Heimskringla - 03.06.1931, Blaðsíða 1
DYERS & CLEANERS, LTD.
SPECIAL
Men’s Suits Dry Cleaned
and Pressed ............$1.00
Ladies’ Plain Dresses Dry
Cleaned and Pressed ....$1.00
GoodM Called For and Dellvered
| Minor Repafm, FREE.
Phone 37 001 (4 lines)
MAKE NO MISTAKES
CALL
CTKRS Sc CLEANERS, LTD.
PHONE 37 061 (4 lines)
XLV ARGANGUR.
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 3. JÚNÍ 1931.
Þórarinn Oiafsson
Það er tæpur tími
til að kveðjast stundum.
óvænt örlög binda
enda á vinafundum.
Það er sælla að sofna
svona í fangi dagsins,
en að bíða eftir
andblæ sólarlagsins.
Ef — í öðrum heimi
æðstu þrárnar rætast,
að vér allir fáum
einhverntíma að mætast.
Þegar útsýn opnar
eilífð morgunrjóða,
muntu gestum glaður
góðan daginn bjóða.
Vinur.
NÚMER 36
fjárhagsáætluninni nýju.
Ýmsar tekjur aðrar en toll-
[ tekiur stjórnarinnar hafa mink
í að á 8.1. ári. Tekjur af sölu-
i skatti hafa lækkað. Einnig
urðu tekjur af innanlandsf vöru
lægri en áður.
J Skattarnir, sem Bennett-
] stjórnin gerir ráð fyrir til þess
i að mæta tekjuhallanum, eru
að rnestu fólgnir í auknum
j tollum á innfluttum vörum, er
einkum koma frá Bandaríkjun-
i um. Gerir f járhagsáætlunin ráð
fyrir alt að því 75 miljóna dala
Vorið að koma
FRÁ OTTAWA.
75 miljón dala tekjuhalli.
Fjármálaráðherra, Rt. Hon.
R. B. Bennett lagði fyrir sam-
bandsþingið í^Ottawa s.l. mánu
dag áætlaðan jfjármálaiieikn-
Ing fyrir komandi ár. En áður
en sá reikningur var lesinn
upp, gerði fjármálaráðherra ít-
arlega grein fyrir hag lands-
ins og starfsrekstrinum á s.l.
starfsári, er lauk 31. marz 1931.
Samkvæmt þeirri greinar-
gerð, nam tekjuhallinn s.l. ár
$75,244,973.
Allar tekjur landsins á árinu
námu $356,215,000.
Aftur á móti útgjöldin $440,-
050,657. Verður því munur á
tekjum og útgjöldum um 83
miljónir dala. En vegna þess
að um 8 miljónir dala 'hafa
verið strikaðar út af bókunum
af gömlum hermannalánum
(Soldier’s Land Settlement,
Loans), og falla því úr tekju-
dálkin'um, verður tekjuhallinn
á árinu ekki nema 75 miljónir
dala, eins og frá er skýrt.
Helztu orsakirnar til tekiu-
hallans eru minkandi tolltekj-
ur stjórnarinnar. Eru þær sagð
ar 48 miljónum dala minni á
liðnu ári en árið 1929. Kenna
margir tollhækkuninni sem
gerð var á bráðabyrgðar þing-
Inu í haust, um það. En þó er
eftirtektarvert, að tolltekjurn-
ar minkfuðu meira fyrstu 6
mánuði ársins (frá 1. apríl til
1. október 1930) en síðari 6
mánuðina, eftir að tollhækk-
unin var gerð. I
Öll skuld Canada (net debt)
er nú talin við lok marzmánað-
ar 1931, $2,261,788,917 (rúm-
lega tvær og einn fjórði biljón
dala.)
Tilboð um endurnýjun stjórn
arlánanna (conversion loans)
námu 627 miljónum dala, í
stað 250 miljóna, sem boðin
voru upphaflega.
Ellistyrksútgjöldin hækkuðu
úr hálfri annari miljón upp í
hálfa sjöttu miljón á liðnu ári.
Útgjöldin til þeirra, er hern-
aðarstyrk fá, nema 55 miljón-
um dala á ári. En það eru fJ’öi- (
skyldur dáinna hermanna. —|
Jukust þessi útgjöld um sex
miljónir s.l. ár.
