Heimskringla - 09.07.1930, Síða 2

Heimskringla - 09.07.1930, Síða 2
2. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 9. JtrLI, 1930. Trúarjátningin og Mán- aðarblað K. F. U. M. Strauma má panta hjá Benjamín Kristjánssyni, 796 Banning St., Win- nipeg.) (Grein þessi er birt hér til þess að gefa mönnum hugmynd um þá ein- örðu baráttu, sem allir hinir yngri prestar og guðfræðingar á Islandi hafa hafið gegn hverskonar skoðana- kúgun og trúarbragða-ófrelsi. Má af henni ráða, að þar hafa loksins komið fram menn, er einhverja við- leitni hafa til þess að fylgja sam- vizku sinni og sannfæringu gegn þý- lyndum afturhaldsanda trúarvanans, er einráðinn er í því að súpa hverja andstyggð erfðasyndanna til botns af sauðarlegri hlýðni hjátrúar og framtaksleysis. Jakob Jónsson, prest- ur á Norðfirði, talar fyrir munn allr- ar hinnar yngri sveitar, sem vígst hefir til þjónustu andlegra málefna á lslandi. Það ógeðslega flóð skætings og óbæna, sem afturhaldsblaðið Bjarmi og æðstu prestar K. F. U. M. í Reykjavík, hafa stöðuglega ausið yfir hina yngri menn, vegna þess að þeir af hæversku við gu^ almáttug- an hafa reynt að leita sannleika hans, svo sem þeir hafa vit á, sýnir glöggt hvar málstað þeirra er kom- ið. Ekki getum vér tekið undir þá skoðun með vini vorum Jakob, að nokkurt sannarlega kærleiksríkt prúðmenni eða göfugt og milt ljúf- menni, geti látið þá hrottalegu 6- svinnu út úr sér, að allir muni fara í kvalastaðinn, sem ekki imdirrita trúarjátningar K. F. U. M. í Reykja- vík, að minnsta kosti kemur prúð- mennskan ekki fram í þeim ummæl- um. Nær væri að álykta, að þeir, sem gala af slíku ofstæki hjátrúar- innar, hljóti að vera grimm- ir menn og miskunnarsnauðir, ef þeir tala í alvöru, því að naumast ætla þeir guð sinn grimmari, en þeir eru sjálfir, — en ef þeir tala ekki alvöru, eru þeir ábyrgðarlausir hræsnarar, sem enginn getur tekið mark á. Sú tilhneiging yfirleitt, að vilja ráða yfir trúarhugmyndum annara með hótunum eða valdi, er svo frá- munalega frumstæð og villimanns- leg, að merkilegt er að hún skuli fyr- irfinnast í siðuðu þjóðfélagi, löngu eftir að trúarbragðafrelsi er þó í lög leitt. Grein þessi er tekin úr Straumum, málgagni frjálslyndra presta á Is- landi, sem gefið er út af 12 ung- um prestum og guðfræðingum. — I. K. F. U. M. í Reykjavík gefur út lítið mánaðarblað og ritstjóri þess er hinn þekkti framkvæmdarstjóri félagsins, séra Friðrik Friðriksson. Allir, sem kynnast honum, hljóta að virða hann og elska, sakir prúð- mennsku hans, mannkærleika og hjálpsemi. Hann vinnur starf sitt af mikilli fórnfýsi og leggur sig fram af alhuga til þess að efla kristilegan félagsskap meðal ungmenna. Það er hverjum manni kunnugt, hvaða stefnu séra Friðrik fylgir i guðfræði. Varla mun unnt að finna ákveðnari eða "dogmatiskari” gamal- guðfræðing á öllu landinu, og þó að víðar væri leitað. Þrátt fyrir það hefir hann litinn eða engan þátt tek- ið í opinberum deilum um guðfræði, og meðal þeirra, sem orðið hafa snortnir af áhuga hans, innileik og góðvilja, eru margir, sem sízt gætu átt samleið með honum í umræðum um hana. Þeir líta þannig á, að ann- að og meira ráði úrslitum en guð- ' fræðin, þegar metin eru störf manna [í þágu guðsríkis. Mun svo hafa far- i ið fleirum en mér, að þeim