Heimskringla - 11.06.1930, Síða 3
WINNIPEG, 11. JCrNI, 1930.
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSIÐA
stangarstökk, með því að hlaupa
11 fet og 2. þuml. hátt (330.36 cm.).
Fram til ársins 1927 hefir hann leikið
sér að því að taka verðlaun á Islend-
ingadeginum, án þess þó að hafa
haft nokkurn tíma til þjálfunar, enda
hefir íþróttaáhugi landa hér legið í
dvala að miklu leyti síðustu tiu árin,
eins og síðar verður að vikið.
Magnús S. Kelly frá Selkirk var
ágætlega fjölhæfur (all-round) í-
Þróttamaður. Hástökkfimi hans er
áður minnst á. Bezt létu honum
grindahlaup, sérstaklega hin lægri
(low hurdles). Setti hann þar met
fylkisbúum Manitoba, er enn mun
standa, ef rétt er munað, en því mið-
nr hefi eg eigi átt kost á að sjá tíma-
'engdina. Hann var tvisvar fyrirliði
'þróttakappflokks Manitobaháskóla
°g gafst ágætlega. Hann féll í stríð-
'nu mikla.
Þriðja mannsins verður að minn-
ast frá þessum tímum, en það er
Baldur H. Olson læknir, er var hinn
magnaðasti “skrið-finnur” (skíða-
laus þót; manna frástur á fæti í
meðal löngum hlaupum. Hann vann
%milu, V2mílu og 1 mílu á helzta
iþróttamóti ársins 1909 hér í Winni-
peg. Mun hann hafa hlaupið hálfa
mílu á 2 minutum og 8 sekúndum
og er það gott eins og reyndar
afrek þau, er hér eru að ofan
nefnd, þvi þjálfun er hér
ekki enn, og var sízt þá, nokk-
uð til líkingar svo iðkanleg sem t. d.
í Bandaríkjunum.
Þáttur Gíslasonsbræðra.
Norður með Manitobavatni er |
sveit sú sem almennt er kölluð
“Bluffið”, en á Canada landabréfinu
heitir hún Reykjavík, Man. Eins og
Hindin
(Þýtt úr dönsku.)
eftir H. Drachmann
Sást þú minn kæra, konunglega vin,
sem kólfur þyti fram hjá skógarhlyn,
sem hindran engin honum tafar geymi;
sem leiftri ský um loftsins bláu svið,
sem land og jörð hann ekki komi við,
sem æðarbliki öldusollin mið,
er áfram hljóðlaust hafeins rastir streymi?
Hve oft hann kom, minn konJunglegi vin,
hvert kosið mót ber sífelt endurskin,
er ein um þykknin flóttaför hans ylja.
—Og sjái eg ferð hans fjær und bjarkameið,
hve finn eg sárt, er mér hann eftir beið
og stoltið skein úr auga og ást um leið.
—En augans þrá má Hindin til að dylja.
Þótt hverfi hann sýn, minn konunglegi vin,
hann kemur aftur, þar und fornan hlyn,
er þrýtur dag, og þagna raddir allar.
Því Hind og Hjörtur, hvert sem jarðardýr
af hartans þrá til ástar sinnar flýr
og nýtur ljúft, unz lindin þrýtur skýr,
er lágan ómar, sífelt, sífelt kallar.
f
Og komir þú, minn konunglegi vin
með kné þín beygð og sár, und fornan hlyn
svo blóð þitt rautt um rjóðrið fagra hrynur.
Mun Hindin bjóða brjóstið, feginvönd,
þó blæði helsærð, móti stálsins rönd,
er veiðimannsins harða, grimma hönd
þér hafði búið, konunglegi vinur.
T. T. Kalman
nafnið bendir til er þar íslendinga-
nýlenda. Búa þar um 15—20 íslenzk-
ir bændur, og stunda griparækt og
fiskiveiðar. Er það líklegast það bú-
skaparlag, sem bezt á við Islendinga
og mest líkist búskap heima. Land-
kostir eru þar góðir, svo að heyafli
tekur ekki nema skamman hluta
sumarsins, og gefur nægan tima til
hvíldar og upplyftingar. Og þó að
vetrarfiskið sé harðsótt og karlmann-
legt verk, þá hefir það þó þá tvi-
hættu og vaskleika eiginlegleika í
för með sér, sem gerir verkið meira
að íþrótt og leik en vanabundnurn
þrældómi. Enda hefir viðhaldist þar
á meðal Islendinga meiri virðing og
aðdáun fyrir einstaklingsþrekinu, en
títt er nú á tímum. Er kapp mikið
á milli drengjanna um hæsta orðstír-
inn í íshöggi, i netatöku, í úlfaveið-
um, í reipdrætti, í krók, í lyftingum,
í kefladrætti, í áflogum, og yfirleitt
x öllu, sem að einstaklingsvaskleik
og íþróttum lýtur. Enda hefir vax-
ið þar upp flokkur harðsnúinna at-
gervismanna, svo að vart mun önn-
ur af sveitum Islendinga hér í álfu,
hafa öðrum þvílíkum á að skipa.
