Heimskringla - 11.12.1929, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 11. DES., 1929
HEINISKRINGLA
3. BLAÐSÍÐA
Sir Arthur Conan Doyle
••••og fyrirlestrar hans í Kaupmanna-...,
Ihöfn
Conan Doyle var fyrir nokkru í
Kaupmannahöfn, "þar sem hann hélt
nokkra fyrirlestra um andatrú og
fyrirbriggi. A fyrsta fyrirlestrinum
■voru hátt á annaö þúsund manna viö-
staddir.
Hann hyrjaöi fyrirlestra sína meö
þvi aö skýra frá því, aö spiritisminn
væri svo föst sannfæring sín, aS ekk-
eft gæti lengur raskaö henni. — Hann
mintist á reynslu sina, visindalega
menntun o.g langa æfingu í aö rann-
saka þesskonar hluti. Hann benti
1 þessu sambandi á, aö hann væri ekki
lítill leyhilögreglumaöur (sbr. Sher-
lock Holmes).
l'ara hér á eftir brot úr fyrsta fyr-
irlestrinum :
Sannfœring nm annað líf:
—'Þaö var lengi, sem ég lagði
engan trúnað á spiritismann, en þó
leið aö því, aö ég sannfærðist um
sannleiksgildi hans. Eg veit um 70
háskólakennara við viðurkennda há-
skóla, sem hafa haft kjark til að
viðurkenna sannleikann, og mér þykir
leitt að segja ykkur Noröurlanda-
húum það, aö aðeins einn skandinav-
iskur prófessor er meöal þeirra. Þaö.
var prófessor Haraldur Níelsson í
Reykjavík.
Ahrif stríSsins á andahyggju
—Þegar stríöiö skall á, urðu fleiri '
1>1 að veita spíritismanum athygli.
Þúsundir manna létust á víg’vellinum.
Þetta voru menn í blóma lífsins. Þeir
attu fjölmarga ástvini, sem syrgöu
þ)á, og höföu hug á, ef mögulegt væri
að komast i sámband við þá. Þannig
var það með mig. Eg missti son
niinn, bróður minn, báða mága mína,
°g tvo náfrændur. Hvert voru þeir
farnir? Lifðu þeir einhversstaöar,
eða voru þeir horfnir'? Þá var þaö j
ég uppgötvaði að borðdans.högg og
"tal miöla voru bendingar og boð-1
skapur til okkar. Hvernig áttu fram-1
liðnir að gefa okkur mehki ööruvísi j
■en að setja þau fram fyrir efnisbundna j
skynjan okkar. Þeir, sem ekki höföu
Sfefið þessu gaum, voru likir fólki,
^em heyrir símann hringja, en hefii
ekki rænu á að taka heyrnartólið til
að hlusta. Það var eftir að ég hafði
fengið persónulegar sannanir fyrir til-
veru framliðinna og sambandi þeirra
viÖ okkar heim, aö ég ásamt konu
minni ákvað að helga lif mitt sál-
vænum rannsóknum, og til að útbreiöa
1)a»n boðskap, sem þeim rannsóknum
fylgdi.
Sannanir fyrir framhaldslífi
■—Kona ein. sem ég þekkti í Lund-
Hrá GRÁVARA Keypt
Vér kaupum grávöru sem hér segir:
RED FOX »00.00 . (5LF .»51.00
J,INK .»85.00 | HACCOOJi »20.00
'‘'NX .»75.00 SAFAl.A »8S.OO
SEND of prices TO
S- FIRTKO—426 Penn. Ave.
ltl*l»,irKh. Penna. U. S. nf Amerlen
únum, haföi misst son sinn í stríðinu.
