Heimskringla - 18.12.1929, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 18. DES., 1929
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSÍÐA
ræmi viö allar hinar æSstu siÖferSis-
legu hugrnyndir og þrár mannsins.
Einhver prédikari hefir sagt, aS eng-
inn maSur rísi upp frá bæn öSru-
v'si, en aS veröa bænheyrSur, því
aS bænin sé sú iöja, sem alltaf
Wjóti aö breyta manninum sjálfum
eitthvaö í þá átt, sem hann biöur og
þráir. Ef vér hyggjum ger aö þá
sjaum vér aS einmitt í þessu er fólg-
in megin þýSing bænarinnar. Bænin
er fyrst og frcmst 'ihugitn og greinar-
gerð vor sjálfra á því, hvað vér
þórfnwnst og hvað vcr þránin. Og
þrá vor nær alltaf út yfir þaö, sem
ver höfum þegar öölast óg teygir sig
til þess, sem vér finnum að er æðra
°g meira, en vér erum sjálf. Af
meöfæddri eðlishvöt finnum vér
Eversu smá vér'sjálf erum, hversu
heimar sannleikans liggja ókannaSir
umhverfis oss, og huga vorn hungrar
°S þyrstir í æSri þekkingu, æðra mátt
°g skilning en vér höfum þegar ööl-
ast. t þeSsari þrá vorri er lífiS í
raun og veru fólgiö, því undir eins
°tT vér hættum aö.þrá eitthvaS út fyrir
°ss hverfur löngunin til lífsins. I>ess
vegna er bænin í sálfræöilegum skiln-
ingi fyrst og fretnst greinargerö þess,
sent vér þráum. Hún cr meðvitandi
athygli og einbciting hugans að lífs-
þörfum vorum og Ufshugsjónum.
I annan staS er bænin mcðvitandi
og yfirlögð einbeiting viljans og lífs-
máttar vors í þá átt, sem þrár vorar
stefna.
Haft er eftir Emerson, aö allir
menn séu æfinlega aS biöja. Á hann
vafalaust meS því viö þaö, aS í öllum
mönnum búi þessi lífsþrá og starfs-
viljinn til uppfyllingar henni, í ein-
hverjum mæli, misjafnlega miklum.
Og hann bætir við: Öllum bænum
er æfinlega svaraö. MeS því á hann
við það, aö bœnin sc ckki aðcins skiln-
ingur vor á því, scm vér þráum.
heldur einnig starfið að því, sem vér
þráum. Svipaö mun hafa vakað
fyrir skáldinu St. G. Stephanssyni er
hann kemst einhversstaöar þannig að
orði, aS heitust bæn sé vinna.
Að biðja þýðir þvi ekki aðeins aö
þrá eitthvaS heldur einnig að starfa
aö uppfyllingu þess, sem vér þráum.
Gamall íslenzkur málsháttur segir, að
guö hjálpi þeint, sem hjálpar sér
sjálfur. í þvi er mikill sannleikur.
Athygli bænarinnar aS því, sem vér
þörfnumst verður aS snúast upp i
vilja til að öSlast þaS. GuS notár
oss eigi minnst sjálf, til aS uppfylla
vorar eigin bænir. Þannig hafa
flest umskifti orðiS á jarSriki.
En einmitt af þvi aS bænir vorar
birtast, ekki sízt í verkum vorum, þá
skvldum vér vera varkár hvers vér
biðjum. I’vi aS hver finnur, sem
leitar, og hver öölsat, sem biöttr,
jafnvel þótt hann biöji þess, sem illt
er, jafnvel þótt hann biöji af óhrein-
um hug og biSji þess vegna óblessunar
yfir sig.
Allt lif vort er bæn, þrá sem togar
oss til góöra eöa illra staSa, þrá sem
skapar oss gott eöa illt umhverfi,
eftir því hversu hátt hún stefnir,
hversu mikið hún vill. GuS er eng-
inn nirfill, sem lokar fyrir oss hverju
forðabúri og setur ljón á alla vegi.
