Heimskringla - 11.12.1929, Blaðsíða 4
4. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. DES., 1929
‘pdmskrittgla (Stotnuð 1886') Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS, LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist íyrirfram. Allar borganir sendist THE VIKING PRESS LTD.
SIGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum Ritstjóri. Utanáskrift til blaðsins: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg.
"Heimskringla” is published by The Viking Press Ltd. and printed by THE MANITOBA MINER PRESS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537
WINNIPEG, 11. DES., 1929
ekki um þaS, að guSshugmyndum frjálslyndra
rnanna hefir einnig veriS i ýmsu áfátt eins og
öllum öSrum. Þess vegna sleppir hann gjör-
samlega aS skýrgreina nokkra guöshugmynd í
trúarjátning sinni, heldtTr tekur þann kostinn,
aS halda sér aSeins viS manninn og igera sér
^rein fyrir hverskonar hugarfar og hegSun hon-
um er nauSsynlegt til framfara og hlessunar, eft-
ir hvaSa reglu frjálslyndir menn telja bezt aS
lifa.
Og ekki verSur því neitaS aS í þessu birtist
einnig trú. Ef trú mannanna kemur ekki í ljós
i því hvernig þeir eru og hvernig þeir breyta,
þá er erfitt aS ráSa hana af hugmyndtím þeirra.
l>ví aS hugmyndin, jafnvel þó aS hún virSist vera
rótgróin í manninum, getur haft nauSa lítil áhrif
á brevtni hans. Þannig er um ýmsar erfSahug-
myndir vorar. Jafnvel þótt vér samþykkjum
þær og höldum fast viS þær af gömlum vana eSa
hollustu viS þá, sem kenndu oss þær, þá trúum
vér þeim ekki í raun og veru. Réttast er þlví
aS nefna þær hugmyndir einar trú, sem ráSi
breytni vorri. ÞaS er sú trú, en engin
önnur, seni stjórnar örlögum vorum. Fyrir þá
trú, en enga aSra, getum vér frelsast, ef hún er
svo mikil og viturleg, aS hún geti orSiS oss til
blessunar.
Frjálslynd trúarjátning
RaSa fltitt í kirkjn SambandssafnaSar í Winni-
peg, sunnudaginn 1. dcs., 1929, af
séra Benjamín Kristjánssyni
(MeS því aS birta þessa ágætu ræSu, hefir Heims-
kringla oröiS viS óskum margra, er á hana hlýddu,
og báSu þess fastlega, aS hún yröi birt.—Ritstj.)
✓ ~
Nýlega hefir birzt í einu trúmálablaSi Banda-
ríkjanna, frjálslynd trúarjátning eftir Rabbi
Abba Hillel Silver, einn hinn frægasta lærifööur
Gyöinga í Ameríku, sem vert er aS veita at-
hygli. Til er* trúarjátning, segir hann, senv
ótrauöir frjálstrúarmenn allra tima hafa lifaö
efíir. Hún hljóöar á þessa leiö:
Vér trúum á manninn — á hæga, en stööugt
vaxandi siömenning hans, á sjálfsákvörSunarrétt
anda hans og yfirburöi yfir allar jarSneskar
stofnanir.
Vér trúum á frelsi, i hinum fyllsta og æösta
skilningi, jafnframt því, sem vér trúum á fyllstu
ábyrgS einstaklingsins.
Vér trúum á 7'ald, en aöeins þaö vald, seni
skynsemin viöurkennir.
Vér trúum því, aö uppfrœSsla, rannsóknir
og samvinna sé hin nauösynlegasta undirstaSi
tnenningarlegra framfara.
Vér trúum því, aö meira sé undir því kom-
iS aö stjórna vel sjálfum sér en aö vera vel
stjórnaö, aS áunnir hlutir sé meira viröi, en þeir,
sem mönnum eru fengnir. Þess vegna hirSum
vér ekkert um neitt þúsund ára ríki, sem koma
á meö kraftaverki og básúnublæstri.
