Heimskringla - 27.05.1931, Síða 8
B. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 27. MAÍ 1931.
FJÆR OG NÆR
Séra G. Árnason messar í
Piney, Man., þann 31. maí
1931.
* • *
Séra Ragnar R Kvaran mess
ar að Lundar sunnudaginn 31.
maí, kl. 2 e. h.
* • •
Hiinn árlegi bazaar Kvenfé-
lags Sambandssafnaðar verður
haldinn miðvikudaginn og
fimtudaginn 3. og 4. júní n.k.
Staðurinn verður auglýstur
síðar.
• • •
Þessi ungmenni voru fermd
í kirkju Sambandssafnaðar í
Winnipeg af séra Benjamín
Kristjánssyni síðastliðinn hvíta
sunnudag, 24. maí:
Ása Kristjánsson
Elva Hólm.
I
Fnða Bjornsson
Florenee Anderson
Hrefna Ásgeirsson
Kristín Halldórsson
Margrét Pálsson
Regína Halldórsson
Thelma Eiríksson
Ásgeir Jónas Þorsteinsson
Björn Kristjánsson
Jósep Skafti Borgfjörð
Pálmi Eiríksson
Sigurþór Sigurðsson
• • •
Andlátsfregn
Þann 9. maí s.l. andaðist á
sjúkrahúsinu í Alsask, Sask.,
(Þarsteinn Ingimundarson. —
Hann var fæddur 6. júní 1877
að Hlíð í Norðurárdal í Mýra-
ROSE
THEATRE
Phone 88 525
Snrgent and Arlington
Thur., Fri., Sat., Thia Week
May 28-29-30
EDDIE QI ILLAN in
“NIGHT WORK”
Rin-Tln-Tln, “The Lone Defen-
der”, Chapter 4
Comedy News
Mon., Tues., Wed., Next Week
June 1-2-3
VICTOR McLAGLEN
“A DEVIL WITH
WOMEN”
Comedy — News — Variety
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími33573
Heima sími 8713Æ
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas, OHs. Ex'ras, Tire«.
Batteries, Etc.
IINCLAIMED CLOTHES SHOP
Kn rlmennn tnt yflrhafnlr. anltlutt
efllr mflll. NitSnrlinraranlr haf falllh Ar
(ildl. oar f»*ln arjnal frfl tll S34..VI
apphafleKTa arlt fl S2Ó.00 ok npp I $00.00
471J Portage Ave.—Sími 34 585
MOORE’S TAXI LTD.
Cor. Donald and Graham.
* 150 Cents Taxl
Frá einum staTi til annars hvar
sem er í bænum; 5 manns fyrir
sama og einn. Állir farþegar á-
byrgstir, allir bílar hita?5ir.
SÍB
23 HÍM (H Hnur)
o ghúsgagna-
Kistur, töskur
flutningur.
sýslu á íslandi. — Þorsteinn
heitinn var jarðsettur 12. þ.m.
að fjölmenni viðstöddu. Heim-
ilisfang hafði Þorsteinn við
Merid, Sask., frá 1909, en kom
vestur um haf árið 1900.
Þorsteinn Ingimundarson var
ókvæntur alla æfi, ráðvandur
til orða og verka, og vinsæll
hjá öllum nábúum.
M. I.
• * •
Sambandssafnaðar kvenfélag
ið Eining, að Lundar, Man.,
heldur bazaar í I. O. G. T. Hall
að Lundar, föstudaginn 5. júní
n. k. Félagið hefir vandað mjög
til þessarar sölu og hefir á boð-
stólum mikið úrval af hannyrð
um og barna- og kvenfatnaði.
Einnig verða þar til sölu
margar tegundir af heimatil-
búnu kaffibrauði og sætindum.
Ágætar veitingar, kaffi með
allskonar brauði, skyr og rjómi
o. s. frv.
Byrjar kl. 10 að morgni.
• • •
Árni G. Johnson frá Vogar,
Man., var staddur í bænum fyr
ir helgina. Hann var að fara út
til’ Mikleyjar, þar sem hann
býst við að stunda fiskveiðar
fyrst um sinn.
