Heimskringla - 16.09.1931, Page 4

Heimskringla - 16.09.1931, Page 4
4. BLAÐSlÐÁ HEIMSKRINLA WINNIPEG 16. SEPT., 1931. Heímðkringla StofnuO 18SS) Kemur út á hverjum miSvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS. LTD. »JJ og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86537 VerS blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist fyrirfram. Ailar borganir sendist THE VIKING PRESS LTD. Ráðsmaður. TH. PETURSSON Vtanáskrift til blaðsins: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til rilstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ape., Winnipeg. '•Heimskringla” is published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-855 Smrgcnt Avenue, Winnipeg, Man. ÍP1 ephone: 89 994 WINNIPEG 16. SEPT., 1931. RABB VIÐ LESENDURNA I. Við byrjun næsta mánaðar, Jiefst fertugasti og sjötti árgangur Heimskr- inglu. Eru það ekki ómerkileg tímamót í æfi blaðs. að hafa náð þeim aldri, því oft hefir raunin viljað verða sú, að þau hafi ekki náð fullum hundsaldri hvað þá meira. Litifi á allar torfærurn- ar, sem á leiðinni eru, að gefa hér nokkuð út á íslenzku, má Heimskringla happi hrósa, að vera enn á faraldsfæti eftir nærri hálfan annan mannsaldur. Á hún það auðvitað að þakka ágætum stuðningi ísledinga, bæði að því er kaup snertir á blaðinu, og með því að hafa. stutt að því, að gera lesmál þess sem fjölbreytilegast, skemtilegast og gagn- legast. Að teija upp nöfn allra þeirra vina, er ókleyft vegna þess að þar þryti fyr dagur en dæmi. En þau nöfn munu seint gleymast þeim, er meta kunna það starf, sem unnið hefir verið með útgáfu Heimskringlu í fjörutíu og fimm ár í þjóðlífi íslendinga hér vestra, fyrst og fremst, en að talsverðu leyti einnig á meðal íslenzku þjóðarinnar í heild sinni sem boðberi þess, er frjálsast og djarf- ast hefir verið hugsað og rætt til eflingar trúarlegu víðsýni og hnekkis þeim viðj- um, er fyr og síðar hafa átt langmestan þátt í andlegri ánauð mannkynsins. l:* ** II. Þegar núverandi ritstjóri Heimskringlu tók við ritstjóm, var ekkert á skoðanir eða stefnur minst í því sambandi. engin loforð gefin um hverju yrði haldið fram og hverju ekki. Engin hátíðleg yfir- lýsing gefin tmn undirtektir við pípu blæstri eins eða annars flokks eða félags Þetta hefir eflaust þótt vera, að fara aftan að siðunum. Eg vil — — eg ætla — — o. s. frv., er heróp ritstjóra oftast fyrirfram, þó engar séu svo efndírnar. í því efni ér skoðun vor, að réttast sé, að láta skeyka að sköpuðu með dóma lesendanna eftir að þeir hafa kynst efni og innihaldi blaðsins. Það getur að minsta kosti ekki kallast að selja “köttinn í seknum”. Kaupendur vita þá, að hverju þeir eru að ganga. Hins skal gjaman getið, að vér álít- um það fyrsta hlutverk vikublaðs, að bregða einhverju ljósi á þær fréttir, sem úr umheiminum berast og einhver veig- ur er í. Vanalega berast fréttirnar fyrst með símskeytum til dagblaðanna, en eins og af sjálfu sér leiðir, er oftast þannig frá viðburðum sagt í þeim, að erfitt er að átta sig á hinu verulega samhengi þeirra. Um ástæðurnar fyrir viðburöunum og afleiðingar þeirra, er margur, sem fréttimar les, jafnnær, eftir sem áður. Úr þessu bæta hin betri tímarit. í þeim er haldið á lofti skoðun- um manna í sambandi við það sem er að gerast í heiminum á öllum sviðum. Eréttirnar eru í þeim