Heimskringla - 21.05.1930, Side 8

Heimskringla - 21.05.1930, Side 8
8. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 21. MAÍ, 1930. Fjær og Nær Séra Þorgeir Jónsson messar afl Árborg næstkomandi sunnudag, 25. þ.m., kl. 2 e. h. ,og að Riverton sama dag kl. 8 e. h. * * * Guðsþjónustur á ensku flytur sr. Philip M. Pétursson reglulega á hverj- uxn sunnudagsmorgni í Sambands- kirkjunni á Banning St. Fyrirspum- ir hafa verið gerðar um þessar mess- ur, og þess þá getið um leið, að ekki hafi auglýsingar um þær birzt hér i blaðinu nú um hríð undanfarið. — Guðsþjónustur þessar verða haldnar að venju, unz annað verður auglýst i blaðinu. • • • Hljómleikar. Karlakór Islendinga í Winnipeg efn- ir til söngskemtunar þann 2. júní i Fyrstu Lútersku kirkju á Victor St., með aðstoð Mrs. Baldur Olson, sop- rano. öefað munu Winnipeg-lslendingar nota tækifærið að heyra þenna flokk, er þegar hefir hlotið almenna hylli. Það verða mörg ný lög á söngkránni, er verður hin vandaðasta i alla staði. Mrs. Baldur Olson syngur tvo flokka af úrvalslögum. Björgvin Guðmundsson stjómar kariakórinu. Söngskráin verður auglýst i næsta blaði og aðgöngumiðar verða 50c og fást hjá öllum meðlimum flokksins. * * * Fæði og húsnæði er til boða á góðum kjömm fyrir tvo (pilta eða stúlkur) að 570 Toronto stræti. Hús- ráðandi heima á hverju kvöldi eftir kl. 6. Hr. Thorsteinn Johnstone fiðlukenn- ari, efnir til hljómleika með nemend- um sinum fimtudagskvölriið 29. þ. m., i Goodtemplarahúsinu. Vonast hann til þess að Islendingar sæki vel sam- kaxmxna. • • • ÁrstakaHátí* Jóns Bjarnasonar skóla. Eins og að undanfömu hefir Jóns Bjamasonar skóli samkomu við árs- k)k, til að minnast skólaársins, sem er að enda, þess sem unnið hefir ver- ið á árinu, og eins til að kveðja þá nemendur sem útskrifast. Starf skólans hefir gengið ágæta vel, enda hefir samvinna milli nem- enda og kennara verið hin bezta, og er full ástæða til að vona, að árang- urinn af þeirri samvinnu komi í ljós við vorprófin, en þau verða ekki af- staðin, þegar samkoman verður hald- in, sem verður mánudagskvöldið 26. mai. Nemendur á þessum vetri eru tölu- vert fleiri en í fyrra, og er það vott- ur um að áhugi fyrir skólanum er að aukast að mun, en ekki réna, og að fleiri og fleiri sjá nytsemi hans í þarfir islenzkunnar, kristilegs hugar- fars og ekki sízt í þarfir canadiskra menntamála. Islenzkuna við skólann hefir kennt I vetur, eins og að undanförnu, séra Rúnóifur Marteinsson. Til dæmis um árangur hennar má geta þess, að nokkrir af nemendum skólans komu fram á einum Frónsfundi í vetur með framsögn og upplestur, og þótti þeirn farast það vel úr hendi. Tíl islenzkukennslu má einnig telja "það, að á þessum vetri stofnuðu nemendur íslenzkan söngflokk, und- ir umsjón og forystu Miss Salome Halktersson, og mun hann skemta á samkomunni. Þar verður og minnst sérstaklega þeirra, er framúr hafa skarað á vetr- inum i ástundun og kunnáttu í hverjum bekk fyrir