Heimskringla - 20.05.1931, Qupperneq 8
B. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 20. MAÍ, 1931
FJÆR OG NÆR
Séra Ragnar E. Kvaran flyt-
ur guðsþjónustu að Riverton
kl. 2 síðdegis 24. þ. m. og á
Gimli kl. 7.30 síðdegig sama
dag.
• ♦ *
Hin undurfallega saga Blinda
Rósa, sem birt er á öðrum stað
í þessu blaði, er frumsamin af
Ásgeiri I. Blöndahl, Wynyard,
Sask.
• * *
Leikfélag SambatndssafnaS-
ar le’ikur “Ástir og miljónir’”’
á Lundar laugardaginn þann 30.
maí. Inngangur verður 50 cent
fyrir fullorðna og 35 cent fyrir
börn innan 12 ára. Leikurinn
byrjar kl. 8.30, og gengur arð-
urinn til Sambandssafnaðarins
á Lundar. Það er þrisvar búið
að leika þenna leik í Winni-
peg og einu sinni á Gimli fyrir
fullu húsi, af Sambands leik
floknum. Efnið er stórkostlegt
og velþekt leikfólk, eins og t
d. séra Ragnar E. Kvaran, Árni
Sigurðsson og Mrs. J. F. Krist
jánsson. Það ætti enginn að
sitja sig úr færi á Lundar og
grendinni að sjá þenna leik.
• • •
Söngflokkur Sambandssafn-
aðar heldur söngskemtun í
kirkiu safnaðarins á Banning
stræti,.. þriðjudagskvöldið.. 26.
þ. m., með aðstoð Mrs. K. Jó-
hannesson og Pálma Pálma-
sonar, er þar verður með
strengjakvartett, og fleiri. —
Söngflokkurinn syngur einung-
is gömul og vel þekt lög, sem
íslendingar hafa eignað sér um
langan aldur.
Inngangur 35c. Byrjar kl. 8.10
• • •
Hátíð mikil verður haldin 25.
maí n.k. í gamla Norðurstjörnu
skólahúsinu í hinni svonefndu
Grunnavatnsíbygð austan við
Lundar. Samkoman byrjar kl.
1 e. h. og fyrir henni stendur
Kvenfélagið Frækorn. Verður
þetta 25 ára minningarmót þess
Phone 88 525
s;-,r<roTit orri Arlinarton
Thur. Fri. Sat. This Week
May 21-22-23
geobgb; o’brien
“FAIR WARNING"
Bin-Tin-Tin in
“The I.one Defender” (Ch. 3)
Comedy, News, Serial
Mon. Tues. Wed., Next Week
May 25-26-27
SPECIAL MATINEE
Monday Afternoon, May 25 %
Show Opens at 12.30 p.m.
EL BRENDELL in
Mr.\\ Lemon
of Orange
Comedy — News — Variety
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima Ȓmi 87136
Expert Repair and Complete
Garaye Serrice
Gaa, Oils, Extras, Tirea,
Batteries, Etc.
félags, og er vonandi að sem
flestir vinir þess frá fyrri og
seinni tíð komi þenna dag til
að minnast margra kærra endur
minninga og glaðra stunda á
samkomum félagsins s.l. 25 ár.
/Þetta félag er áreiðanlega
einstætt í sögu Vestur-íslend-
inga, með því að samanstanda
af konum úr báðum kirkju-
flokkum héraðsins, sem hafa í
sameiningu starfað að velferð-
armálum bygðarinnar í 25 ár.
Velþektir ræðumenn tala við
þetta tækifæri. Einnig skemtir
æfður söngflokkur. Veitingar
og aðgangur ókeypis. — Allir
boðnir velkomnir.
Sá dagur, sem minst er 25
ára starfs Kvenfélagsins Fræ-
korns, má sannarlega kallast
merkisdagur.
• • *
Framsagnar- og upplestrar-
samkepni unglinga, er notið
hafa íslenzkukenslu Fróns fór
fram fimtudaginn 7. maí í G.
T. húsinu, og tókst mæta vel.
Börnunum var skift í tvo
flokka. í yngri flokknum voru
10 nemendur 8—10 ára, og
eldri nemendur 8, 11—12 ára
Dómarar voru J. J. Bíldfell, Sig-
urjón Björnsson og Valgerður
Jónasson
Þrenn verðlaun gefin { hvor-
um flokk
í yngri flokknum hlaut Frið-
rik Kristjánsson 1. verðlaun,
Doris Blöndal 2. og Friðrik
Sveinsson 3. verðlaun.
