Heimskringla - 11.06.1930, Blaðsíða 4

Heimskringla - 11.06.1930, Blaðsíða 4
4. BLAÐSÍÐA WINNIPEG, 11. JCNl, 1930. ffcimskringla (Stofnuð 1886) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS. LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist íyrlrfram. Allar borganir sendist THE VTKING PRESS LTD. SIGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum Ritstjóri. Utanáskrift til hlaðsins: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg. “Heimskringla” is published by The Viking Press Ltd. and printed by THE SERVICE PRINTING CO., LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 89 994 WINNIPEG, 11. JCNI, 1930. TIL LESENDANNA Heimskringla ríður að þessu siimi prúðbúnari úr garði og með meira vega- nesti en nokkru siniii fyr. Þetta mun vera stærsta eintak blaðs er nokkru sinni hefir út verið gefið á íslenzka tunga, eins og getið er um á öðrum stað hér í blaðinu. Þótti útgefendum Heimskringiu það viðurkvæmilegt fyrir margra hiuta sakir, og þá sérstakiega í tilefni af 1000 ára afmæli Alþingis. — Þegar Heimskringla var stofnuð, gerðu útgefendurnir grein fyrir tilætlun sinni með þessum orðum meðal annars: “Blaðið verður einkum og sérstaklega fyrir íslendinga í Vesturheimi. Öll þau mál, er þá varðar miklu munum vér og láita oss mfklu máli skifta, ,hvort sem það eru stórnmál, atvinnumál eða mennt- amál.” Ennfremur segja þeir, og er til þess vikið með tilliti til tilefnis þessarar út- gáfu: “En þar með er alls eigi sagt, að vér viljum ganga framhjá þeim málum, sem landa vora á íslandi varðar sérstaklega. Einkum viljum vér taka svo mikinn þátt sem oss er mögulegt í stjórmálum þeirra og bókmentamálum. Yfir höfuð vildum vér stuðla að því af fremsta megni að meiri andleg samvinna gæti komist á með löndum heima og löndum hér.------” Heimskringla hefir eigi brugðist heiti stofnendanna gagnvart íslandi, fremur en heitinu er Vestur-íslend- ingom var gefið. Hún leggur sérstaka stund á það, sem annað aðal hlutverk sitt, að halda sambandinui við íslánd, treysta það og styrkja. Höfum vér ádur gert grein fyrir meginástæðunni er blað- ið hefir til þess fundið og vísum vér til þeirrar greinargerðar, sem birt er á öðr- um stað í þessu blaði. Vér höfum alltaf litið svo á, að það hljóti að vera eitt af veglegustu hlutverkum þjóðrækinna ís- lendinga í þessari álfu að sannfæra ná- búa vora voldugustu þjóð heimsins og hið verðandi stórveldi, Kanada, um það, að ýmislegt meira og betra megi nema af fámennustu þjóð heimsins, um heimilis- stjórn, en það sem elztu stórveldi hafa að þessu getað kennt með fordæmi sínu. Og verði ekki hægt að benda á ísland fram- vegis til fyrirmyndar í þessu efni, þá er það af því, að forráðamenn þjóðarinnar, þeir er í náinni framtíð eiga að skapa æfikjör hennar, þekkja eigi sinn vitjun- artíma. Því vér erum þess jafn fullvissir, sem vér höfum áður sagt á ritstjómar- síðu HeimSkringlu, að á íslandi er , fyrir allra hluta sakir, betri jarðvegur en nokk- ursstaðar annarsstaðar í víðri veröld fyrir stórkostlegustu tilraunastöð til mannfélagsbóta. * * * Af alhug viljum vér þakka þeim, er á einn og annan hátt hafa veitt aðstoð sína til þess að unnt væri að gjöra svo úr garði þetta eintak af elzta íslenzka blaðinu er nú er við líði. Þess viljum vér geta um leið að fyrir vangá hefir fall- ið burt nafn höfundarins að forystu- greinninni -í 4. aukablaði, “íslenzkar byggðir í Bandaríkjunum,’’ við fyrirsögn þeirrar greinar. Höfundurinn er dr. Magnús B. Halldórsson. Biðjum vér hann að virða á betri veg vangá þessa. Og lesendur þá um leið missmíð þau, er annars kunna að hafa á orðið frá vorri hendi. Ritstjórinn HEIMSKRINGLA TIL HEIMFARENDA Nú brosir aftur byggðin minna dala,— þú byggðin, er eg fyrst með augum sá; og sömu vindar heitum hvarmi svala og sama gullið liggur snjónun!?