Var stjórnarnefnd Þjóðræknisfél.
falið að kjósa nefnd manna hér til
þess að vinna að þessu máli með
þessum mönnum heima.
Forseti, séra R. E. Kvaran, til-
kynnti þinginu að hann hefði fengið
beiðni um að vísa á færann mann til
þess að þýða nútiðar skáldskap ísí-
lenzkan, á enska tungu. Hefir
virðulegt útgáfufélag á Englandi á-
kveðið að gefa út slíka bók á þessu
ári. Forseti kvaðst hafa bent á Mrs.
Jakobínu Jöhnson sem hefði orðið vel
við tilmælunum og myndi nú þessum
þýðingum lokið. Var þessari frétt
tekið með almennum fögnuði þing-
manna.
Fundi frestað til kl. 5 e. h.
Eftir þrjá-fjórðu stundar fund-
arhlé, tók þingið aftur til starfa kl.
5 eftir hádegi.
Fundargerð síðasta fundar lesin og
samþykkt.
Minntist Ásgeir I. Blöndahl á mál-
ið um þýðingar íslenzkra ljóða á
enska tungu, er forseti hafði minnst
á. Benti hann á, að sér fyndist
betra, að fleiri en einn ynnu að þess
um þýðingum. Kvað hann þýðingar
eftir Pál Bjarnason, Wynyard, til
dæmis eftirtektaverðar fyrir vand-
virkni.
Forseti kvaðst einungis hafa verið
beðinn að benda á eina manneskju,
er hefði þetta með höndum, og þætti
sér líklegt að útgefendur hefðu þeg-
ar gert samning við Mrs. J. John-
son.
Þá var álit bókasafnsnefndar lesið
upp af Þorsteini Gíslasyni, er svo
hljóðar:
Við, sem settir vorum i nefnd til
þess að athuga bókasafnsmál Þjóð-
ræknisfélagsins, viljum leyfa oss að
að þakka þeim vinum félagsins- sem
SHEA'S WINNIPEG BREU/ERY LIMITED
gefið hafa bækur til safnsins á ár-
inu. Mrs. Steinunn Lindal, Vic-
toria, B. C., sem gaf því um 175
eintök sem nú er komið til skjala-
varðar, og lestrarfélagið í Church-
bridge, í gegnum herra Magnús Hin-
riksson, bókasafn sitt. Þær bækur
eru nú hjá deildinni “Snæfell” og í
hennar vörzlum eins lengi og deildin
æskir þess, en þó eign aðalfélagsins.
Vér vonum að margir fleiri vinir
félagsins fylgi fordæmi þessara til-
greindu vina í framtíðinni.
Eins og sakir standa sjáum vér
ekki ráðlegt, að þetta safn, sem fél-
aigið nú á hér í bænum sé opnað til
útláns fyrir félaga á þessu ári. Það
eru enn tiltölulega fáar bækur i
safninu sem almenningur sækir eftir
til lesturs. I framtíðinni vonum vér
að safnið aukist svo að bókum, að
kringumstæður geri það mögulegt að
félagsmeðlimum sé gefinn kostur á að
fá bækur þess til láns.
H. S. Bardal
T. J. Gíslason
J. J. Húnfjörð.
Var álitið samþykkt.
Þá var lesið upp þingnefndarálitið
um löggildingu félagsins og laiga-
breytingar þær er stjórnarnefndin
lagði fyrir þingið. Urðu nokkrar
umræður um álitið og var því að síð-
ustu aftur vísað til nefndarinnar til
frekari athugunar.
Annar liður í áliti þingnefndar í
málinu um breytta tilhögun í starfi
embættismanna, er frestað var frá 4.
fundi, var því næst íhugaður. Fjall-
aði sá liður um kaup fjármálaritara.
Gerði J. P. Sólmundsson þá breyting-
artillögu og Guðjón Friðriksson
studdi, að í stað þess sem í þessum
lið álitsins standi, að fjármálaritara
skuli greiddir $150.00 á ári, skuli
koma, að stjórnarnefnd Þjóðræknis-
félagsins sé falið að greiða fjármála
ritara það sem hún skoði hæfilega
þóknun fyrir starfið. Samþykkt.
Fundi frestað til kl. 8.15 að
kveldi.
* * *
Þingið kom saman kl. 8.15 e. h. —
Fundargerð siðasta fundar lesin og
samþykkt.
