Heimskringla - 21.01.1931, Page 5

Heimskringla - 21.01.1931, Page 5
WINNIPEG, 21. JANTJAR, 1930- HEIMSKRINGLA ft. BLAÐSIÐA Stillur Frh. frá. 1. bls. verið slátrað á morgni lifsins af vitlausum yfirboðurum, er kalla sig kristna, og virðast álíta, að ein leið >n i fótspor þess, er boðaði frið og kaerleika, sé að æfa saklaus börn í því að slöngva sjötta boðorðinu tit helvítis, svo fljótt sem stjómvitringar okkar lenda í andstöðu við stjóm- vitringa annara þjóða. Blóð hins saklausa barns, Johnnie Graff, flekkar hendur hvers einasta embættismanns, frá forsætisráðherra niður, sem styður að hinum brjáluðu °S djöfullegu æfingum fyrir saklaus börn” Það sýnist svo, sem það ætti að vera fyrsta og mesta áhugaefni kirkjunnar, að efla hverja viðleitni, sem til friðar horfir í mannheimi; Þvi gangi þjóðirnar þá guðsríkis- hraut, að útiloka hernaðaranda og hóflaus hryðjuverk styrjaldanna, þá mun allt annað gott veitast mann- kyni. En þegar litið er til baka, dylst það ei, hve hróplega kristin kirkja vanrækti þá skyldu, er henni bar að inna af hendi á síðustu styrj- aldarárum, og hve áhrifalaus hún er yfirleitt um öll þjóðmál, er nokkru •náli skifta. Enda játa hreinskilnir Prestafr þenna veikleika kirkjunnar. öðruhvoru gægist það fram hjá þeim að gera þurfi ráðstafanir, "ef kirkjan * að reynast verkefni sínu vaxin”, °g "kirkjan þurfi ^verulegra umbóta eigi hún að fylgjast með hinum víðtæku breytingum á sviði þjóð- •hálanna” o. s. frv. — Einkenilegt er aS vel menntir og gáfaðir prestar, skuli haga orðum sínum á þá lund, að umbótastarf innan kirkjunnar sé nauðsynlegt, fyrir breyttar kröfur tyðsins. Þvi þarf kirkjan að dragast •neð? Því ekki að leyfa huganum Sv° frjáls vængjasvif, að kirkjan eigi að vera í fararbroddi? Myndi t. d. ekki kirkjan hljóta virðingu og þökk bvers einasta hugsandi manns, ef hún beitti sér fyrir að hreinsa þann smán arblett af skólum æskulýðsins, sem iðkun vopnaburðar er af saklausum börnum, sem ekki skilja þann við- bJóð, er til grundvallar liggur? Eg heimfæra orð séra B. K. hér og undirstryka þau, — “ef kristin kirkja er til nokkurs nýt, þá er það henn- ar verk að lækna þetta mein”. En “kristin kirkja” hefir sjálf staðið í innbyrðis ófriði og smásálarlegum ná búakrit, og á meðan svo er komið málum hennar, verður afsakanlegra þó ýmsum finnist skaðlaust að leggja hana niður. Það kann að þykja nokkur vorkun þó fjöldi presta séu værukærir í em- bætti sínu, og störf þeirra snúist um fánýta hversdagsmámuni, þvi engum dylst, að í þeirri sveit, eins og á öðr- um sviðum mannfélágsifis, situr margur á rangri hillu. — Og þess vegna verður þá líka fögnuðurinn meiri — jafnvel á meðal “heiðingja’,’ þegar svo ber af um kennimennsku, sem ræðan í Heimskringlu 12. nóv- ember s.l. ber vitni um. Asgeir I. Blöndahl- Saskatoon 16. jan. 1931. '7 ivíSr' .... - v -f Hallfríður Gíslason Þann 5. nóv. síðastliðinn, andaðist að heimili sinu hér i borginni, konan Hallfríður Hallgrímsdóttir Gíslason — eftirlangvarandi lasleik. Var hún og heimili hennar flestum Islend- ingum hér að góðu kunnugt, um margra ára skeið. Hallfríður sál- var fædd á Hóli i Fjörðum við Eyjafjörð, 26. des. i 1860, — og ólst hún þar upp með foreldrum sinum, til fullorðins ára. Ætt hennar mun bæði í Eyjafjarð- ar og Þingeyjarsýslum. — Arið 