Heimskringla - 03.06.1931, Page 4

Heimskringla - 03.06.1931, Page 4
4 BLAÐSJÐj* HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 3. JÚNÍ 1931. 'pctmskringk StofnuO 1886) Kemur út á hverjum miOvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS. LTD. *JJ og 8b5 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86537_________ | Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist íyrirfram. Ailar borganir sendist THE tflKING PRESS LTD. Háðsmaður. TH. PETURSSON Utanáskrift til *bla0sins: Uanager THE VIKING PRESS LTD.. 853 Saroent Ave.. Winnipeo Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til rKstjórans: EDITOR HEIV SKRINGLA 853 Sargent A je., Winnipeg. ‘Heimskringla ’ ls published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-855 S'trgevt Avenue. Winnipeg, Man. Telephone: 89 994 WINNIPEXl, 3. JÚNÍ 1931. FARANDSALINN. Það hefir sjaldan verið eins mikið um þenna ófögnuð, farandsalana, og á síð- astliðnu vori. í>að hefir gengið svo langt, að mörg Ijúsfreyjan hefir oft litlu getað komið í verk á daginn á heimilinu fyrir þeim. Um leið og einn hefir farið, hefir annar óðara verið kominn og byrjað sama endalausa vitleysis vaðalinn um eitthvert skn'tugt skran, iem hann hefir þurft að selja, og raun hefir verið að hlusta á. Og svo framir, ruddalegir og ókurteisir og ósjaidan viðbjóðslegir eru þessir prangarar oft, að við þá er á- rangursláust að tiala kurteislega, og verða því oftast leikslokin þau, ef losna á við þá, að skeila verður á þá hurðum. í hverju siðuðu þjóðfélagi getur þessi farandsala ekki skoðast annað en blátt áfram faraldur eða pest. En farandsalinn hefir leyfi frá yfirvöldum fylkisins eða bæjarins að reka þetta starf. Hvað mik- ið fé þeir greiða til hins opinbera fyrir það, skal hér ekki fullyrt um. Líklegast er það 10 til 20 dalir á ári. En hvaða rétt hefir hið opinbera til að leyfa þess- konar sölu? Hefir það rétt til að leigja forgarða og forsali heimila, sem eru eign einstakra manna, hvaða slordóna sem er fyrir skransölustöð? Vér eigum bágt með að sjá. að nokkuð sé til sem rétt- lætir það. 1 bæjunum eru verzlanir til á hverju götuhorni, sem allar þær vörur hafa er heimilið þarfnast og mikið meira en það. Og þar á fólk að mæta kurteisi og lipru viðmóti, auk þess sem það á þar viðskiftamann, sem það getur treyst, og sem ávalt er sanngjarn og reiðubúinn að greiða fyrir viðskiftavinum sín- um á ýmsa iund, svo sem að taka vöruna til baka, ef ófullkomin reynist, og lána þeim, ef á þarf að halda o. s. frv. Þörfin á þessu farandsölufargani er því engin, og að eiga kaup við þá er bæði valt og undantekningarlaust hverjum manni hvimleitt. Og að þurfa að hlaupa til dyr- anna frá diskþvotti eða öðrum hússtörf- um, á hverjum tíu mínútna fresti, allan daginn, til þess að taka á móti þessum óbilgjörnu og ósiðuðu þvarg- og þvað- ursskjóðum, er meira en nokkur hús- freyja ætti bótalaust að gera sér að góðu. 1 blaði frá Regina er á þetta efni minst nýlega, og er þar frá því sagt, að hús- freyja ein hafi tekið það til bragðs, til þess að þurfa ekki að ergja sig með þvi að eiga tal við farandsalana, að hafa til reiðu í forsai hússins “eggjapískara’’, sem hún tók til að þeyta og reyna að selja farandsalanum, sem að dyrum henn ar baf. í stað þess að gefa minsta gaum að því sem farandsalinn sagði, tók hún til óspiltra mála um leið og hún leit hann, að reyna að selja honum eggja- pískarann, og sýndi honum hve undur- samleg afleiðingin af notkun hans væri. Hún kvaðst að vísu ekki hafa