Hún náöi sambandi viö hann með
hjálp hins ágæta miðils frú Osborne
Leonard. Þegar hún hafði talaö
nokkrum sinnum við hann, spurði hún
hann einu sinni, hvort hann gæti gef-
ið henni nokkra sönnun fvrir því,
að hann Iifði í raun og veru í öðrum
heimi. Hann sagði henni þá frá
því, að hann hefði nvlega verið að
hjálpa vini sínum, sem hún þekkti
lika, yfir um. Hann hafði verið á
flugi yfir óvinahersvæði, og hefði
hann verið skotinn niður. Sama
dag spurðist frúin fyrir hjá hermála-
ráðuneytinu, hvort hans hefði verið
saknaö, en svo var ekki. En daginn
eftir kom tilkynning um það, að hans
_væri saknað. Benti hún þá á stað-
inn sem sonur hennar hafði sagt
henni frá, og fannst hann þar nokkr-
um vikum seinna.
Mófiir Conan Doyle
—Eg vil gjarnan segja frá eigin
reynzlu minni. Eg var á fundi með
miðli einum frá Toledo. Sá ég þá
fyrst lýsandi hring, sem líktist helgi-
baug. Síðan kom í ljós inni í hon-
um andlit móður minnar. Eg hefi
aldrei séð hana greinilegar. Hún
var að öllu leyti eins og um það leyti
sem hún dó. — Þetta var engin skyn-
villa, því að kona min og frú Gowan
þekktu hana líka.
Talmiðlar
—Um talmiðla hefir verið rætt mik-
ið. Sumir halda því fram, að þeir
búktali. Það er ekki trúlegt, allra
sízt fyrir þá, sem hafa heyrt þrjá
framliðna tala í einu, við þrjá menn
á miðilsfundi, en miðillinn var ekki
nema einn. — Allir viðstaddir voru
kunningjar og of einlægir spíritistar
til að vilja reyna hið minnsta til að
falsa.
Andinn, sem talaði kínversku
—Eg skal segja ykkur söguna af
dr. Raymond. Han var kennari i
kinversku við háskólann í Oxford.
Hann var einn dag á miðilsfundi.
Heyrði hann þá einn andann tala
kínversku á gamalli daúðri mállýsku.
Dr. Raymond skýrði frá því, að hann
væri að þýða kínverskt kvæði, sem
hann ætti dálítið öröugt með. And-
inn bað hann að hafa yfir . fyrstu
hendinguna i kvæðinu, og gerði dr.
Raymond það. Hafði þá andinn yf-
ir allt kvæðið og snéri því á nútíma
kínversku. Eftir það átti dr. Ray-
mond ekki erfitt með að þýða kvæð-
ið.
Ilu gsanaflu t ni ngttr
—Aðalrök andstæðinga spíritism-
ans eru þau, að í flestum tilfellum
séu fyrirbrigðin byggð á hugsana-
flutningi. Þetta getur að vísu átt
sér staö, en ekki alstaðar, að minnsta
kosti ekki við þá sögu, sem ég skal
nú segja. — Maður nokkur í Mel-
bourne varð fyrir þeirri sorg að
niissa tvo efnilega syni sína í skip-
skaða. Nokkru síðar náði hann
sambandi við þá. — Bað þá annar
þeirra hann að ganga afsiðis. Hann
sagði honum frá því, og tók honum
TIL ÍSLANDS 1930
Símatilkynning er nýkomin frá aðalskrifstofu Canadian
Pacific í Montreal að hið ágæta
fí
S S MELITA
tt
(15,200 TONN)
hafi verið valið til þess að flytja þá er fara til íslands að
ári á vegum hinnar opinberú hátíðarnefndar íslendinga
Siglt Frá Montreal kl. 10 f.h. 11. Júní
Nefnd yðar, er þessu hefir nú fengið ráðstafað vill brýna
íyrir yður, að—
Sérstök lest er fengin frá Winnipeg til Montreal.
Sérstakar skemtanir verða um borð á lest og skipi.
Svo margir hafa nú tryggt sér far með niðurborgunum, að
®nginn efi er á því að ferðin verður hin veglegasta.