sig, og nöfn þeirra grafin á Bardalsbikarinn; og því svara verðlaunanemendur úr 11. og 12. bekk, annar á íslenzku, hinn á ensfau. Kristindómskennslan hefir verið með sama hætti og áður, og sam- koma þessi verður hafin með biblíu^ lestrí og bæn. Arrnars skal ekki frekar fjölyrða um skólaam eða samkomuna, heldur vísa til auglýsingar um hana á öðrum stað hér í blaðinu. Vinur. • * • Minneapolis Symphony Orchestra. JHið heimskunna Minneápolis Sym- phonv Orchestra, undir stjórn Henri Verbrugghen, kemur hingað til Win- nipeg á fimtudagsmorguninn. Þrjá hljómleika heldur hljómsveitin í Amphitheatre hér: fimtudagskvöldið 22. maí; föstudaginn síðdegis, 23. *»ai. og um kvöldið sama dag. Þetta «r aðalviðburðurinn í hljómleikalífi bæjarins I ár, enda sækir hingað fjöldi utanbæjarmanna, frá ýmsum stöðum í fylkinu, og þúsundir Winni- pegbúa. Hljómsveit þessi var stofnuð veturinn 1903, og hefir fyrir löngu hlotið orðstír sem ein allra bezta hljómsveit Bandaríkjannfj. Heldur hún árlega sextíu hljómleika í St. Paul og Minneapolih, auk því nær hundrað hljómleika á ferðum sínum. Heflr hún leikið í meira en 400 bæj- um hafanna á milli, frá Canada tll Cuba. Henri Verbrugghen, hljómsveitar- stjóri er fæddur í Bryssel í Belgíu, og var þar einn af uppáhalds lærisvein um Eugene Ysaye. Hann nýtur al þjóða orðstírs, sem hljómsveitar- stjóri, og hefir stýrt hljómsveitum í London, París, Berlín, Muenchen, Petrograd og hinum stærri borgum í Ástralíu, áður en hann tók við Minneapolis hljómsveitinni, 1923. Mörg úrvalsverk flytur hljóm- sveitin að þessu sinni, t. d. Overture — “Leonore” No. 3, Op. 72, eftir' Beethoven; Symphony No. 2, í C- moll, Op. 17, eftir Tschaikowsky; Ungverska Rhapáody No. 2, eftir Liszt; Symphony No. 1, í C-moll, Op. 68, eftir Brahms; Forleikinn að Lo- hengrin, og forleikinn að III. þætti í Lohengrin. • • • Leiðrétt. Að eg ekki flutti ávarp mitt til Arna Pálssonar, sem birtist í Heimskringlu 7. þ. m., var ekki sök- um lasleika, sem sagt var í blaðinu, því eg var á þeim fundi sem hafður var í samkomuhúsi Framnesbyggð- ar, og i vasanum hafði eg ávarpið er eg ætlaði mér að flytja. En mér láðist að geta þess við fundarstjóra, iður en fundur byrjaði, að eg hefði það meðferðis; fórst því fyrir að eg flytti það. En ástæðan fyrir því, að ávarpið ártist í blaðinu var sú, aíj, eg sýndi að góðum kunningja mínum; fannst áonum að eg ætti að láta það koma ýrir almenningssjónir, því það væri ;ess virði. Tók hann því við blað- .nu og sendi það einum nefndarmanni "'jóðræknisfélagsins, og gat þess í óréfi til hans, að láðst hefði að bera fram ávarpið á fundinum sem var rétt; en þetta mun hafa verið skilið á þann hátt, að eg hafi ekki komist á fundinn. Prentvilla? eða öllu fremur ritvilla ijá mér í ávarpinu er þetta orð: Norðurálfuþjóðanna (þar er átt við íina norrænu tungu: íslenzkuna). Norðurlandaþjóðanna vildi eg sagt -.afa. Magnús Sigurðsson á Storð. • * * (M:nskV.ningur hjá blaðjnu mun hafa