á. Mín gömlu barnamál í brjósti hjala; eg bundinn stend og horfi á land og sjá. Því minnið talar munarbljúgt og fegið —og mér er sem eg geti ei andann dregið Já lífið streymir, eins og á mig streymdi, er undir snjó eg leit hið græna strá. Mig dreymir nú, sem áður oft mig dreymdi, er aldin fjöll eg sá við loftin blá. Eg gleymi dagsins stríði eins og eg gleymdi, er glampa af sól um kveld eg fékk að sjá. Eg veit eg finn þar hús, er vill mig hýsa, er heim til nætur sólin vill mér lýsa. Vér vitum eigi hvort margir íslending- ar, þeir er heim til íslands leggja héðan frá Winnipeg, 12. þessa mánaðar, kann- ast við þessi erindi eftir þjóðskáldið nbrska, Ásmund Ólafsson Vinje. Og ekki muna heldur allir þeir átthaga sína, sem á íslandi eru fæddir, og í þeirri för verða. En ekki væri ólíklegt, ef einhver kynni þessi erindi, þeirra er átthaga sína muna, að þau kæmu honum í hug, er hann sér ísland rísa úr sjó. Því eftir þeirri stund hefir margur beðið langa æfi. Vegu bláa vestur um haf hleyp eg himinborinn, þangað sem Garðars ' gamla ey , há úr hafi rís. Svo hleypur og hugur heimfarenda, eins og vindurinn, er Jónas lagði þessi orð í munn. Munurinn er sá einn, að nú verður skeiðið þreytt austur um haf, en eigi vestur; frá gresjum, ströndum og fjalldölum Vesturheims, en eigi frá “hæð- um Hertu’’, eða beykiskógunum í Sæ- lundi, er Kaupmannahöfn girða grænu skrúði. Himinborinni heimþrá fer hug- urinn austur um haf, á skjótari vængjum en nokkur vindur fer. Og vís er Íslandi fullyrðingin: Ó, hve þeim er þín ásýnd fögur, sem allan daginn biðu þín. Þeir hafa margir allan daginn beðið, er nú snúa heim. Þeirri bið, og þeirri þrá, er henni hefir fylgt, hefir verið af öðrum betur lýst á þessum síðum en svo, að þar sé frekar höndum um farandi. En einmitt af því að biðin hefir verið mörgum svo löng, og hugsunin um endur- fundina svo heit, varðar það mest af öllu, að þeir, er loks ná heim, verði ekki fyrir vonbrigðum einmitt af því, að þeim finnist raunveruleikinn daprari en draumurinn. Vér segjum þetta af því, að vitanlegt er, að sú hefir mörgum orðið reyndin á. En sízt af öllu vildurn vér að “þessari sögu svo færi,’’ að þeim, er nú halda heim, fyndist ekki blærinn eins blíður og bam- æskunni fannst hann, að þeir söknuðu svaians, en kenndu kulsins, að þeim leit- andi fyndist fölskva slegið á gullið, er þeir með augum æskunnar sáu á snjónum. Þess vegna vildum vér að hver heimfar- andi byggi sig svo undir heimkomuna, að vonbrigðahættan yrði sem minnst. Ekki svo að skilja, að vér vildum draga úr fagnaðarlöngun nokkurs manns. Held- ur aðeins áminna menn um að beina henni á réttar brautir. ísland á enn í skauti sínu alla fullnáegingu hennar, ef menn aðeins glata ekki lásgrasinu, er lýkur upp fyrir þeim Sesam þeirrar fegurðar, er þar hef- ir setið og sitja mun að ríkjum frá eilífð til eilífðar. Þar eru heimar horfins tíma, hundraða ára falin í grundu minning þögul ótal anna, — á óp og kall er