Vér trúum því, aS sannleikurinn komi bezt í
ljós viö samanburS eöa árekstur margvíslegra
skoöana og aö allar vitsmunalegar framfarir or-
sakist einmitt af fjölbreytni skoöananna og
frjálsum hugmyndaskiftum.
Vér trúum á umburSarlyndi, en ekki afskifía-
leysi; á eldmóS, en ekki á ofstæki; á sannfeering-
ar, en ekki meinlokur; á sjálfstatSi, en ekki ein-
angrun; á baráttu, en ekki á hatur.—
Þessi trúarjátning er aö ýmsu leyti at-
hyglisverö og ekki sízt fyrir þá sök, aS í henni
en hvergi minnst á guö eöa eiginleika hans eins
og gert er i svo mörgum játningarritum krist-
inna þjóöa, heldur er aöeins talaö um manninn,
um hegöun hans og framkomu.
Ekki mun þetta þó stafa af þvi, aþ Rabbi
Silver trúi ekki á guö. Hann myndi ekki vera
lærifaöir viö musteriö í Cleveland, einhverja
sfærstu samkundu Gyöinga i Bandaríkjunum,
og vera hlaöinn ótal mörgum trúnaöarstörfum
öSrum, ef hann væri guösneitari, því aS GyS-
ingar eru, eins og kunnugt er, einhverjir ákveön-
ustu guSstrúarmenn í viöri veröld. Heldur mun
þetta koma til af þvi, aö lærimeistaranum hefir
skilist þaö, eins og öörum víösýnum mönnum, aS
guSshugmyndir manna hafa alltaf veriS aö breyt-
ast, eftir því sem þeir hafa sjálfir breyzt og mun,j
ávalt verSa breytilegar, meöan þjóöflokka eöa
einstaklinga skilur um gáfur eöa menningu.
Þess vegna er ekki hægt aS tilgreina neina
ákveöna guöshugmynd, sem allir frjálslyndir
menn á öllum tímum hafa samþykkt eöa trúaö á.
Og gildir hér eitt og hiö sama um frjálslynda
menn oig þröngsýna. GuSshugmyndir nianna
hafa líklegast æfinlega veriS eins margar og
mennirnir eru margir. Og öllum þeim guÖ9hug-
myndum hefir veriS jafn ábótavant tiltölulega og
mönnunum sjálfum. MeS herskáum þjóSum
hefir guS veriö grimmur og herskár, meö rang-
látum þjóSum ranglátur, meöal kreddumanna,
kreddufastur og óbilgjarn. Hinsvegar hefir guö
frjálslyndra manna jafnan veriS frjálslyndur, guS
kærleiksrikra manna miskunnsamur, og svo fram-
vegis. En Rabbi Hillel Silver efast vafalaust
AS þessu athuguSu eru nú ýmsir frjálslyndir
menn teknir aö hallast aö því, aö örnggara sé
og sáluhjálplegra, þegar gera á sér göfuga og
skynsamlega trúarskoSun, aS byggja á reynzlu-
.grundvelli mannlegs lífs, og álykta þannig eftir
vísindalegum aöferöum um gildi lífsskoöana,
eftir afleiöingum þeirra, heldur en aS aöhyllast
þær af eintómri tilviljun, eftir því í hvaöa landi
eöa meö hvaöa þjóö menn eru fæddir.og eftir því
hvaöa erföahugmyndir mönnum kunna aö hafa
veriS innrættar. Því aö allar þær hugmyndir,
sem þannig eru fengnar, lenda aöeins í óbeirfn
sambandi viö breytni ínannsins. Og sú guSs-
htigmynd, sem hvorki er byggö á reynslu né
gagngerSri hugsun, er bæöi fjarlæg og óraun-
veruleg, og allar þráttanir um hana eru líkastar
því og þegar blindir nienn deila um ljósiö og
eiginleika þess.