Séra Jónas A. Sigurðsson las upp
álit það, um löggildingu og stjórnar-
skrárbreytingar, er visað var til
nefndarinnar á síSasta fundi, með
þeim breytingum, er meirihluta nefnd
armanna var samþykktur. Hljóðaði
þá álitið svo:
Lagabreytingar og lóggilding
Nefndin i þessum málum leggur til
að þingið samþykki eftirfylgjandi
lagabreytingar á grundvallarlögum
eða stjórnarskrá félagsins:
1. Að í staðinn fyrir Stjórnarskrá
komi Lög.
2. að við 13. grein laganna sé bætt:
(Hér tillaga stjórnarnefndar ó-
breytt. — Sjá framar í fundargerð-
inni.)
3. að 20. gr. sé breytt þanYiig: (Till.
stjórnarnefndar óbreyttý.
4. að 21. gr. sé breytt þannig: Till-
stjórnarn. óbreytt, nema að umboðs-
tala verði ekki 10 atkv. heldur 20
atkv.—
5. aö 27. gr., sem er ný. sé á þessa
leið: (Till. nefndar óbreytt).
6. að sú grein sem nú er 27. grein
verði 28. grein og við þá grein sé
bætt: (Till. stjórnarnefndar ó-
breytt).
7. að löggilding félagsins sé frestað
að þessu sinni.
Á þingi í Winnipeig,, 1. marz 1929
Jónas A. Signrðsson
Th. Guðmundson
Asgeir /,. Blöndahl
T. J. Gíslason
Bergthor E. Jolinson
H. S. Bardal.
Ásm. P. Jóhannsson las þá næst
upp og skýrði með nokkrum orðum
álit minni hlutans í nefndum málum,
er svo hljóðaði:
Minni hluta tillaga
1. Að þingið feli stjórnarnefnd-
inni að yfirfara grundvallarlögin
eins og þau eru eða kunna að verða
eftir þetta þing og enn á ný athugi
vandlega hvort ekki sé enn nauðsyn
á frekari lagfærinigum eða viðbætir,
áður en prentun á grundvallarlögun-
um sé framkvæmd.
2. Að umboðs . atkvæðaréttur
deilda, samanber 21. gr., falli úr.
A. P,- Jóhannsson.
Um þingftímann 1929
Á þjóðrækninnar þing mér brá
þar að sinna skrafi;
Klerkinn Ragnar Kvaran sá,
sem klett í ólguhafi.
Hann innstur sat í æðsta sess
með “augun til beggja handa;”
stýrði þingi býr og hress
huigdjarfur að vanda.
Þingið verður þarflegt mót
ef þrætur og aggið dvínar;
skáldin yrkja bragarbót
og bæta stökur sínar.
Andleg blása reginrok
ryk úr hverju máli;
þiðnar svo í þorralok
þrætur ísinn háli.
G. H. HjaltaUn.
Um þessi tvö þingnefndarálit urðu
talsverðar umræður.
Loks gerði Kristján Pálsson til-
lögu og Guðjón Friðriksson studdi,
að meirihluta álitið sé samþykkt.
Sigfús Halldórs frá Höfnum gerði
breytingartillögu og Ari Magnússon
studdi, að meirihluta álitið væri rætt
lið fyrir lið. Samþykkt.
Voru 1., 2., og 3. liðir santþykkt-
ir. Viðvíkjandi 4. lið igerði Sigfús
Halldórs frá Höfnum tillögu og Jón
Stefánsson studdi, að liðurinn sá
felldur. Var tillagan felld og 4. lið-
ur því samþykktur. 5. liður var
samþykktur, en 6 liður var felldur.
7. liður var samþykktur, nema við-
bótin við lagagreinina.
Um minnihluta álitið féll atkvæða-
greiðslan svo, að 1. lið'ur var sam-
þykktur. Annar liður komst ekki
að eftir úrskurði forseta.
Þegar hér var komið tók hinn ný-
kosni forseti, séra Jónas A. Sigurðs-
son við fundarstjórn. Var honum
heilsað er hann tók sætið með lófa-
klappi af þingheimi.
Þá var og lagt til að fráfarandi
forseta sé greitt þakklætisatkvæði
fyrir frámunalega vel unnið tveggja
ára forsetastarf. Samþykkt með
lófaklappi.