krufðar til mergj- ar, og skilningur manna með því glædd- ur á viðburðunum. Oss virðist að verk- efni íslenzkra vikublaða geti að miklu leyti verið í þessu sama fólgið og tíma- ritanna. Og með það í huga, hafa sum- ar þær greinar verið skrifaðar. er í rit- stjómardálkum Heimskringlu hafa birst í seinni tfð ásamt lengstu fréttagrein- unum á fyrstu síðu. Að því er stjórnmáiastefnur áhræir, höfum vér þá skoðun, að á þær beri að líta einnugis frá hagfræðislegri hMð. Stjórnmál eru vísindaleg í eðli sínu. Frá , j þeirri hlið einni ættu þau að vera rædd. i j En þegar komið er út í hita í kosning- j um, er sjaldnast mikil þýðing að því og j blekkingarhindurvitnum rigriir þá niður j eins og skæðadrífu frá öllum flobkunum og fenna alla skynsemi í kaú Við þá óvætt verða oft þau blöð að stríða, sem annars væri hugleiknara að hefja stjórn- j málin upp úr vilpunni. Um þetta eru allir flokkar og flokksleysingjar jafnt sekir. Með þetta fyrir augum hefir Heims- kringla hftllast að þeim flokki, að svo ; miklu leyti sem hún hefir látið sig lands- pólitíkina snerta, er hún hefir álitið að hinum flokkunum fremur liti á stjóramál- in frá hagfræðislegri hlið. En aðeins að því leyti til er hún nokkrum flokki fylgj- andi. ra. Annað helzta verkefni Heimskringlu en það, að benda á það, sem bezt er hugsað og ritað af bæði enskum og ís- ienzkum rithöfundúm, er auðvitað að taka óskiftan þátt . þjóðræknisstarfsemi allri. í því efni geta íslenzku blöðin hér gert mikið gagn og eiga að gera. En það verkefni þeirra blessast því aðeins, að íslendingar séu einhuga og samtaka um það mál. íslenzkum bömum þarf að kenna íslenzku. Og það þarf að glæða áhuga þeirra fyrir því, sem íslenzkt er. Tilraunir deilda Þjóðræknisfélagsins í þessa átt hafa sýnt, að þetta er vinnandi vegur. Það þarf ekki og þýðir ekki að bera því við, að það sé ofraun nokkuru barni, að læra eitt tungumál, þar sem að hvert barn lærir eitt eða fleiri tungu- mál áður en það fer út úr tólfta bekk unglingaskólanna.. íslenzk foreldri mega sjálfum sér um kenna, ef slíkt fer út um þúfur. Að börnin nema ekki ís- lenzku, er ekki þeirra synd, það er synd feðranna, sem þar kemur fram á þeim. Ljóst er oss það, að sá hugsunarhátt- ur er hér ríkjandi á meðal lslendinga, að engin sé bættari með því að kunna ís- lenzku, að íslenzkt félagslíf, kirkjur og biöð og hvað annað sem eí megi deyja drotni sínum, að enskan bæti þeim það alt að fullu. Þeir sem þannig hugsa. minna oss ávalt á skrítluna af Gyðingn- um á skipinu sem var að sökkva. Hún er þannig: Kafteinninn: Það er alt tapað! Eg get ekki bjargað skipinu! Moses: Heyrirðu Aron hvað hann er að segja Hann segir að skipið sé að sökkva! Aron: Látum það sökkva. Hverju töpum við á því Við eigum ekki skipið! Vér erum hræddir um að mörgum íslasndingnum sjáist yfir þdð, ein^ og Gyðingnum, að þeir* sökkvi einnig, sem á skipinu eru, með því. TRjtw:" % * ' ~ - -— iv. Lestrarfýsu íslendinga hefir verið við- brugðið til skamms tíma, að minsta kosti. Þeir virðast hafa hugsað eins og Emerson, að bækur séu hinn æðri heim- ur innan tilveru-heims mannanna. Þetta má ekki síður segja um æskulýðinn íslenzka. Hann er sí-lesandi, ensku auðvitað af því að honum er ekki kend íslenzka. Eg þekki. börn, sem varla er h>egt að koma matnum í fyrir lesfýsn. Torvelt ætti ekki að verða, að