Hinsvegar er mönnum einnig fariö aö skiljast
þaö betur og betur, hvaö vér eigum óralangt í land
nteö þaö, aS vita nokkra grein á hinstu rökum
tilverunnar. Vísindamennirnir fullyröa aö oss
sé ekki unt á þvi tilverustigi, sem viö stöndum
nú á, aS gera oss nokkra grein fyrir hver eöa
livilik sé orsök eöa uppspretta hlutanna, hvaö
bak viö þá standi og stjórni rás þeirra á þenna
veg en ekki annan, því aö þaS liggi algerlega
utan viö skynsviS vor. Trúmennirnir nefni
þetta guö eöa alfööur, og vér getum gjarna nefnt
það þannig, en þaS sé þá lika allt þaö, sem vér
getum um guð vitaS eöa sagt, aS hann er. Hitt,
sem oss sé unt aS rannsaka og gera oss grein
fyrir, sé aöeins sá efnislegi heimur, eins og vér
getum skynjaS hann, sé þó einkum maöurinn
sjálfur, huigsanir hans eSa viðhorf viS heiminum,
störf hans og afleiöingar af þeim.
AuSvitaS er þetta skoSunarmiö aöeins trú
eöa trúleysi vísindamannanna. ÞaS er aldrei
hægt aö segja um þaS meö neinni vissu, hvað
menn geta vitaö og hvaS ekki. Vísindin sjálf
hafa fært mönnum heim sanninn um þaS aö
möguleikunum á því sviöi er ekki unt aS setja nein
takmörk. Þekkingin hefir stundum tekiö stökk
langt út yfir þaS, sem nokkurn hefir óraö fyrir.
Auk þess er ástæöulaust, að einskorSa guöshug-
myndina aöeins við hin ósýnilegu sköpunaröfl
bak viS hlutina. Vér getum einnig látiö guös-
hugmyndina ná yfir lífiS í heild -sinni og þess
vegna ályktaS um guö af því, sem vér verSum
vís um eSIi þess. Þetta er sú guösþugmynd,
sem oröið getur oss til raunhæfrar blessunar, af
því aS hún hlýtur aS vera nátengd öllu líferni
voru.
En af þessu getum vér dregiS þá ályktun,
að happa drýgra sé í trú vorri sem ööru, aS
byrja jafnan á þeim endanum, sem aS oss sjálf-
um snýr. Byrja þar, sem vér getum stuöst viö
vorar eigin skynjanir og reynslu, jafnframt því
sem vér tökum auövitaö tillit til reynslu og skoðana
annara nianna, og ályktum svo út frá þessu eins
og oss viröist viturlegast. MeS þessu móti er
helzt aS vænta, að hægt sé, aS öðlast þá lífsskoS-
un, sem byggS sé á bjargi veruleikans og hafi
raunverulegt gildi fyrir líf vort og þroska. Ef
þannig er aö guSsiðkunum gengiS, má einnig
væn'a þess, aö þekking vor aukist á öllum þess-
um ókannaöa en eftirþráöa leyndardóm, sem
vér nefnum guS, aS dýrS þess iguðs komi í ljós
í lífi voru i meiri og meiri fylling, eftir því sem
vér þráum hann meir í einlægni á þennan hátt,
viljum skilja hann, sjá hann og þekkja.
Kjarni þessa máls er þá sá, aö leitast viö aö
færa út reynslusviS vort, svo sem oss er mögu-
legt og vaxa meö því móti aö skilningi á lifinu
sjálfu og þeim lögum, sem þaö lýtur, til þróun-
ar eða hnignunar. Gg ef vér athugum nán-
ar þá er einmitt öll trúarjátning Rabbi Hillel
Silver byggS á þessu og stefnir aS þessu. Hann
trúir á vaxandi siömenning mannkynsins og aS
allar framfarir verðí fyrir uppfræSslu, rannsókn-
ir og samvinnu, af þvi aS þetta hefir reynst
þannig. Hann trúir á, aö frelsiS sé mönnum
nauSsynlegt til þessara hluta, af þvi aö reynslan
staöfestir þaS einnig. Hann trúir því, aS sjálf-
stjórn sé mönnum nauösynleg, af því aS lífiö og
reynslan sýnir, aS mennirnir hljóta aS mörgu
leyti aS stjórna örlögum sínum. Hann trúir ekki,
aö neitt Messíasarríki eSa þúsund ára ríki komi
skyndilega á yfirnáttúrlegan hátt, eins og Gyð-
ingar hafa lengi trúaö ogi ýmsir kristnir trú-
flokkar, af því aS það mótmælir allri reynslu
lífsins. Öll framför virðist koma hægt og síg-
andi. Jafnvel þó aS slíkt ríki kæmi skyndilega.
er lítil von til aS mennirnir breyttust fyrir þaö.
