Heimskringla - 04.11.1931, Blaðsíða 6

Heimskringla - 04.11.1931, Blaðsíða 6
HEIMSKRINGLA WINNIPEG 4. NÓV. 1931. 8. BLAÐSÍÐA Á HÁSKA TÍMUM Saga frá uppreisninni á Indlandi. IEftir George A. Henty I. KAPITULI. Það væri örðugt að hugsa sér fegurri sýn. Ljósker í ótal myndum og með allskonar útflúri héngu á greinum trjánna um garðinn þverann og endilangann og vörpuðu ljós- geislum út í hvern krók og kima. Til beggja* handa meðfram öllum gangtröðum höfðu Htrengir verið festir og hafnir sem svaraði feti yfir jörðina, og á þeim strengjum héngu ótal ofurlítil ljósker, er vörpuðu glóbjörtu ljósi á hverja einustu gangtröð frá einum enda til annars. Út frá höllinni, eða kastalanum (höfðingjasetur þetta var kallað hvortveggja nafni, eftir vild þess er um það talaði) var garðurinn ger þannig, að breið grasrlð, eða stallar, tóku við hver af öðrum, til þess er níður kom á jafnsléttu. Á hverri þessari stallbrún héngu ljósker í bugðum og blóm- kransa líki. Beint framundan höllinni, fyrir neðan stallana, var gerður tjarnarpollur með hólmi í miðjunni, og umhverfis þessa tjörn var þrefaldur ljóskerahringur, og hólminn allur glóði af ljóskera fjölda. Neðri hluti hallarinnar, með öllum sínum austrænu glugg- um og dyrum og myndletri og útflúri á veggj- um sást glögt og skýrt, en efri hluti bygg- ingarinnar var svo hátt hafinn yfir ljósin að hann sást naumast í náttmyrkrinu. Þessi mynd, þetta leiksvið var virkilega austrænt, en leikendurnir flestir voru Eng- lendingar, og þótt allur fjöldi leikendanna á þessu leiksviði væru karlmenn og flestir þeirra í einkennisbúningi hermanna, af einni eða annari tegund, þá voru samt æði margar enskar konur í hópnum, sem sífelt sveimaði aftur og fram um þenna reit, eða út og inn um hinar mörgu hallardyr. Til annar handar, við endann á stöllun- um, var hornaflokkur “hundruðustu og þriðju’’ deildar Bengal fótgönguliðsins, og spilaði á hljóðfæri sín. Undir eins og þeir hættu, til að hvíla sig, tók við hornaflokkur innlendra manna, er stöðusvið hafði við hinn enda gras- stallanna. Höllinn sjálf glóði í ljósinu, og í einni stóru stofunni mátti enn sjá nokkra sitja við veizluborðin. Hinn drambláti Rajah Nana Sahib reikaði aftur og fram meðal gesta sinna', hrósaði konunum, en sagði ýmist karlmönnunum sögur eða hlýddi á þeirra sögur og hló með þeim að. Hann talaði ensku ágætlega og var viðfeldnin sjálf, — ágætis félagsbróðir, að dómi gestanna. Kvöldskemtun þessi hafði gefist ljómandi vel. Til hennar höfðu verið boðnir allir herforingjar og yfirmenn, og all- ir embættismenn Breta, ásamt konum þeirra, í nágranna þorpum öllum. Fyrst var veizla fyrir karlmenn útaf fyrir sig, og var svo umbúið, að kvenfólkið skyldi koma til hall- arinnar þegar karlmenn stæðu upp frá borð- um. Og kvenfólkinu til heiðurs og skemtunar var þessi ljósavefur ofinn um garðinn allan, horna-músik og ýmsar innlendar skemtanir. Sú skemtun lyktaði með fiugelda skotum, sem mikið þótti kveða að. Að þessu loknu voru gestir allir kallaðir til kvöldverðar. Við það tækifærf flutti Rajah-inn ræðu, þar sem hann dáðist mjög að Bretum og lýsti með fögrum orðum hve vænt sér þætti um þá. í lok ræð- unnar bað hann gestina drekka minni kvenna og fór um það svo fögrum orðum að það var sem ilmur angandi blóma drypi af hverju hans orði. Já, hann var góður félagsbróðir, þessi Rajah. Smekkur hans virtist talsvert áþekk- ur smekk Breta. Hann var sífelt að snæðingi með herforingjum Breta í herbúðum þeirra. Hann var góð