í eldri flokknum hlaut Lilian
Baldwin 1. verðlaun, Guðrún
Bjering 2. og Gladys Gillies 3.
verðlaun.
Á prógramminu var eiennig
stuttur leikur, “Mömmurnar’’,
er 7 börn tóku þátt í, og tókst
vel.
Mrs.H. Helgason lék á slag-
hörpu. Miss Helga Jóhannes-
son lék á fiðlu. Misses Jean
Bruce og Jean Berg og Mr.
Hermann Eyford skemtu með
hljómlist, en Alvin Blöndal með
söng, og var gerður góður róm
ur að.
Mr. J. J. Bíldfell kunngerði
úrskurð dómaranna og lauk
miklu lofsorði á, hve börnin
hefðu leyst hlutverk sín vel af
hendi, er sýndi að kennurun-
im hefði furðu vel tekist við
kensluna. Börnin hefðu fengið
’ykil að andlegum fjársjóðum,
sem hann vonaði að þau myndu
hafa ómetanlegt gagn af á
lífsleiðinni.
Kennurum deildarinnar Frón,
Mrs. Jódísi Sigurðsson og Mr.
Guðjóni Friöriksson, sem stofn
iðu til samkomunnar, er að-
allega að þakka hve vel hún
tókst.
• • •
Á fundi stúkunnar Heklu n.
bönd þjóðanna á framleiðslu- j hálfvirði við það, sem áður hef-
útbreiðslu, tolla, herútbúnaðar ir verið; egg t. d. frá 15 cent
k. föstudagskvöld verður kapp- suðaustan vindar nærri dag
kostnað. Talar á íslenzku. Að-
gangur ókeypis. Samskot tek-
in til að borga húsaleigu. Menn,
konur og unglingar, fyllið sal-
inn, komið í tíma; byrjar kl. 3
e. h.. — Mr. Ragnar H. Ragn-
ar spilar á píanó.
• * *
Söngsamkoma hr. Sig. Skag-
field, að tilhlutun Hjálparnefnd
ar Sambandssafnaðar á mánu-
dagskvöldið var, fór hið bezta
fram. Hvert sæti var skipað og
urðu jafnvel margir frá að
hverfa. Létu áheyrendur óspart
fögnuð sinn í Ijós með lófa-
klappi, enda söng hr. Skagfield
hvert lagið öðru betur.
* • •
Sigurjón Johnson, fyrrum Iji
heimils að 492 Sherbrook St.
dó miðvikudaginn 13. þ. m. af
hjartabilun.
• • •
TILKYNNING
Eg hefi nú tekið að mér út-
sölu á “Eimreiðinni” fyrir
Vesturheim, og hefi eg þá um-
boðssölu á þessum fjórum ís-
lenzkum tímaritum:
Iðunn ............. $1.80 árg.
Eimreiðin .......... 2.50
Perlur ............. 2.50
Kvöldvökur ......... 1.75 “
Fyrsta hefti af Eimreiðinni
fyrir yfirstandandi ár er nú tii
mín komið og verður tafar-
laust sent til allra hlutaðeig-
enda samkvæmt kaupendaskrá
er fyrverandi útsölumaður hef
ir afhent mér. Er þetta hefti
byrjun 37. árgangs þessa þjóð-
kunna tímarits og er það
prýðilega vel vandað — gagn
sýrt af fræðandi efni og skreytt
37 myndum. Og inngangsorö
þessa árgangs eru mjög eftir-
tektarvert ávarp frá útgef
anda og ritstjóra.
Eimreiðin er vissulega þess
verð að hún fengi meiri út-
breiðslu hér vestra.
MAGNUS PETERSON
313 Horace St.
Norwood, Man., Can.
BRÉF TIL HEIMSKRINGLU.
Cloverdale, B. C.
26. apríl 1931.
Herra Stefán Einarsson.
Kæri vinur:
Þökk fyrir bréf þitt síðastlið-
ið haust ,en sem lengi hefir
dregist fyrir mér íið svara. Þú
biður mig að skrifa Kringlu
fréttir, en því miður er fátt af
viðburðum.
Af tíðarfarinu er það að segja
að veturinn var hér einmuna
góður, fram að miðjum marz.
Síðan hafa verið rigningar og
UNCLAIMED CLOTHESSHOP
Karlmensfl föt og yflrhafnlr. nnifiuft
eftlr mAIi. Nitiorhoncflnir haf fnlIITí Ar
Klldl. ok fdtln aejant frfi $0tll $24.50
apphafleera nelt fi $25.00 oj? npp f $60.00
471^ Portage Ave.—Sími 34 585
MOORE’S TAXI LTD.
C«r. Donald and Grakam.