virðist '■ séra Friðrik boða með persónulegum krafti það annað, sem þýðingarmeira var, guðstraustið, bænariðjuna og fórnfýsina. Enginn getur kynnst honum án þess að verða þess var, að djúp og dýrkeypt trúarreynsla ber uppi líf hans, bæði í leyndum og í op- inberu starfi. En einmitt sökum þessarar við- kynningar, sem ávalt er bjart yfir i ; huga mínum, kom mér á óvart litil j grein, sem birtist í desemberhefti Mánaðarblaðsins. Astæðurnar til þess að eg minnist á hana, eru aðallega i tvær. 1 fyrsta lagi virðist hún rit- uð sem einskonar svar við grein minni í síðasta “Prestafélagsriti” og hinum drengilegu fundarsamþykkt- ’um frá Borgarnesfundinum, og í öðru lagi finnst mér vert að gefa þvi gaum, hvert stefnt er í félagi eins og K. F. U. M. Eins og eðlilegt er, bæði vegna heitisins á félaginu og mann- kosta framkvæmdarstjórans, lita menn yfirleitt samúðaraugum til K. F. U. M. En þrátt fyrir það, má ekki skella skolleyrum við hverri firru, er þar kann að koma fram, og efamál er, hvort menn gera sér það lengi að góðu, að þar sé alinn upp öflugasti stofninn af ofstækisfullu afturhaldi í trúmálum. En þessi litla grein, sem eg nefndi, getur vakið grun um, að svo kunni að vera. Sá munnsöfnuður, sem í henni er, hélt eg að tæplega myndi tíðkast, nema hjá skamma- greinahöfundum stjórnmálablaðanna og “Bjarma”. Þar eru notuð þau orð um andstæðingana, sem eg hélt að flestum, er þekkja sögu Júdasar Iskariot, mundi hrjósa hugur við að láta sér um munn fara. Og eg efast um að • nokkur mundi gera það, ef hann setti sér nógu áþreifanlegu fyr- ir sjónir hvað í þeim felst. Greinarkornið ber fyrirsögnina “Kirkjan”, en er annars eingöngu um notkun trúarjátningarinnar (aposto- likum) í kirkjunni. Höf. segir, að postulleg trúarjátning sé gefin af heilögum anda. Hún er “innihald alls þess, sem kirkjan hefir að færa mönnum frá guði”, “hið helgasta”, sem hún á til þess að veifa í nafni guðs vors. En þetta merki er hatað af þeim, sem hata guð,. Krist og kirkjuna, og “fjandmenn guðs” njóta góðrar aðstoðar “sumra meðal kirkj- unnar manna, sem eru það í orði, en ekki í anda”. En þar munu vera fremstir I flokki þeir prestar, sem vilja trúarjátninguna burtu. En það getur kirkjan aldrei, “svo lengi sem hún heldur áfram að vera kristin kirkja”. “Þá væri hún ekki lengur tilheyrandi kirkju Krists”, “heldur eitthvert ókristilegt trúatffélag, en kristindóm ætti það ekki, nema þá í einhverri skrípamynd”. — Ekki lízt höf vel á ástandið, eins og það er nú. “Um stund geta þeir hreykt sér hátt hatursmenn guðsríkis og hróðugir geta um stund verið þeir Júdasar kristnu kirkjunnar, sem hafa stutt fjandskap þeirra með sviksemi og afneitun sinni, en Júdasarlikar lenda lagsbróður sínum hjá” — og þá læt- ur guð játningatrúna sigra. Hvað mundi svona orðbragð vera kallað, ef það væri ekki eftir einn virðulegasta klerk íslenzku kirkjunn- ar, heldur “Strauma-menn” eða eín- hverja aðra ennþá lakari. Á það að vera hlutverk “Mánaðarblaðsins” að árétta skætinginn í jólablaði Bjarma með fúkyrðum og brigslum? Margt getur okkur dottið í hug, sem “úti í fásinninu” tökum á móti jólapósti hinna “rétttrúuðu” í Reykjavík. Eitt er að minnsta kosti vist, að þama er engin tilraun gerð til þess að færa rök fyrir stórorðum fordæmingum eða