1882 giftist hún Magnúsi Guðmundsyni, en missti hann í sjóinn fáum mánuð- um síðar. Næsta ár flutti hún vestur um haf, og settist að hjá Hallgrími bróður sínum, er numið hafði land á “Fjallabrúnunum,” um 5 mílur norðvestur af Garðar, N. Dakota. Árið 1885 giftist hún Kristjáni Hall- grímssyni Gíslasonar, og bjuggu þau fyrst á föðurleifð hans, nálægt Garð- ar. — en fluttu inn til þorpsins 1894, og höfðu þar gestgjafahús, þar til árið 1901 að þau leituðu vestur á strönd. Þau hafa búið hér í Seattle síðan, og tekið ákveðinn og góðan þátt í félagslífi Islendinga, og eign- ast fjölda vina. Þeim hjónum varð sjö barna auðið, en aðeins tveir syn- ir: Garðar og Jónatan Emil, lifa móður sína, ásamt föðurnum. Þrjú börn þeirra dóu í æsku, (tvær dætur og einn sonur), og tveir synir upp- komnir — ágætis menn. Einnig missti Hallfriður sál. 17 ára gamlan son sinn eftir fyrri manninn — mjög efnilegan pilt. Af systkinum hennar mun aðeins ein hálfsystir á lífi, Margrét Þorsteins- son, í Reykjavík. Jarðarförin fór fram sunnud. 9. des. — og var afar fjölmenn. A íslenzku talaði séra A. E. Kristjáns- son en á ensku séra K. K. ólafsson. G. Matthíason söng sólo, en ísl söngflokkurinn sálmanna- — Lit- fögru blómskrúði var raðað allt um kring — og laðaði það fremur endur- minningarnar, á ómótstæðilegan hátt. — Hin látna hafði unnað af hjarta blómum — og öllu sem fagurt var. — Þegar Gunnar söng “Sof í ró,” minntist maður þess, hversu heitt hún hafði unnað sönglistinni, — hve ánægjan hafði Ijómað og lýst frá augum hennar, er hún hlýddi á fagr- ! an söng, eða tók þátt í slíku sjálf, á meðan kraftar leyfðu. Hún bók- staflega lifði á því, lengi á eftir. — Er líkfylgdin ók norður úr bænum, og regndropar gltiruðu á haust-blöð- um trjánna í “skini eftir skúr,” en dásamlegur regnbogi hveldist ná- kvæmlega yfir grafreitinn, þá virtist svo sem náttúran veitti þessari list- rænu og viðkvæmu konu, hið fegur- sta boð til hvíldar, sem maður hefði augum litið. — Hún hafði alla æfi dásamað og dýrkað ljóð og listir f • • EATON VORUMERKTI VARNINGUR Eatonia Vasaklútar Handa konum, eru ofnir úr hrein- um og voðfeldum hör, með mjóum faldbryddingum. (Sýndir á mynd- inni við “J.”) 2 á 25c. Mayfair Vasaklútar úrr tómum hör litstimplaðir með ýmsu móti. Til smekkbætis eru sumir bróderaðir lítillega. (Sýndir við “J.”) 3 á $1.00 í Vasaklútadeildinni á Aðalgóifi við Portage. Canterburp Hanzkar Eatonia Kvenhanzkar Handa mönnum er klæðast vel. Þær uppfylla allar kröfur manna um þægindi, snið, útlit og endingu. Franskir að gerð úr fagurgráu Suede kastsaumaðir. Stærðir 7 - 10- (Sýndir í myndinni við "K.”) 2.50, parið. t)r kiðlinga skinni — fyrir konur. Hanzkar þessir fara jafn vel með ferðaklæðnaði sem hinum fínustu kjólum. Þeir eru búnir til fyrir oss í Frakklandi úr bezta efni. Með nettum fingrum og krosssaum- (Sýndir við “K.”) Kosta $2.00 I Hanzkadeildinni á Aðalgólfi við Portage Canterburp Sokkar Við hvortveggja, viðhafnar og hversdagsbúning Þessir ágætu sokkar eru prjónað- ir á Englandi eftir fyrirsögn Eatons, úr hreinni kasmir ull, og samkvæmt tizkunni, með rúmgóðum leista og teygjánlegri fit. Um margar gerðir og liti að velja, í jafnt stórum sem smáum. Allar stærðir. (Sýndir við “L.”) Kosta 1.25, parið. Mayfair Silkisokkar trr sterku endingargóðu silki upp í gegn. Glanzandi silkisokkar sem tizku konur kjósa helzt við öll almenn tækifæri og úti á götunni. I fylsta móð — af snirtilegri gerð, frá fit og niður að ökla. Totur og hælar eru prjónaðir úr fínasta “lisle.” Undursamlegt úrval af öllum litum. Stærð 8*4 - 10. (Sýndir við “m.”) Kosta 1.85. 