50 Cents Taxl
Frá elnum statS tll annars hvar
sem er í bænum; 5 manns fyrlr
sama og einn. Allir farþegar á-
byrgstlr, alllr bílar hltatlir.
Slml 23 800 (8 llnnr)
Kistur, töskur o ghúsgagna-
flutningur.
ræða um eftirfarandi efni: Á-
kveðið að vísindin fremur en
siðfræðin eigi að vera undir-
staða bindindisfræðslu. Með
iátandi hliðinni tala Stefán Ein
arsson og Hjálmar Gíslason, en
béirri neitandi S. B. Benedicts-
son og Jóhannes Eiríksson. —
^undur verður opinn fyrir alla
eftir að kappræðan byrjar.
• • •
Árshátíð Jóns Bjartiasonar
skóla verður haldin í Fyrstu
hitersku kirkju á fimtuaags'-
kvöldið í þessari viku. Sam-
koman hefst kl. 8. Aðalræðu-
maður verður Hamilton dóm-
ari, og mega men nreiða sig á
ánægjujlega ikvöldstund. ÍÁllir
eru velkomnir. Tekið verður á
móti gjöfum til skólans. Komið
að sjá stærsta nemendahóp-
inn, sem nokkurntíma hefir
sótt skólann.
• • •
TAKIÐ EFTIR!
Mr. S. Vilhjálmsson flytur
fróðlegt erindi að 532 Agnes
St., Labor Hall, næsta sunnu-
dag, 24. þ. m. Erindið fjallar
um friðar- og afvopnunartil-
raunir, óeirðir og atvinnuleysis
orsakir, sijúrna<rástand þjóð-| með korntegundir og hey.
anna, verzlunarviðskiftasam-
lega, og þar af leiðandi er jörð
svo blaut að ómögulegt er að
vinna hina algengu vorvinnu.
Að vísu plægðu sumir nokkuð
í haust og vetur; en þar við sit-
ur, ómögulegt að diska eða
plægja fyrir bleytu, margir
hvorugt reynt. Fari ekki að
þorna úr þessu, má búast við
lélegri uppskeru, því hér er valt
að treysta á hausttíðina, sem
oft er rigningasöm; og þó rign
ingar séu ekki, er hér oft þoku
og suddasamt eftir miðjan sept.
Svo vegna þessa raka og hlýja
veðurs, spíra hér oft kornteg-
undir, en þorna ekki, ef þær á
annað borð vökna.
Um afkomu manna yfirleitt
veit eg ekki mikið, er samt
hræddur um að hún sé ekki
sem hezt. Markaður er afar
slæmur, alt sem framleiðendur
selja, er í lágu verði; og það
sem verst er, að helzt ómögu-
legt er að selja. T. d. eru fleiri
þúsund tonn af kartöflum hér
í bygðinni, sem ómögulegt er
að selja, og þar af leiðandi
liggja fyrir skemdum, því þær
verða ekki geymdar til næsta
árs, eins og hægt er að gera
niður í 9 cent. Aftur er hænsna
fóður að vísu mun lægra en
að undanförnu, en ekki sem
verðfalli eggjanna svarar. —
Hænsnarækt er hér mikil, og
eggjaframboð þar af leiðandi
mikið.
Atvinna er nú sem stendur
alls engin, og ekki útlit fyrir
að úr því batni bráðlega. í
haust var hér unnið nokkuð
að vegavinnu, helzt þar sem
þess þurfti ekki. Eins og kunn-
ugt er, lagði sambandsstjómin
fram fé síðastliðið haust til at-
vinnumála, og fékk fylkisstjórn
in hér part eins og hin fylk-
in, og útbýtti því svo til bæja
og sveitastjórna, og fékk sveit-
arstjórnin hér 10 þúsund doll-
ara í sinn hlut, og svo lagði
sveitin til 15 þúsund dollara
á móti; en þeir sem sáu um
vinnuna, varð ekki ráðafátt að
eyða peningunum á sem styzt-
um tíma, og láta sem minst
sjást hvar unnið var. En þrátt
fyrir þær misfellur hefir það
óefað hjálpað nokkrum um
tíma, og eru Mr. Bennett þakk
látir, og telja ekki hans skuld
þótt illa hafi verið með féð far-
ið af öðrum, sem um það áttu
að sjá.
Heilsufar hefir mátt heita
gott; óvenjulega lítið af hinu
algenga Kyrrahafsstrandar
kvefi í vetur. Að vísu gekk hér
lítils háttar kvef um tíma
febrúar, sem læknar kölluðu
flú, til að hræða þá, sem altaf
eru að kvíða fyrir dauðanum
hafa víst búist við að verða
frekar sóttir, ef það væri kallað
flú en ekki kvef.