selt þá marga, en þetta hefði haft þau áhrif, að hver farandsali hefði aldrei tafið mjög lengi við dyrnar, auk þess sem koma þeirra hefði eftir þetta aldrei vakið hjá sér ilt skap, heldur þvert á móti komið henni til að brosa að áhrifunum, sem þetta ráð hennar hafði á þá. Vér vildum ráðleggja öðrum húsfreyj- um, sem engan frið hafa fyrir farand- sölunum, að fara að dæmi þessarar konu, að minsta kosti á meðan yfirvöld- in eru að átta sig á, hvílíkt hneyksli og fávizka farandsalan er, sem þau heimila að höfð sé í framnai. NÝTT TOLLMÁLARÁÐ. Sambandsstjórnin kvað hafa skipað nýja nefnd eða ráð, sem hafa á algert eftirlit tollmálanna með höndum. Verksmið þessarar nefndar skilst oss eigi að vera í því fólgið, að hafa vakandi gætur á áhrifum og afleiðingum toll- anna á hag landsins. Ef nefndin kemst að því að tollar séu of háir á einhverri vissri vöru, eða of lágir á annari, hefir hún vald til þess að breyta þeim og laga í hendi sér eftir ástæðum, eða þörfum, en þó með samþykki þings og stjórnar. Hverjir í ráð þetta verði skipaðir, er enn ókunnugt um. En þörfin á þessari nefnd dylst ekki. Tolmál Canada, sem annara landa, eru svo víðtæk í eðli sínu að afar erfitt er nema fyrir sérfræðinga í hagfræði, að dæma um hvenær tollar eru til góðs og hvenær til ills.. Stjórn- málamenn eða þingmenn landsins, að örfáum undanteknum, geta naumast bygt það, sem þeir segja um tollmál, á bjarg- fastri þekkingu. Enda hefir afleiðingin af meðferð stjórnanna á tollmálum oft ver- ið hin versta á hag þessa lands. Um það hefir reynslan borið vitni. Og sú reynsla hefir stundum verið dýrkeypt. — Toll- málin eru með öðrum orðum mál, sem ekki verður viturlega farið með af öðr- um en hagfræðingum og þjóðmegunar- fræðingum. Það er verkefni sérfræðinga og vísindamanna, að fara svo með þau mál, að þau geti komið þjóðinni að verulegu gagni. Litið á myndun þessa ráðs frá þessu sjónarmiði, dylst það ekki að Bennett- stjórnin hefir hér stígið þýðingarmeira spor en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir. Það mun sannast, að þegar ráð þetta er búið að kynna sér áhrif toll- anna frá sem flestum hliðum, á hag landsins, verður löggjöfin í sambandi við þá hagkvæmari en áður. í ágætri grein, sem birtist í Lögréttu, einu bezta íslenzka vikublaðinu, sem út er gefið heima, og endurprentuð var f Hkr. nýlega, er að því atriði vikið, að yngri hagfræðingar (economistar) hall- ist mjög að þeirri skoðun nú, að stjórn- málin beri að skoða frá hagfræðilegri eða vísindalegri hlið, fremur en frá póli- tískri hlið. Telja þeir meginatriði stjóm- málanna vera svo mikið rannsóknar- efni, að miklu lengri tíma og Íhákvæm- ari athuganir þurfi, en stjórnmálamenn eða þingmenn eigi yfirleitt kostá, til þess að geta ráðið fram úr þeim á sem heppi- legastan hátt. Eitt af þeim stjórnmálum, sem þetta má með fuflum rétti segja um, eru ef- laust tollmálin. Þetta getur komið þeim einkennilega fyrir, sem hæst hvín í í stjórnmálum, og sem heitt og innilega trúa á einhverja flokksstjórnarskímuna, sem hina einu réttu. Um óskeikulleik slíkrar trúar fá- umst vér ei. En þess verður sennilega ekki langt að bíða, að helztu atriði stjórn málanna verði fengin nefndum sérfræð- inga í hendur til rannsóknar og eftir- líts, og að löggjöfin framvegis komi frá þeim, en ekki frá háttvirtum þingmönn- um. Væri það bragarbót mikil, þvf með allri virðingu fyrir þingmönnum, ber því ekki að neita, að á þessum seinni árum hafa ekki margir spámenna komið fram á meðal þeirra. /HVER ER