Útgjöld jukust einnig í póst- (
húsdeildinni, vita- og flugliðs j
deildinni.
Og síðast en ekki sízt ern
útgjöldin til atvinnulausra
manna, sem eru nýr útgjalda-
liður, sem talsvert strik gerir
í landsreikningana á s.l. ári.
Fjárhagsáætlunin fyrir kom-
andi ár.
Hvernig stjórnin ætlar sér
nú að mæta áföllnum tekju-
halla og synda hjá honum á
komandi árl, er greint frá í
j tekjum á þenna hátt.
I Á steinkol er lagður 40 centa
tolur á tonnið.
Á útlend tímarit er lagður
15 centa tolur á hvert pd.
Á alla innflutta vöru er lagð-
ur sérstakur skattur, 1 prósent.
Á hvern kassa af appelsín-
um, er inn í landið er fluttur,
1 er lagður 75 centa tollur.
Söluskatturinn er hækkaður’
úr einu upp í fjögur prósent.
Burðargjald á bréfum hækk-
ar um 1 cent.
Burðargjald á blöðum, sem
yfir 10,000 kaupendur hafa,
hækkar um 1/z cent á pundið.
Trúmála- og mentamálablöð
eru undanþegin.
Tveggja centa frímerki verð-
ur nú að setja á ávísanir, þó
undir $10 séu, eins og á ávís-
anir, sem hærri eru.
f þessu eru nú skattarnir
fólgnir. Býst fjármálaráðherr-
ann við að geta með þeim mætt
tekjuhallanum á liðnu ári að
mestu. '
Fimm cent af burðargjaldi á
hverium mæli hveitis ætlar
sambandsstjórnin að greiða.—
Meinar það bara að bóndinn
fær 5 centum meira fyrir hvern
mæli hveitis, er hann sendir út
úr landinu.
Af ellistyrknum ætlar sam-
bandsstjórnin að þorga 75 pró-
sent í ár, í stað þess að hún
áður borgaði 50 prósent af
honum.
Undanþegnir tekjuskatti eru
nú bændur, er tekjur hafa á
ári sem nema $3500. Áður borg
uðu þeir skatt, er $3000 tekjur
höfðu. Er sagt að þetta snerti
500 manns í Manitoba.
Ennfremur er tekjuskattur-
inn að mun lækkaður á öllum,
sem ekki hafa yfir $6000 tekj-
ur. Alls áhrærir það um 1200
manns í Manitoba.
Ræðan, sem fjármálaráð-
herrann flutti um leið og hann
lagði reikningana fyrtr . þing-
ið, er sögð að vera ein sú ítar-
legasta fjármálaræða er um
langan tíma hafi verið haldin í
sambandsþinginu. Það var ekki
aðeins að hagur landsins væri
skýrður í réttu ljósi, og eins og
hann nú er, heldur fanst mönn
um mjög til um lýsingu hans
á framtið þessa lands, ef vitur-
lega væri á stjórn hér haldið
og hollar og heillavænlegar
stefnur fengju að'njóta sín.
SÖNGSAMKOMA.
Söngsamkoma hr. Sigurðar
Skagfield á Baldur var mjög
vel sótt af íslendingum, og vom
allir einróma um hans stór-
kostlegu sönghæfileika. Hann
var endurkallaður hvað eftir
annað, og ætíð var hann svo
góður að syngja eitt eða fleiri
aukanúmer." Sem dæmi þess,
hve fólk sækist eftir að heyra
hann, má geta þess, að Mr. og
Mrs. T. J. Gíslason, Mr. Walte’’
Thorlakson og kunningi þeirra
frá Brown, keyrðu um 75 míl-
ur til þess að vera viðstödd. —
Einnig voru þar frá Upham N.
Heyrðu, sjáðu,
syngdu, spáðu,
sólin er upp að renna.
Ylur frá tindi
andar í vindi;
alveg er hætt að fenna.
Hrestu þorið.
Hertu sporið.
Hér er vorið.
Himininn kann að kenna.
Deigir fjalla
fremstu hjalla
frjófgandi lindin tæra.
Græðir sig sprettan;
grænkar þá sléttan;
grundina vinst að mæra.
Glitrar tómið.
Glensar hjómið.
Glansar blómið.
Alt getur lært að læra.