Fremstir í flokki þar eru þeir bræfl
ur, synir Ingvars bónda og póstaf-
greiðslumanns Gíslasonar. Þeir eru
fjórir, sem vaxnir eru: Ingvar, ósk-
ar, Oddgeir og Runólfur, allir hinir
mestu vaskleikamenn. Enda eiga
þeir ekki langt að sækja atgervið,
því Ingvar faðir þeirra er einn af
allra fríðustu og vörpulegustu Is-
lendingum hér. Af Gíslasonsbræðr-
um hafa tveir farið í víking, og flutt
heim glæsilegt herfang af íþrótta-
mótum Manitobafylkis og Canada.
I. Gíslason vann meistaranafnbót
Manitoba í einu»n af léttari þyngd-
ar flokkum (featherweight) “Catch
as catch can” glímunnar árið 1923,
en árin 1924 og 1925 er hann meistari
Canada í sama þyngdarflokki þeirr-
ar glimu.
Var hann þá eiginlega sjálfkjörinn
til að mæta á ólympsku leikjunum
1924 fyrir Canada hönd, en vegna
hlutdrægni og þjóðarrembings aust-
urfylkjanna, varð það úr að annar
maður úr þyngri flokki, Jack Mc-
Laughlin, var sendur, voru þó engin
tvímæli um að Ingvar var þeirra
betri glímumaður, og var allra trú
að hann hefði borið sigur úr být-
um.
Oddgeir Gíslason hefir meistara-
titil i lightweightflokk "Catch as
catch can” fyrir Manitobafylki, ár-
in 1925 og 1926, en siðan mun hann
ekki hafa keppt, sakir annríkis og
óhagstæðrar aðstöðu til þjálfunar.
Báðir þeir bræður hafa vakið að-
dáun íþróttavina með bragðfimi og
framúrskarandi flýti og snarræði. Er
enginn vafi á að þekking á íslenzk-
ENGlNE
f £NG\Ht^
Ár eftir ár bætast þúsundir við tölu þeirra,
er nota einungis British American Gasolene
og Lubricating oil.
Eigendur bíla, dráttvéla og trucks hafa
reynt, að vörur þessa canadiska félags eru
ávalt hinar beztu árið í kring. •
VISS TEGUND FYRIR
HVERN BIL, TRAC-
TOR OG TRUCK
7he British American Oil Co. Limited
Suþer-Powfr and Bnlish Aniprican ETHYL Grisolenes - úuluione OUs
\
um glímubrögðum og ryskingum hef-
ir verið þeim mikill styrkur í glímu-
afrekum þeirra.
Þá hafa og Islendingar átt sér af-
burða vaskann glímumann, þar sem
er Peter Slgurðsson tinsmiður í Win-
nipeg. v'ar nann um ^itt skeið
glímumeistari British Columbia fylk-
is I miðþyngdarflokki.
Sælla er að gefa en þiggja.
Það, sem Mörlandinn hefir viða um
heim “innprentað” mönnum á skytn-
ingi, að hann teldi “sælla að gefa en
þiggja á kjaftinn”, eins og K. N. orð-
aði það fyrir hann, eru landar nú
bókstaflega farnir að lemja inn
í höfuð erlendra andstæðinga sinna
á hnefaleikamótum. Fyrir fáum ár-
um eignuðumst við Islendingar i Win-
nipeg afburða hnefaleikamann, þar
sem var Paul Frederickson, ættaður
úr Argylebyggð. 7. desember 1926
vann hann meistaratitil Manitobafylk-
is í fjaðurvigt, og vorið eftir varð
hann Canadameistari í léttvigt. Bar
hann svo langt af öðrum samþyngdar-
mönnum sínum, að öllum þóttu fá-
dæmi, er eg heyrði á minnast. Sá eg
úrslitaleikinn milli hans og Sam
Hackett, er nú er næst bezti' “pro-
fessional” í Canada sinnar þyngdar.
Var það svo ójafn leikur sem hugsast
gat, eftir fyrstu atrennu, og var Hac-
kett þó bæði hittinn, fimur og snarp-
ur. Töldu allir víst að Páll myndi
verða sendur til ólympsku leikjanna
þá um sumarið, og efaðist enginn um
að hann mundi koma aftur með
heimsmeistaratitilinn, svo var hann til
yfirburða gæddur skapi, hörku og
höggfimi og jafnvægi. En sami þjóð-
ernisrígurinn og austanrembingurinn,
er stóð Ingvari Gíslasyni í vegi, girti
líka fyrir götu Páls á hinn ólympska
vettvang. Siðan mun hann ekki hafa
gefið sig við íþrótt sinni að heit-
ið geti.