Sérstök vildarkjör hafa fengist meðan dvalið er í Reykja-
vík—$52.80 í 14 daga að meðtöldu fæði og húsnæði.
Kulltrúi nefndar yðar, sem nú er staddur í Reykjavík, er
að semja um aukaferðir um landið fyrir heimfarendur að
Jokinni hátíðinni.
Eftir kaupum á farbréfum, upplýsingum og öllu aðlútandi
ferðinni snúi menn sér til—
W. C. Ca"sey, General Agent, Can. Pac. Steamships.
R. G. McNeillie, General Passenger Agent,
Canadian Pacific Railway, eða
J. J. Bildfell, formanns Heimfararnefndarinnar,
708 Standard Bank Bldg., Winnipeg.
Canadian Pacific
Sama AtlætiS — Canadian Pacific — Á Sjó og Landi
vara fyrir að segja mömmu sinni
frá því, að bróðir sinn hefði verið
étinn af stórum fiski. — Var það
hákarl? spurði faðir hans. — Já, það j
var ekki ólíkt því, en það var ekki j
venjulegur hákarl, svaraði drengur- j
inn. Skömmu síðar veiddist óvenju- |
leg tegund hákarls þar í nánd, og
fundust í honum leifar drengsins.
Hér gat ekki verið um hugsanaflutn-
in’g að ræða, nema frá hákarlinum.
Conan Doyle sýndi við þetla tæki-
færi margár myndir af framliðnum,
sem teknar voru eftir dauðann. Gat
þar að líta myndir af honum sjálfum
ásamt syni hans, konu hans ásamt
ástvinum hennar og marga fleiri.
Hann lauk máli sínu á þá leið, að
hann byggist ekki við að hafa sann-
fært fólks til fulls, eða “umvent” því,
en hann kvaðst vona, að hami|hefði
gefið því eitthvað að hugsa um.
—Lesb. Mbl.
Á ferðalagi
Eftir séra Sigurð Einarsson
“Ef inni er þröngt tak linakk þinn
og Itcst
og hleyptu á burt tutdir loftsins
þök.
Hýstu aldrci þittn 'hartn, það er bezt
að hcitnan og út cf þú bcrst í vök.”
—Einar Benediktsson.
Klukkan er ssx árdegis. Eg stend
á torginu fyrir framan járnbrautar-
stöðina. Hún er æruverðug og sót-
ug eins og járnbrautarstöð á að vera.
Og full af úrillu og geðvondu fólki,
taugaæstu, órólegu ferðafólki, sem
er ekki búið að jafna sig eftir þá geð-
raun, að vera rifið upp klukkan 5.30.
Eg er í yndislegu skapi. Munurinn
á mér og þesum mönnum liggur í,
að þeir eru allir að fara til einhvers
ákveðins staðar, sem þeir þurfa að
hafa náð fyrir ákveðinn tíma. Það
er vitfirring. Allt það, sem þeim
finnst óþægilegt í ferðalögum, er mér
unaður. Eg er ekki að fara neitt
sérstakt að því leyti, að mér er alveg
sama hvar ég verð á morgun um þetta
leyti, Iiggur ekkert á.
Menn sætta sig við lestina, tollskoð-
unina, vegbréfsóþægindin, þvætting-
inn, hávaðann, tafirnar, koffortaburð-
inn, af því að það er böl, er ekki
verður kornist hjá, ef þeir eiga að ná
ákvörðunarstað sínum. — Eg nýt
þessa alls, en ákvörðunarstaðir mín-
ir hafa einatt orðið mér til vonbrigða.
En það er sjálfum mér að kenna. Eg
hefi trúað ferðamannabókunum, reitt
mig á Bennett og Cook og mannkyns-
söguna sem mér var kennd. Eg er
löngu hættur öllu sliku. Klukkan er
sex og ég er að leggja á stað í ferða-
lag, sem verður eins langt og teygt
verður úr síðasta skilding mínum.
