Heimskringla - 04.11.1931, Side 4
4. BLAÐSlÐA
HEIMSKRINGLA
W3NNIPEG 4. NÓV. 1931.
(Stojnuð 1886)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsimi: 86 537 _
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
fyrirfram. Allar borganir sendist :
THE VIKING PRESS LTD.
Ráðsmaður TH. PETURSSON
853 Sargent Ave., Winnipeg
Manager THE VIKING PRESS LTD.
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg.
"Heimskringla” ds published by
and printed by
The Viking Press Ltd.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG 4. NÓV. 1931.
UM HVAÐ VORU KOSNINGARNAR?
Síðan féttimar af úrslitum kosning-
anna á Englandi bárust hingað, hafa
menn um fátt meira hugsað en þau.
Sigur stjórnarinnar var svo stórfeng-
legur, en tap verkamannaflokksins svo
gífurlegt, að þess eru áður fá eða engin
dæmi.
Þegar þetta er skrifað, herma fréttirn-
ar, að verkamannaflokkurinn hafi að-
eins hlotið 50 þingsæti af 615 alls, og þá
eru úrslit ókomin aðeins úr 5 kjör-
dæmum.
í kosningunum, sem fóru fram fyrtr
rúmum tveim árum, eða 30. maí 1929.
hlaut verkamannaflokkurinn 288 þing-
sæti. Og með stuðningi liberala, sem þá
höfðu 58 þingsæti, tók hann við völdum.
í nýafstöðnum kosningum hefir því
verkamannaflokkurinn tapað milli 230
og 240 þingsætum.
Þetta er svo eftirtektarvert, að menn
geta ekki gert að því að spyrja, hvað
slíkum straumhvörfum valdi. Og niður-
staðan, sem magir komast að, er sú, að
verkamannaflokkurinn muni vera úr sög-
unni á Englandi — ekki aðeins um stund-
arsakir, heldur um ófyrirsjáanlega langt
skeið.
Fljótt á litið getur mönnum og virzt
þetta svo. En séu kosningamar gaum-
gæfilega athugaðar, virðist annað verða
uppi á teningnum.
Um hvað voru kosningarnar háðar?
Ekki um flokkana eða flokkastefnumar.
í hugum almennings er líklegast, að
þungamiðja þeirra hafi verið sú, hvort
England ætti að halda áfram að vera
England, eins og það hefir verið, eða
England eftir rússneskri fyrirmynd. Rt.
Hon. Stanley Baldwin, foringi konserva-
tíva og fjölmennasta flokksins á þingi,
viðurkennir, að kosningarnar hafi ekki
verið um flokksstefnur, heldur um bjarg-
ráð þjóðarinnar og verndun núverandi
skipulags. Svipað því farast Ramsay Mac-
Donald orð. Þingmannaefni verkamanna-
flokksins, og þar á meðal leiðtogi þeirra,
Mr. Henderson, létu óspart á sér heyra,
að þeir hygðu á stórbrotna þjóðskipu-
lagsbreytingu. Slíkt er hætt við að þjóð-
in hafi ekki skilið og hafi tekið því full-
alvarlega. Og það hyggjum vér að skýri
hin ákveðnu úrslit kosninganna. Þau úr-
slit er ekki hægt að hugsa sér, að hefðu
eins ákveðin orðið, ef aðeins hefði um
flokksmál verið að ræða.
Að þessu leyti hafa nýafstaðnar kosn-
ingar því verið ólíkar vanalegum kosn-
ingum. En það er ekki þar með sagt að
næstu kosningar verði það einnig, hve-
nær sem þær verða. Þó verkamannaflokk-
urinn nú biði því feykilegan ósigur, er
langt frá því að tap hans, sem flokks,
sé eins mikið og' ætla mætti. Þrátt fyrir
það, að stefna verkamannaflokksins í
þessum kosningum virtist nær kommún-
istastefnunni, en stefnu verkamanna-
flokksins enska undanfarið, og sem þjóð-
in var ekki viðbúin að hylla, hlaut verka-
mannafiokkurinn í þessum kosningum
alls 6,749,944 atkvæði. í kosningunum
1929 voru honum greidd 8,362,595 at-
kvæði. Samkvæmt því hefir hann ekki
tapað nema um 20 prósent af sínu fyrra
atkvæðamagni. Hiutfallslega hlaut hann
því miklu færri þingsæti, en ætla mætti
af atkvæðamagni hans.