Annan góðan hnefaleikara höfum vér
eignast síðan, Arna Jóhannesson, er
í vetur vann meistaratitil Manitoba-
fylkis í sínum þyngdarflokki (létt-
vigt).
Ýmsa fleiri íþróttamenn mætti til
nefna frá síðari árum, er vel hafa
gert, án þess þó að þeir hafi algerlega
skarað fram úr, svo sem þeir, er
nefndir hafa verið. Af fjölhæfum i-
þróttamönnum man eg helzt að
nefna öskar Þorgilsson frá Lundar;
Rögnvald Pétursson verkfræðing, son
ólafs Péturssonar fasteignasala, og
Ed. Þorláksson, M.A. Hlaupagarpana
Ed. Oddleifsson og Fjelsted. Og nú
síðast Sigurð Sigmundsson, háskóla-
stúdent, ágætan hockeyleikara, knatt-
leikara og námsmann um leið. Marga
fleiri mætti sjálfsagt til nefna, en ein-
hversstaðar verður staðar að nema.
i Fiskimenn
| Athugið!
Ágætis útgerð, aðeins ársgöm- |
| ul og mjög hentug fyrir norð- 1
f urvötn Manitoba, er til sölu nú |
þegar á mjög sanngjörnu verði. |
f Regluleg kjörkaup fyrir mann, |
sem hugsar sér að stunda fiski- |
veiðar norður á vötnunum fyrir I
norðan The Pas næsta vetur. |
Nánari upplýsingar veitir
JÓNAS THORDARSON
109 Grain Exchange Bldg. !
Phone 23 297
Glfman.
“Glfman” er auðvitað íslenzka glím-
an, vor á meðal. Hún mun ekki hafa
verið iðkuð af miklu kappi né list
fyrstu áratugi Islendinga hér, enda
var hún þá ekki til lífsins vöknuð
heima. Þó sáust hér góðir glímumenn
við og við, t. d. Asmundur Jóhanns-
son og Halldór Methúsalemsson Swan
En við komu þeirra Guðmundar Stef-
ánssonar glímukóngs og Guðmundar
Sigurjónssonar virtist sem ný öld
myndi einnig hér upp renna. Gengust
þeir fyrir glímuiðkunum og komu
ýmsir snarpir og efnilegir glímumenn
í ljós, t.d. Jakob Kristjánsson, Bene
dikt ólafsson, i Winnipeg, ..óskar
Þorgilsson frá Lundar og Kristinn
Oliver frá Winnipegosis. Eru sér-
staklega tveir hinir síðastnefndu af-
burða föngulegir menn á velli og
skæðir glímumenn. Hefði eg viljað
sjá þá reyna sig, en hygg ekki að
þeir hafi ázt við; en einna glímu-
mannlegastur virðist mér ef til vill
Kristinn allra manna, er eg hefi séð
hér vestra, og minna mest á glímu-
(Frh. á 7. bls).
VISS MERKI
um nýrnaveiki eru bakverkir, þvag-
teppa og þvaigsteinar. GIN PILLS
lækna nýrnaveiki, með því aS deyfa
og græða sjúka parta. — 50c askjan
hjá öllum lyfsölum.
131
WHEN BUILDING-----------------
USE YOUR OWN
Hydro Light and Power
in your home and business
REMEMBER—Hydro has saved the citizens of W'innipeg
Millions of Dollars
in lowered electric rates.
Consult Hydro Engineers on Electrical Problems
Phone 848161
Service WtmupeOHi}dro,
Hydro
at customers are
cost 55-59 ® PRIHCESSSI Hydro builders
TRADE MARK
RESSTCRIO
SELECTEO BiRD
.SPRIRG WHEAT,
pURliy FC0Up
CAlSí'
•isnoon ",llsAT como"
GOOCRICH -
G0DUR
ÁRANGUR
þó í smáu
sé byrjaS
Allt hefir haft sína
byrjun. Hið smæsta
§sem hið stærsta. Það
vita allir. Hví þá
q ekki að byrja í dag?
}J $1 er nóg til að byrja reikn-
ing með.
V/z% vextir
Manitobafylkið er beinlínis á-
byrgðarfullt fyrir endurgreiðslu
á innlögðu fé.
Afgreiðslutími 9 f.h. til 6 e.h.
Laugardögum 9 f.h. til 1 e.h.
PROVINCE OF MANITOBA
SAVINGS OFFICE
ER AÐ HÆTTA
AÐ VERZLA
MIKIL ÚTSALA
KARLMANNAFÖT
HATTAR OG SKYRTUR
\ •
á svo lágu verði að enginn ætti að fara
á mis við hagnaðinn af að kaupa það.
Komið og sjáið.
Donald St. hjá Ellice Ave.
^ og 984 Main St. ^jl
S Winnipeg 8
»acceooocosoooocoooososoc9
STILES & HUMPHRIES
261 Portage Ave., Næst Dingwall