valdið því að þetta þurfti að ieiðrétta. Er hlutaðeigandi beðinn • elvirðingar á því.) * * * Barnastúkan Æskan ætlar að hætta fundarhöldum við lok þessa mánaðar, mai, og eru því aðeins tveir fundir eftir. Vér sem önnumst um fundahöldin í þessum félagsskap, mælumst nú til ið foreldrar sjái um, að börnin komi á þá tvo fundi sem eftir eru. Síð- isti fundurinn á að verða regluleg- ur skemtifundur, og þurfum við því ð æfa börnin næsta laugardag, í öng að minnsta kosti. Það er skemti egt að geta skilið þannig eftir nokk- ið Aanga samveru, að menn hafi gert sér einn glaðan dag, og geta svo búist við að mætast aftur glaðir og ánægðir. Eg ætla að biðja þær systurnar í þessum félagsskap, Ragnheiði John- son, Gladys Gillis og Guðrúnu Ste- fánsson að skemta með framsögn á þessum síðasta fundi. Þær kunna allar svo margt fallegt, sem er ís- Ienzkt, að þær þurfa ekki að hafa mikið fyrir að æfa sig. J. E. * • • Fimtudaginn 8. þ. m. andaðist að heimili sínu í Marshlandbyggð, GuíJ^ björg kona Jóns Magnússonar bónda þar í /byggðinnj. Jarðarförin fór fram á þriðjudaginn þann 13. þ. m., í grafreit byggðarinnar, að viðstödd- um flestum byggðarmönnum og nokkrum öðrum. Þessarar merku konu verður minnst síðar í blöðun- um. • * * * Þann 5. maí andaðist að heimiii sínu í Portland, Oregon, Mrs. Auð- björg Frey. Hún var fædd að Minni- borg í Grímsnesi í Arnessýslu 24. febrúar 1862. Foreldrar hennar voru Ásmundur Þorgilsson og fyrri kona hans Jórunn Hannesdóttir á Minniborg. Hún fluttist frá Islandi árið 1888, og var nokkur ár í Winni- peg. Árið 1898 giftist hún eftirlif- andi manni sínum Leopold Frey, af þýzkum ættum. Þau bjuggu i Neche í Norður Dakota þangað til 1910, að þau fluttu til Portland, og hafa búið þar síðan. Þau eignuðust þrjá syni sem allir eru giftir og búa í Port- land. Eftirlifandi ættingjar eru: eig- inmaður, 3 synir, 2 sonabörn, ein systir og einn bróðir. * Heimfararsjóður frú M. J. Bene- dictsson Aður auglýst ................$756.55 United Farm Women of Gimli 20.00 Mrs. Capt. J. Stevens, Gimli 1.00 Mrs. P. Tergesen, Gimli ....... 1.00 Ónefnd ........................ 0.50 Mrs. C. O. L. Chiswell, Gimli 2.00 S. Knudson, Gimli ............. 0.50 Opið bréf til S. H. f. H. There are battles to fight and wrongs to right. Progress will sometimes seem slow, The country is good now, that understood. But in order to reap you must sow. I. J. Myres. 19. maí, 1930. Heiðraði kunningi, Eg get ekki stilt mig um að skrifa þér fáar línur, eftir að hafa lesið grein þína í síðustu Heimskringlu. með fyrirsögninni “Söngkvöld.” Sérstaklega er það seinni partur greinarinnar er vakti athygli mitt, þa'r lætur þú í ljósi gremju þína, yfir því hvað fáir sóktu áminnsta samkomu. “Það er i sannleika dáuðans sorg- legt,” segir þú, og sv. fr.