þar hlustað valla; farðu því hljótt um furðu gættir, flangrirðu með lausung þangað, yfirborðs glefsi, handa hrifsi, hismi náir, en engum tisma. * * * Ekki er það, að nokkrir menn fari nú heim með “yfirborðs glefsi”. Islendingar hafa það aldrei gert, eða ef einhverjar undantekningar kynnu að finnast, þá eru þær svo fáar og smáar, að ekki er á lít- andi. Menn ha/a áður farið fagnandi heim. . En of margir, þótt langt sé frá, að menn eigi þar óskiftan hlut að máli, komið aft* ur með þungan sjóð vonbrigða, léttari end- urminningunum seiðmögnuðu, flestum eða öllum. Þeim hefir fundist loftslagið kalt, húsa- kynnin köld. Viðmótið kalt; að minnsta kosti ókunnuglegt. Vistin einmanaleg; jafnvel maturinn allt öðruvísi en hann átti að vera. En um hann skal ekki fjöl- yrt að sinni. Það er satt: ísland er kalt land á sumr- in, eins kalt þá, samanborið við gresju- fylkin í Canada, eins og það er hlýtt um háveturinn. En það er sem menn gleymi því, er menn leggja af stað héðan á vorin, ef til vill í steikjandi hita og sólskini, að öllum trjám í laufskrúði. En sá sumar- kuldi er ekki verri en það, að hann má sem auðveldlegast af sér klæða, svo að | hann finnist aðeins sem þægilegur svali, hvort sem er úti eða inni. FHestir fara ekki heim fyr en eftir 15 —40 ára dvöl. En hversu langt sem lið- ið er, þá stendur sveitin þeirra eða þorpið fyrir hugskotssjónum eins og það var daginn sem þeir yfirgáfu það fyrir fullt og allt. Náttúran er söm við sig, eftir 20—40 ár. En fólkið er allt annað. Forn- ir vinir og kunningjar eru komnir út í buskann, eða undir græna torfu. Oft aðeins fáir eftir. Ný kynsióð er vaxin i upp, með nýjar lífsskoðanir og nýtt við-! mót. Jafnvel fornkunningjarnir virðast! oft stórum breyttir til hins ókennilega. Þeir hafa þroskast með sinni tíð. Og hafi þeir í raun og veru staðið sem næst í stað, þá er það samt ef til viil lítil bót í máli, því aðkomumaður hefir þroskast í annari samtíð, eða að minnsta kosti van- ist. En geri menn sér eigi nægilega glögga grein fyrir þessu, þá er eigi að kynja, þó að mörgu sveita- eða smáþorpsbarninu þyki vistin einmanaleg, er til lengdar læt- ur, er heim kemur úr langi fjarveru. Þvi flestir hverfa heim í tiltölulega fámenn- héruð. En til þess að geta unað iðjuleysí, þótt ekki sé nema tiltölulega stutta stund, þarf annaðhvort fjölmennan eða glaðan kunningjahóp, eða peninga, eða hvort- tveggja hvort sem á íslandí er eða annars- staðar. En geri menn sér þess yfirleitt ljósa grein, að náttúran er söm við sig, að átt- hagarnir eru hinir sömu, þótt breytt eða ný kynslóð komin í kunningja stað; stpfni menn heim með eftirvæntingu um það, sem varanlegt er, fremur en í leit að tvístruðum eða torkennilegum æskuvin- um, þá ætti engin manneskja með heil- brigðri skynsemi að þurfa vonbrigðin að óttast. Því söm er Esja og samur er Keilir. * * * Og Þar er Heklufjall og Hofsjökull, Balljökull, Bláfell og Baulutindur, Hólmur, Hegranes og Hlíðin góða, þar sem enn byggja ættmenn þínir. Ef eigi kunningjar. Landið er eins og það var í bamæsku þinni; eins og það var fyrir þúsund ámm; fyrir örófi alda. Lóu- kliðurinn og lækjarniðurinn er eins í dag og fyrir fjörutíu árum síðan. Spóinn er jafnvitlausíega vanafastur að vella' og syngja allan daginn, eins og hann var á dögum Páls Ólafssonar, og sólskríkjan situr enn á sama steini, þótt Páll sé löngu horfinn og lifi aðeins í