Berast hljómar.
Hafið ómar.
Hreiðrunaróskir þröngva.
Strendurnar blika.
Strengirnir kvika.
Straumurinn fælir öngva.
Soknir anda
sifjabanda
sælustranda,
mennirnir syngja söngva.
Spáðu, syngdu,
ylinn yngdu
æsku, sem má ei kæla.
Vill hún ógleymdan
drauminn sér dreymdan,
drýgja hannvvill og stæla.
Ljósin brenna.
Lindir renna.
Legir spenna.
* Velkomin, sólarsæla! %
J. P. S.
4=
sem hann náði til, unz konan
hneig örend niður.
McGrath er 23 ára, en kona
hans var 19. Þau giftust fyrir
tveim árum. Heimili þeirra var
hjá Mrs. Bloomfield, móður
konunnar. Þau áttu eitt barn.
Milli hjónanna hafði verið
ósamlyndi undanfarið, og Mc-
Grath hafði farið fyrir nokkru
af heimili mæðgnanna.
Morðinginn flýði eftir þess-
ar athafnir, en var náð af lög-
reglunni.
D., Mr. og Mrs. Freeman og
dóttir þeirra og Mr. og Mrs.
Benson og börn þeirra. — Þau
hvöttu hann mjög að koma
bráðlega suður til Upham og
Bottineau. Fólk telur ekki eftir
sér að keyra langa leið til að
njóta svo indællar söngskemt-
unar.
Mr. Gunnar Erlendsson, sem
aðstoðaði hann við píanóið,
leysti verk sitt prýðilega afi
hendi.
Þær íslenzkar bygðir, sem
ekki hafa heyrt Mr. Skagfield,
mega sannarlega hlakka komu
hans.
O. A.
HVEITISAMLAGIÐ
f MANTOBA.
Sú breyting hefir nú verið
gerð á lögum eða reglugerð
Hveitisamlagsins f Manitoba,
að þeir sem heyra félaginu til
og undir sölusamning þess hafa
skrifað, þurfa ekki fremur en
þeim gott þykir að skifta við
Hveitisamlagið eða að selja því
hveiti sitt. Um þetta mál fór
fram atkvæðagreiðsla s.l. viku
og var yfirfljótanlegur meiri-
hluti bænda í Samlaginu með
því, að skuldbinda sig ekki til
að selja Samlaginu.
Það sem mikil áhrif hefir
hlotið að hafa í þessu efni, er
að fyrsta borgun Samlagsins
hlýtur að verða 8—10 centum
lægri en markaðsverðið, og á
lágverðinu, sem nú er á hveiti,
hefir margur eflaust horft í
þann mun.
Hvaða áhrif þetta hefir á
framtíð Hveitisamlagsins, er
ekki gott að segja.
PÁFINN OG MUSSOLINI
Það er grunt á því góða milli
páfans og Mussolini um þessar
mundir. Eru orsakirnar til þess
þær, að s.l. sunnudag lét Mus-
solini loka öllum kaþólskum
klúbbum á ítalíu. Gerði Musso-
lini þetta vegna bess, að hann
segir að félög þessi eða klúbb-
ar láti sig stjórnmál of mikið
skifta. Páfinn mótmælir þess-
ari aðferð og kveður hana brot
á samningum (concordat)
kirkju sinnar og ríkisins. Er
sagt að ef ekki komist á sætt-
ir, sé ekki hægt að segja um
hvað taki við á ítalíu, því ka-
þólska valdið sé þar svo öfl-
ugt, að ríki Mussolini geti staf-
að hætta af því, ef til hins
versta kemur.
ÍSLENDINGAR ÚTSKRIFAST
frá háskólanum í Saskatoon.
1. Meistarastig í dýrafræði
(M. Sc.) hlaut Árni Páll Árna-
son frá Mozart, Sask. Mr. Áma-
son hefir sérfræðingsstöðu hjá
Canadastjóm.
2. Meistarastig í efnafræði
(M. Sc.) hlaut Ingólfur Berg-
steinsson frá Alameda, Sask. —
Mr. Bergsteinsson hefir verið
veitt Scholarship ($700.00) við
Stanford háskólann í Californía
og mun halda áfram námi í
efnafræði fyrir doktorsstig þar
næsta vetur.