skytta, og við billiard-spil hélt hann sínum hlut, á móti flestum hinum. Hann átti fjölda af enskum góðhestum, og akfæri öll voru hjá honum óaðfinnanleg, og að ríkis manna sið hafði hann og ætíð nokkra veð- hlaupahesta. Hann var líka sjálfsagður gest- ur á hverri skemtisamkomu, hverri einustu dansveislu. Og í höll hans Bithoor voru líka breskir herforingjar og embættismenn æfin- lega velkomnir. Þar hafði hann stóran bill- iard-sal, og í hallargarðinum afgirtan völl, þar sem háðir skyldu enskir knattleikir. Einu sinni, og stundum tvisvar í viku hafði hann heimboð fyrir tólf til tuttugu Brezka her- foringja. Á öllu Indlandi var ekki sá Rajah, er nær stæði Englendingum að því er snerti smekk og hlutdeild í félagsmálum. Og um vinfengi hans, gat enginn efast. Hafði hann ekki svo sjaldan látið í ljósi, að sín tilfinnanleg asta sorg væri, að hörundslitur sinn og trúar- bönd, gerðu sér ómögulegt að vona að eign- ast enska konu. Alt þetta var þeim mun að- dáanlegra, þeim mun hrósverðara, þar sem kunnugt var að hann hafði góða ástæðu til að kvarta undan stjórn Breta. Þannig var alment álit Englndinga á þessum höfðingja, og þó var álit enskra kvenna enn betra. Við enska kvenfólkið var hann ekkert nema gæð- in og kurteisin. Vildu einhverjar frúmar bregða sér eitthvað, voru hestar hans og ak- færi æfinlega sjálfsagðir í þjónustu þeirra. Hann var manna fljótastur að rétta konum hjálparhönd og Ijá lið á hvern hátt sem þurfti, ef þær voru að brugga skemtisamkomu, eða eitthvað slíkt. Hann sendi oft horna- flokk sinn til að spila í lystigarði Brezka lýðs- ins, og tignuðustu herforingja konunum sendi hann ekki ósjaldan dýrindis sjöl og gullstáss að gjöf. Að hann var hvers manns hugljúíi er þessvegna ekkert undarlegt. Hann var rétt núna að tala við Wheeler hershöfðingja og nokkra flokksforingja aðra. “Eg get fullvissað ykkur um”, var hann að segja, “að eg ætla mér bikarinn. Eg er búinn að kaupa hestinn, sem tók öll hæztu verð- launin í Bombay. Eg hafði strengt þe9s heit að eignast þenna bikar og í því skyni keypti eg þenna gæðing. Eg er tilbúinn að leggja fram veðfé, ef einhver af ykkur vill veðja”. “ Nógur tími að tala um það seinna, Rajah” ,svaraði einn flokksforinginn hlægj- andi. “Við vitum ekki enn hvaða bestur verður látinn þreyta kapphlaup gegn þessum Bombay-gæðingi. Fyrri en við vitum það og sjáum hvernig veðmál standa getum við ekk- ert gert. Satt sagt efa eg að við höfum nokkurn hest, er tiltækilegt sé að hleypa móti þínum, æg er hræddur um að þú megir bjóða meira en dal móti dal”. “Við sjáum nú til”, sagði Rajah-inn. “Eg hefi æfinlega verið óheppinn, en í þetta skifti ætla eg mér að hafa heppnina mín megin”. “Engan myndi gruna, að þú tækir þér veðmálatap þitt nærri, Rajah”, sagði Wheeler hershöfðingi, “en efalaust er það, að þú veðjar oft gapalega”. “Já, en í þetta skifti ætla eg nú að sópa, — það er held eg orðið sem þið brúkið þegar mikið er um að vera. Stjómin hefir farið svo illa með mig, að eg má til með að neyna að létta vasa herforingja hennar og embættis- mannaZ’. “Þú baslast þó af nokkurn veginn enn”, svaraði Wheeler hlægjandi. “Eftir annað eins fyrirtaks gildi og kvöldskemtun eins og þú toefir veitt okkur nú, geturðu varla kallað þig fátækan mann”. “Ó, eg veit vel að eg er ríkur”, svaraði Rajahinn, — hefi nóg til að fullnægja mínum litlu kröfum til nautnalífsins. Eg veit einu sinni ekki hvert eg gæti æskt eftir meiri auð- æfum, en það ter nú svona samt, að maður er aldrei