Mennirnir veröa fyrst að breytast og þá mun
rikiS koma á eftir. Messíasarríkið kemur á
þann hátt, Í5 vér sköpum þaS sjálf meS starfi
voru. Annarskonar ríki myndum vér ekki
skilja. \
En.til þess aS öSIast sém flesta fætur undir
þekking vora, dugir vitanlega ekki, eins og ég
gat um áðan, vor eigin taktnarkaða reynsla. ÞaS
er óhjákvæmilegt aS byggja einnig á öörum. Vér
trúum á hefðarvald (authority), segir lærimeist-
arinn í ísrael, en aðeins þaö hefSarvald, sem
skynsemin samþy'kkir. ÞaS væri óSs manns
æði aS ætla að vér hefSum sjálf tækifæri til þess
i voru stutta jarSlífi, aö rannsaka alla hluti og
ganga úr skugga um þá með vorri eigin reynslu.
Jafnt í trúarefnum, sem i vísindum, hljótum vér
í ýmsu aö stySjast við reynslu og skoöanir ann-
ara manna. Þegar stór fjölfræSa bók er rituö
og gefin út, eins og til dæmis Encyclopaedia
Britannica, þá megnar enginn einn maöur aS
koma því i framkvæmd. Ótölulegur fjöldi manna
hefir lagt í þaö lífstarf sitt og vitsmuni, að
gagnrannsaka hvert atvik og hverja staðreynd,
sem þar er skrifuö. Þannig hlýtur einnig skoö-
un og hugsunarháttur hvers einstaklings aö
byggjast á starfi og rannsóknum fjölda margra
manna annara. En eins og fárra manna nefnd
velur eftir íhuguöu ráöi, meS samanburöi og at-
hugun rithöfundana > aS fjölfræöabókinni, til
þess aS ábyggilegt sé, að hún hafi sem allra
beztar heimildir viö aö styðjast, eins er nauS-
synlegt aS skynsemi vor greini á milli meS því
aS velja og hafna, þeirra skoöana, sem aS oss
eru réttar, þegar vér erum sjálf aS reyna aS átta
oss á lífinu og tilverunni, og mynda oss um þaö
þær skoðanir sem vér viljum að séu sem rétt-
astar og hamingjudrýgstar.
Þess vegna vil ég leggja mesta áherzlu á aS
benda á þetta atriöi í hinni frjálslyndu trúar-
játningu Rabbi Hillel Silver, aS vér trúum því,
aö sannleikurinn komi bezt í Ijós við satnanburS
og jafnvel árekstur margvíslegra skoöana og
framför þekkingarinnar sé bezt tryggö meS
þeirri samvinnu, aS menn niiSli hver öSrum hug-
myndum sinum, beri þær síðan saman og öðlist
á þann hátt nýjar hugmyndir, sem ef til vill
komast nær því rétta, en hvorutveggja eldri hug-
myndin.
En hversu margir munu þeir vera, sem eru
svo frjálslyndir aS þeim sé tamt aö líta þannig
á málin? Vér þurfum ekki aö fara til neinna
gamalguðfræöinga, heldur getum viö fariö næst-
um því til hvaða sérkredduflokks sem er og til
fjölda margra manna sem álíta sjálfir aS þeir
séu frjálslyndir, og þeir munu sárreiöast og
hneykslast, ekki aöeins ef vér 'höldum fram ein-
hverri skoðun, sem þeir álíta gagnstæða allri
siðsamlegri kenningu, sem þeir hafa numiö, held-
ur einnig, ef vér höfum ööruvísi skoöun en
þeir í nokkrum verulegum atriöum.