kenna þeim íslenzku. Þetta er einn af erfða- kostum Íslendingsins. Hann er alinn upp við bóklestur. Það mun eins dæmi í sögunni, að stjórn nokkurs lands hafi lagt eips mlkla rækt og veitt eins mikinn stuðning öllu er að því hefir lotið, að glæða hugsanalíf alþýðunnar og íslenzka þjóðin hefir gert. Og með jafnvel alt það í huga, sem sagt hefir verið um veitingar til skálda og rithöfunda af opinberu fé> er óvíst að íslendingurinn hefði við það orðið maður að meiri eða' göfugri, þó að því andlega starfi hefði enginn sómi verið sýndur. Oös minnir það vera John Ruskin, sem sagði, að auður þjððana væri ekki falinn í skildingunum, sem. hún hefði I hand- u raðanum, heldur i því, hve þegnarair væru hæfir tH að hugsa. Meðan löngun Íslendingsins til lesturs ekki dvínar, mun hann reynast góður þegn þess ríkis sem hann tilheyrir. V. Það sem nú hefir verið minst á, er eitthvað af hugsjónum þeim, sem Heims- kringla álítur þess verðar að beita sér .fyrir. Eitthvað af þeim mun hiin bera á borð fyrir yður lesendur sína, og það sem frá penna þeirra manna kemur, í því efni, er eins eru ritfærir og prest- amir spra R. E. K., séra B. Kr., dr. R. P. og séra G. A., auk ótal annara afbragðs- ritfærra manna og kvenna, ásamt hend- ingum við og við frá okkar beztu skáld- um, þorum vér hiklaust fyrirfram að mæla með. Vonum vér jafnframt, að sem flestir verði til að færa sér það í nyt með « því að lesa það. VI. Við kaupendur sína er Heimskringla í skuld um þrjú hálf blöð síðan á nýári. Vegna j|tundar anna í prentsmiðjunni. varð í þessi skifti ekki komið við að prenta alt blaðið. En það er nú ætlun Heimskringlu, að bæta þennan skaða upp áður en árinu lýkur. Vonar hún að kaupendur erfi það .ekki, þó. svona yrði að vera. VII. Með áskriftagjaldi sínu fyrir komandi árgang Heimskringlu, lét nýlega einn kaupandi hennar fylgja þau ummæli, að heldur vildi hann, ef með þyrfti, herða dálítið á sultarólinni, en að vera eina viku án blaðsins. Um leið og þetta er áreiðanlega að hugsa og breyta rétt samkvæmt því góða og gilda orði, að maðurinn lifi ekki á einu saman brauði, ber hinu sízt að neyta, að það gerði sjö hjörtu sæl, eins og presturinn sagði, sem gifti þrenn hjón á einum degi, og bætti því við, er hann var mintur á að á þessu hlyti að vera einhver reikningsskekkja hjá honum, því að þrenn hjón hefðu þó ekki nema sex hjörtu, að menn byggjust lík- legast ekki við, að hann hefði gift þau fyrir ekkert, , Nokkrir af kaupendum Heimskrijnglu eru í skuld við hana. Hafa reikningar er hag þeirra sýna við blaðið, verið send- ir umboðsmönnum. þar sem þeir eru nokkrir, og munu þeir innan skainms heimsækja þessa vini blaðsins. Vonar Heimskringla, að þeir bregðist vel við að greiða áskrifta gjald sitt. Oft er þörf, en nú er nauðsyn, má þar um segja. Allir vitum vér hve erfitt er í ári. En lupphæðin er ekki mikil hjá hverjum og munar áskrifandann minna, en Heimskringlu öll útistandandi áskrifta- gjöld sín. Vonar blaðið því góðra undir- tekta frá þeim við beiðni sinni, er mál- efnum þeim unna, er það flytur og velferð þess og heill vilja stuðla að. Og heill þess er alt sem gott er og ís- lenzkt, og það vitum vér að allir íslend- ingar vilja sjá lifa. ORÐ MERKRA MANNA. Á tuttugustu öldinni verða stríð úr sögunni, höggstokkurinn brendur til ösku og hatrið horfið. Orus.a