MUNURINN? Það hefir talsvert verið um það talað undanfarið, að Bennettstjórnin muni ekki ætla að taka að sér greiðslu á ellistyrkn- um, eins og búist var við að hún gerði, og hafa liberalar og andstæðingar stjórn- arinnar gert sér far um að benda á það, sem eitt af kosningaloforðasvikum Ben- netts. Forsætisráðherra mun hafa gefið í skyn, að erfitt myndi á þessu ári fyrir sambandsstjórnina að færast í fang að greiða þenna skatt að fullu. Tekjuhall- inn er mikill á árinu og stjórnin á efna- lega í vök að verjast. En enginn efi mun þó á því, að hér er aðeins um eins árs frest á því að ræða, að elilstyrkurinn verði allur af sambandsstjórninni greidd- ur. Og hver er svo munurinn á því að sambandsstjómin eða fylkisstjómirnar greiði þenna styrk? Hvaða mun gerir þér eða mér það, hvort að við greiðum sambands- eða fylkisstjórninni skattinn, sem á okkur verður lagður til þess að Standa straum af útgjöldunum, sem hon- um eru samfara? Hvaða stjórn, sem skattinn greiðir, verður að afla fjárins til að greiða hann með, á þann vana- lega hátt að skatta borgarana. Vér sjáum því ekki að það geri til né frá, hvernig fyrst um sinn fer um þetta mál, eða hVbrt sambandsstjórnin byrjar nú þegar að greiða ellistyrkinn, eða ekki fyr en á næsta ári. RÖK. Fjölkunnugur: Þú spurðir mig hvern- ig á því stæði, að vísindamenn. héldu, að allar lifandi verur hafi til orðið af einni og sömu frumu, eða þessum slím- ögnum í pollum fyrir biljón árum. Til þess liggur þessi ástæða. í líkama manns ins eru auk frumanna, sem í félagsbúun- um hafast við, aðrar frumur, er lifa þar út af fyrir sig og óháðar, alveg eins og amöburnar gera. Þær heyra okkur til, en eru samt ekkert bundnar okkur. Þær eru eins og lausamaðurinn eða leigjand- inn. Þær fara og koma eftir eigin geð- þótta og taka sér bólfestu hér og þar í líkamanum. Þær borga, okkur húsaleig- una með því, að herja fyrir okkur á ó- vini, ef að höndum bera. Þær eru hvítu kornin í blóðinu. Það er verkefni þess- ara hvítu blóðkorna, að ráðast á og eta upp sýkingargerla, um leið og þeir láta á sér bera. Forvitinn: Þetta kalla eg nú í meira lagi eftirtektarvert. En mér er ennþá dul- in ástæðan fyrir því, að maðurinn sé af amöbum kominn. Fjölkunnugur: Eg býst við því. En hún verður þér ekki lengi dulin. Þér mun þykja það undarlegt, er þú heyrir það, en svo er því þó varið, að þessi her- skáu blóðkorn í líkama mannsins og am- öban í skorningunum meðfram götunni, eru náskyld. Þau eru ekki aðeins lík að þessu leyti, að vilja lifa óháð eða útaf fyrir sig. Það er einnig að útliti til mik- ill frændsvipur með þeim. Þau anda, eta, hreyfast og auka kyn sitt hieð sama hætti. IJn það sem mestu varðar þó er ef til vill það, að líkami þeirra beggja er myndaður úr sama efni. Forvitinn: nú fer mig að gruna, að hverju þú ert að stefna. Fjölkunnugur: Á því átti eg von. — Efnið sem bæði amöban og hvítu blóð- kornin eru gerð úr, er eins og hlaup, og líkist talsvert hvítu úr hráu eggi, nema hvað það er þykkra. Það er kallað lífs- frymi (protaplasm). Og nú kem eg að sönnunum þeim, sem þú hefir lengi beð- ið eftir. Það eru ekki einungis hvítu blóðkornin og amöban, sem lífsfrymið er í, heldur er það í öllum frumum. Með öðrum orðum, þú og eg, hesturinn og hundurinn og öll dýr merkurinnar, fugl- ar loftsins og fiskar sjávarins og grasið, sem á jörðinin vex, alt sem líf bærist með, er í aðalatriðunum saman sett úr einu og sama lifandi efninu. Ertu nú ánægður? * 1 Forvitinn Fyllilega. Þetta skýrir til fullnustu á hverju