öðru, sem fram er borið. Þess vegna hljóta margar spurningar og athugasemdir að koma lesandanum í hug. Hvar eru t. d. heimildir fyrir því, að heilagur andi hafi gefið kirkjunni játninguna? Ef svo er, hefir hann þá ekki líka gefið hinar höfuðjátn- ingamar? Allar hafa þær orðið til á svipaðan hátt, fyrir manna sjónum að minnsta kosti, sem afsprengi há- spekilegra heilabrota og guðfræði- legra deilna, sem oft máttu kallast illdeilur. Frá Kristi eru þær ekki komnar, svo vér yitum, og aðalrit postulatímabilsins, Nýja testament- ið og “Kenning postulanna”, nefna ekki postullega trúarjátningu á nafn, og er þó “Kenning postulanna” fyrsta lærdómskver kristninnar. Það er skrifað á 2. öld og ætlað þeim, sem taka vildu skírn. Eins og fleiri mannanna verk er hin postullega trú- arjátning að smámyndast og mótast allt þangað til um árið 500, eða jafn- vel lengur. Samkvæmt kenningu “Mánaðarblaðs K. F. U. M.” hefir kirkjan þvi allt fram til þess tíma engan kristindóm átt nema skrípa- mynd og söfnuðir postulanna verið “ókristilegt trúarfélag”. Er þeltta þveröfugt við það, sem flestir hafa haldið fram hingað til. Og ef satt er, sýnist það furðuleg ráðstöfun heilags anda, að láta dragast svo lengi að gefa mönnum hinn sanna kristin- dóm í stað skripamyndarinnar. “Mánaðarblaðið” virðist einnig lita svo á sem allt 'sé tekið fram í trúar- játningunni, sem kirkjan geti fært mönnum frá guði. Þarna vildi eg þó mega minna á eitt, sem höf. trúar- játningarinnar hafa fellt undan og það er líf og starf frelsarans á jarð- vistardögum hans. Eða er ef til vill engin þörf á, að mynd guðspjallanna af Jesú frá Nazaret sé færð mönn- um? Vera má að þá yrði hinni trú- fræðilegu Kristmynd miðaldanna of mikil hætta búin. En sennilega hefði bæði kirkjan og mannkynið verið betur komið, en fyr hefði verið horfið að því að rífa trúarjátninga-hjúpinn af Kristi guðsspjallanna og sýna hann í sögulegu ljósi. Trúarjátning- in minnist ekki einu orði á kenning- ar Krists, kraftaverk hans, lækning- ar, framkomu hans gegn olnboga- börnum mannlífsins eða syndsjúkum sálum. Til þess að færa mönnum það, verðum vér að ganga fram hjá öllum játningum og leita beint til Nýja testamentisins. “Mánaðarblaðið” kallar trúarjátn- inguna helgasta táknið, sem kirkjan á til þess að veifa í nafni guðs. Vera má, að líta megi á hinar fornu játn- ingar með nokkurri lotningu vegna þeirrar helgi, sem á þeim hefði hvílt um margar aldir. En að kristnin eigi ekkert helgara til að hafa að tákni eða merki, er vægast sagt fá- ránlegasti barnaskapur. Ritstjóri “Mánaðarblaðsins” veit vel, að ýmsir þeirra, s^m vilja trúarjátninguna burtu, hafa tilnefnt annað merki, bænina “faðir vor”. Það hlýtur því að vera meðal annars með hliðsjón af þeirri uppástungu, að hann kallar trúarjátninguna helgasta táknið. En mér er spurn: Getur hún talist helg- ari en faðir-vor-ið ? Ef ritstjórinn lítur svo á — og samherjar hans — þá væri fróðlegt að fá að vita, hvað þeir setja út á faðir-vorið, svo að sjálfsagt sé að skipa því skör lægri sess en játningunni. Annars ætla eg ekki að fara hér út í nánari saman- burð á þessu tvennu, en vísa til grein- ar minnar í Prestafélagsritinu. Frá hlið gamal-guðfræðinga hefir ekki enn, svo eg viti, verið sagt eitt orð um það, hvers vegna eigi