völlurinn verð- ur ekki framar til og kirkju kreddur verða allar útdauðar. En maðurinn heldur áfram að liía. Og hann hefió þá eignast það, sefh er betra en alt þetta, — hann hefir eignast jörðina að föðurlandi og himininn kvaðarlaust. og óskiftan að vonar- og framtíðarlandi Victor Hugo # * * Að mér dauðum, æski eg að um mig mættu þeir segja er þéktu mig bezt, að eg hafi ávalt reynt að uppræta þistilinn en planta blómi, þar sem eg hélt ,að blóm mundi vaxa. — Abraham Lincoln * * * Eg neyti aldrei áfengis. Mér hefir ár valt fundist sem nota mætti hfuðið til einhvers þarfara. Thomas A. Edison. * * ¥ Hyer eiiiasti maður hefir (>skiftan rétt. til einhv^rs eins staðar á þessari jörð, þar sem hsann getur. fyllilega verið hann sjálfur. f Henrik Ibsen. DR. SALEM C. BLAND OG RÉTTRÚNAÐURINN Flestir íslendingar, er einhver kyr.ni hafa haft *a.f háskólan- um hér í fylkinu, kannast við Prof. Salem G. Bland. Hann var um langt skeið kennari í kirkjusögu við Wesley College, höfuð mentastofnun Meþódista hér í Manitoba og kennari í al- rnennri sögu við Manitoba há- skólann. Jafnframt þjónaði j hann ýmsum kirkjum hér í j bænum. Hann er gáfumaöur mij^ll og var talinn afbragðs kennari. Lengi framan af var hann töluverður íhaldsmaður í trúarefnum, og andæfði ýms- j um niðurstöðum biblíuskýring- anna. Þótti honum þær ganga of mjög í öndverða átt við Jiip ar viðteknu skoðanir kirkjunn- a.r og ekki hættulausar fyrir almenning að kynnast. Þó vroru það einkum kennisetn- ingarnar, er ekki mátti hrófla við, svo sem friðþægingar- og fordæmingarkenningin. Áfeld- ist hann Únítara og aðra frjáls lynda kirkjuflokka fyrir að draga þær í efa. Fóf honum, sem svo mörgum, sem inni á því sviði eru staddir, að hon- um fundust játningarnar vera aðal hornsteinar kirkjunnar og í sér feia megin sannindi allra ikenninga Krists. Eftir margra ára dvöl hér við háskólahn tók hann fasta prestsstöðu í borginni Toron- to, og hefir búið þar síðan. Síðari ár hefir hann ritað ýms- ar fróðlegar ritgerðir í blöð og tímarit þar eystra. Lúta þær flestar að umbótum á at- vinnu og mentamálum þjóðar- innar. Bera þær með sér djúp- tækan skilning á þessum efn- um og jafnframt. mjög ein- dregna samúð með alþýðu manna. Nú síðast hefir hann ritað I f um kennisetningar kirkjunnar greinar í blaðið “Toronto Star’ er út hafa komið síðastliðnar vikur. Bera ritgerðir þessar j það með sér, hverjum augum hann lítur á gildi þeirra og j þýðingu fyrir framtíð kirkjunn-í ar sem og fyrir víðtækari! skilning alþýðu manna á and- j Iegum máhim.' Niðurstöður hans eru þær að kenningar! jæssar sem og játningaraar, J gangi mjög í öfuga átt við all- j ar trðar- og síðfræðiskenning- | ar Krists, þær séu af alheiðn- um uppruna og eigi rætur að rekja til hindurvitna og hleypi- j dóma fornaldarinnar. Ritgerðir þessar hafa verið þýddar; birt- ist sú fyrsta í þessu blaði, og verða hinar birtar nú í næstu blöðum. * * * HIMNARÍKI OG HELVÍTI. eftir S. G. Bland, D. D. kKIDNEY J K>. PILLS .,1 APdER TROH.'h RhIR TRtiSM UHEUMATjí THEPfia :1 í bréfi, sem eg fékk nýlega frá vini mínum, hugsandi manni og sannfærðum spirit- ista, er ofurlítill kafli, sem eg finn ástæðu til að fara nokkr- um frekari orðum um. “Ef allur þorri manna,’’ seg- ir í bréfinu, “gæti aðeins skil- ið það, að engin lifandi leið er til að losna við