Heimskringla - 28.10.1931, Side 3
WINNIPEG 28. OKTÓBER 1931
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSÍÐA
þér sem
n otiS
TIMBUR
KA UPIÐ
AF
The Empire Sash & Door Co., Ltd.
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Bkrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA.
Sigurdsson, Thorvaldson
co.
LTB.
GENERAL MERCHANTS
OTSÖLUMENN FYRIR IMPERIAL OIL LIMITED
ROYALITE COAL OIL, PREMIER GASOLINE
TRACTOR AND LUBRICATING OILS
ARBORG „ RIVERTON HNAUSA
rk<H 1 rk*M 1 rk.»t M. »1m M
MANITOBA, CANADA.
ÞÉR GETIÐ AVALT KEYPT ÓDÝRARA TE,
EN BLUE RIBBON — OG ÞÉR FÁIÐ TE—
EN ÞAÐ ER LÍKA ALT OG SUMT.
Blue Ribbon Limited
WINNIPEG
CANADA
loftslag. Þó hafa Portúgalar
sýnt það í norðurhluta Brasilíu,
að hvítir menn geta hafst við í
slíku loftslagi.
1 hinum framtíðarlöndunum,
Sahara-Sudan, Suður-Afríku og
Ástraiíu er heitt og þurt lofts-
lag, sem á val við hvíta menn.
En því miður er þar lítill gróð-
ur vegna vatnsskorts. Þar, sem
ekki er vatn, þar er ekkert líf.
Og þess vegna verður að koma
þarna á áveitum, og er það
hægt á margan hátt. Hefir þeg-
ar verið gert nokkuð að því,
en það er hverfandi lítið á
móts við það, sem vænta má,
að vinnuvísindin komi í fram-
kvæmd, er stundir líða. Minstur
hluti af eyðimörkunum þarna er
sandur, heldur að eins ófrjó
jörð, vegna vatnsskorts, og þess
vegna þarf ekki annað en vökva
hana til þess að þar verði hin
mestu Gósenlönd. Slík áveitu-
lönd eru mörgum sinnum betri,
heldur en hin, sem rigningar
vökva, því að þar er hægt að
takmarka vökvun jarðarinnar
eftir þörfum.
Fram að þessu eru það aðal-
lega Evrópumenn, sem flutst
hafa að heiman til framandi
landa í stórum etfl. En á seinni
öidum hafa Kínverjar og Ind-
verjar farið að dæmi þeirra.
Nú sem stendur á fjöldi Kín-
verja heima í Austur-Indlandi,
Indlandseyjum Hollendinga,
Nýju Guineu, Kyrrahafseyjum,
Mexikó og Perú. Sægur af
þeim flytst og árlega til Mongol-
íu og Síberíu. t Californíu er
líka fjöldi Kínverja og hafa þó
Bandaríkin beitt öllum brögð-
um til þess að sporna við inn-
flutningi þeirra. Og Ástralía er
einráðin í því að hleypa ekki
inn öðrum en hvítum mönn-
um.
Indverjar flytjast aðallega
vestur og suður, til Mesopotam-
íu, Arabíu, Austur- og Suður-
Afríku og hafa stofnað þar
mannmargar nýlendur. Einnig
flytst nokkuð af þeim til Trini-
dad (Vestindia), Guayana og
norðurhluta Suður-Ameríku.
Oft virðist svo, að jörðin sé
orðin of lítil fyrir þann fólks-
fjölda, sem á henni lifir — en
þó er sannleikurinn sá, að meg-
inhluti hennar er óbygður eða
lítt bygður. Og héruð sem
áður voru talin óbyggileg hafa
nú vinnuvísindi og læknavísindi
gert byggileg. Hitasóttin gerir
þó enn stór landflæmi óbyggi-
leg, en þegar læknavísindin
hafa fundið örugt meðal við
henni og öðrum hitabeltissjúk-
dómum, þá verður hægt að
nema gríðarstór lönd.
Þótt lönd þau, sem hafa upp
á best loftslag að bjóða, sé fyr-
ir löngu fullnumin, eru enn
gríðar8tór landflæmi, bæði í
hitabeltinu og kuldabeltinu, sem
hafa nóg að bjóða öllum mann-
anna börnum. Ef mannkynið
hefði vit á því að dreifa sér um
jörðina og gera sér hana undir-
gefna, í stað þess að hnappast
saman á litlum blettum, þá
þyrfti engin fátækt að eiga sér
stað.
—Lesb. Mbl.
STEFÁN FRÍMANN JÓNSSON
1860—1931
Hér er þá fallin sú hetjan keik;
Hné fyrir hvassbrýnda ijánum
Og mælti ekki æðru í mis-
jöfnum leik,
En mundaði saxið á hnjánum.