— Nú langar mig til að spyrja þig, hvort þér finnist það ekki “I sann- leika dauðans sorglegt” að vita til þess hve sljór þú ert á fegurðar- tilfinningu á jurta gróðri. Er það ekki sorglegt að vita til þess hvað blað þitt hefur sneitt sig hjá því að örfa lesendur sína á því sjónarsviði listarinnar. • Ekki varst þú á þeim eina fundi, er nokkurntíma hefur verið haldinn á meðal Islendinga í Winnpeg, til að glæða þá fegurðartilfinningu, að ! gróðursetja trje, og ekki heldur að ! leggja eitt liðsyrði i þá átt, sem i “Vinlands Blóm” er að vinna að, nefnilega að gróðursetja tré á Islandi. Sem mentaður maður, og sem þú gefur í skyn, listamaður, verður þú að viðurkenna að listir eru í fleiru j enn Hljómleik og Sönglist; eru lika | í þvi að gróðursetja jurtir og auka fegurð landa, um leið og það eykur framleiðsla möguleikann til mann- legrar menningar. En listamaðurinn við Heims kringlu segir ekkert í þá átt, að hlynna að skógrækt, að minnsta kosti, ekki enn sem komið er af þessu ári. Atvinna þín er að skrifa, og það stundum skæting á afurðir skógar- sins, því pappírinn er þú brúkar i Heimskringlu er frá trje kominn. Og er það ekki sorglegt, að vita til þess, að fögur trje skuli vera höggvin niður til pappirsgerðar, til að skrásetja á sumt af því, sem hvergi ætti að sjást; má eg spyrja: Hver er nauðsynlegri listin, Söngvar og Hljómleikar, eða jurtarækt? Þótt hátt sje hljóðað, og það af list, þá býr það ei til efnið, er nóturnar eru skráðar á. Sannarlega er það sorglegt að vita til þess hvað margir gleypa froðuna en spilla kjarnanum. Astæðan fyrir því að eg skrifa þér þessar fáu línur, er að mér gremst að lesa aðfinslu þína til al- mennings, og Prófessora í músik. Að ætlast til að fólk hafi einn dal til að borga fyrir kvöldskemtun, (Mér er sagt að inngaygsgjaldið hafi verið það, rúmar 4 krónur eftir íslenzku peningatali). Á þeim örðugustu tímum sem nokkurntíma hafa átt sér stað síðan landnám hófst í Kanada. Þúsundir manns ganga atvinnulausir, og vita ekki hvaðan næstu máltíðar er von, og ekkert heldur bendir á að fram úr muni rætast. Á fremstu blaðsíðu sama blaðs Heimskringlu, er sagt frá að Svíar hafi beðið fósturland sitt, um 15 til 20 þúsund dala lán, til að verjast hungri og eymd, hér í Manitoba. Þvílik ónærgætni, af ritstjóra, er hefur nóg á sínum borðum. Þetta segi eg að sé í sannleika dauðans sorgleg blindni, og það af manni, er vill láta' fólk halda að hann sé jafnaðarmaður, sem skilji kröfur og kringumstæður almenn- ings. Það er margt sem i sannleika er dauðans sorglegt böl. B. MAGNírSSON Laugardaginn 10. maí voru þessi ungmenni se^t í embætti í stúkunni “Gimli”, I.O.G.T. No. 7: Jóhanna Markússon, Æ.T. Josie Einarsson, F.Æ.T. Ólöf Arnason, V.T. Asta Johnson, Kap. Violet Eicarsson, A.D. Lorna Einarsson, D. Guðrún Thomson, F.R. Anna Johnson, G. Margrét Jónasson, R Victoria Bjarnason, A.R. Sigmar Johnson, V. Stúkan Skuld, No. 34. — Umboðs- maður, br. Gunnlaugur Jóhannsson setti í embætti fyrir ársfjórðunginn frá 1. maí til 1. ágúst, 1930, þá sem hér segir: F.