Alt þetta ber með sér, að verkamanna-
flokkurinn er ekki úr sögunni. Hann get-
ur í sjálfu sér hvenær sem er náð völd-
um aftur, leggist hann ekki of þungt á
sveif öfganna. Brezka þjóðin er ekki við
því búin ennþá, að gerast stjórnarfars-
lega jábróðir Rússlands. Hún sér bjarg-
ráð sín eigi síður fólgin í viturlegri til-
högun á þjóðmálastarfinu, samkvæmt því
fyrirkomulagi, sem gefið hefir henni það
þanþol og vöxt, að verða öndvegisþjóð
heimsins. Það hefir oft minna en það vak-
ið sjálfstæðisvitund einstaklinga þjóð-
félagsins til ákveðinna athafna. Kosn-
ingamar síðustu eða úrslit þeirra hafa
eflaust átt talsvert skylt við slíka þjóð-
lega hugsjónavakningu hjá almenningi
á Bretlandi.
Stjórnin er á Bretlandi nefnd Þjóð-
stjóm (National Government), en ekki
samsteypu- eða samvinnustjórn-. Verði
öllum flokkum, sem hana skipa, mögu-
legt að líma stefnur sínar svo saman, að
ekki beri á sérstefnu hvers þeirra, getur
hún vel heitið því nafni. Hún er þá nýr
stjórnmálaflokkur, sem tíminn á eftir að
leiða í ljós, hvort nær er eða betur sem-
ur sig að kröfum tímans á hagfræðis- og
stjórnmálafarslega vísu, en flokkar hafa
gert undanfarið.
En hvað sem um það verður, virðist
þjóðin una vel kosningaúrslitunum. Og
á viðskiftaheiminn virðast þau einnig
hafa haft góð áhrif, og á einhverjum
viðjum kreppunnar virðist þar hafa
slaknað, jafnvel strax fyrstu vikuna eft-
ir þau.
ÞORSTI.
Flestir, sem einhver kynni hafa haft af
drykkjumönnum, munu hafa tekið eftir
því í fari þeirra, að á þá sækir óslökkv-
andi þorsti. Hver er orsökin?
Sir B. Ward Richardson, M.D., mjög
viðurkendum lækni á Englandi, farast
orð um það nýlega í ensku læknariti á
Englandi, á þessa leið:
“Orsök brennivínsþorstans er eitrun
í lífsfryminu (protoplasm) í líkama
mannsins. Þetta lífsfrymi er í hverri
einustu frumu allra lifandi vera, og er
svo nefnt vegna þess, að þar verður lífs-
ins fyrst vart. Uppruni þess hefir ver-
ið rakinn þangað, en ekki lengra.
Líkami mannsins, eins og allra lifandi
vera, er úr óteljandi frumum gerður, eins
og húsveggir eru af óteljandi steinum
gerðir. Séu störf lífsfrymisins heft á
einn eða annan hátt, verða áhrifin af
því ill á frumurnar, og um leið á allan
líkamann, því að hann er ekkert annað
en samsafn af frumum. Og nú eru til
efni, sem hafa afar ill áhrif á lífsfrymið
eða eru reglulegt eitur fyrir það. Þessi
skaðlegu efni eru t. d. í saltsýru, vítríól
og klóróformi. Ef þessi efni berast inn í
líkamann, sjúga þau vatnið úr lífsfrym-
inu, en þaðan fær það næringu sína. Við
það rýrnar lífsfrymið og veslast upp, eins
og alt lifandi, sem án fæðu er, gerir. Það
finnur til hungurs og heimtar næringu
sína, vatnið, alveg eins og tómur magi
kallar eftir sinni fæðu. Það þarfnast
vatns og því þyrstir manninn.
Alkóhól hefir sömu áhrif á lífsfrymið
og þessi efni, er á var minst. Það sýgur
vökvann úr því. Neytanda þess, eða á-
fengis, sem alkóhól er í, fer því að þyrsta.
Harin reynir að slökkva þorstann með
því að drekka meira, en það er, eins og
reynslan ber vitni um, hið sama og ætla
sér að slökkva eld með því að hella olíu
í hann. Drykkjumanninn þyrstir því
meira, sem hann herðir drykkjuna. Þeg-
ar búið er að blanda vatnið alkóhóli, er
það óheilnæmt fyrir lífsfrymið. Vatnið,
hreint og óblandað alkóhóli, sem áður
saddi það hollri fæðu, er þá orðið eitur
fyrir lífsfrymið.
í þessu er fólgin ein mesta hættan af
áfengisneyzlu. Því meira, sem drukkið
er, því svæsnari verður þorstinn (eða
eitrunin í lífsfryminu) og því meira esp-
ast löngunin í áfengið. Þess vegna er
hófdrykkjan svonefnda mjög varasöm.