afleiðingai’ breytni sinnar á jörðu, að þeir verða ávalt að þjást á einn eða annan hátt í næsta lífi fyr- ir afbrot sín hér, að það er eng in friðþæging til í vom stað, og að sérhver einstaklingur kemur inn í næstu veröld ná- kvæmlega á því þroskastígi og með þeirri skapgerð, sem hann hafðf, er hann kvaddi jarðlífið — ef mönnum aðeins gæti skil ist þetta fullkomlega, er eg alveg viss um að menn mundu lifa betra Iífemi en þeir gera nú yfirleitt, og að þjóðfélögin mundiu verða betur komin. — Mörg vesalings sál kemur til okkar á tilraunafundium og andvarpar: ‘Hefði eg aðeins vitað!” eða ‘Hvílíkt flón gat eg verið að hugsa aldrei út í það, í fullan aldarfjóðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd.. Toronto, Ont.. og senda andvirðið þangað. sem mér var sagt um fram- haldslífið —!’ Þeir segja okkur að það sé auðveldara að bæta fyrir yfirsjónir sínar meðan menn eru ennþá í jarðneskum líkömum sínum, en eftir að þeir komi yfir um, og að það sé engin fyrirgefning til í þeim skilningi, að unt sé að þurka út afleiðingar breytni voirax. Við verðum að starfa sjálf að sáluhjálp vorri, en okkur veit- ist hjálp til þes§. Jafnskjótt og vér förum að þrá meira ljós, veitist oss það, og að þann- ig séum vér stöðugt leidd inn á veginn til fullkomnuiiar. Þroski vor nemi hvergi staðar við gröfina, heldur haldi stöð- ugt áfram, svo lengi sem vér sjálf höfum þrá til þess að taka framförum. En mikla á- herzlu verður að leggja á þaö, að ef vér höfum enga viðleitni til að komast vel áleiðis meðan vér erum á jörðinni, þá erum vér illa stödd að halda áfram í næsta lífi. Vér verðum erfið- lega jarðbundin. Miljónir af jarðbundnum öndum þeirra, er skipuðu veglegar stöður með- an þeir voru í líkamanum,. verða nú að þjást í myrkrun- um krinigum jarðsviðið, af því að þeir gættu þess aldrei að leita neins andlegs þroska, eða neins annars en þess, sem jarð neskt var. Hér fer því svo, að mörgum slíkum sálum bregður alvarlega í brún, þeim ágjömu og sjálfselskufullu, þeim rang- látu og grimmu og drambsömu, er þær hittast á furðuströnd hinnar eilífu tilveru. Hvað verður úr iðnkóngum og milj- ónamæringum hins jarðneska lífs, er þeir verða að horfast í augu við ljós hinnar eilífu vizku? Ef aöeins væri hægt að fá menn til þess að gera sér það í hugarlund, að einhvem- tíma verða þeir að horfast í augu við sjálfa sig, þegar jarð- neskir hlutir koma þeim að engu haldi framar, þá kynnu þeir að snúa við blaði í lífs- sögu sinni og reyna að fara að gera eitthvað til að hjálpa með bræðrum sínum, í stað þess að gera ávalt tilraun til þess að hafa eitthvert gagn af þeim.” Eg vænti þess, að það spiri- tismabragð, sem er að þessum setningum, verði ekki til að skaða álit þessa blaðs hjá les- endunum. Eg vænti hins frek- ar að þeim finnist eins og mér orð þessa kunningja. míns eft- irtektarverð, og að þau hafi mjög skynsamlega hugmynd að geyma. Eg er ekki spiritisti og finst ekki fyrir mitt leyti eg þurfa á vitnisburði andatrúarinnar að balda til styrktar óbifandi trú minni á áframhald lífsins, en eg álít að einhver raunvenuleiiki standi að baki hinum spiritisku fyrirbrigðum, sem setti grand- gæfilega að rann&aka, og til þess þyrfti að fá hæfa og hleypidómalausa rannsóknar- menn. Yfirleitt: hiefir mór þó

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.