ljóði og vísum. Gullfoss og Dettifoss drynja sama fimb- ulbassann, er þeir kallast, á yfir öræfi og ódáðahraun. Fjólan ilmar enn í sól- brunnu garðbrotinu og reyrgrasið er jafn anganmilt eins og á smalaáranum. Brim- ið svarrar við sömu sanda, á sömu flúð- um, og æðarfuglinn er jafnspakur og þá; jafngeigvænlegt útburðarvæl himbrim- ans í ísaþokunni; undir nótt; undir mikið döggfall eða regn. Og vér vitum öll, að undir norðurásnum er ofurlítil tó. Hún hefir beðið eftir þér, og hefði beðið lengur. Þar geturðu lagst niður og orðið! lítill aftur, og beðið þess að nóttin komi og breiði rökkrið yfir þig. Þar geturðu farið höndum um náttsvöl strá og þrýst andlitinu í ilmgróðurinn, og aftur dregið að vitum þér sætan, moldrammann eim, unz þú grefur finguma í grasrótina og j þvala moldina, gagntekinn af einhverri óumræðilegri þrá, eins og öll líkamshöft ætli að springa. Og þar geturðu legið og enn einu sinni á æfinni fengið að hlusta á þögnina miklu, unz hún ómar í eyrum þér sem básúna dómsins, svo að ekkert annað hljóð er í veröldinni. * * * Ef vér ættum eina ósk heimfarendum til handa, þá væri hún sú, að þeir Ijúki svo þessari ferð, að jþeim fyndist það hafa verið vel þess vert að gefa alla æfi sína fyri' eina nótt í Paradís. FRETTABREF FRÁ BLAINE (Frh. frá 1. síðuj. ast efndi það til hnefaleika og gerði þá bezt frá fjárhagslegu sjónarmiði. En á öllum mjög vel, dæmt frá öll- um hliðum. Ungmennafélag þetta var stofn- að með aðstoð séra H. E Johnsons snemma á árinu 1929, og hefir verið vel vakandi og starfandi síðan. Kvenfélag Fríkirkjusafnaðar hef- ir staðið fyrir nokkrum spilasam- komum, og þess utan starfað eins og kvenfélög vanalega gera, haft bazaars, hlutaveltu o. s. frv., gefið 12 bekki í kirkjuna og borgað þá að fullu. Og auk þess hjálpað á ýmsan annan hátt. Söngflokkur safnaðarins syngur fyrir söfnuðinn, auðvitað, og flestar éða allar samkomur, aðalfélagsskap- arins og hinna ýmsu barna hans. I»eir lúthersku halda og sínar sam- komur árlega. Söfnuðurinn lék í vetur, þ. e. 1930, leikinn “Hann drekk- ur” á leikhúsi bæjarins og hafði hús- fylli. Síðastliðið ár, eða 1929, mun hann hafa haft eina eða fleiri arðber- andi samkomur. Kvenfélag þess safnaðar hefir æf- inlega tvær samkomur á ári. Aðra, nú í seinni tíð að minnsta kosti, á sumardaginn fyrsta. Svo siðan í byrjun 1929 hefir það haft yfir tvein) slíkum dögum að ráða, fram að þess- um tima, og notað báða vel. í>ess utan h^fir það bersvæðissamkomu á hverju sumri, oftast í júní. Eru þær vanalega vel sóttar. Einnig bazaar og hlutaveltu á hverju hausti. Fé- lag það er með eldri félögum hér í Blaine, og hefir gert mikið gott af sér, auk þess að styðja kirkju sína. Ungmennafélag þeirra lúthersku hefir komið og farið — vaknað upp og sofnað aftur. Oss er ókunnugt um starf þess með öllu. Söngflokkur sá sem mest og bezt hefir starfað hér í byggð, varð til á síðari prestsskaparárum séra H. E. Johnsons og fyrir frammistöðu hans, en undir stjórn J. M. Johnsons eins og áður hefir verið tekið fram af þeim er þetta ritar, í Heimskringlu. Samanstóð sá flokkur af lúthersku og frjálslyndu fólki, sem meira mat sönginn en sundrunguna, og samein- aði sig því til að syngja, sér til gleði og öðrum til gagns og gleði. Þegar tveir voru orðnir söfnuðirnir, og báð- ir höfðu sama messutíma (það var ekki fyrst), gat flokkurinn ekki sung- ið fyrir báða