Vanalegur þorsti, svo sem af ofhita
eða áreynslu einhverri, stafar einnig af
þornun í lífsfryminu. En eins og allir
vita, verður honum brátt svalað með
hreinu, köldu vatni. Hreint vatn, eða að
minsta kosti óblandað skaðlegum efnum,
er lyfið við þomun í líkamanum, eða
þorsta.
Alt það, sem eitrun hefir í för með sér
fyrir lífsfrymið, hafa menn gert sér far
um að þekkja og forðast. Alkóhólið í á-
fengi er eina lífsfrymis-eitrið, sem neytt
er. Hvenær skyldi manninum lærast að
forðast það einnig?
Vér gátum þess, að lífsfrymið væri enn
sem komið er talin uppsprettulind lífsins.
Samkvæmt því, sem á hefir verið drepið,
vegur áfengið því að sjálfri rót lífsins.’' *
GAGNLEGUR FYRIRLESTUR.
Fyrirlesturinn, sem hr. Jón Ólafsson
flutti s.l. föstudag í Sambandskirkjunni.
var alt í senn, fróðlegur, skemtilegur og
gagnlegur.
Fyrirlesarinn rakti sögu stálgerðar-
innar frá upptökum til ósa. Hann mint-
ist á öll aðalefnin í stáli, hver þau væru
og hvaðan þau væru komin, og hvernig
þau efni jarðskorpunnar öll væru blönd-
uð, þar til stál væri úr þeim unnið. Og
að lokum benti hann á þýðinguna, sem
uppgötvun stálsins hefði haft á menn-
ingarsögu mannkynsins.
Þrátt fyrir það, að erindi þetta sé ef-
laust hið fyrsta og eina, sem flutt hefir
verið á íslenzku um vísindalega stálgerð,
hepnaðist fyrirlesaranum vel að skýra
efni sitt. Köstuðu og myndirnap, sem
hann sýndi, mjög birtu á það. Þó áheyr-
endurnir væru fæstir kunnir efninu, þeg-
ar þeir komu inn í salinn, munu þeir flest-
ir hafa farið út fróðari en þeir komu inn,
og verið það ljósara eftir en áður, hvflíkt
djúp þekkingar liggur að baki verkfræði-
legu starfi. En það var nýung, í þessari
grein iðnaðar að minsta kosti, að heyra
frá því sagt á íslenzku máli.
Verkfræðingar, bæði byggingamjeist-
arar og raffræðingar, hafa nokkrir hinna
yngri íslendinga hér orðið — með lær-
dómi í háskólum þessa lands. En að
þeir, sem fullorðnir koma til þessa lands
sökkvi sér eins ofan í vísindalega verk-
fræði, og Jón Ólafsson hefir gert, er eins-
dæmi. Hann kemur á aldrinum milli
tvítugs og þrítugs til þessa lands, árið
1913, allslaus eins og flestir íslendingar,
að öðru leyti en því veganesti, sem í góð-
um gáfum er falið, og mentun þeirri að
undirstöðu, er veitt var honum á öðrum
gagnfræðaskólanum heima á íslandi. En
úr þessu veganesti sínu hefir Jón nú svo
unnið, að hann er viðurkendur meðal
hérlendra manna, sem einhver vissasti
og áreiðanlegasti stálgerðarmaður í Vest-
ur-Canada, og gott ef nokkur tekur hon-
um fram í öllu landinu. í tómstundum
sínum aflaði hann sér þeirrar þekkingar,
ér með þurfti til þess að skipa honum
þann sess, sem hann nú hefir hlotið. Má
það heita vel að verið og munu færri
leika það eftir honum.
Jón flytur hér iðulega fyrirlestra um
stálgerð á háskólum og í ýmsum verk-
fræðifélögum, og þykir ávalt erindi hans
hið fróðlegasta.
Eftirsjá var að því, að fyrirlestur hans
á íslenzku heyrðu ekki miklu fleiri en
gerðu á föstudagskvöldið. íslendingar eru
einkennilega sneyddir löngun til að kynn
ast því, sem að verklegum vísindum lýt
ur. Hefði fyrirlesturinn þetta kvöld ver-
ið um efni, eins og t. d. eilífðargildi
kreddutrúar, helztu fréttir af nýdauðum
eða heimilissælu bolshevika, síðan að
giftingarlögunum var breytt í Rússlandi
hefði salurinn eflaust fylst fólki.
GAMLA SAGAN.
Það er sagt að sagan endur-
taki sig. Það er hverju orði
sannara, en það illa og h^imsku
lega gerir það eigi síður en hið
góða.
