Heimskringla - 04.12.1929, Síða 7

Heimskringla - 04.12.1929, Síða 7
WINNIPEG, 4. DES., 1929 HEIMSKRINGL A 7. BLAÐSIÐA Ernest Benn Játningar auðmannsins Engin mál eru nú eins mikiö rædd eins og þjóöfélagsmál ýmiskonar. Og þau eru ekki einungis rædd, það er barist um þau af meiri heift en nokk- ur önnur mál, ríkin skjálfa af átök- unum um þau. I opinberum umræö um um þessi mál hefir nú um langt skeiö boriö hvaö mest á málfærslu jafnaðarmanna, þótt ekki hafi flokkar þeirra oröiö ofan á nema á nokkur- Um stöðum og um stund. En ó- beinlinis hefir áhrifa þeirra gætt á ýmsa lund og i framkvæmdinni hafa ofist margvíslega saman hugmyndir °g störf þeirra, og svo andstæöinga þeirra í ýmsum flokkum. Oft og viöa ber minna á talsmönnum hins gamla skipulags, kapitalismans, en flutningsmönnum ýmiskonar sócialf- isma, sem oft eru bæði ákafari og snjallari málafylgjumenn, þótt í flokki binna séu margir ágætir starfsmenn. En nýlega hefir öflugur talsmaöur bapítalismans látið til sín heyra í Englandi og igert þaö svo að til er tekiö. En þaö er Ernest Benn, sem skrifað hefir “Játningar auömanns- ins” (The Confession of a Capital- tst). Fáar bækur, • sem fjalla um þessi mál frá “auðvaldsins” sjónar- tuiði hafa vakið eins mikla athygli Og hún og eins mikinn fögnuö þeirra, sem andstæðir eru jafnaðarstefnunni. En jafnaðarmenn láta sér fátt um finnast. Ernest Benn er bóka- og blaða-út- gefandi og sjálfur auömaöur allmik- 'b. Hann hefir i þjónustu sinni kring um 2000 manns og veltan í fyrirtækj um hans er um 400,000 pund á ári, cn tekjur hans eru taldar um 10,000 Pund (yfir 200 þús. kr.). En i Eng- landi er það 10,270 manns, sem talið er að hafi slíkar tekjur eöa hærri. Benn er fyrst og fremst kaupsýslumaður, en ekki rithöfundur og kveöst ekki gera kröfu til þess aö játninigar sínar seu hátt metnar bókmenntalega. En bann skrifar rösklega og hispurs- laust. Hitar miÖstöðvar vélin yðar vel? Þér nolið ef til vill ekki réttu kolategund- ina? Vér höfum beztu kolin sem þér þurfið. Parctic. ICEsFUEL CaLTa 439 PORTAGE AVE Ö¥o*//í Hi/dson* PHONE 42321 Bók hans er fyrst og fremst árás á jafnaðarstefnuna og í öðru lagi rökstuðning þess, hvers vegna hann álítur ag kapítalisminn sé bezta þjóö- skipulag, sem til sé og affarsælast fyrir menninguna. Hann segir að mikið af yfirborðshættinum og glund roðanum í meðferð þjóðfélagsmálanna sé af því sprottinn, að þeir sem mest skrifi um þau séu þeir, sem minnst vit hafi á þeim. Umræðurnar um þessi mál og upplýsing almennings er eingöngu í höndum ráðasmiðanna, teoretikaranna, en ekki framkvæmda- mannanna. Eg þekki ekkert dæmi til þess, segir hann, nema Ricardo, að maður með nokkura verulega reynslu í kaupgjaldsgreiðslu hafi lagt skerf í umræðurnar um kaupgjaldið og ég veit ekki til þess að nokkur maður, sem hefir miklar tekjur hafi lagt orð í belg þegar rætt var um “tekjurnar.” Hann segist þvi ætla að bjóða fram sjálfan siig “sem fórn á altari hins hagfræðilega sannleika” og segja hispurslaust frá sínum eig- in verkum og viðskiftum. Ennfremur segir han nað andúð ýmsra gegn kapítalismanum stafi af flysjungslegum óhófslifnaði hjá fá- mennum flokki svonefndra auðborg- ara, niönnum, sem séu sannnefndar landeyður og eigi ekkert skylt við allan þorra efnamanna, sem lifi per- sónulega hófsömu lifi í sífeldu starfi. Loks segir Benn að baráttan igegn jafnaðarstefnunni sé oftast nær háð ! mjög fávíslega. Jafnaðarstefnunni I verður aldrei eytt með því að vera sí- ! felt að