í banahviðum. þó brakaði í rám
Ei brá þér, né kvartaðir heldur.
Þig bugaði neitt, unz varst
brunninn að hnjám
Og bolsterkur gaflhlaðinn
feldur.
En hrint þér um síðir í heljar-
vök.
Harðsnúinn dauðans máttur.
Þú barðist svo djarft við bana-
tök
Unz bilaði hjarta-sláttur.
Þú byrjaðir lífið við barátt’u og
og nauð,
Á berangri norðurs hjara,
Þar bergjötnar skjálfa, er brim-
ið sauð,
Og brúnþungir jöklar stara.
En þrátt fyrir mótbyr og harð-
býlann heim
Hollvættir íslands þér réttu
Farkostinn drjúga frá dögum
þeim.
Dáðrækni og handtökin þéttu.
Árvarkur snemma og á fótum
fyrst
Framgjarn og afburða herkinn.
Þér dugð’i ekki að hafa hvert
dagsverk, sem styzt
Svo drjúg urðu morgunverkin.
Þó mörg yrðu’ á leið þinni
Markarfljót
er misjafnt var yfir að fara,
En lyft þér sem Héðinn með
léttan fót
Er langstökkið tók milli skara.
Mér virtist í eðli þér víkings-
lund.
Þú vandist fljótt svaðilförum
Á gígháum öldum um Grímeyj-
ar-sund
Og glottir þó hrikti í knörum.
Og þrátt fyrir eril og útigang
Óx þinn kjarkur og móður,
Og bar þfg til sigurs þó blési í
fang
Bjartastur manndóms hróður
Og beittir þér hiklaust mót
brögðóttum heim
Bauðst ’onum jafnvægi mæla
Er Otbýtt þér hafði ’ann af á-
vöxtum þeim,
Sem ýmist oss brenna eða kæla
Að skilmast við lífið, ei bölsýn
bar
Frá barndómi lyndisglaður.
í mannraun hvar, sem mættur
var
Að mannsliði tvöfaldaður.
Þú varst minn granni nær 30 ár
Og þéttur í andmælum stund-
um.
En hvað, sem þvi líður varð
hvorugur sár
Jafnvel kærleikur óx á þeim
fundum.
Þú leyfðir ei smjaðri að fá á þér
fang;
Varst fulltrúi bergsöglismála
Svo röggsemd og bjartsýni
reiddu þér gang
Gegnum ríkið og blekking hála.
Og gast verið mildur og hjarta-
hlýr
og hóvær, án tildur-vana,
Því einu ei gildir, hvað að oss
snýr
Né í æfinnar hildi hvering sig
býr.
Þú gekst með þeim fyrstu í
grafarbeð
Af grönnum — jafnöldrum —
þínum
En þeir koma bráðum, — mun
sannað og séð;
Eg sá það á skugganum mínum.
Og hún sem þér fylgdi á hrjóst
ugri leið,
Sem hetja, og taldi ekki sporin
Hvort þung eða sár, — eða
þau voru greið,
Né þróttur við neglur skorinn
Og enn, sem fyrri ei ber sér á
brjóst
En ber sínar raunir í hljóði,
Og mun þér ei gleym’a, er við
mannlífið slóst
Með henni, — sæmd og gróði.
• * *
Er degi hallar og dimmviðris
ský
Depra þau ljós, sem við unnum.
Vér finnum að lífkjarninn fólst
þar í
Og frá honum vonirnar spunn-
um.
Þessi dulbúni kraftur — vort
dauða-hald,
Er dró oss á tálar stundum,
En óskorað hefir þó yfir oss
vald
Unz öllum er lokað sundum.
Thor. Stephánsson.
BRÁÐAPESTARRANNSÓKNIR
NfELSAR DUNGALS f PARfS
Það er ekki sérstakur gerill,
sem bráðapestinni veldur.
Hvernig sýkist sauðfé
af bráðapest?
Fyrir nokkru kom Níels
Dungal læknir úr utanlandsferð
sinni. — Hann fór að heiman í
janúarlok. Hafði Rockefeller-
stofnunin boðið honum að kosta
þriggja mánaða ferðalag hans
um Evrópu, til þess að hann
fengi tækifæri til að kynnast
mörgum helstu rannsóknastof
um sem fást við gerla- og sjúk
dómarannsóknir.
En áður en að Dungal fór af
landi burt, hafði atvinnumála-
ráðuneytið ráðið hann til þess,
að veita forstöðu rannsókna-
stofu þeirri, í þarfir atvinnuveg-
anna, sem ákveðið var fyrir
nokkurum árum, að setja skyldi
hér á stofn. Fól atvinnumála-
ráðherra Dungal lækni að undir
búa stofnun ransóknarstofunn-
ar í ferð þessari.