Hann gefur oss allt það. sent vér
biöjutn um, ef vér aðeins trúum á
hann og biöjtttn í eittlægni. Guö er
enginn dutlungalyndur stjórnari til-
verunnar, sem þarf aö brjóta nátt-
úrulögmál sín, til að svara bænunt
vorum. Hann er réttlátur guö, sent
svarar bænum vorurn meS náttúrulög-
ntálunum á þann hátt, setn hver bætt
á skiliö. Og ef bænin er ekki svo
einlæg, að hún taki sjálf náttúruöflin
í þjónustu sína, er hún engin
bæn, heldur vantrúaö fleipur. Þann-
ig starfar guS í oss sjálfutn bæði að
vilja og framkvæhtd, því aö allt lif
lýtur honum og ketnst ekki út fyrir
lögmál hans.
En til þess aö geta öölast dýrlegt
hlutskifti fyrir bænir vorar verSttm
við aS trúa á dýrlegan guÖ. Vér
verSum aö trúa bæSi i oröi og verki.
Bæn til guös, sem er fyrir oss ekkert
annaö, en óljós von eöa hugmynd,
tnun aldrei ýerða oss kraftur til hjálp-
ræðis. FjársýslumaSurinn öSIast
fé, vegna þess aS hann trúir í ein-
lægni á Mamtnon, vegna þess að hann
veit aö fjármunir eru til og skilur aS
hægt er að ná þeim. Alveg eins
þarf sá, er öölast vill andlega hluti aS
vita aS þeir eru til og skitja að unt
er að ná þeim. Öflun hvorstveggja
fer eftir sama lögmáli, lögtnáli bæn-
arinnar. En vei þeitn, sem biður of
lítils, biður þess, setn honum er eigi
samboSið, því að harm og bölvun
mun af því leiða. Mannifium full-
nægir aldrei annaS eti eiltfir hlutir,
sem st.anda þótt allt duft jaröarinn-
ar'farist.
Þess vegna er þaS svo nauösynlegt
til bænar, aS guöshugmynd vor sé
rík af miskunn og réttlæti og speki,
af sannleika og fegurö, til þess aS
vér með íhugun vorri hrífumst til
ástar og lotningar fyrir þessum eig-
inleikum og bæn vor snúist í vilja
til aö öSlast þá sjálf. Þetta er hin
æSsta blessun bænarinnar, aS biSj-
andi sál hreinsast af dauölegu eöli
og verSur hrein eins og hann, sent
beSið er til, eins og eitthvert enska
skáldiS hefir komist aS orSi. Og
svipaS mun hafa vakaS fyrir hinu
dýrlega sálmaskáldi Hallgrimi Pét-
urssyni, er hann kemst þannig að
oröi:
“Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmisleg,
þá líf og sál er lúið og þjáS,
lykill er hún að droBins náö.”
Þetta er sá boSskapur, sem trúar-
brögöin flvtja, aS náö guös streymi
inn í hina biöjandi sál í réttu hlut-
falli viö styrkleika og göfgi bænar-
innar. Og þetta er engin heila-
spuni heldur reysnluvisindi, sent hver
og einn ge*ur gengiS úr skugga utn
meS lífi sínu. En einhver myndi nú
ef til vill spyrja, hvort hér sé þá
raunar um nokkra guðstrú aö ræðá?
Hvort hér sé ekki veriö aðeins að
útskýra bænina eins og sálarlega iök-
un, sem hafi heilsusamlegar afleiSing-
ar eins og til dæmis líkamsæfingar?
F.g segi: Þó aS guö heyröi aöeins
þannig og svaraði, væri hann engu
minni veruleikur fyrir mér. Ef til-
veran skiftir þannig við oss, að bæn-
um vorum er svaraö, Iifum vér þá ekki
í þeim guöi, sem fullnægir oss?. En
þó trúi ég einnig á vtöara sviö bæn-
heyrslu og hjálpar, Þarf nema aö
hafa opin augun til að sannfærast
um þaS ? Er ekki allir menn að
hjálpa hver öSrutn beint og óbeint,
jafnvel þótt þeir iöulega geri sér þess
enga grein? Eg trúi einnig því, aö
vér séum umkringd af ósýnilegum
hjálpendum af öðrum tilverustigum
sem hlusti eftir andvörpum vorum ög
hjálpi oss ■ eftir sem þeir eru
máttugir til og sjá aS bezt hentir.—
En öll þau svör. sem oss koma viS
bænum vorum, öll sú hjálp, sem oss
er veitt, hvort sem hjálpin kemur fyr-
ir vorn eigin tilverknað, eöa hún kem-
ur frá öðrum sýnilegum eöa ósýnileg-
um verum, öll sú hjálp kemtir frá
drottni tilverunnar og hún kcmur af
því að vér hr'ópum á 'hana af óllum
kröftum sálar vorrar. GuS er ekki
svo óréBlátur aS láta oss hljóta nokk-
urn lilut ööruvísi.