vekja upp “rauða drauginn” I mönnum til ögrunar, eða með því að | slá á strengi -eiigingirninnar hjá þeim, sem af einhverri tilviljun hafa kom- ist meira i álnir en aðrir. Umræð- urnar eiga að vera hafnar yfir per- sónulegt tillit. Það skiftir þjóð- félagsheildina engu hvort þessi eða hinn auðmaðurinn heldur tekjum sín um. Það sem á veltur er það, hvort aðrir hafa gagn eða tjón af fyrir- tækjuni hans og tekjum hans. En það er einmitt eitt aðalatriði hjá Benn að sýna fram á það, að þjóðfélagið hafi meira igagn af tekj- um hans, eins og þær eru, heldur en af þvi að dreifa þeim milli svo og svo margra annara og styðst hann þar m. a. við italskan hagfræðing, Pareto. Því mínar tekjur, segir hann, eru aðeins tákn annara rniklu meiri tekna, sem svo eða svo mikill hluti samborgara minna nýtur vegna fyrirtækja minna. 400 þúsund pund in sem ég hef í veltunni eru miklu merkilegri upphæð heldur en 10 þús. pundin, sem ég er talinn hafa í tekjur af þessari veltu, en eru í rauninni, ekki nema að nokkuru leyti persónu- legar tekjur minar. Ef menn vildu hætta að stara eingöngu á þessar i- mynduðu árstekjur, en beina athyigli sinu í þess stað að veltufénu, þá myndi annað meira ávinnast. Það myndi sameiginlegur áhugi og sam- eiginleg vinna geta aukið veltuna og þar með tekjur allra þeirra, sem við hana eru riðnir. Nú á timum fer ASK FOR DryGincer Ale OR SODA Brewers Of country'club' BEER GOLDEN GLOW ALE BANQUET ALE XXX STOUT BR E W E RV OSBORNE&MULVEY-WINNIPEG PHONES 41III 42304 5 6 . PROMPT.DELIVERV TO PERMIT HOLDERS allt of mikið í súginn af vinnu, hugs- un og fjármunum vegna fánýtra stéttafélaga (hjá verkamönnum og vinnuveitendum), kaupgjaldsþjarks og verkfalla — allt af því að menn halda, að þeir geti ráðskast með tekjur einstaklinganna, án tillits til afkomu heildarinnar eða veltu fyrir- tækisins. Eitt dæmi sýnir það, hversu þetta er orðið rangskreitt. Húsnæðismálin eru eitt helzta vandr- æðamál enskra verkamanna. En fyrir það fé, sem þeir hafa eytt í stéttafélög sin á nokkrum undanförn- um árum, hefðu þeir getað ráðið fram úr húsnæðisvandræðunum á þann ein- falda hátt, að þeir hefðu getað reist ný hús handa öllum húsnæðislausum verkamönnum. Benn segist hafa bjargfasta trú á framtaki einstaklingsins. Eg hef, segir hann, þrátt fyrir margra ára leit, ekki getað fundið það, að mann- kynið hafi nokkurntíma öðlast nokk urn efnalegan hagnað öðruvísi en fyrir framtak einstaklinganna. Það er því villukenning að halda að “póli- tík” skapi aiíð. Þar að auki hefir þorri manna skakkar huigmyndir um það, hvað auður er. Það er Karli Marx að kenna, að sú hugmynd hefir orðið alþýðueign, að auður sé vinna, seni beitt er á jörðina, vinna handar- innar Marx gekk svo vel frá þessu að flestir trúðu þvi. En fyrir 30 árum kom Sidney Webb kenningu Marx í samræmi við sinn tima með þeirri annáluðu tilslökun, að vinnan gæti eins verið andieg eins og líkam- leg, m. ö. o., auður er jörðin, að viðbættri vinnu handar eða heila. En eftir sem áður halda menn áfram að kíta um þennan undarlega afgang, sem ‘“auðvaldsskipulagið” láti stela frá réttmætum eigendum hans, þeim; sem háfa “vinnukraftinn.” Ef það væri rétt að auður væri jörð og vinna, mætti með sama rétti segja að músík væri kattaþarmar og hrosshár eða að bókmenntir væru pappír og blek. John.Stuart Mill, sem hér um bil enginn les, ef til vill af því að hann prédikar ekki byltingu, segir að auður sé “allir þægilegir og nyt- samir hlutir, sem hægt er að