• • •
Sigurður Skagfield tenór-
söngvari syngur i lútersku
kirkjunni í Árborg þann 5. júní
kl. 9 síðdegis.
• • •
Þakkarorð.
Öllum þeim, sem auðsýndu
okkur hjálp og hluttekningu við
hið sviplega fráfall Helga heit-
ins Jónssonar, er andaðist hér í
borg 25. apríl s.l., viljum við hér
með færa okkar innilegasta
þakklæti. Við nefnum engin
nöfn hér, en nokkrir íslending-
ar hér veittu okkur svo mikla
hjálp og aðstoð, á einn og ann-
an hátt, er þann sorgaratburð
bai**að höndum, að við fáum
þeim það aldrei fullþakkað. —
Sömuleiðis þökkum við innilega
öllum þeim, sem heiðruðu útför
hans með nærveru sinni, blóma
sendingum og hverskyns að
stoð.
Winnipeg 25. maí 1931,
Aðstandendur hins látna.
• • •
Ein deild Kvenfélags hinnar
Fyrstu lútersku kirkju !hefir
Silver Tea að heimili Mrs. S.
Backmann, 632 Viftor St., n.k.
laugardag, þann 30Kniaí, milil
kl. 2—5 og 8—11 síðdegis. Mrs.
A. C. Johnson og Mrs. Sig.
Björnsson taka á móti gestum
ósamt húsfreyjunni, og Mrs. J.
S. Gillies, Mrs. O. Swainson og
Mrs. Buhr standa fyrir beina.
Sýndar verða ýmiskonar hann-
yrðir fyrir næsta bazaar.
• • •
Guðsþjónusta verður haldin,
ef guð lofar, sunnudaginn 31.
maí, kl. 3 e. h., í kirkjunni að
603 Alverstone St. Ræðumaður,
P. Johnson. Efni: Sjáanleg tákn
hinna síðustu tíma. Fólk er beð
ið að hafa sálmabók lútersku
kirkjunnar með sér. — Allir vel
komnir.
Dr. A. V. Johnson, tannlækn-
ir, verður staddur í Riverton
föstudaginn 5. júní, á skrifstofu
Dr. Thompsons.
• • •
Yfirlýsing.
Vegna þess að eg hefi heyrt
að nokkrir meðlimir úr söng-
félaginu Choral Society, ásamt
dirigent þeirra B. Guðmunds-
syni, beri út þá sögu, að eg
hafi boðist til þess að syngja
í kantötu Björgvins Guðmunds-
sonar, vil eg leyfa mér að leið-
rétta þann misskilning.
Tónskáldið Björgvin Guð-
mundsson ásamt tveim vinum
hans, þeim pool rooms stjóra
Halldóri Methúsalem Swan og
Dr. B. H. Olson, hitti eg á heim
ili tónskáldsins nokkuð löngu
áður en kántatan átti að fá
sína fyrstu Premiere. Sögðu
þá þessir herrar mér, að herra
Árni Stefánsson, sem hefði ver
ið ráðinn af mági sínum og
systur sinni, til þess að syngja
sólóar í umræddri kantötu,
væri nú farinn heim til sín út
á land og myndi ekki syngja.
Bað tónskáldið Björgvin Guð-
mundsson mig, fyrir hönd Cho-
ral Society, að syngja þessar
sólóar, sem eg þá lofaði að
gera, þar sem annars hefði
mátt strika þær út úr tónverk-
inu, eftir því sem tónskáldið
og hinir tveir vinir hans meintu.
Virðingarfylst,
S. Skagfield.
• • •
Aths. — Enda þótt Heims-
kringla sæi ekki ástæðu til að
neita höf. um rúm fyrir of-
anritaða yfirlýsingu, þá ber það
á engan Éátt þannig að skoða,
að blaðið taki með því nokkra
afstöðu í því deilumáli, sem um
er að ræða. Hlutaðeigandi söng-
félagi verður og að sjálfsögðu
gefið heimilt rúm til að skýra
málið frá sinni hlið, ef það
æskir.