Fáir menn eru svo þroskaöir, aö ekki sé
unt að reita þá til reiöi, meö því aö halda fram
skoðunum, sem mjög eru ólíkar hugsunarhætti
þeirra, jafnvel þótt þaö sé gert i allri kurteisi.
Mönnum hættir viö aö líta svo á, aS þeir séu
svo fádæma óskeikulir sjálfir, aö móðgun sé,
að bera brigður á þaS, meS því aS andmæla þeim
í nokkrum hlut, jafnvel þótt það sé einmitt hiö
sama og þeir gera öörum, jafn oft og þeir eru
þeim ósamþykkir.
m
Þessi persónulegi kenningahroki og ekkert
annaö en megin ástæöan fyrir því, þegar menn
reiöast viS aSra út af skoSunum, sem þeim i
fljótu bragöi virSast annaöhvort vera fjarstæö-
ar eöa hneykslanlegar. En í og meS, eins og
í allri reiöi, leynist hræðslan viö þaö, aö veriS
sé að reita sundur eitthvert hreiöur, þar sem
vanaföst ihugsun mannsins hefir búiö um sig og
þorir ekki að láta ónáSa sig úr. Og hræöslan
kemur af þvi, aS ósjálfrátt hafa menn þaS líki
á tilfinningunni, aö hver sú skoðun, sem þannig
er reist, aS ekki er grafist fyrir rök hennar, er
á sandi byggS, svo aö unt er aö rífa hana niöur,
ef einhver nær fangi á henni. Þess vegna þyk-
ir þaS vera um aö gera, aS loka sig sem mest
inni i sjálfum sér, og vísa öllum á burt meS
illu eöa góöu, sem aö garði bera með annar-
legar skoSanir, i staS þess aS athuga þær af
skynsamlegu viti eins og þó ætti aS vera óhætt
öllum þeim, sem sjálfir þykjast eiga yfir sann-
leikanum aö ráSa.
Ekki er lengra en hér um bil 70 ár síöan.
aS Magnús heitinn Eiríksson, sem var einhver
hinn lærSasti guðfræðingur meðal íslendinga á
sinni tiö, skrifaSi vísindalegt rit um Jóhannesar
guSspjall, þar sem hann hélt fram þeirri skoöun,
sem nú er oröin algeng meðal allra, sem nokkuð
hafa rannsakaö máliö aS gaumgæfni, aS guö-
spjalliö gæti ekki veriö ritað af Jóhannesi Zeba-
deussyni, lærisveini Jesú, heldur væri
þaS miklu yngra, og á þaö bæri frem-
ur aö líta sem uppbyggilegt trúar-
rit, en aö byggja á því sem sannri
sögu.
Prestur nokkur af Vesturlandi, sem
annars var talinn merkur maötir aS
ýmsu leyti, ritaði slíkan óhróöur um
bók þessa í eitt islenzka vikublaSiö,
a S naumast er eftir h a f a n d i,
en þó ágætt dæmi um trúarvörn ofstæk
innar. Kallar hann rit Magnúsar
guðlöstunarbók, ósvífna lygabók, eit-
urplöntu, Satans skeyti og öðrum
ófögrum nöfnum. En Magnús kallaöi
hann Anti-Krist, djöfulóöan högg-
ormshaus sem heil legió djöfla væri
farin í og svo framvegis. Vill hann
láta reka Magnús í útlegð og brenna
hann síðan á báli ásamt bókum sín-
um og segir hann aS þetta sé þaö
mildasta sem vera má. En þegar
klerkur er búinn aö skrifa alla þessa
þungu áfellisdóma, kveðst hann játa
þaS án blygSunar aö hann hafi ekki
lesiS bókina og hvetur aöra til aS
gera þaö ekki heklur.
Þegar vér lesum slík ódæmi og
þessi eftir 70 ár fer ekki hjá því aS
oss blöskri hversu þröngsýnin og of-
stækin skilur hér eftir sig ljótan vitn-
isburS, en slíkt eru því miSur eng-
in einsdæmi í sögunni. Þröngsýnin
veröur sér æfinlega til ntinkunar i
hverju máli. Aftur gengur Magnús
heitinn Eiríksson af hólmi nteS dreng-
skaparorði góðs og sannleikselskandi
manns, þó aö hann fengi lítinn hróS-
ur af samtíö sinni.