Undanfarna daga eða jafn-
vel vikur, hafa borist allgóðar
fréttir af hveitimarkaðinum. —
•
Síðastliðinn mánudag hækkaði
verð á hveiti um 3 cent. Er það
nú orðið 20 centum hærra en
þegar það var lægst. Og alt
virðist benda á, að það muni
hækka enn talsvert.
DODDS 'fj
KIDNEY
THEP^ii
I fullan aldarfjórðung hafa Dodd’s
nýrna pillur verið hin viðurkenndu
Þotta mega nú góðar fréttir við bakverk, gigt og blöðru
, _ „ ... , sjukdómum, og hinum mörgu kvilla,
heita. En ekki er happ hlotið,, er stafa frá veikluðum nýrum. —
þó hálffest sé, segir máltækið. Þær eru ti! sölu í öilum iyfjabúð-
T. , .. , . .. .. I um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir
Um leið Og Ogn birtir yfir $2.50. Panta má þær beint frá.
hveitimarkaðinum, fer aftur á Dodds Medicine Company, Ltd., Tor-
stað fjárglæfraspilið með hveit- ^0' °nt ’ og senda “dvirðið þang-
ið, sama spilið óg 1929, sem
drjúgan þátt átti í viðskifta-
kreppu undanfarinna þriggja
ára. Alt, sem á daga hefir
drifið síðustu þrjú árin virðist
gleymt.
FRIÐAR ÞJÓÐAGARDURINN
Það mun mörgum góð frétt þykja, að
nefndin, sem undanfarin tvö ár eða meir
hefir verið að litast um eftir hæfilegum
stað fyrir Friðar-þjóðagarðinn, er Banda-
ríkin og Canada ráðgera að koma upp
einhversstaðar á landamærunum, hefir
valið stað til þess í Manitoba.
Það er suður við landamærin í Turtil
fjöllunum (Turtle Mountains), um 15
mílur suðaustur af þorpinu Bossevain í
Manitoba, sem garðurinn verður gerður.
Er það einn fegursti staður í Manitoba
grasi og skógi vaxnar hæðir eða lág
fell með rennisléttum b'ilum á milli.. Og
útsýni allmikið og un.'.ra fagurt. Svæði
þetta ef margar fermílur á stærð, og á
nú að prýða það, sem þjóðargarði beggja
þjóðanna sæmir. Verður garðurinn ef-
laust einn af merkustu stöðum þessa
fylkis, þegar hann verður fullgerður.
Kostnaðuriún við að gera þarna góð
an þjóðagarð, er sagt að verða muni ein
miljón dala. Verður mest af fénu gefið
af enstaklingum, og hugmyndin er að
safna um fjórum miljónum dala og verja
vöxtunum af því fé til viðhalds garðin-
um. Henry Ford og fleiri auðkýfingar
syðra hafa þegar skrifað nöfn á gefenda-
skrána. Þetta veitir hundruðum manna
í þessu fylki atvinnu.
Garði þessum er komið upp í minningu
um hundrað ára frið milli Canada og
Bandaríkjanna. Og í framtíðinni hlýtur
hann að styrkja friðarbandið milli þjóð-
anna, kynslóð eftir kynslóð.
Og hver veit hvaða þýðingu slíkur
garður hefði, ef Evrópuþjóðirnar kæmu
honum upp á landamærum sínum?
á að slíkt hafi ekki kauplækk-
ur verið, heldur aðeins til þess
gert, að afla fleirum vinnu.
Ennfremur benda þau á, að
Og nú skifta þeir orð- j kaup þessara þjóna sinna hafí
ið hundruðum, sem daglega ekki lækkað neitt s. 1. 10 ár,
hlaupa með 25—50—75 og 100 en það hafi kaupgjald flestra
dali, og sem oft er aleiga þeirra, ; annara beinlínis gert.
í kornspiladýkið, og mega auð- Hafa nú þjónarnir snúið sér
vitað lofa hinn sæla fyrir að til sambandsstjórnarinnar með
sjá þá nokkurntíma aftur. — málið og hefir Isaac Pitblado
Hveitibóndinn kemur og með K.C. í Winnipeg verið falið mál-
hveiti sitt nú til markaðarins, ið frá hálfu járnbrautaþjónanna.
og selur það, því sem betur
fer, er sagt að alt að 90 pró-
sent af hveitinu sé enn í hans |
höndum, en kaupir svo aftur |
hveitið upp á von og óvon
framtíðarverðsins, fyrir and-
virðið. Þetta fer eflaust brátt
að ganga svo langt, að full á-
stæða er til að spyrja, hvort
langt sé þess að bíða, að öllu
verði í voða stefnt aftur.