er unnt að nota faðir-vorið sem merki kristinn- ar kirkju. Eg geng út frá þvi, að einhvern- tíma hafi verið í K. F. U. M. lagt út af orðunum: Dæmið ekki. — Þó leyf- ir sjálfur framkvæmdarstjórinn sér að kalla okkur, sem skifta viljum merki kirkjunnar, Júdasa innan henn- ar og skipa okkur á bekk með fjand- mönnum guðs. Þó efast hann víst ekki um, í hvers liði þeir eru. “Júd- asarlíkar lenda lagsbróður sínum hjá”. Við nýguðfræðingarnir erum farnir að venjast því, að fjandanum séu gefnar ávísanir á okkur, svo að eg kippi mér ekki svo mjög upp við það. En mér hrýs hugur við því, að slík orð komi frá manni, sem eg hefi litið upp til frá fyrstu viðkynningu, og af öllum er talinn einn hinn göf- ugasti prestur Islendinga á síðari tímum. En geta vinsældir eða virð- ing nokkurs manns réttlætt það, að hann setjist í dómarasess yfir starfs- bræðrum sínum og dæmi þá hiklaust í neðri staðinn. Því að öðruvísi verða orð hans ekki skilin. Annars er vert að athuga, hvað í Júdasartitlinum felst. Höf. einkennir hann með orð- únum: sviksemi og afneitun. Með öðrum orðum: við, sem viljum setja faðir-vor í stað trúarjátningarinnar. erum að svíkja mannsins son með kossi. — Því er þar með dróttað að okkur, að þótt við gerumst þjónar kirkjunnar, búi undirniðri vísvitandi viðleitni til þess að ofsækja Krist og kristindóm. Það má vel vera, að við séum illa innrættir, en fyr má nú rota en dauðrota. A sínum tima mun hinn guðlegi sannleikur dæma okkur og verk okkar hér á jörð. En K. F. U. M. hefir ekki enn hlotið neitt dómaravald í guðsríki, svo að það geti með margra alda gömlum mannasetningum lokað fyrir neinum manni dyrum þess. Slíkur dómsúr- skurður bjóst eg því aldrei við að kæmi frá jafn mildu ljúfmenni og sr. Fr. Fr., eg veit að hið sanna hugarfar hans er ekki á bakvið for- dæmingarorð hans í “Mánaðarbl.”, og von mín er sú, að barnavinurinn í K. F. U. M. haldi áfram að skrifa í öðrum anda, sem hæfir honum betur. II. 1 niðurlagi greinarinnar bendir höf. á það ráð, er hann hyggur að verða muni til að halda trúarj^tningunni í hefð og gildi. “Hver trúaður*' prestur ætti að hafa hana hátt yfir á predikunarstóli í hverri messu.” Þessi niðurstaða er í fullkomlega heilbrigðu samræmi við þá þýðingu sem höf. eignar játningunni, og er miklu meira vit í henni, en þeirri hjákátlegu hálfvelgju, sem nú er ríkjandi. Standi og falli allur kristin- dómur með trúarjátningunni, eru það svik við það helga erindi kirkjunnar að láta hana ekki hljóma sem hæzt í hvert sinn, er merm koma saman til að styrkja trú sína. Sé kjarni trúarinnar aftur á móti í öðru falinn, eru það samskonar svik að halda henni á lofti sem lýsingu sálhjálp- legrar trúar, og viðhalda þannig tví- veðrungi og blekkingum eða sið- spillandi sambreyskingi þeirra kenn- inga, sem enga samleið eiga. Það er þetta, sem mergsýgur kirkjuna á. vorum dögum. Við hverja bamsskírn ætlast helgi" siðabókin til, að þessi orð séu sögð: “Heyrum nú játning trúar vorrar, sem barnið á að skírast til.” — þau eru tekin alvarlega, er meira en lítið með þeim sagt (þvi að von- andi á ekki að skoða þeu sem mein- ingarleysu). Þau eru yfirlýsing kirkjunnar samþykt af þeim, sem bera barnið til skírnar, og getur að- eins orðið skilin á eina leið: Héðan í frá skal alt uppeldi