Ef vér ættum nú aö dæma prest
þenna út frá þessu skrifi hans, sem
ég er ekki aö segja aS yröi fullkom-
lega réttmætur dómur, því aö marg-
ir tala eSa skrifa þaS í bráSræði æs-
ingar, sem ekki fylgir fullur hugttr
og þá iðrar seinna — en þá blöskrar
manni fyrst ósvífnin og óráðvendnin
meö sannleikann, aS dæma þannig hik-
laust um bók, sem hann játar aS hann
hafi ekki lesið og veit þess vegna
ekkert um hvaö stendur í; þvi síður
aö hann hafi rannsakaS heimildirn-
ar fyrir því hvort þar sé talað satt
eöa logiS, fariö með sennilegt mál
eöa ósennilegt. I öðru lagi blöskrar
manni hatriS, aö vilja láta brenna
manninn fyrir þaS eitt aö hann hef-
ir skrifaS bók, sem flytur nýstárleg-
ar skoðanir, sem menn hafa ekki
vanist. Jafnvel þó aS áreiSanlegt
heföi veriS, aS bókin væri skrifuð af
ntisskilningi,þá hefSi þaS verið geipi-
legt hermdarverk, aö hegna manninum
þanntg fyrir misskilning hans. En
hér er ekki svo mikið sem nokkur til-
raun sé gerS, til aS rannsaka hversu
rnikill glæpurinn er, seni maðurinn er
talinn aS hafa drýgt. ÞaS eitt að
dirfast aS vera annarar skoðunar, en
almenningur, er talin dauöasök. Hér
er meiri skortur á réttlætistilfinning
en talið væri sæmilegt að viðhafa í
nokkrum öðrum málum en trúmálum.
I hvaöa sakamál sem er öðru þætti
þaö sanngjarnt að líta á málavexti.
En i þessu máli reyndi enginn aS gera
sér grein fyrir i hverju Magnús
hafði brotiö af sér. Enginn reyndi
aö skrifa á móti honum annaS en
skammir Og óbænir og sumir töldu
hann vera viti sínu fjær.
Þessi saga hefir endurtekið sig
sorglega oft meS mannkyninu. Þeir
sem veriö hafa höföi hærri en allur
lýSurinn og hefðu þvi að réttu lagi
átt að vera leiötogar lians, hafa ver-
ið hæddir og grýttir af honuni og
taldir viti sínu fjær. Frá því er
skýrt um sjálfan höfund kristninnar,
að jafnvel móöir hans og bræður
héldu aS hann væri ekki meö öllum
mjalla, þegar hann andmælti hinum
venjulegu trúarskoöunum samtiöar
sinnar. ÞaS var ekkert reynt aö
gera sér igrein fyrir þvi hvers vegna
hann liti öSruvísi á máliS. Hann
hlaut bara aS vera viti sínu fjær, af
því aS hann leit öðruvísi á máliS —
og þess vegna var hann krossfest-
ur.
Hversu ótal mörg er sú krossfest-
ing sannleikans, sem unt hefSi verið
aS komast hjá, ef hverri kynslóð heföi
verið kennt aS líta á sannleikann og
leita sannleikans eftir hinni frjáls-
lyndu trúarjátningu Rabbi Silver.
Hversu margt heiftarverk hefði þá
veriS óunniö og hversu margri fram-
för komiö áfram löngu fyr!