Eg er nú nýbúinn að lesa hið
ágæta Tímarit Þjóðræknisfé-
lagsins, og er það leiðinlegt, að
allir VesturHÍsíendingar skuli
ekki geta orðið það samtaka
að verða meðlimir félagsins
því það gæti rnargan bætt, en
engan skemt, hvað annað sem
á milli kynni að bera, og er
vonandi að menn hristi bráðum
af sér pólitískan og trúarlegan
skoðanamun, og taki höndum
saman um þetta eina málefni
allra sannra íslenzkra manna
og kvenna.
Þá las eg með ánægju ræðu
séra Benjamíns Kristjánssonar,
sem hann hélt á pálmasunnu-
dag, og væri gaman og gagn-
legt að ræður slíkra kenni-
manna sem sére B. K. og sr.
Friðrik A. Friðriksson í Blaine
eru, væru sem oftast birtar,
ásamt ræðum annara góðra
kennimanna, því þó eg hafi
nefnt þessa tvo, væri engu sið-
ur gagnlegt að sjá ræður eftir
menn eins og séra R. Mar-
teinsson og B. B. Jónsson, D.D.
Prýddi ef til vill meira dálka
Lögbergs, en sumt af því, sem
þar hefir verið klest í seinni
tíð. Þó eg hafi tilgreint þessa
fjóra presta, væri engu síður
ánægjulegt að heyra ræður
annara presta, því þrátt fyrir
skoðanamun verður því ekki
neitað, að Viestur-fsle’ndijngar
hafa aldrei verið betur staddir
hvað kennimenn snertir, en ein
mitt nú, og er vonandi að þeir
beiti þeim hæfilekum í rétta
átt.
• • •
Það er nokkuð síðan eg skrif
aði það sem hér fór á undan,
og hefir tíðin mjög breyzt síð-
an. Eru nú búnir að vera góðir
þurkar í rúma viku, og eru
menn nú sem óðast að vinna að
sánjjngu. Ön,nur atvinan ylð
sama; þó búast sumir við, að
einhver vegavinna byrji síðar-
meir; hvort það verður nokkuð
að mun, er óvíst, því alstaðar
er kvartað um peningaleysi, og
víst ekki að ástæðulausu. Fylk-
isstjórnin hér tók við rúmum
85 miljóna skuldabagga af
gömlu stjórninni, og er víst,
ekki búin að ráða fram úr því
ennþá, hvernig eigi að mæta
afborgunum; veit heldur ekki,
hvort þeir eru mikið að hugsa
um það, því satt að segja held
eg að flestir þeir, sem í þessari
nýju stjóm eru, séu aðgerða-
lausir sælkerar, hugsandi mest
um að kýla sína eigin vömb.
Eg ætla nú að hætta að
sinni, og þakka fyrir Kringluna.
Eg hefi haft gaman af að lesa
hina skemtilegu ferðasögu Mrs.
M. J. Benedictsson, og endur-
minningar Fr. Guðmundsson-
ar, og væri óskandi að meira
birtist af því tæi, en e.kki nema
ein saga í einu.
Með kærri kvéðju og beztu
óskum um gleðilegt sumar til
Heimskringlu og allra íslend-
inga, er eg
Þinn einl.
Þ. G. ísdal.
EXCHANGE
Your Old
FURNITURE
NOW IS THE TIME TO
TRADE IN YOIJR OUT-OF-
DATE FURNITURE ON
NEW. PHONE OUR AP-
PRAISER.
J. A. Banfield
LIMITED
492 Maln St. Phone 86 667
BRÉF TIL HEIMSKRINGLU.
Los Angeles 8. maí 1931.
Háttvirti ritstj. Hkr.:
Það er orðið all langt umliðið
síðan nokkuð hefir birzt í
Heimskringlu héðan frá Los
Angeles, enda fátt, sem við ber
sem í frásögur sé færandi. —
Atvinnuleysi svo til vandræða
horfir hér, sem víða annars-
staðar.
Félags- og samkvæmislffið
hér á meðal íslendinga hefir
þar af leiðandi því sem næst
verið í kaldakoli nú um langt
skeið. Er það þó ekki af þvi,
að hér sé ekki talsvert af list-
fengu og skemtilegu fólki á
meðal íslendinga, þegar þess
nýtur við. Samkomur hafa eng
ar verið meðal Islendinga hér
á þessu ári, utan ein skömmu
eftir nýárið: afmælissamkoma
öldungsins Þorsteins Jónsson-
ar (Foster Johnson), sem var
góður búhöldur á sinni tíð við
Glasston, N. D., og var og er
vel þektur á meðal íslendinga,
einkum þar eystra.