vísindamennirnir byggja hugmynd sína um það, að alt líf sé frá einum og sama forföður komið. Og eg sé jafnframt hvernig á því stend- ur, að þeir vita nokkurn veginn hvern- ig fyrstu h'fverurnar muni hafa litið út. Fjölkunnugur: Já. En láttu þér samt ekki detta í hug, að fyrstu lífsfrumurnar hafi verið í öllum atriðum alveg eins og amöban og hvítu blóðkornin eru nú. Fyrsta lífkveikjan (life germ) var miklu einfaldari og óbrotnari. Á þessum þús- und miljón árum, sem liðin eru síðan h'f- ið kom fyrst fram, hefir lífsfrymið breyzt mjög mikið. Það hefir smátt og smátt lagað sig eftir verkefnunum, sem því hafa verið úthlutuð og sem í sfnum marg breytileik skifta miljónum. Eftir því sem lífið þróaðist, eftir því urðu verkefnin bæði fleiri og flóknari. Þess vegna ér fruma úr hella þínum eins ólík fyrstu lífsfrumunni og nýjustu bifreiðarnar eru ólíkar elztu uxakerrunum. En eins og bifreiðin er á sömu hugmyndinni bygð og uxakerran, svo er það og einnig með þróun lífsfrymisins. Forvitinn: Þú sagðir að amöban í pollinum og frumumar í blóðinu önduðu með sama hætti. Hvernig á eg að skilja það? Fjölkunnugur: Mér þykir vænt um að þú spurðir mig þessarar spurningar, því að með því^að svara henni, komumst við að hjartapunkti efnisins. Aðal leynd- ardómurinn með fyrstu lífsverurnar var fundinn, þegar menn komust að því, að þær gætu andað. Það er aðal ástæðan fyrir því að þær geta lifað og haldist við. Veiztu hvað á sér stað, þegar þú 'andar? Forvitinn: Eg tek loft inn í lungun. Og súrefnið í loftinu samlagast svo blóðinu. Fjölkunnugur: Það er hár- rétt. En það sem á sér stað er þetta: Þegar þú andar, er súr- efnið úr loftinu, sem ofan í lungun komst, borið af rauðu blóðkornunum með blóðinu til hverrar einustu frumu í líkam- | anum. Frumurnar nota súrefn- | ið en senda aftur til baka með blóðinu, sambland af súrefni og kolefni. Þetta er kallað kol- sýra. Það er loftkent efni eins og súrefnið, sama loftefnið oa bólunum veldur á sódavatni. Rauðu blóðkornin anda súrefni að sér gegnum’húðina eða yf- irborðið. Og það er einmitt hið sama og amöban gerir. Þess vegna má segja, að frumurnar í blóðinu andi með sama hætti og amöban. Er þetta nægilega Ijóst svar við spurningu þinni? 1 fullan aldarfjórðung hafk Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna morgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjúr fyrir $2.50. Pant. má þær beint frá Dodds Mediciue Company, Ltd., Toronto, Ont., og senda andvirðið bangað. Forvitinn: Já, en við hvað áttirðu, þegar þú sagðir að frumurnar í öllum hlutum lík- amans “notuðu” súrefnið? Fjölkunnugur: Ein aðal notkun þess er í þyí fólgin, að saipeina það kolvetninu í blóð- inu. Við þá sameiningu mynd- ast orka (energy). Forvitinn: Hvað áttu við með kolvetni? Fjölkunnugur: Það eru efria- sambönd, sem í er kolefni blandað vatni og súrefni. Það er með þessum efnasambönd- um, að sykur og sterkja, sem eru einföldustu fæðuteg- undir og frumhýði (cellulose) er myndað. En gáðu að því, að kolefni, vatn og súrefni geta ekki orðið að kolvetni án orku, sem er í sólarljósinu. Forvitinn: En þú varst rétt að tala um kolvetni í blóðinu. Og nú segirðu að það geti ekki myndast nema fyrir orku frá sólarljósinu. Ekki getur sólar- Ijósið komist alla leið inn í blóð ið í líkamanum? Fjölkunnugur: Nei, það get- ur það ekki; en orkan, sem f því er, kemst þangað óbeinlínis. Og sannleikurinn er sá, að án sólarinnar gætum við ekki lif- að. Lífið á þessari jörð, að mannfnum meðtökium, hefði aldrei komið fram á þessari