Héðan fór Dungal fyrst til
Parísar, þaðan til Englands, Hol
lands, Þýskalands, Tjekkósló-
vakíu og Budapest; en þaðan til
Parísar aftur, og þar var hann í
þrjá og hálfan mánuð. Vann
hann þar að rannsóknum við-
víkjandi bráðapestinni, fekk
hann að vinn að þeim rannsókn
um á hinni mikiu og veglegu
gerlarannsóknarstofnun, sem
kend er við Pasteur.
lsafold hefir hitt Níels Dung-
al að máli, og spurt hann um
hinar síðustu rannsóknir hans.
Eg vann við Pasteurstofnun-
ina, segir Dungal í 3J mánuð,
að rannsóknum mínum á bráða
pestinni. Er ákaflega ánægju-
legt að vinna þar að vísinda-
legum rannsóknum, þar sem öll
tæki og aðbúnaður er í sem
allra ákjósanlegasta og full-
komnasta lagi.
Héðan að heiman tók eg með
mér marga stofna af bráðapest-
argerlum, er eg hafði tekið úr
innýflum pestarkinda víðsvegar
að af landinu.
Rannsóknir mínar í París iutu
að því, að gera samanburð á
stofnum þessum.
B ráðapestarsóttvei k jan.
Eins og kunnugt er, var það
norskur maður, Ivar Nielsen, að
nafni, sem fyrstur rannsakaði
bráðpest á Norðurlöndum. Hann
komst að þeirrí niðurstöðu, að
hér væri um sérstakan sóttgeril
að ræða, er orsaki þessa bráð-
drepandi veiki.
Prófessor C. O. Jensen í
Kaupmannahöfn, er síðar tók
að sér að gera bóluefni gegn
veikinni, samsinti þeirri niður-
stöðu Nielsen, að hér væri um
sérstakan sóttgeril að ræða, er
hann kendi við bráðapestina.
En árið 1924, kom skoskur
vísindamður fram með þá kenn-
ingu að bráðpestin orsakaðist
ekki af sérstökum svonefndum
bráðapestargerli, heldur stafaði
bráðapestin af gerli nokkrum,
sem menn hafa lengi þekt, og
Pasteur rannsakaði og heitir á
vísindamáli “Vibrion septique”.
Rannsóknir þær, sem eg hafði
studdu kenningu hins skoska
vísindamnns.
En spurningin var þá, hvort
alt það, sem við köllum í dag-
legu tali bráðapest, eigi rót sína
að rekja til sömu gerlategundar.
Rannsóknir mínar í París í
sumar, leiddu það í ljós, að sótt-
kveikjurnar úr öllum pestarinn-
ýflunum, sem eg hafði safnað
saman voru ein og sama gerla
tegund —ekkert annað en hin
löngu kunna tegund “vibrion
septique”. Þó fann eg í einu
tilfelli aðra sýklategund en alt
bendir til að það sé hrein und-
antekning, að hún valdi bráða
pest.
Sérstakur bráðapestargerill er
því ekki til.
Þessi vitneskja hefir fyrst og
fremst vísindalega þýðingu. En
hún hefir ekki síður þýðingu fyr
ir allar rannsóknir á bráðapest-
inni, því nú vita menn, að alt
sem vísindamenn hafa grafið
upp um geril þenna, “vibrion
septique’’, kemur að notum við
bráðapestarrannsóknirnar.
“Vibrion septique”
Gerill þessi er í þeim flokki
gerla, sem ekki þolir súrefni
anaéarob). Hann myndar líf
seiga “spora”, er lengi geta
legið í dvala.
Heimkynni gerilsins er alls-
konar jarðvegur, og hann er
að fyrirhitta um alt í moldar
jarðvegi og ýmiskonar saur.
Þar sem gerill þessi nær að
þróast, myndar hann ákaflegít
sterk eiturefni, eins og menn
þekkja af bráðapestinni. En
að svona gerill, sem alls ekki
þolir súrefni, getur lifað í lík-
ama dýra yfirleitt, kemur til
af því, að vefir líkamans taka
til sín súrefni það, sem þeim
berst.
En því fer fjarri, að þessi
skaðvæni gerill, sé aðeins
hættulegur sauðfé. Þegar viss
skilyrði eru fyrír hendi, getur
hann einnig orðið mönnum
hættulegur. Það er t d. vitað
nú, að háskalegustu sárabólg-
ur sem í ófriðnum hlutust af
sprengikúlum, og mold komst
í orsakast umfram alt af “ana
érob’’ sýklum, þar á meðal “vib
rion septique”, er undir vissum
ástæðum getur orðið mönnum
stórhættuleg.
— Gotur það komið til mála,
að menn sýkist af bráðapestar
fé?