Eg veit engan mann hafa gert betur
grein fyrir nauösyn skoðanafrelsis og
1 fullan aldarfjórðung hafa
Dodds nýrna pillur verið hin
viðurkenndu meðul við bak-
verk, gigt og blöðru sjúkdóm-
um, og hinna mörgu kvilla, er
stafa frá veikluðum nýrum. —
Þær eru til sölu í öllum lyfja-
búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur
fyrir $2.50. Panta má þær beint
frá Dodds Medicine Company,
Ltd., Toronto, Ont., og senda
andvirðið þangað.
hugsanarfrelsis til andlegrar velferSar
mannkynsins, en John Stuart Mill i
hinni ágætu bók sinni: Um frelsiS,
sem stundum hefir veriS nefnd guS-
spjall nitjándu aldar. Hann dregur
megin röksemdir sínar saman í þrjá
liöi, sem hljóöa í stuttu máli á þessa
leiö:
1 fyrsta lagi: Ef einhver skoSun
er niðurbæld, þá getum vér aldrei
með fullri vissu vitaö, aS hún sé ekki
rétt. Ef vér neitum þessu eignuirt
vér okkur óskeikulleik.
í annan stað: Þó aS skoðun sú.
sem niður er bæld sé röng, þá getur
hún þó haft og hefir venjulega i sér
fólginn nokkurn hluta sannleikans,
og meS því að skoSun’ sú um sérhvert
efni, sem almenn er eöa drottnandi
hefir sjaldan eSa aldrei allan sann-
leikann að geyma, þá eru engin líkindi
til, aö sannleikanum verði upp bættur
sá hluti, sem á hann vantar meS
neinu ööru móti en því, aö andstæSunr
skoSunum lendi í vtSureign saman.
í þriðja Iagi r Enda þótt hin viS-
tekna skoðun sé ekki aöeins rétt,
heldur hafi altan sannleikann aS
geyma, þá munu þó flestir, sem hanæ
hafa, hafa hana sem hleypidóm, en
ekki sem skoöun, vegna þess aS þeir
hafa ekki íhugaS grandgæfilega
skynsemdarrökin fyrir henni. MeS
því að koma með öflug og alvarleg
mótmæli, eru menn knúðir til þess
aö gera sér lifandi og skilmerkilega
grein fyrir því hvers vegna þetta er
þannig en ekki öðruvisi. Ef menti
gera þa® ekki er kenningin tóm
kredduþula áhrifalaus á breytni manna
og hugsunarhátt.
Þannig styrkir æfinlega andstaöarr
oss, jafnvel þó að hún sé ekki á rök-
um byggð. Ef rétt er litið á, er oss
því æfinlega ávinningur að því aS
heyra margvíslegar skoSanir, hvort
sem þær eru með eSa móti.
Þess vegna skulum viö öll, sem
frjálslynd viljum vera aldrei láta oss
henda það, að byrgja eyrun fyrir
neinni skoðun, af því vér þykjumst
vita það fyrirfram, aS hún sé röng.
Vér skulum aldrei reiöast af því,
þó aS aörir menn sé á ööru máli en
vér. Vér skulum einmitt leita aS
styrk vorum í andstöðunni. Ef vér
þykjumst hafa réttari eða skynsam-
legri skoðanir en aSrir er þaS ekkert
til að reiðast af. ÞaS er til aö gleðj-
ast yfir, ef vér höfum fundið mik-
inn sannleika. En gleymum því þá
ekki, aS jafnvel fáráölingurinn, sem
gengur fram af oss meö fjarstæöum
sínum hefír einnig stutt oss í skiln-
ingsstarfinu.
Látum mennina deila um ýmislegar
skoðanir og kenningar. ÞaS er á-
gætt meöan það er gert meö rökum
og án haturs. Slikar umræöur
hreinsa burt alla hégilju og hjátrúar-
mollu eins og stormar og steypiregn.
Öll hin margvíslegu rök, sem ýmis-
legir skoöanaárekstrar knýja fram,
geta orðiö að steinum í veglegri bygg-
ingu sannteikans. Þess vegna eiga
allir, sem skoðun hafa aö flytja, aS
gera þaö kurteislega og drengilega,
meS vakandi tilfinningu fyrir því
að þeir séu aS færa guði sinum
fórnir, þeir sé að gefa hinum æösta
veruleika, sem vér þekkjum, lifinu
og sannteikanum, hiS æösta og bezta
í sjálfum sér, sem er vitiö og kær-
leikurinn.