Þar næst var haft skógar-
gildi (picnic) þann 3. maí í
Brookside Park, Pasadena, þar
sem nokkuð af íslenzku fólki
kom saman. Svo var samkoma
haldin í sænsku lútersku kirkj-
unni í Pasadena, sem er borg
með 25 til 30 þús. íbúum, á-
föst við Los Angeles. Samkoma
þessi var náskyld íslendingum
að því leyti, að sumt af því
fólki, sem þar skemti, var ís-
lenzkt. Og samkomunni var
stjórnað af einum af hinum
mörgu listamönnum, sem ís-
lenzka þjóðin á, herra Sigurði
Helgasyni tónskáldi. Hann er,
sem kunnugt er, sonur hins
góðfræga tónsnillings, herra
Helga Helgasonar organista í
Reykjavík, sem var landskunn-
ur með þjóð vorri á sinni tíð,
og hvers minning mun lengi
lifa. Herra Sigurður Helgason
er tónsnillingur með afbrigð-
um, og eg þori að fullryða að
hann stendur ekki að baki
mörgum þeim, sem öðlast hafa
prófessorstitil. En því miður
hefir hann ekki gert listina að
aðallífsstarfi sínu, heldur orð-
ið að afla sér og sínum lífsvið-
urværis með súrum sveita. —
Þannig verður margur dýrmæt
ur íslenzkur gimsteinn graf-
inn. Þarna kom fram tuttugu
>g tveggja manna karlakór, sem
herra Helgason hefir æft og
stjórnar. Þar heyrði eg hina
indælu tóna, ^ka þeim, sem
eg heyrði á íslandi í fyrra, og
sem hér eru fágætir. Og svo að
dáanlega var það æft og sam-
stilt, að engu líkara var en að
tónsnillingurinn væri að spila
á lifandi mannlegt hljóðfæri,
rétt eins og þar væri ein sál í
mörgum líkömum. Einsöng
sungu þar Mrs. Olive McFar-
lane og Mrs. May Cook. Mrs.
McFarlane er dóttir Eggerts
sál. Oliver og ekkju hans, sem
Íslendingum vestra eru að góðu
kunn. Hún hefir silfurskæra
soprano rödd og skemtir af-
bragðs vel. Mrs. Cook er dóttir
hjónanna Mr. og Mrs. Ragúel
Johnson í Wynyard, Sask. —
Hún hefir indæla alto rödd og
beitisr henni aðdáanlegta vel.
Hún söng á íslenzku: “Fölnuð
er lilja og fölnuð er rós’’, ynd-
islegt lag, sem hr. Helgason
hefir samið. Enginn vafi er á
því, að báðar þessar framan-
nefndu konur hefðu verið með
þeim fremstu á sönglistarsvið-
inu, ef þær hefðu gert hana að
aðal lífsstarfi sínu.
Allmargir íslendingar voru á
samkomunni, en hefðu þó
gjarna mátt vera fleiri; en við
metum því miður ekki æfinlega
það, sem bezt er gert, eins og
vert er.
Að endingu þakka eg þrssu
fólki fyrir ánægjulega stund,
og sæmd þá, sem það hefir látið
fslendingum í té.
Þorgils Ásmundsson.
r
Ntr ER TIMINN TIL 'AÐ KAUPA
LINOLEUM
LINOLEUM GÓLFDÚKA o. s. frv. ..öllum nýjustu gerS-
um úr að velja.
Vér höfum nýlega fengið sendingu af FALLEGUM
GLUGGATJÖLDUM FRÁ ,GAMLA LANDINU
RÚM (fullkomin)
Vœgar Afborganir.
— — $1.00 á viku
I>ér hafið lánstraust hjá oss
| Gillies Furniture Co., Ltd. !
(Aður að 311 Nairn Avenue) I
956 MAIN STREET
SÍMI 53 533
1 ~ I
Egg og mjólkurafurðir eru í J öllum þeim feikna rentum og
Bridgman Electric Co.
Winnipeg — Furby og Portage — Sími 34 781
RAFLAGNING A GIMLI
Látið oss gera raflagninguna í húsunum hjá yður
og kaupið hjá oss ljósaáhöldin. Verk og vörur á Jdýr-
asta verði. /
Vér skulum með ánægju veita upplýsingar um
kostnaða áætlun hvenær sem er. Lítið inn í búðina hjá
oss, við hliðinaá símastöðinni á Gimli og talið við herra
J. Ásgeirsson.