Það er að vísu gott útlit, sem
stendur, með að hveitiverð fari
eitthvað enn batnandi. Rúss-
land hefir hætt að flytja hveiti
á markaðinn, hvað sem því j
veldur. Uppskera brást þar lík- (
legast að nokkru. Ef til vill |
mega þeir því ekki vera án þess
sjálfir. Að hinu leytinu er þess (
þó getið til, að Frakkar hafi
lánað Rússum fé, sem þeir j
þörfnuöust mjög, og að það hafi [
með þeim skilyrðum verið gert, I Uftir langvarandi sjúkdóms-
að Rússar ekki spiltu markaði strið. andaðist að heimili sínu
fyrir þeim. En að það þurfi að j við Kandahar, Sask., húsfreyja
snerta markað annara landa. Sigriður Björnsdóttir, aðfara-
er þó erfitt að koma auga á. ' nðtt fimtudagsins hinn 15. þ.
En sé nú hækkun verðsins á j Hún var búinn að liggja
SIGRÍÐUR BJÖRNSD6TTIR
12 marz 1873 — 15 okt. 1931.
hart nær tvö ár rúmföst og
löngum mjög þjáð. Var það
krabbamein er dró hana til
dauða.
Sigríður sáluga var fjölhæf
kona og einkar vinsæl; kom
það í Ijós, ekki eingöngu við
útför hennar, sem bygðarlagið
svo að segja alt tók þátt í held-
ur og yfir hinn langa veikinda
tíma, er nágrannar hennar og
ættingjar vildu sýna henni hina
mestu hluttekningasemi, og á
ýmsan hátt hlynna að henni og
aðstoða börn hennar og eigin-
mann í mótlæti þeirra og ervið-
leikum.
Sigríður sál. var fædd á Þorp-
hveiti þessu að þakka, hver
getur þá sagt um, hve lengi
það helzt?
Og mundi ekki einnig á sama
standa hvort væri. Sækir al-
menningur nokkurtíma gull í
greipar héðnanna í kornkaupa-
höllinni? Á hann nokkum kost
á að vinna taflið á móti þeim,
sem hann á þar við? Sú hefir
að minsta kosti sjaldnast orð-
ið raunin.
Væri því ekki forsjálla fyrir
menn að fara varlega í þetta
fjárhættuspil fyrst um sinn?
Og er það ekki undarlegt, að
alt það, sem á undan er farið,,
skuli um hæl gleymt, er ofur-1
lítið rofar til? Og svo þegar í( um í Tungusveit í Strandasýslu
vörðurnar rekur aftur, er und-; 12 marz 1873. Foreldrar hienn-
ireins stjórnunum, óeðlilegum ar voru þau hjón, Björn Jósephs
tímum, guði eða náttúrunni son og Þóra Guðmundsdóttir er
um allar torfærurnar kent, er síðustu búskaparár sín á ís-
einstaklingurinn sjájfur Jiefir j landi, bjuggu á Þorpum og
kepst við að leggja á leið sína. fluttust þaðan vestur um haf
-------T— sumarið 1883, og námu sér
JÁRNBRAUTAÞJÓNAR land í íslenzku bygðinni í N.-
MÓTMÆLA KAUPLÆKKUN Dak., skamt frá Mountain. Voru
--- þau bæði ættuð af vestfjörðum,
Vélfræðingar, kindarar og Björn fæddur við Breiðafjörð og
símaþjónar beggja járnbrautar-j alinn þar upp að nokkuru leyti,
félaganna í Canada (CNR og en Þóra í Strandasýslu.
CPR) hafa mótmælt 10% kaup- í Dakota bjuggu þau hjón 22
lækkuninni, sem félögin höfðu ár, en fluttust þá til hinnar ný-
komið sér saman um, að fara stofnuðu bygðar við Wynyard,
fram á við þá. Halda þjónarn- árið 1905, ásamt nokkurum
ir því fram, að kaup hér sé 6-7c börnum þeirra. Þar andaðist
lægra en í Bandaríkjunum. Auk | Björn hið sama sumar, en Þóra
iess hafi þeir vegna kreppunnar
af fúsum vilja tekið kauplækk-
un mikla með því að mínka
mílufjöldann, sem hverjum
manni sé ætlaður á mánuði,
sem gefi þeim nú ekki nema 26
vinnudaga í mánuði í stað 30
eða 31 áður. En félögin benda
kona hans er enn á lífi, og hiefir
dvalið til skiftis meðal barna
sinna.
Börn þeiira Björns og Þóru
voru mörg — 18 alls — og
dóu nokkur í æsku, svo að eftir
eru nú aðeins 7 á lífi. Sig-
ríður var með þeim eldri, og