Eg er einsamall. Það kemur eng-
inn og segir við mig "góða ferð,” og
“manstu nú hvort þú hefir tannbursta
með,” og “þú verður að skrifa
fljótt.” Enginn hefir hjálpað mér til
að láta niöur i ferðatöskuna. Eigi
að síður er allt í röð og reglu, og ég
kominn á stöðina fullum hálftíma áð-
ur en lestin fer. Eg hefi 15 minútur
til þess að yfirvega hvers ég skuli
neyta og 10 mínútur til þess að neyta
þess. Og í þesar 15 minútur er
heilinn i mér fullur af iliíi og angan
og göfugu bragði. Eg afræð að fá i
mér ofurlítið stykki af hvítu, mjúku !
brauði, bíta af kaldri gæsasteik og
glas af daufu víni. Og nú er ég
fær í allan sjó, þangað til “Mitrópa” j
tekur að sjá fyrir líkamlegri vellíðan ■
minni.
Eg fer niður á stéttina, þar sem j
lestin bíður stynjandi í tengslum. En
það er of snenuut að fara inn. Eg
geng um á gljáandi asfaltinu og nýt
þess að vera til, teygi i vitund minni
hvert augnablik eins og lopa. Eg er
nýrakaður og ég finn snertinguna af
tárhreinum nærfötum um allan líkam-
ann eins o,g svala blessun. Svo fer
ég að leita mér að sæti. Það má
ekki vera í enda vagns, ekki yfir
möndli, ekki of framarlega í lestinni.
Það á að vera gluggasæti og horfa
til þeirra áttar, sem ekið er í, borð
undir glugganum og eitthvað til að
styðja fótunum á. Slík sæti má
kaupa sér með sérstökum farmiðum.
En það er að svifta sig þeirri
ánægju að finna þau sjálfur, og geri
ég það því aldrei. Þá er að koma
sér fyrir, láta pípuna á borðið, tó-
■bakið, pípuhreinsarann, eldspíturnar,
hylki með fimm vindlum og eina
öskju af vindlingum, þrjú til fjögur
stór morgunblöð, láta feröatöskuna
upp í netið, helzt þannig að hún falli
ekki í manns eigið höfuð, ef hún
skyldi detta; hengja frakkann sinn á
snaga, tæma allt verðmæti úr vösum
hans, svo því verði ekki stolið meðan
verið er að borða, setja upp svarta
alpahúfu og þunna þráðarvetlinga
á hendurnar. Það er vegna þess,
að á messing húnunum á lestinni er
lag af gömlum, þvölum svita, sóti og
spansgrænu. Þetta er mikið og
^andasamt verk, og nú sezt ég niður
til að njóta stundvísi minnar og eig-
in 'öryggis. Allt er í lagi, vegabréf,
farmiði, farangur. Og nautnin verð-
ur innilegri við það að sjá asann og
gauraganginn, heyra ópin og þvaðrið
í hinum. Nú er dyrunum Iokað og
lestin tekur þjösnalegan hnykk. Feit-
ur kaupsýslumaður kemur æðandi
með skjalatösku sem hann veifar í
ákafa yfir höfuð sér. Hann verður
eftir. Yndislegt! Mátulegt handa
slóðum og rúmlötum mönnum! —
Og svo á stað ! Húrra ! Það urgar
í teinunum. Loftið fyllist af suðu,
verður höfugt og lykt af vörtnu stáli,
áburðarolíu og eim. Það ymur í
eirþráðunum meðfrani brautinni og
símastaurarnir þjóta framhjá með
hásu hvissi. Hraðatilfinningin seytl-
ar upp í gagnum fæturna, smeygir sér
uppeftir skrokknum, fer með kulda-
kitli upp í hársrætur. Eg lít snöggv
ast út, jörðin æðir fram hjá, hrað-
ast hjá lestinni. hægar eftir því sem
lengra dregur frá. Veröldin er orð-
in að skopparakringlu, sem snýst um
miðdepil langt, langt í burtu og þeyt-
ir lestinni á rönd sér.