Æ.T., G. M. Bjarnason. Æ.T., Einar Haralds V.T., Mrs. C. Thorlaksson F. R., St. Baldvinsson . Ste. 4 Toronto Apts. G. , Magnús Johnson R., C. Thorlaksson K., Mrs. Aldís Jóhannesson D., Mrs. Súsanna Guðmundsson Spilara, Ida Holm Skrásetjara, Sig Einarsson V., Einar Einarsson Cr.V.. Einarsson A.R., Sigríður Brandson A.D., Minnie Anderson ^^QOSCOðSSððSOOððSOðCððOr^ | Stiles & Humphries I I & I MIKLA SKItA YFIR GEFENDIJR I MINN- INGARSJÓD KVENNASKÓLANS A HALLORMSSTAÐ. Áður áuglýst .................$913.60 Safnað af Mrs. (Dr.) S. E. Björnsson, Árborg: Mrs. Vilborg Stefánsdóttir .... 10.00 Miss Hildur Árnason .......... 5.00 Mrs. Björg Pétursdóttir ..... 1.00 Mrs. Ingibjörg Ámason ..... 5.00 Mrs. Hildur Finnsson, Víðir. .. 1.00 Mrs. Soffía Gíslason .......... 2.Q0 Mrs. Jóhann Simundsson ..... 1.00 Mrs. Emma V. Rennesse ..... 2.00 Mrs. Aðalbjörg Jónsdóttir .... 1.00 Mrs. Björg T. Laxdal .......... 1.00 Mrs. S. E. Björnsson .......... 2.00 Jón Sigurðsson, Viðir .......... 1.00 Safnað af Mrs. Svöfu ög- mundsson, Blaine, Wash.: Mrs. Sigríður Pálsson ....... 1.00 Hóseas Thorláksson .......... 1.00 Vilhjálmur J. Hólm .......... ' 1.00 Mr. og Mre. Gunnar J. Hólm 2.00 Björn Asmundsson ............... 1.00 Mrs. Guðný Lee ................ 1.00 Mrs. Oddný Eiríksson .......... 0.50 Mrs. Hólmfríður Davíðsson 0.50 Vinveitt kona ................. 0.50 Bjarni Pétursson, .............. 0.50 Mrs. Elísabet Johnson ......... 0.50 Mrs. Jónína Reykjalín ......... 0.50 Mrs. Júlíana Sæmundsson...... 0.50 Mrs. Gunnvör Hallsson (skag-' firzk) ................... 0.25 Mrs. Guðbjörg Oddsson .... ... 0.50 Mrs. Sveinsína Berg ........... 0.25 Mrs. Svafa ögmundsson ...... 1.00 Safnað af Mrs. Lena Thor- leifsson, Langruth, Man.: Mrs. Anna Jacobson ............ 1.00 Mrs. Guðný Eyjólfsson ......... 1.00 Mrs. Guðfinna Björnsson ...... 1.00 Mrs. Sigurborg Gottfred ..... 1.00 Mrs. Lena Thorleifsson ......... 1.00 Safnað af Mrs. Pétur N. Johnson: Mrs. H. G. Sigurðsson, Foam Lake, Sask......... 2.00 Mrs. W. H. Paulson, Leslie ... 2.00 Mrs. E. J. Snydal, Est Lake, Colo ............. 1.00 Mrs. F. Dínusson, Svold .... 1.00 Miss Sigríður B. Stefánsson, Hallson, N. D............... 0.50 Miss LiIIian Dínusson, Svold 0.50 Björn Stefánsson, Svold ....... 1.00 Guðbrandur Erlendsson, Svold l-OO Safnað af Mrs. P. S. Páls- son: Mrs. T. W. Jacklin, Toronto 5.00 Mrs. Halldór Johnson, Wpg- 5.00 Austfirzk kona ............... Dr. M. B. Halldórsson ....... 10 00 Björn J. Hallsson ............. 3.00 Safnað af Mrs. J. Carspn: Mrs. Freda Johnson Philipson, Osland P. 0................. 5 00 Mr. og Mrs. Walter Matt- hews, Wpg..................... 3’00 Samtals ............