söfnuðina. Þess vegna klofnaði hann snemma á árinu 1929. Mun Fríkirkjusöfnuður hafa haft betri endann, þ. e. haldið meirihluta flokksins. En hvernig sem því kann að hafa verið varið, þá er það víst, að brot það, sem Fríkirkjusöfnuður hlaut, hefir fengið allmikið orð á sig og ver ið fengið til að syngja, bæði í Vancouver, B. C., og — ef minnið ekki svíkur — á Point Ro- berts. Samt voru góðir söngmenn og konur eftir hjá hinum. Sannast mun þó, að óskiftur mun flokkurinn góður. Skiftur, vantar raddir í báða parta, ef vel á að vera. Sjálfstæð félög eru Lestrarfélag- ið Harpa, eitt hið elzta, máske elzta félag bæjarins, þ. e. meðal Islend- inga. Harpa hefir vanalega sam- komu á hverju hausti, æfinlega með I fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið bin viðurkenndu meðui við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company. Ltd., Toronto, Ont.,. og senda andvirðið þangað. gamaldagssniði, svo sem ræður, kappræður, hlutaveltu, söng °S upplestur, eftir kringumstæðum, °3 gott á gamla vísu. Hún, þ. e. Harpa, er að öðru leyti afskiftalaus um önn- ur mál. Jón Trausti, hitt lestrarfélagið, hefir vanalega tvær samkomur á ári. Síðastliðið ár, 1929, hafði hann t>ó aðeins eina, nefnilega skógargildi- Samkomur Jóns hafa oftast verið góðar, meira til skemtiskrár vandað en hér var títt. Nú má hann gera vel að halda sínu. Þess vegna breytti hann til í vetur, þ. e. 1930, og efndi til miðsvetrarmóts, í líkingu við Þorrablót Helga magra. Var mjög til vandað. Skyldu þrír prestar flytja ræður. Ein þeirra var flutt af séra H. J. Leó. Tók hún svo langan tíma, að séra HT E. Johnson, sem var annar ræðumaður, vorkenndi fólkinu og fiutti aðeins niðurlag ræðu sinnar, en sendi hitt til Heimskringlu, sem göð- fúslega flutti ræðuna alla En séra Albert E. Kristjánsson skyldi vera þriðji maður, en hann gat ekki komið. Auk þessa var átta karla kór, upþ- lestur eða ávarp frá Magnúsi Johnson frá Fjalli, lesið upp af forseta dags- ins, M. G. Johnson; einnig tvö kvæði, ort fyrir það tækifæri af þeim skáld- unum frú Kristínu D. Johnson ír:i Blaine og Sigurði Jóhannssyni í New Westminster, m. fl. Veitingar voru alveg eins og við átti, miklar og ís" lenzkar að svip og bragði. Mót þetta var talið ein af beztu samkomum Is" lendinga í Blaine. Samkomur aðkomufólks hafa ver- ið margar á þessu tímabili. Eru Þ£cr sem fylgir: Samkomur prestanna Fr. A. Frið- rikssonar og Ragnars E. Kvaran, í Fríkirkjunni 20. ágúst 1929. 27. des. 1920: Samkoma séra Ragn' ars E. Kvaran í Fríkirkjunni. Kveðju- samsæti á eftir og veitingar í sam- komusal safnaðarins. Var söfnuður- inn að kveðja þau Kvaran og írU hans, sem lögðu af stað austur næsta dag. Þér fáið virði peninga yðar ef þér kaupið Buckingham vindlinga. Buckingham vind- lingar eru kaldir og beztu vindlingamir, er hægt er að fá; ávalt með sínu upprunalega töfrandi bragði. Mjúkir og ilmgóðir, svo allir dást að. Hver vindlingur vekur nýja ánægjutilfinningu hjá hverjium sem reykir. Buckingham eru rétt búnir til og geymdir eins og þarf með frá framleiðslustaðnum tii neytandans, í sérstaklega góðum umbúðum. Buckingham vindlingar eru óbrigðulir að efni. Tóbakið, sem þeir em búnir til úr, er svo gott, að ofdýrt ev til þess að vér getum látið nokkra miða eða premíur í pakkana. Þess vegna segjum vér — engir miðar — allt efni.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.