• • •
Tvö hérbergi til leigu að 551
Maryland St. Upplýsingar hjá
Gunnari Kjartanssyni.
Sími 38 472.
Sig. Skagfield
tenórsöngvari
Syngur að Glenboro föstudagskvöldið 29. maí, kl. 8.30
og í
í kirkjunni að Baldur, laugardagskvöldið þann 30. maí
á sama tíma.
Aðgöngumiðar 50 cents
Gunnar Erlendsson leikur undir við sönginn
FRÉTTABRÉF TIL
HEIMSKRINGLU.
peumERS
COUNTRY CLUB
J"PECIAL
The BEER that Guards
Q.UALITY
Phones; 42 304
41 111
Frh. frá 5. bls.
“For Your Silver Wedding Gijt
Card’’; frá Mr. og Mrs. Thomas
Thorpe, Oakland, Cal., $5.00
og logagylt card; heillaóska-
skeyti frá Jóni Guðmundssyni
í Calgary. — Næst voru bomar
veitingar um salinn, og á brúð-
hjónaborð sett þriggja tasíu há
brúðarkaka, með hvítum, gul-
um og silfurlituðum blöðum, á
drifhvítum blómastandi, glitr-
andi í ljósadýrðinni. Voru veitt-
ir af hinin mestu rausn fágæt-
ir, gómsætir réttir, rétt eins og
þarna væri komið inn á fínasta
C. P. R. hótel. — f hrifningu
óskaði hver öðrum gleðilegs
sumars, og salnum breytt á
svipstundu í danssal, og skildu
allir með vináttu. — Hinn
fyrsta sunnudag í sumri heim-
sótti forstöðunefnd samkvæm-
isins silfurbrúðhjónin og færði
þeim rúma $12 að gjöf og
gjafalista með 82 nöfnum á.
Var það afgangs kostnaðar, en
nefndin einhuga að taka ekk-
ert fyrir sína fyrirhöfn, en ósk-
uðu að þau keyptu sér lítinn
hlut til minningar um silfur-
brúðkaupið, er hún, hafði of
nauman tíma til að útvega.
Brúðhjónin þakka öllum inni-
lega af hug og sál sæmd, vin-
áttu.'hlý orð í ræðum og riti,
allar gjafirnár, fortíð og nútíð,
með /heitri bæn og ósk um
fagra framtíð lands og lýðs á
komandi öldum, óska þau öll-
um gleðilegs sumars, Sigurást
Daðadóttir, Jóhann Bjömsson.
J. B.
Veróníka.
konar (hlutabréf. Geri$ það
leynt, eins og að spila í Soho.
Öll gróðafyrirtæki hans f
kauphöllinni höfðu farið jafn
illa og fjárhættuspil hans.
Hann hafði tekið lán hjá
Gyðingum. Mikill hluti af þess
um 2000 pundum, sem jarlinn
hafði gefið honum síðast, þeg-
ar hann kom á Lynne Court,
hafði gersamlega farið í hinar
gífurlegu rentur. Ef Veron-
íka hefði tekið bónorði hans
og hann hefði gengið að eiga |
hana, sem fyrst, hefði hann |
fengið nýtt lánstraust hjá Gyð-
ingunum — þá var honum
borgið. Og nú — hafði hún
hryggbrotið hann.
Hönd hans var svo óstyrk,
að hann misti vindlinginn.
Hann trampaði ofan á hann —
honum hefði svo hjartanlega
verið sama þó það hefði verið
Veroníka. Svo illúðlegur var
svipur hans. Svo magnað blót
syrðið, sem hann hreytti úr
sér. Hann virtist hvergi hafa
friðland, því að hann ráfaði
eirðarlaus niður þrepin og út
í kjarrið.
Hann kom að hliðinu, lauk
upp hinum rambyggilegu járn-
grindum og gekk út á veginn.
Hann gekk niðurlútur og íbygg
inn eftir veginum og var djúpt
niðursokkinn í hugsanir sínar.