allskostar ánægður. Gestirnir voru nú að búa sig til heim- ferðar og hafði Rajahinn nóg að gera í hálfa klukkustund að hjálpa þeim að týgja sig og kveðja. Þegar seinasti gesturinn var farinn, gekk hann tafarlaust inn í höllina, og gegnum sal eftir sal, þar til hann kom að fortjaldi sem hann dró til hliðar og gekk þar inn í tiltölulega lítið herbergi. Veggir þess og súlur voru úr hvftum marmara, en í marm- arann voru greyptir marglitir steinar, er þann- ig mynduðu marglitar myndir og rósir á veggjum og súlum. Fjórir gyltir lampar héngu niður úr loftinu. Dúnmjúk dýrindis klæði huldu alt gólfið, og í öðrum enda herbergis- ins var bekkur yfir það þvert, um feti hærri en gólfið, og á honum voru haugar af kodd- um og silki-sessum. Eftir að hafa gengið um gólf litla stund, þrýsti hann á silfur-bjöllu með annari hendi, og að vörmu spori kom þjónn inn. “Sendu þá Koosheal og Imambux hingað”, sagði Rajahinn, og komu þeir undir- eins. Imambux var herstjóri Rajahsins, en Koosheal hafði bústjórn á hendi. “Það hefir alt gengið Ijómandi vel”, sagði Rajah-inn. Ráðsmenska þín er góð, Koosheal. Einu sinni enn, í allra mesta lagi, — og þá erum við lausir við þá. Þeir gera sér litla hugmynd um það, sem vinur þeirra, Nana Sahib, er að undirbúa fyrir þá. Hve dáðlausan aumingja hugsa þeir mig vera, — hugsa að eg í auðmýkt kyssi hþndína sem hirtir, sem rænir mig, og sé sannur vinur þeirra, sem hafa svift mig erfðarétti mínum. En það er misskilningur. Stund reiknings- skaparins er að nálgast, og þá verður böl þeirra þungt. Eru nokkrir af sendimönnum þínum komnir aftur, Imambux?” “Þeir hafa komið margir í kvöld, æru- verði herra", svaraði Imambux. “Viltu tala við þá nú, eða bíða til morguns?” ‘Eg vil tala við þá nú”, sagði Rajah-inn. “Eg Þarf að geta gleymt þessum málaskúmum og kvenfólkinu þeirra með beru axlimar! Láttu mennina koma einn og einn í senn. Eg þarf ykkar ekki með fjmi en á morgun. Þegar ræða skal mál sem heill alsveldisins er undir komlð, er lfka heppilegast að tveir menn, en ekki þrfr, sitji á fundi.” Valdsmenn Rajahsins svöruðu engu, en hneigðu sig og gengu út. Litlu síðar dró þjónninn tjaldið til hliðar, en inn gekk maður í betlimannafötum, sem þeg- ar, kastaði sér á kné og hneygði sig þangað til enni hans nam við gólfdúkinn. Svo reisti hann sig við en kraup þó á hnjám sínum, vís- lagði hendumar yfir brjóstið og horfði ofan á gólfið, — í- mynd hinnar dýpstu lotning- ar. “Hvar hefir þú farið?” spurði Rajahinn. “Þræll herra síns hefir verið þrjár vikur í Meerut. Eg hefi gert eins og mér var boðið. Eg hefi útbýtt Chup- aties¥ meðal innlendu her- mannanna og lét ætíð fylgja þessi orð: “Sjá, stundin nálgast”, en svo var eg æfinlega kominn burt, áður en nokkur fiengi ráðrúm að spyrja mig. Svo tók eg mér annan dular- búning og fór svo um sölutorg og búðir og kom svo tali mínu, að bærust þau ummæli að Sepoyar væru saurgaðir og óhæfir meðal manna, því þeir hefðu borið í munn sér byssu kúlur, er smurðar hefðu verið í svína- feiti, og að stjórain hefði vísvitandi látið smyrja kúlurnar til þess Sepoyar allir töpuðu réttindum sinnar stéttar. Eftir að hafa komið af stað umræðum um þetta læddist eg burt. Sögur þessar berast Sepoy-hermönnunum efa- laust”. Rajahinn kinkaði kolli og sagði: “Kom þú aftur á morgun, um hádegi. Þú skalt þá fá laun þín, og — meira verkefni. En gæt þess, að þegja yfir þessu. Ef þú sleppir einu einasta orði, skaltu aldrei geta umflúið hefnd mína, þótt þú flýir og felir þig f