hafa til viðskifta.” Þetta er bezta skýrgrein ing auðsins, sem enn hefir fengist. Auður eru skifti. Það skiftir engu máli hvað þjóðskipulag okkar heitir, ef samskiftin milli borgaranna eru í lagi. Við getum ekki starfað og verið til nema aðrir menn vilji það líka. Það igildir einu hversu mikið einhver maður vinnur, ef hann getur ekki sannfært einhverja aðra um það, að þeir hafi líka hagnað af þessari vinnu. Það er til dæmis þýðingar- lítið að gefa út skáldsögur ef eng- inn fæst til þess að lesa þær. En hæfileikar manna geta verið nokkuð misjafnir til að koma á þess- um skiftum og hagnýta sér þau, en að jafnaði gera menn of mikið úr hættunni af þessu og úr gróðanum. Benn segist taka sem svarar 3 d. af hverju pundi og muni vera öldungis ómögulegt að reka slík fyrirtæki fyrir lægri ómakslaun. Það geti hvorki ríki né félög (Benn er andstæður mjög stórum félagssamsteypum engu síður en ríkisrekstri). M’eginskilyrði heilbrigfös viðskiftalífs eru, segir hann: 1. mikil framleiðsla, 2. hátt kaup, 3. mikill gróði, 4. lágt verð. Og þetta igetur allt farið saman, segir hann, þegar rétt er á haldið. Þetta gera beztu atvinnurekendur Ameriku, sem Benn er mjög hrifinn af, enda segir hann að Ameríka og ameriskur hugsunarháttur sé langt á undan Evr- ópu í þessum efnum. Sjálfur borg- ar Benn gott kaup og greiðir starfs- fólki sinu þar að auki ágóðaþóknun og gefur því kost á því, að gerast meðeigendur fyrirtækjanna. Starfs- tíminn er stuttur hjá honum, en rik áherzla lögð á stundvísi, hann lætur aðeins vinna 37)4 stund á viku, ekk- ert á laugardögum og sunnudögum Loks eru svo, segir Benn, skatta- birgðarnar til ríkisins að sliga menn, fjárlóg rikisins að verða flóknari og flóknari, afskifti þess af einstakling- um meiri og hæpnari — auðsuppspretí ur þióðfélagsins eru að verða æ ó- frjósamari i dauðum höndum ríkis- valdsins Þess vegna er skvnsamlegt auðvald einstaklinganna betra. En það á að skilja köllun timans. Það á að geta aukið framieiðsluna jafn- framt þvi sem það hækkar kaupið og styttir vinnutímann. Það á fyrst og fremst að örfa samskiftin. —Þetta eru játningar auðmannsins.—Lögrétta. -------------x—------ Frá Islandi Fréttabréf úr Suður-Þingeyjarsýslu Ur Suður-Þingeyjarsýslu er skrif- að: Veðráttan hér norður frá hefir verið þannig í sumar: I júlí voru góð- ir þurkar og náðu menn töðu sinni mestallri með góðri verkun — eða þvi, sem menn voru búnir að losa, en í byrjun ágústmánaðar gekk í ó- þurka, sem héldust að heita mátti sumarið út. Þó voru ekki miklar úr komur vanalega. Samt, var stór- viðri og vatnsveður 24. ágúst og í þeirri viku rigndi mikið í sumuni sveitum. Þtirkflæsur komu samt annað veifið, svo að menn hirtu heý sín áður en þau hröktust mikið, en heldur munu þau hafa verið slælega þurr hjá sumum. Töðufengur manna hér mun hafa verið með meira móti og útheyskapur vel í meöallagi að vöxtum. Gamlar heybirgðir voru taldar miklar í héraðinu í vor, svo að bændur munu vera all vel birgir af heyjum undir veturinn. Allmarg- ir bændur hafa selt hey til Húsavik- ur í nokkuð stórum stíl. Mannslát hafa orðið hér mörg i sumar, og var svo um tíma að heita mátti að hver jarðarförin færi fram á fætur annari.— í sumar var unnið að því að leggja nýja brú yfir Skjálfandafljót á sama stað og gamla brúin var áður (eða er ennþá, en hún er nú nær ónýt).