3. Thomas Jóhann Árnason
frá Mozart, Sask., hlaut Bache-
lor of Science með hæstu ein-
kunn í grasafræði. Hann ætlar
sér að halda áfram námi í
grasafræði við Saskatchewan
háskólann næsta ár.
4. Arthur Thorfinnsson frá
Wynyard, Sask., lauk við náms-
skeið kennaraskólans (College
of Education.
5. Alvin .Tohnson, frá Limerick
Sask., stóð hæstur í þriðja ári
verkfræðisskólans, og hlaut the
Engineering Institute of Canada
Scholarship.
6. Robert Johnson frá Lime-
rick, Sask., hlaut hæstu verð-
laun f öðm ári verkfræðisskól-
ans.
fyr. En ástæðurnar fyrir því,
að þetta fallega nafn var
Grænaland, sem skömmu síð-
ar var stytt í Grænland, hafa
aldrei verið taldar, og eru þó
augljósar.
Þessar ástæður vom þrjár:
1. Éiríkur var Norðmaður en
ekki íslendingur.
2. Hann kom frá íslandi.
Hann var kallaður Eiríkur
rauði.
Af því hann var Norðmaður,
þekti hann kuldagustinn, sem
leggur af nafninu ísland, en
sem fæstir af íslendingum
verða varir við, fyr en þeir
hafa lengi verið í útlöndum.
Það er mjög líklegt, að það
hafi verið óhugur í honum, þeg
ar hann á unga aldri varð áð
fara með föður sínum, sem
varð að flýja land sitt fyrir víga
sakir. Og ekki hefir þessi ó-
hugur batnað við að þtnrfa
setjast að á Dröngum, þar sem
Þorvaldi Thoroddsen þótti
einna óvistlegast á öllu íslandi.
Ekki var heldur láninu að
fagna. Reyndar komst hann
frá Dröngum og bjó um tíma
á Eiríksstöðum, en varð að
hrekjast þaðan fyrir ófrið og
víg út í Breiðafjarðaréyjar. —
Þar hefir honum líklega liðið
betur, en óhöppin höfðu enn
ekki skilið ríð hann, svo aftur
lenti hann í manndrápum og
varð fyrir það sekur. Hvort sem
hann hefir þá átt afturkvæmt
til Noregs eða ekki, kaus hann
heldur að sigla vestur og leita
lands þess er Gunnbjörn hafði
séð, og þá sneri hamingjan
loksins við honum fanginu. —
Han nfann nýtt land og bjó
jar til elli, mest metinn af öll-
um íbúum.
Þegar nú nýja landinu skyldi
gefið nafn, er mjög líklegt að
Eiríki hafi fyrst komið í hug
að nefna það Eiríksland. Hann
Við Andiátsfregn
SR. KJARTANS HELGASONAR
Bið eg guð að græða,
græða djúpa sárið,
ástvina hans allra
hafði enga trú á því. Hann j angnrs þerra tánð,
hafði kallað bæ sinn á tslandi IvefJa fógrum vonum
Settist sorg að Hvammi
á sjálfan páskadaginn;
skygði ský á sólu,
skuggsýnt varð um bæinn;
þannig lífsins leiðir
liggja um táradalinn,
því við sorgar sorta
sól er gleði falin.
Dýr er drengur horfinn,
drottins þjónn og manna;
vann um alla æfi
að því hreina og sanna;
kristindómihn kendi,
kendi í orði og verki.
Kjartans öll var iðja
undir kærleiksmerki.
Sá sem allir unna,
ekki dáið getur;
mæt sú minning varir
magni auðvalds betur;
inn á æðri brautir
okkur líf lians bendir,
rökkur dauðans dvínar,
drenglund birtu sendir.
Kjartan kom hér vestur
kraftinn máls að sanna;
enginn annar betri
okkur reyndi að manna;
geyma móður-málið,
málið, sem hann unni,
og af öllum fjölda
öðrum betur kunni.
Sorg er mér í sinni,
sorg í stefjakvaki;
gest ei átti eg annan
nndir mínu þaki,
sem mér betur sýndi,
sönn hvað mentun getur,
upplýst hryggan huga,
hlýað kaldan vetur.
GRÆNALAND.