fjarsta < horai Indlands”. Sendimennirair komu nú hver á eftir öðr- um og sögðu ferðasögur sínar. Sumir voru í betlimanna fötum eins og sá fyrsti, aðrir í töframannagerfi, og einn þeirra var búinn eins og ríkur kaupmaður. Að undanteknum þessum síðast nefnda höfðu þeir allir sams- konar sögur að segja og sá fyrsti. Allir út- býttu þeir kökunum og allir hræddu menn með frásögninni um svínafeitina á kúlunum, og í hverjum tilgangi það var gert. Sá í kaupmannsbúningnum kom seinastur. “Hvernig gengur það, Mukdoomee?” spurði Rajahinn. “Það gengur vel, hái herra! Eg hefi ferðast um öll héruðin, þar sem feður okkar dvöldu áður en útlendingarnir tróðu fólk okk- ar undir og ýmist drápu það í hrönnum eða köstuðu því í dýflissur. Flestir þeirra, sem í fangelsi hafa setið, eru nú lausir og eg hefi talað við marga þeirra. Flestir þeirra eru nú gamlir orðnir og óhæfir til að taka upp yngri ára iðju, en vart er sá, að ekki hafi hann á laun kent iðn okkar syni eða sonar- syni sínum, eklti til að æfa þá list, — þeir hvítu voru of harðhentir á okkur fyrrum og nú er gróðinn ekki lengur nógu mikill til að ginna menn í svo hættulegt starf, — en þeir hafa kent okkar gömlu iðn, af því sú list er of dýrðleg til að falla í gleymsku. Það er ódauðleg unun í því, fyrir dýrkendur gyðj- unnar ,að búa til veiðibrelluna og kasta snúr- unni um háls þeirra, er í gildruna ganga. Á æskuárum mínum söfnuðumst við stundum tíu eða tólf saman í hóp til að fanga farandi menn, þó ávinningur okkar væri minni en algeng vinnulaun fyrir jafnlangan tíma. En okkur var sama. Við vorum svarnir fóstbræð- ur, og störfuðum undir merkjum Kali** og vorum svo ánægðir gætum við sent henni herfang. Jafnvel nú, eftir fimtán til tutt- ugu ára vist í fangaklefum útlendinganna minnumst við þessarar yndislegu iðnar með fögnuði. Það getur enginn hatað “hvítu” mennina eins innilega og rið. Hafa þeir ekki l' gereytt okkar dýrðlegu iðn? Það er tvent sem altaf vakir fyrir okkur, fyrst, — að hefna oki"”\ og annað, að takist að binda enda á stjórn þessara hvítu manna, getum við fóstbræðir tekið til starfa á ný og rænt. og drepið ferðamenn okkur sjálfum til gagns og ánægju og gyðjunni Kali til dýrðar, því enrinn innlendur prinz þyrði að amast við okkur. Þessvegna mátt þú óhræddur treysta okkur öllum, sem einu sinni vorum stigamenn og morðingjar, og okkar sonum og sona-son- um. Eg segi ekki að við gætum gert stór- virki í orustu, því bardagamenn höfum við aldrei verið, en við kunnum að kyrkja mienn og getum á þann hátt verið gagnlegir, og þögulir erum við og hættulaust þessvegna að senda okkur með skilaboð, hvert á land sem vill. Við þekkjum allar brautir, allar slóðir, — rötum allstaðar, og okkar menn hafa lag á að leiða útlendinga, af öllum stéttum, af- vega, og ráðast svo á þá og drepa á laun. RobinlHood FI/ÖUR ÞETTA MJÖL ER ÁBYRGST AÐ GERA YÐUR ÁNÆGDA, EÐA ÞÉR FÁID PEN- INGANA TIL BAKA. *) Chupatie þýðir kaka úr mjöli og vatni, og að gefa þær kökur undir þessum kring- umstæðum var skoðað sem framboð til víga. Þýð. **) Kali er ein af gyðjum Brahma- trúar manna. Við kunnum að læðast inn í hús og herbúðir í nátt myrkri, og velja úr þá sem vill og myrða í svefni, svo ekkert beri á. Þér er ó- hætt að trúa þeim, há'i herra. Þeir hafa fyrir löngu lært að hata og eru svo tilbúnir hver á sinn veg að egna menn til óeirða og upp- reistar, þegar kallið kemur. Að vísu er satt, að sumir fóstbræðranna álíta liðinna ára iðnað sem yndælan draum, en mér hefir