— Mikiu seinna var byrjað á þessu verki en ráð var fyrir gert eða ekki fyrr en i ágúst. Brúarsmíðið sjálft gekk sæmilega vel, en vafasamt er talið, þeigar þetta er skrifað, hvort brúin kemst á í haust. Verður hún mikið mannyirki og samgöngubót. Sam- kvæmt upplýsingum frá vegamála- stjóra verður brúin ekki fullgerð fyr en næsta vor). Rétt hjá brúnni og Goðafossi er Sigurður Lúther Vigfússon að byggja nýbýli. Verður það að sumu leyti greiðasölu- og gisti-hús, því að ferða mannastraumur er mikill þarna um veginn og mun að líkindum ekki minka í framtíðinni. í sumar keypti Þórir Steinþórsson í Álftagerði vélbát, og hefir bátur- inn verið í förum á Mývatni í sumar. Hefir hann flutt vörur til þeirra, sem fjær búa við vatnið. Fá þeir vör- urnar á bifreið frá Skútustöðum og þaðan eru þær svo fluttar á bátnum. Einnig liafa ferðamenn tekið sér far með honum til hinna mörgu einkenni- legu og fögru staða við vatnið. Geta þeir komið víðar við og eytt þó minni tíma, heldur en ef þeir hefðu þurft að notast við árbát. Nýr viti var reistur í sumar á Tjarnesi. Stendur hann á svonefndum bratta, sem er rétt hjá bænum Valadal. — Alþýðublaðið. Rússar ætluðu tvívegis að ráðast á Svía 1914 I seinasta hefti af sænska tímarit- inu “Vor Flotta,” er grein eftir fyr- verandi rússneskan flotaforingja og segir hann þar frá því, að flotamála- ráðuneytið rússneska hafi tvivegis ætl að að senda Eystrasaltsflotann á hendur Svíum árið 1914. En her- stjórnin í landi kom í veg fyrir þetta í bæði skiftin. Hinn 8. ágúst 1914, rétt eftir að stríðið skall á, kom fyrirskipun frá von Essen yfirforingja Eystrasalts- flotans, um það, að sex tundurspill- ar skyldu fara til Stokkhólms, skjóta á borgina og ónýta vitann í skerja- garðinum utan við borgina. Enn- fremur áttu þeir að leggja þar tund- urdufi. Tundurspillarnir lögðu á stað, en aðfaranótt 10. ágúst fengu þeir loftskeyti frá von Essen um það, að þessurn fyrirætlunum skyldi frest- að og 11. ágúst voru skipin kölluð heim aftur. I seinasta skiftið var allur Eystra- saltsfloti Rússa sendur á stað frá Re- val. Það var aðfaranótt 7. sept. Hafðóflotinn skipun um það frá von Essen, að ráðast á sænska flotann. Óttaði'sf Essen að Svíar væri þá í þann veginn að ganga í lið með Þjóðverjum. — Þegar flotarnir mætt ust átti rússneski flotinn að varpa kveðju á þann sænska, og ef Svíar svöruðu þá ekki undir eins, áttu Rúss ar að hefja skothríð. Nicolaj stór- fursti kom í veg fyrir þetta. —Undir eins og hann frétti um fyrirætlunina, símaði hann til von Essen og fyrir- bauð þessa herferð.—Mbl. Mikill afli. Frá því 14. janúar S- vetur, hefir línuveiðarinn “Fróði’*" fengið 3300 sk. af fiski. Er þaö meiri afli en dæmi eru til á línuveiö- ara á sama tíma. —Norðlingur. • Nýja skipið, sem Eimskipafélagið er að láta byggja á að 'heita Dettifoss. ÞaS. verður á stærð við Brúarfoss. MUSIC Ideal Xmas Gift PORTABLE VICTROLA $35.00 - $1.50 Weekly ORTHOPHONIC $95.00 - $1.G0 Weekly þér sem notið TIMBUR KA UPIÐ AF The Empire Sash & Door Co., Ltd. Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356 Skrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ANÆGJA. CAPITAL COAL CO., LTD. STÓRSALAR OG SMÁSALAR 210 Curry Bldg., móti Pósthúsinu Sérstakt kolaverð fyrir hátíðarnar Koppers Kók $15.50 Foot Hills Lump 13.25 McLeod Lump 13.25 Elgin Lump 12.00 Elgin Nut 8.50 Dominion Lump 7.00 Öll vestan kol geymum vér í luktum skúrum, svq snjór og bleyta kemst ekki að þeim Capital Coal Co. Ltd. 24 512 210 Curry Building, móti Pósthúsinu ----------- SÍMAR ---------------- 24151 HMMB

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.