1 Sokkadeildinni á Aðaigólfi við Portage Eatonia Kven-skór HIÐ MESTA VRVAL, 1 NYMÓÐINS OG NOTALEGUM GERÐUM. Þeir eru ágætt dæmi um kjörkaup á vörum-er-vér-höfum látið gera. úr kynstrum að velja alt frá göngu skóm upp í hina hárfínu háhæluðu samkvæmiskó. Háhæluðu skórnir, fást líka úr •njúku kiðlingaskinni, lagðir með leður slaufu Qg mjóum bryddingum. (Sýndir við “N”.). Kosta $5.00. ((Einnig sýndir). Göngu skórnir eru úr mjúku kiðlinga skinni, lagðir bryddingum, með Oxford sniði. Þeir eru með mjúkum söla, aleður hæl- um og ilboga til þæginda fyrir fót- inn. (Sýndir við "O.”) Kosta $5.00. 1 Kvennasokkadeildinni á öðru Gólfi við Hargrave St. *T. EATON C<? LIMITED hjarta sínu þrátt fyrir annir, ervið- leika og sorgir. Hún las á meðan kraftar entust, og svo lengi sem hún naut sín að nokkru, ræddi hún af skilningi og innsæi um íslenzkar bóxmentir — einkum ljóðin. Um þau fór hún ástúðlegum höndum- — Hún gerði meir en að annast um bókasafn “Vestra”, á meðan það var í henn- ar húsum — hún unni því. -— Eins munu konurnar í "Eining”, lengi minnast þess, hversu margt fagurt hún fann til að lesa þeim á fund- um, jafnframt og hún var ritari félagsins í fleiri ár. Fríð og nett var hún i sjón og viðmótið hlýtt og góðlátlegt. Mun hennar lengi minst að góðu af öll- um er henni kyntust. Saettle, 12. jan. 1931 Jakobina Johnson. V * * VIÐ LIKBÖRUR. Mrs. C. H. Gislason. Hún studdi mann sinn, börn og bú, Unz byrði tók að þyngja. Hún lifði og dó í ljóssins trú, Og lét ei af að syngja. Hve blíða konan, björt sem snjór, Varð blundi þessum fegin! Nú aðhefst hún í engla kór Um eilífð, hinumegin. Vinur. (F. R. Johnson). Nokkur kvœði Eftir Jón Kemested. Einstein. Hann fann það, sem enginn gat áður í alheimi skilið né greint. Hann opnaði ómælis geima. Það allt er nú prófað og reynt. Því reikninginn rétt vel hann kunni, svo ráðgátan öllum varð ljós. Og nú er þeim fullhuga fagnað og flutt um hann allskonar hrós. Og öld er hann eiskonar merki frá einstæðri Jórsala byggð, sem fögnuð og frægð hefir unnið en frændliði ömun og hryggð. Oss Abrahamsbörn á það benda, að búsæld er hvarvetna góð. Þau leita að lífrænum myndum, vér lærum á vestrænni slóð. Vér heiðrum þann Gyðing, sem gaf oss við guðspjöllin: öryggisheim. Hann benti’ oss á eilífðar unnir. Vér öndum í Jórsölum þeim. * • » A VORRI JÖRÐ A vorri jörð er veðrið svalt — það virða mæðir. En svq fer líka sól um allt og svellin bræðir. • * • RIMHREIMAR Til B. B. Olson á Gimli. I. Afmælisósk. Þá 50 ára, 13. okt. 1916; stöddum á Winipeg Beach. Fimtugum þér fagni þjóð, fríð þér verði kveðin ljóð, eftir farna æfislóð: öld þinn frægi hreystimóð- Björn, þá gerði brandahríð, brögnum ægja þarf ei stríð: heill þú vildir landi og lýð, ljóst mun verða seinni tíð. II. Vísur 1930. Að við fórum ekki heim, örlög réðu málum þeim. Okkar fagra ættlands geim ölum þó í glöðum hreim. Komi að þvi, við kjörlands gröf, kveðjan verði um önnur höf, okkur sendir sumargjöf sólin, fögur