Húskofi kemur þjótandi í sjónmál
og flevgist fram hjá. Maður stend-
ur við vegarslá. Eftir augnablik er
hann ekki lengur til. — Agætt. Eg
þarf þá ekki að eyða framtíðinni i
áhyggjum um velferð hans. Ný hús,
nýir menn, ný örlög glampa fram hjá
eins og stjörnuhröp. Eg fer að lesa
hlöðin, fyrst stjórnmálin, þá atvinnu-
lífið, þá leikhús og bókmenntir. Og
tíminn líður í yndislegri vímu og vit-
undin þenst út, nær “vítt of veröld
hverja.” — Stundarkorn er ég í Par-
ís og þjarka við Briand um' herskatta
greiðslur. Og röksemdir mínar
fljúga i gegnum hausinn á honum
eins og glóandi teinar, —þyrla honum
í óvit, og Þjóðverjar losna við her-
skattinn. Stundarkorn segi ég Her-
mann Kesten frá því, hvernig æskti-
lýð nútímans sé varið,, hinnni rót-
lausu kynslóð, sem ég elska, og hann
rífur handritið að Ein Ausschweif-
ender Mensch, í tætlur og lofar upp á
æru og trú að snerta aldrei á penna
framar. Ef til vill hefi ég sofið.—
Nú er hringt til miðdegisverðar.
Eg fer inn í borðsalinn, stóran vagn,
með breiðum, fáguðum rúðum. Mér
er alveg sama hvað ég borða, ég er
fóstraður i sveit á Islandi og mat-
sölustöðum fyrir fátæklinga í Reykja-
vík. En ég kann að velja mér drykk
eftir stað og stund. Það er mikil
list. Eg hefi séð fólk gráta af
greinju yfir því, að það fékk ekki
“Rámlösa vatten” suður í Rínardal.
Eg hefi séð menn drekka danskt
Tuborgöl suður í Munchen án þess
að blygðast sín. Eg geri aldrei þess-
háttar axarsköft. Sumt fólk drasl-
ar með sér allri ættjörð sinni hvar
sem það fer, hverjum vana þjóðar
sinnar og óvana. — Svo kemur kaffi,
litsterkt, og anganþrungið og vind-
ill sem ég hefi geymt mér til þessarar
hátíðlegu stundar. Hann er ekki úr
tóbaki. Hann er ofurlítill gulbrúnn
líkamningur af ljósbláum ilmi, sem
læðist eftir nefinu upp í heilann,
skríður eftir hverri fellingu hans,
bregður á leik í bugðunum og hristist
út um líkamann, eins og ósýnilegt
balsam.
Og það verður kveld. Kyrð, sem
ég verð að skynja með augunum,
hnígur yfir merkur og velli. Lestin
askveður inn í myrkva komandi nætur.
Eg fer að leita uppi svefnvagninn
og finn rekkju mína, ofurlítinn prjóna
stokk. — Með því að gera mig stinn-
an og teinréttan eins og sívalning,
iget ég snúið mér við í henni. 1
rekkjunni fyrir ofan mig liggur mað-
ur og dæsir og púar, eins og hann væri
að slá harðvelli. Annaðhvort hefir
hann borðað yfir sig eða hefir slæma
samvizku. En það kemur mér ekkert
við. Eg ligg grafkyr í prjónastokkn-
(Frh. á 7. bls).
I
DYICRS CL.KAIVICKS CO., LTD. ;
grjöra þurkhreinsun samdæguri
Bæta og gjöra vit5
Slml 37061
VVIn nipc|
Min.
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
jDR. S. G. SIMrSON, N.D., D.O., D.C.
Chronic Diseases
j Phone: 87 208
j ■ Suite 642-44 Somerset Blk.
jWINNIPEG —MAN.
A. S. BARDAL
selur Ifkkistur or ann&st um útfar-
ir. Aliur útbúnatSur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnisvarilft og: legrsteina.