Og þess vegna staönæmumst vér
aftur frammi fyrir Jesú Kristi, þar
sem hann biöst fyrir viS dagrenn-
inguna á fjallinu í Galileu og segj-
um með lærisveinum hans: “AUir
eru aS leita aS þér.”
I heilagri alvöru biðst hann fyrir,
meöan stjörnurnar deyja á himnin-
um, meSan tárhrein morgundöggin
tindrar í grasinu, þangað til geislar
rísandi sólar streyma beint inn í sál
Verið viss um að koma á—
Hollinsworth’s
JÓLA KJÓLA SÖLUNA
Óviðjafnanlegt
Hundruðir afvkjólum af nýustu tízku nýkomnir í búð-
ina, verða seldir á svo rýmilegu verði, að athygli hverrar
konu í Winnipeg vekur.
Kjólar
úr Crepe, Satins Tra-
vel prints and printed
Velvets. Sizes 14—44.
$
11
Kjólar
Yndislegir eftirmið-
dagskjólar. Printed
Crepes, Satins, Vel-
vets og leikhúskjólar.
Regluleg kjörkaup.
$
18.
Kjólar
úr fáséðuin birgðum
að velja af öllum litum
og stærðum. Óvið-
jafnanlegt verð. Stærð
ir 14—46.
15.
95
Kjólar
Óviðjafnanlegt verð á
kjólum að vera í þeg-
ar þú gengur út í eftir -
miðdaginn eða að
kvekii. Gerðir úr Lace,
Movie Satins og Crepe
Stærðir 14—44.
$
75
■V
Munið
Að litil niðurborgun tryggir yður kjól-
inn þangað til þér takið hann
HOLLINSWORTH E CQ
V :
LIMITED
Spcdalists tn 'Wom®rt» and MUlwf
Brady-k>-WMrt
WINNIPEG
S86 tnd 390 Portage Av«nu*
BOYD BUILDlNð
lians. Hann biöur ekki um stundleg
gæöi fyrir sjálfan sig. Hann biöur
aöeins um þaö, aö þetta heilaga sól-
skin megi íylla sálir allra manna og
allt samfélag mannanna og aö hann
sjáfur megi veröa aS einutn geisla
þess guðdómlega lífs, sem. fyllir alla
tilveru. . Hann biöur um að guSs-
ríki megi veröa svo á jörSu sem á
hinini. Hann biSur um aö hi8
ófullkomna hverfi á braut og aö dauö-
(Frh. á 7. síSu)
PIPES
F«r thc man who tikct a gt»«d
BvkMofgest atet of “Orilk**
pipc in a luoJiome caan.
HO
SEWIHG
BASKET3
What laJy wouWn’t
rewel in receiring a
arwing batket whtre
•he could keep to-
gether all her odds
and ends of sewing
material. Silk-lined,
round wicker basket,
cruahed morocco grain leather
corer. Peari handled iittmga....
>io
^VWWWWWWWWWW^/VVS/V^^Wl
BOOK
ENDS
Artistic book ends are always acceptable
to thoee who lore odd pieces about the
home. Green Bronze, stone #
base Book End« ...... n__ * I O
COMPACTS
>IO
A lóose-powder compact in blne
enamel, silver gilt edging and
a carved silrer centre^
SANDWICH TRAY
A ddightfnl pft to the hwijr thit enter.
tl‘n> — » aterling aiÍTer aandvich
umy, 9 inchca in diameter, with a
heaatifallj patteraed pierced . r .
border_____________ U j
MILITARY BRUSHES
A faatidioua man will appreeiate a pair
of military brushea that he can con-
rtnientry carrjr when he trareh.
Natural Ébonjr Bruahea with aterUng
ailTer ahield for a monofram; . _ .
Comh and icather caat. ^ ^ 5
jR
FLASKS
Silrer plated Brícannfal
tnetal flask, engino-
tnnied. Capacity 17
«5
LADIES’
DRESSINQ
CASE
What could be a mora
appropríate gift than a
Dressing Case for th«
iady who likes to trarel.
Fine leather, silk-tined,
fitted withyellow, mother-o’-pearl - ^
effect articies, at Birks.......... * * 5
Please telephone your order to
Personal Shopper 22 371