\
HRYLLILEGT MORÐ.
f bænum Souris í Mani-
toba myrti bóndi einn, James
McGrath að nafni, konuna sína
í gærmorgun á hinn hryllileg-
asta hátt.
Hann óð að henni á heimili
beirra með kiötsveðju mikla í
liendi og skar konuna með
henni á handleggjum og hvar
Þegar Eiríkur rauði kom til
íslands og sagði vinum sínum
frá því að hann hefði fundið
nýtt land, sem hann ætlaði að
byggja, spurðu þeir haiin, hvað
þetta land ætti nú að heita.
Svarið var: Grænaland. — Og
því þá Grænaland? — Því það
væri fallegt nafn og mundi
hæna að sér innflytjendur.
Fyrir þetta liefir Eiríkur ver-
ið kallaður hinn fyrsti fast-
eignaprangari (real estate pro-
moter), og er það satt. í það
minsta er ekki annara getið
Eiríksstaði, en engin gæfa fylgt
jví nafni. En Rauðaland?
(Hann var kallaður Eiríkur
rauði). Nei, það dugði nú ekki.
Þá Hvítaland? Það sannarlega
lýsti vel landi, sem kafið er f
jöklum, og hefði hann verið
fslendingur, er mögulegt að
hann hefði kosið það nafn, því
íslendingum þykir heiður að
jví að kenna sig við ís og
jökla, sem nöfnin: Jökull, Snæ-
land. fsfeld, Snowfield og fleirí
benda á. En Eiríkur kom fré
íslandi, var að öllum líkindum
illa við landið og nafnið, og
fann líka að Hvítaland var
kaldhranalegt nafn.
Nú var hann kominn í lit-
ina. — Gulaland? Nei. — Bláa-
land? Það var í Afríku.-------
Grænaland? Þarna kom það!
Fallegt nafn og aðlaðandi. —
Grænaland skyldi landið hans
heita. Og Grænland heitir það
enn í dag. Þó nafnið eigi lítið
eða ekkert betur við en ísland
á við vesalings eyjuna, sem nú
í þúsund ár hefir burðast með
það ónefni. Enda var það nafn
gefið í illum tilgangi, til að
níða landið og er það skömm
að láta það haldast við.
M. B. H.
vinarplássið auða,
gefa ljós, sem lýsi
lífi um gröf og dauða.
Sigurður Jóhannsson.
KOSNINGAR.
Kosningarnar á fslandi fara
fram 12,'júní n.k.
Séra Guðm. Árnason frá Oak
Point, Man., kom til bæjarins
s. 1. föstudag. Hann hélt dag-
inn eftir út til Piney, Man., og
messaði þar á sunnoidaginn (þ.
31. maí.
Föstudaginn var, 29. þ. m.
andaðist í bænum Regina,
Sask., Mrs. Marion Elding Price
dóttir Mrs. Dýrfinnu Elding hér
í bænum. Mrs. Price var kona á
ungum aldri gift fyrir fáum
árum síðan. Maður hennar heit
ir James Price og er yfirmats-
maður á skrifstofu Royal bank
ans í Regina. Héðan fóru til
þess að vera við jarðarförinEi,
hr. Árni Eggertsson fasteigna-
sali og Sigurður sonur hans,
Mrs. Kristín Reykdal, Mrs. Dýr-
finna Elding og dóttir hennar
Alma Elding. Frá Wynyard,
Árni G. Eggertsson lögfræðing-
ur og Ragnar Eggertsson. Frá
Mozart, Mrs. Helga Pálsson og
frá Leslie Mr. og Mrs. W. H.
Pálsson þingmaður. Þau Árni
Eggertsson, Mrs. Reykdal og
Mrs. Pálsson eru móðursyst-
kini hinnar látnu. Andlát Mre.
Price er hinn mesti raunaat-
burður fyrir alla ættingja henn
ar og vottar Heimskringla þeim
öllum hina innilegustu hlut-
tekningu sína.
• • *
Hin ágæta grein “Gull” sem
birtist í síðasta blaði Hkr., var
skrifuð af dr. M. B. Halldórs-
syni . Sást yfir að setja nafnið
við hana vegna þess, að höf.
las sjálfur próförkina í fjar-
veru (veikindum) ritstjórans,
og ritar aldrei nafn sitt sjálfur
við það, sem hann sendir blað-
inu. I