843 SHERBROOKE ST.
I’hone» K6 607 WINNIPEfl
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Saslt.
DR. A BI.ÖNDAL
602 Medical Arts Bldf.
Talsími: 22 296
Stundar sérstaklega kvensjúkdóma
og barnasjúkdóma. — Ati hitta:
kl. 10—12 f h. 06 3—6 e h.
Helmill: 806 Victor St. Sími 28 130
DR. B. H. OLSON
216-220 Medlcal Arta Bldff.
Cor. Oraham and Kennedy 8t.
Phone: 21 834
VitJtalstími: 11—12 ogr 1_6.30
Heimlli: 921 Sherburn St.
WINNIPEG, MAN.
Talsfml: 28 K89
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
614 Someraet Block
PortaKC Arenne
WINNIPEG
&
TIL SÖLU
A ÓDfRl! VERÐl
“FDRNACE” —bætJi vitJar og
kola “furnace” lititJ brúkatJ, er
til sölu hjá undirritutJum.
Gott tæklfæri fyrir fólk út á
landi er bæta vilja hitunar-
áhöld á helmllinu.
GÖODMAN A CO.
786 Toronto St. Slml 28847
MESSUR OG FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e.h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
H jálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kver.félagið: Fundir annan þriðju
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn:— A hverjuin
sunnudegi kl. 2.30—3.30 e. h.
íBjörgvin Guðmundson
i A. R. C. M.
j Teacher of Music, Compositioa,
! Theory, Counterpoint, Orch«*-
tration, Piano, etc.
555 Arlington St.
SIMI 71821
Jacob F. Bjarnason
—TRAN SFER— .
Bmgffmge and Farnltarr Mcrlng
608 ALVEHSTONE ST.
SfMI T1 898
Kr útvega kol, elálvií me« '
• anngjörnu vertJi, annast flutn-
ing fram off aftur um bselnn
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bld*
Skrlfstof usími: 23674
Stundar «érstakl«g:a lungrnasjúk-
dóma.
Er atí flnna á skrlfstofu kl 10—lt
f. h. oi 2—6 e h.
Heimlll: 46 Ailovray Ave.
Talalual t 33158
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFÁNSSON
Islenzkir lögfrœðingar
709 MINING EXCHANGE Bldg
Stmi: 24 963 356 Main St.
Hafa einnig skrifstofur að Lundar,
Piney, Gimli, og Riverton, Man.
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy 03 Graham
Stundar elBgSngu augtaa- eyrna-
nef- og kverka-ajflkdöma
Er aD hitta frá kl. 11—12 f. h.
> og kl. 3—6 e. h.
Talafml 1 21834
Helmill: 688 McMillan Ave. 42801
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrceðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsimi 24 587
Björg Frederickson
píanókennari
byrjar aftur kennslu 4. sept.
Nemendur búnir undir .próf.
Phone 72 025
Ste. 7, Acadia Apts.
Telephone: 21613
J. Christopherson,
lslenzkur Lógfrceðingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
MARGARET DALMAN
TKACHKR OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Mrs. B. H. Olsonj
TEACHER OF SINGING í
j
Í5 St. James Place Tel. 35076 í
| DR. C. J. HOUSTON
ÍDR. SIGGA CHRISTIAN-
SON-HOUSTON
GIBSON BLOCK
Yorkton —:— Sask.
Ragnar H. Ragnar
Pianokennari
Phonc 34 785
—Kennslustofa—
693 Banning Street
!e. G. Baldwinson, L.L.B.
LðgfræKlDgur
Realdence Phone 24206
Offlce Phone 24063
T08 Mlnlng Exchange
356 Maln St.
WINNIPEG.
100 herbergt metJ eöa án bali
SEYMOUR HOTEL
ver» sanncjarnt
Slml 38 411
C. Q. H UTCHISON, ,l«a>ál
Markat and Klnr St„
Wlnnlpe* —:— Maa.