Forseti minntist nokkurra látinna
félaga á árinu. Reis þingheimur úr
sæti í samhyggðarskyni.
Séra Rúnólfur Marteinsson benti á
að sér fyndist viðeigandi að Þjóð-
ræknisfélagið gengist fyrir prentun
á fyrirlestri þeim, er séra J. P. Sól-
mundsson flutti á þinginu.
Séra R. E. Kvaran lagði til og
Friðrik Svéinsson studdi, að stjórnar-
nefndin reyni að sjá um að fyrirlest-
urinn komi fyrir ahrtenningssjónir.
Samlþyþkt.
Sigfús Halldórs frá Höfnum fór
nokkrum orðum um vandkvæðin á
því, að fá æskulýðinn til þess að lesa
íslenzkt mál. Hvað hann áhrif Þjr,-
félagsins enn allt of lítil í þá átt.
Æskunni yrði félagið að ná. Kirkju-
málaríg hvað hann stinga upp höfði
of títt í þjóðræknismálunum sem
öðrum málum Vestur-íslendinga. A-
leit hann íþróttir g söng einhlítasta
ráðið til að hylla æskuna. Gerði
hann að tillögu og Jón Stefánsson
studdi, að þingið fæli stjórn Þjóð-
ræknisfélagsins, að styðja að söng-
kennslu af ítrustu kröftum á árinu.
Samþykkt.
J. J. Bildfell talaði nokkur orð við-
víkjandi því, að beina huga íslenzkrar
æsku liér til Islands. Kvað hann
ýmsa vegi til þess. Eitt meðal ann-
ars væri, að fræða æskulýðinn um
Island með myndum.
Þá var lagt til og samþykkt, að
svara hinu bróðurlega skeyti frá
Swedish Can. League.
Deildinni “Brúin” var og þakkað
fyrir tilboðið að hafa næsta ársþing
í Selkirk, hvort sem föng yrðu á því
eða ekki.
Þegar hér var komið var hinn
setti ritari þingsins, Stefán Einars-
son, beðinn að lesa síðasta fundar-
gerning. Var hann samþykktur.
Hafði nú þingið staðið yfir í þrjá
daga og starfað bæði að degi og
kveldi, nema kveld það er deildin
“Frón” hélt hið ágæta mót sitt, er
sagt hefir verið frá áður. Var eft-
irtektavert hvað þingið var vel sótt,
mátti heita húsfyllir á hverjum fundi.
Hefir áhugi íslendinga víst aldrei
verið meiri fyrir málefnum Þjóð-
ræknisfélagsins, en á þessu síðasta
þingi, enda er starfssvið félagsins orð-
ið víðtækara en nokkurs annars ís
lenzks félags vestanhafs, bæði inn á
við og út á við.
Áður en þinginu var slitið og menn
tókust í hendur að skilnaði, voru
sungnir þjóðsöngvar ættjarðarinnar
og fóstrunnar og ríkisins.
ORKUGJAFINN MIKLI
Þegair þú ert þreyttur eSa taugaslappu*'
—þá hitaðu þér bolla af
Bíue Ribbon Tea
Enginn betri h'"essing er til né hollari.
INCORPORATED 2T? MAY 1670.
H.
B.
JAMAICA
og
DEMARA
ROMM
C.
Juilsoti’sT^
* ^Jamaica
Xuw
H. B. C.
ROMM
ÞJÓÐKUNNUGT
UM
VESTUR-KANADA
í MEIR
EN HUNDRAÐ
ÁR
Löggilt 1670
Hefir því rekið viðskifti í
259 ár
'iíhtítsmt’s íBair (En.
.Vertu viss um að hafa alltaf
nægar birgðir af
HE/TU VATNI
Fáðu þér
RAFMAGNS VATNS-HITARA
Vér víruin og setjum inn einn þeirra
Fullbúinn fyrir
AÐEINS QQ ÚT f HÖND
Afgangurinn gegn auðveldum skilmálum
Hotpoint Vatns-Hitari .$20.50 í peningum
Red Seal Vatns-Hitari .$19-00 í peningum
Brösun
að auki
ef þarf
WúuupeOHiidro,
55-59 tif PWNCESSSI
Sími
848 132
848 133
f PURITV
' FLOUR
iii
- ^ ■ m viStp \
More Bread and Betfer Bread
and Befter Pasf ty too. kV
USE IT IN ALL YOUR BAKING