Þá heyrði hann fótatak á bak
við sig. Hann rétti úr sér og
var þá ekki annað að sjá, en
ekkert hefði ískorist. Hann
heyrði skrefin á bak við sig
verða hraðari og hönd var lögð
á öxl hans.
Hann vatt sér við og lá við
að kalla upp yfir sig af undrun
þvf að frammi fyrir honum
stóð illúðlegur maður, sem
horfði á hann með slæglegum
þrjósku- og smjaðurssvip.
Maðurinn var flækingsleg-
ur að sjá og Talbot greip ó-
sjálfrátt niður í vasa sinn. En
hann varð meira en lítið
hissa, þegar maðurinn ávarp-
aði han nog mælti:
“Þér eruð Talbot Denby?”
Talbot leit forviða á mann-
inn. “Eg er Talbot Denby,’’
mælti hann drembilega. “Hvað
viljið þér mér?”
“Nú, það er auðheyrt, að þér
hafði þegar gleymt mér, lasm",
sagði maðurinn og hló. “Eg
hefi þá heldur betur ástæðu að
muna eftir yður.’’
Hann rétti upp aðra hendina
sem var í umbúðum, og skók
hana framan í Talbot. Það var
eitthvað það við inanninn, sem
Talbot kannaðist við. Og nú
þekti hann liann. Það var
maðurinn, sem hafði reynt að
stela frá honum peningum —
sem hann hafði flogist á við í
spilavítinu hans Isaaks.
Frh.
ÉXCHANGE
Your Old
FURNITURE
NOW IS THE TIME TO
TRADE IN YOIJR OUT-OF-
DATE FURNITURE ON
NEW. PHONE OUR AP-
PRAISER.
J. A. BanSield
LIMITED
492 Main St. Phone 86 667
MIF.K
Endurnýið mink-
andi og þreyttan
lífsþrótt með því
að drekka meira
af
CITY
MILK
hrein, kostarík
gerilsneydd
m/
Phone 87 647
Bridgman Electric Co.
Winnipeg — Furby og Portage — Sími 34 781
RAFLAGNING A GIMLI
Látið oss gera raflagninguna í húsunum hjá yður
og kaupið hjá oss ljósaáhöldin. Verk og vörur á Jdýr-
asta verði. *
Vér skulum með ánægju veita upplýsingar um
kostnaða áætlun hvenær sem er. Lítið inn í búðina hjá
oss, við hliðinaá símastöðinni á Gimli og talið við herra
J. Ásgeirsson.
\
þú gefa
EINN D0LLAR
til að hjáipa barni
að komast út úr skugga?
f viðbót við hina reglulegu hjálp, sem Winnipeg Childrens Hospital
hefir veitt líðandi börnum, hefr nú heilbrigðismálaráðherrann beðið
hann fynr 2 5fleiri veik börn. The Sanatorium Board sendir önnur 20
börn til vor til varðveizlu.
Áður en hægt er að taka þessi börn á spítalann, verður að gera
breytingar á spítalanum, og það kostar fé. Rúm hans er vanalega upp-
tekið og þörfin nú fyrir að auka það til helminga.
Þetta er í fyrsta skifti á 12 árum, sem Winnipeg Childrens Hospital
biður aðstoðar. Og féð, sem um er beðið, er ekki til viðhalds eða rekst-
urs, heldur til þess að stæklia spítalann.
The Winnipeg Childrens Hospital hafði á einu ári 14,000 sjúklinga
að líta eftir. 6
Hið hjálpsama fólk Winnipegborgar mun ekki vilja sjá starf spít-
alans hnekt vegna rúmleysis.
Mánudaginn 1. júní fara um bæinn margir menn og konur, er vel-
ferð barnaheimilisins bera fyrir brjósti, til að safna fé fyrir það. Þegar
til þín er komið, þá gefðu með glöðu geði einn dollar, annan fyrir kon-
una og enn annan fyrir hvert barn í fjölskyldunni.
The Dollar Campaign for
The Winnipeg Children’s Hospital
JUNE 1 to 6
4