$1002.10 J. A. JOHANNSON Garage and Repair Servic* Banning and Sargent Sími33573 Heima sími 87136 Expert Repair and Complete Garage Service Gas, Oils, Extras, Tires, B^tteries, Etc. GARRICK Last Time To-day Starting Friday: “SWWELL HEAD” ALL-TALKING Rex I>case, Roscoe Karns, Slim SummerviIIe, Dorothy Oliver Matinee tiil 7 o’clock 25c Evenings 40c ÁRSL0KAHÁTÍÐ JÓNS BJARNASONAR SKÓLA í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU, VICTOR ST. MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 26. MAÍ, kl. 8 Stutt guðræknisathöfn til byrjunar. Stúlknahópur skólans syngur; Miss Snjólaiug Sig- urðsson leikur á Piano; Rev. H. Rembe, snjall ræðumað- ur, flytur aðalræðuna; Kveðjuræður tveggja nemenda; Arinbjarnarbikarinn. — Öðruvísi en aðrar samkomur. Gjafir til skólans. Allir velkomnir! RYMKUNAR SALA Bezta tækifærið til að fá sér Karlmannaföt af beztu tegund á svo lágu verði, að þú mátt til að sjá það. FATNADUR Föt, Yfirhafnir og Regnkápur, Aðeins 63c hvert á $1 virði SKYRTUR Skyrtur, Nærföt, Kragar Hálsbindi og hundruðir annara hluta. Aðeins 69c hvert á $1 virði RIALTO THKATRK Ph. 2« 160 CAIUiTON an«l PORTACiK Commencing Saturday (G) “The Lost Zeppelin” Starring: Conway Tearle Virginia Valli Riehard Cortez 100% -TALKING AOULTS Any Stmt , Any Time 25c hlld Matlnee, Sat. 10 a.m. to 2 p.m., lOc Thur., Fri., Sat., This Week Mary Pickford and / Douglas Fairbanks Alls ................$781.55 HATTAR Þér getið valið úr flókahöttum vorum Aðeins 69c hvert á $1 virði Stiles & Humphries 216 Portage Ave. Næst Dingwall in an adaptation of Shakespeare’s “Taming of the Shrew” Mon. Tue. Wed. Next Week 100'/r Talking, Laughing 100% Talking; Don’t Miss It The Lady Lies —WITH— WALTER HUSTON and AII Star Cast Added: ® Talking Comedy; Fox News Ný skjót ferð með vörur til Selkirk Aitningavagnar vorir sækja vörurnar í vöruhúsið og fara með þær sama daginn til viðtakenda í Selkirk. Burðargjaldið er 20 cents á hundrað pundin, en 25 cents er það minnsta, sem sett er fyrir hverja sendingu (upp að 125 pundum). Sérstalct verð á vagnhlössum. Símið 842 347 eða 842 348 og vagninn kemur um hæl. Winnipeg, Selkirk & Lake Winnipeg Railway 2nd Floor, Electric Railway Chambers PION E.ERS o/ FREEDOM By JUDGE SVEINBJORN JOHNSON PIONEERS OF1 FREEDOM dsals with the origin of Iceland and its pioneer settlers; the government and social institu- tions; the pagan system, wlth a discussion of classical and oriental mythologies; the rights of women and child- . ren; the growth of sorcery and witchcraft; and poetry and saga. The chapter on Cristianity is a dramatic presentation of the spread of the Gospel of Christianity throughout the nation without the aid of a sword. A WORD ABOUT THE AUTHOR Sveinbjörn John-son was Attorney General of North Da- kota, Justice of the Supreme Court in that state, and is now Legal Counsel for the University of Illinois and Pro- fessor of Law. President Hoover named him on the Mil- lennial Commission to Iceland in 1930. PIONEERS OF FREEDOM is an octavo volume, attrac- tively bound in cloth and printed on heavy wove paper, with illustrations. Price $3.50 a Copy O. S. THORGEIRSSON, Winnipeg THE STRATFORD COMPANY, Publishers 289 Congress Street, Boston, Mass.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.