— Eins og reyslan hefir sýnt
er ekki hægt að kalla það
hættulegt fyrir menn, að um-
gangast pestarfénað, eða pest-
arskrokka. En óvarlegt er
það, því verður ekki neitað, að
fara með pestarskrokka, ef
menn t. d. hafa sár á höndum,
sem sóttveikjan getur komist
í . Þó að möguleikinn sé á
hinn veginn altaf til, að menn
geti hlotið hættulegar bólg-
ur af þeim, ef "skilyrðin eru
fyrir hendi, hjá þeim sem smit
ast, nefnilega, ef aðrir sýklar
komast í sárið, einkum mold-
argerlar og graftarsýklar.
Annars er það mjög á huldu,
hvernig sauðféð smitast, hvern
ig það tekur bráðapestina. Þó
menn gefi kindum inn hreinan
gróður af bráðapestarsóttkveikj
um, þá sýkjast þær að jafnaði
ekki. Sóttkveikjan fer að jafn-
aði ekki úr meltingarveginum
út í líkamann, í blóðið, nem-
a þegar inhver skilyrði eru
fyrir hendi.
Og hver eru þau skilyrði?
Það er ráðgátan.
Hvað er það þá.sem veikir
svo mótstöðuafl fjárins í sum
um árum, eða eykur bolmagn
sóttkveikjunnar, svo féð, óbólu-
sett, hrynur niður úr bráða-
pest?
Þeirri spurningu er ekki svar
að enn. En af reynslu manna
og athugun, er hægt að gera
sér ýmsar tilgátur.
Eins og kunnugt er, sýkist
helst það fé af bráðapest, sem
beitt er. Pestartíminn versti
er, þegar jörð fer að frjósa,
og grös að falla. Féð fer þá
að ganga nær gróðrinum og
má gera ráð fyrir, að mold
slæðist fi^ekar upp í það með
beitinni.
Nú er það vitað, að sótt-
kveikjan fyrirhittist í mold, í
jarðveginum. Hugsum okkur,
að talsvert af sóttveikju meng
aðri mold slæðist niður í kind,
en jafnframt svelgi hún í sig
mikið af fsköldu beitargrasinu,
er hún rífur frosið af jörðinni.
Hinsvegar vitum við það, að
bráðapestin kemur aðallega
fram sem svæsin bólga í vin-
strinni. Og einkennilega oft
er það, sem þessi bólga er «in
mitt þeim megin í vinstrinni,
þar sem hún liggur upp að
vömbinni. Hugsanlegt er því,
að ef innihald vambarinnar er
óvenjulega kalt, eins og t. d.
ef kindin hefir etið af köldu
eða frosnu fóðri, þá ofkælist
sá hluti vinstrarinnar, er að
vömbinni snýr, en eins og al-
kunnugt er, dregur ofkæling
ætíð úr mótstöðuafli ifffær-
anna.
Þetta gæti verið orsök þess,
að gróður þessa gerils, sem
kominn er niður í vinstur, og
annars ekki kemur að sök, nær
að framkalla bólgu, og komast
inn í blóðið.
Rannsóknaáhöldin.
Gjöf Þjóðverja.
Á heimleiðinni kom Dungal
við í Berlín, til þess að taka
út verkfæri þau til vísindalegra
rannsókna, sem Þjóðverjar
gefa íslandi í tilefni af þúsund
ára afmæli Alþingis.
Verkfæri þessi, sem ætluð
eru í stofnun, sem á að rann-
saka sjúkdóma, eru liin ágæt-
ustu. Þau verða send hingað
í næsta mánuði. En hvar þau
komast undir þak, er blaðinu
ekki kunnugt.
Heyrst hefir að komið hafi
til orða að koma hinni vænt-
anlegu rannsóknastofu í þarfir
atvinnuveganna fyrir í góðrar
stöð Búnaðarfélags lslands við
Laufásveg, eða þar sem nú er
gróðrarstöðin, því hana mun
eiga að flytja. Sýnist það að
ýmsu leyti vel ráðið. —Mbl.
X
A Thorough School!
The “Success” is Canada’s Largest
Private Commercial College, and the
finest and best equipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day and Evening Classes
throughout the year, employs a large
sta/ff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress acoording
to his capacity for study.
In; tvrenty-one years, since the founding of the "Suc-
cess’’ Business College of Winnipeg in 1909, approxi-
mately 2,500 Icelandic students have enrolled in this
College. The decided preference for “Succeas” train-
lng is significant, because the Icelanders have a keen
sense of educational values, and each year the number
of our Icelandic students show an increase.
Day and Evening Classes
OPEN ALL THE YEAR
The SUCCESS BUSINESS C0LLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREBT.
PH0NE 25 843