geisladröf. FALKAFLUG. Þann 14. þ. m. mættust þeir Vík- ingar og Geysir á skautasvellinu við Wesley College- Allir töldu Vík- ingum vissan sigurinn, því hingað til höfðu þeir sýnt meiri leikni, betra samspil og snarpari áhlaup. En Geysir var nú nýlega búinn að fá tvo nýja flokksmenn, þá Harald Gíslason og Wally Sigmundsson, og gerðu þeir svo mikið stryk í reikn- ^ inginn, að Víkingargátu nú ekki ráð- ið við neitt, og hefði það ekki verið fyrir hina ágætu hafnvörn E. Reid, From í<Kviðlingar,, by K. N. Júlíus. 2% Bereft I must abandon All brays of sentiment — A lay you never land on In the light of 2% Prayer. When there is no-one near And nothing else to say, And wine has turned to water, On willing knees I pray. Unsold. The few things I find unsold Are fondly mine, Prom soul-depths this glorious gold I give to swine. Lack of Supply. And in case I’m seen without a shovel, You long to be enlighted. Why, What’s lacking is dirt supply. In the Wilderness. On dream-trip to Iceland roaming I may kiss her yet! The night I sipped Life’s nectar foaming I never this forget. Co-travellers. The moon is my companion, With me this never fails. In tragedy and terror His telling helþ avails. High in the clear night heavens His holy face we see. — I know he’s full and friendly; His feast now waits for me. Busy Elis. Efficient Elis for a crowd Functions well tho groaning — “Go to hell!’’ — Don’t harp so loud; He is telephoning. Translated by O. T. Johnson. þá hefðu þeir orðið ver útleiknir. — Hafði Geysir 4 vinninga en Víking- ur 2- Fálkana fennti í kaf — eða svo má að orði kveða, því að lítið sást eftir af þeim, eftir að Natives voru búnir að taka til þeirra. Það urðu vonbrigði flestum, er hafa séð Fálk- ana á svelli í vetur, að sjá Natives tæta þá i sig eins og harðan fisk úr roði. Lítið sást eftir af þeim nema rifrildin hingað og þangað um ísinn, brotnir staurar og rifnar flíkur, blóðugar nasir og marðir leggir. — Wally Bjarnason var fimm manna maki á ísnum það kvöld, enda voru oftast nær fimm Fálkar utan um hann einn, en höfðu þó eigi við hon- um. Höfðu Natives 6 vinninga i þessum leik en Fálkar 3. Eru þvi Natives fremstir í Hockeysambandi íþróttafélagsins. Vér vildum minna íslenzka íþrótta menn á að æfingar eru á hverju mánudagskvöldi í neðri sal Good- templarahússins og byrja stundvís- lega kl. 7- Sérstakt eftirlit er með unglingum á skólaaldri. Islendingar! — Munið eftir I- þróttasýningu Fálkanna í kvöld, 22. janúar. Þar verða ræður, söngur og dans, auk góðs iþróttaprógrams. ] ; I c f E s Fishermens SuppliesLtd VERÐIÐ LÆKKAR • löR -30-; 40-3 og 50-3. 5EA ISLAND COTTON—60- og 70-6 og 80-6. — AUKA-AF- 5LATTT.tr 10%. Þessi net reyndust mjög vel á Winnipegvatni íðastliðinn vetur. Sérstakt verð gegn peningum út í hönd: 2.95 pundið. Mikill afsláttur á Sideljne og Seeming tvinna. MIKLAR BIRGÐIR 1 WINNIPEG. NET FELLD EF ÓSKAÐ er. Skrifið eftir verðskrá vorri eða komið og finnið oss. FISHERMENS SUPPLIES LTD. 132 PRINCESS ST., Cor. William and Princess, Winnipeg. PHONE 28 071 United Grain Growers LIMITED • IN BUSINESS 25 YEARS Paid-up Capital $3/180,803.37 Reserve and Surplus $2,490,981.11 Total Paid-up Capital, Reserve and Surplus Let this Company Handle Your Grain

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.