jörð, ef það hefði ekki verið fyrir sólarljósið. Það héldis* ekki lifandi eitt augnablik án þess. Með öðrum orðum, ef það væri ekki fyrir sólina, hefði hvorki þú eða eg verið til. Frh. SINDUR. í auglýsingu í Lögbergi um messur íslenzks trúboða í lút- ersku kirkjunum á Otto og Lundar nýlega, stóð að umtals- efnið væri: “Úthelling heilags anda á báðum stöðunum”! • • • Lögin xegja á stríðstímunum. —Cicero. Endurminningar Eftir Fr. Guðmundsson. Frh. Kjörþingið endaði með því, að séra Benedikt hlaut þing- sætið með fárra atkvæða meiri hluta. Séra Benedikt í Múla var glæsimenni, svipmikill, greindarlegur og góðlegur, æf- inlega fínlegur til fara og prúð- ur í viðmóti og framkomu. — Hann var ríkur maður, ekki þó fyrir yfirgang, því vel metinn og vinsæll var hann í héraði. Þegar nú þessa er gáð, og það jafnframt haft í huga, að hann þótti^ atkvæðamaður á þingi, þá má það álítast eðlilegt að hann bæri hærra hluta úr být- umáþessu þingi. En þegar eg seinna kyntist Guðmundi í | Sköruvík mikið og ' vel, og j lærði að skilja hans mikla stríð og svekkingu á mörgum þá. liðnum æfiárum, þá fór mig; að langa til að hann hefði kom ist á bekk með sér líkum hæfi- leikamönnum. Ekkert vakti meira eftirtekt mína á þessu þingi en það, hve ólíkt men nvoru klæddir, og héldu sér ólíkt til að öðru leyti. Núpsveitungar komu mér jafnast og bezt fyrir á þenna hátt; þeir voru allir svo hrein- ir ðg hóflega klæddir af veT unnum íslenzkum dúkum. Ax- firðingar gengu þeim næst að útliti, voru ójafnari; á meðaí þeirra voru snildarlega snyrti- legir menn, sem eg minnist æf- inlega með geðþekni og raun- ar aðdáun. Þar var sá maður- inn, sem eg fyr og seinna dáð- ist mest að af öllum í sýslunni, Björn bóndi Gunnlögsson 'f Skógum. Hann hafði alt til að bera, fallegur maður á allan hátt, skarplegur, gáfulegur og góðmánnlegur; en þegar eg seinna kyntist honum betur, þá reiddist eg við hann kanske tfu sinnum á dag, af því hann var ofurlítið háðskur, einmitt þegar á þurfti að halda, en mér kom það svo illa, þegar eg í hjartans einlægni ætlafði 'að gera einhverja vitleiysu. Það fór svo vel á svipnum á hon- um, hvað eg væri takmarkaður og brjóstumkennanlegur. En svo þurftum við að missa hann- á bezta aldri, og það var lítið getið um þann mannskaða. Og þá var ekki einurðin búin að ferma mig, svo eg hélt eg ætti að þegja, þegar þó var einn helzti tíminn til að mögla. Þó nú Axfirðingar á þeim tíma ættu fleiri ágætismenn en sum þeir líka menn, sem ekki áttu þeir líka menn, sem ekku áttu til skiftanna, þó á kjörþing þyrftu að fara. Þó eg hefði ekki atkvæðisrétt á kjörþinginu, þá hafði eg samt nóg að gera, að sjá nú fjölda þeirra manna, sem eg hafði oft heyrt getið um í sambandi við eitt eða annað, en aldrei séð fyr. Keldhverfingar voru hrein- legir menn og komu mér vin- gjarnlega og vel fyrir sjónir; en sérkennilegur sveitarbragur lék á svip þeirra. Mér er mikiT ánægja í því ,að geta hér nefnt nafnið hans Indriða Isaksson- ar í Keldunesi. Líklega hefir hann verið atkvæðamesti mað- urinn í þeirri sveit, og þó mundl flestum hafa orðið að benda seinast á hann til gagnlegra úrskurða og framkvæmda. — Hann barst ekki mikið á, var aldrei sóði yzt né inst, en heldur aldrei augnagull. Hann var hins vegar æfinlega eins og hreinn og svalandi sunnan- vindur í samvinnu, ekki sízt er til óyndisurræða kom, og efna- maður var hann mestur f Kelduhverfi. Hjálmar sagði: Funar undir fótum mér, frændur og vinir sofa..

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.