barnsins miða að því að innræta því þær skoðanir, sem lýst er í postullegri trúarjátn- *) Við Júdasarnir erum sennilega ekki meðtaldir. (Frh. á 3. bls.) I i I i i i í i i í i i i í i i HVORTSKALVERA? GreiðiS Atkvæði Og notið áhrif yðar til stuðn ings JAS. H. STITT frambjóðanda Conservatíva f Selkirk kjördæmi. Canada Fyrst eða Canada Næst i * Hon. R. B. Bennett, leiðtogi conservatíva flokksins í Canada, hefir borið fram sanna canadiska stefnuskrá, sem áreiðanlega verður til þess að gera Canada að því mikla iandi, sem það á heimtingu á að verða. TRÚNAÐAR YFIRLÝSING. 1. Vér lofumst til ð vernda þá, er a ðfrumiðnaði þessa lands vinna, svo sem landbúnaði og hverjum öðrum undirstöðuiðnaði sem er. Vér lof- um neytanda einnig fullri vernd gegn yfirgangi auðshölda. 2. Vér lofumst til að efla akuryrkju, kvikfjárrækt og smjör- og mjólk- urbúaiðnað, sem svo hörmulega lítið er sinnt af núverandi stjórn. 3. Vér lofumst til að vinna að alefli að því, að bæta úr núverandi á- standi, bæta kjör almennings og vernda hann gegn viðskiftaoki, útlendu eða innlendu. 4. Vér lofumst til að efla viðskifti milli fylkja landsins, vinna að því að Canada noti sitt eigið eldsneyti, og bæta erlenda markaðinn. 5. Vér lofumst til að bæta samgöngur á allan hátt, norður á bóginn með því að vinna hispurslaust að því að ijúka við Hudsonsflóa brautina, og leggja nýja stúfa, sem nauðsynlegir eru til þess að brautin verði öllu landinu til sem mests gagns. í vestrinu með því að tengja iandið við Peace River leiðina, í austrinu með því a ðbæta St. Lawrence sjóleiðina. Vér lofumst til að gæta vel þeirra samgangna, sem nú eru, aukakig bæta hafnir við vötnin miklu, við Hudsonsflóann og á austur- og vesturströnd landsins. Þá iofumst vér einnig til að gera allt sem unnt er til þess að koma á þjóðvegasambandi um allt landið. 1 6. Vér lofumst til að stuðla að því að heppileg og ábatasöm viðskifti eflist milli brezka ríkisins og Canada. 7. Vér iofumst til að bæta ellistyrktarlögin og fullkomna. 8. Vér lofumst til að haga svo fjárveitingum, að allt landið megi í senn hagnast af því, er flokkurinn aðhefst í sambandi við ofanskráð mál. Eins og allir munu sjá, er ekki í ofanskráðri stefnu um neitt það að ræða, er eina stétt manna eða flokk snertir sérstaklega.. Stefnan er fyrir ALLT LANDIÐ. í stjórnmálastefnum flokkanna, hafið þér oft orð- ið þess varir, að þar er atriðum smeygt inn, sem aðeins eiga við sérstaka hluta landsins, og sem auðvitað voru ætlaðir til þess að vera beita fyrir vissa kjósendur. Mr. Bennett hefir skuldbundið sig til að framfylgja of- anskráðri stefnu bókstaflega, hvar í landinu sem vera skal. Það stendur á sama í hvaða hluta landsins þú átt heima og hver stétt þín eða staða er, þessum ákvæðum verður eftir því sem vit leyfir óhikað haldið fram, Can- ada til heilla í heild sinni. GEFIÐ CANADA TÆKIFÆRI ATHS.—Allir kjósendur, sem FYRST OG FREMST LÍTA Á HAG CANADA, eru beðnir að gæta þess, hvort nöfn þeirra séu á kjósenda- skránni, sem birt er í pósthúsinu. Ef einhver nöfn hafa þar fallið úr, þá símið tafarlaust til 202 og gefið fullt nafn yðar og áritun. # Birt af The Selkirk Conservative Association. I í j I í í í j I j j j ! j ( í j j I ! f ! ! f ! I j

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.