hvarvetna tekist að vekja þá til sannfæringar um þýðingu málefnisins og því enginn efi að stigamenn allir á Indlandi og þeirra afkom- endur eru ótrauðir fylgismenn”. “Þú hefir vænti eg ekki nefnt mig á nafn?” spurði Rajahinn þá og beindi hvöss- um augum að sendimanninum. “Auðvitað ekki, hái herra”, svaraði hann. “Eg hefi aðeins sagt þeim að lausnin væri f nánd, að spádómurinn væri að rætast sem segði að útlendingar mundu eyðast og hverfa úr landinu, eins og fallin skógarlauf, og að með hvarfi þeirra kæmi dýrkun og dýrð Kali endurrisin og að þá gætu fóstbræðurnir ó- hultir safnast saman á ný á þjóðvegum lands- ins og rakað saman herfangi fyrir gyðjuna sína. Og, sem sagt, eg þori að ábyrgjast, að allir synir fóstbræðranna, sem fallið hafa fyrir útlendingunum, eða hafa verið hneptir í fangaklefum þeirra, hlýða hverri skipun sem þeim berst, alt fram í andlátið.” “Vel sagt,” sagði Rajahinn. “Þið og bræður þínir eigið í vændum ríkulega upp- skeru og þá fullvissu að hin helga snara ykkar þarf aldrei framar að vera iðjulaus. En nú máttu fara. Það er komið undir morg- un og eg vildi sofna”. Samt leið nú æði stund þangað til Rajah- inn lét aftur augun. Hann sat og hugsaði um ráðagerð sína, sem hann svo lengi hafði velt fyrir sér, en sem nú fyrst sýndist líkleg til að hafa framgang. “Eg hlýt að sigra”, hugs- aði hann. “Fólkið alt hlýtur að grípa til vopna undir eins og Sepoy-hermennirnir gefa því bendingarnar, — þ. e. undir eins og þeir ráðast á herliðið. Hvítu foringjana grun^ir ekkert. Þeir trúa jafnvel að eg, sem þeir hafa rænt, sé vinur þeirra. Þeir eru hieimsk- ir, og er það vel, og að þeir halda áfram að trúa mér þangað til minn tími er kominn, þá kreisti eg þá milli fingra minna eins og visið strá. Ekki einn þeirra skal sleppa. Eg vildi bara að eg mætti vera eins viss um öll héruð Indlands, eins og eg er óhræddur um þetta. Um Oude-héraðið óttast eg ekki. Þar veit eg að allir rísa upp sem einn maður. Og konungs-synirnir í Delhi, — jú, þeir vierða að vera leiðtogarnir, þó gamli konungurinn hljóti að bera nafnið. Sjálfur hefi eg f raun réttri taumhaldið og verð svo, eins og “Peisheva*”, óháður þjóðhöfðingi og geng næst keisaran- um að völdum og tign. En ekkert má vitnast fyrr en hver einasti indverskur hermaður, alt frá Calcutta og norður á landamæri, er tilbúinn að grípa til vopna”. Þannig hugsaði °g gruflaði Rajahinn til þess dagur rann. Og þetta var sami maðurinn, sem stuttri stund áður hélt svo yndislegt gildi fyrir alla brezka hershöfðingja og embættismenn frá Cawnpore og sem þeir menn allir trúðu og treystu að væri einn þeirra bezti vinur, og ágætis drengur í alla staði. Svo leið og beið. Sendimenn Rajahsins komu og fóru. Stormskýin voru að dragast saman og nálgast. Af ytra útliti að dæma hafði þó aldrei verið'meiri kyrð á Indlandi, eða framtíðarhorfur betri. II. KAPfTULI. Unglingsmaður í mórauðum strigaföt- um með hvítan dúk marg-vafinn utan um hjálminn, sem hann hafði á höfði, var að stíga á bak hesti sínum, framundan íbúðar- húsi einu í þorpinu Deennugghur, um fjörutíu mílur frá Cawnpore, þegar tveir menn riðu heim að húsunum. “Hvert skal ríða, Bathurst?” spurði annar. “Eg ætla að bregða mér út til Narkeet”, svaraði Bathurst, því svo hét unglingsmaður- inn. *) Peisheva er stéttar nafn. Þeir m skipuðu þá stétt voru Brahma-prestar, < voru jafnframt æðstu ráðherrar konung og réðu í raun réttri meir en konungur sjál ur. — Þýð.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.